Bloggfćrslur mánađarins, febrúar 2007
27.2.2007 | 14:33
Ég er stoltur fađir
Ég er afar stoltur fađir. Ég á tvö unađslega skemmtileg og dugleg börn, sem ég ţakka konu minni fyrir ađ hafa búiđ til međ smávegis hjálp frá mér. Hér er mynd af henni Leu minni. Rúben hef ég ţegar sýnt.
Nú er Lea, sem er tíu ára, farin ađ leika á kontrabassa. Húsiđ titrar allt af djúpum og seiđandi tónum foreldrunum til mikillar ánćgju.
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 14:37 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (1)
27.2.2007 | 13:09
Leitađ ađ íslenskum listamanni
Ég er enn ađ leita ađ listamanninum úr síđustu fćrslu minni. Sýningin, sem hann tók ţátt í, hafđi ţetta ađ segja gestunum:
Gyđingar hafa löngum veriđ duglegir og samviskusamir í ađ safna auđi. Í heimi viđskipta hafa ţeir veriđ áberandi og sagt er ađ gyđingar stjórni efnahagskerfi Bandaríkjanna og líklega ţá heiminum öllum. Ísraelsríki var stofnađ nokkrum árum eftir helför nasista eins og viđ öll ţekkjum. Gyđingar áttu samúđ heimsins og eiga enn vegna helfararinnar. Nú beita ţeir nágranna sína sama óréttinum og ţeir hafa sjálfir ţurft ađ ţola gegnum aldirnar. Eru gyđingar orđnir gerendur í helför gegn aröbum međ efnahagskerfi Bandaríkjanna sem bakhjarl?
Ćtli ţessi orđ hafi hvatt listamannin, sem ég er ađ leita ađ, til ađ hengja gyđing á Kling & Bang?
Er listamanninn ađ finna međal eftirfarandi listafólks sem tók ţátt í sýningunni:
Birgir Andrésson Björk Viggósdóttir Bryndís Ragnarsdóttir Egill Sćbjörnsson Einar Sebastian Erling Klingenberg Gjörningarklúbburinn Guđjón Bjarnason, Gus Gus Hafsteinn Mikael Helga Óskarsdóttir Hlynur Hallsson Hulda Hákon Ingibjörg Magnadóttir Jón Óskar Jón Sćmundur Auđarson Kristín Eiríksdóttir Kristján Björn Lárus H. List Ósk Vilhjálmsdóttir Pétur Már Gunnarsson Rúrí Sara Björnsdóttir Sigtryggur Berg Sigmarsson Snorri Ásmundsson Spessi Tómas Lemarquis Unnar Örn J. Auđarson Ţorbjörg Pálsdóttir.
Kannski veit Steven Spielberg ţađ, en hann varđ ţess heiđurs ađnjótandi ađ fá mynd af sér og ET á sýninguna á Kling & Bang
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 17:17 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (1)
27.2.2007 | 10:20
Gyđingur hengdur á Kling & Bang
Ţessi mynd var teiknuđ á myndlistasýningu í Reykjavík sl. sumar. Sýningin bar heitiđ Guđs útvalda ţjóđ og var haldin á Gallerí Kling & Bang. Gestir sýningarinnar voru beđnir um ađ tjá skođun sína á Guđs útvöldu ţjóđ á vegg sem hafđi veriđ ţakinn töflusvertu. Ţetta var ein af útkomunum. Ég leita enn listamannsins. Hann er beđinn ađ gefa sig fram. Ţarf ekki ađ setja svona snilling á listamannalaun? Hann gćti orđiđ borgarlistamađur í Reykjavík, en borgin er styrktarađili Kling & Bang.
Myndina fékk ég senda frá konu í Bandaríkjunum, sem eftir ánćgjulega ferđ um Ísland varđ fyrir miklum vonbrigđum á Kling & Bang. Hér ađ neđan er mynd frá Vín áriđ 1938. Skođiđ vel krotiđ á verslun gyđingsins. Sjáiđ ţiđ eitthvađ sem er líkt og á Kling og Bang?
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 18:17 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
25.2.2007 | 14:42
Cirkus Dannebrog i Lorteland
Dagblađiđ Politiken greinir í dag frá óförum og vandamálum hjóna í Kaupmannahöfn. Mađurinn er danskur en konan er frá Kenýu. Ţau hafa veriđ gift í 18 ár og hafa búiđ saman i 21 ár. Sem ungur mađur fór Bent Frederikssen međ próf í vélaverkfrćđi til Kenýu og ílentist ţar. Fyrir 18 árum giftist hann kenýanskri konu, Jane (sjá mynd), og á međ henni uppkomna dóttur. Me Tarzan, you Jane. Hljómar eins og endalaus hamingja í hitabeltinu.
En ţegar Bent resktist langađi hann til Danmörku. Tarzan var ekki lengi í velferđarparadísinni Danmörku, áđur en allt fór til helvítis. Ţegar hjónin komu til Danmörku fyrir nokkrum árum, fékk Bent enga vinnu. Ungdómsdýrkendurnir, sem er verulega margir í Danmörku, höfđu engin not fyrir gamlan jálk eins og Bent. Hann fór ţá ađ lokum á ríkisstyrk til ađ komast í gang aftur og svo vinnur hann sem lagermađur. Hjónin skrimta á lágmarkslaunum hans. Jane má ekki vinna í Danmörku, ţar sem hún hefur ekki dvalarleyfi. Hér er ţó alltaf veriđ ađ tala um skort á t.d. hjúkrunarkonum, kennurum, bréfberum etc. Á sama tíma má fólk á besta aldri ekki vinna. Nú verđur Jane ađ fara til Kenýu vegna ţess ađ hún er ekki danskur borgari og mađur hennar hefur ekki haft vinnu í eitt ár samanlagt, eftir ađ ţau fluttu frá Afríku. Ţetta er afleiđing útlendingalaganna í Danmörku. Ţetta er dönsk endaleysa í hnotskurn. Landiđ er á leiđ í eldinn vegna nýgrćđlingadýrkunar og útlendingahrćđslu.
Sjálfur er ég doktor frá dönskum háskóla, giftur danskri konu og hef búiđ hér í 26 ár. En ég vinn samt sem bréfberi, fć ekkert annađ. Ef stađa fornleifafrćđings er laus, er fyrr ráđinn danskur amlóđi en útlendingur međ meirapróf. Ţađ liggur viđ ađ ég sé stundum spurđur, hvort ég sé ekki brátt á förum til míns heima.
Á okkur, sem erum blettir á dönsku glansmyndinni, er litiđ eins og lýs í danska rósabeđinu. En rósagarđurinn er orđinn nokkuđ úr sér genginn. Reyndar gerđist ţađ fyrir löngu. Ţađ er ekki ađeins hćgt ađ kenna núverandi stjórn landsins um ástandiđ. Ţađ vantar nýjar tegundir í lundinn. Allt of mikiđ af náhvítum rósum sem skítafýla og náfnikur er af.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:21 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
25.2.2007 | 11:30
Súpulćkningar á sunnudegi
Nú langar mig ađ slá á léttari nótur. Ég hef dáđst mikiđ af ţessu bloggi og varla haldiđ munnvatni. Eigandinn er medicus og heitir Ragnar Freyr Ingvarsson. Hann er, fyrir utan ađ vera lćknir, fagurkeri og sćlkeri. Ţađ hélt ég ađ vćri ekki hćgt. Hélt ađ mönnum yrđi bumbult eftir ađ hafa gramsađ í og á mannslíkamanum allan daginn í vinnunni. Ţetta frístundaátak Ragnars er nokkuđ í stíl lćkna og lćrđra á Grikkland, Ítalíu og víđar til forna. Cato gamli og Scipio lögđu t.d. mikla áherslu á lćkningamátt káls. Lćknar araba og gyđinga á miđöldum töldu ađ međ réttu matarrćđi kćmust menn í veg fyrir sjúkdóma. Kínverskir lćknar voru á sömu línu gegnum árţúsundin. Sjáiđ svo hve margir Kínverjar eru orđnir. Ragnar verđur ađ koma ţessum mćtti matarrćđisins til skila viđ sjúklinga sína.
Fyrir allmörgum árum kynntist ég heiđursmanni ađ nafni Nicholaos Stavroulakis á eyjunni Krít og hef skrifađ lítillega um hann í danska tímaritiđ Udsyn. Stavroulakis er gyđingur, list- og fornleifafrćđingur o.s.fr. Hann stofnsetti safn gyđinga í Grikklandi og endurbyggđi eitt af samkunduhúsum gyđinga, Etz Hayyim, í Chania á norđvesturströnd Krítar. Hér getiđ ţiđ frćđst um ţađ merkilega starf sem hann hefur unniđ ţar. Stavroulakis hefur, fyrir utan svo margt annađ, gefiđ út nokkrar matreiđslubćkur, t.d. frábćra bók sem heitir: Cookbook of the Jews of Greece. Cadmus Press, PA 1986, sem ég náđi í fyrir mörgum árum og hef notađ mikiđ.
Brúđkaup í samkunduhúsinu í Chania. Ţúsundţjalasmiđurinn Stavroulakis ber bćnasjal og grćna kollhúfu.
Hér er ein sefardísk uppskrift (upprunnin úr eldhúsum gyđinga sem flýđu frá Spáni um og efter 1492) frá Saloniku, sem mig langar ađ deila međ ykkur:
Soupa de huevos y limon (Avgolemon)
1 stór kjúklingur
safinn úr 2-3 sítrónum
1 bolli af hrísgrjónum
2 laukar
3 egg
1 tsk. hveiti
salt og pipar
hökkuđ steinselja
Hreinsiđ kjúklinginn vandlega og setjiđ í stóra grýtu og setjiđ í vatn svo ţađ fljóti yfir kjúklinginn. Hakkiđ laukana fínt og setjiđ líka í grýtuna. Fáiđ suđuna upp og látiđ svo sjóđa í um 10 mínútur. Fjarlćgiđ ţvínćst frođu og fitu af yfirborđi sođsins. Látiđ svo kjúklinginn sjóđa (malla viđ vćgan hita í klukkustund, eđa ţangađ til hann er vel sođinn. Ţá er hann fjárlćgđur úr sođinu og settur á disk og kreist yfir hann örlitlum sítrónusafa. Seinna er hann skorinn í bita og borinn fram sem annar réttur á eftir súpunni, en einnig er hćgt ađ setja bita af honum í súpuna ţegar hún er tilbúin.
Í sođiđ eru nú sett hrísgrjón. Á međan ţau sjóđa, eru eggjarauđurnar hrćrđar í skál saman viđ hveitiđ og í ţađ er settur sítrónusafinn, saltiđ og piparinn. Ţessi blanda er hrćrđ í skálinni í vatnsbađi viđ vćgan hita. Ţađ ţarf stöđugt ađ hrćra blönduna, međan bćtt er viđ örlitlu af sođi kjúklingsins. Úr ţessu á verđur eins konar sósa. Eggjahvíturnar er ţeyttar stífar og hrćrđar varlega í sósuna og ţetta látiđ kólna, áđur en ţessu er hellt niđur í sođiđ. Ţegar ţađ hefur veriđ gert, má ađeins halda súpunni heitri og EKKI láta suđuna koma upp. Helliđ hakkađri steinselju yfir og beriđ fram međ sítrónusneiđ fyrir ţá sem vilja ţetta súrara.
Ţetta er svo boriđ á borđ međ góđu brauđi. Súpa ţessi er einstaklega góđ viđ kvefi. Kjúklinginn er, eins og áđur segir, hćgt ađ borđa á eftir, eins og hann er, međ góđu salati, löđrandi í góđri grískri olíu, ólívum etc. Og ef ţađ er helgi geta menn búiđ til eftirrétt úr möndlum međ 12 stjörnu Metaxa. Fćrri stjörnur mega ţađ ekki vera.
Kalimera!
Menning og listir | Breytt 26.2.2007 kl. 12:03 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
22.2.2007 | 21:43
Frelsi fyrir Abdelkareem Nabil
Enn eru til Egyptar sem reisa pýramída, en ţađ er bannađ!
Skrifiđ undir hér
Lesiđ blogg Abdelkareems hér
Hjálpiđ Egyptalandi ađ byggja Pýramída frelsisins.
Egypskur bloggari dćmdur í fjögurra ára fangelsi vegna móđgunar | |
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt |
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 21:50 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (1)
22.2.2007 | 20:17
Hreinleikinn sigrađi í dag
Fjallkonan viđ Hjalta: Hjalti litli, hćttu nú ađ gráta litli drengurinn minn. Ţađ koma engir vondir, útlenskir menn í Bćndahöllina. Ţađ verđa ekki neinar konur međ stór brjóst í Bláa Lóninu eđa allsberir karlar á Ţingvöllum. Ţig dreymdi bara ljótan draum. Ţađ eru engir súlnadansstađir til í landinu okkar, ađeins Súlnasalurinn hinn bjarti. Ţađ er ekkert klám í sjónvarpinu eđa á veraldarvefnum og hvar lćrđir ţú eiginlega orđiđ vćndi? Ţađ er nefnilega ekki til á tungu vorri. Ţetta hlýtur ađ hafa veriđ vondur draumur. Farđu nú aftur ađ sofa. Viltu mjólk, eđa banana?
Hjalti viđ Fjallkonuna: Mér langar í Kókó Puffs
Fjallkonan viđ Hjalta: Ţađ heitir MIG langar í Kókó Puffs, Hjalti minn.
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 20:22 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
22.2.2007 | 08:08
Er sumariđ búiđ á Sýrlandi?
Sýrlendingar eru međal fremstu stuđningsmanna hryđjuverka í heiminum. Hafiđ ţiđ nokkurn tíma velt fyrir ykkur hvernig mannréttindum er háttađ á Sýrlandi?
Frćđist hér: http://www.shrc.org.uk/default.aspx
Sjá sömuleiđis: http://www.postdoc.blog.is/blog/postdoc/entry/126190/
Sýrlenski herinn styrktur og fćrđur nćr landamćrunum viđ Ísrael | |
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 08:16 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (2)
22.2.2007 | 07:15
Er Condi Rice orđin rugluđ?
Hin eldklára Condoleezza Rice er ekki alltaf eins skarpsýn og haldiđ er fram. Kannski hefur hún einhvern veikleika eins og allir ađrir. Ég hef grun um, hvar skórinn kreppir á madömmunni.
Í viđtali viđ ísraelska dagblađiđ Haaretz sagđi hún í gćr, ađ Ţetta er ekki áriđ 1938 og Íran er ekki Ţýskaland nasismans. Ţetta er annađ hvort veruleikaflótti eđa fáviska, og ég tel ekki lengur ađ Condi sé hlutlaus ţegar kemur ađ lausn vandamála í Miđausturlöndum. Hún mun skapa fleiri vandamál en hún leysir áđur en yfir líkur. Í Íran í dag er meiri terror en í Ţýskalandi nasismans áriđ 1938. Fleiri hafa flúiđ landiđ vegna skođanna sinna og fleiri eru fangelsađir og pyntađir en hjá nasistum áriđ 1938. Fleiri eru teknir af lífi međ hegningarlögum sem eru ţau ströngustu í heiminum. Í ofanálag verđur ríki morđprestanna komiđ međ gjöreyđingarvopn áđur en langt um líđur.
Líklegast er betra ađ spyrja flóttamann frá Íran um ástandiđ í landinu en Condoleezzu Rice. Lesendur góđir skođiđ t.d.. www.iranfocus.com , ellegar ţiđ sem taliđ frönsku: http://www.iran-resist.org/ . Hengingar á götum úti eru reglulegur viđburđur í Íran. Fangelsi eru yfirfull. Íbúar, sem ekki eru handgegnir ofsaklerkunum eđa eiga hagsmuna ađ gćta í kerfinu, lifa í endalausum ótta. Í ofanálag er fólki kennt ađ hata gyđinga. Ţeir eru sagđi standa á bak viđ allt illt í heiminum. Ţeir eru meginfjendur Írans. Ţannig var ţađ nú líka áriđ 1938 í Ţýskalandi nasismans, frú Condi. Lítiđ hefur breyst á 70 árum.
Vitiđ ţiđ af hverju íranskir karlmenn ganga ekki međ bindi? Jú, bindi eru vestrćn, zíonistísk uppfynning og ţess vegna eru ţau bönnuđ. En ég hef ađra kenningu um af hverju klerkaóstjórnin bannar bindi. Ţau minna örlítiđ á snörurnar sem ţeir setja svo oft um háls ţjóđar sinnar fyrir hinar minnstu sakir. Vitiđ ţiđ ađ Íran leyfir enn grýtingar á konum? Lesiđ fréttirnar hér. og t.d. hér
Hér eru nokkrar myndir frá Íran, til ađ minna á hve gott er ađ búa á Íslandi og hafa Sjálfstćđismenn og Framsókn sem helstu átrampendur landslýđs, ţ.e.a.s. ţegar jafnađarfólkiđ eru ekki viđ völd. Viđ erum heppin. Frćđist međ eigin augum . Hvađ fynnst ykkur um ţá refsingarađferđ, ađ fjarlćga augu. Ţađ gera Íranir líka.
Verđi ykkur ađ góđu vinir Írans.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:25 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
19.2.2007 | 20:32
Viđ lifum alltaf á Klámöld
Einu sinni var ţetta örugglega klám! Fyrir svona rúmum 20.000 árum. Klám er afstćtt fyrirbćri í tíma og séstaklega rúmi. Ég held ekki ađ neinn andmćli mér, ţegar ég held ţví fram ađ klám er notađ alveg eins mikiđ á Íslandi og alls stađar annars stađar, nema vera skyldi í Norđur Kóreu (ţó ég hafi ekki haft tök á ţví ađ kynna mér ţađ). Ekki á ég verđbréf í klámiđnađinum og sćki ekki klámráđstefnur sem hér í Danmörku eru árlegur viđburđur. Ég get ekki séđ, hvernig einhver ráđstefna erlendra klámkaupmanna á Íslandi misbjóđi blygđunarkennd nokkurs manns. Kastiđ fyrst steini ađ klámbúllunum og dansstöđunum, sem fyrir eru í eigu Íslendinga. Oft er gott er ađ líta í eigin barm frekar en á ađra.
Upptökur á eđlunarmyndum af mannfólkinu er örugglega afar leiđinlega atvinna. Ef sú iđja varđar viđ íslensk lög, getur löggan bara handsamađ fólk, sem fer í sleik viđ Gullfoss og hefur samfarir viđ Geysi og vísađ ţeim úr landi. Viđ búum í lýđrćđisríki og virđum lög. Bjóđum ţví klámkalla og kerlingar velkomin, en gerum ţeim ljóst, ađ lög á Íslandi banna ţeim ađ hafa verklegar framkvćmdir nema í hjónasćnginni, bak viđ gardínur og lćstar dyr og ađ ţađ sé synd ađ gera ţađ uppi á fjöllum og á förnum vegi. Hvađ gćti sauđkyndin ekki haldiđ? Viđ megum ekki missa sérstöđu okkar á međal ţjóđanna!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:03 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
Bćkur
Kynning á nokkrum fćrslum, greinum og bókum PostDocs
-
Nýtt blogg um fornleifafrćđi
FORNLEIFUR -
Ţrćlasalar í Norđurhöfum
Grein í Lesbók Mbl. 1999 -
: Ritaskrá 1972-2013 -
Fyrri fćrsla
Jakki Kiljans Laxness -
Bein Páls Biskups
Kveđskapur -
: Flóttamađurinn Alfred Kempner -
Pepsi var á Ströndum
Gosdrykkjasaga -
Mótmćlum Durban II
Meira -
Ved Helvedes Port
Grein mín í SKALK. Nr.4,1994. -
: Gyđingar á Grćnlandi
Fyrri fćrsla og tenging viđ grein eftir mig á dönsku um gyđinga á Grćnlandi -
Flogiđ hátt
Grein mín um fyrsta flug flugbels á Íslandi -
Fyrri fćrsla
Líkţráir Íslendingar -
: Lesiđ hér (ISBN: 978-965-218-066-7)
Behind the Humanitarian Mask; The Nordic Countries, Israel and the Jews. Edited by Manfred Gerstenfeld. -
Fyrri fćrsla
Vinir útlendinganna -
Fyrri fćrsla
Nakinn sannleikur -
Ungr var ek forđum
Fćrsla um óeirđir og lćti í ćsku minni -
Fyrri fćrsla
Ţegar Gúttó varđ samkunduhús gyđinga -
Fyrri fćrsla
Vive l'(Gr)islande -
Fyrri Fćrsla
Nifalt húrra -
Íslenskar frúr í Andvörpum
Um ferđir útrásar-Íslendinga á 16. öld. Lesbók Morgunblađsins 28.águst 1999. -
Fyrri fćrsla
Berlínarboogie Laxness -
Fyrri fćrsla
Pabbi Ţórs var myrtur í Auschwitz -
Falskir Íslendingar
Grein um ţjóđarstolt -
En dansk krigsforbryder
Grein í Weekendavisen um versta stríđsglćpa- mann Dana, sem dönsk yfirvöld vildu helst gleyma. -
Anti-Semitism in Iceland. Is that possible? -
Iceland, the Jews, and Anti-Semitism, 1625-2004
Grein á ensku um gyđinga á Íslandi -
Ich weiss, was ich zu tun habe
Grein mín um Georg F. Duckwitz, nasistann sem á ađ hafa veriđ potturinn og pannan viđ björgun gyđinga í Danmörku. Í greininni sem birtist í tímaritinu Rambam 15:2006 er gerđ grein fyrir fjölmörgu sem danskir sagnfrćđingar hafa gleymt ađ rannsaka. Hlutverk Duckwitz verđur nú ađ endurskođa. -
Grein
The King and the Star í: Denmark and the Holocaust (2003) (ISBN: ISBN 87-989305-1-6) -
: Rescue, Expulsion, and Collaboration: Denmark's Difficulties with its World War II Past
Jewish Political Studies Review 18:3-4 (Fall 2006; Tímarit sem ég hef skrifađ töluvert í -
: 20 Begivenheder der skabte Danmark (ISBN: 87-02-0516-7)
Ég er međhöfundur ađ einum af köflum bókarinnar. -
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson: Medaljens Bagside - Jřdiske flygtningeskćbner i Danmark 1933-1945 (ISBN: 87-91393-60-4 ) Forlaget Vandkunsten 2005. Bók mín um međferđ danskra yfirvalda á flóttafólki á 4. og 5. áratugi 20. aldar.
Meira
Nýjustu fćrslur
- Á mér stendur ..... Bjarni Ben
- Minnislaus síđan í síđustu ESB-kosningu
- Gamlir dónar sem fokka sér - Meet the Fockers II
- Icelandic Police Bared
- Niđurstađan: KiSS or Bćjarins beztu
- Zelenskij fór í ranga flugvél - verđur í Fćreyjum nćstu dagana
- Sjúklega svćsinn gyđingahatari er vinsćll á Moggablogginu
- Valdemar á svölunum er látinn
- Svćsnir fordómar eru ekki hluti af málfrelsi og tjáningu
- Ástráđur eins og lús á feldi
- Utanríkisráđherra eyđir um efni fram í útlöndum
- Ódýrasta Laxness-bókin er enn til
- Geimöldin hafin á Íslandi
- Mannvinurinn Johnny Gun
- Jón hinn óbođlegi
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (15.10.): 1
- Sl. sólarhring: 8
- Sl. viku: 49
- Frá upphafi: 1351914
Annađ
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 40
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri fćrslur
- Júlí 2024
- Apríl 2024
- Febrúar 2024
- Desember 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Ágúst 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Júlí 2021
- Maí 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- Ágúst 2020
- Maí 2020
- Nóvember 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Júlí 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Janúar 2017
- Nóvember 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Nóvember 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007