Leita í fréttum mbl.is

Bloggfćrslur mánađarins, október 2017

Fallerí, fallera

gr_20150526_000152

Spacey datt út skápnum ađ hćtti Kaizer Söze, Simon Cowell datt niđur stiga og Pawel Bartoszek datt af ţingi. Ţađ hlýtur ađ vera sárt ađ detta.

Karlar á Íslandi eru furđu valtir á stallinum, enda eru orđnar mjög fáar konur á bak viđ manninn sinn. Ţćr duttu nú líka margar af ţingi.

Kannski er ţađ ţess vegna ađ Sigmundur Davíđ datt út úr panamanska peningaskápnum og beint aftur inn á ţing, uppreistur af sjálfum sér. Mér dettur nú í hug ađ ţađ sé nú meira vegna algjörs minnisfalls (Allsheimers) hjá stórum hluta ţjóđarinnar.

Inga Snćland lét ţađ detta út úr sér á aftursćtinu hjá Simma bimm ađ hún vćri af sígaunaćttum. Féllust Sigmundi ţá hendur eftir ađ hún las lófa hans.  Nú fellur hann einn og óstuddur.

Ţó Ţorgerđur Katrín sé pólitískt kúbein, er Viđreisn ekkert annađ en endurhćfingarstöđ fyrir dottiđ fólk. Pabbi Benna borđađi međ Hitler í stríđinu. Ţađ ţćtti í sumum löndum nóg til ţess ađ afkomendurnir héldu sig alfariđ frá stjórnmálum. 

Katrín Jak er vitaskuld "dottningin" og Bjarni hefur alltaf veriđ prins, ţó viđ sjáum seint kónginn. Píratar eru eins og óvirkjađur Dettifoss í međferđ á geđdeildum og hafa ađeins áhuga á einhverju kynferđislegu. Spúkí!

Samfylkingin datt upp yfir ţegar hún tilkynnti ađ hún ćtlađi ađ hrćgammast á sparifé gamla fólksins. Fljótt dó byltingin sem hefđi getađ fengiđ 12 sćti ef hún hefđi ekki asnast til ađ detta ofan á sparifé gamla fólksins.

Framtíđin er ekki björt og Bundproppen er líka rokinn út í veđur og vind. Hann var límiđ í fyrri stjórn.

Hvađ hefur fólk gert til ađ fá ţetta yfir sig. Ţađ er ţví miđur ekki hćgt ađ kjósa ţađ sem ekki er í bođi.

Ég man vart eftir jafnaumum kosningum. Allir stjórnmálamennirnir hugsuđu einvörđungu um sjálfa sig og enginn er í ţessu fyrir fólkiđ í landinu. Allir töluđu um mál sem engu máli skiptir.

ţessar kosningar fá falleinkunn.


mbl.is Kevin Spacey kemur út úr skápnum
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Rauđ ýsa er kosningarspá í bođi náttúrunnar

Rýsa

Rauđa ýsan sem landađ var á Skagaströnd er sending og fyrirbođi guđanna til Íslendinga um ţađ sem koma skal í pólitík. Nú er ţađ rautt mađur - og sala landsins til ESB gćti veriđ yfirvofandi.

Trúđafiskarnir í Bjartri Framtíđ, furđufiskarnir í Pírötum og hvalirnir í Viđreisn eiga sér ekki von. Bláhvalurinn er orđinn ađ náhveli og rekinn rotinn í land. Nú draga menn rauđar ýsur sem vilja á markađ í Brussellu.

Ýsan er rauđ okkur til ađvörunar. Ţví ef ađ Íslendingar selja sig í ESB, hverfur allur fiskur af Íslandsmiđum ofan í ofurgráđugar ţjóđir ESB, sem sjálfar eru búnar ađ eyđa og útrýma fiskistofnum sínum.

Hlustiđ á náttúruna. Ferđamenn og flóttamenn koma aldrei í stađ fređfisks og rauđ ýsa er ađeins afar sjaldgćft rannsóknarfyrirbćri.


mbl.is Óvenjulegri ýsu landađ á Skagaströnd
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Björk er fín

Sinalcoman

Ég var ungur. Hrokkinkollur. Ţegar ég horfđi ekki á stöđvarmerki RÚV og drakk Sinalco, vann af og til sem sendisveinn á opinberri stofnun. Ţađ má alveg koma fram ađ ég vann hjá RÚV á Skúlagötunni. Ţađ var engin skítastofnun í ţá daga.

Eitt sinn sem oftar var ég ađ fara niđur međ lyftunni á Skúlagötu 4, sem var sívöl í laginu. Í lyftunni voru staddar tvćr konur um miđjan aldur. Ekki voru ţetta ţó miđaldra kvenrembusvín, ţví ţćr eru vitaskuld ekki til.

Ein ţessara kvenna gerđi sér lítiđ fyrir og stakk vísifingri sínum inn í eina af mörgum slöngukrullum mínum sem héngu á enninu á mér.

Ţetta kom vitanlega mjög illa viđ mig og ég vissi ekki hvađ á mig stóđ veđriđ.  Ţó konan, sem var ţulur, hefđi ađeins borađ í krulluna var eins og hún hefđi rifiđ í pung mér.

Menn á 15. aldursári eru mjög viđkvćmir viđ allri líkamlegri nćrveru kynjanna, og ég var sérstaklega viđkvćmur, enda međ krullur.

Ef konan hefđi ekki sagt eitthvađ og bjargađ ţessari pínlegu uppákomu, er ég hrćddur um ađ ég hefđi aldrei boriđ barr mitt eftir ţetta. Ég hefđi orđiđ pírati og lent í međferđ fyrir hverjar kosningar.

Konan í lyftunni sagđi međ sinni landsţekktu rödd: "Vilhjálmur, er ţetta permanent eđa ţínar eigin krullur? Ég vildi ađ ég vćri međ svona hár". 

Ég hafđi ekki vit á ţví ađ segja "G... , ţetta eru Carmen-rúllur - annađ ekki". Ungir menn eru svo kúgađir og bćldir á ţessum árum ađ líklega hefur ađeins heyrst veikt: "Grr, ggung" frá mér.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson 1975

Mađur var svoddan ţunnildi á ţeim árum sem konur potuđu í háriđ á mér.


Ţetta voru ugglaust ađeins móđurlegar tilfinningar sem komu fram í konunni í lyftunni og hún kyssti mig ekki einu sinni á kinnina. Konan sem potađi í mig slapp ţví viđ sálfrćđinginn og ég hafđi engin vandamál út af ţessu - nema hvađ mig dreymdi ţetta stundum alveg fram undir fertugt. Vaknađi oft í svitabađi.

Ég vil ţó taka fram ađ ég hef mikla samúđ međ Björku og öđrum frćgum prímadonnum sem hafa orđiđ fyrir ađkasti ađ völdum siđlausra manna. Sér í lagi ţeim sem lent hafa í Lars von Trier. Hann er svo djövull slísí og sick ađ ţađ er jafnvel erfitt fyrir karla  gera sér ţađ í hugarlund.

Ég lýsi stuđningi mínum baráttuna viđ hiđ ógeđslega karlpungaveldi, sem er ríkjandi í nćr öllum ríkjum heims nema á Íslandi.

Niđur međ gređjukarlinn! Viđ lifum á 21. öld.


mbl.is Var kynferđislega áreitt af leikstjóra
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Erdogan spćldur á heimavelli

ErdoganŢađ er greinilega ygglibrún á Erdogan eftir glćstan sigur íslenska landsliđsins á ţví tyrkneska. Hver getur ekki skiliđ ţađ?

Erdogan er, fyrir utan ađ vera forseti Tyrklands og Kúrda fram í rauđan dauđann, einnig verndari allrar stór-tyrkneskrar knattspyrnu. Ţeirri vernd er nú lokiđ og eru tyrkneskir landsliđsmenn í fótbolta hvergi óhultir fyrir fýlunni í Erdogan. Á heimasíđu einni í Tyrklandi hafa nú ţegar veriđ fćrđar sönnur fyrir ţví ađ 7 fyrrv. landsliđmenn Tyrklands séu í raun Kúrdar og einn laungyđingur.

Helst hefđi Erdogan viljađ lýsa stríđi á hendur Íslandi, en ţá rann upp fyrir honum sú bitra stađreynd ađ landiđ, ţar sem 11 menn eru betur ţroskađir til fótanna en höfuđsins, eru međfélagar hans í NATO.

Erdogan lét ţau orđ falla eftir kvöldbćnir sínar í gćr, ađ engum vćri lengur treystandi, og ađ greinilegt vćri ađ hann yrđi ađ leika alla landleiki Tyrklands einn og hjálparlaust.

Eins og hann sagđi: Gürgel ürgun boklava T˙rkiet lokum bömmer Islandiet futüllumkum Solo Tayiip Sosiijs!!

Slagorđ nýs landsliđs Tyrklands hefur veriđ hannađ af yfirgrátkonu Erdógan-veldisins og verđur HÜ,HÜ,ÜH. ühühüh......

erdogan-football


mbl.is Landsliđiđ stelur erlendum fyrirsögnum
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bćkur

Kynning á nokkrum fćrslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband