Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2007
19.2.2007 | 19:17
Ný tegund af handsprengjum í Danmörku
Það fylgir víst fréttinni að segja frá því, að talsmaður listamannanna sagði við danska ríkisútvarpið í morgun, að ef lögreglan réðist til inngöngu til að fjarlægja listamennina á Charlottenlund, yrðu þeir grýttir með "negrakossum". Stundum er gaman að vera lögregla. Mæli ekki með þessum "hryðjuverkatólum" á Íslandi, þó svo að "negrakossar" séu á "tilboði".
Listamannaumsátur í Kaupmannahöfn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
18.2.2007 | 11:23
Er hann í helvíti nú?
Látinn er í hárri elli franskur tækifærisinni og fjöldamorðingi, Maurice Papon, á 97. aldursári. Í Annarri Heimsstyrjöld skrifaði hann undir skjöl sem embættismaður í Vichy-stjórn franskra fasista. Honum tókst að koma 1500 gyðingum fyrir kattarnef. Vel af sér vikið fyrir sannkristinn heiðursmann.
Fyrir klókindi tókst honum að sleppa við afleiðingu misjörða sinna þangað til 1998, er hann var dæmdur í 10 ára fangelsi (sem þætti vel sloppið í sumum löndum, ef maður á líf 1500 manns á samviskunni). Papon reis til mets og mannvirðinga og var til dæmis ráðherra í ríkisstjórn Valery Giscard-D'Estaings. Giscard-D'Estaing sá greinilega ekkert athugvert við að hafa morðinga í sínum röðum. - Og svo eru Frakkar að tala um Bandaríkjamenn!
Nú varpa ég spurningu til þeirra sem vita allt um verri staðinn. Er Papon þar nú?
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
18.2.2007 | 10:59
Íran og Sýrland í stríð við BNA og zíonistana?
"Meira stríð, fleiri hryðjuverk, Í nafni Allah. Þú ert maður að mínu skapi Bashar Assad"
Á síðastu 10 árum fjárfesti Íran því sem svarar 700 milljónum $ á Sýrlandi. Fleiri upplýsingar á Jerusalem Post í dag
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.2.2007 | 15:06
Nærföt hryðjuverkamannsins
Þegar verið er að ræða um tísku. Hvað finnst ykkur um þetta lúkk, nærföt hryðjuverkamannsins? Þetta var afar vinsælt á Norðurbrún (Nørrebro) síðastliðið sumar
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 15:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
17.2.2007 | 14:49
Meira um tísku
Þegar ég hafði rétt lokið síðustu innfærslu helltist yfir mig grunur um að ég gæti hugsanlega hafa vaðið í villu í fyrri skrifum mínum. Nýlega fræddi ég mbl-bloggara um íslenskar frúr sem fóru í sínu fínasta pússi til Antwerpen anno Domini 1521.
Hægan, hægan, hvað nú ef þetta voru karlar í kvenklæðum? Gott að ekki voru til B&O verslanir í den tíð. Íslendingar hafa alltaf þurft græjur.
Þorleifur eða Guðríður ?
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 15:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.2.2007 | 14:09
Óla kjóli bannað að kaupa B&O græjur
Nú er illt í efni. Að minnsta kosti ef maður heitir Óli. Ole Steen Mortensen, kallaðu Kjole Ole, hefur safna Bang & Olufsen græjum í háa herrans tíð. Óli hefur keypt allt milli himins og jarðar, bara ef -það stendur B&O á því sem hann kaupir. En þegar Óli kaupir B&O er hann í kjól. Þann ósóma hefur hann greinilega komist upp með í mörg ár - þangað til að verslun ein með B&O vörur í Viborg neitaði að selja honum B&O græjur - VEGNA ÞESS AÐ HANN GENGUR Í KJÓL.
Jótlands Pósturinn segir frá þessu í dag. Þetta gæti greinilega valdið nýrri árás á Danmörku í löndum þar sem menn ganga t.d. í pilsum. Reiðir Skotar munu brenna dönsk sendiráð og brenna myndir af danska forsætisráðherranum eða hætta að kaupa danskt smjör og B&O.
Kjóla Óli, sem var orðinn úrkula vonar um að mál hans yrði tekið fyrir, er glaður yfir því að mál hans fær nú farsæla lausn. Það er sannarlega bannað að mismuna karlmönnum í kjól í Danmörku, eða konum í karlmannsfötum, fólki án fata, eða kappklæddum. Það er annað sem skapar manninn en fötin.
Mér fynnst pils Óla gasalega smekklegt, en ég hefði nú örugglega valið annað belti, ef ég hefði vitað að ég væri að komast í blöðin.
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 19:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.2.2007 | 12:47
Barinn fyrir að vera með fána í poka
Eftir rannsóknarferð mína um miðbæ Kaupmannahafnar þann 21. júlí sl., gekk ég í gegnum bæinn með vini mínum, pólskum gyðingi sem kallar sig Jerry en heitir upphaflega Jerzy. Er við komum til Nyrðri Borgarhliðs(Nørreport), varð ég var við einhver ólæti við eitt af strætisvagnabiðskýlunum þar. Ég sá lögregluna, sem hafði tekið höndum ungan arabískan mann. Við komumst fljótlega úr skugga um ástæðuna fyrir handtöku mannsins. Hann hafði séð miðaldra mann ganga með danskan og ísraelskan fána ofan í innkaupapoka. Arabinn hafði veitt manninum með pokann eftirför upp í stræðisvagn og byrjað að slá hann og sparka í hann. Vagnstjórinn var fjótur til og lokaði ofbeldismanninn inn í vagninum og kom öðrum farðþegum í snatri út úr vagninum. Lögreglan kom að vörmu spori. Maðurinn, sem leyfði sér að hafa tvo fána í poka sínum var illa marinn í andliti og hafði fengið högg á eyrað.
Vinur minn pólski, sem er ljósmyndari að atvinnu, tók myndir af öllu saman. Er hann var að taka mynd af ofbeldismanninum, réðst á hann arabískur maður, sem við höfðum séð við samkomu Hizb ut Tahrir og hótaði okkur öllu illu. Hér er mynd af honum og ofbeldismanninum í gulum bol.
Danski maðurinn sem varð fyrir barðinu á ofbeldismanninum, hafði verið viðstaddur útifund örfárra stuðningsmanna Ísraelsríkis, sem fór fram við Kristjánsborgarhöll í Kaupmannahöfn. Ætli ofbeldismaðurinn, sem einnig hafði verið á Ráðhústorginu að mótmæla tilvist Ísraelsríki, leiti nú á náðir hryðjuverka, uppgefinn og miður sín út af skilningsleysi dansks þjóðfélags á sérkröfum sínum og yfirgefinn og misskilinn af öllum? Það er aldrei að vita. Ef til vil fer hann til Íraks og sprengir sig í tætlur fyrir dauðgóðan málstað.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
17.2.2007 | 10:43
Hryðjuverkaríkið Danmörk
Þessa dagana er talað mikið um hryðjuverkamenn í Danmörku. Nýlega féll dómur í máli 4 meintra terrorista. Þrír voru sýknaðir, en einn á 18. aldursári var fundinn sekur og dæmdur í 7 ára fangelsi. Ekki ætla ég að deila við dómarana um sakleysi þrímenninganna sem sleppt var og sá sem sekur var fundinn hefur áfrýjað dóminum, eins og vera ber í réttafarsríki. Annað mál geng öðrum ungmennum í hryðjuverkahugleiðingum kemur brátt fyrir dómara í Óðinsvéum. Nýlega var Dani af tyrknesku bergi brotinn, dæmdur í fangelsi í Bosníu fyrir að leggja á ráðin um hryðjuverk gegn saklausu fólki í Evrópu.
Af hverju velja þessi ungmenni að fremja hryðjuverk einhvers staðar í Evrópu? Almenningi, sem ekki er í slíkum hugleiðingum, er jafnan sagt að þessir piltar hafi átt erfiða æsku, séu flóttamenn, ef til vill Palestínumenn, eigi bágt og að dönsk yfirvöld hafi brugðist þeim. Ekki ætla ég að draga í efa, að það geti verið hluti af skýringunni fyrir framferði þeirra. En það er alls ekki búið illa að þessum drengjum. Þeir eiga kost á skólagöngu, húsnæði og sömu mannréttindum og Danir njóta. En það virðist ekki vera nóg fyrir þá. Þeir hafa því fundið annað, mikilvægara, sem þeir láta stjórna lífi sínu og sem þeir virða meir en það samfélag sem þeir lifa í. Það er ofsafengin trú, bólginn botnlangi Íslams, þar sem allt það versta í manninum er sett á oddinn til að leysa vanda samfélagsins. Lausnin er ein alsherjarsprenging, blóðsúthelling og ofbeldi sem fær réttlætingu í trúnni, vegna þess að Allah er stór. Retóríkin er einföld en blóðug.
21. júlí í fyrra varð ég vitni að fjöldamótmælum í Kaupmannahöfn. Á einum stað, Axeltorv, höfðu safnast saman stuðningsmenn Hizbollah, þó í óþökk vinstrimannanna sem héldu mótmælastöðuna. Þótt Hezbollah séu hryðjuverkasamtök sem EB hefur bannað, aðhafðist danska lögreglan ekkert. Ætli löggurnar hafa haft minnstu hugmynd um hvað gulu fánarnir með hríðskotarifflinum tákna?
Nasrallah Hezbollah-klerkur fyrir utan Tívolí - nei en gaman!
"Ja, er det stationen? Nogle af dem har gule flag, er det farligt?"
Á Ráðhústorginu í Kaupmannhöfn fjölmenntu liðsmenn Hizb ut Tahrir, sem vilja stofna alheimsríki múslima, Kalífatið, og ætla sér að taka Jerúsalem og nota hana sem höfuðborg. Þeir vilja safna múslimum í eina þjóð, Ummah (%u0623%u0645%u0629), einhvers konar herraþjóð. Liðsmenn þessarra samtaka í Danmörku, sem eru bönnuð í öðrum löndum umhverfis Danmörku, m.a. Svíþjóð, hafa verið dæmdir fyrir að hvetja til dráps á gyðingum, hvar sem þá er að finna. Þeir tala um gyðinga, eins og nazistar gerðu, og líkja þeim við óæðri dýr. Liðsmennirnir ganga snyrtilega til fara. Í svörtum jakkafötum og hvítum skyrtum og hermennskubragur er yfir öllu hjá þessum ungmennum. Konur halda sig í bakgrunninum. Slagorðin á Ráðhústorginu voru dauði Ísraels og aðalvandamálið voru gyðingar. Þetta gæti alveg eins hafa verið í Nürnberg árið 1938.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.2.2007 | 16:55
Bænir gefa engan styrk
Heittrúaðir gyðingar geta margir hverjir hlaupið í spik við lestur, þótt heilinn sé þaulþjálfaður.
Framtaksamur maður í Ísrael hefur opnað heilsurækt fyrir heittrúa gyðinga, þar sem þeir geta losað sig við aukakílóin eða styrkt líkamann - án þess að horfa upp á stinnar meyjar, sem leika sér af huga Adams eins og Lilith forðum, áður en Herrann skapaði Evu.
Þetta er auðvitað eitthvað annað en þegar ég var í öftustu röð í steppi hjá Hrafni og Ágústu. En þá fékk maður nú oft á tíðum opinberun beint upp í andlitið.
Those were the days.
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 16:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.2.2007 | 16:26
Dráp, eyðilegging og ofstæki
Jerúsalem fyrir daga Íslams. Samkvæmt öfgamönnum mega fornleifafræðingar ekki rannsaka leifarnar eftir þá mismunandi menningarstrauma, sem ráðið hafa ferðinni í hinni helgu borg.
Nú boðar snarvitlaus leiðtogi Íslamista í Palestínu 3. Intíföduna. Greinilegt er, að menn eru ekki búnir að fá nóg af morðæðinu, sem hefur herjað síðan um aldamótin. Nú á greinilega að drepa enn fleira saklaust fólk. Sprengja rútur, sprengja saklaust fólk á veitingastöðum, sprengja allt og alla í Ísrael. Tylliástæðan fyrir nýja uppþotinu er fornleifarannsókn Ísraelsmanna á musterishæð, sem ég skrifaði um í gær.
Í mörg ár hafa múslimir sjálfir eyðilagt fornleifar á Musterishæð. En allt verður svo vitlaust vegna rannsókna sem fram fara í tengslum við framkvæmdir á göngubrú. Nú er gyðingum hótað dómsdegi af Sheikh Raed Salah, sem er leiðtogi Íslamistasamtaka Palestínu. Hann sagði meðal annars í ræðu í dag um gyðinga: Þeir vilja reisa musteri sitt meðan blóð okkar er á fötum þeirra, á dyrastöfum þeirra, í mat þeirra og vatni.
Hvenær fær hinn vestræni heimur nóg af þessum yfirgengilega miðaldabarbarisma? Af hverju styðja heilvita menn, jafnvel trúlausir vinstrimenn, svona frávita öfgar? Musterishæð köllum við þetta svæði, kristnir og gyðingar. Þetta er helgur staður fyrir okkur. En öfgaklerkar Palestínu hafa verið beðnir um að hefja nýja Intífödu í kjölfarið á skálmöldinni á milli öfgahópanna sem berjast um völdin í Palestínu. Því er borið við að hættulegir fornleifafræðingar séu að grafa undir göngubrú. Hvað geta ekki svona fornleifafræðingar leitt í ljós. Þeir gætu kannski eyðilagt máttarstoðir kreddunnar. Brjálæðið er löngu gengið úr böndunum. Múslimir líta á Musterishæð sem sína eign. Gyðingum og kristnum skal úthýst. Sheikh Raed Salah lýsir því yfir að hann vilji sjá höfuðborg nýja Wahab-Klífatsins (Stórríkis múslima) í Jerúsalem.
Og hvað þýðir það? Það þýðir að Ísraelsþjóð skal útrýmt, vegna þess að trúarofstækið knýr hatrið, en gyðingahatur er ekki nein nýleg uppfinning nasista, ef einhver heldur það. Mottó öfgamúslima er því miður er orðið: Við erum fórnarlömb heimsins. Heimurinn er aðeins vondur við okkur. Þetta er reyndar ekki neitt sem stendur í Kóraninum eða öðrum ritum. Þetta er viðlag sem mig grunar að vinstrimenn á Vesturlöndum hafi fyrst og fremst kennt öfgamúslimum. Þess vegna kemur þeim svo vel saman.
Félaginu Ísland-Palestína ber tafarlaust að fordæma yfirlýsingar Palestínuaraba um 3. Intíföduna. Eða ætla menn að taka þátt í nýjum hildarleik og bera í bætifláka fyrir enn eitt blóðbaðið.
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 16:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bækur
Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs
-
Nýtt blogg um fornleifafræði
FORNLEIFUR -
Þrælasalar í Norðurhöfum
Grein í Lesbók Mbl. 1999 -
: Ritaskrá 1972-2013 -
Fyrri færsla
Jakki Kiljans Laxness -
Bein Páls Biskups
Kveðskapur -
: Flóttamaðurinn Alfred Kempner -
Pepsi var á Ströndum
Gosdrykkjasaga -
Mótmælum Durban II
Meira -
Ved Helvedes Port
Grein mín í SKALK. Nr.4,1994. -
: Gyðingar á Grænlandi
Fyrri færsla og tenging við grein eftir mig á dönsku um gyðinga á Grænlandi -
Flogið hátt
Grein mín um fyrsta flug flugbels á Íslandi -
Fyrri færsla
Líkþráir Íslendingar -
: Lesið hér (ISBN: 978-965-218-066-7)
Behind the Humanitarian Mask; The Nordic Countries, Israel and the Jews. Edited by Manfred Gerstenfeld. -
Fyrri færsla
Vinir útlendinganna -
Fyrri færsla
Nakinn sannleikur -
Ungr var ek forðum
Færsla um óeirðir og læti í æsku minni -
Fyrri færsla
Þegar Gúttó varð samkunduhús gyðinga -
Fyrri færsla
Vive l'(Gr)islande -
Fyrri Færsla
Nifalt húrra -
Íslenskar frúr í Andvörpum
Um ferðir útrásar-Íslendinga á 16. öld. Lesbók Morgunblaðsins 28.águst 1999. -
Fyrri færsla
Berlínarboogie Laxness -
Fyrri færsla
Pabbi Þórs var myrtur í Auschwitz -
Falskir Íslendingar
Grein um þjóðarstolt -
En dansk krigsforbryder
Grein í Weekendavisen um versta stríðsglæpa- mann Dana, sem dönsk yfirvöld vildu helst gleyma. -
Anti-Semitism in Iceland. Is that possible? -
Iceland, the Jews, and Anti-Semitism, 1625-2004
Grein á ensku um gyðinga á Íslandi -
Ich weiss, was ich zu tun habe
Grein mín um Georg F. Duckwitz, nasistann sem á að hafa verið potturinn og pannan við björgun gyðinga í Danmörku. Í greininni sem birtist í tímaritinu Rambam 15:2006 er gerð grein fyrir fjölmörgu sem danskir sagnfræðingar hafa gleymt að rannsaka. Hlutverk Duckwitz verður nú að endurskoða. -
Grein
The King and the Star í: Denmark and the Holocaust (2003) (ISBN: ISBN 87-989305-1-6) -
: Rescue, Expulsion, and Collaboration: Denmark's Difficulties with its World War II Past
Jewish Political Studies Review 18:3-4 (Fall 2006; Tímarit sem ég hef skrifað töluvert í -
: 20 Begivenheder der skabte Danmark (ISBN: 87-02-0516-7)
Ég er meðhöfundur að einum af köflum bókarinnar. -
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson: Medaljens Bagside - Jødiske flygtningeskæbner i Danmark 1933-1945 (ISBN: 87-91393-60-4 ) Forlaget Vandkunsten 2005. Bók mín um meðferð danskra yfirvalda á flóttafólki á 4. og 5. áratugi 20. aldar.
Meira
Nýjustu færslur
- Á mér stendur ..... Bjarni Ben
- Minnislaus síðan í síðustu ESB-kosningu
- Gamlir dónar sem fokka sér - Meet the Fockers II
- Icelandic Police Bared
- Niðurstaðan: KiSS or Bæjarins beztu
- Zelenskij fór í ranga flugvél - verður í Færeyjum næstu dagana
- Sjúklega svæsinn gyðingahatari er vinsæll á Moggablogginu
- Valdemar á svölunum er látinn
- Svæsnir fordómar eru ekki hluti af málfrelsi og tjáningu
- Ástráður eins og lús á feldi
- Utanríkisráðherra eyðir um efni fram í útlöndum
- Ódýrasta Laxness-bókin er enn til
- Geimöldin hafin á Íslandi
- Mannvinurinn Johnny Gun
- Jón hinn óboðlegi
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.12.): 0
- Sl. sólarhring: 16
- Sl. viku: 60
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 42
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Júlí 2024
- Apríl 2024
- Febrúar 2024
- Desember 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Ágúst 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Júlí 2021
- Maí 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- Ágúst 2020
- Maí 2020
- Nóvember 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Júlí 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Janúar 2017
- Nóvember 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Nóvember 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007