Leita í fréttum mbl.is

Skugga-Baldur á Lithaugalandi

Pergales_diena_fashiststeinerlj_copyraight
 

Doktor Baldur Ţórhallsson skrifar mjög sjálfhverft blogg. Ţađ ber einfaldlega nafniđ Dr. Baldur Thorhallsson.

Ég álpast stundum til ţess ađ lesa ţetta blogg, mest til ađ skima mestu öfgarnar í mönnum sem trúa ţví ađ ESB sé einhvers konar Útópía. Baldur er eins og margt fólkiđ sem elskađi Sovétríkin forđum. Áróđurinn verđur ađ blindum trúarbrögđum, og veikina er ekki hćgt ađ lćkna. Ofsatrúin kalkar í heilasellunum. Ţetta er eins og ađ fá sýfilis á heilann, svo vitnađ sé í verk Vladimirs Mayakovskijs.

Í nýrri fćrslu fer Baldur mikinn um skrif Davíđs Oddssonar um Litháen og ESB í Morgunblađinu. Ég tel ólíklegt ađ mađur, sem einna mest studdi lýđveldi og frelsi Litháa á sínum tíma, hafi minni skilning á Litháen í dag en doktor Baldur. Litháen er ţví miđur 2. flokks land í annarri deild ESB - ţar sem fylgismenn sambandsins telja ţađ frelsun, ţví "ţeir eru ekki latir eins og Grikkir" eins og talskona ESB í Kaunas hélt fram viđ mig í fyrra, ţegar ég var í bćnum til ađ flytja erindi. Ţar varđ ég líka vitni ađ blómstrandi gyđingahatri í ESB-ríkinu Litháen.

Doktor Baldur skrifar m.a. í rassskellugrein sinni ćtlađri Davíđ Oddssyni:

Í dag er Litháen fullburđa ríki sem stendur jafnfćtis öđrum ríkjum í vestrćnni samvinnu innan Evrópusambandsins og Atlantshafsbandalaginu. Í dag fer ţađ međ forsćtiđ í Evrópusambandinu og getur í krafti ţess haft ţónokkur áhrif á gang mála innan sambandsins - sér og öđrum til framdráttar.

Nýlega var Baldur međ gleđigjafa ungra, baltneskra kvenna, Jóni Baldvini Hannibalssyni, ađ kenna ungviđinu í Vilníus allt um lýđrćđi, sem og um hrun ömurlega bankaveldisins ţeirra í Ballarhafi, og hve vont ţađ er ađ vera ekki í ESB.  Ég er ekki í vafa um, ađ eins glöggur mađur og Baldur er, hafi séđ ţá voveiflegu strauma sem tröllríđa Litháen. Hann hlýtur ađ hafa heyrt af ţeim í skúmaskotum ţjóđfélagsins, eđa bara í klúbbferđ međ komrad Jóni Baldvini.

Hér er ég ađ tala um ófögnuđ ţann sem er helsta vandamál stórs hóp fólks í Litháen, sem og í Lettlandi og Eistlandi, einnig ţeirra sem sitja og vilja ólmir vera í ESB.

Ég er ađ tala um hómófóbíu, gyđingahatur, útlendingahatur, öfgaţjóđernisstefnu, helfararafneitum, Rússahatur, blökkumannahatur og fleira, sem byrjađi ađ grassera fyrir alvöru, ţegar Litháar gengu í ESB. Ţá töldu menn, ađ ţeir gćtu allt í nafni frelsis. Ţađ furđulega er, ađ ESB leyfir ţessu meini ađ vaxa og hefur gert lítiđ til ađ koma í veg fyrir ţađ.

swastikas-on-Gedimino
Merki nasista í Litháen sem héldu upp á fullveldisdaginn međ leyfi og blessun yfirvalda og međ lögregluvernd. Ţessu missti Baldur af.

Gamlir SS-liđar ganga hliđ viđ hliđ međ nýnasistum í árlegum "gleđigöngum" Litháens og ţćr eru ekkert í anda ţeirrar gleđigöngu sem á nćstu dögum ţrammar um Reykjavík (sjá hér og hér). Fyrrverandi forseti landsins var t.d. Waffen SS-liđi og ríkisstjórn landsins hyllir stuđningsmenn nasista í landinu (sjá hér og hér). Fólki í Litháen, sem ţorir ađ gagnrýna ţennan ófögnuđ, er ţröngvađ úr starfi, ţađ er set Berufsverbot og er ofsótt á ýmsan hátt.

Sieg Heil á Geimino
Fullveldisdegi Litháens fagnađ 11. mars 2013. Mikiđ var "hćlađ". Baldur hefur líklega misst af ţessari "gleđigöngu", sem var haldin áđur en hann kom til starfa í Vilnius
Cekutis-at-March-11th-2011-march
Fullveldinu fagnađ áriđ 2011.
1
Ráđstefna í Kaunas voriđ 2012, ţar sem menn hylltu Juozas Ambrazevičius-Brazaitis forsćtisráđherra leppstjórnar nazista í Litháen, sem gerđi fjöldamorđ á gyđingum möguleg međ lögum.  Juozas Ambrazevičius-Brazaitis hefur veriđ tekinn í dýrđlingatölu af ESB-stjórninni í Litháen. Hvernig má vera ađ háţróađ ESB-ríki geri slíkt?  Ţarna var ráđist á mig. Ljósmynd Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson.

Háttsettur embćttismađur einn, Linas Kadys, í fjármálaráđuneyti Litháen, sem er mikilvćg deild í ESB, hefur veriđ tekinn í ţví ađ halda úti svćsnasta hatursbloggi allra tíma, og ég get ekki ímyndađ mér ađ Doktor Baldur geti veriđ í miklu uppáhaldi hjá ţeim kóna, sem hefur haldiđ vinnu sinni í ESB, ţrátt fyrir ađ upp hafi komiđ ađ sé gyđinga-, homma-, negra-, pólverja-, sígauna-, og Rússahatari bara svo eitthvađ sé nefnt. Samtök sem berjast gegn ţessum ósóma hafa beđiđ tvo ráđherra fjármálaráđherra landsins ađ leysa manninn frá störfum, en ekkert gerist. Linas Kady kallar blogg sitt Zeppelinus (sjá mynd af blogginu efst, ţar sem andstćđingum ESB-ţjóđarinnar Litháuen er lýst sem rússneskum hermanni og gyđingi í sleik; Sjá önnur dćmi hér, hér, hér).

Starfsmađur í Ráđuneyti
Linas Kady, fyrirmyndarstarfmađur í ráđuneyti fyrirmyndarríkis í ESB. Hann hefur ekki veriđ rekinn fyrir svćsnasta hatur sem sést hefur á bloggsíđu, og ţó víđa vćri leitađ. Hann hatar sér í lagi homma og gyđinga.

Fínt land og "flott stjórn", sem doktor Baldur hefur ekki alveg séđ í gegnum, ţegar hann var ţar nýlega ađ kenna ungviđinu Stóra Sannleika međ Jóni Baldvini Hannibalssyni, sjálfskipuđum verndara lćrdómsfúsra, ungra kvenna í ţessu stórmerka ESB-ríki.

En hvernig má vera, ađ menn eins og t.d. íslandsvinurinn Landsbergis (les hér um hommahatarann Landsbergis) og ađrir á svipuđi róli, séu haldnir alls kyns fóbíum gagnvart minnihlutum? Jú, ţeir eru komnir á jötuna í ESB, sem á vissan hátt er afkvćmi 3. Ríkisins, en samstarfiđ viđ ţađ líkađi sumum Litháum afar vel á sínum tíma.

Ég gef prófessornum lága einkunn fyrir ţetta ţekkingarleysi á Lithaugalandi sem hann nýtir sér í lýđskrumsgrein af verstu gerđ á bloggi sínu. Glöggur mađur er Baldur ekki, og legg ég til ađ han endurskíri blogg sitt og kalli ţađ hiđ fyrsta Skugga-Baldur. Hann sá ekki skuggahliiđar ESB í Litháen, ţegar hann dvaldi ţar nýveriđ.

*

Sjáiđ hvernig ESB-ríkiđ Litháen hyllir gyđingamorđingja í götunöfnum og á minnismerkjum.

LESIĐ WWW.DEFENDINGHISTORY.COM


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bćkur

Kynning á nokkrum fćrslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband