Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2018

Le Prince est mort

Prince

Prins Henrik er látinn, Danir syrgja. Hann var á margan hátt glaðlegt andlit dönsku konungsfjölskyldunnar, þar sem hefð og konungleg skyldleikarækt hefir gert suma aðra meðlimi frekar steingerða. Ég nefni ekki nein nöfn. Umdeildur var hann kannski undir lokin í erfiðum veikindum sínum, en ávallt vel liðinn. Hann var maður marga hæfileika, nema í því að læra dönsku, en hafði sem betur fer lífsnautn. Ég hef hitt hann í návígi einu sinni.

Einn kaldan sólskinsmorgun árið 1997 var ég nærri því búinn að rúlla barnavagni með Leu dóttur minni yfir einn langhunda hans, þar sem hann var að "spadsera" með þá á götuhorni nærri Amalienborg. Engin slys urðu á börnum eða hundum og prinsinn tók því létt að einn hirðhundanna, sem ég rúllaði aðeins utan í, þegar hann kom hlaupandi fyrir horn til að finna sér eitthvað til að míga á, ýlfraði lítillega þegar hann rakst inn í barnavagninn. Prinsinn bauð bara góðan dag. Venjulegur maður! Hann var einn á ferð, engir verðir eða hallarþjónar með honum.

Drottningin, konungsfjölskyldan og danska hirðin hafa misst eitt af andlitum sínum og þar er sorg sem og hjá hjúum í koti um allt þetta flata land. Væntanlega munu frómar konur í Reykjavík sem lesið hafa dönsku blöðin ævilangt verða leiðar líka.


Kæra til lögreglu vegna hatursræðu á Pírataspjalli

Til Embættis Lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu (LRH)  

Beint til
Árna Sigmundssonar lögreglufulltrúa kynferðisbrotadeildar og
til Eyrúnar Eyþórsdóttur lögreglufulltrúa á miðlægri deild R2  

Kæra vegna meints brots á grein 233a í hegningarlögum


Sæl Eyrún Eyþórsdóttir og Árni Sigmundsson,

Nú fer fram frekar sorgleg umræða á Pírataspjalli  á Facebook (  https://www.facebook.com/groups/Pirataspjallid/permalink/2062558187095488/   ) þar sem Píratar og aðrir eru velkomnir til tjá sig um tillögu sem fjórir stjórnmálaflokkar hafa sett fram með því sjónarmiði að banna umskurð drengja á Íslandi.  Einn þeirra flokka eru Píratar.

Nú er því miður svo komið að sumt fólk sýnir sitt rétta eðli og andlit á þessum umræðuvef og á umræðu sem Sverrir Agnarsson talsmaður múslíma á Íslandi hóf máls á á þessum FB spjallvef Pírata vegna tillögu frá einstaklingum í fjórum flokkum Alþingis um að banna umskurð drengja með lögum og gera hann sakverðan með fangelsisdómi í allt að 6 árum.

Í umræðunni á fyrrnefndu Pírataspjalli hefur umskurði drengja nú verið líkt við kynferðisbrot. Þrjár íslenskar konur hafa nú ítrekað haldið því fram að umskurður drengja sé kynferðisbrot og jafnvel líkt honum við meint,  en ósannað brot fyrrv. biskups Íslands gegn dóttur sinni sem biskup var aldrei dæmdur fyrir.

Þetta er að mínu mati hrein hatursræða og lagabrot. Með ítrekaðri óvirðingu halda þessar konur,  Steinunn Ketilsdóttir búsett í Manchester á Englandi og Guðrún Björk Ármannsdóttir búsett í Hafnafirði og Linda Magnúsd. sem lært hefur við háskólann á Bifröst því fram, að umskurður á drengjum í trúarlegum tilgangi sé kynferðisafbrot. Þegar ég bendi þeim á villu þeirra og það ólöglega í tali þeirra, sem ég tel vera lögbrot vegna þess að þær ásaka fólk sem lætur umskera drengbörn sín í trúarlegum tilgangi um kynferðisbrot, hafa þær allar aukist í ósóma sínum og gefið í skyn að ég sé stuðningsmaður kynferðisglæpa. 

Þetta má sjá á þeim ummælum sem ég læt fylgja af síðunni sem 6 jpg myndir (PrtSc) af síðunni.  Þetta eru ummæli  þriggja kvenna sem notað hafa opinberan og lýðræðislega umræðugrundvöll til að svína trúarvenjur annarra og mig til með því að klína kynferðisbrotastimpli á umskurðarvenjur trúarbragða og í því samhengi ýjað að því að ég sé stuðningsmaður kynferðisbrota.

Nú er bara að sjá, hvort embætti Lögreglustjórans getur tekið á broti kvennanna þriggja og sótt þær til saka.  Ég reikna fastleg með því að lögreglustjórinn í Reykjavík ákæri konurnar fyrir brot á hegningarlögum, því þær hafa haldið því fram að umskurður sé kynferðisglæpur.  Það er klárt brot á 233  grein a í hegningarlögum ; Ummælin eru svívirða, og það opinber, í garð trúarbragða. Slíkt ber ekki að þola í lýðræðisríki, þar sem að sögn á að ríkja trúfrelsi, sem er bundið í lög.

Varðandi hugsanlega vanhæfni Eyrúnar Eyþórsdóttur:
Mig langar að nefna, að þar sem Eyrún  Eyþórsdóttir lögreglufulltrúi hefur verið í framboði fyrir Vinstri Græna,  og jafnframt varamaður VG á Alþingi, þá gæti verið vandamál varðandi hæfni hennar í meðferð kærunnar, þar sem tveir einstaklingar frá VG hafa skrifað undir breytingartillöguna fyrir hegningarlög til að freista þess að þingheimur ákveði að umskurn verði skilgreind sem hegningarlagabrot. VG hefur þó ekki mér vitandi lýst beinum flokksstuðningi við tillöguna, en heldur ekki opinberað andstöðu sína við það sem tveir þingmenn flokksins hafa skrifað undir. Ef Eyrún telur sig vanhæfa til að meðhöndla kæru mína sem fjallar um hatursræðu, ber henni þegar að láta mig vita, og hvern ég á þá að hafa samband við til að kæra mín komist í réttan og eðlilegan jarðveg hið fyrsta.

Virðingarfyllst,

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, Ph.D.
Jelsbuen 1
2620 Albertslund
Danmörku

mynd 1
 
mynd 2
 
mynd 3
 
mynd 4
 
mynd 5
 
mynd 6

Getur typpavinafélagið hjálpað?

Video-Game-Addiction

Dauðaleit er nú hafin að ónafngreindum pilti, sem var 16 ára árið 2010. Árið 2013  upplýsti þáverandi umboðsmaður barna að 16 ára drengur hafi skrifað sér þessar línur:

Mega foreldrar á Íslendi ákveða þegar maður er lítið barn og hefur ekkert vit að umskera mann? Hvað svo ef manni líkar það ekki þegar maður er eldri? Mega foreldar neyða mann í óþarfa lýtaaðgerð þegar maður hefur ekki aldur né vitsmuni til að neita því? Sjá hérhér og hér

Úlfaldi var þegar gerður úr mýflugu, eins og svo oft áður á Íslandi, og því var m.a. haldið fram á RÚV, að drengurinn væri umskorinn og væri múslími. Fyrir því var víst enginn fótur, nema ólæknandi fantasía starfsmanna RÚV, sem margoft hafa verið teknir í því að búa til fréttir. Þetta var falsfrétt eins og það heitir í dag. Huldudrengurinn gat alveg eins hafa verið reið kona vestur í bæ sem átti pabba sem var nasisti.

Síðar var þessi klausa eftir drenginn sem var 16 vetra árið 2010 send af umboðsmanni barna til kollega hennar á Norðurlöndum og varð grundvöllurinn að því að Umboðsmenn Barna á öllum Norðurlöndunum lögðu til að bann yrði sett við umskurði barna. Já, oft veldur lítil þúfa þungu hlassi. Sjá hér.

Nú sameinast hin ólíklegustu öfl með þátttöku Vinstri Grænna, Fólks Flokksins, Framsóknarflokksins og Pírata í breytingartillögu á hegningarlögum, sem verði hún samþykkt mun leiða til banns við umskurði á drengjum. Vitna þessir ólíku forhúðarhyggjumenn til erindis 16 ára unglingsins frá 2010. Vilja menn fá fangelsisdóma ef lögin verða brotin.

Þetta mun valda því að flestir gyðingar geta ekki sest að á Íslandi eða hugsa sér til hreyfings.

Lýkur tillögunni frá fordómaflokkunum fjórum með þessum orðum.

30. september 2013 skrifuðu umboðsmenn barna á Norðurlöndum og ýmsir heilbrigðisstarfsmenn undir yfirlýsingu gegn umskurði ungra drengja. Þeir telja brýnt að vinna að því að umskurður á ungum drengjum verði bannaður. Mikilvægt er að virða sjálfsákvörðunarrétt barna og banna umskurð á drengjum þar til viðkomandi hefur náð aldri og þroska til að veita samþykki sitt.

Er það svo, að ekki þurfi meira til en "spurning" 16 ára drengs, sem enginn þykist kunna deili á nú, til þess að hegningarlagabreyting fari í gegn á Alþingi. Tókst einum 16 ára strák á Íslandi að breyta einhverju sem nasistar rembdust við í þeim tonnum af áróðri sem þeir dældu út um víðan völl: þ.e. meðal annars að banna umskurð gyðinga.

Hluti þeirra sem vilja umskurðarbann fyrir drengi nú tilheyra stjórnmálaflokki sem í stefnu sinni hatast út í múslíma. Aðrir flutningsmenn tilheyra öðrum flokki sem hart beitti sér fyrir því að koma í veg fyrir að gyðingum væri veitt hæli á Íslandi á 4. áratug 20. aldar.  Er það er skammarlegt fyrir flokka eins og VG og Pírata að blanda geði við slíka öfgaflokka? Greinilega ekki.

En fyrst fjórir flokkar á Alþingi vilja lagabætur sem banna umskurð, sem að grunni til er tillaga sem byggir á fyrirspurn 16 ára pilts árið 2010, óska ég þess nú að flokkar þessir og Umboðsmaður Barna upplýsi vinsamlegast hver hinn ungi sveinn var, sem tókst að banna það sem nasistum tókst ekki.

Óþarfa lýtaaðgerð árið 2010 verður að hegningarlagabroti árið 2018. Öfgar í sókn?

Takið þó eftir því að drengurinn talar um "óþarfa lýtaaðgerð" í sömu andrá og umskurð.  Breytingarfrumvarpið byggir því á rangri tilvitnun í erindi unglingsins til Umboðsmanns barna. Hann var að tala um umskurn sem lýtaaðgerð en það gera flokkarnir fjórir ekki, þó þeir vitni í umboðsmann barna sem notaði fyrirspurn piltsins til að rúlla málinu af stað.  Það ber að taka fram að umskurður gyðinga og múslíma eru ekki lýtaaðgerðir, þó þær geti í vissum tilvikum talist til mikilla bóta, fagurfræðilega séð. En sinn er siður í landi hverju  - og það ber að virða.

Trúfrelsið og hegningarlög

Virði Íslendingar stjórnarskrárfest trúfrelsi, verða þeir líka að sætta sig við að umskurður er óaðskiljanlegur hluti sumra trúarbragða. En ef umskurðurinn er gerður glæpsamlegur í hegningarlögum stangast hegningarlög á við stjórnarskrá. Það gengur ekki upp þegar í stjórnarskrá stendur:

Allir eiga rétt á að stofna trúfélög og iðka trú sína í samræmi við sannfæringu hvers og eins. Þó má ekki kenna eða fremja neitt sem er gagnstætt góðu siðferði eða allsherjarreglu.

Eiga stjórnmálaflokkar(Flokkur fólksins og Framsókn) sem telja meðlimi sem hatast hafa út í gyðinga og múslíma að vera dómarar á gott siðferði meðlima annarra trúarbragða en lútersku þjóðkirkjunnar? Hvernig ætli það verði túlkað af Sameinuðu þjóðunum og alþjóðardómstólum ef kæra þarf þessi kolrugluðu vinnubrögð.

Verða Íslendingar ekki að fara að vara sig og endurskoða þetta misskilda "hlutverk sitt á meðal þjóðanna"?

En hjálpið mér nú endilega að finna hinn 16. ára ungling sem bar fram spurningu til Umboðsmanns Barna árið 2010. Ég held persónulega að hann sé algjör uppspuni frá rótum. Hvaða 16 piltur fer að væla í umboðsmanni barna um typpi?

16 year old Icelandic

"Hæ Umboðsmaður barna. Ég er 16 ára strákur og hálfgert barn..."


Silju er illt í typpinu

Turtle

Nú skal vitaskuld látið vaða á typpin. Hefur Framsóknarflokkurinn ekkert annað þarfara að gera en að vasast í typpadýrkun og forhúðarást?

Ógeðfelld samlíking á umskurn drengja og stúlkna er það sem Silja Dögg Gunnarsdóttir ber hér fram. Flokkurinn hennar var einmitt sá sami og barðist mest fyrir því að hindra komu umskorinna karla til Íslands á 4. áratug 20. aldar. Hér er því ekkert nýtt mál á ferðinni. Hatrið er enn gríðarlegt meðal afdalakynsins á Íslandi.

Múslímahatur og jafnframt gyðingahatur sumra Íslendinga kann sér greinilega engin takmörk. Afkomendur fólks sem skar dýr á háls í gegnum aldirnar á Íslandi hefur líka látið banna trúarlega slátrun, sem er nákvæmlega sami hluturinn. Tvískinnungurinn uppmálaður og hatrið er svo hreint á Íslandi.

Morgunblaðið bætir um betur og birtir mynd frá stóraðgerð á kviðarholi til að sýna hve agalega hættuleg umskurn á drengjum sé. Myndafölsun, jú og ekki sú fyrsta í Morgunblaðinu.

Fölsun Moggans

Mikið er sumt fólk á Íslandi nú jarmandi frumstætt. Og hvar er hún Sema Erla nú?  Samfylkingalaukurinn, sem heldur því fram að Tyrkland sé lýðræðisríki. Sema mun ugglaust verja forhúðina í nafni lýðræðis síns. En umskurn drengja kemur vitaskuld ekkert lýðnum hið minnsta við, hvorki Semu né Silju.

Þó að Íslendingar vilji halda sem fastast í leðursvuntuna sína og rækta hnakkost og vel valdar bakteríur undir henni, þurfa þeir ekki að banna öðru fólki, og menningarþjóðum, forna siði.

Tekið skal fram að myndin efst er ekki af typpi, heldur af Bubba og nýju peysunni hans.


mbl.is Umskurður brot á réttindum drengja
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bækur

Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband