Leita í fréttum mbl.is

Svæsnir fordómar eru ekki hluti af málfrelsi og tjáningu

 Screenshot 2023-04-03 at 10-04-34 Svo mæltu hinir lærðu öldungar frá Zion. Alheimsstjórn - arnarsverrisson.blog.is

Sálfræðingur með einhvers konar samsærisheilabilun (mín greining) bloggar á Mogganum. Því miður brýtur hann alveg örugglega lög með skrifum sínum, t.d. með svæsnum gyðingafordómum.

Ekkert er gert, hvorki á Morgunblaðinu, sem ég hef beðið um að hafa hömlur á gyðingahatri bloggarans. Enn spýr sálfræðingurinn hatri og misnotar Moggabloggið til þess. En kannski eru starfsmenn Moggans sammála sálfræðingnum?

Íslensk yfirvöld hafa, þrátt fyrir ágæt lög, aldrei gripið í taumana og notað landslög til að koma í veg fyrir andlegan vanskapnað þann sem gyðingahatur er. Það er eins og gerður sé greinarmunur á hatri á hinum mismunandi minnihlutum sem verða fyrir hatri á Íslandi.

Arnar Sverrisson heitir maður sá sem ég nefni til sögunnar. Mér til mikillar undrunar er hann sálfræðingur og með próf upp á vasann frá sama háskóla Danmörku og ég. Miðað við þau málefni sem heltaka hann, held ég að hann hafi gleymt öllum grundvallasiðareglum sálfræðinga. Gyðingahatur af verstu gerð á Moggablogginu hefur ekkert með málfrelsi og tjáningarfrelsi að gera, svo því sé strax slegið föstu.

Arnar Sverrisson heldur úti bloggi á blog.is. Hann er ekki bara óður vegna þess að til er fólk sem ekki er gagnkynhneigt og að fjölbreytileiki mannverunnar sér meiri en áður var talið.

Honum hefur verið stefnt vegna ummæla sinna um kynsegin fólk. Hómófóbía Arnars og ásakanir varða oft fólk með aðra kynmeðvitund en heteró-meirihlutinn. Hann vill meina að þetta fólk sé að gera sér upp kynhneigð sína. Slík hegðun og afneitun er afar óeðlileg á okkar tímum. Arnar telur án nokkurra vitrænna raka að kynsegin fólk sé geðveikt. Frá að vera ofsótt og lítilsvirt, er nú farið að gera því skóna að fólk sé veikt af geði.

Arnari er einnig meinilla við flóttamenn og hefur því verið gestur á hatursmiðli þeim sem Margrét Friðriksdóttir tengist. 

Þessa dagana hefur Arnar Sverrisson horn í síðu gyðinga og telur þá hafa undirbúið eitt allsherjar plott gegn heiminum í aldaraðir og það tilkynnti hann á Moggabloggi sínu.  Sjá hér:

Það þarf ekki neina sálfræðigreiningu til að sjá að höfundurinn er hugsanlega lasinn á sálinni. Áður hefur hann skrifað blogg sem leikur með samlíkingar á gyðingum og nasistum og setur hann jöfnunarmerki á milli gyðinga og Hitlers í samsærisskrifum um ímyndaða heimsyfirráðatilburði gyðinga. 

Svo það sé ekki nóg, eru alls kyns samsæriskenningar um Covid-pestina að grassera í höfði sálfræðingsins, sumar þeirra eru einnig gegnsósa af gyðingahatri Arnars.

Moggabloggið á vitaskuld að koma í veg fyrir fyrir svæsið gyðingahatur. Það stangast á við hegningarlög í landinu. En skoðanasori Arnars Sverrissonar stendur enn. Ég vona að þeir sem stýra blogginu fjarlægi svæsið hatur Arnars Sverrissonar í stað þess að loka á fólk sem segir óþægilega hluti um Sjálfstæðisflokkinn, þegar ærin ástæða er til þess.

Það er grábroslegt, að mágur Arnars Sverrissonar er gyðingur ættaður frá Bandaríkjunum. Hann heitir Michael Levin. Levin getur vitaskuld ekki gert að því að mágur hans sé hugsanlega bilaður. Michael Levin er einstakur heiðursmaður sem ég þekki aðeins af góðu einu. Michael er maður kurteis og prúður í allri viðkynningu og hið mesta gæðablóð. Honum einum er það fyrst og fremst að þakka, að það var smávegis trúarleg samvera meðal gyðinga á Íslandi, áður en samtökin Chabad fengu augastað á Íslandi og opnuðu hér gyðinglega miðstöð fyrir þá sem þurfa á trúarlegri næringu að halda á okkar köldu eyju.

Reynið að ímynda ykkur, hvernig ætli það sé fyrir trúaðan gyðing að flytja til lands með íslenskri konu sinni, til að verða fyrir mannréttindabroti sem felst í því að mágur hans fer níðingsorðum um trú hans og uppruna úti í samfélaginu, og í þessu tilfelli á Moggablogginu.

Ég bað í síðuastliðinni viku Moggabloggið að líta á hatrið á bloggsíðu Arnars, en mér sýnist að hatrið sé þar enn. Ekki er hægt að verja þá hatursræði með málfrelsi eða tjáningarfrelsi. Arnar gengur út fyrir allan þjófabálk.

Til hatursræðunnar gefur Moggabloggið Arnari Sverrissyni vettvang á vegum Morgunblaðsins? Í stað þess að vinsa "hættulega komma" af blogginu ætti Mogginn ef til vill að líta á flóru hægriöfgamanna sem nú bloggar á blog.is.

"Gamalgróinn áhugamaður um samfélagmál á grundvelli mannúðlegrar jafnréttishyggju og frjálslyndis."

Þannig lýsir Arnar Sverrisson sjálfum sér á Moggablogginu

Hin hliðin: Arnar Sverrisson sálfræðingur mætti í yfirheyrslu vegna kæru trans-aktivista

Sverrir ásamt Margréti Friðriksdóttur á góðru stundu.

Óska ég þess vinsamlegast að Morgunblaðið íhugi þann skaða sem bloggarinn og sálfræðingurinn Arnar Sverrisson gæti valdið Morgunblaðinu. Sálfræðingar geta, líkt og allir vita, verið sjúkir eins og allir aðrir. Ég ræð Arnari að leita sér sérfræðings sér til aðstoðar og að Morgunblaðið biðji hann um að fjarlægja það gyðingahatur sem hann hefur dreift á blogginu, ellegar verði því lokað neiti hann að verða við þeirri ósk.

Arnar sálfræðingur heldur því fram í hatri sínu að ekki hafi tekist að sýna fram á að Samsærisáætlunin mikla - Siðareglur Zionsöldunga sé falsrit. Arnar hefur trúlega ekki burði til þess að afla sér gagna enda virðast fordómar hans hindra því. En þegar hatrið er svo heiftarlegt líkt og hjá Arnari, þá blindast menn. Langar mig að biðja Arnar um að lesa upplýsingar um falsritið sem hann vitnar sem óður og auðtrúa í: 

Þess má geta að fyrrgreint rit var gefið út á Íslensku af flokksbundnum krata, Jónasi Guðmundssyni, svo seint sem árið 1953. Sjúkdómurinn gyðingahatur getur vissulega skotið upp kollinum (sjá meira um hatur Jónasar Guðmundssonar)

Þegar hatur og fordómar blinda mönnum sýn, sjá flestir heilvita menn hvað er að gerjast, en ég bíð eftir því að Morgunblaðið geri það líka og treysti því að þeir sem sjái um bloggið grípi til nauðsynlegra ráðstafana svo að gyðingahatur Arnars sé ekki dreift á þeirri ágætu veitu til skoðanaskipta sem bloggið er. Þar fara sumir mikinn, en oftast á sæmilegum nótunum. Þeir sem banna umræðu um skrif sín vita að það sem þeir skrifa getur valdið deilum. En þeir óska ekki málefnalega umræðu eins og góðir bloggarar (með nægan tíma) gera. Ef maður skrifar aðeins til að heyra sjálfan sig, telja höfundar sig líklega hafna fyrir alla gagnrýni. Það getur líka sýnt ákveðin geðveilu fóbíu og einnig geðhvörf hjá höfundinum sem þeir vilja halda í skefjum á sínum betri dögum svo allur heimur þeirra sé ekki brotinn niður er þeir eru í lægð. Kannski vita þeir sem ógagnrýndir skrifa, að málstaður þeirra er veikburða og í sumum tilfellum er jafnvel hægt að hugsa sér létt mikilmennskuæði þegar menn vilja ekki ræða rökstudda gagnrýni. Fólk getur eytt ummælum dóna og durga því af þeim er líka nóg.  En undirbyggð gagnrýni er öllum holl - einnig Morgunblaðinu.

Og í anda Cató gamla, sem á sinn forna hátt lagði til að Karthagóborg yrði eytt (Ceterum censeo Carthaginem esse delendam), þá legg ég til að  til að félag eða félög Sálfræðinga á Íslandi sýni, að félögin lýði ekki að sálsjúkir fordómar um minnihluta sé dreift í þjóðfélaginu af félagsmönnum, og að félagar sem það gera sé úthýst, þegar opinberar skoðanir þeirra eru einvörðungu öfgar og hatur.

Í stétt sálfræðinga er, sem betur fer, mestmegnis heilvita fólk. Ég bjóst ekki við öðru. Ég athugaði félagaskrá Sálfræðingafélagsins og þar er af einhverjum ástæðum ekki hægt að finna sálfræðinginn Arnar Sverrisson. Vonandi eiga ekki margir í stétt sálfræðinga samleið og skoðanafylgni með Arnari. Þessi grein er hugsuð sem forvarnarstarf.

Virðingarfyllst
Dr. Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

 

P.s. Til frekari upplýsingar:

Meira um gyðingahatur á Íslandi: Fyrir lesendur með áhuga á sögu gyðingafordóma á Íslandi leyfi ég mér að benda á eigin skrif í grein um Ísland í ritinu Antisemitism in the NorthAllt ritið er aðgengileg þökk sé rannsóknarráði Svíþjóðar. Hefði Arnar Sverrisson verið farinn að skrifa, líkt og hann gerir nú, er ég skrifaði grein mína, þá hefði ég ugglaust eytt klausu í hann, þó ég viti að hugsanlega sé ég að rita um andlega sjúkan mann - En fólk býst venjulega ekki við því að sálfræðingar séu veikir, það gefur ekki mikla von fyrir þá sem eiga við sálrænan vanda að stríða.

Eins langar mig að benda á grein um sálfræðinga og geðlækna í þjónustu nasista. Suma þeirra var hægt að nota í útrýmingarherferð nasista á hendur fötluðu fólki. Heil kynslóð fólks sem hefur fengið stimpilinn Asperger-heilkenni, vita aldrei að Hans Asperger (1906-1980) sem skilgreindi þann sjúkdóm, var svæsinn nasisti og hann sá fyrir sér útrýmingu á því fólk sem hann stimplaði með greiningu sinni (lesið vinsamlegast hér) .

Fyrir nokkrum árum síðan ritaði danskur læknir grein ásamt öðrum, þar sem hann hélt því fram að tengsl væru milli aukinnar tíðni innhverfu (autisma) og umskurðar á drengjum múslíma og gyðinga. Morten Frisch, sem enn vinnur fyrir opinbera stofnun í Danmörku, þegar hann er ekki að dreifa undarlegum boðskap sínum gegn umskurði, er í dag ekki tekin sérstaklega alvarlega vegna greinar sinnar um samhengi á milli Aspergers og umskurðar í frumæsku. Hún hefur verið tætt niður fyrir tölfræðilega galla og fordóma af öðrum sérfræðingum í Danmörku og víðar. - En hún hentar vel þeim sem enn atast út í gyðinga og múslíma á 23. öld. Læknar og sálfræðingar sem gefa færi á sér til níðingsverka ganga að mínu mati ekki heilir til skógar.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Þessi bloggfærsla birtist einnig á Fornleifi. Fornleifur var tekinn af matseðli bloggsins í furðulegri aðgerð innan Morgunblaðsins. Postdoc.blog.is er enn á matseðlinum - en hve lengi??

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 3.4.2023 kl. 12:46

2 Smámynd: Loncexter

Af hverju er ótakmarkað kristhatur enn leyft á öllum fjölmiðlum í dag.

Og af hverju segir enginn neitt um kalergi plan ?

Loncexter, 3.4.2023 kl. 17:43

3 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Zionismi og Gyðingdómur er tvennt ólíkt því aðeins annað þeirra eru trúarbrögð. Ásælni zíonista til heimsvalda er ekki samsæriskenning heldur staðreynd.

Mér sýnist sá sem skrifað er um gera sömu mistök og fleiri, að rugla þessu tvennu saman. Það kann að mega rekja til þess að margir zíonistar eru Gyðingar en þó alls ekki allir.

Tek það fram að ég hef enga andúð á neinum vegna trúarbragða svo lengi sem iðkun þeirra veldur engum skaða.

Guðmundur Ásgeirsson, 3.4.2023 kl. 20:09

4 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

"Svæsnir fordómar eru ekki hluti af málfrelsi og tjáningu"

Ef þú getur ekki tjáð fordóma, svæsna eða annarskonar, þá hefur þú ekki tjáningarfrelsi.

Ásgrímur Hartmannsson, 3.4.2023 kl. 21:38

5 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Loncexter Kristshatur er ljótt, þó fólk sé ekki barið eða myrt í milljónatali vegna þess, eða því lofað að þjóðríki þeirra verði rutt í sjó fram. Kristhatur er hins vegar hatur gegn "persónu", gyðingi, sem enginn veit hvort var til, meðan að gyðingahatri er beitt gegn lifandi fólki. Svo hættu að gráta.

Guðmundur Ásgeirsson, ég skrifa hvergi að Gyðingdómur sé það sama og síonismi. Gyðingahatarar hata hvortveggja og líkja síonisma við nasisma. Þú fellur hins vegar undir mína skilgreiningu á gyðingahatara, þar sem þú skrifaðir að "ásælni zíonista til heimsvalda sé ekki samsæriskenning heldur staðreynd". Þeim hefur greinilega orðið lítið ágengt. Tveir bjánar, einn í BNA og annar í Rússlandi stjórna heiminum. Þakka þér fyrir að sýna lesendum mínum að flóran af gyðingahöturum er stærri en Sverrir sálfræðingur. Það vissi ég nú fyrir.

Ásgrímur Hartmannsson, svæsnir fordómar sem áður hafa valdið morðum á 6 milljónum manna á 20. öld milljónum annarra í gegnum aldirnar eru svæsnir fordómar.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 4.4.2023 kl. 05:42

6 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

Ritskoðun lagar enga fordóma, býr þá frekar til eða gerir þá verri.
Ritskoðun er bara enn eitt skref í átt að gasklefanum/gúlaginu.

Ásgrímur Hartmannsson, 4.4.2023 kl. 18:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bækur

Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband