Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Falleg mynd

vagn
 

Þessa fallegu mynd tók Moggabloggari sem kallar sig Gorgeir, réttu nafni heitir hann Hjálmtýr V. Heiðdal. Við vitum öll að Heiðdal er einn öfgafyllsti stuðningsmaður Palestínumálstaðarins. Fyrr á lífsleiðinni, áður en falsmynd Ríkiskommúnismans féll, var hann víst líka mjög sterkur talsmaður ýmissa fjöldamorðingja úti í heimi. Eftir að það rann allt í vaskinn, fann hann sterkum tilfinningum sínum nýjan farveg í hatri á Ísraelríki, sem hann ásakar reglulega um verstu glæpi sögunnar, líkir gyðingum við nasista og telur að gyðingar nútímans eigi ekkert skylt við þá gyðinga sem lesa má um í Biblíunni.

Heiðdal líkar ekki að samkynhneigðir hafi hengt upp ísraelska fánann á vagn í Gleðigöngunni sem hyllti þau ríki sem standa vörð um réttindi samkynhneigðra. Heiðdal veit vel að þjóð sú sem hann berst fyrir, og þar sem stærsti hluti hennar vill útrýma Ísraelsríki, er bölvanlega aftan á merinni hvað varðar öll mannréttindi. Einhvern daginn mun þeirra fáni hanga á vagni samkynhneigðra í rigningunni í Reykjavík. En það verður líklega fyrst þann dag, að Palestínumenn viðurkenna Ísraelsríki og hætta að tala um að útrýma því. Þá munu aðrar haturskenndir líklega víkja mjög fljótlega og Hjálmtýr verður blíður sem lamb.

En mynd Hjálmtýs vinar míns er falleg. Ef veðrið hefði verið betra, hefði Gleðigangan orðið örlítið léttklæddari. Einhvern daginn mun hinn reiði Guð, sem fordæmir öll hjón sem ekki eru karl og kona, blíðkast og senda nokkra sólargeisla á þessar gleðigöngur sem líta svo sorglega út vegna grámyglunnar. En stjarnan sem Hjálmtýr fann, var á við sól fyrir mig.


Tvískinnungsgangan

Gleðiganga 3
 

Baldur Þórhallsson básúnaði nýlega vanþekkingu sína á landi sem hann hefur dvalið í. Ég leyfði mér að skrifa um það um daginn í pistli sem ég kallaði Skugga-Baldur á Lithaugalandi. Baldur vill ekki svara.

Baldri leið vel í Litháen, þar sem hatur í garð minnihluta er daglegur viðburður og þar sem fyrrverandi forseti landsins stundar gyðingahatur og hatur gegn samkynhneigðum í ESB. Baldur var nýverið stjarna í landi þar sem mismunun, fordómar og ofsóknir gegn minnihlutum eru örugglega í öðru sæti á eftir Rússlandi Pútíns og Kína Núbós, sem Samfylkingarmenn geta vart haldið vatni fyrir.

Ég hvet Baldur til að fara í gleðigöngu í ESB-ríkinu Litháen!

Gleðiganga 2
Baldur gæti alveg eins hafa farið í gervi Landsbergis fulltrúa Litháa í ESB
998775_10152140949974478_1880520299_n
Dr. Baldur og Felix 

 

Eru hjónin Baldur og Felix blind eða siðblind?

Til að kóróna þessa fáviskuopinberun sína, gengur Baldur og maðurinn hans, Felix Bergsson, í Gleðigöngunni í gervi vondra Rússa með vígtennur, með rússneska fánann sem skikkju og með kross og íkon í hendi fyrir utan kylfur.

Frumstæðir fordómar í Rússlandi gegn samkynhneigðum í Rússlandi eru gífurlegir, svo ekki sé talað um fordóma gegn örðum minnihlutahópum, því þeir eru til. T.d. sá sem Þjóðverjum og samverkamönnum þeirra um Evrópu tókst að myrða 6 milljónir með.

En þega menn beita sama hatrinu gegn þeim sem hata, erum við að tala um frumstæða hegðun. Háskólakennari og starfsmaður RÚV ganga um götur Reykjavíkur sem ömurlegar Rússagrýlur  í Samfylkingarjakkasettum til að mótmæla fyrir sinn minnihluta. Fyrr má nú ofgera.

Tvískinnungur Bandaríska Sendiherrans

Hér þarf ekki að fara mörgum orðum um málið, myndirnar tala sínu máli. Kanadíski sendiherran kom hreinna til dyranna en bandaríski starfsbróðir hans. Sá kanadíski var mættur með manninum sínum, og sendiherrann er vitaskuld maður og örugglega af Vestur-Íslenskum ættum. Fyrst Snowden er Gay, þá bið ég fyrir honum í Rússíá.

Tvískinnungur Luis
USA ISLAND ISLAM
Þetta er ekki úr gleðigöngunni. Er fólk búið að gleyma hvað nýverið var haft eftir manninum með rauðu og hvítu húfuna? Hér má lesa um viðkunnanlega sendiherrann við Laufásveginn.
Kristinn Hrafn og Bradley
Þessir herrar gengu fyrir Bradley og Snowden. Ef Snowden er samkynhneigður eins og Bradely, þá bið ég fyrir honum þarna heima hjá Pútín. Gvööð, er þessi hvíthærði ekki talsmaður Assange, þess sem nauðgaði konum í Svíþjóð og sem felur sig í sendiráði í London? Hvaða mannréttindi ætli Kristinn hafi verið að ganga fyrir? Réttinn til að nauðga? Fyrir aftan hann er Vormaður Íslands og aðalsérleyfishafi réttra skoðanna á Íslandi, Illugi Jökulsson. Hann hefur oft ferðast með móður sinni og öðrum til þeirra landa þar sem réttindi samkynhneigðra eru engin og þeir eru t.d. hengdir úr ljósastaurum og byggingarkrönum.

Sendiherrann viðkunnanlegi

Iftar-32 

Nýlegar lokanir á sendiráðum Bandaríkjanna í fjölda landa hafði engin áhrif á Íslandi.  Ekki er mér kunnugt um að Bandaríska sendiráðið við Laufásveg hafi verið lokað, enda lítil ástæða til þess. Íslendingar eru hættulegasti sjáfum sér og terroristar ganga lítið eftir Laufásveginum, þótt steinsteypuhindranir BNA-sendiráðsins gæti gefið aðra mynd. Nú ræður ríkjum mjög óvenjulegur bandarískur sendiherra, sem á góðviðrisdögum gerir Laufásveginn litríkari og lýsir stuðningi við það sama og flestir Íslendingar, með því að rúlla út fána samkynhneigðra.

IDAHO Flags 2
USA-Embassy Reykjavík - Glad to be gay!

 

Sendiherrann heitir Luis E. Arreaga og er fæddur og uppalinn í Guatemala á viðsjárverðum tímum, eða um það leyti sem herforingjar rændu þar völdum árið 1954 með dyggri aðstoð CIA. Luis Arreage hafði, eins og börn elítunnar í Guatemala, tök á því að fara í framhaldsnám til Bandaríkjanna og settist þar að.

Síðan að sendiherrann kom loksins til landsins, hefur hann verið mjög virkur í almannatengslum og að kynna sér land og þjóð, sem og að kynna land sitt. Hann heldur úti bloggi, sem hann kallar Ambassdor's Blog, sem ég hvet alla til að kynna sér. Áður hafa mest setið stífflibbar og merkikerti í sendiráðinu, eins og oft vill verða í diplómatíunni, en Luis er búinn að koma dálitlum Ladínó-salsaanda inn í utanríkisþjónustu. Áhugavert að lesa, og sjá hvernig hann skjallar Íslendinga upp úr skónum, ferðast um landið og kynnir sér margar hliðar þess lands sem hann gistir og þjónar landi sínu í. Hann ber mikla virðingu fyrir Íslendingum og hefur greinilega uppgötvað, að Íslendingar eru hálfgerðir Kanar og að smáhluti þessara eyjaskeggja er "Norther-Ladínó".

Meðlimir múslímasafnaðarins í Öskuhlíð, sem ýmsir bloggarar rita um sem Íslamista og öfgamenn, hafa meira að segja verið á gestalista Arreaga, svo vart getur hann verið haldinn íslamófóbíu eins og 80% Bandaríkjamanna. Arreaga hefur meira að segja farið í samkomuhús þeirra. Myndirnar eru af bloggi sendiherrans alþýðlega og sýnir efsta ljósmyndin gesti hans við iftar-máltíð í Sendiráðinu á nýafstaðinni Ramadan-föstuhátíð. Múslímar frá báðum söfnuðum Múslíma á Íslandi voru mættir. Sóttur var bandarískur imam í veisluna. Egypskur klerkur safnaðarins í Öskjuhlíðinni var líka mættur í partíið, en hann "misskildu" allir um daginn, þegar hann var að tjá sig um konur og samkynhneigða. Þarna voru einnig múslímar á Íslandi sem á fasbókum sínum hafa tjáð sig fjálglega um nauðsyn þess að útrýma Ísrael og einn sem setti "læk" á öfgaklerk í Sádi-Arabíu, sem vill útrýma öllum gyðingum.

USA ISLAND ISLAM
USA - ICELAND - ISLAM

Eitt er öruggt, Luis E. Arreaga hefur fundið sér besta stað í heimi til að vera bandarískur sendiherra frá Guatemala. Á Íslandi er hryðjuverkahættan=0. Við vonum að hann verði sem lengst á Laufásveginum og haldi fleiri veislur.

Iftar Dinner-6
Iftar Ramadan party 2012 in the USA Embassy Reykjavík, Iceland
AMB Visit to the Islamic Cultural Center-1
I bet the goofy guy on the far right is the CIA operative  Smile 
Here is Goofy- this time in the Gay Parade
Gay CIA
I bet John Kerry was talking about Manning, when he said this!

Skugga-Baldur á Lithaugalandi

Pergales_diena_fashiststeinerlj_copyraight
 

Doktor Baldur Þórhallsson skrifar mjög sjálfhverft blogg. Það ber einfaldlega nafnið Dr. Baldur Thorhallsson.

Ég álpast stundum til þess að lesa þetta blogg, mest til að skima mestu öfgarnar í mönnum sem trúa því að ESB sé einhvers konar Útópía. Baldur er eins og margt fólkið sem elskaði Sovétríkin forðum. Áróðurinn verður að blindum trúarbrögðum, og veikina er ekki hægt að lækna. Ofsatrúin kalkar í heilasellunum. Þetta er eins og að fá sýfilis á heilann, svo vitnað sé í verk Vladimirs Mayakovskijs.

Í nýrri færslu fer Baldur mikinn um skrif Davíðs Oddssonar um Litháen og ESB í Morgunblaðinu. Ég tel ólíklegt að maður, sem einna mest studdi lýðveldi og frelsi Litháa á sínum tíma, hafi minni skilning á Litháen í dag en doktor Baldur. Litháen er því miður 2. flokks land í annarri deild ESB - þar sem fylgismenn sambandsins telja það frelsun, því "þeir eru ekki latir eins og Grikkir" eins og talskona ESB í Kaunas hélt fram við mig í fyrra, þegar ég var í bænum til að flytja erindi. Þar varð ég líka vitni að blómstrandi gyðingahatri í ESB-ríkinu Litháen.

Doktor Baldur skrifar m.a. í rassskellugrein sinni ætlaðri Davíð Oddssyni:

Í dag er Litháen fullburða ríki sem stendur jafnfætis öðrum ríkjum í vestrænni samvinnu innan Evrópusambandsins og Atlantshafsbandalaginu. Í dag fer það með forsætið í Evrópusambandinu og getur í krafti þess haft þónokkur áhrif á gang mála innan sambandsins - sér og öðrum til framdráttar.

Nýlega var Baldur með gleðigjafa ungra, baltneskra kvenna, Jóni Baldvini Hannibalssyni, að kenna ungviðinu í Vilníus allt um lýðræði, sem og um hrun ömurlega bankaveldisins þeirra í Ballarhafi, og hve vont það er að vera ekki í ESB.  Ég er ekki í vafa um, að eins glöggur maður og Baldur er, hafi séð þá voveiflegu strauma sem tröllríða Litháen. Hann hlýtur að hafa heyrt af þeim í skúmaskotum þjóðfélagsins, eða bara í klúbbferð með komrad Jóni Baldvini.

Hér er ég að tala um ófögnuð þann sem er helsta vandamál stórs hóp fólks í Litháen, sem og í Lettlandi og Eistlandi, einnig þeirra sem sitja og vilja ólmir vera í ESB.

Ég er að tala um hómófóbíu, gyðingahatur, útlendingahatur, öfgaþjóðernisstefnu, helfararafneitum, Rússahatur, blökkumannahatur og fleira, sem byrjaði að grassera fyrir alvöru, þegar Litháar gengu í ESB. Þá töldu menn, að þeir gætu allt í nafni frelsis. Það furðulega er, að ESB leyfir þessu meini að vaxa og hefur gert lítið til að koma í veg fyrir það.

swastikas-on-Gedimino
Merki nasista í Litháen sem héldu upp á fullveldisdaginn með leyfi og blessun yfirvalda og með lögregluvernd. Þessu missti Baldur af.

Gamlir SS-liðar ganga hlið við hlið með nýnasistum í árlegum "gleðigöngum" Litháens og þær eru ekkert í anda þeirrar gleðigöngu sem á næstu dögum þrammar um Reykjavík (sjá hér og hér). Fyrrverandi forseti landsins var t.d. Waffen SS-liði og ríkisstjórn landsins hyllir stuðningsmenn nasista í landinu (sjá hér og hér). Fólki í Litháen, sem þorir að gagnrýna þennan ófögnuð, er þröngvað úr starfi, það er set Berufsverbot og er ofsótt á ýmsan hátt.

Sieg Heil á Geimino
Fullveldisdegi Litháens fagnað 11. mars 2013. Mikið var "hælað". Baldur hefur líklega misst af þessari "gleðigöngu", sem var haldin áður en hann kom til starfa í Vilnius
Cekutis-at-March-11th-2011-march
Fullveldinu fagnað árið 2011.
1
Ráðstefna í Kaunas vorið 2012, þar sem menn hylltu Juozas Ambrazevičius-Brazaitis forsætisráðherra leppstjórnar nazista í Litháen, sem gerði fjöldamorð á gyðingum möguleg með lögum.  Juozas Ambrazevičius-Brazaitis hefur verið tekinn í dýrðlingatölu af ESB-stjórninni í Litháen. Hvernig má vera að háþróað ESB-ríki geri slíkt?  Þarna var ráðist á mig. Ljósmynd Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson.

Háttsettur embættismaður einn, Linas Kadys, í fjármálaráðuneyti Litháen, sem er mikilvæg deild í ESB, hefur verið tekinn í því að halda úti svæsnasta hatursbloggi allra tíma, og ég get ekki ímyndað mér að Doktor Baldur geti verið í miklu uppáhaldi hjá þeim kóna, sem hefur haldið vinnu sinni í ESB, þrátt fyrir að upp hafi komið að sé gyðinga-, homma-, negra-, pólverja-, sígauna-, og Rússahatari bara svo eitthvað sé nefnt. Samtök sem berjast gegn þessum ósóma hafa beðið tvo ráðherra fjármálaráðherra landsins að leysa manninn frá störfum, en ekkert gerist. Linas Kady kallar blogg sitt Zeppelinus (sjá mynd af blogginu efst, þar sem andstæðingum ESB-þjóðarinnar Litháuen er lýst sem rússneskum hermanni og gyðingi í sleik; Sjá önnur dæmi hér, hér, hér).

Starfsmaður í Ráðuneyti
Linas Kady, fyrirmyndarstarfmaður í ráðuneyti fyrirmyndarríkis í ESB. Hann hefur ekki verið rekinn fyrir svæsnasta hatur sem sést hefur á bloggsíðu, og þó víða væri leitað. Hann hatar sér í lagi homma og gyðinga.

Fínt land og "flott stjórn", sem doktor Baldur hefur ekki alveg séð í gegnum, þegar hann var þar nýlega að kenna ungviðinu Stóra Sannleika með Jóni Baldvini Hannibalssyni, sjálfskipuðum verndara lærdómsfúsra, ungra kvenna í þessu stórmerka ESB-ríki.

En hvernig má vera, að menn eins og t.d. íslandsvinurinn Landsbergis (les hér um hommahatarann Landsbergis) og aðrir á svipuði róli, séu haldnir alls kyns fóbíum gagnvart minnihlutum? Jú, þeir eru komnir á jötuna í ESB, sem á vissan hátt er afkvæmi 3. Ríkisins, en samstarfið við það líkaði sumum Litháum afar vel á sínum tíma.

Ég gef prófessornum lága einkunn fyrir þetta þekkingarleysi á Lithaugalandi sem hann nýtir sér í lýðskrumsgrein af verstu gerð á bloggi sínu. Glöggur maður er Baldur ekki, og legg ég til að han endurskíri blogg sitt og kalli það hið fyrsta Skugga-Baldur. Hann sá ekki skuggahliiðar ESB í Litháen, þegar hann dvaldi þar nýverið.

*

Sjáið hvernig ESB-ríkið Litháen hyllir gyðingamorðingja í götunöfnum og á minnismerkjum.

LESIÐ WWW.DEFENDINGHISTORY.COM


Ævintýri: Dauðinn á jöklinum

Dauðinn á beltum

Íslensk náttúra getur verið váleg og það getur nútíma "action-ferðamennska" einnig verið. 

Íslenskt fyrirtæki selur fólki ferðir á snjósleðum upp á jökla. Allt virðist í himnalagi og framkvæmdastjóri fyrirtækisins er sagður jöklasérfræðingur. Hver vill ekki  á vélsleða á 15 km. hraða með slíkum manni. Hvar fær maður annars titilinn "Glacier Expert"? Upplýst er á vefsíðu fyrirtækisins, að menn þurfi ökuréttindi, væntanlega bílpróf, til að aka vélsleðunum. 

En á jöklinum bíður svo dauðinn. Maður sá frá Kínverska lýðveldinu á Taiwan, sem lést í ferð fyrirtækisins, er sagður hafa upplýst ranglega að hann hefði ökuréttindi. En í ljós er komið að hann hafði reynslu af vespum. En hvað á vélsleði sameiginlegt með bifreið? Jöklasérfræðingurinn segir að "maðurinn hafi laumast til að fara á vélsleðann, sett bensínið í botn og misst stjórn á sleðanum með fyrrnefndum afleiðingum. Mikil mildi þykir að aðrir ferðamenn slösuðust ekki."

Ævintýraferðir á Íslandi, þar sem líf fólks getur hangið á bláþræði, eiga ekki að vera möguleiki nema að þátttakendur geti sýnt fram á mikla reynslu af t.d. vélsleðum. Öðrum ber að fá eins dags kennslu á vélsleða með tilheyrandi varnaðarorðum um hættur þessa varasama farartækis.

Á vefsíðu annars fyrirtækis, sem einnig bíður upp á ferðir á Langjökul er meðal annars upplýst að börn niður að 8 ára aldri með skóstærðar 35 komist í slíkar ferðir, en þetta fyrirtæki virðist þó krefjast þess að menn séu með ökuskírteini á sér. Reynslu úr vélsleðaíþróttinni er þó ekki krafist:

Age limit: 8 years as a passenger on the snowmobile. Children 8-12 years old get 50% discount.

[Sjá hér um börn og snjósleða]

Special skills required: Anyone driving the snowmobile must have a valid driving licence with them. No prior knowledge of the sport is required.

Eins og Chris frá BNA upplýsir á enn annarri vefsíðu fyrirtækis (Eskimos) sem býður upp á vélsleðaferðir á jökla á Íslandi:

"Snowmobiles are a hell of a lot of fun!"

Kannski ekki, þegar eigendum þessa fyrirtækja er leyft að tjá sig á miður sómasamlegan hátt um dauða þátttakenda í ferðum þess í fréttum, þegar greint er frá nafni hins látna ferðamanns.

En kannski þarf maður ekki að sýna eins mikla virðingu við dauða stærðfræðiprófessors frá Taiwan eins og við dauða Íslendinga, þegar greint er frá slysum sem þeir farast í ?


Þýskur hvalur með bægslalæti

altmaier
 

Ég er ekki mikið gefinn fyrir hvalveiðar Hvals hf. Ég tel þær ekki vera þjóðhagslega iðju eins og málin standa nú. Hvalveiðar þær sem Kristján í Hval stundar eru ekki íslenskar. Þetta eru iðnaðarhvalveiðar eins og margar Evrópuþjóðir stunduðu, og voru þær nærri því búnar að útrýma hvölum á fyrri hluta 20. aldar. Ég er ekki einu sinni viss um, að Kristján í Hvalnum hafi kaupanda að þeim hvalaafurðum sem hann er að senda úr landi nú.

En þegar maður sér aðferðir Peter Altmeiers umhverfisráðherra í Þýskalandi og sér tvískinnung þýska ríkisins blöskrar manni. Þýskaland er ESB-ríki sem hefur selt tæknibúnað til Íran. Frá höfnum Þýskalands er auðveldara að senda vopn til öfgaríkja eins og Írans en hvalkjöt. Til Þýskalands má flytja 4 sinnum meira af eiturúrgangi en Þjóðverjar flytja sjálfir út. Til skamms tíma var einnig auðvelt að flytja ólöglega líffæri fátæklinga í þriðja heiminum til Þýskalands. Mér sýnist svona á útlitinu, að hinn einmanna piparsveinn, Altmaier þurfi brátt á nýju hjarta að halda og vonandi verður það nýja betra en það sem nú er í Altmaier. Loforð hans um að vernda hnísuna, sem kallast Schweinswal á þýsku, eru grunsamleg. Altmaier hefur lýst því yfir, að  "Der Schutz der Schweinswale liegt mir besonders am Herzen". Þetta grunaði mig.

En eins og menn geta séð í því rugli sem Altmaier hefur sent frá sér (sjá hér), er hvalkjötsflutningur Hvals hf. löglegur. Altmeier segir í bréfi sínu, að hann hafa haft samband við önnur ríki í ESB til að stöðva útflutning á hvalaafurðum frá Íslandi og Noregi. Þetta er ekki útflutningur Íslendinga, heldur Kristjáns Loftssonar. Ef útflutningur Kristjáns um þýskar hafnir er löglegur, liggur beinast við að Kristján Lofsson kæri Þýskaland fyrir ólöglegar aðgerðir í sinn garð. Líklegt er að íslensk yfirvöld geti stutt við bakið á einfaranum í þeim efnum.

Altmaier tínir til CITES-reglur og ESB-reglur og segir að langreiðar séu í útrýmingarhættu. Það er hvalategundin vissulega á Suðurhveli, en ekki á Norðurhveli. Hverjum er Altmaier að reyna að ljúga að. Þetta er eins og þegar þýskir diplómatar upplýstu árið 1949 fólk í öðrum löndum um að Adolf Eichmann væri látinn, að hann hefði skotið sig, þó svo að þýsk yfirvöld hefðu árið áður skuldbundið sig til að finna hann lifandi, því vitað var að hann var á lífi. Þýskur tvískinnungur.

Mikið hefði heimurinn verið betri ef Þjóðverjar hefðu sýnt eins mikla manngæsku á 20. öldinni eins og þeir sýna hvölum nú.

Ég endurtek: Ég sé enga ástæðu fyrir Íslendinga til að veiða stórhveli. Ef menn vilja hrefnukjöt fyrir heimamarkað þá veiða menn hrefnu. Ég hef meiri áhyggjur á þýskri heimsvaldastefnu og ESB-aðgerðum en hvalveiðum.


Guðni sagnfræðingur

Guðni Th. Jóhannesson
 

Guðni Th. Jóhannesson (eða er það Jóhanesson, sjá mynd) gerði hlé á 17. júní teitinni til að fara upp í Efstaleiti og fara í viðtal. Hann var enn með þjóðernissjarmaklút um hálsinn og með þjóðlegan uppblástur og/eða uppgræðslu efst á höfðinu eins og sæmir vel greindum mönnum, þótt innblástur sé betri. Hann átti þarna að segja álit sitt á hátíðarræðu fyrrverandi sjónvarpsmanns og núverandi forsætisráðherra, Sigmundar Davíðs.

Þegar Guðni Th. Jóhannesson hreppti lektorstöðu við HÍ í byrjun ársins, bjóst maður við því að skjágleði hans myndi fara minnkandi og að hann lokaði sig loks inni í fílabeinsturni sagnfræðideildar, gengi þar um ganga eins og draugur og heilsaði ekki samkennurum sínum eins og lengi var þar til siðs. En sumir verða háðir því að koma fram og geta ekki hætt.

Guðni, sem er eins og margur á sömu pólitísku hillu og hann, sérleyfishafi á sannleikann og réttlætið og aldeilis ekki með þjóðernisrembing frekar en aðrir ESB-lingar. Því taldi hann öruggt að Sigmundur Davíð hefði verið að særa upp útlendingagrýlu með því að bauna á Alþjóðagjaldeyrissjóðinn og ESB í ræðu sinni.

Ekki veit ég betur en að þeir sem eru á sama róli og Guðni í pólitíkinni séu meistarar í grýlusögum, fordómum og samsæriskenningum, og reyndi fyrri stjórn, sem Guðni var vikapiltur fyrir í fjölmiðlum, lengi að telja fólki trú um að allt færi Jólaköttinn ef við greiddum ekki öll Icesave skuldina eða gengum þegjandi og hljóðalaust inn í alsæluna og atvinnuleysið í ESB. Svo ekki sé talað um endalaust mat Guðna á persónu og gjörðum forseta Íslands sem vinstri menn hafa aldrei fyrirgefið að hafa kvænst gyðingnum frá Búkara, sem þeir vilja nú þjóðnýta og arífísera, því hún á svo mikinn pening í London (sjá þessa frétt í fréttum RÚV 16.6. 2013, þar sem eignir Dorritar voru gerðar upp Eignir metnar á tugi milljarða af Björn Malquist góðvini Ólafs Stephensens á Fréttablaðinu sem hóf pógrommið í þetta sinn).

En lektornum nýbakaða þykir kannski gríska lygakvendið Damanakin heillandi, þegar hún lýgur fyrir opnum skjöldum um makríldeiluna í Brussel, jafnvel svo illilega að Steingrími J. ráðherra fyrrverandi stjórnar þykir það einum of?  

Hvar var Guðni sagnfræðingur þegar fyrrverandi stjórn magnaði upp Grýlur með ESB til að hræða almúgann í landinu til óþarfrar hlýðni, sem hefði kostað þjóðina áratuga þrælastand og tap á auðlyndum hennar. Víst má þó telja, að Guðni er með annars konar réttlætistilfinningu og flestir Íslendingar, og þolir betur kúgun og yfirvald en við hin sem fengum nóg. Sömuleiðis er orðið alveg víst að hún er ekki áreiðanleg sagnfræðin sem hann túlkar í fréttum áróðursstöðvarinnar RÚV, ef það er þá yfirleitt sagnfræði.

En nú eru komnir aðrir tímar og kannski vert að fá aðra sagnfræðitrúða í RÚV fréttirnar til að vega upp á móti þeim rauðmálaða. RÚV verður að hætta að vera systurfjölmiðill Neues Deutschlands og Prövdu. Fólk er búið að fá nóg af litlum hvolpum sem frekar flytja fréttir frá Gaza en af þjóðmálaumræðunni.  

Guðni Th. Jóhannesson verður svo að gera upp við sig, hvort hann er sagnfræðilektor eða bara vikapiltur stjórnarandstöðunnar, annars missir hann allan trúverðugleika.


Aumingja Egill

Egils Rauðaritskoðun
 

Í fyrradag var Egill Helgason með ónot um fornmenningaráhuga nýju ríkisstjórnarinnar og skrifaði pistil á Silfrinu um það. Hann sagðist vera á ferðinni í Vesturheimi.

Ég setti litla, saklausa athugasemd við bloggið og bað fyrir kveðju til fjarskylds frænda míns Bob Bournes sem er einn af frægari Vestur-Íslendingunum um þessar mundir.

Egill skvetti strax í mig ónotum, sem sýnir kannski hvers kyns mann hann hefur að geyma.

Svo gerði ég einnig fræðilega athugasemd við bloggið og við ágæta athugasemd annars lesanda. Enginn dónaskapur þar. Aðeins staðreyndir. Það fjarlægði Egill líka. Því athugasemdin sýndi fávisku Egils.

Hér sjáið þið athugasemdirnar þegar ég var þar síðast, og getið þið séð hvernig Egill stundar staðreyndaútrýmingu og skoðanaskipti.

Þessi handhafi rétthugsunar þolir greinilega ekki tjáningar- og skoðanafrelsi.

Menn hafa vitanlega rétt á því að fjarlægja orð manna, ef þeir eru með aðdróttanir, persónulegt skítkast, fordóma og þess háttar. En það var ég ekki. Það var Egill hins vegar, og hann ritskoðaði mig líka, því ég leyfði mér að sýna lesendum hans fram á vankunnáttu hans.

Mig langaði að deila þessu með ykkur, sér í lagi þeim ykkar sem ekki eruð búnir að sjá í gegnum þennan karl.


Styðjum Guðbjörn Jónsson

Guðbjartur Jónsson
 

Guðbjörn Jónsson fer í dag í Heilbrigðisráðuneytið til að leita sér aðstoðar. Hann er með Parkinsonveiki og hefur ekki ráð á lyfjum þeim sem eru honum lífsnauðsynleg - vegna nýrra lyfjalaga sem "velferðarríkisstjórnin" fyrrverandi kom á, sem eru gölluð.

Lesið um baráttu Guðbjarnar hér.

Ég hvet fólk, sem ekki þarf að sinna vinnu, og jafnvel það sem er í vinnu, sem hefur snefil af samkennd og sem er í sömu stöðu og Guðbjörn, að mæta með Guðbirni, honum til stuðnings í ráðuneytinu. Hann ætlar að mæta þar við opnun í dag á Vegmúla 3 í Reykjavík. Þeir sem komast ekki geta einnig ritað stuðningsyfirlýsingar hér eða á blogg Guðbjarts.

Ég kemst ekki frá Kaupmannahöfn, en verð með í anda, og geng út frá því að nýr ráðherra velti vitleysu fyrri ríkisstjórnar, eða geri tilheyrilegar breytingar svo þeir sem minnst mega sín þurfi ekki að líða undir ófullnægjandi og ómannsæmandi lögum.


Þegar danska utanríkisþjónustan drepur

F091019FFMT05-e1368090129162-635x357

Michael Nidoya, danskur diplómat sem starfaði fyrir ESB í Ísrael hefur nú verið dæmdur í 21 mánaða fangelsi í Ísrael fyrir að hafa ekið mann niður og síðan að hafa ekið á brott af vettvangi.  Fyrst nú, tæpum fjórum árum eftir verknaðinn frétta Danir af þessari fyllibyttu í ESB-þjónustu.  Sjá hér.

Michael Nidoya var drukkinn þegar hann ók mann með Downs heilkenni niður á rólegri götu í Jerúsalem. Daninn flýði af vettvangi og flaug til Kanaríeyja þar sem hann faldi sig. Hann hefur nú verið framseldur með hjálp Interpol og hóf nýlega afplánun dóms síns í ísraelsku fangelsi.

Maðurinn sem Nidoya ók niður slasaðist mjög illa og þurfti á mikilli endurhæfingu að halda, en í henni fékk hann hjartaáfall og dó.

Danskir fjölmiðlar greina ekki frá nafni byttunnar sem vann fyrir ESB þegar hann keyrði af vettvangi eftir að hafa ekið á fatlaðan mann, og ísraelskir fjölmiðlar greina ekki frá því að fórnarlambið dó í kjölfarið. Diplómatían er alltaf söm við sig, fáguð raggeit.

Myndin efst var tekin þar sem ákeyrslan átti sér stað.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bækur

Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband