Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, maí 2011

Fyrirgefning syndanna

Dulúð
 

Nýverið móðgaðist ég illilega fyrir hönd Bobs frænda, þegar Óttar Felix Hauksson setti fram nýja kenningu um nafn fæðingarbæjar meistara Bobs. Bærinn sá heitir heitir Duluth og fyrirfinnst einhvers staðar í Minnesota. Ég gerði líklegast heldur of mikið mál úr þeirri skyndiskýringu Óttars, að Duluth þýddi það sama og dulúð á íslensku. Ég býst fastlega við að Bob hefði ekkert haft neitt á móti skemmtilegri hugslettu Óttars, því hann skapaði jafnan mikla dulúð um æsku sína og var lítið gefinn fyrir að segjast vera frá þessu krummaskuði eða og þaðan af síður holunni Hibbings, þar sem hann ólst líka upp, langt á undan sinni samtíð.

Óttar Felix, sem er drengur góður og mikill Bobisti, eins og margir á okkar skeiði, hefur sent mér afsökunarbeiðni út af þessu í dag þegar hann rak augun skrif mín. Aldrei skal óvarlega farið með staðreyndir um Bob. Ég birti vitaskuld afsökunarbeiðnina, en ég er ekki rétti maðurinn til að gefa fyrirgefningu syndanna. Ég sendi því strax þýðingu á afökunarbeiðni Óttars Felix til meistara Dylans. Dr. Bob svaraði stutt og þurrt: „Will, I forgive Felix the cat". Meira var það ekki. Maðurinn er afar fámæltur og sérlega hnitmiðaður eins og alkunna er, enda gæti hann ekki annars svarað öllum tölvupósti sem hann fær frá Peter, Poul and mér.

Ég vona að Dylan-konsertinn hafi gengið vel í Hörpu. Hér er svo pardonnement Óttars, sem var nú alger óþarfi. En menn taka vissulega meistarann alvarlega!:

Afsökunarbeiðni

Í útvarpsviðtali 6. apríl hélt ég því fram að fæðingarbær Bob Dylan, Duluth, bæri sama heiti og alíslenska nafnorðið ´dulúð´. Þó að mér hafi þótt þetta skemmtileg tilgáta út frá samanburðarmálfræði og raunar trúað vitleysunni sjálfur þá er þetta tómt rugl og staðleysa og hrein ,,fabúlering" og mér til minnkunar að trúa slíku á ófullnægjandi forsendum. Dr. Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson fornleifafræðingur bendir á þetta í bloggi sínu frá 7. apríl sem ég var að rekast á. Þar leiðir hann jafnframt sannleikann í ljós, (ég hefði betur flett upp Duluth á Wikipediu). Frakkinn Daniel Greysolon, Sieur du Lhut (ca. 1639 - 25 febrúar 1710) var fyrstur Evrópubúa til að kanna svæðið og ber bærinn nafn hans. Mér til varnar, sem er þó langt í frá réttlætanleg, þá hefur þessu franska nafni ´du Lhut´ verið snúið í hið germanska ´Duluth´ og út frá því hafa illa grundaðar hugmyndir mínar hafið sig á flug. En ég á mér enga raunverulega afsökun. Ég verð að biðjast hennar. Ég biðst afsökunar. Lögmál gagnrýnnar hugsunar er, að það sé rangt að trúa einhverju á ófullnægjandi forsendum. Ég var ekki búinn að leggja á mig neina rannsóknarvinnu, ekki nokkurn skapaðan hlut, bara bullaði. Ég er þakklátur Villa fyrir að benda mér og öðrum sem vilja hafa það sem sannara reynist á hið rétta í málinu.

 


Berlínar búgí wúgí

Codex Frankfurticus mit Senf

Nýlega var ég á ferðinni í Berlín, nánar tiltekið á tónlistarferð með minni heittelskuðu spúsu. Fórum við m.a. til að hlusta á Leif Ove Andsnes í fílharmóníunni. Andsnes er án efa einn fremsti píanisti heimsins. Fyrir utan að hlusta á hann, er gaman að sjá hann spila, risavaxinn, Íslendingslegan andnesjamann, og svo er hann frá eyjunni Körmt. Ágætis mótvægi við gyðingasnillinga, smávaxin kóreönsk segulbandstæki og þýskar múttur með túttur, sem maður getur orðið afar þreyttur á.

Við hjóluðum í ár um Berlín og komum við í Norræna sendiráðinu. Þar var sýning um íslenska snillinga. Rithöfundana okkar. Þessi sýning bar heitið Sagenhaftes Islandog er auðvitað appertæsir fyrir Bókamessuna í Frankfurðuborg, þar sem Ísland verður heiðursgestur í ár.

En mikið var nú ómerkilegt rugl á þessum pósterum í sendiráðinu. Íslenskir rithöfundar eru greinilega með Konungsbók Eddukvæða á heilanum. Ekki minnst Arnaldur Indriðason, sem mér finnst þó aðallega hægt að tengja við Rigor Mortis, þó svo að menn haldi að hann sé höfundur Konungsbókar.

Daginn sem við vorum í sendiráðinu, var andrúmsloftið í anddyrinu ekki sem best. Þar sat kona af þeirri gerð, sem Þjóðverjar kalla Stadtstreicherin. Útigangskona þessi var búin að finna sér samastað í sendiráðinu. Hún var kappklædd í hitanum og hafði greinilega ekki farið í bað nýlega. Þar sem Þjóðverjar hafa alltaf verið svo korrekt gagnvart utangarðs- og minnihlutahópum, situr hún þar örugglega enn blessuð kerlingin og mengar hið hreina norræna andrúmsloft. Hún bætir smá raunsærri skítafýlu við klínískan hátíðleika íslensku rithöfundaspjaldanna.

Þegar út úr sendiráðinu var komið, gátum við andað léttar eftir sjálfshátíðleikann á rithöfundaspjöldunum og þungt Kölnarvatn pokakonunnar, en ekki lengi. Gengt íslenska sendiráðinu er sendiráð Sýrlands. Mér var rétt snöggvast hugsað til sýrlenskra rithöfunda. Codex Assadicus er þeirra lóð í lífinu.

Schöne Irene in Berlin
Við leigðum okkur frábær hjól hjá Berlin Take a Bike, sem er að finna skammt frá Reichstag á Neustädtische Kirchstraße 8, rétt hjá Friedrichstraße lestarstöðinni. Þið finnið leiguna á netinu.

 


Mikið blaðra þessir þingmenn

3158228584_6058a89cdd

Það er krúttlegt hjá rauðum íslenskum þingmönnunum að minnast barna með rauðum blöðrum, þegar þeir hafa greinilega ekkert annað að gera. En ég minnist óneitanlega Stevens McCormacks á Nýja-Sjálandi, sem belgdist nýlega út eins blaðra þegar hann lenti á stútnum, eins og visir.is greindi frá:

"Steven McCormack, vörubílstjóri frá Nýja-Sjálandi, lenti í heldur betur furðulegu atviki á dögunum. Þegar hann var að klifra upp í vörubílinn sinn rann hann í stiganum og lenti á tanki sem innihélt súrefni undir miklum þrýstingi. Og ekki nóg með það að hann hafi lent á tankinum heldur lenti hann á stútnum sitjandi þannig að súrefnið fór af miklu krafti upp í rassinn á honum.

Steven húðin á Steven [sic hjá visir.is] tók að teygjast og hann blés allur út. „Ég blés út eins og fótbolti. Ég átti engra kosta völ en að sitja þarna og blása út eins og blaðra," segir hann.

Hann öskraði af sársauka og komu vinnufélagar hans honum til bjargar og slökktu á loftpressunni. Hann var fluttur á sjúkrahús þar sem loftinu var „tappað" af honum og segja læknar að hann muni ná sér að fullu. Þeir segja að loft hafi komist í lungu hans og að loftið hafi aðskilið fituna frá vöðvunum á líkama hans."

red balloon
 

Þess má geta að blöðrustand íslenskra þingmanna olli truflunum á flugi alla leið til Kína, og börn í Frakklandi (mynd) horfðu skelfingu lostin á íslensku blöðrurnar lenda, og ollu þær þeim meiri sálaróróa en hvítir blettir Strauss-Kahn á svartri þernunni í New York. Jónína Ben er hins vegar byrjuð að selja súrefnisanda beint í rass eftir nýsjálenska módelinu. Meira var greinilega ekki í fréttum.


mbl.is Þingmenn slepptu blöðrum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Össur slekkur elda heimsins

Bjargvætturinn í Brussell
 

Þann 5. ágúst 2010 gerði ég grín af mannúðarstefnu ríkisstjórnarinnar. Grýta átti konu í Íran til dauða. Ekkert heyrðist í íslenskum ráðamönnum andstætt kollegum þeirra í Noregi, sem einir höfðu þor til að gagnrýna aftökuáætlun Íransstjórnar og hlutu hótanir fyrir. Ég gerði grín að Össuri Skarphéðinssyni, sem oft hefur stutt Íransstjórn og laug því í færslu minni að Össur hefði boðið dauðadæmdu konunni landvist á Íslandi.

Nýlega hélt Össur ræðu  þar sem hann heiðrar sjálfan sig fyrir að hafa haft áhrif á að Sakineh Ashtiani hafi ekki verið grýtt til dauða í Íran. Hann sagðist hafa tekið upp mál Ashtiani sl. haust fyrir þrýsting frá almenningi hér á landi og þakkaði almenningi fyrir að hafa haldið sér „á tánum". Össur ræddi einu sinni við sendiherra Írans síðastiðið haust og heldur greinilega að það hafi haft áhrif í mál Ashtiani.

Hann er kjánalega stoltur af sjálfum sér, utanríkisráðherrann. Þetta er sami maðurinn sem skipaði íslenskum sendimönnum að sitja undir hatursræðu Amadinejads í Genf árið 2009 meðan aðrar siðmenntaðar þjóðir skipuðu sendimönnum sínum að ganga úr sal. Þetta er sami ráðherrann sem sat og hlustaði sofandi á Amadintinn og Mugabe í sal allsherjarþings SÞ í New York í fyrra. Sjá hér og hér, og sami maðurinn sem flutti svo að segja sömu ræðuna um Ísrael og Amadinejad á sama allsherjarþingi SÞ. Heldur hann að rabb hans við sendiherra Írans í Osló breyti nokkru í þessum heimi? Össur heldur kannski að Amadinejad hafi tekið eftir því að íslenska diplómatíið sat sem fastast í salnum í New York undir ræðu hans og hafi þess vegna hætt við að steina Sakineh? Aumingja Össur.

En þrátt fyrir grín mitt, sem Össur tók greinilega til sín (Össur les sem sagt bloggið mitt!), situr Sakineh Ashtiani enn í fangelsi í Íran og ekkert hefur breyst þar í landi, þrátt frábær störf blöðrunnar sem er utanríkisráðherra Íslands. Hvað er að manninum? Heldur hann að íslenska þjóðin séu bjánar? Hver veit, kannski var það bara Óli forseti sem bjargaði öllu þegar hann ræddi við Írana. En hættara er nú við að allar þessar viðræður við morðingjaríki séu Íslandi frekar til vansa en fórnarlömbum til góðs.

Hvað hjálpa sambönd Imbu fórnarlömbunum á Sýrlandi? Það á líklega eftir að koma í ljós.

P.s.  

Æi, Össur gleymdi að hjálpa þessari hollensku konu. Maður getur auðvitað ekki náð öllu, þegar maður er í fullri vinnu að hjálpa hollenskum fórnarlömbum Icesave og koma ESB inn á Íslendinga með aumingjalógík.

Sjá fréttaflutning Eyjunnar um afrek Össurar:


Íslendingar eru örugglega líka á bak við fall Strauss-Kahn

Conspiracy in the making
 

Hér skrifar einn sem er afar langþreyttur á endalausum samsæriskenningum vinstri manna. Þeir virðast nærast á að skýra það marga sem miður fer í þeirra höndum sem alþjóðleg samsæri.

Michele Sabban, ESB-embættismaður frá Frakklandi og félagi Dominique Strauss-Kahns i franska sósíalistaflokknum (PSF), sem er auðvitað systurflokkur Samflykkingarinnar, heldur því nú fram að Strauss-Kahn sé fórnarlamb samsæris. Samkvæmt félaga Sabban átti Strauss-Kahn að halda ræðu í lok mánaðarins í Túnis, þar sem hann ætlaði að að segja Túnismönnum að vera einarðir við byltinguna sína. Gefur hún einnig í skyn að Grikkir standi á bak við samsærið á hótelinu í New York.

En í stað þess að halda að AGS (IMF) sé á bak við byltingu í Túnis og að einhverjir séu að gera Strauss-Kahn grikk, hefur Sabban hugsað út í Ísland? Ég meina það. Hefur hún ekki heyrt um gengi eins og Íhaldið, Bláu höndina, SÍS-Mafíuna, Kolkrabbann, Hagkaup og alla Bloggarana. Við höfum líka þurft að heyra það óþvegið frá Strauss-Kahns, sem Sabban segir vera næstvoldugasta manninn í heiminum á eftir Obama.

Íslendingar gætu bara vel hæglega staðið á bak við gildruna í New York. NYPD er á teik hjá Dabba og, og, og, eins og þið munuð erum við hryðjuverkaþjóð. Þernan á Sofitel, sem er "African", er alveg greinilega sú sama og var á bátnum með bankadrengjunum forðum í Florida. Það hlýtur bara að vera.

Conspiracy therory in the making......

French Fried

Stelið ekki í Hagkaup !

vond kona sem stal farða

Í gær las ég um konuræfil í Reykjavík sem stal snyrtivörum fyrir 6098 kr. í Hagkaup. Konan hefur í héraðsdómi verið dæmd í 60 daga óskilorðsbundið fangelsi, sem gera einn sólahring fyrir hverjar 100 krónur sem hún stal. Þetta er náttúrulega hin versta kona, örugglega með ítrekaðan brotavilja til að ná sér í maskara og bodylotion á kostnað Hagkaups. Hún verðskuldar sérhvern dag í steininum, þar sem henni getur lærst að útlitið er ekki allt.

En eru íslensk dómsyfirvöld svo samkvæm sjálfum sér í dómum. Ég sé fram á nokkra 3-20.000 ára dóma yfir fjárglæframönnum á Íslandi, sem með ítrekaðan brotavilja stálu jafnt frá íslenskum almenningi sem erlendum. Sigurður Einarsson og hinum ræflunum mun á þeim tíma gefast nægur tími til að læra að peningar eru ekki allt, en oft mikils virði fyrir þá sem þeim hefur verið stolið frá.

Hverjir ætli eigi Hagkaup og eru allir meðhöndlaðir réttilega í verslunum þeirra?

Eru ekki allir sammála um að eitthvað sé mikið að á Íslandi? Kvittið hér fyrir neðan ef þið mótmælið dómskerfinu á Íslandi. Hvort þið þorið í Hagkaup er ykkar mál.

Hér er svo til gamans blað úr spjaldsrká yfir búðarþjóf í New Orleans frá 1915 (blaðið er hægt að kaupa á netinu). Hann fékk 60 daga fyrir búðarhnupl. Héraðsdómur gæti hugsanlega hafa tekið mið af þessum dómi: 

 60 dagar 1915

ORIGIN: Department of Police, New Orleans
DATE: 1915
CRIMINAL NAME: Paul Portillo
ALIAS: None listed
AGE: 23
NATIVITY: Mexico
COLOR: Listed as White
OCCUPATION: Laborer
CRIME: Petty Larceny - shop lifting
SENTENCE: 60 days in Parish Prison
TATTOOS LISTED: None listed


Fífugras í flóa

fífa
 

Forsætisráðherra, frú Jóhanna Sigurðardóttir, leggur til að fífugras verði þjóðarblóm Íslendinga. Þá hugmynd lýst mörgum á þingi bara alls ekkert á.

Forsætisráðherra skilur ekkert í þeirri miklu gagnrýni sem hefur komið á þessa hugmynd hennar og skorar á þingmenn, sem eru meira veikir fyrir fíflum, að sanna að fífugras geti ekki gegnt hlutverki aðalblómsins Íslands.

Myndin að ofan er af forsætisráðherra. Ekki fann ég neinar myndir af fífum. Myndin að neðan er af Rauðri toppönd sem var reitt hér um árið fyrir Vestan, en forsætisráðherra vill gera öndina að þjóðarfygli Íslendinga.

Jóhanna túberuð
 


Gólfgálkn líffræðinga

Bjarni Húnbogi Knútsson
 

Skinn af hvítabjörnum eru mjög vinsæl meðal íslenskra vistfræðinga um þessar mundir. Bjarni Húnbogi Knútsson líffræðingur, (sjá mynd), sem einnig er sérfræðingur í eignarrétti norðurheimskautsins, eignaðist um daginn forláta skinn af birnu sem vegin var fyrir 2 árum norður í landi. 

Bjarni segir birnuna engum harmdauði, en bætir við, að ekki sé ástæða til að gleðjast yfir dauða bjarnynjunnar, enda hafi það aldrei verið til siðs á Íslandi að gleðjast yfir dauðu skinni. En að liggja á þjóð sinni eins og mara er náttúrulega rammíslenskur siður, bætti Bjarni við.

Saga hvítabjarnarins á Íslandi er áhugaverð og má lesa smákorn um hana hér  og hér.

Ortelius


Farðu til andskotans, Ósómi

Rather Good News for Once
 

það er að segja, þegar búið er að hraðfrysta þig skrattakollur, ljósmynda aumar leifar þínar, saga þig í sundur og taka úr þér sýni hátt og lágt og skafa úr þér heilaskömmina, sem þú þarft ekki að nota í helvíti frekar en í hellinum í Hellmand eða öðrum holum sem þú hefur falið þig í. Farðu í friði.

Great News getting better

mbl.is Osama bin Laden allur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bækur

Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband