Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Helförin

Steinar í götu Dana

cor_1367

Ég hef ásamt öðrum hér í Danmörku, sem sitja í stjórn Selskabet for Dansk Jødisk Historie, hrint af stað verkefni til að minnast fórnarlamba nasismans og meðreiðarsveina þeirra í Danmörku. Verkefni þetta kallast Snublesten, og gengur út á að setja litla steina með messingplötu í gangstéttir fyrir utan hús þau, þar sem bjuggu þeir sem sendir voru úr landi af dönskum yfirvöldum og nasistum á stríðárunum, og voru síðar myrtir í fanga- og útrýmingarbúðum nasista.

Á messingplötuna verður grafið nafn og upplýsingar um þann sem minnst er. Hugmyndin er upphaflega ættuð frá Þýskalandi og mun listamaðurinn Gunter Demning, sem sett hefur þúsundir slíkar steinar í götu Þjóðverja, einnig setja þessa steina hér í stéttir Kaupmannahafnar, og annarra bæjarfélaga Í Danmörku.

Verkefnið er enn fjárvana, en í dag var greint frá því á vefsíðu Jyllands Posten. En það blað er sem kunnugt lesið um allan heim, eftir að einhver teiknari teiknaði svona listgóða teikningu af ljótum karli, sem ætlaði allt að gera vitlaust.  Nú hljóta góðir menn að hjálpa til að gera þetta verkefni okkar verði að veruleika.

Kannski eiga einhverjir á Íslandi nokkrar krónur aflögu?  Ég vildi bara nefna þetta, ef einhver hefði vonda samvisku á Íslandi. Ísland var enn í Ríkjasambandi við danska Konungsveldið, þegar þessir glæpir voru framdir. Ég greindi frá glæpum þessum í bók, sem út kom árið 2005 og sem örugglega er enn hægt að kaupa mjög ódýrt hjá forlaginu Vandkunsten, en einnig mun hún vera til á betri bókasöfnum á Íslandi.

cor_3780
Gunter Demning gengur frá steinum í Hamborg

Leikritið Träumeland

Dreamland
 

verður leikið á morgun. Þá fær litli prinsinn í draumlandinu á bláu plánetunni afhent þýskt tannfé á stórri senu í Hamborg.  

Á morgun kl. 11, pünktlich, verður Andri Snær Magnason heiðraður með KAIROS-verðlaununum, sem Toepfer stofnunin í Hamborg veitir vel gefnu fólki. Afhendingin á sér stað í Deutsches Schauspielhaus í Hamborg og eru ýmsir undirleikarar með frá Draumalandinu.

Toepfer sá, sem gjafmilda stofnunin er kennd við, var hins vegar hið versta fól og argur nasisti, og saga hans er ljót. Minningu sína sótthreinsaði karlinn með peningagjöfum. Ég hef sagt sögu Toepfers hér á blogginu mínu, þegar það var fyrst tilkynnt í desember sl., að Andri Snær fengi verðlaunin. Sjá hér og hér.

Blóðpeningar Toepfers eru greinilega happafengur fyrir rithöfund sem vill halda ímynd Íslands hreinni og fallegri. En peningarnir sem Andri þiggur eiga sér bæði ljóta og blóði drifna sögu. Kannski ekki hvert einasta Evra, en það er blettur á þessum verðlaunum, sem ekki verður þveginn af með þýskri undrasápu sem inniheldur handfylli af einhverju eitruðu ultra úr töfralandi sápuauglýsinganna.

Hér getið þið lesið greinargerð eftir franskan sagnfræðing, Gérard Loiseaux, sem lengi hefur deilt á Toepfer Stiftung í Hamborg. Hann sendi þessa greinargerð til íslenskra fjölmiðla. Eru þeir að birta hana, eða er Andri, Le petit Prince, kominn á sama stig og Laxness?

Andri Snær reyndi að fá blog.is til að banna umfjöllun mína um verðlaunin og mér var send aðvörun vegna þess að hann hélt því fram að ég ég mætti ekki nota ljósmynd af sér (Múhameð-heilkenni?). Í ljós kom, að Andri átti bara alls ekki upphafsréttinn að ljósmyndinni, en  hafði samt sent hana til Toepfer stofnunarinnar í Hamborg sem birti hana án leyfis ljósmyndarans. Þeir fjarlægðu myndina eins og ég, þegar þeir fréttu þetta.  Ég þori ekki að birta myndir af spámönnum og gervigúrúum, en er drengurinn á myndinni hér að ofan ekki líkur Andra?

Ég vona að Andri Snær Magnason afþakki verðlaunin í Hamborg á morgun og minnist í staðinn fórnarlamba nasismans á tilheyrandi hátt. Það yrði miklu meira í samræmi við drauma hans og hugsjónir, leyfi ég mér að halda, eða er sama hvaðan "gottið" kemur?

Það er greinilegt að Andri Snær stefnir langt í draumum sínum:

,,Já, það munar um minna, það má segja það. Þessi verðlaun koma á góðum tíma fyrir mig sem listamann, ekki of snemma og heldur ekki of seint! Það er gott fyrir listamenn að fá slík verðlaun þegar þeir þurfa á þeim að halda. Nóbelsverðlaunin í bókmenntum eru til að mynda sjaldnast veitt fyrr en rithöfundar eru komnir á efri ár.''

Nóbelsverðlaunin? Tjah..., hvað með að hugsa um líf þeirra sem urðu drápsvélinni, sem Toepfer var hluti af og græddi á, að bráð, nú þegar maður er búinn að fá næstbesta styrkinn á eftir Nóbelnum?


Skuldabaggi Hollendinga

Razzía gegn gyðingum 1942

Er hægt að kenna öllum Hollendingum um þá glæpi sem sumir Hollendingar, (ja, nokkur þúsund Hollendinga), frömdu í Síðari heimsstyrjöld? Nei. Það er heldur ekki hægt að kenna öllum Íslendingum um þá glæpi sem nokkrir Íslendingar frömdu í Hollandi í nafni Icesave, sjúklegrar íslenskrar sjálfsánægju og ofmetnaðs.  

Ég hef tekið eftir því að Hollendingar vilja ekki heyra sannleikann um sjálfa sig, frekar en sumir Íslendingar. Á fjölmörgum umræðusíðum, hollenskum, hef ég bent á hve skuld Hollendinga við gyðinga Hollands var seint greidd og af hverju Hollendingar greiddu ekki út eignir og innistæður gyðinga sem myrtir höfðu verið. Skuld Hollendinga verður vissulega aldrei greidd að fullu. 90% allra gyðinga í Hollandi voru myrt og áttu Hollendingar vissulega þátt í því, beint og óbeint. Þótt margir Hollendingar hafi hjálpað löndum sínum af gyðingatrú- eða ættum og jafnvel misst líf sitt vegna þess, voru þó flestir tilbúnir að líta til hliðar og jafnvel að hjálpa til við morð og ofsóknir á nágrönnum sínum. Í Hollandi var stærsti nasistaflokkurinn utan Þýskalands. Þetta var skrítið land. Jafnvel voru til fjölskyldur, þar sem menn, sem voru kvæntir gyðingakonum, voru einnig nasistar. Þeim var refsað fyrir það eftir stríð, jafnvel þó að þeir hefðu bjargað fjölskyldmeðlimum af gyðingættum. En þeir sem stunduðu skipulagt rán úr húsum og íbúðum gyðinga sem sendir höfðu verið til Westerbork, Vught, Amersfoort og víðar, og áfram í dauðann til Theresienstadt, Sobibor og Auschwitz, gengu margir hverjir níðingslega fram við samlanda sína.

Hrottaskapur í Vught
SS-liði og hollenskur lögreglumaður tuska fanga (gyðing?) til í fangabúðunum í Vught í Hollandi árið 1944. Já, slíkt gerðist ekki bara í Póllandi og Rússlandi. Myndin efst er frá 1942 og sýnir þýska hermenn og hollenska lögreglumenn að loka af hverfi í Amsterdam til að smala saman gyðingum.

 

Í dag er búið að heilaþvo Hollendinga og heiminn með Önnu litlu Frank. Það voru til þúsundir stúlkna eins og Anna Frank í Hollandi. Anna Frank friðþægir vonda samvisku Hollendinga. Hollendingar gleyma hins vegar Puls (Pulsen) vögnunum, frá fyrirtæki A. Puls, sem óku um götur Amsterdam og Haag og tæmdu íbúðir gyðinga sem sendir höfðu verið í búðir eða voru í felum, eftir að hollenska lögreglan var búin að leita það upp og stinga byssustingjum sínum í gegnum gólfin til að fullvissa sig að engin fæli sig í íbúðunum. Þá kom flutningafyrirtækið Puls sem tæmdi hús gyðinga.

Puls
Flutningafyrirtæki nasistans Abrahams Puls tæmdi íbúðir gyðinga í Hollandi

 

Hollendingar eru nú búnir að vera með Þjóðverjum lengi í ESB, en samt heldur Þýskaland hlífðarhendi yfir hollenska böðlinum Klaas Karel Faber sem gekk í raðir SS og myrti gyðinga og aðra í fangabúðunum Westerbork í Hollandi. Hvað gera Hollendingar til að fá hann framseldann? Lítið sem ekkert. Níðingurinn Faber lifir í vellystingum í ESB-Þýskalandi. Hvað gerir ESB til að lögsækja gyðingamorðingjann Klaas Karel Faber? Ekkert!

Í hvert sinn sem ég skrifa um þessa skuldseigu þjóð, Hollendinga, sem átti erfitt að borga skaðabætur fyrir þær eignir sem hollenska ríkið nældi sér í eftir að gyðingar höfðu verið myrtir, þá hefur athugasemdin ekki verið birt, eða fjarlægð á hollenskum rabbsíðum. Það var nefnilega þannig að Hollendingar byrjuðu ekki að greiða skuldir sínar aftur og skila eigum gyðinga, sem bankar höfðu tekið traustataki, fyrr en upp úr 1994, og það tók nokkur ár. Nóg var rausað og sumir stjórnarliðar vildu minnka upphæðina. Minnst af þeim greiðslum sem loks voru inntar af hendi fóru til þeirra sem lifðu af eða ættingja þeirra, mest í als kyns sjóði fyrir gyðingasöfnuðu í Hollandi, söfn, rannsóknarverkefni og þvíumlíkt.

130160-hi

 Gyðingabörn frá Hollandi, sem myrt voru í Helförinni. Þetta er ekki Anna Frank til hægri.

01338

 Gyðingum frá landsbyggðinni í Hollandi smalað í lestir til fangabúðanna í Westerbork.

Hollendingar eru annálaðir fyrir ráðsíu og jafnvel nísku. Það er jafnvel hægt að segja að um þjóðareinkenni sé að ræða. Ekki var laust við að hún kæmi í ljós þegar ríkisstjórn landsins, sem á síðustu 60 árum hefur oftast verið undir stjórn krata, ætti erfitt með að greiða skuld sína. Það tók þá 50 ár að hefja greiðslur. Ekki nóg með það, engin ríkisstjórn Hollands hefur nokkru sinni haft manndóm í sér til að koma með opinbera afsökunarbeiðni til gyðinga Hollands fyrir þá meðferð sem þeir fengu á stríðárunum og eftir stríð. Slíkan nánasahátt er vart hægt að finna annars staðar á byggðu bóli.

Það er alveg hægt, og ekki siðlaust að líkja Icesave skuldinni við skuld Hollendinga við gyðinga. En vert er að benda á tvennt: 90% gyðinga í Hollandi voru myrtar. Icesave varð víst engum, hollensku áhættufíklunum sem á eigin ábyrgð vildu setja fé sitt í hendur Icesave-glæpamannanna að bana. Icesave-bankamenn frá Íslandi voru í raun ekki ósvipaðir nasistum í hugsunarhætti. Flaskaðir upp á þeirri meinloku að Íslendingar væru bestir í heimi og gætu yfirstigið allt. Það er eina, sameiginlega synd margra Íslendinga, þetta helvítis ofmat á getu sína og hæfni.

Íslendingar eru fórnarlömb græðgi, ekki kapítalisma, heldur græðgi, sem ekki er flokksbundinn eiginleiki eins og menn sjá vonandi vel á Íslandi. Nú er hin venjulegi Íslendingur líka orðinn fórnarlamb taumlausrar græðgi okurlánara á Hollandi, sem sjálfir hafa aldrei gert almennilega upp við söguna og sína skuldunauta.

66085-hi

Setella Steinbach, sígaunastúlka frá Hollandi, á leið í dauðann. Þessi mynd var eitt sinn notuð af manni á Vestfjörðum á bloggi sínu til að lýsa eymd byggðarlags síns vegna kvótamála á Íslandi, og það var vel að merkja fyrir hrun. Hvernig ætli sé fyrir vestan nú?


Gangið úr flokknum !

iran-execut

Ungliðar Vinstri Grænna mótmæla hörku Steingríms Lagabrjóts og annarra stjórnarliða gegn flóttamönnum.

En hverju bjuggust ungliðarnir eiginlega við? Gamalmennin í VG með Steingrím í fararbroddi hafa í áraráðir stutt hryðjuverkasamtök, sem studd eru með ráðum og dáð af Íran, og telja Íran vera ríki sem hægt sé að ræða við.

Þess vegna er Írani sendur úr landi á Íslandi og íslensk lög brotin. Steingrímur sýnir ítrekaðan brotavilja þessa dagana. Hann trampar á stjórnarskránni og horfir í hina áttina þegar flóttamanni er bolað úr landi. Kannski erum við að fá íranska stjórnarhætti á Íslandi? Margt bendir til þess: Háskólamenn, sem vilja banna fagurbókmenntir og stjórnmálamenn, sem vilja taka upp stjórnmálasamband við hryðjuverkaríki.

Við getum bara vonað að Íraninn sem hrakinn var úr landi verði ekki hengdur í ljósastaur eða pyntaður í fangelsi, ef hann verður flæmdur alla leið til Íran. 

Íran er í dag eins og Þýskaland nasismans. Segið ykkur því úr flokknum ungliðar, ef þið hafið í raun séð ljósið. Þið hjálpið ekki flóttamönnum frá Íran með því að mótmæla flokknum. Mótmæli hlustar Steingrímur ekki á og þau gagna ekki manninum sem sendur var úr landi.

Gangið úr flokknum! Hvað er mikilvægara mannréttindi eða flokkurinn?

Eða er þetta bara innantómt raus í ykkur, til að vekja athygli á ykkur sjálfum?


mbl.is Írana vísað úr landi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Davíð, er algjör arabi á vaktinni?

david_oddson

Hr. Davíð Oddsson ritstjóri. Snemma í morgun var sett frétt á mbl.is. Hún hljóðaði svo í einfaldleika sínum:

Mahmoud Ahmadinejad, forseti Írans, sem ítrekað hefur lýst andúð sinni á gyðingum og Ísrael og sagt helför gyðinga vera lygi, virðist sjálfur vera af gyðingaættum. Þetta fullyrðir breska blaðið Daily Telegraph.

Svo var henni breytt meðan að ég skrifaði þetta og hún öll aukin.

Í upphaflegu fréttinni var enginn tengill við frétt Daily Telegraph. Svo var settur tengill í afar vafasama frétt Daily Telegraph þar sem Ahmadinejad var venslaður við gyðinga. Slíkar sögur hafa flakkað um Miðausturlönd í nokkur ár. Menn kalla hann líka Tyrkja og aðrir segja að hann sé af armenskum ættum. Gott ef ekki hefur verið haldið fram, að hann sé Dani. Ekki var blaðamaður Moggans að hafa fyrir því að tengja í þessa frétt.

Fréttin í Daily Telegraph er annað hvort, tilraun til að vera fyndinn, eða gyðingahatur. Hún er full af rangfærslum og mæli ég með því að menn lesi þetta: http://tracingthetribe.blogspot.com/2009/01/iran-jewish-genealogists-at-work.html

Var maðurinn á myndinni hér að ofan ekki sagður vera af negrum kominn - og það er þó ekki ljótum að líkjast - og ekki skýtur hann yfir markið. Það gerir www.mbl.is hins vegar nokkuð oft. Menn ættu að sjá sóma sinna að vera ekki að lepja furðufréttir af breskum fjölmiðlum nú á hinum síðustu og verstu tímum.

Ég tek það fram vegna fyrirsagnar þeirrar sem ég slengi hér út með þessu morgunbloggi, að arabi var skammaryrði í minni barnæsku í Reykjavík. Menn töluðu um "algjöra araba". Svo ekkert píp frá pólítískt rétthugsandi vælukjóum og grátkerlingum, takk.


mbl.is Ahmadinejad af gyðingaættum?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gyðingabörnin í lestinni

  kinder_transport

RÚV á stundum bágt. Fréttaflutningurinn er yfirborðskenndur. Í sjónvarpsfréttum í gær sagði frá því að fólk, sem hafði verið börn fyrir stríð, minntist nú björgunar sinnar frá Tékklandi fyrir 70 árum, með því að ferðast með lest sömu leið og þá.

Það var ekki fyrr en í miðri frétt að sagt var að börnin hefðu flest verið gyðingar. Slíkir björgunarflutningar, Kindertransporte, höfðu reyndar farið fram frá Þýskalandi áður, en Winton tókst að hjálpa börnum frá Tékkóslóvakíu. Margir gyðingar og gyðingasamtök börðust fyrir því að koma börnum og unglingum úr landi, til Palestínu eða annarra landa, burt frá brjálæðingnum Hitler og öllum fylgifiskunum hans. Í Danmörku, Svíþjóð og Hollandi voru t.d. sumarbúðir fyrir þýsk gyðingabörn frá 1935, sem rekin voru af ... gyðingum.

Einnig gleymdist að segja frá því í fréttum í gær, að bjargvættur barnanna í Prag, Nicholas Winton, er sjálfur gyðingur. Fjölskylda hans kom frá Þýskalandi tveimur árum áður en hann fæddist og ættin hét í raun Wertheimer.

Þess ber að geta, að hin fína frændþjóð okkar, Svíar, áttu möguleika á því að bjarga 20.000 gyðingabörnum frá stríðshrjáðri Evrópu árið 1943. Þeir ákváðu að gera það ekki.

kindertransporte_bobby

Það var ekki mikið samúð í þessum björgunum. Börnin frá Prag komust ekki til Lundúna, nema vegna þess að það tókst að finna fólk sem var viljugt að bera allan kostnað af dvöl þeirra. Svíum fannst t.d. of dýrt að borga undir 20.000 gyðingabörn. En þeir seldu járn til Þjóðverja.

Það hefðu getað verið miklu fleiri gyðingabörn í lestum og skipum á leiðinni í frelsið árið 1939. En það var nú einu sinni svo, að það voru fyrst og fremst gyðingar sjálfir sem báru þungan af því að hjálpa sinni þjóð. Aðrir vildu fá borgað fyrir það.

Ég sá um daginn viðtal við konu, sem fæddist i Teplice, sem var send sem barn til Bretlandseyja. Fyrir rúmu ári hélt önnur kona frá Teplice, sem ekki er gyðingur, myndlistasýningu á Íslandi. Ætli foreldrar hennar hafi hjálpað gyðingabörnum árið 1939?


Knut Hamsun er mælikvarði á siðferði

Hamsun loved Hitler

Þótt Norðmenn haldi upp á dæmdan landráðamann, sem var aðdáandi gyðingamorðingjans Hitler, er þá nokkur hæfa fyrir Íslendinga að gera það sama? Hamsun á sér þó greinilega einvala lið aðdáenda á Íslandi.

Kannski gerir Avigdor Liberman, umdeildur utanríkisráðherra Ísraels, sér ekki grein fyrir því, að frændur Norðmanna, sumir Íslendingar, eru líklegast ekki minni gyðingahatarar en Norðmenn. Sjáið til dæmis skrif sumra þeirra manna, sem lagt hafa orð í belg í umræðunni við þessa frétt Morgunblaðsins.

Einn þeirra segir, að maður sé ekki gyðingahatari þótt maður sé nasisti. Þessi maður, sem hefur greinilega farið illa út úr íslenska skólakerfinu, hefur hér á blogginu gert það að köllun sinni að vara við "Villa í Köben" (þ.e.a.s. mér), í bloggkynningu á sjálfum sér, vegna þess að ég ver málstað Ísraels og segi stundum sögu gyðinga á bloggi mínu. Menn geta þó líka verið gyðingahatarar, þó þeir séu ekki nasistar.

Jú, nasistar eru allir gyðinghatarar og gyðingahatur er stoðarsteinn nasismans. Nasisminn í Þýskalandi var drifinn áfram af gyðingahatri. Gyðingahatur er líka helsta iðja nýnasista. Og nú hafa vinstri menn bæst í hópinn, eftir að fasistaríkin, sem þeir studdu austantjalds, voru afhjúpuð. Gyðingahatur kommúnistaríkja var ofsafengið og flótti gyðinga frá Póllandi á 7. áratugnum, sem og mikill fjöldi gyðinga í Gúlagi Sovétsins er til marks um það.

Hamsum, sem hataði Breta, og sem hyllti Hilter, var gyðingahatari per exelance. Nóbelsverðlaunin, sem hann fékk árið 1920, eru ekki bólusetning við gyðingahatri. Arafat fékk eins og allir vita friðarverðlaun. Hvenær var hann friðarsinni? Hamsun gaf Göbbels Nóbelsmedalíuna sína í hrifningu yfir nasismanum.

Frá því ég byrjaði að blogga, hef ég öðru hvoru bent mönnum á, að skrif þeirra flokkist undir gyðingahatur. Flokkunina sem ég nota er skilgreind af t.d. Evrópuráðinu og stofnunum ESB. Flestir þeirra sem ég hef gangrýnt sjá ekki galla sína og telja að þeim sé heimilt að skrifa sora og ærumeiðingar um gyðinga. En Það er bannað samkvæmt íslenskum hegningarlögum.  Vegna spillingar í íslensku þjóðfélagi, sem er algjör, þar sem ættmenn þeirra sem sendu gyðinga úr landi á Íslandi á 4. áratug síðustu aldar, hafa t.d. gengt stöðu saksóknara, finnst enginn sem vill taka á gróðrarstíu gyðingahaturs á Íslandi. Gyðingahatur er því miður orðin lenska á Íslandi.

Jón Valur Jensson, mikill baráttumaður fyrir frelsi, sem nýlega bað um að gerast bloggvinur minn, segist ekki kannast við gyðingahatur Hamsuns. Maður, sem í ræðu á stríðsárunum lýsir Roosvelt Bandaríkjaforseta á þennan hátt:  "Gyðingur í þjónustu Gyðinga", er kannski ekki gyðingahatari? Hvað finnst þér Jón Valur?

Þó svo að sumir Norðmenn verji glósur Hamsuns um gyðinga á þann hátt að þær hafi verið "til siðs" á þessum tíma, þá eru þessar glósur jafnt sem áður, GYÐINGAHATUR. Þetta var hatur sem tíðkaðist fyrir þann tíma að brjálæðingur nokkur í Þýskalandi, sem Hamsun dýrkaði, kom því í kring að 6 milljónir gyðinga voru myrtar, meðan mestur hluti heimsins horfði á án þess að segja nokkuð eða gera. Þó svo að Hamsun hafi grenjað á vitleysingahælinu þegar hann heyrði um örlög gyðinganna, þá breytir það ekki því að hann var stuðningsmaður morðingjanna sem myrtu þá.

Stundum hvarflar það að mér, að það sem var til siðs að segja um gyðinga á tímum Hamsuns, sé komið aftur í tísku, eins og Hamsun.

Hér fáið þið minningarorð Hamsuns um Hitler:

Jeg er ikke verdig til at tale høirøstet om Adolf Hitler, og til nogen sentimental Rørelse indbyder hans Liv og Gjerning ikke.

Han var en Kriger, en Kriger for Menneskeheden og en Forkynder av Evangeliet om Ret for alle Nasjoner. Han var en reformatorisk Skikkelse av høieste Rang, og hans historiske skjebne var den, at han virket i en Tid av eksempelløseste Raahet, som tilslut fældte ham.

Slik tør den almindelige Vesteuropæer se på Adolf Hitler. Og vi, hans nære tilhengere, bøier nu vaare hoder ved hans død.

Knut Hamsun

Þetta var birt í Aftenposten 07. 05. 1945. Nú er Aftenposten að ráðast á ríki Gyðinga. Lengi lifir í gömlum glæðum.

Ef íslensk skítseyði vilja hylla slíka norskan föðurlandssvikara, sem lýsir Hitler eins og hetju, þá er kannski kominn tími til að hafa samband við "Villa öfgamann í Köben", til að láta hann stinga gyðingahatursmælinum í afturendann á ykkur. Þið eru að minnsta kosti með verulegan hita. Svínainflúensu er auðvitað ekki hægt að útiloka, en siðferðið er að minnsta kosti bágt.

Ætli Íslendingar muni halda upp á afmæli landráðamannanna sem settu íslensku þjóðina á hausinn? Nei, ég held ekki að Íslendingar séu eins vitlausir og Norðmenn, enda flýðu þeir Noreg fyrir 1100 árum. Hver vill láta skipa sér í sveit með þjóð, sem telur að makríllinn tali norsku?


mbl.is Segir Norðmenn hata gyðinga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gyðingahatur er enn leyft á blogginu

Það verður að viðurkennast, að fólk sem bloggar er flest með einhverjar lausar skrúfur. Sumir eru minna hertir en aðrir og sumir eru illa forskrúfaðir. Aðrir eru hins vegar alveg búnir að tína flestum skrúfum og fittingum og mikilvægir partar er jafnvel farnir að hrynja af.

Þorsteinn Þorsteinn Scheving Thorsteinsson 

Þetta versta stig á líklega við um Þorstein Scheving Thorsteinsson.  Nafnið hljómar eins og þarna sé á ferðinni einhver ættarlaukur með ljómandi og svalandi framtíð fyrir sér. Ekki þekki ég neitt til mannsins. En hann hefur greinilega eytt framtíð sinni í nýnasistarugl, firru Ku Klux Klan og fáránleika gyðingahaturs. Það voru vitanlega oft rotnir laukar í poka frá kjörbúð SS og ekki held ég að ættmenn Þorsteins séu mjög sammála Þorsteini frænda sínum á blogginu. Líklegra er að kóngulær haturs hafi vafið Þorstein í net sitt, eins og klámfætlan vefur öðrum um fætur sér. Veraldarvefurinn getur verið hættulegur þeim sem ekki geta greint á milli rétts og rangs, á milli sannleika og lygi. 

Þorsteinn stundar einkennilegt samlífi við hatursmenn Ísraels og gyðinga á blogginu. Í hvert sinn sem einhver skrifar um Ísrael - og oftast er það ljótt og hatursfullt - er Þorsteinn kominn með langar runur af tilvitnunum í hitt og þetta sem hann hefur villst í á netinu, og sem hann trúir sem nýslegnum túskildingi.

Þorsteinn vitnar t.d. í orð, sem hann heldur fram að Nóbelsverðlaunahafinn Menachem Begin hafi látið eftir sér.

Begin á að hafa sagt: Our race is the Master Race. We are divine gods on this planet. We are as different from the inferior races as they are from insects. In fact, compared to our race, other races are beasts and animals, cattle at best. Other races are considered as human excrement. Our destiny is to rule over the inferior races. Our earthly kingdom will be ruled by our leader with a rod of iron. The masses will lick our feet and serve us as our slaves."

Þetta hefur Menachim Begin aldrei sagt. Þessi orð tilheyra Texe Marrs, sem er öfga"kristinn" gyðingahatari og helfararafneitari í Bandaríkjunum. Þessi fölsuðu orð Menachims Begins birtust fyrst á heimasíðu Marrs. Þar er að finna alls kyns falsupplýsingar um gyðinga, sem Marrs hatar eins og pestina. Marrs hefur aldrei sagt mönnum hvar Begin á að haf látið fyrrgreind orð falla, og Þorsteinn, sem er afar sólginn í allar "upplýsingar" Marrs, getur heldur ekki upplýst neinn um það. 

Marrs vitnar reglulega í falsrit frá 19. öld, sem íslenskur jafnaðarmaður, já alíslenskur jafnaðarmaður og Alþingismaður, Jónas Gumundsson, lét prenta  árið 1951 undir heitinu Samsærisáætlunin mikla; Siðareglur Zíonsöldunga). Það rit notuðu m.a. rússneskir keisarar og rússneska kirkjan til að ofsækja gyðinga, myrða þá og hrekja þá á braut. Í opinberri yfirlýsingu Hamas hryðjuverkasamtakanna frá 1988 er reyndar einnig vitnað í þetta rússneska falsrit gyðingahatara frá lokum 19. aldar (þekkt á ensku undir heitinu The Protocols of the Elders of Zion). Sjá frekar hér.

Marrs hefur einnig lagt mörgum öðrum gyðingum orð í munn, t.d. Nóbelsverðlaunahafanum Elie Wiesel, sem nasistum tókst ekki að útrýma. Elie Wiesel hefur helgað líf sitt upplýsingunni um helförina. Nú reynir Þorsteinn Scheving Thorsteinsson á Íslandi að útrýma Elie Wiesels á moggablogginu með svínaríi frá einum frumstæðasta forarpytti BNA. Enginn grípur inn í þetta og fjölmargir bloggarar leyfa meira að segja Þorsteini Scheving Thorsteinssyni að valsa með hatur sitt á síðum þeirra. Nokkrir eru jafnvel sammála honum, og þar á meðal svokallaðir gæðabloggarar Moggabloggsins.

buchenwald-prisonersWIESEL 

Fangar í Buchenwald. Elie Wiesel er lengst til hægri í efri bás. Þorsteinn Scheving Thorsteinsson er með lygaáróðurum Elie Wiesel á Morgunblaðsblogginu.

Þorsteinn Scheving Thorsteinsson sem stundar gyðingahatur og svívirðingu á trú gyðinga, gefur í skyn að helförin (Shoah) hafi ekki átt sér stað og sem telur Osama bin Laden vera fórnarlamb samsæris gyðinga er enn að á Morgunblaðsblogginu. Er það ekki næg ástæða til að útiloka Þorstein Scheving Thorsteinsson frá blogginu?  Menn hafa verið reknir héðan af moggablogginu fyrir að vitna beint og orðrétt í Kóraninn. En um gyðinga má greinilega segja allt og skrifa á Íslandi, sér í lagi á Moggablogginu. Getur þetta verið rétt?

Þorsteini er eins og nasistum Þýskalands og einfeldningum nútímans, sem styðja hópa sem vilja útrýma Ísraelsríki, gjarnt á að tala um gyðinga sem Guðs útvöldu þjóð.  Nú leggja gyðingar reyndar ekki sömu merkingu í orðin Am Nivchar ,"Guðs útvalda þjóð", og hatursmenn gyðinga. Gyðingahatarar hafa lagt rasíska meiningu í þessi orð, eftir að kristnir gyðingahatarar tönnluðust á þeim í aldalöngu hatri sínu. Ég hef margsinnis bent hatursfullum áhangendum Hamas og Hizbullah á Íslandi, sem einnig eru uppteknir af hinni "Útvöldum þjóð" (sem þeir stefna að því að eyða), á að kynna sér túlkun gyðinga á Am Nivchar. En þegar hatrið er annars vegar, er skilningurinn sljór. Vel menntaðir menn og prestar á Íslandi hafa einnig verið með háðsglósur gegn gyðingum og Ísraelríki. Hvar eru mannréttindaljósin á Íslandi? Ja, sumir þeirra taka reyndar þátt í níðingssöngnum um "Guðs útvöldu þjóð".

Þorsteini er einnig margtalað um Khazara. Kenningin um Khazara, sem eiga að vera ættfeður Ashkenaz gyðinga er fyrir löngu fallin um sjálfa sig. Margir Khazarar tóku gyðingatrú á 9. öld, en þeir eru ekki ættfeður gyðinga í dag nema að mjög litlu leyti. Gyðingar, sem eru Ashkenaz, eru náttúrulega stoltir af því að sumir forfeður þeirra voru Khazarar og að sumir Khazarar reyndust gyðingum vel, miklu betur en t.d. Íslendingar á fjórða áratug síðustu aldar.  Markmið Þorsteins með því að vifta Khazarkenningum, er að halda því fram að gyðingar sem í dag búa í Ísrael séu ekki afkomendur þeirra gyðinga sem hraktir voru frá landi sínu fyrr á öldum; Að þeir eigi þess vegna engan rétt til búsetu  í Palestínu. Palestínuvinirnir geta vart haldið vatni yfir þessari speki Þorsteins. Þorsteinn á t.d. ungan Moggabloggvin af góðum Sjálfstæðismannaættum, sem tók þátt í "friðarráðstefnu" múslímska bræðralagsins í Kaíró, sem hefur útrýmingu Ísraelsríkis á dagsskrá sinni.

Erfðafræðirannsóknir hafa sýnt, að Khazarakenningin á ekki við nein rök að styðjast. DNA rannsóknir hafa reyndar líka sýnt, að þeir sem bera nafnið Ashkenazi og lík nöfn, eins og landsmaður okkar, píanósnillingurinn Vladimir, eru flestir hverjir komnir af þeim meiði gyðinga sem geta rakið ættir sínar til Spánar og Portúgal, til Norðurafríku og Austurlanda nær.

Þorsteini er einnig annt um að greina okkur frá því, að til séu gyðingar sem ekki eru zíonistar og sem séu mótfallnir Ísraelríki. Því er ekki hægt að neita, að fámennur hópur Satmar-gyðinga, skyldleikaræktaðs ofsatrúarsafnaðar frá Rúmeníu langar helst að búa áfram í gettóum í svörtustu Austur-Evrópu í fötum frá 18.öld og láta kósakka og nasista slátra sér eða nauðga. Satmar-gyðingar, sem ekki viðurkenna Ísraelsríki, eru ekki einu sinni komnir af Khazörum.

Fyrir utan þá rasísku frasa sem Þorsteinn veður í,  ræðst hann með fúkyrðum, lygum og ósóma á trúa gyðinga og trúarrit.

Ég bið virðulega umsjónamenn Morgunblaðsbloggsins og lögfræðing blaðsins að hafa samband við Þorstein Scheving Thorsteinsson og kynna honum lagaramma hegningarlaganna og biðja hann að fara með ósóma og hatursræðu sína um trú, trúarrit, uppruna, orð og ríki gyðinga annað en á Moggabloggið.

Við lifum á 21. öld og Morgunblaðið verður að fara að fylgjast með. Það telst hvorki til  mannréttinda né ritfrelsis að svína gyðinga til. Mannréttindasáttmáli SÞ varð m.a. til í minningu 6.000.000 gyðinga, sem voru fórnarlömb manna sem hötuðu gyðinga og trú þeirra og kyn. Er mönnum stætt að trampa á minningu fórnarlamba Helfararinna á Morgunblaðsblogginu?


Grófasti gaurinn í bankanum

Fordómar

Ekki þarf maður að spyrja að því. Misnotkun á örlögum gyðinga og lítilsvirðing við fórnarlömb nasismans er orðið vinsælasta sportið hjá vinstrimönnum. Þegar þeir eru ekki að styðja við hryðjuverkahópa sem útrýma vilja Ísraelsríki, eru örlög gyðinga í síðari Heimsstyrjöld notuð í alls konar tækifærishjal.  Ef vinstrimenn eru ekki að líkja Gaza við gettó, sitja þeir á fundum í Landsbankanum og líkja venjulegum starfsmönnum þar við fangaverði í Auschwitz.

Ásmundur Stefánsson, nýráðinn bankastjóri, mun hafa gert það á fundi með starfsmönnum sl. fimmtudag (5.3.2009).

Að sögn starfsmanna lögfræðisvið bankans mun Ásmundur hafa sagt þeim, að þeir ættu að vera auðmjúkari í störfum sínum fyrir bankann. Þau orð lét hann falla, þegar einn þeirra sagði telja að í bankakerfinu bæru menn mismikla ábyrgð. Tók sá sem dæmi, að ekki væri hægt að kenna þeim sem seldu farmiða um borð í Titanic um hin hörmulegu endalok skipsins. Þá mun Ásmundur sagt að samlíking við fangaverði í Auschwitz væri nærtækari.

Samkvæmt visir.is svaraði Ámundur þessu: „Ég ætla ekkert að fara að rekja trúnaðarsamtöl mín við starfsfólk bankans við fjölmiðla. Eina sem ég get staðfest er að það er alrangt að ég hafi líkt starfsfólkinu við fangaverði,". Hann vildi hins vegar ekki svara því hvort hann hafi nefnt útrýmingarbúðir á einhvern hátt í máli sínu.

Ef Ásmundur hefur sagt þetta, sýnir það dómgreindarleysi og skort á mannúðlegri afstöðu. Vafalítið hefur maðurinn sem þetta segir ekki lagt í vana sinna að vera auðmjúkur í störfum sínum. Hann verður að bera ábyrgð á þessum ummælum sínum.

Samlíking bankablóka við böðla nasismans er lítilsvirðing við milljónir manna, ættingja þeirra og afkomendur. Bankahrunið á Íslandi, og afleiðingar þess fyrir Íslendinga er eins og skógarferð í Þrastarlundi í líkingu við útrýmingarherferð nasista. Venjulega starfsmenn Landsbankans á ekki að hengja fyrir afglöp Hrunadans útrásarsvína, en í honum tóku íslenskir vinstrimenn líka þátt, og ekki tel ég alólíklegt að Ásmundur Stefánsson sé örlítið samsekur í því hvernig fór á Íslandi.

Nú á Ásmundur leik, hann þarf að sýna hvers konar vörður hann verður í Landsbankanum. Hann var nú einu sinni framkvæmdastjóri Íslandsbanka. Kannski er hægt að finna rót kreppunnar í störfum hans þar?

Ég leyfi mér að lokum að vitna í Jónas (8.2.2009 á www.jonas.is), sem lýst hefur Ásmundi sem „Grófasta gaurnum":

"Ásmundur er grófasti gaur gamals kerfis, sem nú er verið að afnema. Hann lítur á hlutverk sitt sem aðferð við að koma sér sem bezt fyrir við trogið. Öll nýju bankaráðin eru því miður í gamla stílnum, skipuð flokkspólitískum kommissörum. Þeirra grófastur er þó Ásmundur Stefánsson."


Á Íslandi má hjóla yfir gyðinga

verboten_806108[1]

Nýlega setti hjólasali nokkur í Reykjavík miða í gluggann á verslun sinni á Hverfisgötunni, þar sem hann sagði að gyðingar væru ekki velkomnir í búðinni hans.  Fréttin barst til heimsfjölmiðla og má  rekja það til þess að ég sendi fréttina til gyðinga á Norðurlöndunum. Þingmaður í Danmörku sendi meira að segja erindi til danska utanríkisráðherrans og bað hann að gera eitthvað í máli þessu sem upp var komið á Íslandi, frændþjóð Dana.

Hitt hefur ekki komist í heimsfjölmiðlana, að hjólasalinn á Hverfisgötunni tók miðann úr glugganum eftir að tveir lögregluþjónar heimsóttu hann í verslunina á Hverfisgötunni og bentu honum á að miðinn væri stjórnarskrárbrot.

Hjólasalinn var bara frekar rogginn yfir heimsfrægðinni og greindi hróðugur frá. Einn allra besti kúnni hans, Mörður Árnason hjá Samfylkingunni, tjáði sig um málið: „Ég hef enga ástæðu til að halda að hann sé kynþáttahatari eða neitt í þá veru. Ég held að þetta hafi verið klaufaskapur hjá honum," DV greindi einnig svo frá: Mörður segist telja að ástæðan fyrir því að Magnús setti miðann upp hafi verið tíðindi af árásum á Gaza-svæðið nýverið. „Ég get vel skilið slík viðbrögð en þau mega auðvitað ekki koma út sem kynþáttahatur, og allra síst gyðingahatur sem er ákaflega ógeðfelld tegund af þeim tilfinningum því gyðingahatur á sér langa og blóði drifna sögu," segir hann og ítrekar að Magnús sé fyrst og fremst góður hjólaviðgerðamaður.

Magnús er ekki nasisti eins og sumir bloggarar úti í heimi hafa haldið. Hann kýs líklega Samfylkinguna. En Kratar og kommar geta líka verið kynþáttahatarar, eins og kunnugt er.

Var það kannski líka klaufaskapur hjá Bobby heitnum Fischer, þegar hann hélt úti andgyðinglegri vefsíðu í Japan, meðan hann bjó á Íslandi? Það athæfi var kært til Ríkissaksóknara. En Ríkissaksóknari taldi enga ástæðu til að framfylgja lögunum og senda ekki svo mikið sem eina löggu heim til heimsmeistarans til að skáka honum aðeins fyrir brot á íslenskum hegningarlögum.

Er allt hægt á Íslandi þegar að gyðingum kemur? Maður nokkur Scheving Thorsteinsson að eftirnafni heldur uppi ofsafengnum andgyðinglegum áróðri á bloggum ýmissa manna. Margir hafa hreinlega þurft að fjarlæga þennan mann og ruglið í honum. Ætlar enginn að gera neitt við því? Menn hafa verið fjarlægðir af Moggablogginu fyrir að hafa vitnað beint í Kóraninn. En Scheving Thorsteinsson má vitna í vefsíður gyðingahatara og halda með áróður fyrir þá inn á blogg annarra Íslendinga.

Kannski er það eðli Íslendinga að fara ekki að lögum, eða kannski gilda lögin ekki þegar óhróðri og andstyggð er breitt út um, eða hreitt í gyðinga á Íslandi.

Tvö ungmenni ferðast nú á vegum Rauða Krossins í Palestínu. Ekki eru þau andgyðingleg. Þetta eru bara góðir krakkar frá Íslandi sem eru að kynna sér starf Rauða Krossins. En þau skreyttu aðeins ferðalýsingu sína með því að halda því fram að þau hefðu verið vitni að innrás Ísraelsmanna og skotárás þeirra þann 3. mars sl.  Þessa fásinnu hrakti ég á bloggi þeirra og í færslu minni hér á undan. En móðir eins ungmennisins, Salvör Gissurardóttir, segir kannski það sem einkennir Íslendinga mest þegar þeir þykjast ekki þurfa taka afleiðingum gjörða sinna: Látið ekki fá á ykkur þó að Vilhjálmur Örn gagnrýni frásögn ykkar, það er bara ein leið til að komast hjá gagnrýni og hún er sú að gera ekki neitt.

AÐ GERA EKKI NEITT. Já, það hljómar eins og alíslensk lausn!!

Ætli þetta sé líka mottó hjá Ríkissaksóknara og þeim sem gera ekki neitt gegn síendurteknu gyðingahatri á Íslandi? Halda menn bara, eins og Mörður Árnason, að þetta sé klaufaskapur?

Hér er lítil mynd af manni sem líka hjólar yfir gyðinga á klaufalegan hátt. Sumir segja að þetta sjálfur Tom Cruise. Mér þykir líklegra að það sé Tóm Krús á Mission Impossible:


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bækur

Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband