Leita í fréttum mbl.is

Bloggfćrslur mánađarins, ágúst 2014

Brúđkaupiđ í Cori

matrimonio_nello_cori2_1244716.jpg

Síđastliđinn sunnudag ćtlađi ég í stutta heimsókn međ fjölskylduna á mjög merkilegt fornminjasafn í Cori. Búiđ var í síđustu viku ađ upplýsa mig ađ safniđ yrđi opnađ aftur eftir sumarleyfi ţann dag. En svo var ekki. Starfsmenn höfđu greinilega framlengt sumarleyfi sín og í bígerđ var heilmikiđ brúđhlaup í Kirkju heilagrar Ólívíu. 

Brúđurin kom í sínu fínasta pússi í svartri Volkswagen bjöllu og fólk var byrjađ ađ safnast saman á Olívíutorgi. Eftir smá leikatriđi, ţar sem litlu börnin áttu ađ segja föđur brúđarinnar og henni ađ ţau vćru komin til réttrar kirkju, héldu herlegheitin áfram en viđ hurfum á braut til ađ eiga ekki í hćttu ađ bíllinn okkar yrđi ekki lokađur af vegna ólöglegra lagninga viđ fjallaveginn. Ég gleymdi svo forláta sumartreyju á rauđum plaststól viđ safnakaffihúsiđ fyrir ofan torgiđ.

matrimonio_nello_cori.jpg

Eftir brúkaupsnóttina rćttist úr peysuleysinu. Einhver hafđi afhent treyjuna á barnum og hékk hún á safnbarnum morguninn eftir. Í gleđi minni bauđ ég frúnni upp á cappucino og grappa og gaf eigandanum ríflegt ţjórfé fyrir ađ hafa fundiđ peysuna mína. Síđar um daginn hittum viđ Giugliano, sem er altmúligmađur fyrir danskan eiganda hússins sem viđ erum í. Hann er ekki ólíkur Al Pacino á yngri árum og veiđir villisvín í fjöllunum. Hann býr hér á Via della Repubblica í Cori eins og viđ. Ţađ var bróđurdóttir konu Giuglianos sem var ađ gifta sig. Veisla hafđi veriđ um sunnudagskvöldiđ og annađ "gilde" var líka á döfinni um mánudagskvöldiđ, svo Giugliano var greinilega međ ţynnku og ekki í vinnu ţann daginn til ţess ađ vera vel vígur í veislu númer 2. Ég spurđi hann nú ekki hvort veisla númer 3 vćri fyrirhuguđ. Brúđkaup eru mikilvćg í lífi manna á Ítalíu líkt og á Íslandi.

Viđ sáum aldrei brúđgumann, en ţađ gerir ekkert til. Hans bíđa ađeins ţrautir eiginmanns og hann verđur aldrei samur mađur eftir, eins og Teitur Ben latínumagister sagđi um ţá sem tóku latínuna alla í MH. Latina bona est, og á ég hér fyrst og fremst viđ svćđiđ sem viđ horfum yfir á hverju kvöldi ţegar viđ borđum á veröndinni okkar í Cori. Brátt er ţessi lúxus á enda. Veruleikinn á flatlendinu tekur viđ á morgun.

Í ţrívídd:

Piazza di Sant'Oliva 

Chiesa di Sant'Oliva

Complesso Monumentale Sant'Oliva


Hvert í rauđglóandi

rau_gloandi.jpg
Á bak viđ Pantheon-hof í Róm hitti ég fyrir ţessa félaga. Indverjar og Síkar eru margir á Ítalíu, líkt og Afríkumenn og Roma-fólk (sígaunar). Ţetta fólk eru flest flóttamenn, sem ekki drukknuđu á leiđ til Lampedusa.  Ef ţeir hafa vinnu eru ţeir í illa launuđum störfum, og allir reyna ađ framfleyta sér á ýmsan annan hátt, m.a. međ götusölu. Margir Indverjar vinna líka erfiđisvinnu í landbúnađi. Ţađ sést nćr ekki lengur Ítali ađ störfum í sveitum Ítalíu. Mikiđ ber á Indverjunum í sölumennskunni. Í Róm fylla ţeir t.d. notađar vatnsflöskur međ venjulegu vatni, líma tappann á međ hrađlími og frysta síđan flöskurnar.  Ţeir reyna svo blessađir ađ selja flöskuna fyrir 1 evru. Ţegar lögreglan nálgast sér mađur ţá hlaupa á brott međ vatnspokana sína. Minnir ţetta óneitanlega á suma Íslendinga, sem gera allt til ađ fá sér evru.

Ađrir vinna fyrir sér međ "töfrum" eins félagarnir á myndinni. Ţeir leika forna íhugunarlist sem ginnkeyptir Vesturlandabúar hafa aldrei skiliđ. Ţađ kallast "Sterki gúrúinn sem rekur staur í bakhlutann á Himalayamunki". Sá sem undir situr lítur út fyrir ađ hann haldi á félaga sínum međ miklum erfiđismunum og framkallar grettur og stunur, en sá efri, sem á staurnum "situr" er greinileg í djúpri íhugun, sem er nauđsynleg ţegar annar eins gaur fer upp í giliđ.

Nokkrum klukkustund síđar hittum viđ ađra Indverja međ sama töfranúmer nćrri Forum Romanum.  Ţá er kannski vatnssalan betri til ađ sjá sér farborđa í ţjóđfélagi sem er mjög hatursfullt í garđ innflytjenda. En allt er reynt. Vinnumiđlunin skaffar ekki mörg störf og fólk fer ekki á atvinnuleysisbćtur sí sona á Ítalíu.
_spitunni.jpg

Íslendingar styđja nýnasista í Úkraínu

ukraine-neo-nazi-5_3002183b.jpg

Rússar kaupa líklega íslenskan fisk, ţangađ til ţeir fá ógeđ á ţví ađ sjá Katrínu Jakobsdóttur og flokksfélaga hennar í Vinstri Grćnum sem og ađra blindingja hylla nasista og gyđingahatara í Úkraínu.

Sveitir nýnasista berjast gegn ađskilnađarsinnum í Austur-Úkraínu (Sjá hér og hér)

Katrín hyllir einnig gyđingahatara í Palestínu, svo hún er ekki ađ reyna ţetta í fyrsta sinn. Hún er heldur enginn nýgrćđingur, ţegar hún vill ađ Rússar setji bann á íslenskar vörur eđa ađ ESB-móđurskipiđ skipi okkur ţađ. Kata hefur veriđ öflug í ađ banna og bannfćra. Hún vill banna fólki ađ kaupa vörur frá Ísrael međan uppáhalds döđlutertan hennar er búin til úr döđlum frá Íran sem vaxa á pálmum í nánd viđ byggingakrana ţar sem ayatollarnir og dauđasveitir ţeirra hengja fólkiđ fyrir minnstu sakir, t.d. samkynhneigđ. Sterku strákarnir međ gula fánana í Úkraínu heilla Kötu litlu álíka og sterku strákarnir í Hamas, Hizbollah og IS. Ţeir vilja líka banna allt.  Kaldhćđni örlaganna er ţađ vissulega, ađ SS nútímans ISIS, ISIL etc. hefur tekiđ upp nafniđ IS. 

Ekki ţarf ađ segja af óláni Íslendinga. Myndin neđst er frá mótmćlum viđ Bandaríska sendiráđiđ í Reykjavík. Ţar hefur Davíđsstjörnu veriđ komiđ fyrir í stađ 50 ríkjastyrnanna.

10544788_10152280301798034_4938175071600590012_n.jpg
Íslenskir gyđingahatarar mótmćla viđ sendiráđ BNA

Garnirnar raktar úr Dr. Death

2. ágúst sl. voru garnirnar raknar úr öfgakommúnistanum og hryđjuverkjalćkninum Mads Gilbert, sem hefur leikiđ mjög vafasamt hlutverk á Gaza. Sumir telja hann vitaskuld vera hetju, en ţađ gera ekki allir. Viđtaliđ hér verđur líklega til ţess ađ hann komi seint til greina sem móttakandi Friđarverđlauna Nóbels.

Sá sem hér lćtur Mads Gilbert stökkva upp á nef sér og sýndi fram á tvískinnung og stöđluđ lygarök Gilberts í heimsmiđlum, (sem og á RÚV), er Martin Krasnik, Hann er einn ţeirra sem sér um fréttaskýringaţćttina Deadline í Danska sjónvarpinu, DR. Síđan hann rakti garnirnar úr Gilbert hefur í Danmörku veriđ í gangi undirskriftarsöfnun, sem mestmegnis er studd af múslímum, sem krefjast ţess ađ Krasnik og ađrir danskir blađamenn sem greina frá stríđinu á Gaza og árásum Hamas á Ísrael verđi reknir úr starfi. Menn ţola greinilega ekki frjálst flćđi upplýsinga, og heimta ađ nýja landiđ sem ţađ hefur flutt til víki frá lýđrćđisreglum og frelsi. Fyrir utan ađ sýna fram á sannleikann, er Martin Krasnik gyđingur. Ţađ leggst líka illa í fólk sem ekkert sér athugavert viđ ţá stefnu sem bođar morđ á gyđingum og útrýmingu ţjóđríkis.

Rök Gilberts (og t.d. fréttastofu RÚV, sem sjaldnast segir sannleikann ţegar ađ Ísrael snýr, enda  sumir fréttamannanna ţar "nćstumţvífórnarlömb" Ísraelsríkis) um ađ Ísraelsher hafi ráđist vísvitandi á spítala, falla hér um sjálf sig. Martin Krasnik bendir réttilega á, ađ eldflaugum hafi veriđ skotiđ á loft fyrir framan spítalann sem Gilbert vann á, međan hann var ţar.  Ţađ vissi hann ekki, mađurinn sem fagnađi 9/11 árásinni í New York. Hann veit heldur ekki, ađ nú hefur fundist leiđbeiningabćklingur Hamas um ađ nota óbreytta borgara sem skjöld. Fjöldi barna á spítölum Gaza skýrist vitaskuld af ţví vinnuplaggi.

 

Líklega hefur norski lygalćknirinn ekki tekiđ símann á ţessum spítala. Upp komast svik um síđir. Ég leyfi mér ađ efast um heilindi Mads Gilberts. Hann er ađ mínu áliti ađeins mjög hlutdrćgur ţátttakandi í stríđi og lygaherferđ. Hann er hinn dćmigerđi gyđinghatari eins og ţeir finnast verstir á vinstri vćngnum. Börnin sem hann fćr á spítalann eru fórnarlömb Hamas, samtaka sem hann telur ekki vera hryđjuverkasamtök, og samtök sem hann og annar lćknir, Sveinn Rúnar Hauksson, sem lćtur sér nćgja ađ láta illa á Íslandi, hafa samstarf viđ. Tveir lćknar frá Norđurlöndunum, sem hafa samstarf viđ samtök sem fyrirskipar liđsmönnum sínum ađ nota óbreytta borgara sem skildi, eru stuđningsmenn stríđglćpamanna, og ćttu ađ skilja af hverju börnin falla.

Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bćkur

Kynning á nokkrum fćrslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband