Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, maí 2019

Hvað ungur nemur, gamall temur

imam

27. maí 2019 birti Morgunblaðið mjög endasleppta frétt, sem ekki sýnir mikla þekkingu á efninu eða tilburði blaðmanna til að kynna sér hvað hefur verið að gerast í Þýskalandi þegar kemur að nýlegri umræðu um gyðingahatur þar í landi.

Vitaskuld er gyðingahatur vandamál, en ekkert meira í Þýskalandi en í öðrum löndum. Gyðingahatur í Evrópu í dag kemur frá mjög mismunandi hópum: öfgamúslímum, vinstri mönnum, frá öfgahægrinu og fleirum.

Allir reyna að kenna einum aðila um og flestir gyðingum sjálfum. Gott dæmi um slíkar afsakanir eru háheilagar skoðanir eins fyrrverandi prófessors við HÍ, sem í ofanálag kallar sjálfan sig gyðingavin - og hann er hvorki öfgahægrimaður né íslamisti.

Greinin í Mogganum, sem athugasemd er gerð við hér, segir ekki frá orsökum nýjustu umræðunnar í Þýskalandi um vandamálið gamla, hatrið á gyðingum. Ástæðan er 40 bls. skýrsla sem Bundesamt für Verfassungsschutz í Þýskalandi gaf nýlega út. Hún er að mínu mati ekki nein algild skýrsla og verulega fræðileg er hún nú ekki. Hún bendi aðeins á vandamál, sem er gyðingahatrið á meðal Íslamista og þeirra sem styðja slíka hópa. Skýrsluna er hægt að hlaða niður hér og lesa. Hugsanlega geta sumir blaðamenn Morgunblaðsins ekki lesið þýsku. Fákunnátta skapar líka fordóma, eins og sumir við vitaum.

Skýrslan frá Bundesamt für Verfassungsschutz fór svo sannarlega strax fyrir brjóstið á íslamistum í Þýskalandi, jafnvel þeim sem kalla sig frjálslynda (liberal), því í Þýskalandi búa svo sannarlega öfgamenn sem nota trú sína sem afsökun fyrir öfgum og hatri.

Liberal-islamische Bund e. V./Ibis Institut für interdisziplinäre Beratung und interkulturelle Seminare gáfu út 178 bls. skýrslu nokkrum dögum eftir að skýrsla Bundesamt für Verfassungsschutz kom út. Hun ber heitið Empowerment statt Antisemitismus og er gefin út með stuðningi frá  Bundesamt für Migration und Flüchtlinge (Federal Office for Migration and Refugees, BAMF). Hún er löng, og sýnist fræðileg, en full af villum og rökleysum, og ber þar að auki titil með hinu óþolandi tísku-nýyrðaskrípi "enpowerment". Hlaða má ritið niður hér.

Skýrslan frá Liberal-islamische Bund hefur hlotið mikla gagnrýni í Þýskalandi. Nefna má að Alan Posener stjórnmálarýnir hjá Die Welt, ritaði að gyðingahatur meðal ungra múslíma séu gamlir fyrirliggjandi fordómar, en ekki svar við múslímaótta og hatri (Islamófóbíu) líkt og skýrsla líberala múslíma heldur fram án nokkurra fræðilegra raka.

Stjórnmálafræðingurinn Hamed Abdel-Samad hefur einnig andmælt því að gyðingahatur múslíma sé komið til vegna múslímahaturs. Ef það væri tilfellið, skýrir Abdel-Samad, væri heimur Íslams laus við Íslamisma og gyðingahatur, einfaldlega vegna þess að múslímahatur er ekki til í löndum Íslams. Já, stundum hittir maður blessunarlega á múslíma sem hugsa rökrétt, með fullri virðingu fyrir öllum hinum (kannski var þetta einum of fordómafullt hjá mér, hhmmm?). Sjá viðtalið við Hamed Abdel-Samad hér.

Morgunblaðið þarf að ráða betra fólk til að skrifa fréttir um eins háalvarleg málefni og lægstu kenndir mannsins, Gamla hatrið. Þýskukunnátta er lágmárk.

Barn


mbl.is Sýna samstöðu með gyðingum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Brot úr kynningu íslenska síonistasambandsins á Hatara

58978639_394418187949431_4962486620073519867_n

Síonistasamband Íslands hefur á undanförnum vikum verið að kynna Ísraelsvinina í Hatara sem syngja munu Íslandi til sigurs á Eurovision í Ísrael. Benni Netsokkur-Jahoo, svindlmálaráðherra Ísraels, vinnur að sigri Hatara eftir skemmtilega íslenska glímu á bakgarðsknæpu í Netanya. Hér eru nokkur vel valin brot af síðu Síonistavinasambandsins:

Hatari-web

Kynning á Hatara I

Í dag kynnum við Sturlaug Knút. Sturlaugur er sonur sendiherra Íslands á Englandi. Það er líklega þess vegna sem hann segir aldrei neitt. Það er best að halda kjafti, þegar þannig stendur á. Reyndar er sagt að hann sé hugmyndafræðingurinn á bak við allt gyðingahatur Hatara. Það er ekki rétt. Það er móðir hans. Takið eftir því að hann hefur fengið viðhafnarbúning föður síns lánaðan. Myndin hér fyrir ofan, lengst, lengst til hægri er úr ökuskírteini Sturlaugs. Sturlaugur er í bandalagi við Matta Broddason og Finn Kamban Glannigan Blæton Klemman.


Kynning á Hatara II
Í dag er dagur Matta Broddasonar. Hann þekkti ekki muninn á Apartheid og Apartment fyrr en í nóvember 2018. Sólin er of sterk fyrir hann í Ísrael. Hann hefur fengið 3 stigs sólbruna og þurfti á húðgjöf að halda frá palestínskum albínóa (slíkt blæti er kallað Graft og skylt íslenska orðinu gröftur) Matti verður því aðeins klæddur gervihúð þegar hann gengur á svið í Tel Aviv og bjargar heiðri Íslands.

Þess verður að geta, at Matti er nú þegar orðin fyrirmynd barnahljómsveita víða um heim. Hér er síðasta afurðin frá Bandaríkjunum. Hatrið sigrar:


 
Kynning á Hatara III57972727_296902141232859_3339540865170390280_nÍ dag kynnum við svo til sögunnar Finn Kamban Glannigan Blæton Klemman, írskættaðan þrælablætisiðkanda. Finnur er sagður hafa vitið fyrir liðsmönnum sínum sem hafa laus málbein, enda er Finnur Klemman beislaðri en flestir. Mossad er fyrir löngu búið að sjá að Finnur Flannigan þolir illa að Matti Broddason troði sér alltaf fram í sviðsljósið og segir alls kyns rugl sem þeir höfðu bara ekkert fyrirfram planað. Planið var að Klemman hefði vit fyrir Matta. Sambandi Klemmans og Matta mun því eiginlega nú þegar vera lokið. Þeir tala aðeins við í síma. Þeir munu sækja um skilnað, en fyrst eftir að þeir eru komnir heim. Í Jaffa heyrðist Finnur GKB Klemman öskra á eftir Matta rétt eftir miðnætti 2. maí sl.:  "Geturðu ekki skafið þetta yfirborðskennda aulalúkk af þér Matti Broddason, Sviðahaus. Ég hringi í Pútín". Matti glápti bara á hann með hangandi neðri vör. Matti ætlar sko ekki að eyða ævikvöldinu í Moskvuborg með Finni KGB Klemman í blokk með hommanjósnurum.

Ættfræðirannsóknir síonistasambandsins hafa sýnt að Klemman og Matti eiga ættir að rekja til sömu zýsku ömmunnar. Hún var í Hitler-Jugend. Mossad telur ömmuna vera afgerandi þátt í uppeldi Matta og Finns Kamban. Hún getur verið stolz. 

tenor

Þegar allt lék í lyndi og rússnesku gallarnir voru aðalblætið.

Kynning á Hatara IV

SEI_67007609
Þetta er svo Glen Reimar Ramirez. Glen er blætisdrottning að sunnan. Hann fæddist með undravelsmurð liðamót, en er vita mállaus. Hann heyrir samt allvel. Slíkt blæti er kallað kraftaverk. Blætið er nú orðið aðalstarf Glens, en þrjá tíma í viku bindur Glen rúllupylsur hjá SS. Hann kann þá list. Hann er því eini liðsmaður Hatara sem hefur verið í röðum SS. Það veldur náttúrulega titrara í Tel Aviv, að SS-maður gangi þar á svið.

Það halda engin bönd Glen. Leyniþjónustu Ísraelshers grunaði að Glen væri hugsanlega tikkandi sjálfsmorðssprengjuatriði. En svo kom nú aldeilis annað í ljós. Glen snerist til gyðingdóms í síðustu viku, er hann hitti gay rabbína á hafnarknæpu í Hæfæ. Rabbi Sá(l) kenndi Glen Reimar að binda tefillin. Þetta er algjörlega ný nálgun á leðurböndin, sagði Glen Reimar í einkaviðtali við Gay and Jewish í fyrradag. Ef einhver er að velta því fyrir sér hvaða kjól Glen er í, já þá er þetta óhefðbundinn brúðarkjóll frá Ramalla. Fimm lítrar af hrágúmmíi fóru í gerð hans og einn hamborgari??. Hann er litaður með smokkfiskableki.

barbie2Alvitað er að gyðingdómur er trú leðurfíkla og blætis, eiginlega trú á öllu nema Gullkálfinum og Jesse litla Jósefssyni.

Kynning á Hatara V

fr_20190507_111494

Pálína Pisk og Gurrí Smæld eru gógópíur Hatara. Þær eru lausar í reipunum, enda báðar að Norðan, nánar tiltekið frá Akureyri eins og dönsk ættarnöfn þeirra gefa til kynna. Þær eru búnar að finna sér "GIMP" í Ísrael. Með því hugtaki kom Síonistasambandið af Fjöllum. En þetta mun vera nýyrði á Íslandi og mannanafnanefnd hefur samþykkt nöfnin Gimpi og Gimpa. Upphafleg þýðing orðsins er "viljugur leðurþræll" og er orðið komið úr perversku, Al Ghimpa. Gimp Pálu og Gurríar stundar apartheid í frístundum sínum. Hann gengur undir nafninu Trevor Spankovitz í borgarlegu starfi sínu, þar sem hann er njósnari hjá Mossad. Pálína og Gurrí vilja einnig eignast lítinn hund frá Gaza, en þeir hafa verið uppteknir við grimmilegar flugeldasýningar upp á síðkastið. Þeim lauk reyndar í bili, því ekki voru til fleiri gervilimir frá Íslandi

Kynning á Hatara VI

60196169_320040748688481_2311924005177167853_n

Umma Maja Nurraedda framleiðir sumt af því snakki sem hatari dreifir í Tel Aviv þessa dagana. Snakkið er ekki vita-kósjér, enda með svínsbragði og sýrðum raggeitarrjóma. Umma er með leðurböndin undir blæjunni. En í raun er þetta hún Leonice, indverska prinsessan. Hún fer í mál við alla á sviðinu.

Kynning á Hatara VII

Prófessor Baldur búktalari úr HÍhíhí og Konni dúkkan hans eru mikilvægir fyrir Hatara. Prófessor Baldur fór að hafa áhyggjur af því að Konni væri orðin að allrahandagagni á leðurbörum Tel Aviv. Í afbrýðiskasti þaut Baldur búktalari til landsins hans Helga og hefur nú raðgreint Eurovisjón númer Hatara fyrir RÚV og Konna. Niðurstaða Baldurs er sú að "öll utanríkisstefna Íslands sé innifalin í boðskap Hatara", ekkert meira né minna. Þá vitum við það. Prófessor Baldur, sem einnig telur launverslun við Ísland á 17 öld vera leiðarvísi að inngöngu Íslands í ESB, sér íslenska utanríkisstefnu í atriðið beislunga. Gott er að vita að maðurinn hans Baldurs hefur töglin og hagldirnar í þeirra sambandi. Spank on Konni! Sem aftanfrá hljómar betur: ! Innok no knaps, sem er reyndar bölvaður dónaskapur á litháísku. En það er alltaf gaman af honum, strákar.

baldur-litháen-4

Baldur og Jón Baldvin að kenna búktal, selshljóð og rassklípur við Sorbonne. Ljósmynd: Kölski.

Kynning á Hatara VIII

hatari-movie-poster-1962-1020430772_1024x1024

Jón Væni frá Patró er mest aftan sviðs, með kústinn langa. Jón var eitt sinn leðurþræll og skaufaskækja í klassískum blætismyndum í BNA, það sem kýrrassar fóru með stór hlutverk, en nú er hann mestmegnis í innflutning á gæðaleðurlíki og beislum í Þýskalandi. Hann hefur gert sér far um að að reyna að frægja Hatara. Það var því gustukaverk að ráða ræfilinn hann Jón.

Kynning á Hatara IX

Hatari Print_AW-01

Fan-klúbbur Hatara var formlega stofnaður í desember 2018 og heitir einfaldlega Hatari-Fan Club. Meira er ekki um það að segja.

Beltadýr Íslands munu nú sýna alheimi, hve vel beisluð og gegnsæ utanríkisstefna Íslands er. Heima á Íslandi bíða hins vegar annaðhvort flengingarólar í næstu viku eða Júróvisjón í Reykjavík að ári. Þá verður allt bandvitlaust og reimandi ruglað. Við verðum aldeilis að herða ólarnar ef svo illa vill til að Hatrið muni sigra. Þá verður líklega ekki ósniðugt að vera smokkainnflytjandi til að bæta kjör sín.


Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bækur

Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband