Leita í fréttum mbl.is

Getur typpavinafélagið hjálpað?

Video-Game-Addiction

Dauðaleit er nú hafin að ónafngreindum pilti, sem var 16 ára árið 2010. Árið 2013  upplýsti þáverandi umboðsmaður barna að 16 ára drengur hafi skrifað sér þessar línur:

Mega foreldrar á Íslendi ákveða þegar maður er lítið barn og hefur ekkert vit að umskera mann? Hvað svo ef manni líkar það ekki þegar maður er eldri? Mega foreldar neyða mann í óþarfa lýtaaðgerð þegar maður hefur ekki aldur né vitsmuni til að neita því? Sjá hérhér og hér

Úlfaldi var þegar gerður úr mýflugu, eins og svo oft áður á Íslandi, og því var m.a. haldið fram á RÚV, að drengurinn væri umskorinn og væri múslími. Fyrir því var víst enginn fótur, nema ólæknandi fantasía starfsmanna RÚV, sem margoft hafa verið teknir í því að búa til fréttir. Þetta var falsfrétt eins og það heitir í dag. Huldudrengurinn gat alveg eins hafa verið reið kona vestur í bæ sem átti pabba sem var nasisti.

Síðar var þessi klausa eftir drenginn sem var 16 vetra árið 2010 send af umboðsmanni barna til kollega hennar á Norðurlöndum og varð grundvöllurinn að því að Umboðsmenn Barna á öllum Norðurlöndunum lögðu til að bann yrði sett við umskurði barna. Já, oft veldur lítil þúfa þungu hlassi. Sjá hér.

Nú sameinast hin ólíklegustu öfl með þátttöku Vinstri Grænna, Fólks Flokksins, Framsóknarflokksins og Pírata í breytingartillögu á hegningarlögum, sem verði hún samþykkt mun leiða til banns við umskurði á drengjum. Vitna þessir ólíku forhúðarhyggjumenn til erindis 16 ára unglingsins frá 2010. Vilja menn fá fangelsisdóma ef lögin verða brotin.

Þetta mun valda því að flestir gyðingar geta ekki sest að á Íslandi eða hugsa sér til hreyfings.

Lýkur tillögunni frá fordómaflokkunum fjórum með þessum orðum.

30. september 2013 skrifuðu umboðsmenn barna á Norðurlöndum og ýmsir heilbrigðisstarfsmenn undir yfirlýsingu gegn umskurði ungra drengja. Þeir telja brýnt að vinna að því að umskurður á ungum drengjum verði bannaður. Mikilvægt er að virða sjálfsákvörðunarrétt barna og banna umskurð á drengjum þar til viðkomandi hefur náð aldri og þroska til að veita samþykki sitt.

Er það svo, að ekki þurfi meira til en "spurning" 16 ára drengs, sem enginn þykist kunna deili á nú, til þess að hegningarlagabreyting fari í gegn á Alþingi. Tókst einum 16 ára strák á Íslandi að breyta einhverju sem nasistar rembdust við í þeim tonnum af áróðri sem þeir dældu út um víðan völl: þ.e. meðal annars að banna umskurð gyðinga.

Hluti þeirra sem vilja umskurðarbann fyrir drengi nú tilheyra stjórnmálaflokki sem í stefnu sinni hatast út í múslíma. Aðrir flutningsmenn tilheyra öðrum flokki sem hart beitti sér fyrir því að koma í veg fyrir að gyðingum væri veitt hæli á Íslandi á 4. áratug 20. aldar.  Er það er skammarlegt fyrir flokka eins og VG og Pírata að blanda geði við slíka öfgaflokka? Greinilega ekki.

En fyrst fjórir flokkar á Alþingi vilja lagabætur sem banna umskurð, sem að grunni til er tillaga sem byggir á fyrirspurn 16 ára pilts árið 2010, óska ég þess nú að flokkar þessir og Umboðsmaður Barna upplýsi vinsamlegast hver hinn ungi sveinn var, sem tókst að banna það sem nasistum tókst ekki.

Óþarfa lýtaaðgerð árið 2010 verður að hegningarlagabroti árið 2018. Öfgar í sókn?

Takið þó eftir því að drengurinn talar um "óþarfa lýtaaðgerð" í sömu andrá og umskurð.  Breytingarfrumvarpið byggir því á rangri tilvitnun í erindi unglingsins til Umboðsmanns barna. Hann var að tala um umskurn sem lýtaaðgerð en það gera flokkarnir fjórir ekki, þó þeir vitni í umboðsmann barna sem notaði fyrirspurn piltsins til að rúlla málinu af stað.  Það ber að taka fram að umskurður gyðinga og múslíma eru ekki lýtaaðgerðir, þó þær geti í vissum tilvikum talist til mikilla bóta, fagurfræðilega séð. En sinn er siður í landi hverju  - og það ber að virða.

Trúfrelsið og hegningarlög

Virði Íslendingar stjórnarskrárfest trúfrelsi, verða þeir líka að sætta sig við að umskurður er óaðskiljanlegur hluti sumra trúarbragða. En ef umskurðurinn er gerður glæpsamlegur í hegningarlögum stangast hegningarlög á við stjórnarskrá. Það gengur ekki upp þegar í stjórnarskrá stendur:

Allir eiga rétt á að stofna trúfélög og iðka trú sína í samræmi við sannfæringu hvers og eins. Þó má ekki kenna eða fremja neitt sem er gagnstætt góðu siðferði eða allsherjarreglu.

Eiga stjórnmálaflokkar(Flokkur fólksins og Framsókn) sem telja meðlimi sem hatast hafa út í gyðinga og múslíma að vera dómarar á gott siðferði meðlima annarra trúarbragða en lútersku þjóðkirkjunnar? Hvernig ætli það verði túlkað af Sameinuðu þjóðunum og alþjóðardómstólum ef kæra þarf þessi kolrugluðu vinnubrögð.

Verða Íslendingar ekki að fara að vara sig og endurskoða þetta misskilda "hlutverk sitt á meðal þjóðanna"?

En hjálpið mér nú endilega að finna hinn 16. ára ungling sem bar fram spurningu til Umboðsmanns Barna árið 2010. Ég held persónulega að hann sé algjör uppspuni frá rótum. Hvaða 16 piltur fer að væla í umboðsmanni barna um typpi?

16 year old Icelandic

"Hæ Umboðsmaður barna. Ég er 16 ára strákur og hálfgert barn..."


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Briem

Framsóknarflokkurinn hefur einn ganginn enn gert allt vitlaust í heiminum og nú með miklum áhuga sínum á tittlingum gyðinga, sem í tilviki Fornleifs heyrir undir fornleifar.

Umskurður getur verið hættuleg aðgerð

Þorsteinn Briem, 7.2.2018 kl. 16:08

2 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

 Sæll Briem, ég sem hélt að þú værir einvörðungu sníkjudýr á bloggi Ómars Ragnarssonar. Þetta er ekki Fornleifur. En Fornleifur er vitaskuld umskorinn eins og aðrir meðlimir fornra menningaþjóða og er tappi hans langt frá því að vera dauður úr öllum æðum, þó hann stundi ekki barnariðilshátt eins og fjöldi Íslendinga fyrr og síðar.

Frétt sú sem þú vitnar í er furðuleg, og hef ég beðið lækninn sem tjáir sig þar, Þráinn Rósmundsson, að fræða mig. Ég sendi honum rétt áðan þessi skilaboð:

Sæll Þráinn Rósmundsson,

vegna fréttar á RÚV í morgun, þar sem eftir þér er haft að um 200 sveinbörn deyi árlega í BNA sökum umskurðar, langar mig að biðja þig um heimildir þínar fyrir þessum tölum.

Hve mörg dauðsföll eiga sér stað við umskurð framkvæmda af læknum, og hver margar framkvæmdar af gyðinglegum Mohel (Schneider) sem ekki notaði metzitzah b’peh, þar sem mohelinn meðal lítils hóps heitttrúaðra sýgur blóð sitt með munni sínum ? Þetta hlýtur þú að geta gefið mér upp, fyrst þú ert sérfræðingur á þessu sviði og í hættum af þessum aðgerðum

Ég mun spyrja HÍ opinberlega, ef þú getur ekki gefið mér undirbyggðar upplýsingar innan 5 vinnudaga. Þú getur einnig svarað spurningunum hér: https://postdoc.blog.is/blog/postdoc/entry/2211001/ á einu blogga minna í athugasemdakerfinu, þar sem ég mun setja þessa fyrirspurn til þín

bestu kveðjur,

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, Ph.D.
Albertslund
Danmörku

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 7.2.2018 kl. 16:55

3 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Umheimurinn getur í dag lesið þessa skilgreiningu mína á málinu: The Jews of Iceland are fewer than 50! The country still doesn't have a Synagogue. Since 2006 only 14 boys under the age of 18 have been circumcised in Iceland. Most of them were Muslim. So this is a case of "Much to do about nothing". Some of the parliamentarians responsible for the ban-bill belong to a far-right political party with a marked anti-Muslim agenda. The party is called 'Flokkur Folksins+ (People's Party). Their aim with the bill is first and foremost muslimophobia. Other parties behind the bill are driven by pure ignorance and intolerance as well as traditional Icelandic xenophobia. See http://www.jcpa.org/phas/phas-vilhjalmur-f04.htm

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 7.2.2018 kl. 17:05

4 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Ég held að Sverrir Agnarsson hafi átt kollgátuna í Kastljósinu í gær: Ef það á að banna umskurn drengja er allt eins hægt að banna Gyðingdóm.

Þorsteinn Siglaugsson, 8.2.2018 kl. 09:38

5 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Já og Islam líka. En það gengur ekki upp. Dægurflugur eins og Flokkur Fólksins og Píratar og einstaka mýflugur í VG og Framsókn daga fyrr uppi en Alheimstrúarbrögð. Þótt sumir Íslendingar haldi að þeir eigi að gegna hlutverki á meðal þjóðanna, þá var það hlutverk ekki veitt þeim til að koma í veg fyrir umskurð á drengjum.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 8.2.2018 kl. 11:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bækur

Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband