Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
13.10.2013 | 10:57
Radioaktivit Nunaat
Landsþingsformaðurinn Aleqa Hammond á Grænlandi, sem er krati, stelur heldur betur senunni á Stórráðstefnunni um gæði og galla heimshitnunar (Arctic Circle), sem nú er haldin í skuldsettu Hörpunni í Reykjavík. Grænlenska útvarpið kallar tölu hennar ekkert minna en atómbombu. Aðrir stjórnmálamenn á Grænlandi saka hana um ólýðræðislega tilburði.
Hún lýsir því heldur stórmannalega yfir í Reykjavík í ræðu og í viðtali við RÚV, að þess megi vænta að Grænland sé á leiðinni að verða eitt af 6 stærstu útflutningsþjóðum á úrani. Hún valtar yfir skýrslu sem unnin var sameiginlega af Dönum og Grænlendingum og sem nýlega birtist, þar sem mælt er með varúð og samstarfi þjóðanna. Umræðunni um málið er ekki einu sinni lokið í grænlenska Landsþinginu.
Danir sjá samkvæmt gildandi samningum á milli ríkjanna um öryggismál Grænlands, en það ætlar Hammond að valta yfir (líklegast vegna þess að Gucci-kratinn Thorning-Schmidt sem stjórnar í Danmörku bauð henni ekki með á einhverja toppráðstefnu nýlega). Ef vinnsla úrans flokkast undir eitthvað, er það öryggi, og slíkt öryggi getur Grænland ekki boðið upp á. Hættunni er boðið heim með hryðjuverkaliði og ríkjum í heimsyfirráðahugleiðingum. Enga trú hef ég að Orgelið sem stýrir Grænlandi hafi nokkra burði til að valda úranvinnslu á sómasamlegan hátt. Hún hefur gerst svo fræg að hlaupa hænufull frá leigubílareikningi í Nuuk. Stællinn og reisnin á grænlenskum stjórnmálamönnum hefur ekki aukist við þetta upphlaup Hammonds, nema að síður sé.
Kratar á Grænlandi virðast vera haldnir sama krankleika og kratar á Íslandi, Þar sem menn liggja kylliflatir fyrir fyrsta gylliboðinu sem kemur frá einhverjum Kínverjum, og geta ekki ímyndað sér að aðrir en gráðugir Þjóðverjar geti byggt mikilvæga höfn í Finnafirði til að sinna siglingum um bráðið pólsvæðið í framtíðinni.
Það öryggi, sem þarf við úranframleiðslu, hefur Grænland ekki upp á að bjóða. Best væri að slíkt færi fram í samráði við "Móðurveldið" Danmörku, sem þrátt fyrir margt slæmt hefur reynst Grænlendingum vel. Ekki er einu sinnitil kajaklið í grænlensku lögreglunni sem tilbúið er að skutla hryðjuverkamenn sem hugsanlega reyna að ná sér í illa varið úran á bar fyrir dauðadrukkna stjórnmálamenn í Nuuk. Svo hefur hún verið dæmd fyrir fjársvik .
Ef Grænlendingar halda að þeir græði fljótt og vel á samskiptum við gráðug stórfyrirtæki, og t.d. Kínverska ofurveldið sem nú er þegar farið heimta hóruhús á Grænlandi, þá skjátlast þeim. Þeir þurfa ekki annað en að líta til Afríku, þar sem allur gróði að námuvinnslu Kínverja rennur beint í vasa þeirra og íbúar landanna sem áttu öll "auðæfin" setja eftir sem þrælar með mengun, menningarvandamál og aðrar meinsemdir.
Íslendingar eiga að mótmæla þessu upphlaupi græðgiskrataættarveldisins á Grænlandi. Ísland er orðið að smáríki í skugga atómveldisins Grænlands.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 27.10.2013 kl. 05:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.9.2013 | 05:53
Moska Inshallah !
Mosku ber að fagna, en það er nokkuð einkennilegt, finnst mér, að veitt sé lóð til byggingar, þegar ekki er ljóst hverjir greiða fyrir það hús. Er það ekki mjög óvenjulegt?
Það er satt hjá íslenskum talsmanni moskunnar, Sverri Agnarssyni, formanni Félags múslima á Íslandi, að það hafi verið lítill klassi yfir þeirri gagnrýni sem hefur verið á moskuna. Úthelling svínablóðs og aðrar frumstæðar saurganir lýsa best því fólki sem slíkt vill stunda. Það er fólk á lágu, andlegu stigi. Það er einnig litill klassi yfir þeim múslímum sem nota moskur til að úthella hatri sínu á öðrum trúarbrögðum, sér í lagi á gyðingum. En slíkt hatur er staðreynd um allan heim. Verður það landlægt meðal múslíma á Íslandi, eða er það það þegar? Það kemur í ljós.
Ég stakk fyrstur, opinberlega, upp á því að byggð skyldi moska á Íslandi og synagóga (leiðrétti þeir mig sem geta). Tel ég mig þó ekki bera ábyrgð á neinu sem valdið geti því að ég fái svínsblóð og grísahaus í pósti, enda tel ég trúfrelsi, og þar með réttinn til trúariðkana í tilheyrandi kirkjum, musterum eða hverju sem er, grundvallarmannréttindi. Vantrúarmenn og sumir kristnir menn virðast ekki vilja virða þau mannréttindi.
En, ef svo mikið sem einu sinni verður predikuð andgyðingleg yfirlýsing sem varðar við hegningarlög í moskunni ógreiddu, eða andkristileg (sem er ólíklegt), þá er þessi moska orðin ágætur minnisvarði um gyðingahatur Íslendinga, múslíma sem og um þá kristnu menn sem leyfðu byggingu þessa trúarhúss.
Reyndar grunar mig að margur sérleyfishafinn á réttar skoðanir og heilbrigðar hugsanir (lesist: Vinstri menn á Íslandi) fagni mosku, því þeir vilji fá gyðingahatur til Íslands til að réttlæta sínar eigin, mjög frumstæðu kenndir í þeim efnum.
Það hvílir mikið ábyrgð á herðum múslíma á Íslandi og sér í lagi á þeim Íslendingum sem tekið hafa þessa trú. Vilji þeir stunda hatursáróður eins og þann sem við sjáum og heyrum um allan heim, eru til lög á Íslandi sem nýtast í að banna starfssemina sem boðar hatur á öðrum trúarbrögðum eða þjóðum. Íslenskir múslímar eru opinberlega farnir að lýsa slíku snælduóðu hatri sínu (sjá hér). Reyndar hafa íslenskar kirkjur í aldaraðir boðað gyðingahatur, sér í lagi með Passíusálmunum.
Nú eru það kristnir menn á Íslandi sem brjóta lögin í hatri sínu á mosku og múslímum, en ég er hræddur um að það sér margt líkt með skyldum.
Við sjáum til, og þangað til óska ég íslenskum múslímum til hamingju og vona að þeir finni fjármagn til byggingar moskunnar. Auðnum er mjög misjafnlega skipt í löndum múslíma, en sumir þeirra hafa notið velvilja æðri máttarvalda er þeir hafa fæðst ofan á stærstu olíulindum heimsins. Þeir berast mikið á og lítið mál væri fyrir þá að setja aur í byggingu mosku í Reykjavíkurborg.
En ef hatrið fylgir með fjármagninu, ber íslenskum yfirvöldum að beita þeim landslögum sem við höfum til að stöðva slíkt, einnig meðal vinstrisinnaðra gyðingahatara á Íslandi - og kristinna.
![]() |
Bygging moskunnar taki þrjú ár |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 4.10.2013 kl. 17:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
17.9.2013 | 08:05
Vandi Framsóknar
Vandi Framsóknarflokksins er ekki meinið á vinstri fæti Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar. Vigdís Hauksdóttir er ekki einu sinni aðalvandinn, þótt margir haldi það. Aðalvandi Framsóknar er trúverðugleiki. Flokkurinn er í dag systurflokkur Radikale Venstre i Danmörku, sem er einn argasti stuðningsflokkur ESB þar í landi. Flokkurinn vill miklu meira ESB hér og nú, og evru sem allra fyrst, í stað dönsku krónunnar sem veikist í kappi við evruna. Flokkurinn heldur því fram að Ísland sé að leið í ESB. Á heimasíðu flokksins er þessu haldið fram http://www.radikale.dk/CMS/vis.aspx?aid=100221 :
EU er et attraktivt fællesskab, som mange lande ønsker at blive medlem af. Vi skal fortsætte den udvidelsesproces, som altid har været en uadskillelig del af EU. Kroatien er på vej til at blive medlem, mens de andre Balkan-lande og Island venter i næste runde.
Radikale Venstre lýsir enn fremur yfir:
Vi ønsker en fælles flygtninge- og asylpolitik i Europa, hvor Danmark deltager på lige fod med de andre medlemslande. Vi kan ikke lade de sydeuropæiske lande stå alene med de problemer, som store flygtningestrømme indebærer.
Systir Framsóknar var ekki eins vingjarnleg við flóttamennina í Danmörku á 4. áratug síðustu aldar og hún er nú. Á tímabilinu 1940 til 1943 sátu Radikale Venstre i stjórn í Danmörku og vísuðu pólitískum flóttamönnum og gyðingum úr landi beint í flasið á nasistum, en fluttu samtímis út flesk og smjör til að metta þýska herinn í gyðingmorðunum.
Sigmundur Davíð verður að leiðrétta misskilningin meðal systurflokka sinna. Framsókn er ekki í neinum ESB-hugleiðingum. Eða skjátlast mér? Ef Sigmundur leiðréttir þetta ekki í Evrópu, hleypur mein í hægri fótinn og hann verður að vera gleiðfættur á gúmmískóm sem eftir er, og allt sem flokkurinn stendur fyrir verður bölvað jarm.
Vandi Sjálfstæðisflokksins er líka mikill, en það er greinilega kvensjúkdómur sem hrjáir þar á bæ. Hún jarmar í báðar áttir sjálfstæðiskonan sem er vinsælli í SF en hún er í Sjálfstæðisflokknum.
M
Stjórnmál og samfélag | Breytt 9.10.2013 kl. 07:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
9.9.2013 | 23:09
Ómar Ragnarsson líkir Dachau við Guantanamo
Á bloggi sínu í gær sagði Ómar Ragnarsson frá öskubakka sem hann á, sem gerður var af Baldri Svanhólm Ásgeirssyni. Baldur gaf föður Ómars öskubakkann sem er með hauskúpu og krosslögðum leggjum á kantinum, kannski til að minna á hættur reykinga.
Baldur var einn þeirra Íslendinga sem fór í keramíknám í Dachau árið 1936. Öskubakkinn minnti Ómar á ýmislegt ljótt frá þeim tíma og mun Ómar fjarlægja bakkann á jólum, svo hangikjötið standi ekki í fólkinu hans, sem er allt pólitískt rétthugsandi.
Ég gerði athugasemd við færsluna á bloggi Ómars Ragnarssonar og bætti þar við nokkrum fróðleiksmolum. Ómar svaraði því ekki beint en skrifaði:
Allur heimurinn vissi um Dachau fangabúðirnar 1936 en samt voru Ólympíuleikarnir haldnir í Berlín. Halldór Laxness fylgdist með útrýmingarréttarhöldum Stalíns og lét sér vel líka.
Ekkert, ekki einu sinni loforð Obama, virðist geta haggað fangabúðunum á Guantanamo.
Þyrluflugmennirnir bandarísku sem sölluðu með ánægju niður óbreytta borgara í Bagdad, voru ósnertanlegir en þann, sem kom upp um ódæðið á að senda í langa fangelsisvist.
Það leynir sér ekki að Ómar hefur unnið á Fréttastofu RÚV, og kannski sett þar ásamt öðrum grunntón heimsku og einfeldningsháttar.
Ætli Ómar sé virkilega að líkja saman gyðingum í Dachau og hryðjuverkamönnum á Guantanamo? Veit Ómar hvers konar fólk sat og situr inni í Guantanamo? Veit Ómar ekki, að það fer tvennum sögum af því hver "fórnarlömb" þyrluskotárásar Wikileaks voru? En vitaskuld trúir Ómar frekar Kristinni Hrafnssyni en skynseminni.
Danskur Guantanamofangi var sendur heim frá Guantanamo. Hann fékk starf sem póstur. Í starfi sínu í Greve og Hróarskeldu stal hann greiðslukortum og pössum, meðan að hann var að stefna dönskum ráðherrum. Eftir að hafa setið 10 mánuði í steininum í Danmörku, sneri aftur í stríð sitt fyrir Allah og er nú talinn af, drepinn í stríðinu á Sýrlandi.
Gyðingar í Dachau voru hvorki þjófar né hryðjuverkamenn. Reyndu að koma því inn í kollóttann hausinn á þér, Ómar Ragnarsson. Öskubakkinn þinn hefur ekkert með Guantanamo að gera. Öskubakka Guantanamos finnur þú í New York. Eða mannstu ekki lengur 11/9, 2001?
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (21)
7.9.2013 | 12:28
Norsk víkingaskip í Kaupmannahöfn
Í gær var ég staddur inni í miðborg Kaupmannahafnar þar sem ég átti eitt sinni heima. Ég átti erindi nærri Amalienborg. Áður hjólaði ég aðeins meðfram höfninni og kom að þessum stríðmaskínum norska sjóhersins sem bera nafnið Storm og Steil, sem voru í heimsókn. Það er næstum því að maður segi hæl, þegar maður sér slík nöfn.
Þessi hraðskreiðu fley eru flugskeytakorvettur og tilheyra skipum sem flokkast undir svo kallaðan Skjold-klasse. Eiginlega eru þetta risastórir spíttbátar. Norðmenn eiga fleiri svona stríðsskektur, sem bera heitin Skjold, Skudd, Glimt og Gnist.
Ég hef sjaldan upplifað eins mikla mengun frá skipi eins og þegar Storm lagði úr höfn.
28.8.2013 | 07:25
Gassad og Gassange
Bandaríkjamenn segjast nú hafa upplýsingar um efnavopnaárás Sýrlandshers, hers tannlæknisins Maher al-Assads. Þeir hleruðu samtal herforingja Assads. Myndir af barnalíkum á ís eru samt ekki nægileg sönnunargögn fyrir suma. Gunnar Bragi er varkár og vill sjá sannanir.
Danskir kratar krefjast t.d., þrátt fyrir vissu forsætisráðherrans, sannana, áður en þeir vilja heyja stríð við tannlækninn. Assad hefur svo lengi verið samstarfsmaður Dana og í Damaskus hefur um langan tíma verið fínt danskt institút. Danir eiga erfitt með að trúa neinu vondu upp á Assad. Íslenskir kratar trúa heldur engu vondu upp á Assad eins og dæmin hér sýna.
Rússar líkja nú Vesturlöndum við apa með handsprengju. Rússar eru svo vanir að sjá myrt börn á ís að þeir kippa sér sko ekki upp við slíkt. Dýralíkingar nasismans og kommúnismans eru víst enn ekki komnar úr tísku. Þær passa vel við öfgarnar í vorinu góða, þar sem trúarbókstafurinn er fullur af samlíkingum á óvininum við dýr eins og apa og svín. "Svínin" suður af Sýrlandi hafa einnig þefað gasið og vilja ekki gaslækninn nærri sér.
Ef Bandaríkin og aðrir fara í árásir á her Assads, má trúlega búast við því að íslamistar snúist 180 gráður og fari að vinna með stuðningsmönnum Assads, sem sitja í Teheran. Þá er um að gera að brjóta þá á bak aftur líka.
Sumir trúa engu nema að þeir fáið "sannleikann" frá Wikileaks. Poppstjarnan Assange, sem ekki er líklegur til að birta hleranir af herforingjum Assads, þar sem þeir tala um gasárás, hlær að öllu saman og dansar við sjálfan sig í Reykjavík. Assad mun hafa svipaðan dansstíl og Assange.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
23.8.2013 | 02:40
Í minningu Miksons - Myndir á sýningu
Hannes Hólmsteinn Gissurarson bloggvinur minn bauð mér fyrir fáeinum dögu á sýningu í Reykjavík. Boðið kom með mjög stuttum fyrirvara, sem útilokaði að ég kæmist án mikils kostnaðar.
Sýningin opnar í dag, því í dag er er minningardagur fórnarlamba alræðis í Evrópu, sem Evrópuþingið hefur valið að mörgum forspurðum. 23. ágúst 1939 er dagurinn, þegar Hitler og Stalín gerðu með sér griðasáttmála. Í Þjóðarbókhlöðunni verður að því tilefni myndasýning sem ber nafnið Heimskommúnisminn og Ísland". Þar verða sýndar ýmsar myndir úr bók Hannesar um íslenska kommúnista. Dr. Mart Nutt, þingmaður og sagnfræðingur frá Eistlandi, og dr. Pawel Ukielski, forstöðumaður safnsins um uppreisnina í Varsjá 1944, flytja erindi um örlög landa sinna undir oki nasisma og kommúnisma.
Hannes með Dr. Nutt. Eitthvað er Hannes hugsi.
En því miður gerist það í Eistlandi, Lettlandi og Litháen, að helförin gegn gyðingum sem margir íbúar þessara ríka tóku þátt í og þurftu ekki að láta skipa sér það, er gert lítið úr minningunni um Helförina (Shoah) og úr minningadegi um helförina sem ekki er 23. ágúst. Evrópuþingið hefur valið þennan dag í óþökk gyðinga.
Til að vekja áhuga á fórnum íbúa þessara landa undir kommúnismanum, er vísvitandi og skipulega gert lítið úr helförinni og þætti Eista, Letta og Litháa í henni. Nýlega var opnað hersetusafn í Tallinn, þar sem fer fram mikil sögufölsun.
Um leið leyfa þessir ríki í dag göngur SS-liða sem taldir eru til þjóðhetja því þeir börðust gegn kommúnismanum. Menn sem gerðu útrýmingu gyðinga í Litháen og fjöldamorð annarra gyðinga í landinu möguleg hafa verið teknir í dýrlinga tölu. Með SS-liðum marséra nýnasistar og aðrir öfgamenn. Gyðingum er enn í þessum löndum, sem Íslendingar studdu svo dyggilega, kennt um ófarir þjóðanna undir kommúnismanum.
Gyðingahatrið lifir góðu lífi í Litháen, Lettlandi og Eistlandi við hlið annarra fordóma. Öfgar gegn samkynhneigðum er ekki minni í Eistlandi, Lettlandi og Litháen en þeir eru í Rússlandi Pútíns. Það er hættulegt að vera samkynhneigður í Litháen.
Hverja eru Eistar að reyna að blekkja
Mart Nutt sem heldur fyrirlestur í Þjóðarbókhlöðunni er, þótt að hann sé í Mannréttindanefnd í ESB, flokksbundinn í Pro Patria/Res Publica sambandinu, stjórnmálaflokki sem m.a. lítilsvirðir réttindi samkynhneigðra. Vonandi kemur Dr. Nutt inn á þau mannréttindabrot í landi sínu.
Er forsætisráðherra Eistlands, Andrus Ansip, hélt fund með bandarískum gyðingasamtökum árið 2011 sagði um hann m.a. þetta um minningarreitinn og -samkomurnar Sinimäed og þá sem þar safnast saman:
"But they have nothing to do with Nazi ideology," Ansip said. "Portraying a memorial event to the war dead as a sign of neo-Nazi tendencies as some have done is deeply offensive to all Estonians. Our country suffered greatly under Communism and Nazism alike." (sjá hér)
Þessi mynd og myndirnar sem fylgja neðar sýna hvernig Eistar minnast þeirra sem þurftu að líða undir kommúnisma og nasisma. Hverja eru Eistar að reyna að blekkja? Morðingjar gyðingar þjóðhetjur Eystrasaltslandanna? (lesið einni hér)
Ég leyfi mér einnig að benda lesendum mínum á www.defendinghistory.com þar sem hægt er að lesa um illa þróun í þeim löndum sem Íslensk yfirvöld studdu við bakið á til að komast undan oki Sovétsins. En sjáið hvað er að gerjast! Bið ég einnig lesendur mína að lesa þessa grein mína þar: http://defendinghistory.com/take-off-your-hat-this-is-not-the-synagogue/36029
Varnaðarorð til Hannesar Hólmsteins
Ég leyfi mér enn fremur að vara vin minn Hannes Hólmstein Gissurarson við því, að draga hvaða persónu sem er til Íslands til að fremja samlíkingar á voðaverkum Stalíns og Hitler, sem sameiginlega áttu mörg mannslíf á samviskunni, en aðferðirnar og málefnin voru mismunandi.
Ef Sovétmanna hefði ekki notið við, hefði þjóðarmorð nasista orðið stærra. Eistar, Lettar og Litháar tóku þátt í því þjóðarmorði. Þótt þeir hafi þurft að þola mikið undir kommúnismanum, var það EKKERT í samlíkingu við það sem gyðingar þurftu að þola.
Ég bið menn að minnast þess þegar þeir nota ljótustu sár sögunnar sem pólitísk vopn - eða skálkaskjól - og skoða svo myndir af því hvernig Eistar minnast hetja sinna.
Ég bíð dr. Mart Nutt líka á þessa sýningu, sem ég kalla Í Minningu Miksons. Framganga íslenskra og eistneskra stjórnmálamanna í hans máli gleymist seint. Hún var ekki minna alvarleg en samvinna íslenskra afdalakomma við Moskvu.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 24.8.2013 kl. 09:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
20.8.2013 | 04:42
Andri Snær stútfullur af hráskinku
Það er nú vart að maður þori að birta mynd af hinum hlutlausa Andra Snæ Magnasyni. Síðast þegar ég gerði það hafði hann í hlutleysi sínu (eða af hégóma) samband við Moggabloggið til að láta banna mér að birta ákveðna mynd af sér sem ég hafði fundið á netinu. Allt sem maður veiðir þar má maður vitaskuld ekki nota, sérstaklega þegar gæta á hlutleysis eins og Andri lifir eftir.
Í pistli í Útvarpinu (RÚV), nánar tiltekið í þættinum Víðsjá, hefur Andri Snær næstum því berrassað sig í ærlega í "hlutlausum pistli". Hann fór úr föðurlandinu, sem hann ber litla virðingu fyrir, en hélt þó þröngum ESB-nærbuxunum sínum til að skýla hlutlausustu nekt sinni. Fyrir utan gjörsamlega ómerkilega upplýsingar um ættir hans og að hann sé gangkynhneigður 44% karl sem ekur um á óvistvænum jeppa þá fáum við þessar upplífgandi upplýsingar úr sæluríki samfylkynhneigðra:
Ég verð að taka fram að ég var ekki bara á Hornströndum í sumar heldur líka í Evrópusambandinu. Ég var bæði í Danmörku og Þýskalandi. Veðrið var afar gott og í Aldi kostaði eiginlega allt innan við eina evru meira að segja hráskinkupakkarnir. Í Þýskalandi voru margir allsberir á ströndinni. Allt þetta hefur þau áhrif að ég myndi frekar vilja búa í Evrópusambandinu heldur en á Hornströndum.
Evrópusambandið var stofnað eftir að þjóðir Evrópu hættu að murka lífið hver úr annarri eftir síðari heimsstyrjöld. Núna sitja afkomendur þeirra friðsamlega við skrifborð og semja reglugerðir. Áður fyrr fannst þeim auðveldara að kveikja í heilli borg heldur en að setjast saman við skrifborð. Af tveim kostum finnst mér sá síðari skárri. Ég tek það fram að þetta er afar Evrópumiðað sjónarhorn. Í Kína heyrði ég af safni sem kallaði heimsstyrjöldina síðari - stóra evrópska borgarastríðið.
Eins og öllum hlutlausum ESB-áhangendum á Íslandi, er Andra illt í sálinni þessa dagana, nú þegar "ferlið" er hætt að gefa styrki og bitlinga. Hér fáum við "hlutlausa" skoðun umhverfissnillingsins Andra Snæs um að þjóðir Evrópu hafi verið að murka lífið úr hverri annarri.
Þetta er hjákátleg sögufölsun. Sögufölsun er aldrei hlutlaus. Margar þjóðir Evrópu börðust gegn ofurafli nasismans og Bandaríkin og Sovétríkin hjálpuðu til að stöðva forvera ESB í ætlunarverki sínu. Vissulega voru til ríki í Evrópu sem voru viljugri en aðrar til að þjóna hinum morðóða herra. T.d. Dönsk stjórnvöld og margir íbúar Eistlands, Lettlands og Litháen til að nefna einhverja.
Ég ég ég ég ég er álíka sjálfhverfur og Andri Snær en vitaskuld ekki eins hlutlaus eins og Andri því ég tilheyri ekki , og er ekki komin af fólki eða þjóðum, sem murkuðu lífið úr hverri annarri. Ég þarf ekki að vera hlutlaus til að segja það. Andri hafi gleymt að segja okkur að hann hefur opinberlag þegið skildinga úr sjóði sem stofnaður var af illræmdum nasista sem tók þátt í morðæðinu. Þetta hef ég skrifað um hér, hér og hér .
Það er ekki nema von að Andri vilji vera allsber á þýskri strönd í hinu sanna draumalandi sínu ESB, frekar en á Hornströndum.
Andri Snær leikur sér að Lego
Það undrar mig hins vegar að heyra að Andri hafi sem lítill haft óbeit á Playmobil sem hann í hlutleysi sínu lék sér ekki með í einhverju snemmbúnu Bandaríkjahatri, því Playmobil er þýsk uppfinning og fyrirtæki líkt og ESB.
Með munninn fullan af ALDI hráskinku sem kostar innan við evru er ekki nema von að Andri vilji alls ekki búa á á Íslandi raunveruleikans. Maður verður nefnilega að hafa frjálsan aðgang í hráskinku til að geta kallast menningarþjóð. Á Hornströndum er hráskinkan eins dýr og hún er fyrir Grikki, sem fyrst var nauðgað af Þriðja Ríkinu og nú af ESB. Þess vegna kostar skinkan undir einni evru í ALDI í Þýskalandi og tvö dagslaun á Grikklandi.
Þess vegna er ESB að fara í hart við 370.000 sálir í tveimur eyríkjum í Norður-Atlantshafi. Elítan í ESB vill líka ódýran fisk. ESB hefur lýst yfir að sambandið vilji Lebensraum úti á sjó og Andra Snæ dreymir um að verða háseti á Kútter ESB. Hluturinn verður rýr og jafnvel er möguleiki á því að Andri verði hlutlaus áfram.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
17.8.2013 | 08:32
Mótmælum græðgi ESB
Mótmælum græðgi ESB með því að skrifa undir
Protest against EU greed by signing
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
13.8.2013 | 11:07
Árni á stöðinni
Árni Páll Árnason ætti að fara að aka leigubíl eins Stoltenberg.
Árni Páll getur svo borgað farþegum fyrir að vera með og fyrir að vera sammála sér. Þannig væri hægt að fækka atvinnulausum um 50% á Íslandi. Bara setja þá í drossíuna hjá Árna og segja "já, já" og "júúú". ESB setur örugglega pening í þetta.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Bækur
Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs
-
Nýtt blogg um fornleifafræði
FORNLEIFUR -
Þrælasalar í Norðurhöfum
Grein í Lesbók Mbl. 1999 -
: Ritaskrá 1972-2013 -
Fyrri færsla
Jakki Kiljans Laxness -
Bein Páls Biskups
Kveðskapur -
: Flóttamaðurinn Alfred Kempner -
Pepsi var á Ströndum
Gosdrykkjasaga -
Mótmælum Durban II
Meira -
Ved Helvedes Port
Grein mín í SKALK. Nr.4,1994. -
: Gyðingar á Grænlandi
Fyrri færsla og tenging við grein eftir mig á dönsku um gyðinga á Grænlandi -
Flogið hátt
Grein mín um fyrsta flug flugbels á Íslandi -
Fyrri færsla
Líkþráir Íslendingar -
: Lesið hér (ISBN: 978-965-218-066-7)
Behind the Humanitarian Mask; The Nordic Countries, Israel and the Jews. Edited by Manfred Gerstenfeld. -
Fyrri færsla
Vinir útlendinganna -
Fyrri færsla
Nakinn sannleikur -
Ungr var ek forðum
Færsla um óeirðir og læti í æsku minni -
Fyrri færsla
Þegar Gúttó varð samkunduhús gyðinga -
Fyrri færsla
Vive l'(Gr)islande -
Fyrri Færsla
Nifalt húrra -
Íslenskar frúr í Andvörpum
Um ferðir útrásar-Íslendinga á 16. öld. Lesbók Morgunblaðsins 28.águst 1999. -
Fyrri færsla
Berlínarboogie Laxness -
Fyrri færsla
Pabbi Þórs var myrtur í Auschwitz -
Falskir Íslendingar
Grein um þjóðarstolt -
En dansk krigsforbryder
Grein í Weekendavisen um versta stríðsglæpa- mann Dana, sem dönsk yfirvöld vildu helst gleyma. -
Anti-Semitism in Iceland. Is that possible? -
Iceland, the Jews, and Anti-Semitism, 1625-2004
Grein á ensku um gyðinga á Íslandi -
Ich weiss, was ich zu tun habe
Grein mín um Georg F. Duckwitz, nasistann sem á að hafa verið potturinn og pannan við björgun gyðinga í Danmörku. Í greininni sem birtist í tímaritinu Rambam 15:2006 er gerð grein fyrir fjölmörgu sem danskir sagnfræðingar hafa gleymt að rannsaka. Hlutverk Duckwitz verður nú að endurskoða. -
Grein
The King and the Star í: Denmark and the Holocaust (2003) (ISBN: ISBN 87-989305-1-6) -
: Rescue, Expulsion, and Collaboration: Denmark's Difficulties with its World War II Past
Jewish Political Studies Review 18:3-4 (Fall 2006; Tímarit sem ég hef skrifað töluvert í -
: 20 Begivenheder der skabte Danmark (ISBN: 87-02-0516-7)
Ég er meðhöfundur að einum af köflum bókarinnar. -
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson: Medaljens Bagside - Jødiske flygtningeskæbner i Danmark 1933-1945 (ISBN: 87-91393-60-4 ) Forlaget Vandkunsten 2005. Bók mín um meðferð danskra yfirvalda á flóttafólki á 4. og 5. áratugi 20. aldar.
Meira
Nýjustu færslur
- Viðreisnarklappstýran
- Tapað-fundið á DV
- Ekki fleiri sokka frá Íslandi, TAKK.
- Trumpur Eyjajarl
- Á mér stendur ..... Bjarni Ben
- Minnislaus síðan í síðustu ESB-kosningu
- Gamlir dónar sem fokka sér - Meet the Fockers II
- Icelandic Police Bared
- Niðurstaðan: KiSS or Bæjarins beztu
- Zelenskij fór í ranga flugvél - verður í Færeyjum næstu dagana
- Sjúklega svæsinn gyðingahatari er vinsæll á Moggablogginu
- Valdemar á svölunum er látinn
- Svæsnir fordómar eru ekki hluti af málfrelsi og tjáningu
- Ástráður eins og lús á feldi
- Utanríkisráðherra eyðir um efni fram í útlöndum
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (18.6.): 1
- Sl. sólarhring: 14
- Sl. viku: 41
- Frá upphafi: 1355453
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 27
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Apríl 2025
- Mars 2025
- Janúar 2025
- Júlí 2024
- Apríl 2024
- Febrúar 2024
- Desember 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Ágúst 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Júlí 2021
- Maí 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- Ágúst 2020
- Maí 2020
- Nóvember 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Júlí 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Janúar 2017
- Nóvember 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Nóvember 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007