Leita í fréttum mbl.is

Mortuus est ursus albus secundus

 

Ursi Albi

Undur og stórmerki gerast enn á Íslandi. Hvítibjörn felldur í annađ sinni, og Ţórarinn Eldjárn orđinn borgarlistamađur. Líka í annađ sinn en í ţetta skipti í alvöru. Af hverju var hann bara ekki skotinn líka, í stađ ţess ađ deyfa hann međ styrk? Ţađ hefđi veriđ gustuk, og ekki hefđi veriđ neitt af ţví ađ ţynna dálítiđ út í stétt íslenskra blađamanna og láta bangsann á Hrauni éta nokkra ţeirra.

Eins og flestir vita voru hvítabirnir einu sinni mikilvćg útflutningsvara og allmargar heimildir eru til um útflutning dýra frá Íslandi á söguöld og miđöldum. Ekki ţurftu forfeđur vorir ađ ná í dýrahirđi frá Kaupmannahöfn til ađ vita hvađ ţeir áttu ađ gera viđ bangsa. Menn tömdu hvítabirni, alibirni hvíta, á Íslandi á ţjóđveldisöld. Í Grágás eru ákvćđi um tamda hvítabirni, sem ekki mátti drepa nema ţeir réđust á fólk. (Ekkert var ţar sagt um blađamenn). Ţađ gerđu hvítabirnir hins vegar gegnum aldirnar og annálar greina t.d. frá ţví, ađ áriđ 1321 hafi hvítabjörn veriđ felldur Norđvestanlands eftir ađ hann hafđi drepiđ átta manns og étiđ einhverja ţeirra.

Ţótt heimildir séu til um hvítan björn, sem teymdur var um strćti Alexandríu áriđ 285 f. Kr. hefur ţađ vćntanlega veriđ albínóabjörn.

Adam af Brimum, sá fróđi Guđs mađur, var sá fyrsti sem skrifar um "ursos... albos...qui sub aqua vivunt", ţ.e. birnir, hvítir sem lifa í vatni."

 

Hvitabjörn

Löngu áđur en Adam sagđi fréttir af ţessari skepnu, voru menn á Íslandi og Grćnlandi ađ taka hvítabirni međ sér út í heim sem gjafir handa konungum. Í Vatnsdćlu er greint frá ţví ađ landnámsmađurinn Ingimundur gamli hafi fundiđ birnu međ tvo húna. Húnana hafđi hann međ sér til Noregs og gaf Haraldi Hárfagra ţá ađ gjöf og Landnámubókarhöfundur einn bćtir viđ; ekki höfđu menn í Nóregi áđr sét hvítabjörnu.

í Auđunar ţćtti vestfirska má lesa skemmtilega sögu um Auđun og hvítabjörn sem hann seldi Sveini Ástríđarsyni (Estridsen/Úlfsson). Ég er kominn af Auđuni ţessum í ca. 25 liđ. Gaman vćri, ef einhvern tíma fyndust hvítabjarnarbein viđ fornleifauppgröft í Danmörku. Ţađ hefur enn ekki gerst.

Fram á ţrettándu öld hafa bjarndýr frá Íslandi, og sér í lagi frá Grćnlandi, veriđ send til konunga og fyrirmann víđa um Evrópu. Haraldur Harđráđi fékk bangsa frá Grćnlandi eins og getiđ er um í Króka-Refs sögu. Sigurđur Jórsalafari og Haraldur Gilli fengu dýr áriđ 1125 og 1133 segir höfundur Grćnlendinga ţáttar okkur. Áriđ 1059 mun Sveinn Ástríđarson Danakonungur hafa fegniđ sér hvítabjörn samkvćmt Sögu Haraldar Harđráđa. Sunnar í álfunni ţótti furstum fínt ađ hafa slík dýr í furđudýrasafni sínu. Ţýski keisarinn Heinrich III fékk dýr frá Ísleifi Gizurarsyni biskup áriđ 1054 og sagđi "Vielen Dank", og Friedrich II  fékk dýr áriđ 1230.

Skemmtilegar eru upplýsingar um hvítabjörninn sem egypski súltaninn Malik al-Kamil (sem var Kúrdi ađ uppruna) fékk frá Friđriki II keisara og konungi Sikileyjar. Dýriđ kom til Damaskus áriđ 1233 eđa 1234 samkvćmt annálaritaranum Kitab al-Wafi, sem einnig var kallađur Safadi. Fyrir hvítabjörninn fékk keisarinn gíraffa. Súltaninn á Egyptalandi hafđi í byrjun 13. aldar fengiđ forláta skinn af hvítabjörnum samkvćmt Ibn Said al Maghribi.

Heinrekur III Englandskonungur átti líka hvítabjörn samkvćmt heimildum góđum sem Hákon IV Noregskonungur mun hafa gefiđ honum. Hákon gaf líka Friđriki II keisara björn.  Heinrekur III tjóđrađi björninn í Tower of London og á tyllidögum fékk björninn ađ synda í Thamesá og veiđa sér fisk. Henrý var mikill dýravinur og átti líka fíl.

Oftast hefur nú hvítabjörninn ferđast sem feldur frekar en á fćti. En ef menn hafa veriđ ađ sigla međ fullvaxta dýr í grindum (búrum), hefur međferđin á ţeim vćntanlega veriđ í stíl viđ ţann níđingshátt sem menn sýna enn bjarndýrum víđa um heim. Húnarnir hafa líklegast veriđ međfćrilegri.

 

Ţrír birnir
Sagnfrćđi ţessi var ekki í bođi Novotors, en hann getur samt sent mér money

« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Andrés Magnússon

Ţakkir fyrir fróđlega og bráđskemmtilega fćrslu!

Auđvitađ eigum viđ ađ koma upp skiptiprógrammi á hvítabjörnum og gíröffum. Tengsl utanríkisráđherra viđ Afríkusambandiđ kćmu ţar ađ góđum notum og ţannig mćti leysa hvítabjarnavána í eitt skipti fyrir öll. Ţađ hlýtur ađ vera tignarleg sjón ađ sjá gíraffahjarđirnar líđa yfir Melrakkasléttu í leit ađ trjám og á eftir ţeim hersingu frá Umhverfisstofu í leit ađ viđbragđsáćtlun vegna ţeirra.

Brotiđ af Íslandskortinu er skemmtilegt, bćđi vegna skjaldarmerkjanna og dýranna, sem inn á Ísland eru dregin. Ekki ađeins hefur kortagerđarmađurinn áttađ sig á ţví ađ hvítabirnir gerđu sig hér heimkomna, heldur einnig fundiđ skýringuna á ţví hve hvítir hrafnar eru sjaldgćfir. Ţađ er auđvitađ vegna ţess ađ ţeir eiga heimkynni á Íslandi!

Andrés Magnússon, 17.6.2008 kl. 23:52

2 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Sćll Andrés, Gíraffainnflutningur á Melrakkasléttu gćti riđiđ ţjóđarbúinu ađ fullu. Gíraffar eru kvefsćkin dýr og fá gjarna 2 metra hálsbólgu. Lyfjakostnađur, lćknakostnađur - nei viđ ćttum ađ geta fengiđ nokkra dropa af olíu fyrir hvítabirni á fćti.

Carta marina et Descriptio septemtrionalium terrarum ac mirabilium rerum in eis contentarum, diligentissime elaborata Annon Domini 1539 Veneciis liberalitate Reverendissimi Domini Ieronimi Quirini sem Ólafur Magnússon Uppsalabiskup lét gera er frábćrt kort, sem mađur getur skođa og dáđst ađ tímum saman http://bell.lib.umn.edu/map/OLAUS/TOUR/indext.html

Hvítabirnir sjást einnig á Íslandskorti Abrahams Orteliusar frá 1587. Á ţessu eintaki, eru ţeir ţví miđur málađir međ brúnum lit en Langanesiđ er grćnt. Ţađ eru engir gíraffar á ţví korti. 

Ortelius

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 18.6.2008 kl. 09:00

3 identicon

Engar úrtölur Vilhjálmur góđur. Ţetta er afbragđshugmynd međ gíraffana. Hefur ţá ekki einmitt alltaf vantađ í landslagiđ á Sléttunni ţegar betur er ađ gáđ? Ćtli ţeir vćru ţar ekki barasta ef Ortelíus hefđi nennt ađ teikna ţá? Novator myndi ábyggilega láta Umhverfis(slysa)stofnun hafa aur fyrir galdralćkni frá Kongó til ađ sćra úr ţeim hálsbólguna fyrst hann ţurfti ekki ađ punga út međ pillur í Hraunsbirnu og „den danske medicinmand“ varđ ađ fara bangsalaus heim. Svo er náttúrlega hćgt ađ fá hérna ţessa fínu ullartrefla eins og ţú mannst ábyggilega eftir. Ţeir ţóttu góđir í Sovétinu og seldust ţangađ grimmt međ síldinni. En ólukkans kapítalisminn hremmdi Rússana sem eru orđnir „modebevidste“ og vilja ekki sjá sauđarliti lengur. Svo ţú sérđ ađ ţessir löngu hálsar gćtu orđiđ geysilega atvinnuskapandi.

Brúnu „hvítabirnirnir“. Eru ţađ ekki skógarbirnir? Eđa ţá ryđgađir hvítabirnir?

Pax. K.S.

Kristján Sveinsson (IP-tala skráđ) 18.6.2008 kl. 11:54

4 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

"Gustuk", gustukarverk.

Er ţađ ekki Guđsverk? Miskunnarverk?

Miskunn ađ drepa Ţórarinn Eldjárn?

Er ekki allt í lagi Vilhjálmur?

Heimir Lárusson Fjeldsted, 18.6.2008 kl. 13:04

5 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Heimir, ég bý ekki í Reykjavík nćsta áriđ, svo Ţórarinn getur veriđ alveg rólegur. Stórar styrkveitingar deyfa grimma listamenn. Ţađ á ađ tína í menn hundrađkalla, ţá yrkja ţeir best. Blús, ţú skilur?

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 18.6.2008 kl. 13:52

6 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Ekki eru ţessi orđ ţér til sóma Vilhjálmur Örn.

Heimir Lárusson Fjeldsted, 18.6.2008 kl. 15:39

7 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Ég er heldur ekki borgarlistamađur. Ég hélt bara ađ Tóti gćti lifađ af án styrkja.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 18.6.2008 kl. 17:14

8 Smámynd: Anna Karlsdóttir

Anna Karlsdóttir, 18.6.2008 kl. 18:09

9 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Friđur sé međ ţér Kristján, ég held ađ brúnir hvítabirnir séu hvítabirnir sem eru ţungt haldnir af tríkínum, innanormum sem nú hafa fundist í fyrri ísbirninum. 

Ég man ekki eftir treflunum til USSR, en gaffalbitunum, sem voru horfnir ţegar dósirnar voru opnađar var stórkostuleg uppfinning. Hugsađur ţér Múrmansk, 1971, tólgarkerti og vodka á borđum, revolutionary dinner party í ađsigi,  dósin hefur veriđ hituđ í brúnkolaeldavélinni og svo vúptí, engin íslensk síld. Ţađ er ekki nema von ađ Glasnostiđ hafi veriđ óumflýjanlegt.

Eitt sinn las ég í endurminningum dansks diplómata (ţú veist hvađa), ađ hann hafđi talađ viđ kollega sinn sem hann hitti í Svíţjóđ. Sá sagđi ađ Rússar keyptu allt sem ţeir gćtu af Íslendingum, og ađ Bandaríkjamenn hefđu ákveđiđ ađ gera ţađ sama til ađ minnka áhrif Rússa á Íslandi. Er nema von ađ forseti vor segi ađ Ísland gegni hlutverki á međal ţjóđanna.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 18.6.2008 kl. 21:06

10 identicon

Gamli minn.

Ég man eftir gaffalbitunum. Ţeir voru svo djöfullegir ađ meira ađ segja soltnir Rússar gátu ekki svćtl ţeim í sig. Já, og svo hurfu ţeir stundum hreinlega eins og ţú lýsir og ekki var annađ í dósunum en daunillt gas.  Gamall kunningi (nokkru eldri en viđ) vann viđ framleiđslu á ófögnuđinum í skúr hérna í Súđarvoginum á ţeim árunum. Og hugkvćmdist einhverntímann ađ éta nokkra bita ţví hann hafđi gleymt nestinu sínu. Var međ steinsmugu svo dögum skipti. Já, hlutverk vort međal ţjóđanna, ekki verđur á ţađ logiđ.

Verslunarstefnan var ábyggilega eins og vinur okkar diplómatinn lýsti. Nema Rússarnir keyptu af ţví ađ ţeir urđu en Kanar af ţví ađ ţeir vildu. Sovétbransinn var ábyggilega ađ mörgu leyti hagstćđur fyrir Íslendinga, einkanlega olíukaupin á sinni tíđ. Framleiđsluvaran sem frá ţeim kom hingađ (bílar og svoleiđis) var ţó yfirleitt dćmalaust skran. 

Volgo–Balt skipaskurđurinn hafđi talsverđ áhrif á Sovét-Íslands viđskipti sýnist mér. Kíkjum á ţađ viđ tćkifćri.

Njótum stundarinnar. 

Kristján Sveinsson (IP-tala skráđ) 19.6.2008 kl. 10:00

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bćkur

Kynning á nokkrum fćrslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband