Leita í fréttum mbl.is

Bloggfćrslur mánađarins, apríl 2015

Marco litađi bloggiđ mitt

geysir_small4.jpg

Marco Evaristti hellti rauđum matarlit á bloggiđ mitt, áđur en hann hélt af landi brott.

Menn hafa spurt mig, hvort ég ćtli ekki í mál. Nei, ég ćtla ekki í mál viđ Evaristti. Á ţessu bloggi hefur fjöldi manna úthellt eldi og brennisteini, látiđ illa og slett skyri og veriđ međ óţvegiđ gyđingahatur. Sumir hafa reynt ađ hella lút og sápu, svo ég gjósi.

Smá ávaxtasafi á PostDoc.blog.is gerir miklu minni skađa en svínsleg framkoma sumra Íslendinga. Menn hafa skiliđ hér eftir verri leđju í athugasemdum en rauđrófusafann sem Evaristti hellti hér inn á síđuna. 

Fornleifur frćndi er hins vegar ekki glađur ţessa stundina, ţví Marco sletti líka ávaxtalit á gleraugun hans (sjá hér).


mbl.is „Ég borgađi ekki“
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Fräulein Hauptmann á Iceland Review

frl_hauptmann.jpg

Ung ţýsk kona, Katharina Hauptmann ađ nafni, hefur skrifađ fyrir Iceland Review og t.d. Wall Street International, og er víst sérfrćđingur í gyđingahatri, ţegar hún er ekki barţjónn í Reykjavík. Hún kemur líka frá ţví menningarsvćđi ţar sem fyrirbćriđ gyđingahatur hefur náđ hćstum hćđum á síđari tímum. Er ţví nokkur furđa, ađ hún sé sérfrćđingur í ţessu ljóta fyrirbćri? En fyrir gyđingahatri hefur stúlkan víst aldrei orđiđ, svo hvernig hún veit hvernig ţađ er, er mér ekki fyllilega ljóst.

Í hvert sinn sem gyđingar gangrýna Ísland fyrir gyđingahatur sem fram kemur á alţjóđlegum vettvangi er ţessi kona, sem býr á Íslandi, farin á kreik til ađ segja öllum ađ gyđingahatur sé alls ekki til á Íslandi og ađ ekkert vandamál sé ţar til stađar.

Ţetta gerđi hún áriđ 2011(sjá hér) og aftur á FB sinni í sl. mánuđi, ţegar birtist frekar léleg grein eins af deildarstjórum SWC (Simon Wiesenthal Center), sem hafđi uppgötvađ sjúkt myndband eftir íslenskan listamann. (Sjá skjámynd af FB Hauptmanns  neđst).

Kona ţessi telur greinilega ekki ađ gyđingahatur getir veriđ til stađar í landi ef í ţví búi engir eđa mjög fáir gyđingar. Ţó samlandar hennar fyrr á árum hafi nćr veriđ búnir ađ myrđa alla gyđinga Evrópu međ dyggri ađstođ ýmissa annarra ţjóđa, og ađ gyđinga sé nćri ađeins ađ finna á söfnum í sumum löndum ţar sem Helförin fór fram, ţýđir ţađ ţó ekki ađ gyđingahatriđ hafi horfiđ. Ţađ er enn til í Ţýskalandi og fjölda landa í miđ og austur-Evrópu. Mađur verđur svo sannarlega var viđ ţađ. Önnur rök hennar eru eins og eitthvađ glamur í drukkinni menntaskólapíu. "Ađeins 2 % Íslendinga eru kaţólikkar" skrifar Hauptmann. "Ţrátt fyrir ţađ hata ađrir Íslendingar ekki íslenska kaţólikka". Ţetta á, ađ mati Fräulein Hauptmann, ađ sýna ţađ fjarstćđukennda í ađ nokkur á Íslandi sé gyđingahatari.

Nú vill svo vel til, ađ kona ţessi sankar ađ sér vinum á Facebook sem deila međ henni skođunum sem verđur hreint út sagt ađ gera Wall Street International viđvart um og ţađ viđ fyrsta tćkifćri. Ţýsk Fräulein međ slíka vini getur vitanlega ekki skrifađ fyrir Wall Street International.

Međal ţeirra er bandaríski ríkisborgarinn Ted Theewen ađ nafni. Í mars sl. skrifađi ţessi mađur, sem er greinilega er satanisti og gyđingahatari í ofanálag ţetta á FB Katharinu Hauptmanns, og hún lét ţađ óáreitt:

Jews are all for making fun of other religions until it´s their turn. There is an old Polish proverb: The harder a Jew hits you, the louder he cries out in pain. I´ve noticed that Iceland is under a systematic attack by Zionist interests. I´m sure the attacks will stop once you give them something. A Holocaust museum usually shuts them up for a while.

Svo mörg voru orđ FB-vinar Katharinu Hauptmann. Skrif hennar og dómur hennar um gyđingahatur á Íslandi voru hér vegin og léttvćg fundin. Fräulein Hauptmann, greinarhöfundur á Iceland Review og Wall Street International er alls ekki dómbćr á gyđingahatur frekar en ţeir gyđingahatarar sem hún vingast viđ á FB.

Iceland Review er lítill sómi í ađ ráđ slíka manneskju til ađ rýna í íslenskt ţjóđfélag Benedikt Jóhannesson, ESB sinni í öđru veldi, rćđur ţar ríkjum og ćtti ađ vita ţađ. Nýlega greindi hann sannarlega ástandiđ rétt er hann sagđi ađ Ţýskaland réđi öllu í ESB (sjá hér). Ţađ má líka til sanns vegar fćra, ađ langt er of gengiđ ţegar ţýskar fraukur eru farnir ađ tjá sig um tilfinningar gyđinga í íslenskum ţjóđernisglansblöđum á ensku, líkt og ţćr vćru sérfrćđingar í ţeim efnum. Ćtli Hauptmann hafi bođiđ Wall Street Journal greinar sínar um gyđinghatriđ á Íslandi, ţar sem hún segir m.a. ađ sérfrćđingur Simon Wiesenthalstofnunarinnar sé bjáni? Nei, ćtli ţađ? En best er ađ spyrja...

fraulein_hauptmann3_1257536.jpg


Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bćkur

Kynning á nokkrum fćrslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband