Leita í fréttum mbl.is

Silju er illt í typpinu

Turtle

Nú skal vitaskuld látið vaða á typpin. Hefur Framsóknarflokkurinn ekkert annað þarfara að gera en að vasast í typpadýrkun og forhúðarást?

Ógeðfelld samlíking á umskurn drengja og stúlkna er það sem Silja Dögg Gunnarsdóttir ber hér fram. Flokkurinn hennar var einmitt sá sami og barðist mest fyrir því að hindra komu umskorinna karla til Íslands á 4. áratug 20. aldar. Hér er því ekkert nýtt mál á ferðinni. Hatrið er enn gríðarlegt meðal afdalakynsins á Íslandi.

Múslímahatur og jafnframt gyðingahatur sumra Íslendinga kann sér greinilega engin takmörk. Afkomendur fólks sem skar dýr á háls í gegnum aldirnar á Íslandi hefur líka látið banna trúarlega slátrun, sem er nákvæmlega sami hluturinn. Tvískinnungurinn uppmálaður og hatrið er svo hreint á Íslandi.

Morgunblaðið bætir um betur og birtir mynd frá stóraðgerð á kviðarholi til að sýna hve agalega hættuleg umskurn á drengjum sé. Myndafölsun, jú og ekki sú fyrsta í Morgunblaðinu.

Fölsun Moggans

Mikið er sumt fólk á Íslandi nú jarmandi frumstætt. Og hvar er hún Sema Erla nú?  Samfylkingalaukurinn, sem heldur því fram að Tyrkland sé lýðræðisríki. Sema mun ugglaust verja forhúðina í nafni lýðræðis síns. En umskurn drengja kemur vitaskuld ekkert lýðnum hið minnsta við, hvorki Semu né Silju.

Þó að Íslendingar vilji halda sem fastast í leðursvuntuna sína og rækta hnakkost og vel valdar bakteríur undir henni, þurfa þeir ekki að banna öðru fólki, og menningarþjóðum, forna siði.

Tekið skal fram að myndin efst er ekki af typpi, heldur af Bubba og nýju peysunni hans.


mbl.is Umskurður brot á réttindum drengja
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Valur Jensson

Góð rúsínan í pylsuenda þínum!

Jón Valur Jensson, 1.2.2018 kl. 10:39

2 Smámynd: Arnór Baldvinsson

Sæll Vilhjálmur,

Ég hef aldrei skilið þessa undanskurðarást miðausurlendinga og vafa þeirra um að Guð hafi getað skapað fullkominn getnaðarlim án þess að maðurinn þyrfti að bregða hníf á hann til að fullkomna sköpunarverkið!  Persónulega finnst mér þetta fáránlegur siður aftan úr grárri forneskju, sem á lítið erindi til nútímamanna, nema þeir hyggi á hellalíf í miðausturlöndum.  Hvort sem það er umskurn drengja eða stúlkuna er þetta ekkert annað en barbarísk fásinna að framkvæma á tuttugustu og fyrstu öld!

Kveðja frá Trumpistan,

Arnór Baldvinsson, 1.2.2018 kl. 15:46

3 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Sæll Arnór í Trumpistan. Orð sem þú notar í fyrirspurn þinni, eins og "undanskurður" er vafasöm í þessari umræðu.

Ekki er verið að bæta sköpunarverk Drottins, heldur fylgja menn vilja hans. Hellislíf er víst ekki hentugt til umskurnar, enda komst þessi siður líklega á löngu eftir að hellisbúsetu lauk. Henni lauk síðar á mörgum stöðum utan Miðausturlanda. Torfhúsavist var lausn annarra fram á 20. öld, sem líklega hentaði ekki sem umhverfi fyrir umskurn. Hreinlæti var ekki fyrir hendi til slíkra athafna þar sem menn kunnu ekki að þvo sér um hendur fyrr en seint og síðar meir.

Dómharka þín byggir greinilega ekki á neinni þekkingu. Ég verð þó að samsinnast þér um fásinnu þess að umskera stúlkubörn. Það er sérgrein og viðbót Íslam og einhverra annarra hópa, og á ekkert skylt við umskurn drengja í Gyðingdómi.

Þar fyrir utan eru engar sannanir fyrir því að menn missi hluta af hæfileikum sínum til að fullnægja sér kynferðislega, þó þeir séu umskornir, og þaðan að síður að þeir missi eiginleikan til að fullnægja konum, sem er kannski það sem menn ættu að hugsa mest um. Rannsóknir á mönnum sem hafa fengið umskurn er þeir voru orðnir fullorðnir, t.d. vegna sýkinga eða forhúðarþrengingar sýna miklu frekar að menn hafi fengið betra kynlíf á allan hátt eftir slíka aðgerð.

En það eru vitaskuld alls ekki umhyggja fyrir typpum lítilla drengja sem drífur sumt fólk áfram í hatri sínu á umskurn. Hreint og beint kynþáttahatur er einnig nokkuð stór þáttur í fordómum gegn þessum sið.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 1.2.2018 kl. 18:11

4 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

 eiginleikann átti að standa í næst neðstu málsgrein.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 1.2.2018 kl. 18:15

5 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Ég held ekki að þetta sé kynþáttahatur. Þetta er einfaldlega heimska.

Þorsteinn Siglaugsson, 3.2.2018 kl. 01:08

6 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Vilhjálmur Örn.

Þú virðist líta fram hjá því að hér er alls ekki á ferðinni nein hugmynd um bann við því að þeir sem vilja undirgangast umskurð geri það sjálfviljugir.

Hér er eingöngu á ferðinni sú hugmynd að það verði refsivert að níðast þannig á drengjum sem hafa ekki þroska til að geta veitt upplýst samþykki sitt fyrir umskurði. Slíkt níð hefur í 13 ár verið refsivert gagnvart stúlkum en sú kyndbundna mismunun sem það felur í sér brýtur gegn stjórnarskrá og er því nauðsynlegt að jafna stöðu kynjanna að því leyti.

Við verðum að fara eftir stjórnarskránni ekki satt?

Svo má deila um það hvort yfir höfuð sé til nokkuð sem kalla megi upplýst samþykki fyrir þessháttar villimennsku, en á hinn bóginn banna íslensk lög hvorki heimsku né þröngsýni, sem betur fer fyrir þá sem þetta á við um.

Guðmundur Ásgeirsson, 3.2.2018 kl. 14:12

7 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

 Guðmundur Ásgeirsson, stjórnarskráin og íslensk lög segja þér að virða trúfrelsi. Gerðu það þá, og hættu að hnýta saman umskurð drengja og umskurð stúlkna, sem eru algjörlega óskyldir hlutir.

Ásakanir þínar um villimennsku, heimsku og þröngsýni þeirra sem kjósa að umskera börn sín vegna þess að það er liður í trúarhefð þeirra, eru mjög alvarlegar og spurningin er, hvort þú hafi ekki brotið íslensk lög með því að niðra trúarhefðir annarra.

Við getum auðvitað spurt yfirvöld. Viltu með mér til lögreglunnar. Hún er með deild sem rannsakar hatursglæpi og trúarfordóma.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 5.2.2018 kl. 04:05

8 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Þorsteinn Siglaugsson, við verðum að vona það - fyrir Silju. Ég held þó ekki að hún sé heimsk.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 5.2.2018 kl. 04:07

9 identicon

Málið er að foreldrar eiga akkert með að senda börn í ónauðsynlegar og hættulegar aðgerðir, hvort sme það eru drengir eða stúlkur.
Bíðið þar til barnið er 18 og tekur ákvörðun sjálft.

DoctorE (IP-tala skráð) 5.2.2018 kl. 10:34

10 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Vilhjálmur Örn. Trúfrelsi er ekki einhliða eins og þú virðist halda. Ein hlið á því er vissulega sú að menn megi iðka þá trú sem þeir kjósa. Önnur hlið á því er svo frelsi manna til að iðka ekki þau trúarbrögð sem þeir ekki vilja.

Teljir þú notkun mína á tjáningarfrelsinu til að lýsa yfir skoðun minni vera refsiverða, skora ég eindregið á þig að kæra mig til hugsanalöggunnar eins og þú ýjar að.

Eigðu góðar stundir.

Guðmundur Ásgeirsson, 5.2.2018 kl. 17:46

11 Smámynd: Jón Valur Jensson

Gervidoktorinn talar um hættul. og ónauðsynl. aðgerðir, en þessar eru ekki hættulegar, meira en 800 milljónir karlmanna umskornar og aðgerðin nauðsynleg í sínu trúarfélagslega samhengi.

Þið ættuð að að lesa frábæra grein eftir Halldór Armand Ásgeirsson rithöf. um málið, hann rústar ykkur!

Jón Valur Jensson, 7.2.2018 kl. 16:20

12 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

DoctorE á ekki einu sinni börn og hefur ekki verið kenndur við konu. Hvað er hann að ybba gogg? Jón Valur, hvar hefur Halldór skrifað um málið?

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 7.2.2018 kl. 17:02

13 Smámynd: Jón Valur Jensson

Greinin er hér:

www.ruv.is/frett/sattmalinn-vid-gud-i-tukthusinu

Jón Valur Jensson, 7.2.2018 kl. 19:31

14 Smámynd: Jón Valur Jensson

Greinin er hér:

www.ruv.is/frett/sattmalinn-vid-gud-i-tukthusinu

https://postdoc.blog.is/blog/postdoc/entry/2210651/#comment3683963

Jón Valur Jensson, 7.2.2018 kl. 19:31

Jón Valur Jensson, 7.2.2018 kl. 19:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bækur

Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband