Leita í fréttum mbl.is

Kosningarbaráttan í Danmörku

Haltu kjafti kona Muslim Style
 

er leiðinleg og stjórnmálaflokkar ætla allir að gera það sama, því greinilega er ekki hægt að gera betur en sú stjórn sem er nú við völdin. Einstakir flokkar hafa þó draumsýnir, sem auka skattabyrði og það freistar ýmissa óábyrgra draumóramanna í flata landinu.

Svo er hinn mikli fjöldi innflytjenda í Danmörku sem hefur fengið hér ríkisfang. Þátttaka þeirra í kosningum er ekki eins mikil og innfæddra Dana. Og nú er Allah farinn að blanda sér í kosningarnar, eða réttara sagt öfgafullir útsendarar hans. 

Nokkur fjöldi innflytjenda með múslímskan bakgrunn býður sig fram í öllum flokkum nema í Danska Þjóðarflokkunum.

Nokkuð hefur verið rætt um það í Danmörku að öfgafullir fulltrúar Allah í Danmörku hvetji (les hóti) fólk til að taka ekki þátt í kosningunum. Lögin eru Allahs og lýðræði er hræsni, samkvæmt öfgafullum múslímum sem reynt hafa reyna að loka munninum á frambjóðendum innflytjenda, einnig á táknrænan hátt. Á kosningarspjöld eins  frambjóðanda úr röðum Krata í Danmörku, Yildiz Erdogans, hafa einfaldlega verið límdir miðar yfir munn hennar og boðskapurinn er ljós: LOVGIVNING TILHØRER ALLAH, DEMOKRATI ER HYKLERI, HYKLERI I HELVEDET. Öll spjöld Yildiz Erdogans í Thingbjerg höfðu verið eyðilög á þennan hátt í gær.

Allahs Budskab

Svona er Danmörk í dag. Danmörk liggur í ESB, sem sumir Íslendingar sækjast svo heitt eftir að komast í.

  Danmarks Nationale Front

Danskir nasistar, í flokki sem kalla sig Danmarks Nationale Front, bjóða ekki fram, en dreifa þessum boðskap: ALLE HAR RET TIL DERES LAND, ISRAEL UD AF PALESTINA, PALESTINA UD AF DANMARK!

Þetta skiljið þið. Þetta er nærri því sama smérið og vinstri menn eru með á Íslandi.

Jú, meðan ég man:

Ég hélt að svona hótanir tíðkuðust ekki á Íslandi. Múslímar haf ekki boðið sig fram til Alþingiskosninga, enda enn mjög fáir á Íslandi. Myndu trúbræður múslímskra frambjóðanda í kosningum á Íslandi hóta þeim?

Um daginn voru mér sendar upplýsingar um aðstæður á vinnustað einum í Reykjavík, þar sem mér var greint frá Múslíma frá Norður-Afríku sem átti það til að heimta bónus, þegar föstumánuðurinn Ramadan gekk í garð. Svo vitnað sé í heimildarmann: "Hann hefur átt í útistöðum við Íslendinga, Pólverja, Portugali, Litháa og fleiri. Hann kvartaði mikið undan svertingja sem hann var að vinna með og sagðist ekki geta unnið með honum vegna negrafýlu. Hann fékk því framgengt að svertingjanum var sagt upp störfum. Einnig átti hann í útistöðum við Portúgali. Einn Portúgalinn  ætlaði að skera hann á háls á vinnustaðnum". Starfsmannastjórinn á þessum huggulega vinnustað varaði starfsmannin við er hann kom úr sumarfríi árið 2008, "að hann þyrfti að passa sig á aröbunum vegna þess að þeir væru núna í brjáluðu skapi. Ramadan föstumánuðurinn var byrjaður".

Maður þessi "hefur margoft öskrað á vinnustaðnum að drepa ætti Bandaríkjamenn og gyðinga. Í sambandi við 9-11 sagði hann að hann hefði viljað að fleiri Bandaríkjamenn hefðu verið drepnir í árásinni. í heimildarmyndinni um 9-11 sagðist hann hafa spólað aftur til baka til að heyra aftur og aftur hvernig Bandaríkjamenn skullu til jarðar".

Ef þetta er rétt, sem ég hef enga ástæðu til að ætla að sé ekki, þar sem þessar upplýsingar voru einnig sendar í bréfi til stéttarsamtaka í Reykjavík, þá vona ég að öfgamennirnir sem hér er lýst fari ekki að bjóða sig fram til Alþingiskosninga á næstunni, eða hann fái ekki leyfi til að sinna trúnaðarstörfum. Maður vonar að VR komi í veg fyrir slíkt og að svona hlutir geti gerst á vinnustöðum.


Ritað á liminn

Chomsky Fan Club
 

Þeir sem skrifa opinberlega á blogg og eru ekki sammála öllu því sem er til vinstri við hægra eystað á Jóni Baldvini Hannibalssyni, hljóta að þekkja Sindra Freysson heimsspeking blaðamann og rithöfund, sem gerir oft athugasemdir hjá þeim, sem hann telur hafa rangar skoðanir á hlutunum í heiminum.

Eins og allir rétthugsandi fór Sindri á fyrirlestur guðsspjallamannsins Chomskys í Háskólabíói í gær. Sindri Freysson greinir frá því á fésbók einhvers staðar, að lýðurinn hafi eftir fyrirlesturinn flykkst að spámanninum. Þarna kepptust lærðir og leikir, ærðir sem veikir við að fá handaálagningu eða áritun Chomskys.

Skyndilega stendur heilagur Chomsky með gervilim í fanginu og tússpenna í hendinni. Straumurinn fór af neongeislabaugnum eitt andartak, og mátti heyra saumnál detta á plastgólfið í bíóinu. Noam mundar svo tússið og krassar CHOMSKY á liminn og tautar,"Well, that´s a first". Varð Sindri Freysson vitni að þessari jarteikn, og hún er smámsaman að komast í heimsfréttirnar.

Það sem Sindri Freysson veit ekki er, að eigandi limsins ætlar aldrei að þvo hann aftur. Það sagði hann þegar hann haltraði út um SV-útganginn. 

Maðurinn, sem sést hér að ofan með Chomsky, sem í sumar hélt því fram opinberlega, að ég væri njósnari Mossad, (og telur mig þar með væntanlega líklegan til að hafa staðið á bak við árásina á Tvíburaturnana), fékk handaálagningu hjá Chomsky. Það hljóta að vera smá sárabætur fyrir að stofnun Palestínska stórríkisins hefur verið frestað vegna veðurs, meðan menn bíða eftir stórsóknum Ottómanska Kalífatsins og þræla Faraósins á eina frjálsa ríkið í Miðausturlöndum?

576401

Áður en Chomsky blessaði lýðinn, blessaði múmínsnáðinn við Tjörnina hann í morgunsólinni.


Austur úr hriplekum eistneskum Aski

30004414

Askur Alas, heitir blaðamaður á Eistlandi, sem hefur fengið þá fiskiflugu á lokið, að ég hafi skrifað um sig grein. Þessu hélt hann nýlega fram á bloggi Jóns Baldvins Hannibalssonar. Hér er greinin mín sem Aski þar eystra og Jóni Baldvini er svo tíðrætt um, og eins og menn geta lesið, ef þeir kunna það, hefur Aski Alas alls ekki hlotnast sá heiður að vera til umræðu hjá mér, eins og hann heldur sífellt fram. Mikið af því sem Askur segir mig þar að auki hafa skrifað, veit ég ekki til þess að ég hafi skrifað. Askur þessi gerir mér nefnilega líka upp orð og skoðanir. Ég get einfaldlega ekki borið ábyrgð á því sem verður til að dellu í einhverum tómum aski austur í Tallinnborg.  

Í athugasemdum við blogggrein mína um Jón Baldvin Hannibalsson, má líka sjá feilnótu á ensku frá Aski Alas.

En athugasemd við hvað var Askur að setja á bloggi Jóns og hjá mér? Jú hann er alveg viss um drengurinn sá, að ég hafi í bloggi þ. 22. ágúst sl. verið að skrifa um grein sem hann reit. Ég skrifaði aldrei um Ask Alas eða grein hans í blogggrein minni (fyrr en nú). Hvað getur valdið þessari innhverfu þráhyggju Asks? 

Aski Alas og Jóni Baldvini var reyndar rækilega svarað hér í grein, sem ég kalla Jón Baldvin leggst lágt er hann lýgur um mig á bloggi sínusem birtist þann 1. september sl. Þeir svara því nú engu, en einhver Glúmur Jónsson, sem ég þekki ekki og hef ekki hitt eða skrifað um, var sendur í orðasennu á blogg mitt, sem ég leggst ekki svo lágt að svara, enda er hann mestmegnis með endurtekningar á ásökunum Jóns Baldvins Hannibalssonar, sem ég sé nú að er faðir hans. Maður getur auðvitað ekki þekkt alla, eða hvað þá að skrifa um þá, en stundum er auðvelt að sjá að sjaldan fellur eplið langt frá eikinni. Skoðið hvernig Jón Valur Jensson kveður Glúm í kútinn.

Nú breytir Askur þessi um stefnu í ófrægingarherferð sinni, sem margar hafa verið skrifaðar á síðari árum í Eistlandi um þá menn sem benda á það sem miður fer varðandi brenglaða sýn margra Eista á "frelsishetjum sínum". Skrifar hann aðeins breytta grein, sem hann birtir í Mogganum og ekki nóg með það, hann sendir þriðju greinina í visir.is, sen birtast í Fréttablaðinu í morgun. Hann skrifar einnig grein í Eesti Ekspress, sem ég hef svarað. Reyndar vill svo til, að út frá þeim athugasemdum sem skrifaðar hafa verið á eistnesku hjá hr. Aski Alas, að greinilegt er að nasismi og gyðingahatur er mikið vandamál í Eistlandi - að minnsta kosti meðal lesendaskara Alas.

Askur ógróinn 

Askur Alas

Virðist Askur starfa eftir þeirri forskrift, að ef maður endurtaki áróðurinn og óhróðurinn nógu oft, þá muni fólk trúa því að lokum sem skrifað stendur, sama hver skrumskælingin er. En viðvarandi óhróður og sjálfhverfa Asks í tengslum við skrif mín eru honum til lítillar upphefðar og lýsa nokkuð öðrum manni en ég sá í föður hans heitnum, sem ég átti mjög margar viðræður við hér í Kaupmannahöfn á sínum tíma. Sem fyrrverandi freelance starfsmaður Simon Wiesenthal Center í Jerúsalem, kemur þessi aðferð Asks Alas mér ekkert á óvart. Svona hafa ófrægingarskrif þeirra, sem ekki skilja gremju gyðinga yfir því að trampað sé á minnugu þeirra látnu ættmenna, verið. Nútímafólk, jafnvel ungt fólk, í hinum þremur ungu lýðveldum við Eystrasalt, þolir ekki að heyra gagnrýni á frumstæðar skoðanir þess um mikilvægi meðreiðarsveina nasista eða "frelsishetja", sem myrtu gyðinga áður en Þjóðverjar gerðu innrás sína, eða unnu með Þjóðverjum á annan hátt. 

Skítablaðamennska Asks Alas og útúrsnúningar eru ekki beint glæsileg. Hann skrifar t.d. "Vilhjálmur fullyrðir, að Eistar hafi drepið flesta gyðinga í landinu fyrir tíma þýska hernámsins árið 1941". Þetta er vísvitandi brenglun á setningu minni: "Eistnesk lögregla hindraði t.d  mótmæli gegn hægriöfgahópum sem minntust SS-liða, og í Viljandi héldu vinir SS mjög viljandi upp á innrás Þjóðverja, sem myrtu þá gyðinga sem Evald Mikson og félagar hans í pólitísku Lögreglunni í Tallin tókst ekki að ræna og myrða fyrir innrás Þjóðverja. 99.3% gyðinga Eistlands voru myrtar í Helförinni."  Hvar segi ég að Eistar hafi drepið flesta gyðinga landsins fyrir tíma þýska hernámsins? Líklegast er svarið að finna í höfðinu á Jóni Baldvin Hannibalssyni, heimildamanni Asks Alas.

Hér má reyndar lesa hvernig gyðingar í Eistlandi mótmæla þeirri nasistadýrkun Eista í t.d. Viljandi, sem Askur Alas er að bera í bætiflákann fyrir.

Getur virkilega verið að þjóðarhetjan í Eistlandi, Jón Baldvin Hannibalsson hefur gefið Aski rangar upplýsingar? Menn sem þekkja til stjórnmála á Íslandi vita auðvitað, að Jón Baldvin er ekki alveg öruggasta heimildin á heimilinu. Ásakanir Asks Alas, um að ég sé að ásaka alla eistnesku þjóðina, er nokkuð sem hlýtur að vera ímyndun hans eða Jóns Baldvins að kenna. En það er eitthvað að í ríki, sem leyfir göngur sem minnast meðreiðasveina nasista, þar sem þeir eru hylltir sem hetjur. Það voru þeir ekki og margir þeirra voru grimmir gyðingamorðingjar. Verðu það Askur í ESB, þangað sem ég mun beina upplýsingum um skrif þín til umræðu í nefndum sem fjalla um "vandamálið" sem allir vita um í Eistlandi. Eistland er fyrirmyndarríki á margan hátt, en það eru enn alvarleg vandamál í landinu, sem dregur ímynd þess í svaðið. Eðlilegt lýðræðisríki hyllir ekki nasista og SS-sveitir!

Mikson-málið á Íslandi 

Íslenskum blaðamönnum, fyrir utan 3-4 heiðvirða einstaklinga, var á sínum tíma varnað að skrifa um Mikson-málið eða tóku þátt í vernda Evald Mikson, (Eðvald Hinriksson), með því að birta ekki heimildir um hann sem gætu flýtt fyrir ákvörðun Íslendinga um að rannsaka mál hans. Komu sumir ritstjórar á vissu stigi málsins í veg fyrir að skrifað yrði um málið. Ekki er hægt að útiloka, að það hafi gerst fyrir þrýsting "að ofan".

Nú má greinilega ekki rifja málið upp, án þess að allt verði vitlaust heima hjá Jóni Baldvin og jafnvel víðar. Og þegar skítkast Alas birtist í Mogganum er nauðsynlegt að minnast þess að einn af aðalleikurunum í stjórnmálum á Íslandi, þegar mál Miksons kom upp á borð íslenskra yfirvalda, Davíð Oddsson, er ritstjóri Morgunblaðsins. Ekki trúi ég því, að Davíð sé að reyna breyta sögunni, eins og hann er oft ákærður fyrir af hatursmönnum sínum, þegar hann birtir grein Asks Alas, alla yfirfulla af rangmælum. Þess ber nefnilega að minnast, að Davíð tók við slatta af fúkyrðum frá Jóni Baldvin eftir að Davíð hafði tekið við beiðni Símon Wiesenthal stofnunarinnar um rannsókn á máli Miksons. Jón Baldvin óð í þeirri villu að Ísraelríki stæði á bak við það sem hann kallaði smánarför Davíðs Oddssonar til Ísrael og sagðist Jón í sporum Davíðs hafa tekið fyrsta leigubílinn út á flugvöll og heim. Sjá hér.

Menn muna kannski líka, hvernig Jón vann gegn þessu máli, sem hann neitar alfarið nú. En hverfum aftur til ársins 1992, áður en ég loka á kjaft Asks og tómu tunnunar á Íslandi, og sjáum hvernig Jón Baldvin og Þorsteinn Pálsson léku sér í frumrannsókn Miksonsmálsins á Íslandi. Morgunblaðið birti þessa frétt um Jón þann 27. mars það ár. (sjá einnig hér). Tók Jón Baldvin mál Eðvalds Hinrikssonar alvarlega? Nei, hann blés á það með vandlætingu og sagði að það væri eintómur KGB-áróður, þótt það sem kemur fram i skýrslum KGB um eistneska stríðsglæpamenn sé nú talið gott og gilt að nefnd sem var sett á laggirnar árið 1999. Sjálfur hitti Jón fulltrúa úr sovéska sendiráðinu árið 1961, eins og ég skrifaði í blogggreininni sem Jón og Askur fárast yfir, og ræddi um framtíð Íslands við mann sem mjög líklega vann fyrir einhverja af leyniþjónustum Sovétríkjanna. Hann Jón mark á KGB árið 1961, eða var Jón bara að leika á Sovéska kerfið?

Askur Alas skrifar á visir.is: En ég legg ekki blessum mína yfir aðferðir Zuroffs, ef hann lætur sér sæma að sniðganga rétt hinna ákærðu og skyldur réttarríkisins til að virða dómstólaleiðina. Askur Alas veit greinilega ekki mikið um aðferðir Efraims Zuroff. Zuroff hefur aldrei talað um aðra leið en dómstólaleiðina til að ná í stríðsglæpamenn.  Það var hins vegar ekki aðferð sem eistneskir ráðherrar vildu ræða árið 1992 þegar sumir þeirra héldu fram sakleysi Eðvalds Hinrikssonar. Efraim Zuroff þurfti að þola sniðgöngu ráðherra á Íslandi og í Eistlandi við kröfu um að rannsaka mál Miksons eftir þeim lögum sem á Íslandi ríkja.  Ætli óskir um slíkt hafi komið frá manninum sem talaði um fingrabrjót í dómsmálaráðuneytinu árið 1992? Voru starfsaðferðir Jóns í takt við skyldur réttarríkisins? NEI, því fer fjarri. Jón hataði Ísrael eins mikið og hann sýndi á Sprengisandi á Bylgjunni um daginn að hann gerir enn, og þegar hann taldi á sínum tíma Ísrael vera á bak við kröfur um rannsóknir á Mikson, skein fyrirlitningin út úr öllu því sem hann aðhafðist í málinu. Jón Baldvin Hannibalsson barðist gegn fullnægingu réttlætisins fyrir fórnarlömb nasista.

Jón Baldvin segir, að sumir af bestu vinum sínum séu gyðingar. Það þykir mér brengluð fyndni.

Ekki verður bókvitið  látið í askana Alas og Jón, en einn góðan veðurdag vitum við það sanna um tengsl Jóns Baldvins Hannibalssonar við Sovétið og hvernig hann seinkaði réttvísinni, þegar gyðingar vildu að íslensk og eistnesk yfirvöld rannsökuðu mál Eðvald Hinrikssonar og þau yfirvöld þráuðust við, með dyggilegri þáttöku Jóns sem utanríkisráðherra. Ég hef enga ástæðu til að trúa Jóni í einu eða neinu um eðalmannlega aðild hans að því máli. Allir vita hvernig hann fór fram í því. Askur í Tallinn ætti svo að fara að læra að hafa rétt eftir mönnum, áður en hann kallar sig blaðamann. Já, og ritstjórar Moggans og Fréttablaðsins og visir.is ættu að skammast sín fyrir að birta óhróður.

Til upplýsingar og fróðleiks, og eins til að sýna hve Askur Alas er í raun fáfróður um hagi heimalands síns, vil ég benda lesendum mínum á það ógeð sem þrífst í landi Asks með því að biðja þá að lesa þetta hér og hér. Blómarósin hér að neðan hélt ásamt vinum SS og nýnasistum upp á hátíð árið 2008. Yfirvöld bönnuðu ekki neitt og blómarósin aríska virðist halda, að það að berjast við nasista sé það sama og að hylla SS-sveitir Eista. Kannski er hún bara heimsk blondína, sem fór á ranga útihátíð?  Karlarnir efst eru líka heimskar blondínur sem börðust í Waffen-SS og eru greinilega stoltir af því í ellinni.

64096265

Öndvegisfyrirlesarinn Chomsky

Chomsky
 

Ekki rísa hugvísindin hátt í Háskóla Íslands á 100 ára "ammæli" skólans. Til að sýna hvað þetta svið nær langt í fræðunum er boðið til landsins Noam Chomsky. Hann er "öndvegisfyrirlesari" Hugvísindasviðs þann 9. september nk. Greinilega fannst ekki neinn hæfur Íslendingur, sem hafði nógu þroskaðan huga og þróuð vísindi sem landsmenn hans gátu gapað yfir í lotningu. Ekki getur það furðað, að enginn íslenskur háskóli kemst á nýbirtan lista yfir sæmilega háskóla.

Chomsky og fylgisfólk hans, sem sumir kalla Chomskyista, eru skilningsríkt fólk, jafnvel nokkuð auðtrúa. Á góðum degi getur meðal Chomskyistar varið rétt helfararafneitara til að efast um Helförina, þeir skilja verk hryðjuverkamanna og annarra brjálæðinga, hvað veldur gremju þeirra og blóðþorsta. Fylgismenn Chomskys eiga það til að líkja Ísraelsríki við Þýskaland nasismans og Gaza við gettóin. Þeir eru sammála um að BNA og Ísrael séu á bak við allt vont í heiminum. Allt vont á sér skýringu og rætur og þær rætur rekur Chomsky og þeir sem aðhyllast lýðskrum hans, til Bandaríkjanna. Þótt Chomsky sé ekki sagnfræðingur eru alþýðuskýringar hans í sagnfræði og líka stjórnmálafræði farnar að mynda "skóla". "Svona viljum við hafa það-söguskoðun" Chomskyista er ekki fræðilega gjaldgeng. Tilfinningar, eins og hatur, ræður þar meira ferðinni en raunhugsun.

Chomsky er örugglega mikill fræðimaður á sviði málvísinda, en nú hef ég ekki sérstaka fagþekkingu á því sviði, þótt ég sé ungaður út úr fornmáladeild á Íslandi. Þó svo að þau fræði, sem Chomsky setti fram á sínum tíma, og sem á íslensku kallast málkunnáttufræði, hafi æ ofan í æ tekið breytingum sem Chomsky hefur eignað skjálfum sér, þó svo að þær hafi flestar komið til vegna gagnrýni frá öðrum fræðimönnum, sem Chomsky virðir að vettugi.

Á síðari árum hefur Chomsky orðið miklu frægari og ástsælli vegna annars en málvísindanna. Hann er einn að guðspjallamönnum pólitískrar rétthugsunar, og þess vegna er honum væntanlega boðið til Íslands, því slík „fræði" þrífast hjá ákveðnu fólki, sérstaklega eftir hrunið. Það sem gert hefur hann einna vinsælastan hjá fólki sem telur sig hafa réttari skoðanir en allir aðrir, er einstakur hæfileiki hans til að lýsa hatri sínu á landi því sem hefur alið hann og Ísraelsríki sem er þjóðríki þeirra ættmenna hans sem ekki hata sjálfa sig, eins og þeir voru annars þvingaðir til að gera gegnum árhundruð ofsókna.

Það eru eru ekki málvísindi sem karlinn ætlar að fræða Íslendinga um í næstu viku. Chomsky kemur með gamalt efni sem hann gaf út bók hér um árið, eða eins og Háskóli Íslands upplýsir; "Chomsky fjallar um stöðu heimsmálanna, lýðræði, vald og ofbeldi undir yfirskriftinni: ,,The two 9/11s: Their historical significance". Þann 11. september verður áratugur liðinn frá árásunum á Tvíburaturnana í New York en Chomsky hefur talsvert ritað og rætt um orsakir og afleiðingar þeirra".

CHomsky Hezbulla
Chomksy og hryðjuverkahöfðinginn Nazrallah

Í dag er hatur í garð Bandaríkjanna og Ísraels því miður vinsælt tómstundargaman meðal margra menntamanna á Vesturlöndum og fyllir allt í hugmyndarheimi þeirra og skoðunum. Það eru nærri því orðin fremstu hugvísindin að hatast út í Ísrael, þótt frekar ætti að kalla það hugarangur. Þó gagnrýni geti mörgum tilfellum verið Ísrael nauðsynleg, er hún ekki yfirveguð meðal manna sem kunna að meta Chomsky. Gagnrýnin veldur miklu æsingi hjá gagnrýnandanum og getur hún versta falli endað með að flokkast sem gyðingahatur. Chomsky mun örugglega krydda ræðu sína með slettu á Bandaríkin og hann lýkur venjulega fyrirlesrum sínum með fúlli ælu á Ísrael með góðri undirtekt áheyrenda.

Af hverju er Chomsky eins og hann er? 

Faðir [Avrams] Noams Chomskys var hebreskufræðingurinn William Chomsky, sem eins og móðir Noams, Elsie, talaði jiddísku í æsku. Það tungumál var þó bannlýst á heimili þeirra hjóna. Þar sjáum við fyrsta þrepið í tilurð þess sem ég kalla aumkunarvert sjálfshatur Noam Chomskys. Til að "meika" það í Bandaríkjunum og víða annars staðar þurftu nýlega aðfluttir gyðingar að aðlagast kröfum umhverfisins. Ef trúin var ekki yfirgefin til að fá stöður og störf, var að minnsta kosti lokað á alla fornynju frá gamla landinu. Menn litu "fram á veg" og vildu meika það í nýja landinu. Nýja landið setti kröfur, ekki síður en það land sem fólk hafði flúið frá. Kröfurnar í báðum álfum byggðu hins vegar oftast á rótgrónu kynþáttahatri, antísemítisma. Þú lifðir stundum af ef þú varst sammála hatursmönnum þínum.

Þegar sumir ungir gyðingar í menntageiranum á Vesturlöndum sáu að vinstrisinnuðum félögum þeirra var enn í nöp við gyðinga eftir síðara heimsstríð og bundu það hatur við Ísrael, var annað hvort að fylgja lögum eða land flýja. Við sáum fjöldann allan af menntamönnum af gyðingaættum sem hötuðust út í þjóðríki gyðinga, einfaldlega til að þóknast umhverfi sínu. Ég þekki persónulega slatta af slíku fólki.  Með árunum dró hins vegar úr þessu sjálfshatri og menn sáu ljósið og mistök sín. Aðrir, eins og Chomsky, sem sótti greinilega sjúklega á viðurkenningu umhverfisins að halda, efldist allur í sjálfshatri sínu.

Árið 1979 varði gyðingurinn Noam Chomsky ásamt öðrum rétt helfararafneitarans Robert Faurrisons til að afneita helförinni á gyðingum í Síðari heimsstyrjöld. Það gerir Chomsky með tilvitnun í hinn heilaga rétt manna til að hafa skoðun, rétt sem ég tel hann hafi þrælnauðgað í tilfelli Chomskys. Ætli hann telji Breivik hinn norska hafa heilagan rétt til að hafa skoðanir sínar? Ætli hann skilji ástæðuna fyrir hatri Breiviks og gerðum, líkt og hann skilur ástæðuna fyrir hatri öfgamúslíma í garð Bandaríkjanna sem leiddi til árásanna á Tvíburaturnana.

Nei, það held ég  ekki, það er ekki sama hver maðurinn er, og þannig er það oft hjá hentistefnuspámönnum eins og Chomsky og hirðmönnum hans. Chomsky er populisti og lýðskrumari og pólitísk rétthugsun hans er ekki eins rökrétt og málvísindi hans eru - vonandi. Maður sem er svo afgerandi í dómum sínum á mönnum og málefnum, eins og Chomsky, ætti að vera í stakk búinn að búast við gagnrýni. En þar er önnur laus skrúfa í karlinum. Hann tekur illa gangrýni.

Þegar Chomsky skrifaði formála að ógeðslegri bók margdæmds helfararafneitarans franska Robert Faurrisons, hefur pólitísk skvaldur Chomsky færst í aukana. Hann segir það sem fólk með sjálfsánægjueyrnartappa í eyrunum vill heyra, en það á ekkert skylt við hugvísindi.

Æi, ég held barasta að Chomsky sé tískufyrirbæri í HÍ, eins og femínistafræði Gender-studies, hinsegin- og kynjafræði, eða hvað þetta heitir allt... 

chavez_chomsky_jpg

Maður leyfir sér að draga í efa að þessi maður kunni að lesa, en hann var samt sem áður búinn að ná sér í Noam á bókasafninu. Síðan Chavez komst til valda í Venezuela, hefur gyðingahatur verið landlægt, sjá hér og hér.


Ísraelsmaður vill kaupa Grímsstaði

Rav Avi Frankenthal

Avi Frankenthal er á leið til Íslands. Avi er er heittrúaður gyðingur frá Ísrael, rabbíni, fjárfestir í Tel Aviv, New York og London, þar sem hann býr og lifir mjög látlausu lífi. Tilgangur ferðar hans til Íslands í næstu viku er að freista þess að yfirbjóða kínverska glaumgosann Huang Nubo við bændur og búalið á Hólsfjöllum. "Ég býð einfaldlega betur",segir Frankenthal við Associated Press, sem náði tali af honum tali í gærmorgun.

Frankenthal vill reisa hótel fyrir kosher-ferðamenn, svo þeir geti notið norðurljósanna, sem oft var ort um í ljóðum forfeðra hans á jiddísku. Frankenthal, sem leggur stund á fjárhirðu, hefur einnig í hyggju að reka stórt fjárbú á Fjöllum og fá leyfi til að reka þar sláturhús, þar sem hægt verður að stund schechita, slátrun gyðinga. Hann rómar íslenskt lambakjöt, sem slátrað var fyrir hann á laun í fyrra. Hann hefur í hyggju að græða upp allt örfoka land á Fjöllum og hefur til liðs við sig vísindamenn frá Negev eyðimörkinni sem segja, að það sé auðveldara að græða upp kalda eyðimörk en heita. Avi Frankenthal hyggst einnig reisa rannsóknarstofu á norðurljósum á Grímsstöðum á fjöllum. Norðurljósin hafa alltaf heillað hann síðan amma hans sem fæddist í Síberíu sagði honum ævintýri um norðurljósin Or Hazofon und die Kinderlach. Frankenthal vill líka reisa alþjóðlegan háskóla á Grímsstöðum og samkunduhús gyðinga.

Avi Frankenthal þarf engin leyfi frá Ísrael til kaupanna, segist hafa leitað lengi eftir hentugum stað fyrir hótel sitt sem mun hafa 123 herbergi. Talan er táknræn og fengin úr hinum fornu dulspeki Kabbala. Allir verði þar velkomnir, ekki bara forríkir Kínverjar og Bandaríkjamenn.  

Avi Frankenthal, hlakkar til heimssóknar sinnar, og eins og hann segir við Jerusalem Post, þá er enginn falin pólitísk áform með tilboði hans. Hann er ekki síonisti. Hann segir að fyrirhuguð kaup sín séu ekki liður í síonistískum áformum um að ná völdum á Norðurpólnum áður en hann bráðnar. Hann leynir því þó ekki að hann hefur huga á því að flytja hluta af pólnum til Ísrael  til að leysa vatnsskort Palestínumanna og Ísraels. Vatn telur hann að sé besta lausnin á vandanum við botn Miðjarðarhafs.  "Það slekkur elda og svalar þorsta", segir Frankenthal.

Sendiherra Íslands í  Lundnúnum, Benedikt Jónsson, segir það af og frá að Avi Frankethal sé á þeirra vegum og telur það ófært að hann gerist talsmaður Avi Frankenthals á blaðamannafundi nk. mánudag, eins og Rabbi Frankenthal hefur farið fram á. Þess má þó geta að sendiherra Íslands í Kína, Kristín Aðalbjörg Árnadóttir trauð upp fyrir Huang Nubo í Peking í gær.

Ruben Asmaticus 

                                                       Ruben Aschmaticus 

Ruben Aschmaticus, talsmaður, Avis segir að Frankenthal hafi reyndar nokkuð slæma reynslu af íslenskum útrásavíkingum, en erfi ekkert neitt við Íslendinga. Hann varaði þegar árið 2004 við að fjárfesta í íslenskum bönkum í jiddiska blaðinu Dos Wort. Áður en Avi stekkur á stað til bænahalds segir hann: „Hashem (Guð) hefur birst mér og sagt að Ísland sé land möguleikanna og hreinleikans og þjóðin sé með hlutverk á meðal þjóðanna -  ég vona að ég fái að fjárfesta á Íslandi".

Þeir sem vilja sýna stuðning sinn við áform Avi Frankenthals, eða vilja fá frekari upplýsingar, geta haft samband við talsmann hans hér.


Jón Baldvin leggst lágt er hann lýgur um mig á bloggi sínu

d_billeder_ruth_rubin

 

Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi utanríkisráðherra, leggst afar lágt og fer með staðlausa stafi um mig á bloggi sínu í dag (sjá einni hér). Færsla Jóns Baldvins er niðrandi og full af lygum og dylgjum. Hann vitnar í bloggfærslu mína, sem skrifuð var 22. ágúst sl. og heldur því fram að hún hafi verið skrifuð í tilefni af því að hann sleppti sér gjörsamlega út af Ísrael í útvarpsþættinum Á Sprengisandi á Bylgjunni, þar sem hann m.a. líkti Ísraelsríki við Þýskalands nasismans. Að því tilefni get ég get aðeins mælt með því að Jón láti athuga það hjá sérfræðingi, hvort hann sé komin með Alzheimersjúkdóminn, eða fái sér dagbók eða eitthvað álíka verkfæri til að hafa reiðu á því sem gerir, segir og hugsar, því það virðist allt vera í miklum ruglingi. Hvernig á ég að hafa getað skrifað þann 22. ágúst 2011 um útvarpsþátt, sem ekki var sendur út fyrr en 28. águst 2011? Skýrðu það vinsamlegast, Jón Baldvin Hannibalsson!

JBH

Jón Baldvin lýgur því einfaldlega líka, að ég hafi skrifað um grein Asks nokkurs Alas, sem er sonur fyrrv. sendiherra Eista á Íslandi, Arvo Jürgen Alas. Ég hef hvergi skrifað um grein Asks Alsas í vikublaðinu Eesti Ekspress, þó Jón Baldvin haldi því ranglega fram og sömuleiðis Aksur Alas sjálfur í grein á ensku, sem Jón birtir á bloggi sínu og sem Alas setti 1.september sem athugasemd við bloggfærslu mína frá 22. ágúst. 

Í blogggrein minni þann 22. águst um hetjur Eistlands, greindi ég frá grein Hans Luiks eiganda blaðsins Eesti Ekspress. Hana skrifaði ég athugasemd við á vefsíðu Eesti Ekspress. Ég hef hins vegar alls ekki lesið grein Asks Alas, eins og hann og Jón Baldvin gera sér, en birti úr henni eins konar helgimynd af Jóni Baldvin. Teiknimyndina af Jóni birti ég til að bera hana saman við aðra teikningu eftir sama teiknara, og til að sýna hve mikið hatur menn leggja á mann eins og Dr. Efraim Zuroff, forstöðumanni Simon Wiesenthal stofnunarinnar í Jerúsalem, sem hefur gert það að lífsstarfi sínu að leita uppi stríðsglæpamenn, þar á meðal í Eistlandi, þar sem honum hefur nú ekki verið þakkað það starf. Askur Alas getur kannski gefið okkur nokkur dæmi um allar þær svívirðingar sem birst hafa í eistneskum fjölmiðlum um þá sem vildu draga morðingja gyðinga fyrir réttvísina.

Sem sagt, Jón Baldvin Hannibalsson, íslenska þjóðarhetjan í Eistlandi, lýgur því að ég hafi skrifað grein um hann 22. ágúst sem voru viðbrögð við útvarpsviðtali við hann sem ekki var útvarpað fyrr en tæpri viku síðar. Hann fær til liðs við sig ungan blaðamann á Eesti Ekspress, sem er sagður skilja íslensku, en er þó greinilega ekki betur að sér svo, að hann heldur að ég hafi skrifað athugsemd um sig á bloggi mínu þann 22. ágúst sl. Hann kann ef til vill aðeins að lesa á milli línanna á íslensku. Hann hefur ekki lesið færslu mína til gagns, sem fjallaði á engan hátt um hann persónulega, grein hans, eða útvarpshátt, þar sem Jón Baldvin ærðist í hatri sínu á Ísrael.

Lesendur góðir, þið hafið nú nú öll séð hvernig íslenska hetjan í baltnesku ríkjunum hatar Ísrael. Það kemur ekki á óvart. Margir flokkfélagar hans á Íslandi gera það líka. Fölsun atburðarrásar og tilvitnanna í mig eru "baltnesku" hetjunni til mikils vansa en hatur hans á Ísrael og gyðingum mun verða tekið eftir.

Hvað varðar sígildar ásakinir Asks Alas um að gyðingar hafi verið kommúnistar, sem notað er af sumum sem réttlæting á því að gyðingar voru myrtir af "frelsishetjum Eista, ætla ég ekki að neita því að gyðingar geta líka gert skyssur. En eftir stendur að eistneskar frelsishetjur byrjuðu að myrða saklausa gyðinga lands síns áður en herir Þýskalands sáust þar. Frá því verður ekki komist. Að tala um það, eru ekki árásir á Eistnesku þjóðina. Ef eistneska þjóðin tekur það þannig, er eitthvað í miklu ólagi hjá eistnesku þjóðinni.

Tökum svo dæmi um fólskulega heimildafölsun Asks Alas. Hann skrifar:" But most disappointing about Mr Vilhjálmssons story are his false claims about Estonia. He writes that Estonians killed most of Jewish people already before German occupation in 1941. This is not true." Ég hef aldrei skrifað það sem Alas segir að ég hafi skrifað. Ég skrifaði : "Eistnesk lögregla hindraði t.d  mótmæli gegn hægriöfgahópum sem minntust SS-liða, og í Viljandi héldu vinir SS mjög viljandi upp á innrás Þjóðverja, sem myrtu þá gyðinga sem Evald Mikson og félagar hans í pólitísku Lögreglunni í Tallin tókst ekki að ræna og myrða fyrir innrás Þjóðverja. 99.3% gyðinga Eistlands voru myrtar í HelförinniSvo hvaðan Alas fær þessa setningu sem ég á að hafa skrifað væri áhugavert að vita. Er Jón Baldvin að mata hann á röngum upplýsingum, eða kann Alas í raun ekki nægilega íslensku? 

Sannleikurinn er greinilega erfiður fyrir hetjuna Jón Baldvin og skósvein hans, Ask Alas, sem átti föður sem tók sem sendiherra Eistland á Íslandi beinan þátt í því að seinka málaferlum gegn Eðvaldi Hinrikssyni. Það viðurkenndi hann í símaviðtali sem ég átti við hann (Arvo Alas). Staðlausar ásakanir Jóns Baldvins og Asks Alas um að ég "hafi hrakmælt Eistnesku þjóðinni", sýnir hvað þetta eru miklar hetjur. Það hef ég hvergi gert. Ég furða mig einfaldlega á því, eins og margir aðrir um heim allan, að lýðræðisríki og ESB-ríki leyfi göngur SS-liða og stuðningsmanna þeirra, sem og aðrar öfgar sem hefur í för með sér grófa og miskunnlausa vanvirðingu á minningu þeirra gyðinga sem myrtir voru í Baltnesku ríkjunum.

Bendi ég lesendum mínum að lesa um erfiðleika Eystrasaltsríkjanna þriggja að höndla sögu sína, með því að heimsækja www.defendinghistory.com, vefsíðu sem Dr. Dovid Katz heldur úti. Dovid Katz missti prófessorsstöðu sína í Litháen fyrir að halda henni úti. Hugsið ykkur, einn fremsti sérfræðingur heims í jiddísku við háskólann í Vilnius var bolað úr háskólanum árið 2010 vegna þess að hann leyfir sér að skrifa sannleikann á heimsíðu í frístundum sínum. Það er mikið að í Eystrasaltsríkjunum.

Myndin efst sýnir Ruth Rubin. Eðvald Hinriksson, sem líklegast flokkast nú af sumum sem frelsishetja í Eistlandi, var ásakaður um morðið á henni. Áður en hún var myrt, var henni nauðgað, af mönnum sem lengi voru taldir frelsishetjur í Eistlandi. Stuðningsmenn SS og gamlir SS-liðar þramma enn um götur borga í Eistlandi.


Sannleikurinn um Huang Nubo á Fjöllum

  huang-nubo

"Face it, Iceland. You need the cash, and this guy has it."

Já, svona lýkur merkilegri grein um fyrirhuguð kaup kínverska Fjallaskáldsins Huang Nubos á íslensku landi. Finna má greinina á Shanghaiist.com. Íslendingar hafa ekki ráð á öðru, samkvæmt kínverskum fréttamiðli á ensku, en að selja Huang Nubo land.

En er ekki Huang Nubo sami maðurinn sem fyrir nokkrum árum síðan gat ekki borgað fyrir bíl undir auðmannsrassgatið á sjálfum sér, svo Hjörleifur Sveinbjörnsson eiginmaður Ingibjörgu Öryggisráðs Gísladóttur, sem hefur lengi verið í slagtogi við Huang á Norður- og Suðurpólunum, tók jeppa utanríkisráðuneytis traustataki (reyndar með leyfi Össurar Skarphéðinssonar ráðherra) til að aka fjárfestinum Huang um landið til að sýna honum íslenska náttúru? Afhenti Hjörleifur síðan bílinn óþveginn í ráðuneytið. Hjörleifur er nefnilega refur eins og Huang Nubo, þ.e.a.s. heimskautarefur. Sjá hér.

ARctic Fox Logo smaller2 copy

Huang er fæddur 1956 í borginni Lanzhou í Miðkína, og er kynntur til sögunnar sem fyrrverandi starfsmaður "Central Propaganda Department Official Affair and Bureau of foreign propaganda". Hann vann síðan sem "the Director and the Department of party member" og einnig hjá Ministry of Construction (1981-1990). 1990 fer hann í, eins og hann segir sjálfur frá á svo ljóðrænni en algjörlega óskiljanegri ensku: "The Previous positions are standing vice president of China City Publishing House which belongs to the ssociation and the Vice Secretary-General of China Association of Mayors.The incumbent President Assistant". Ég vona að menn lái mér það ekki, þegar ég held að það sé eitthvað mikið að í ævisögu Huang Nubos.

En eftir vel unnin, en óskiljanleg, störf, er það að hann setur á laggirnar Beijing Zhongkun Investment Group Co., Ltd árið 1995 (sem reyndar hét þá Zhongdian) og verður fljótlega forríkur. Upplýst er, að Íslandsvinurinn Huang Nugo sé nú í 161 sæti yfir ríkustu menn Kína samkvæmt Forbes og sé góður fyrir 890 milljónir dollara. Greinilegt er því á öllu, að hann hefur fengið frekar há laun í áróðursráðuneytinu. Hann var reyndar í 36 sæti Forbes listans fyrir ofurríka í Kína árið 2006. Hann gat því hæglega borgað fyrir ráðuneytisbílinn á Íslandi. Maður veit þó aldrei, kannski hefur Hjörleifur eða Össur þurft að borga bensínið?

Þó svo að Huang Nubo sé bæði yfirlýst ljóðskáld, Suður- og Norðurskautsfari og öfgafullur náttúruverndarsinni, þá vantar að fylla út í ýmsar eyður í lífshlaupi hans. Gaman væri að fá frá honum kvæði um hvernig maður verður forríkur í áróðursráðuneyti Kína? Hvernig er hægt að taka mann alvarlega, sem ekki upplýsir hvernig honum hefur tekist að vera í svo góðum álnum án þess að geta lýst því sem hann gerði á þolanlegri ensku.

Sjáið þið ekki, að þetta er ekkert annað kínverskur útrásarvíkingur, fyrrverandi öðlingur úr innsta koppi Kommúnistaflokks Kína, sem nú er örugglega "krati", sem býr í loftkastala og sem hrifsað hefur til sín og arðrænt vegna góðra samband í blóðrauðu kínverska kerfinu?

Og hér sjáið þið hvernig ljóðræni umhverfissinninn og pólfarinn Huang Nubo hefur komist í álnir. Fyrirtæki hans hét áður Zhongdian, nú heitir það Zhongkun:

"Many of China's most famous tourist sites are managed by politically-connected business like Beijing Zhongdian Investment Corp, which earned by more than $600 million in 2006 running sites such as Hongchun in Anhui Province and Zhongdian near Tibet in Yunnan. The company is notorious for cheating villagers whose land is developed for tourism and giving them very little of the hefty admission fees they charge tourists. The sites themselves are often developing in a way that is ugly and not culturally sensitive. Beijing Zhondian is controlled by Huang Nubo, a former Communist Party Propaganda department section chief. He is said to worth over $500 million."

Finnið þið nú þefinn af gráðuga, rauða refnum? Lesið meira um arðrán fyrirmyndaflokksfélagans, skáldsins og umhverfisverndunarsinnans Huang Nubo í Kína hér:

Svarið við áskorun www.shanghaiist.com hlýtur að mínu mati að vera eftirfarandi:

Face it, Iceland, you need to know much more about this Huang guy, and where he got his cash from, before you sell him anything.

Og svo er baráttan fyrir mannréttindum í Kína reyndar miklu fallegri en einhver kínverskur túristakofi á afdalabýli á Íslandi. Huang væri best á því að hunskast heim til sín og gera vel við þá sem hann hefur stolið frá í sínu heimalandi, áður en hann reisir ræningjabæli sitt í íslenskri afdalabyggð. Síðan væri réttast að rannsaka aðild íslenskra diplómata að þessu ævintýri Haung Nubos.


KZ IKEA - Etwas neues ?

Mein Kamprad

 

Nú eru komnar fram í Svíþjóð frekari upplýsingar um að stofnandi IKEA, Ingvar Kamprad, hafi verið í sænska nasistaflokknum Svensk Socialsistisk Samling (SSS), og hafi stutt illræmda sænska nasista sem hjálpuðu stríðsglæpamönnum að flýja réttvísina með því að fela þá og smygla þeim gegnum Svíþjóð. Einn slíkur kom til Íslands.

Fréttamaður á Sænska Sjónvarpinu SVT, Elisabeth Åsbrink, var að rannsaka vináttu Ingvars Kamprads við gyðingadrenginn Otto Ullmann sem flýði til Svíþjóðar frá Vínarborg. En við rannsókn hennar, sem nú er komin út á bók, uppgötvaði hún áður óþekktar upplýsingar um fortíð Kamprads sem nasista. Sjá hér.

Per Heggenes talsmaður Kamprads sagði fréttamönnum á Associated Press í gær, að Kamprad hefði ekki fyrr en nú vitað um skýrslur sænsku lögreglunnar, sem fylgdist með Kamprad á stríðsárunum. Heggenes bætti því víð Kamprad liti á þátttöku sína í nasistaflokknum sem "stærstu mistök" lífs síns.

Ekki kæmi mér á óvart ef IKEA-konseptið sé að einhverju leyti byggt á fangabúðum nasista. Ég get þó ekki gefið 5 ára ábyrgð á þessum grun mínum. En Kamprad lækkar örugglega verðið á pylsum, ís og Dalahestum í kjölfarið á þessum fréttum af fortíð sinni.


Eitruð pilla til apótekara og ómenntaðs starfsfólks þeirra

eitraðar pillur
 

Um daginn bárust fréttir af því að óhemjulega mörg mistök væru gerð í apótekum á Íslandi. Menn með hjartaveilu eiga á hættu að fá nikótínpillur og drepast, og fólk með gigt getur alveg eins farið heim úr apóteki með viagra.

Í gær, tæpri viku síðar, er aftur frétt í Sjónvarpinu með viðtali við forstöðukonu Lyfjaeftirlitsins, sem tekið hefur verið upp við sama tækifæri og þegar fréttamaðurinn spurðist fyrir um mistökin í apótekum. Nú er hins vegar fréttin sú, að það sé mjög langt á milli lyfjafræðinga og lyfjatækna í apótekum og útsölustöðum lyfja. Í sumum lyfsölustöðum er enginn lyfjafræðingur. Þetta er ástand sem að sögn hefur skapast af "hagræðingu" í lyfsölugeiranum.

Gott hefði verið að fá síðari fréttina með þeirri fyrri, því það er augljóst að fæð lyfjafræðimenntaðs fagfólks í apótekum er aðalástæðan fyrir því að gigtveikt fólk getur átt það á hættu að fá þungunarpróf með sér heim úr apótekinu.

Nýlega var líka frétt, þar sem greint var nýjung sem tvær ómenntaðar afgreiðslustúlkur í Apóteki á Akureyri brydduðu upp á. Þær létu kaupendur lyfja fá málshætti, spakmæli og fleygar setningar með í lyfjapokann. Enn sætt. Hvaða málshátt ætli hjartveiki maðurinn sem fékk nikótínpillur hafi fengið í pokann sinn? Jú ég veit það: Oft má lyf úr eitri brugga.

Hér er einn málsháttur handa apótekurum sem vegna græðgihagræðingar rekur fullmenntað fólk, lyfjafræðinga og -tækna, til að ráða litlar, sætar sumarstúlkur með málshætti á skítalaunum.

Margur verður af aurum ap(ótekar)i

Apatek


Eistland og hetjur landsins

Revolution hero 

Tuttugu ár eru nú liðin síðan Eistar, Lettar og Litháar brutust undan oki Sovétríkjanna og er þess skiljanlega minnst með pompi og prakt í þeim ríkjum.

Íslenskir ráðamenn, m.a. forseti Íslands, voru um helgina í Eistlandi til að taka þátt í hátíðarhöldunum, þar sem Eistar þökkuðu Íslendingum fyrir að vera fyrst sjálfstæðra þjóða til að viðurkenna Eistland sem sjálfstætt ríki árið 1991. Tallin var í gær full af íslenskum skemmtiatriðum.

file55931124_689e02d3

Hlutverk Jóns Baldvins Hannibalssonar á hinum örlagaríku dögum árið 1991 er óumdeilanlegt, og eru Eistlendingar þakklátir honum og Íslendingum fyrir stuðninginn. Hér að að ofan er teikning af Þjóðarhetjunni Jóni Baldvini Hannibalssyni eins og Eistar sjá hann. Greinilegt er þó að þeir virðast sjá hann í öðru ljósi en sumir gera á Íslandi.

Skömm er hins vegar frá því að segja, að fyrsta sameiginlega verk Eista og Íslendinga var að reyna að koma í vef fyrir að mál eistnesks stríðsglæpamanns, sem sest hafði að á Íslandi yrði rannsakað þannig að hægt væri að gera hann ábyrgan gerða sinna. Eðvald Hinriksson, sem upphaflega hét Evald Mikson, dó árið 1993 skömmu eftir að íslensk yfirvöld töldu loks ástæðu til að draga fingurna úr gati aðgerðarleysisins.

Afsakið orðabragðið, en þeim sem „rannsökuðu" málið var reyndar ætlað að komast að þeirri niðurstöðu, að Mikson væri saklaus. Neiti því þeir ef þeir vilja. Árið 1999 kom svo saman óháð nefnd sem komst að þeirri niðurstöðu, að Mikson hefði framið stríðsglæpi eins og góðvinur minn til margra ára Efraim Zuroff framkvæmdastjóri Jersúsalemdeildar Stofnunar Símons Wiesenthal hafði haldið fram. 

Þessa smánarbletts á samskiptum Eistlands og Íslands var reyndar minnst í gær í mjög undarlegri grein eftir eiganda blaðsins Eesti Ekspress sem heitir Hans H. Luik, sem er eins konar Egill Helgason þeirra Eista. Í greininni er kolkrabbanum, Sjálfstæðisflokknum og Eimreiðarhópnum greinilega kennt um margt, en einnig talað um ásakanir Ísraels á hendur fyrrverandi lögreglumanninum (veterananum) Evalds Miksons, sem Davíð Oddsson á að hafa komist hetjulega í veg fyrir. Það er hins vegar ekki verið að minnast á það á 20 ára afmæli nýja Eistlands, að þessi "fyrrverandi lögreglumaður" hafi líka verið morðingi og nauðgari. Það skýrist ef til vill af því Luik þessi var hér um árið gestur afkomenda Miksons á Íslandi og er greinilega illa við að minning eistneskra gyðingamorðingja og nauðgara sé svert.  Blað hans Eesti Ekspress er einnig þekkt fyrir að leggja mikla fæð á Efraim Zuroff. Sami maður og teiknaði helgimyndina hér að ofan af Jóni Baldvin hefur teiknað Zuroff sem djöful. Ég tel persónulega Zuroff vera mikilvægari hetju fyrir Eistland en Jón Baldvin Hannibalsson.

Zuroff i Eesti Ekspress

Heimsfrægur er seinagangur stjórnvalda í máli Miksons, sem má þakka mönnum eins og Mart Laars, Davíð Oddssyni og Lennarts Meeri, og sömuleiðis einkennilegt framferði yfirmanna á íslenskum fjölmiðlum, sem bönnuðu blaðamönnum sínum fréttaflutning af heimildum um glæpi Miksons. Ellert B. Schram, mágur Jóns Baldvins, var einn af þeim ritstjórum sem bönnuðu einfaldlega á ákveðnu stigi skrif um Mikson á Vísi. Duglegir rannsóknarblaðamenn eins og Þór Jónsson fengu bann við því að skrifa um málið.

Ég er þó viss um að Jón Baldvin hafi alltaf verið fylgjandi því að gyðingamorðingjar yrðu sóttir til saka, þó svo að hann hafi ærst þegar Simon Wiesenthal Center i Jerúsalem afhenti Davíð Oddssyni beiðni um að rannsaka mál Eðvalds Hinrikssonar.

Jón Júrí og Arnalds

Í því sambandi er kannski við hæfi að rifja upp, að Jón var sjálfur nærri því orðið "fórnarlamb" Rauðrússanna hér um árið, þegar menn héldu að hann væri á mála hjá KGB. Ekki er þó hægt að lá mönnum þá skoðun, því að Jón átti síðla árs 1960 fund með starfsmanni sendiráðs Sovétríkjanna, hinum merka manni Juri A. Rechetov, sem hvarf yfir móðuna miklu árið 2003. Juri er af mörgum talinn hafa stundað það á Íslands sem menn kalla venjulega njósnir og undirróður, eða fram til ársins 1966 að hann sneri aftur til Moskvu. Löngu síðar kom hann sem sendiherra til Íslandi, og var þá með doktorsgráður heimsspeki og alþjóðlegum refsirétti upp á vasann. Hann skipti sér af rannsókn Miksons-málsins, mörgum til mikillar gremju. Rechetov hitti Ragnar Arnalds og Jón Baldvin Hannibalsson fyrir utan veitingahúsið Naustið í október 1960. Kannski voru þeir bara að tala um fótbolta, en Rechetov hitti svo sannarlega naglann á höfuðið hvað varða alþjóðlega skyldur Íslands til að rannsaka mál Miksons. Grein hans var m.a. til að boltinn fór þrátt fyrir allt að rúlla á Íslandi.

Jú, sumir menn fara víða eftir dinner og drink á Naustinu á kostnað Kremlverja. Jón er orðinn þjóðarhetja í Eistlandi, Ragnar Arnalds er enn Ragnar Arnalds og aðalandstæðingur ESB. Hins vegar tel ég ekki líklegt að Eistar viti að þjóðhetjan Jón Baldvin Hannibalsson hafi verið í tygjum við rússneska sendiráðsstarfsmenn í Reykjavík, að minnsta kosti fyrir fram Naustið i haustið 1960. Oli Jón Baldvin Hannibalsson spioon venelaste?

Í sumar hafa sumir Eistar einnig minnst innrásar Þjóðverja í landið árið 1940, og margir hverjir með furðulega miklum hlýhug. Eistnesk yfirvöld telja þetta greinilega sjálfsagðan hlut. Eistnesk lögregla hindraði t.d  mótmæli gegn hægriöfgahópum sem minntust SS-liða, og í Viljandi héldu vinir SS mjög viljandi upp á innrás Þjóðverja, sem myrtu þá gyðinga sem Evald Mikson og félagar hans í pólitísku Lögreglunni í Tallin tókst ekki að ræna og myrða fyrir innrás Þjóðverja. 99.3% gyðinga Eistlands voru myrtar í Helförinni.

Frelsi Eistlands, Lettlands og Litháen hefur augljóslega ekki komið í veg fyrir að óeðli ófrelsis, gyðingahatur og dýrkun fasisma er enn ásættanlegt ástand í þessum ríkjum. Það á ekki að vera ásættanlegt að Íslands styðji ríki, þar sem fasismi er enn dýrkaður og þar sem minning um helför gyðinga er hunsuð meðan leyft er að hylla svo kallaðar "frelsishetjur" sem hófu útrýmingu á gyðingum baltnesku landanna áður en þýskur her hóf innrás sína í þessi ríki. Fyrir utan að virða alveg örlög gyðinga í löndum sínum með því að hylla morðingja þeirra eru Eistar, Lettar og Litháar enn fremur afar móðgunargjarnir þegar þeir eru minntir á þennan svarta blett sögu sinnar, þegar frelsishetjur þeirra brytjuðu gyðinga niður.

Ég er einn þeirra sem ekki hef í hyggju að sætta sig við sögufölsun Eistlands, Lettlands og Litháens.

P.s. Myndin efst er ekki tekin fyrir utan Valhöll. Rússneskur arkitektúr hefur háð öðrum en Íslendingum.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bækur

Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband