Leita í fréttum mbl.is

Brot úr kynningu íslenska síonistasambandsins á Hatara

58978639_394418187949431_4962486620073519867_n

Síonistasamband Íslands hefur á undanförnum vikum verið að kynna Ísraelsvinina í Hatara sem syngja munu Íslandi til sigurs á Eurovision í Ísrael. Benni Netsokkur-Jahoo, svindlmálaráðherra Ísraels, vinnur að sigri Hatara eftir skemmtilega íslenska glímu á bakgarðsknæpu í Netanya. Hér eru nokkur vel valin brot af síðu Síonistavinasambandsins:

Hatari-web

Kynning á Hatara I

Í dag kynnum við Sturlaug Knút. Sturlaugur er sonur sendiherra Íslands á Englandi. Það er líklega þess vegna sem hann segir aldrei neitt. Það er best að halda kjafti, þegar þannig stendur á. Reyndar er sagt að hann sé hugmyndafræðingurinn á bak við allt gyðingahatur Hatara. Það er ekki rétt. Það er móðir hans. Takið eftir því að hann hefur fengið viðhafnarbúning föður síns lánaðan. Myndin hér fyrir ofan, lengst, lengst til hægri er úr ökuskírteini Sturlaugs. Sturlaugur er í bandalagi við Matta Broddason og Finn Kamban Glannigan Blæton Klemman.


Kynning á Hatara II
Í dag er dagur Matta Broddasonar. Hann þekkti ekki muninn á Apartheid og Apartment fyrr en í nóvember 2018. Sólin er of sterk fyrir hann í Ísrael. Hann hefur fengið 3 stigs sólbruna og þurfti á húðgjöf að halda frá palestínskum albínóa (slíkt blæti er kallað Graft og skylt íslenska orðinu gröftur) Matti verður því aðeins klæddur gervihúð þegar hann gengur á svið í Tel Aviv og bjargar heiðri Íslands.

Þess verður að geta, at Matti er nú þegar orðin fyrirmynd barnahljómsveita víða um heim. Hér er síðasta afurðin frá Bandaríkjunum. Hatrið sigrar:


 
Kynning á Hatara III57972727_296902141232859_3339540865170390280_nÍ dag kynnum við svo til sögunnar Finn Kamban Glannigan Blæton Klemman, írskættaðan þrælablætisiðkanda. Finnur er sagður hafa vitið fyrir liðsmönnum sínum sem hafa laus málbein, enda er Finnur Klemman beislaðri en flestir. Mossad er fyrir löngu búið að sjá að Finnur Flannigan þolir illa að Matti Broddason troði sér alltaf fram í sviðsljósið og segir alls kyns rugl sem þeir höfðu bara ekkert fyrirfram planað. Planið var að Klemman hefði vit fyrir Matta. Sambandi Klemmans og Matta mun því eiginlega nú þegar vera lokið. Þeir tala aðeins við í síma. Þeir munu sækja um skilnað, en fyrst eftir að þeir eru komnir heim. Í Jaffa heyrðist Finnur GKB Klemman öskra á eftir Matta rétt eftir miðnætti 2. maí sl.:  "Geturðu ekki skafið þetta yfirborðskennda aulalúkk af þér Matti Broddason, Sviðahaus. Ég hringi í Pútín". Matti glápti bara á hann með hangandi neðri vör. Matti ætlar sko ekki að eyða ævikvöldinu í Moskvuborg með Finni KGB Klemman í blokk með hommanjósnurum.

Ættfræðirannsóknir síonistasambandsins hafa sýnt að Klemman og Matti eiga ættir að rekja til sömu zýsku ömmunnar. Hún var í Hitler-Jugend. Mossad telur ömmuna vera afgerandi þátt í uppeldi Matta og Finns Kamban. Hún getur verið stolz. 

tenor

Þegar allt lék í lyndi og rússnesku gallarnir voru aðalblætið.

Kynning á Hatara IV

SEI_67007609
Þetta er svo Glen Reimar Ramirez. Glen er blætisdrottning að sunnan. Hann fæddist með undravelsmurð liðamót, en er vita mállaus. Hann heyrir samt allvel. Slíkt blæti er kallað kraftaverk. Blætið er nú orðið aðalstarf Glens, en þrjá tíma í viku bindur Glen rúllupylsur hjá SS. Hann kann þá list. Hann er því eini liðsmaður Hatara sem hefur verið í röðum SS. Það veldur náttúrulega titrara í Tel Aviv, að SS-maður gangi þar á svið.

Það halda engin bönd Glen. Leyniþjónustu Ísraelshers grunaði að Glen væri hugsanlega tikkandi sjálfsmorðssprengjuatriði. En svo kom nú aldeilis annað í ljós. Glen snerist til gyðingdóms í síðustu viku, er hann hitti gay rabbína á hafnarknæpu í Hæfæ. Rabbi Sá(l) kenndi Glen Reimar að binda tefillin. Þetta er algjörlega ný nálgun á leðurböndin, sagði Glen Reimar í einkaviðtali við Gay and Jewish í fyrradag. Ef einhver er að velta því fyrir sér hvaða kjól Glen er í, já þá er þetta óhefðbundinn brúðarkjóll frá Ramalla. Fimm lítrar af hrágúmmíi fóru í gerð hans og einn hamborgari??. Hann er litaður með smokkfiskableki.

barbie2Alvitað er að gyðingdómur er trú leðurfíkla og blætis, eiginlega trú á öllu nema Gullkálfinum og Jesse litla Jósefssyni.

Kynning á Hatara V

fr_20190507_111494

Pálína Pisk og Gurrí Smæld eru gógópíur Hatara. Þær eru lausar í reipunum, enda báðar að Norðan, nánar tiltekið frá Akureyri eins og dönsk ættarnöfn þeirra gefa til kynna. Þær eru búnar að finna sér "GIMP" í Ísrael. Með því hugtaki kom Síonistasambandið af Fjöllum. En þetta mun vera nýyrði á Íslandi og mannanafnanefnd hefur samþykkt nöfnin Gimpi og Gimpa. Upphafleg þýðing orðsins er "viljugur leðurþræll" og er orðið komið úr perversku, Al Ghimpa. Gimp Pálu og Gurríar stundar apartheid í frístundum sínum. Hann gengur undir nafninu Trevor Spankovitz í borgarlegu starfi sínu, þar sem hann er njósnari hjá Mossad. Pálína og Gurrí vilja einnig eignast lítinn hund frá Gaza, en þeir hafa verið uppteknir við grimmilegar flugeldasýningar upp á síðkastið. Þeim lauk reyndar í bili, því ekki voru til fleiri gervilimir frá Íslandi

Kynning á Hatara VI

60196169_320040748688481_2311924005177167853_n

Umma Maja Nurraedda framleiðir sumt af því snakki sem hatari dreifir í Tel Aviv þessa dagana. Snakkið er ekki vita-kósjér, enda með svínsbragði og sýrðum raggeitarrjóma. Umma er með leðurböndin undir blæjunni. En í raun er þetta hún Leonice, indverska prinsessan. Hún fer í mál við alla á sviðinu.

Kynning á Hatara VII

Prófessor Baldur búktalari úr HÍhíhí og Konni dúkkan hans eru mikilvægir fyrir Hatara. Prófessor Baldur fór að hafa áhyggjur af því að Konni væri orðin að allrahandagagni á leðurbörum Tel Aviv. Í afbrýðiskasti þaut Baldur búktalari til landsins hans Helga og hefur nú raðgreint Eurovisjón númer Hatara fyrir RÚV og Konna. Niðurstaða Baldurs er sú að "öll utanríkisstefna Íslands sé innifalin í boðskap Hatara", ekkert meira né minna. Þá vitum við það. Prófessor Baldur, sem einnig telur launverslun við Ísland á 17 öld vera leiðarvísi að inngöngu Íslands í ESB, sér íslenska utanríkisstefnu í atriðið beislunga. Gott er að vita að maðurinn hans Baldurs hefur töglin og hagldirnar í þeirra sambandi. Spank on Konni! Sem aftanfrá hljómar betur: ! Innok no knaps, sem er reyndar bölvaður dónaskapur á litháísku. En það er alltaf gaman af honum, strákar.

baldur-litháen-4

Baldur og Jón Baldvin að kenna búktal, selshljóð og rassklípur við Sorbonne. Ljósmynd: Kölski.

Kynning á Hatara VIII

hatari-movie-poster-1962-1020430772_1024x1024

Jón Væni frá Patró er mest aftan sviðs, með kústinn langa. Jón var eitt sinn leðurþræll og skaufaskækja í klassískum blætismyndum í BNA, það sem kýrrassar fóru með stór hlutverk, en nú er hann mestmegnis í innflutning á gæðaleðurlíki og beislum í Þýskalandi. Hann hefur gert sér far um að að reyna að frægja Hatara. Það var því gustukaverk að ráða ræfilinn hann Jón.

Kynning á Hatara IX

Hatari Print_AW-01

Fan-klúbbur Hatara var formlega stofnaður í desember 2018 og heitir einfaldlega Hatari-Fan Club. Meira er ekki um það að segja.

Beltadýr Íslands munu nú sýna alheimi, hve vel beisluð og gegnsæ utanríkisstefna Íslands er. Heima á Íslandi bíða hins vegar annaðhvort flengingarólar í næstu viku eða Júróvisjón í Reykjavík að ári. Þá verður allt bandvitlaust og reimandi ruglað. Við verðum aldeilis að herða ólarnar ef svo illa vill til að Hatrið muni sigra. Þá verður líklega ekki ósniðugt að vera smokkainnflytjandi til að bæta kjör sín.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Heyrði að gallarnir væru hannaðir af Hugo Boss. Hann nær aldar reynslu í blætisbúnaði pólitískra viðrina.

Jón Steinar Ragnarsson, 14.5.2019 kl. 05:58

2 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Er Bossinn gengin aftur. Hann hannaði líka fyrir SS - pulsuskinn.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 14.5.2019 kl. 06:07

3 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Sennilega þess vegna sem þessi orðrómur er til kominn. Allavega er gengið nokkuð nærri höfundareinkennum hans og jafnvel höfundarrétti finnst mér. ;)

Jón Steinar Ragnarsson, 14.5.2019 kl. 09:11

4 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Lagleysan minnir mig annars mikið á Rammstein ballöðuna Du Hast. Kannski stælt úr undirmeðvitund og Hast (Habst) misskilið sem Hatur. :D 

https://youtu.be/W3q8Od5qJio

Jón Steinar Ragnarsson, 14.5.2019 kl. 09:21

5 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Til gamans má nefna að 2009 bannaðihin kórrétta ríkisstjórn þýskalands að nýasta albúm Rammstein væri stillt út og auglýst vegna þess að það myndgerði sadómarsúkisma. (Vilja sennilega ekki bera blæti sín)

Jón Steinar Ragnarsson, 14.5.2019 kl. 09:27

6 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Þú segir nokkur. Strákarnir hafa líkast til læðst í plötusafn sendiráðsins í Lundúnum. Ég held líka að þeir hafi fallið í þýsku. En helst hallast ég að því að indverska prinsessan sé á bak við allt heila klabbið - líka Rammstein. Hún er svo snillingslega misskilin.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 14.5.2019 kl. 09:33

7 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Ég sé hana Merkel fyrir mér, við þrif í stofum sínum, með Rammstein á skrúfað í botn. Með sömu taktana við ryksuguna og Freddy heitinn, en í Kammeraten-outfitti frá DDR í hlutverki fyrirmyndarverkamannsins. Þetta er bara æfing fyrir ESB. En svo eru Íslendingar auðvitað djöfull kínký upp til hópa. Þeir sjá mynd og halda að þetta sé svona í útlandinu, og þá er það komið í þjóðbúningahefðina.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 14.5.2019 kl. 09:42

8 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Ætli Jón Baldvin eigi uppfærðan glímubúning?

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 14.5.2019 kl. 09:43

9 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Merkel túlkun poppgoðsins Tracey Ullman virðist ekki alveg jafn kyndauf og menn gætu haldið. Ekki þegar Marcon kemur í heimsokn.

https://youtu.be/sP_l5aPww-4

Jón Steinar Ragnarsson, 14.5.2019 kl. 21:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bækur

Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband