Leita í fréttum mbl.is

Mossad (les: gyđingar) standa enn á bak viđ allt

Al síra

Sprengihćtta er alltaf til stađar ţar sem hatriđ er. Ţegar hatriđ er sjúkt getur fariđ eins og í Noregi síđastliđinn föstudag. Leyniţjónustu Ísraels, Mossad, er kennt um allt illt, jafnt á Íslandi sem í Íran. Og ef svína á mann til, nota öfgamenn til hćgri jafnt sem til vinstri ţađ ađ tengja menn viđ Mossad. Nú hefur Mossad einnig veriđ hvarfađ viđ harmleikinn í Noregi.

Í kjölfariđ á óskiljanlegri hatursárás geđbilađs manns á saklaus ungmenni og stjórnvöld í Noregi, höfum viđ séđ ófáar tilraunir til ađ klína vođaverkum ţessa vitfirrta einstaklings á pólitíska andstćđinga. Ţađ hafđi ég reyndar séđ fyrir ađ myndi gerast, og skrifađi um ţađ í síđustu fćrslu, ţar sem sumir sem gerđu athugasemdir stađfestu spá mína međ viđhorfum sínum. Ţar á međal netfyrirbćriđ DoktorE, einmanna sál sem hatar trúarbrögđ meira en allt á jörđu.

Hatur er andskoti, sem fylgt hefur manninum síđan á hellisbúastiginu. Ţađ er birtingarmynd öfundar og annarra ljótra kennda í ákveđnum hópi í samfélaginu sem leggur fćđ á annan hóp (andstćđinginn). Einstaklingur eins og Breivik, sem hélt ađ hann vćri hópur og sterkari en 100.000 ímyndađir andstćđingar, en var bara einmanna forskrúfuđ sál, tókst ađ fremja stóran glćp vegna haturs. En glćpur hans er vissulega ekki stór miđađ viđ hvađ sumir hópar sem sameinast í hugsjón mannvonsku og haturs geta áorkađ. Viđ höfum kommúnismann, nasismann og öfgahópa sem misnota Íslam, sem nćrtćkustu dćmin um ţađ.

Trúarbrögđ, sem ađ grunni til er ćtlađ ađ vera mannbćtandi, er einnig hćgt ađ misnota til ađ dreifa hatri í ţjóđfélaginu eđa í heilum heimshlutum, til ţess eins ađ drepa „andstćđinginn". Allt ţetta ţekkjum viđ úr sögunni og hefđum átt ađ lćra af ţví. En hatriđ er sterk driffjöđur og ţađ virđist sem hópum, eđa forskrúfuđum einmanna einstaklingum, sé ţörf á ţví ađ hafa einhvern til ađ hata, benda á, bendla viđ, krossfesta, hengja út, sparka í, eđa kenna um. Tökum viđ sögu Evrópu og Miđausturlanda hafa Gyđingar oft orđiđ ađ blóraböggli ţeirra sem hamast mest í hatrinu.

Utřya
 

Sjáiđ ţessa mynd af ungmennum á Utřya. Sorglegt er til ţess ađ hugsa, ađ ţeir sem héldu fram ţessum hatursbođskap voru kannski myrtir af Breivik. Hvađ rekur unga krata til ađ vilja einangra og sniđganga Ísrael, ríki sem byggt var upp af síonistum, hönd í hönd viđ sósíalista.

Ég lauk persónulega róttćkum árum mínum í menntaskóla međ andstyggđ á stjórnmálum, ţegar ungliđar í Róttćka Félaginu í MH lýstu skriflega yfir  ósk sinni um eyđingu Ísraelsríki.  Ég var međlimur í ţessu félagi, en hćtti ţegar stungiđ var upp á ţess. Ég var svo bláeygđur, ađ ég hélt ađ vinstrisinnađ fólk hatađi ekki. En ef vel er af gáđ, hatar ţađ fólk sem er mest "rétthugsandi" ekkert minna en andstćđingarnir. Hinum réttlátu á vinstri vćngnum finnst mér tamt ađ tala um rugludalla og ofstćkismenn. Vandamáliđ er, ađ rugludallar og ofstćkismenn eru líka margir međal vinstri manna.

Svo kallađir vinstri menn ćttu, ekki síđur en ađrir, ađ beisla hatur sitt og fordóma, og reyna gera sér grein fyrir ţví ađ ţađ er til stađar í ríkum mćli međal ţeirra, ţrátt fyrir ađ ţeir telji sig hafa einkarétt á lýđrćđi og manngćsku, fram yfir ađra menn sem hugsa öđruvísi. Hugsiđ t.d. um hvernig sum ykkar til vinstri í stjórnmálunum lýstuđ Sjálfstćđisflokknum eđa ákveđnum mönnum sem léku lykilhlutverki í ţjóđfélaginu fyrir hruniđ. Landets fjender og Landsmordere sagđi Anders diplómatssonur í Noregi um óvini sína. Hvađ sögđuđ ţiđ hin réttţenkjandi um landa ykkar eftir hruniđ? Voru ţađ ekki svipađar glósur sem flugu um loftiđ.

Nú, eftir hinn hrćđilega glćp í Noregi, virđast sumir eygja möguleika í ađ sá enn fleiri frćjum haturs međ ţví ađ gera alls óskylda hluti og ađila ábyrga fyrir gerđum Anders Behring Breiviks í Noregi. Kannski er slíkt óafvitandi viđbrögđ ţess sem leita skýringa á óskiljanlegum glćp. En hatriđ og fyrirlitningin er ríkjandi á báđa bóga, úr öllum geirum stjórnmálanna. Stundum mćtti halda ađ hatriđ nćrđi stjórnmálamenn. Ef Anders Behring Breivik er ekki geđveikur, eins og Árni Páll Árnason ráđherra ćtlar, ţá eru stjórnmálamenn ţađ kannski margir, eins og sumar rannsóknir virđast hafa  leitt í ljós. Og er ţá  undarlegt ađ lýđurinn verđi stundum vitstola? Kannski er prestsonurinn Árni syndlaus, ţegar hann kastar fyrsta steininum?

 

Mossad á bak viđ allt 

Manni dettur í hug ađ Árni Páll sé, eins og sumir "rugludallar" til vinstri viđ Jóns Baldvins Hannibalssonar, á ţví ađ Breivik sé samnefnari ţeirra sem eru hćgri viđ hann í stjórnmálum. Best vćri ef Árni skýrđi ţetta mat sitt á Breivik ađeins betur. Hann er kannski á ţví ađ Mossad sé á bak viđ árásina? Slíka ásökun höfum viđ ţegar heyrt af vörum alsírsks blađamanns sem vinnur í Svíţjóđ. Hann kennir í viđtali viđ írönsku sjónvarpsstöđ Al-Alam Ísrael og Mossad um allt og talar líka um Ísland. Blađamađurinn segir m.a.:

I blame two parties in the West [for the Norway attacks] – the extremist right and the Israeli Mossad.

You will witness similar operations in Denmark, in Sweden, in Iceland, in Finland, and in Britain. This is [part of] the Zionist strategy of ridding Europe of its Muslim population under the slogan of preventing Islam from settling in Europe, so that Europe will continue to support the Zionist entity.

According to a study conducted by Norwegian, Swedish, Danish, Finnish, and Icelandicscholars, in 2050 Muslims will constitute half of the population of northern Europe. This is a strategic development that has grave consequences for the future of northern Europe.

If the Mossad, which places its stake on Europe, and which has become active in the West by means of the notion of the Holocaust, does not begin to dissipate this rising [Muslim] forces in the West, the Zionist Entity will face great danger in the future.

Gjöriđ svo vel! Hér getiđ ţiđ horft á íranska sjónvarpiđ. http://www.memritv.org/clip/en/3042.htm

 

 

 

Sveinn Rúnar segir mig vera á mála hjá Mossad 

Slíkar ásakanir eru hlćgilegar, en alls ekki óalgengar. Fyrir fáeinum dögum leyfđi Ísraelsmađur, Manfred Gerstenfeld, sér ađ gagnrýna íslenskan stjórnmálamann fyrir ferđ hans til Palestínu og Gaza. Varđ ég ekki varhluta af hatri í garđ hans, ţví hann hafđi leyft sér ađ vitna í grein eftir mig. Sveinn Rúnar Hauksson, formađur félagsins Ísland-Palestína fór á flug á Pressunni og ásakađi mig fyrir ađ vera á bak viđ árás gegn utanríkisráđherranum, og gaf í skyn í viđtalinu viđ Pressuna, ađ ég vćri Mossad-njósnari. Ćtli sé ekki líka búiđ ađ spyrđa mig saman viđ son diplómatans kaldrifjađa í Noregi?

Sveinn_Rnar_Hauksson__jpg_800x1200_q95
Vilhjálmur Örn vinnur fyrir Mossad, segir ţessi lćknir.

 

 

Morđingi, zíonisti, óvinur eigin ţjóđar

Mađur ţarf ađ upplifa ýmislegt hatur ef mađur styđur Ísrael á Íslandi. Mađur nokkur, Arnar ađ nafni, hefur ţegar hreytt ţessu í mig: "Ţessi morđingji var zionisti eins og ţú Vilhjálmur". 

Annar náungi, sem gengur undir nafninu "Skari" kallađi mig kvisling. Pétur nokkur Sigursson skrifađi: "Flott hjá ţér ađ fóđra ísraelann á ţví ađ hér séu gyđingahatarar í miklum meirihluta landsmanna. Ef ţetta er frá ţér komiđ sem Manfred Gerstenfeld skrifar ert ţú orđinn ađ óvini eigin ţjóđar. Gangi ţér vel međ ţađ".  - Óvinur eigin ţjóđar, eru ţetta ekki ummćli eins og Behring Breivik hafđi í frammi um fjandmenn sína.

Ţeir sem ţetta skrifuđu eru örugglega réttţenkjandi og sannir vinstrimenn, sem hata öfgamenn og hafa réttustur skođanirnar á öllu. Ţeir hafa ţörf fyrir ađ ásaka mig um allt hiđ versta, vegna ţess ađ ég er síonisti og styđ af nauđsyn eina lýđrćđisríkiđ viđ botn Miđjarđarhafs, međan ţeir styđja hópa sem vilja lýđrćđiđ og mannréttindin feig.

En hvađ kallar mađur mann eins og bloggarann Sigurđ Rósant sem í athugsemd viđ síđustu fćrslu mína leitar ađ lausn á öllu hatrinu og hryđjuverkum sem hrjá heiminn? Ţađ gerir hann međ ţví ađ líkja Anders Behing Breidal viđ ćttföđur gyđinga, Abraham, vegna ţess ađ hann segir ađ gyđingar lofsyngi Abraham, sem ku hafa innleitt umskurnina.


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hjalti Rúnar Ómarsson

Ég sá einmitt grein um ţađ á Kryppunni ađ ţessi fjöldamorđ hafi einmitt veriđ skipulögđ af Mossad.

Hjalti Rúnar Ómarsson, 26.7.2011 kl. 18:27

2 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Hvađ er Kryppan?

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 26.7.2011 kl. 18:41

3 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Nú er ég búinn ađ athuga, og sá alveg nóg. Ég er sammála Agli Helgasyni um skilgreiningu hans á fyrirbćrinu. Ţetta gćti ógnađ Eyjunni og ţeirri pólitísku rétthugsun sem ţar er landlćg.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 26.7.2011 kl. 18:47

4 Smámynd: Hjalti Rúnar Ómarsson

Hérna er greinin sem ég mundi eftir: Úteyjarfrímúrarinn tengist Mossad. Og merkilegasta setningin:

Atburđirnir á Kýpur og í Noregi eru nýjustu dćmin um ađgerđir sem Mossad setur á sviđ.

Og svo var önnur grein ţarna um atburđinn í Noregi sem ég hafđi ekki tekiđ eftir, ţar stendur m.a.: "Ţarna er komiđ ágćtis tilefni fyrir Mossad og leppi ţeirra til ađ refsa fyrir svona skođanir."

Hjalti Rúnar Ómarsson, 26.7.2011 kl. 18:55

5 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Kannski koma einhverjir kryppukarlar hingađ inn á ţetta öfgablogg og segja okkur hvernig ţeir hugsa á án ofstćkis.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 26.7.2011 kl. 20:01

6 identicon

Saell Vilhjalmur, pad er ekki annad ad sja en ad a endanum verdur per kennt um allt sem ad er i heiminum.  Naest kemur fram einhver sjalfskipadur snillingur sem heldur pvi fram ad pu stjornir Mossad fra Danmorku, hvorki meira ne minna, og pu sert a sama tima yfir Opus Dei, Jesuitareglunni, the Free Masons, the Shining Path, Bader Meinhof (sp?), Vottum Jehova, the Illuminati, Vatikaninu, Hamas, PLO, the Muslim Brotherhood (pu vildir ad visu lata kalla pad sisterhood en fekkst reyndar ekki ad rada pvi), etc., etc., etc. og (verst af ollu) ritstjori Moggans!!!!!  En svo eg skipti algjorlega um gyr, pa er buinn ad fa i hendurnar, og byrjadur ad lesa, "We Wept without Tears" eftir Gideon Greif. pvilikt og annad eins hef eg sjaldan lesid (og eg er bara rett byrjadur) og pad hryllilegasta er ad petta getur svo audveldlega gerst aftur pvi ad mannkyninu pykir ekki mikid vit i ad laera af mannkynsogunni. Takk fyrir oll pin skrif og haltu pvi endilega otraudur afram (einhver verdur ad skrifa af viti innan um alla gedsjuklingana sem koma fram eins poddur ut ur vegg um leid og eitthvad sjukt gerist til pess eins ad nyta ser pad gegn peim sem peim er illa vid). Kvedja fra Vesturheimi.

Jakob Valsson (IP-tala skráđ) 26.7.2011 kl. 22:57

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bćkur

Kynning á nokkrum fćrslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband