Leita í fréttum mbl.is

Til hamingju með nasistaverðlaunin Andri Snær

Ljósmynd af Andra Snæ, sem í upphafi prýddi þessa færslu, hefur verið fjarlægð að ósk aðila sem hafa haft samband við www.mbl.is. Ég hef rætt við ljósmyndarann sem reyndist eiga myndina, en ekki hafði hann samband við Morgunblaðið og heldur ekki rit það, gefið út af Iceland Express, sem keypt hefur myndina af honum (en ekki einkaréttinn). Greinilegt er að færsla mín hefur farið fyrir brjóstið á einhverjum. Þessum "einhverjum", sem eru búnir að skíta í leðurbuxurnar, og Andra Snæ til heiðurs birti ég nú mynd af ekta þýskum náttúruverndarmanni sem er ekki ósvipaður Andra í Draumalandinu: Ljósmyndin er einnig notuð í leyfisleysi af Alfred Töpfer Stiftung.

 

lederhosen

Andri Snær hefur fengið KAIROS-verðlaunin frá Töpfer Stiftung i Hamborg. Er ekki óborganlegt að forystumaður landverndar á Íslandi þiggi bitling úr sjóð sem fjöldi manns hefur afþakkað verðlaunin frá?

Og vitið þið af hverju:

Nazi Toepfer

Alfred Töpfer(1894-1993) var illræmdur nasisti. Hann var félagi í SS. Hann var m.a. foringi í gagnnjósnadeild í París. Hann komst í álnir vegna starfa sinna fyrir SS. Starf hans var að ræna. Hann stórgræddi á stríðinu. Seldi meðal annars kalk til Lodz gettósins, sem notað var til að hella yfir líkhrúgurnar. Eftir stríð hafði hann í þjónustu sinni stríðsglæpamenn eins og  Edmund Veesenmeyer sem vann með Adolf Eichmann við morð á 400.000 ungverskum gyðingum. Hjá honum starfaði einnig Hans-Joachim Riecke, sem var viðriðin útrýmingu á rússneskum föngum.  Allt fram til 1970 studdi Töpfer nasistann Thies Christoffersen fjárhagslega, (Christoffersen bjó um tíma bjó í Danmörku), Christoffersen gaf síðar út ritið "Lygarnar Um Auschwitz" (Die Auschwitzlüge).

Til hamingju Andri Snær. Þú ert greinilega kominn í góðan félagsskap!

Það er ekki nema von að fanatísk umhverfisvernd minni mig stundum á nasisma.

Íslenska þjóðin og þeir sem fagna verðlaunum Andra Snæs, ætlar einfeldnin aldrei að yfirgefa ykkur?

Sjá frekari upplýsingar hér


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég verð að játa að mér hefur ekki mikið til Andra Snæs koma hvað varðar umhverfismál.

Eftir lestur þessa pistils Vilhjálmur þykir mér Andri Snær gengisfella sjálfan sig og vekur upp þá spurningu hvort allt þetta brölt á honum hafi eftir allt saman eingöngu snúist um peninga en ekki umhverfisvernd.

Hafþór Baldvinsson (IP-tala skráð) 3.12.2009 kl. 05:42

2 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Hafþór, ekki veit ég hvað drífur Andra Snæ áfram. Hugsjónin eða peningurinn. Skáld verða líka að lifa.

En skáld verða líka að spyrja sig þeirrar spurningar hvaðan gott kemur. Eru peningar Alfred Töpfers hreinir, þótt hann hafi átt sér draum um hreina, sameinaða Stórevrópu hvíta mannsins, þar sem Þjóðverjar réðu ríkjum. Kannski hefur draumur Töpfers ræst í ESB og kannski er Andir Snær ESB-sinni?

En fórnarlömb nasistans voru mörg og Andri gæti hæglega valið að senda peningana til þeirra.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 3.12.2009 kl. 08:29

3 identicon

Jahérna hér. Ekki hafði ég nú hugmynd um þetta. Kannski svo sé farið um Andra líka. Og hvað með alla hina mektarmennina???

Annars skrítin gæska í gamla nasanum að styrkja svona lagað. Ætli hann hafi hrjáðst af eftirsjá?

Jón Logi (IP-tala skráð) 3.12.2009 kl. 09:46

4 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Þetta er sannarlega mál sem ekki er hægt að líta framhjá eins og ekkert sé. Mig grunar samt að það ætli Íslendingar að gera.

Sigurður Þór Guðjónsson, 3.12.2009 kl. 10:25

5 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Sigurður, er ekki allt hægt í Draumalandinu?

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 3.12.2009 kl. 10:55

6 Smámynd: Einar Guðjónsson

Hann hefur sennilega ekki haft hugmynd um þessa forsögu sem hér er

bent á. 

Einar Guðjónsson, 3.12.2009 kl. 12:00

7 Smámynd: Historiker

Það er ekkert óeðlilegt við það að Þjóðverji, fæddur á tíunda áratug nítjándu aldar skuli hafa verið nasisti. Það væri frekar skrítið ef hann hefði ekki verið það.

Historiker, 3.12.2009 kl. 13:39

8 Smámynd: Tinna Gunnarsdóttir Gígja

Forðastu öll fyrirtæki sem unnu með nasistum? Nú ertu með Jón Val sem vin - var ekki trúarleiðtoginn hans nasisti líka?

Hvað viltu að verði gert við peningana í sjóðnum?

Tinna Gunnarsdóttir Gígja, 3.12.2009 kl. 15:25

9 Smámynd: Steinn E. Sigurðarson

Hver er eiginlega Alfred Eichmann?

Annars finnst mér þetta ansi hart vegið að honum Andra Snæ -- í fyrsta lagi er ekki eins og listamenn stjórni því hverjir ákveða að veita þeim verðlaun. Í annan stað má taka fram að KAIROS verðlaunin hafa verið veitt til dæmis Albrecht Dümling, formanni musica reanimata félagsins sem helgar sig kynningu tónlistarmanna sem voru ofsóttir af nasistum?

Einnig má auðvitað taka fram að ekki eru allir sammála þér um kaupsýslumanninn Alfred Töpfer. Ég hef ekki kynnt mér málið neitt mikið, en ég gleypi hinsvegar ekki blint við heiftúðugum aðdróttunum sem eru aðeins studdar af einhverri síðu sem ég hef aldrei heyrt um. Ef þessar ásakanir eru á rökum reistar, afhverju er þetta til dæmis ekki skráð á wikipedia -- standast ásakanirnar kannski ekki gæðastaðla þeirra óháðu samtaka?

Steinn E. Sigurðarson, 3.12.2009 kl. 17:01

10 identicon

þú gefur í skyn að Alfred Töpfer stofnunin í dag sé á vegum nazista og að verðlaun og styrkir sem hún veitir séu nazistaverðlaun.

Törpfer var kaupmaður og studdi ráðandi öfl á þeim tíma og trúði á yfirburði þýsku þjóðarinnar. Að fyrirtæki Alfred Töpfers hafi grætt á stríðinu er nokkuð öruggt. Það voru mörg fyrirtæki sem græddu á stríðinu og lifa góðu lífi í dag. Alfred Töpfer stóð ekki og afgreiddi kalk í útrýmingabúðir þótt fyrirtæki hans hafi framleitt eða selt kalk sem notað var í útrýmingabúðum. Törpfer snéri hins vegar baki við Hitler og þjóðernissósialismanum 1943 og taldi að Hitler hefði mistekist að framkvæma hugmyndina um sameinaða Evrópu undir stjórn Þýskalands. (En það voru náttúrulega bretar eyðilögðu þá hugmynd Hitlers með þvi að blanda sér í stríðrekstur hans í Evrópu.)

Eftir 1943 einbeitt Törpfer sér að hugmyndinni um sameinaða Evrópu þar sem landamæri og yfirburðir einstakra kynþátta væru ekki til trafala.

Hvaða heimildir hefur þú fyrir þvi að Alfred Töpfer hafi verið félagi í SS? Engar geri ég ráð fyrir.

Hvaða heimildir hefur þú fyrir þvi að Alfred Töpfer hafi verið illræmdur nazisti? Engar geri ég ráð fyrir.

Alfret Töpfer Stiftung F.S.V er stofnun sem kemur hreint fram og styður alla umræðu og rannsóknir á fortíð stofnandans Alferd Töpfers eins og fram kemur á heimasíðu stofnunarinnar hér: http://www.alfred-toepfer-stiftung.de/aktuelle-debatten.html?&L=1

Eftir að hafa eytt 30 mínútum í að lesa mér til um Alfred Törpfer er mín niðurstaða að lífsferill þessa kaupmanns endurspegli þá þróun sem varð á hugmyndarfræði þýskrar elítu frá 1933 1945- frá kynþáttastefnu og hugmyndum um yfirburði þýskalands yfir í hugmyndir um sameinaða Evrópu á lýðræðisgrundvelli.

Þráinn Kristinsson (IP-tala skráð) 3.12.2009 kl. 17:13

11 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Hugmyndafræði þessarar elítu, eins og hún var þegar hún hafði mest áhrif, kostaði margar miljónir mannslífa. Sú hugmyndafræði lét bara undan síga vegna þess að hún var ofurliði borin af öðrum. Frá þessari hugmyndafræði er ekki hægt að sleppa billega.

Sigurður Þór Guðjónsson, 3.12.2009 kl. 17:38

12 identicon

Vilhjálmur:

Þessi færsla minnir á gamlar færslur á bloggi Sóleyjar Tómasdóttir. Hún túlkaði allt þannig að það samræmdist þeirri heimsmynd að karlmenn kúguðu konur. Á bloggi hennar enduspegluðust þessi barátta í öllum gjörðum karlmanna. Þú sérð hins vegar heiminn út frá þeirri heimsmynd að Gyðingar séu síofsóttir af heiminum. Og að þeir sem ekki taki þátt í ofsóknunum beint þjónkist kúgurunum með því að slíta ekki á öll sambönd við alla sem á einhvern hátt gætu hafa tengst ofsóknunum á einhverjum tíma.

Þessi röksemdafærsla hér að ofan er langsótt og bitlaus leið til að vega að mannorði.

Sóley hefur eflaust haft meira fyrir sér varðandi kúgun karla á konum en þú hefur varðandi þjónkun Íslendingar við ofsækjendur Gyðinga án þess að ég neiti því að dæmi hennar finnist í sögunni.

Már Kristjónsson (IP-tala skráð) 3.12.2009 kl. 17:44

13 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Einar: líklegast hefur Andri Snær ekki haft hugmynd um hvaðan gott kemur. En einhverjir sem mælt hafa með honum hljóta að hafa vitað það.

Hystoriker: Hvað voru aftur margir gyðingar í Þýskalandi, einu sinni? Þeir voru líka Þjóðverjar.

Jón Logi:hann hefur varla hrjáðst af vondri samvisku. Hann var bara að gera ímynd sína sauberrein, en hann iðraðist einskis.

Tinna:Ekki vissi ég að trúarleiðtogi Jóns Vals hefði verið nasisti. Sumir forðast bandarískar vörur  og aðrir forðast vörur sem framleiddar eru af fyrirtækjum sem græddu á tá og fingri í morðæði nasista. Annars á Jón Valur, sem þú ert að teyma hér inn í umræðuna, sem ekki fjallar um hann, miklu frekar skilið að fá verðlaun fyrir eldmóð sinn en Andri Snær, sem mér finnst vera yfirborðslegur poppgúru sem höfðar til fólk sem ekki hefur meiri þekkingu á sögunni en að þeir vita ekki  hver Eichmann var.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 3.12.2009 kl. 18:07

14 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Steinn Sigurðsson, það er ekki nema von að þú spyrjir um Alfred Eichmann. Hann hét auðvitað Adolf, og samstarfsmaður hans starfaði fyrir karlinn sem átti peningana sem Andri Snær fær nú. Þakka fyrir leiðréttinguna.

Már Kristjónsson: Hvaða mannorði er ég að vega að? Mannorði Andra Snæs?

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 3.12.2009 kl. 18:32

15 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Þráinn:Töpfer Stiftung hefur áratugum saman verið að reyna að hreinsa ímynd karslins sem allt í einu varð Evrópusinni árið 1943. Það hefur bara ekki tekist.  Meira að segja "stórir" sagnfræðingar eins og Hans Mommsen, hefur fengið borgað fyrir það að þvo nasann af honum með grænsápu.

Ertu Þráinn, að verja mannorð manns sem hélt uppi náunga sem gaf út ritling undir heitinu Auschwitzlügen. Er það sannur Evrópuandi að ráða stríðglæpamenn í vinnu og afneita Auschwitz? Ef svo er, veit það ekki á gott. En þú hefur kannski heyrt um þá sem tala um hið nýja gyðingahatur í Evrópu?

Menn gátu ekki fengið viðskiptasambönd og tækifæri þau sem Töpfer fékk voru félagar í Allgemeine SS, en flestum tókst að láta eyðileggja gögn um félagsskap sinn eftir stríð.

Evrópusinni, segir þú. Var Töpfer af sömu tegund og íslenskir Evrópusinnar (allir ESB-vitleysingarnir)? Mjög athyglisvert  

Breyttist hugmyndafræði nasistanna og morðingjanna í góða doktrínu ESB-Evrópusinna?

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 3.12.2009 kl. 18:52

16 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

vera má að téður Töpfer hafi verið hið argasta flón. ég veit ekkert um það. en þótt flón hafi stofnað þetta KAIROS dæmi, gerir það þá KAIROS apparatið að alræmdum viðbjóði út í hið óendanlega? Töpfer kemur hvorki nálægt fjármögnun sjóðsins né að öðru, verandi undir grænni torfu.

ættum við þá ekki allt eins að slíta öllum tengslum við ástrala, verandi afkomendur glæpamanna?

er vitrænt að eltast við syndir forfeðranna út í hið óendanlega og láta þá sem á eftir koma gjalda þeirra?

Brjánn Guðjónsson, 3.12.2009 kl. 19:29

17 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Brjánn Guðjónsson, ekki hef ég viðbjóð á börnum og afkomendum Töpfers, ef hann átti einhver slík - nema að þau fylgi sömu ógeðfelldu gildunum og hann. Ég trúi ekki á erfðasyndina, en ég veit að manneskjan er ófullkomin.

Hins vegar voru fé og völd Töpfers illa fengin. Sjóðir hans eru fullir fjár sem menn vilja vita upprunan á. Þetta eru ekki illa þefjandi peningar einhvers klósettkeisara í Rómarveldi. Það er enn verri óþverri á þeim.  

Samlíking þín við Ástrala er út í hött.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 3.12.2009 kl. 19:45

18 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

Vilhjálmur. þegar ég vísa til afkomenda á ég ekki við hina blóðskyldu afkomendur, heldur þá sem tóku við keflinu. er fólkið sem í dag stjórnar sjóðnum eða greiðir í hann svo hræðilegt?

Brjánn Guðjónsson, 3.12.2009 kl. 19:48

19 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

„eftirmenn“ hefði átt betur við.

Brjánn Guðjónsson, 3.12.2009 kl. 19:48

20 identicon

Ég verð nú að segja það Vilhjálmur að þú ferð nú nokkuð frjálslega með þann texta sem þú vísar í sem helstu heimild þína um stofnanda sjóðsins.  Hvergi í þessum texta kemur fram að hann hafi verið í SS, hins vegar er sagt að hann hafi verið SS promoter sem er einhvers konar agitator.  Þá kemur fram á síðunni að hann hafi sett up gagnnjósnanet fyrir þýska herinn en ekki SD. 

Að auki liggur fyrir að sjóðurinn var stofnaður löngu fyrir stríð og það segir manni að stofnandi sjóðsins hafi verið sterk efnaður fyrir stíð og hafi því ekki bara komist í álnir fyrir það að vera nasisti. 

Ekki ætla ég nú að fara að bera í bætifláka fyrir gamla nasista, en það sem maður hefur lesið um Töpfer á netinu getur nú ekki veitt því stoð sem þú ritar um hann.  Þá tekur þú mun dýpra í árinni í lýsingum þínum á fortíð Töpfer en ásæða er til miðað við þær heimildir sem þú vísar til.

Bestu kveðjur,

Grétar. 

Gamli (IP-tala skráð) 3.12.2009 kl. 20:32

21 Smámynd: Gerður Pálma

Það verður aldrei hægt að bera í bætifláka fyrir þá hroðalegu meðferð sem Gyðingar urðu fyrir af nasistum. Hins vegar má hugsa til þess að við erum öll samsek í stórglæpum og dauða saklauss fólks og við ekki síst. Við fögnum syngjum og dönsum yfir álverunum okkar, en við tökum enga ábyrgð á þeim hroðalegu sjúkdómum og dauða fjölda fólks vegna vinnslu súrálsins sem er órjúfanlegur partur af álvinnslupakkanum.   Við hefðum trúlega alveg eins fagnað atvinnutækifærum sem sköpuðust vegna Gyðingaofsóknanna ef það hefði boðist.  Stærsti stríðsglæpurinn sem framinn var í seinni heimstyrjöldinni var Hirosima kjarnorkusprengjan, það truflar okkur lítið.  World bank var upphaflega nasistabanki í Basel, þaðan kemur ríkidæmið á þeim bæ. KLM flutti nasista leiðtoga til Argentínu fyrir góðan pening, þaðan kom fjármagnið sem KLM veldið var byggt upp á.  Royal ´liðið´í US fjármagnaðist á þrælahaldi í nýlendum um allan heim.  Við erum búin að láta ræna okkur lýðræðinu af Íslendingum. Íslendingar framseldu Gyðinga á stríðsárunum. Gyðingar sem flúðu Þýzkaland í upphafi stríðsins fengu ekki inngöngu í ´vinalönd´ og urðu að snúa aftur til Þýzkalands.
Hver er vinur bróðir síns? við? þið? 
Andri Snær er búin að vinna kraftaverk með því að festa staðreyndir á blað sem við getum flett upp og sannreynt ef efi leynist um staðreyndir.  Ég þakka honum, og ég samhryggist þeim Íslendingum sem gera sér ekki grein fyrir eyðileggingunni og hörmungunum sem fylgja álvinnslu um heim allan, ekki bara í okkar eigin húsgarði. 

Gerður Pálma, 3.12.2009 kl. 21:18

22 Smámynd: Steinn E. Sigurðarson

Vilhjálmur: Ég veit afskaplega vel hver Adolf Eichmann er, mér fannst bara skrautlegt að þú skildir annaðhvort af vanþekkingu eða ofsa ekki hafa fyrir því að réttnefna fólk í þessari aðför þinni að saklausum manni. Það ætti því ekki að koma mér á óvart að þú reyndist einnig ófær um að réttnefna mig í svari þínu.

Þú ert brandari.

Steinn E. Sigurðarson, 3.12.2009 kl. 21:45

23 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Grétar Gamli: Hann var ekki skráður í Abwehr, en það var oft Gestapo (SD) sem kenndi Wehrmacht. Þetta var í Alsace, en Töpfer starfaði einnig í París og þá gekk hann ekki í Wehrmacht-einkennisbúningi.

Gerður Pálma: Það eru einhverjar "urban mýtur" í gangi hjá þér. Fjöldi banka í Sviss var í tygjum við Nasista. KLM hefur verið ásakað um að fljúga með nasista til Suður-Ameríku. Ég hef enn ekki séð fullnaðarrannsókn á því. Önnur flugfélög gerðu það líka. KLM hagnaðist á flugi til Ameríku, en ekki á einvörðungu á nasistaflugi.  Til Íslands var meira að segja smyglað nasistum og stríðsglæpamönnum. Sumir settust bara að og einn gekk af strandstað og gerðist nuddari og þjálfari.

Íslendingar framseldu aldrei gyðinga, heldur vísuðu þeim úr landi. Það getur þú lesið um í bók minni Medaljens Bagside og í greinum sem þú finnur hér á mínu bloggi, sem hafa birst í Lesbók Morgunblaðsins.

En hvað kemur þetta verðlaunum Andra Snæs við? Fiskveiðar ESB valda meir eyðileggingu en báxítvinnsla. Hvaða ímyndunarveiki er í gangi hjá hinum frelsuðu.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 3.12.2009 kl. 22:41

24 Smámynd: Sindri Karl Sigurðsson

Mér finnst þetta bara helvíti töff að fá þessi verðlaun. Eiginlega bara betra að flæka einhverju nazistabulli inn í þessa umræðu.

Enganveginn sammála Andra Snæ og hans Draumalandi en ef "nazistarnir" vilja veita honum verðlaun er það einfaldlega hið bezta mál.

Sindri Karl Sigurðsson, 3.12.2009 kl. 23:06

25 identicon

Hverjir eru þekktastir af þeim sem hafa þegið verðlaunin? Hverjir eru þekktasir af þeim sem hafa hafnað verðlaunum?Kannski getur Vilhjálmur Örn svarað?

Hrafn Arnarson (IP-tala skráð) 3.12.2009 kl. 23:11

26 identicon

Á heimasíðu Alfred Toepfer Stiftung kemur fram að verðlaunin hafi verið veitt frá 2007. Hins vegar veitir stofnunin fleiri verðlaun og hafa t.d. Harold Pinter og Ólafur Elíasson meðtekið þau.

Már Kristjónsson (IP-tala skráð) 3.12.2009 kl. 23:29

27 Smámynd: Einhver Ágúst

Já athyglisverð tilraun til að sverta íslenskan rithöfund, skemmtilega gert og virkilega þroskað.

Og hvað er svo næst á dagskrá? Að opinbera alla íslendinga sem nota IBM, drekka Fanta og kaupa olíu frá Standard?

Hver er tilgangur þinn með þessum vangaveltum ef einhver?

Virkilega ónotalegt og afar fyndið um leið.

Umhverfissinnar minna þig á nasista og þetta er allt saman bara illska að vera að hugsa um náttúruna og framtíð lands og þjóða?

Einhver Ágúst, 3.12.2009 kl. 23:56

28 Smámynd: Egill

Má vera Vilhjálmur að þú hefir einhvern tímann verslað drykki frá Vífilfell?

Kók, Sprite eða Fanta?

ef svo þá hefurðu átt viðskipti við fyrirtæki sem græddi á viðskiptum við nasista.

eða vorum við ekki í þeim brókunum að vera með aumar tengingar og slappann rökstuðning í dag?

Egill, 4.12.2009 kl. 09:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bækur

Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband