Leita í fréttum mbl.is

Umslög utan af íslenskum kjörseðlum seld í erlendum frímerkjaverslunum

Umslag Ólafs Ragnarssonar b

Hafið þið kjósendur góðir velt fyrir ykkur, hvað verður um utankjörstaða-kosningaseðlana ykkar, eða umslögin utan um þá, að kosningum loknum?

Þetta eru persónuupplýsingar sem vernda ber og eyðast að löglegri kosningu lokinni.

Fornleifur greindi frá því um daginn, hvernig umslög með kjörseðlum Íslendinga, sem send hafa verið erlendis frá, hafi lent í sölu hjá frímerkjaverslunum erlendis. Fornleifur keypti sér til gamans gömul atkvæði Íslendinga sem gerðu skyldu sína í sendiráðum lands síns - en bjuggust vitanlega ekki við því að sjá kosningaumslögin sín til sölu í frímerkjaverslunum á netinu.

Kannski væri athugandi fyrir prótókollskrifstofu Utanríkisráðuneytisins og sýslumannsembættin að reyna að skýra hvað þarna gerðist og hvort enn sé hætta á því að umslög manna, sem senda kjörseðil sinn erlendis frá, séu sett í söluferli erlendis að kosningum loknum? Þetta er stórfurðulegt mál og óvenjuleg nýtni í ljósi þess að Íslendingar eiga í hlut.

Þessi færsla verður send Utanríkisráðuneytinu, prótókollskrifstofu, og skýringa óskað á þessari furðulegu kosningaumslagasölumennsku með vísun í þessa færslu og grein um málið á Fornleifi. Sjá erindið hér fyrir neðan:

Virðulegi prótókollmeistari Utanríkisráðuneytisins,

Í dag hef ég gert opinbert þetta erindi til ráðuneytisins (sjá .http://postdoc.blog.is/blog/postdoc/entry/2203200) Ég leita svara við því, hvernig umslög utan af kjörseðlum, sem Íslendingar höfðu sent erlendis fyrr á árum, hafi komist í söluferli hjá erlendum frímerkjaverslunum.

Ég hef keypt nokkur umslög utan af kosningarseðlum, sem Íslendingar hafa sent í Alþingiskosningum í þeirri trú að kosningin væri trúnaðarmál.

Ef ráðuneytið hefur einhverjar skýringar á því, hvað þarna hefur átt sér stað, þætti mér vænt um að fá upplýsingar um það.

Virðingarfyllst,

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, Ph.D.

Danmörku

Sjá http://postdoc.blog.is/blog/postdoc/entry/2203200 og http://fornleifur.blog.is/blog/fornleifur/entry/2201406/

Set ég svo innsigli "mitt" á þessa færslu:

Umslag utan af kjörseðli  c

 


Það sem allt ætlar að æra

the first stone

Mál málanna á Íslandi er þessi bölvaða æra og tilburðir manna að rétta hana við, og annarra að koma í veg fyrir það.

Að menn fái að rétta æru sína við, nema að þeir séu þjóðar eða fjöldamorðingjar, er nauðsynleg ráðstöfun, eins konar ventill, sem verður að vera til í lýðræðisríkjum.

Þegar menn hafa setið út dóm sinn, verða þeir að vera velkomnir til baka í þjóðfélagið sem „nýir menn“ og vonandi betri.

Á Íslandi virðist búa margt fólk sem yrðu prýðisíbúar í Suðurríkjum Bandaríkjanna, þar sem menn fá 100-200 ára fangelsi og jafnvel mun lengri dóma. Stór hópur Íslendinga vill greinilega ekki láta sér nægja að menn séu dæmdir eftir gildandi íslenskum lögum. Þetta fólk vill halda áfram að sparka í þann dæmda, fram yfir það brennimark sem sérhver glæpamaður mun ávallt bera þrátt fyrir fangelsisvistina.

Slík dómharka er vægast sagt mjög sjúk.

Margt af þessu fólki sem er svo dómhart er kristið en aðrir hörðustu vinstri menn, sem margir hverjir hafa eins og við vitum hyllt ríki með afar ógeðfellt réttarfar. Nú vill svo til að kristnin boðar fyrirgefningu syndanna og íslensk lög innihalda eftir danskri hefð einnig svipaða siðferðiskennd og fyrirgefningin í trúnni. Þegar menn hafa setið út dóm sinn, eiga þeir að eiga möguleika á því að hreinsa feril sinn örlítið, því hvítþvegið hann geta þeir aldrei.

NAHTO8sX6xK6_992x620_xBdktBFt

Hvað veldur æsingi fólks og grimmd?

Hvað er það sem ærir það fólk sem ekki nægir dómar yfir kynferðisafbrotamönnum? Svarið er örugglega ekki einfalt.

Mig grunar þó að svarið finni maður einmitt hjá hinum mikla og hatramma kór, sem æsir sig sérstaklega yfir mönnum sem í veikleika eða sjúkleika leggjast á börn og unglinga til að svala kynferðislegum þorsta sínum. Barnaníðingar, flest menn en einnig konur, fara lengra en það fólk sem situr og lepur í sig klám á tölvunni sinni. Sömu fantasíurnar og löngun sumra karla í ”ungt kjöt” er ekki nýtt fyrirbæri. Þeir sem missa niður um sig og gera fantasíuna að veruleika brjóta siðferðisleg lög og jafnfram lög landsins. Margir gætu lent í því sama, en örfáir, sem ekki hafa góðan hemil á sér, ”detta í vitleysuna”.

Þar með sagt er engin ástæða fyrir þá sem hafa betri hemil á sér sem kynverur, að sparka í þá sem hrasa og geta ekki fylgt reglunum og hinu gildandi siðferði. Þegar þeir hafa setið út sinn dóm, eiga þeir að fá tækifæri til að sýna sínu samferðarfólki, að þeir hafi haft gott af refsingunni. Líkt og morðingjar fá uppreist æru sinnar, eiga kynferðisglapræðismenn vitanleg einnig að fá slíka uppreist og það er ekkert að því nema tilfinningar foreldra misnotaðra barna og unglinga. En til að koma í veg fyrir að slíkt fólk verði fyrir áframhaldandi ónæði af tilveru dæmdra barnaníðinga eru einnig til reglur og lög. Ef menn brjót þau er gamla fangelsið ekki langt undan.

En hópæsing gegn þeim hópi manna sem ekki gátu haft hömlur á kynhegðun sinni er álíka sjúk og afbrigðileg kynhegðun.

Ef fólk getur ekki sætt sig við dóma á Íslandi, væri kannski við hæfi að flytjast til landa þar sem 200 ára fangelsi er talið heppilegt, eða þangað sem hendur eru höggnar af mönnum fyrir þjófnað.  

Íslensk dómsyfirvöld og laganna verðir verða að fara að taka alvarlegar á því fólki sem heitir því á opinberum vettvangi að myrða fólk sem tekið hefur út dóm sinn. Morðhótanir gagnvart dæmdum kynferðisglæpamönnum, sér í lagi barnamisgjörðarmönnum, eru glæpsamlegt athæfi og ber yfirvöldum að lögsækja og dæma fólk sem hefur slíkan dólgshátt í frammi á spjallsíðum og ummælakerfum fjölmiðlanna. Annars er réttarkerfið með til þess að nornabrennur haldi endalaust áfram. Furðulegt er t.d. að sjá að það fólk sem telur dæmda morðingja saklausa er hatrammast í æsingi sínum gagnvart dæmdum barnaníðingum.

Þið sem viljið myrða alla í annarri hverri setningu, eruð ekkert betri en níðingar sem leggjast á börn. Kannski er reiðin meiri hjá slíku fólki, því það veit upp á sig einhverja skömm eða hugsun, sem það sem betur fer hafði hemil á. Hugsanir eru ekki bannaðar, en dómur rennusteinsins á engan rétt á sér. Slíkur dómur, sem og pukur með uppreistarmál, varð nú síðast ríkisstjórn að falli.

Lítilfjörleg var sú ríkisstjórn sem ætti að hafa verið í fullu starfi við að rétta hag almennings. En ráðherrarnir voru greinilega fyrst og fremst uppteknir af því að velta sér upp úr dæmdum kynferðisglæpamönnum eða pukra með upplýsingar um uppreist æru þeirra.

Þeir sem fyrstir kasta steininum eru sjaldnast syndlausir. Gleymum því ekki.


Ungur maður frá Sakartvelo kom til Íslands og dó...

Guðmundur Andri Thorsson skrifaði um daginn í Fréttablaðinu með mikilli virðingu um dauða ungs manns. Maðurinn hét Nika Begadze, en íslensk yfirvöld sendu sífellt út rangt nafn hans; Begade og dagblöðin voru tilbúin með sína mynd, t.d. DV, sem afskræmdi nafnið sem varð að Begades eða Begedes. Nika kom til Íslands frá ríkinu Sakartvelo við austanvert Svartahaf. Ríkið er í okkar takmarkaða heimi er enn kallað Georgía eða Grúsía. Georgíunafnið kemur líklegast af því að Persar kölluðu íbúana á því svæði sem Sakartvelo er í dag Gurgan og arabar síðar Gjurchan. Landið/Ríkið heitir í dag Sakartvelo eftir flókna sögu og oft á tíðum blóðuga.

Fyrir utan rangt nafn á manninum sem féll í Gullfoss, fá Íslendingar næsta ekkert að vita um manninn, þó hann hafi verið gestur í landi okkar.

"Við þekkjum ekki sögu hans"... skrifar Guðmundur Andri - Við vitum aðeins hvernig henni lauk, svona nokkurn veginn. En hafa Íslendingar yfirleitt áhuga á sögu útlendinga, þó þeir séu bestu vinir útlendinga og ofsóttra? Ég er ekki í vafa um að Guðmundur Andri leiti sannleikans, en hvað um blaðamennina, sem ekki tókst að hafa upp á réttu nafni mannsins.

Þegar ég skrifa þessar línu veit ég ekki hvort lík mannsins hefur fundist. Íslensk yfirvöld eru heldur greinilega ekki á þeim buxunum að segja óvitum Íslands, af hverju blessaður maðurinn var á flótta og undan hverju. Svo rífst fólk í athugasemdakerfum Fréttablaðsins og Eyjunnar vegna tilfinninga einna eða sjúklegs útlendingaótta og jafnvel sökum fordóma í garð þeirra sem ekki eru hreinhuga vinir útlendinganna.


Ég setti athugasemdir við grein Guðmundar Andra á vísir.is og einnig á Eyjunni. En þar sem Eyjan, með fyrirskipunum réttlátasta manns landsins, Egils Helgasonar, kemur í veg fyrir að ég geri athugasemdir, sést ekki það sem ég skrifa í athugasemdakerfi Eyjunnar. Á Eyjunni vilja menn aðeins hafa sannleikann að eigin ósk - jafnvel þótt hann sé dómadags lygi. Því er ég ekki viss um að margir aðrir en Guðmundur Andri hafi fengið upplýsingarnar um Nika Begadze, sem ég sendi Guðmundi einnig gegnum FB. Þess vegna þetta blogg.

Það er afar furðulegt að íslensk yfirvöld birti rangt nafn unga Grúsíumannsins. Það sýnir áhugaleysi virðingarleysi og algjörlega menningarlega fáfræði þeirra sem um mál útlendinga sjá. Maðurinn frá Sakartvelo ann hét Nika Begadze en ekki Begade eða Begedes - sjá hér.


Að öllum líkindum var Nika meðlimur í AIESEC, ef dæma má út frá YouTube-kynningu hans. AIESEC eru alþjóðasamtökum viðskiptafræðinema. Hann hafði útþrá og áhuga á hraðskreiðum bílum líkt og hann upplýsir, elskaði föður sinn og móður og börn systkina sinna.

Gæti hvarf hans ekki hafa verið slys? Skrikaði ungum draumóramanni fótur á Íslandi? Er mögulegt að hann hafi séð meiri möguleika á Íslandi en í landinu sínu Sakartvelo, sem hann elskaði mjög ef dæma skal út frá myndbandinu hans? Hann hefur ef til vill séð sér leik á borði í landi allsnægtanna og Costcos gnægtahornsins og látið skrá sig sem flóttamann? Við fáum ef til vill aldrei að vita það. En Georgíumenn þurfa í dag ekki að flýja neitt að því er best er vitað.

Sýnum fólki virðingu, áður en farið er að rífast um það nýlátið.


Æran sem allt ætlar að æra

Honour

Er maður sem setið hefur um tíma á skólabekk njósnara- og hryðjuverkaskóla í Austur-Berlín svo fínn af æru og upplagi að honum skuli veitt sendiherrastaða? Er æra slíks manns meiri og betri en þeirra sem ekki vildu selja þjóðina í eilífðar skuldafen út af Icesave?

Er stjórnmálakonan sem nú hefur verið valin til að gegna háu embætti hjá OSCE (ÖSE) rík af æru? Sama manneskjan hefur heimsótt Assad á Sýrlandi til að koma Íslandi í Öryggisráðið, eingöngu til þess að Ísland gæti orðið málpípa Palestínuaraba sem útrýma vilja lýðræðisríki og þjóðinni sem í ríkinu býr. Er æra slíkrar konu ósköðuð, þó hún hafi haldið því fram á fundum erlendis fyrir hrun að Íslenskt efnahagslíf og bankar væru gulltryggðir? Afsakið, en eiga ekki spurningin fullan rétt á sér?

Er þingmaður sem segist vilja drepa menn sem hugsanlega myndu hegða sér afbrigðilega við dóttur hans (sem nú er vart meira en 5 ára) með mikla æru og hreina samvisku. Sami maður laug því að hann hefði orðið fyrir árás skriðdreka Ísraelsríkis og var helsti stuðningsmaður frekar ærulauss manns sem stundaði eiturlyfjasölu og skar loks mann á háls í Reykjavík ærunnar.

3CE3E40300000578-4195498-image-a-2_1486377474097

Allir eru gallaðir, en misjafnlega lagnir við að viðurkenna galla sína og bæta sig. Feður stúlkna sem lentu í gölluðum manni sem misnotaði stöðu sína til að hafa kynmök við börn eru líklega mjög syndlausir menn. Þeir segjast ekki enn „hafa tæmt úr réttlætisbrunni“ reiði sinnar. Slíkir menn verða að hafa það í huga að slíkur brunnur er ekki til og hefur aldrei verið það. En dómstólar eru til og þeir hafa dæmt manninn sem lagðist á börn þeirra. Vilja þessir síþyrstu menn hafa manninn sem lá með börnum þeirra í gapastokki á Lækjartorgi, þó svo að hann hafi setið af sér dóm fyrir glæp sinn? Hvað vilja þeir eiginleg drekka? Blóð?

Er vandamálið ekki miklu frekar að siðgæðið á Íslandi er frekar brenglað. Á Íslandi virðast lög  ekki vera skjalfest til að fara eftir þeim heldur einvörðungu til að sveima vandlega umhverfis þau.  

Hvaða æru hefur þingflokkur sem styður hryðjuverkasamtök og líkir lýðræðisríkjum við nasista (VG, Samfylkingin og Píratar)? Hvað krati (Sema) er í lagi, þegar hann heldur því fram að Tyrkland sé lýðræðisríki, meðan að sami kratinn hvetur samfélagið að kaupa ekki vöru frá lýðræðisríki? Ísland er fullt af skríl sem dýrkar slík gyldi og veit ekki hvað ærleg æra er. Sama fólkið hrópar hæst um mannréttindi og æru.

Nei, án þess að ég sé að taka sérstaklega upp hanskann fyrir Robert Downey, sem misnotaði traust, og hafi samúð með smápíkunum í Reykjavík sem létu lokkast af þúsundköllunum hans og kynæsandi rakspíranum, sýnist mér að margir séu nú frekar rúnir ærunni af eigin gerðum og ættu ekki að tala um breytingu á reglum um uppreist æru manna sem setið hafa út dóm sem þeir hafa fengið. T.d. ekki ráðherra sem ætlar að senda saklausa, kúrdíska flóttamenn úr landi. Hún skipar sér þar með í sveit með fyrrverandi ráðherra sem leitaði stuðnings hjá einræðisherranum Assad sem ofsótt hefur Kúrda í áratugaraðir. Fólk sem leitar stuðnings hjá morðingja til að koma sér í stöðu hjá Sameinuðu Þjóðunum, er að mínu mati fullkomlega rúið allri æru. En ég sé þó enga ástæðu til að setja slíka rugludalla í gapastokk og hreyta í börnin þeirra ónotum. Blessuð börnin geta ekki gert að brenglun foreldranna.

Formaður Pírata, sem er sæmilega löglærð í erlendum háskólum í málefnum stríðsglæpamanna, telur nú að hlutverk hennar sé að taka á móti dómum götunnar svo hún geti notað þá sem greinar og kafla á fundum með löggjafavaldinu, er hins vegar alvarlega afvegaleitt apparat. Hefur enginn næga æru til að tilkynna vesalings konunni að hún er með slíku athæfi og hvatningu að brjóta íslensk lög. Hún er ekki að dæma mann fyrir þjóðarmorð. Hún hefur engan rétt til að reka mál fyrir dómi, en telur greinilega að íslenskur barnariðill eigi að fá harðari dóma en bölvaður stríðglæpadómstóllinn í den Haag gaf morðingjum. Æra píratans lögfróða er afar lítil að mínu viti. En þetta situr samt á æruverðugu Alþingi Íslendinga. Þó hún tjái sig, þarf ekki að ansa því frekar en samflokksmanni hennar sem vill drepa mann og annan.

Æra og heiður er siðferðileg virðing fyrir öðrum, sérstaklega þeim sem eru öðruvísi, minni máttar eða þeim sem hafa misstigið sig og greitt samfélaginu það sem þeir skulduðu því. En nú vilja fleiri og fleiri Íslendingar ólmir fá sömu gildin og nasistar hylltu, nefnilega: Blóð og Æru. Blóðið á að fljóta ofan í brunn svo menn geti svalað sér á því í hefndarþorstanum og hópæsingunni.

Við lifum á hættulegum tímum, þar sem svo kallaðir vinstri menn eru aftur farnir að dýrka sömu gildin og nasistar.  Það er hætta á ferðinni.


mbl.is Á þuklandi læknir að fá réttindi?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kæri Dómsmálaráðherra, gerðu ekki þessi mistök.

Sabre family

Ég hef sent þetta erindi til Sigríðar Á Andersen og afrit til ráðuneytis hennar og útlendingastofnunar. Ég hvet lesendur þessa bloggs að skrifa eða hringja og biðja ráðherrann að snúa við ákvörðun um að reka úr landi kúrdíska fjölskyldu. Þið getið ritað til þessara aðila,

Útlendingastofnun 4440900 - email utl@utl.is .
Dómsmálaráðuneyti 5459000 postur@dmr.is.
Sigríður Á. Andersen dómsmálaráðherra, saa@althingi.is or

Sjá frekar hér:

Sigríður Á. Andersen

Dómsmálaráðherra

Erindi varðandi fyrirhugaða brottvísun Sabre fjölskyldunnar 17. júlí 2017

Virðulegi dómsmálaráðherra

Ég frétti af því að nú hefðu íslensk yfirvöld ákveðið að vísa úr landi fjórum Kúrdum, Fjölskyldunni Sabre, hjónum komnum yfir miðjan aldur og tveimur dætrum þeirra sem eru 17 og 20 ára.

Um leið og ég minni á að Kúrdar eru ofsótt þjóð, m.a. af Tyrklandi, fasistaríki undir harðri stjórn Receps Erdogans, sem Ísland er í mjög góðri samvinnu við í t.d. NATO, langar mig að láta í ljós þá skoðun mína í ljós að þessi brottvísun Sabre hjónanna og dætra þeirra er fyrir mig að sjá óeðlilega grimm og ómannúðleg aðgerð og minnir á brottvísanir gyðinga frá Íslandi í lok 4. áratugar 20. aldar. Um þær aðgerðir forvera þinna í Dómsmálaráðuneytinu hef ég m.a. skrifað um í bók minni Medaljens Bagside sem olli því árið 2005 að þáverandi forsætisráðherra Dana og síðar framkvæmdastjóri NATO, Anders Fogh Rasmussen, baðst afsökunar á aðgerðum fyrri ríkistjórna í Danmörku gagnvart gyðingum og öðrum sem vísað var frá Danmörku af dönskum yfirvöldum á tímabilinu 1936-1943.

Ég vona að þú hafir það náðugt í kvöld með fjölskyldu þinni og verðir ekki ein af þessum ráðherrum sem einhver þarf að biðjast afsökunar fyrir eftir nokkra áratugi, þegar upp rennur fyrir arftökum þínum í embætti að þú og ráðuneyti þitt komuð ekki í veg fyrir reginskyssu í meðferð kúrdískra flóttamanna sem leituðu ásjár hjá Íslendingum. Kúrdar eru ofsóttir af mörgum öfgafullum ríkjum og hópum í Miðausturlöndum, sem ekki virða lágmarksmannréttindi. Það er því afar sorglegt að sjá að þú og ríkisstjórn þín verðið völd að brottvísun kúrdískra flóttamanna um leið og Ísland er í stjórnmálasambandi við suma af verstu ofsækjendum Kúrda. Það er ámælisvert og verður að koma til kasta alþjóðlegra stofnanna, ef íslensk yfirvöld sjá ekki neina galla í slíkum tvískinnungi.

Bestu kveðjur,

Dr. Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
 
----
 
assadasaassadcanbe
 
Á þetta að verða þekktasta aðgerð íslensks utanríkisráðherra? Þarna var Ingibjörg Sólrún Gísladóttir að reyna að koma Íslandi í Öryggisráð SÞ til að geta gerst helsti stuðningsmaður hryðjuverkasamtaka. Til þess taldi hún hentugt að ræða við einn helsta ofsækjanda Kúrda.

Syndaregistur Sólrúnar

Einræðisfruin

Ingibjörg Sólrún er algjörlega óhæf manneskja í stöðuna hjá OSCE (ÖSE). Hvaða brestur er það eiginlega í íslensku þjóðinni sem fær hana (réttara sagt yfirvöld hennar) til að verðlauna óhæft fólk og skussa?

Ingibjörg Sólrún er konan sem leitaði til Assads eftir stuðningi þegar hún vildi koma Íslandi í Öryggisráðið. Ætlunin var að gera Ísland að verkfæri Palestínuöfgamanna. Þegar stuðningur einræðisherra og fanta var ekki viss bakaði hún pönnsur í New York. Hún var með lélega uppskrift eða fúlegg. Sjá hér og hér.

assadasaassadcanbe

Ræðum Osama bin Laden var frestað á Al Jazeera þegar Sólrún heimsótti Egyptaland árið 2008.

post-5051-1113458248

Haldið var upp það með hjólbörum af kampavíni er Ingibjörg Sólrún varð 50 ára. En hver keypti kampavínið? Það voru víst aðeins hjólbörurnar sem greiddar voru af íslenskum skattgreiðenda. Eitt sinn var danskur ráðherra rekinn, því honum (ritara hans) varð það á að láta ráðuneyti greiða fyrir einn vindlakassa.

Ingibjörg Sólrún er konan sem sagði að efnahagurinn á Íslandi væri í fínu lagi – rétt fyrir hrun.

happy_old_days

Ingibjörg Sólrún er konan sem studdi stríðsglæpamanninn Eðvald Hinriksson og ásakaði Ísraelsríki fyrir að standa á bak við tilraunir Simon Wiesenthal Stofnunarinnar í Jerúsalem til að fá íslensk yfirvöld til að rannsaka mál Eðvalds Hinrikssonar (Miksons), sem Eistlendingar hafa nú lýst yfir að hafi verið stríðglæpamaður. Alltaf jafn vís hún Sólrún. Meira hér.

Ingibjörg Sólrún er líka ein af þeim þóttafullu íslensku stjórnmálamönnum sem ekki vildi hitta Shimon Peres þegar hann kom til Íslands. Sjón er sögu ríkari. Sólrún er nasistasleikja og verndari stríðsglæpamanna. Síðar var hún hrjáð að alvarlegu minnistapi - eða er hún bara tækifærissinni?

Imba

Ingibjörg Sólrún hefur sent milljónir króna til Hamas. Geri aðrir betur.

Abba et Imba

Ingibjörg Sólrún ritaði hálfsturlað bréf til Tzipi Livni og ásakaði Ísraelsríki fyrir það sem Palestínumenn aðhafast. Annað pólitískt viðrini hefur leikið sama leikinn (sjá hér). Líklegast er of snemmt að koma honum í embætti erlendis. Menn muna hann enn.

Munið þið þegar Sólrún vildi verða mannsalsfulltrúi ÖSE? Hér er smáupplýsing handa þjóð með Alzheimer.

Munið að Sólrún er ein þeirra kvenna á Íslandi sem hefur liðist það að stunda einræðisherratakta. Er það eitthvað sem við viljum?

Í hlutverki friðardúfunnar sem opinskátt styður PLO og Hamas er Sólrún eins og reitt illfygli. Greinilegt er að ÖSE hefur ekki unnið heimavinnuna sína, enda gólfið þar fullt af sams konar lukkuriddurum, sem kenna í brjósti um hryðjuverkamenn og líkja þolendum nasisma við nasista.

fri_ardufan2_1008182

Friðardans Sólrúnar er krampakenndur og mun það verða ljóst er hún hefur störf hjá OECD.


Lífshætta í Costco

Rusl á þaki

Meira eða minna ak- og offeitt fólk sem flykkist eins og órúið fé í risaverslunina Costco er flest í bráðri lífshættu. Ekki er það hjartaáfall, insúlínsjokk eða tappi sem gæti orðið bani þessa íturvaxna og kaupglaða fólks. Örugglega er hægt að kaupa ódýrustu hjartastartarana á byggðu bóli í Costco og verslunin virðist greinilega hafa bjargað geðheilsu marga síðustu dagana. 

Nei, banamein þessa aumingja fólks gæti hæglega orðið spýtnarusl og annað lauslegt sem liggur á þaki verslunarinnar. Þetta sýna loftmyndir sem Wikileak lak í gær. Spurningar hafa einnig vaknað um að þarna gæti hryðjuverkastarfsemi verið í uppsiglingu?

Yfirvöld verða að loka versluninni nú þegar, þangað til að brakið á þakinu verður fjarlægt. Sorpið á þakinu gæti hæglega fokið í næstu lægð ofan á örvinglað fólk sem ekki finnur kerrur eða frið í sálinni fyrr en það hefur verið rúið inn að beini í Costco. Það má ekki gerast.

Spýtnaruslið má sjá efst á loftmyndinni, þar sem það liggur eins og hráviði á tyrfðu þaki fjárhúss Costcos. Ljóst er að Costco hefur stefnt lífi fólks í bráða hættu og verður að greiða sektir og miskabætur. Ógnin af þessu fyrirætlaða hryðjuverki hlýtur að róa landsbyggðarfólkið sem var búið að plana 500 rútuferðir í Costco til að fylla hlöður sínar og útihús af dómadags rusli.

Þess ber strax að geta, að Óttar í Hættunni verður með bók 'Hættan leynist á Þakinu' og björgunaraðgerðirnar í Costco í jólabókaflóðinu í Costco, þar sem bækurnar verða.... gefnar þeim sem lifðu æðið af.

 

Frétt þessi birtist fyrst í Færeyska blaðinu Sósíalúrín.


Fordæmisgefandi dómur

formdomur.jpg

„Fræðsla um fjöl­breyti­leika manns­ins“ á ekki að vera á hendi þeirra, sem hafa sína ein­hæfu, þröngu og skekktu sýn á kyn­ferðismál. Sam­tök­in 78 eru hags­muna­sam­tök, ekki hlut­lægt og hlut­laust fræðasam­fé­lag. Full­trú­ar þessa sam­taka hafa ekk­ert með það að gera að móta hug­ar­far barna, sem þeir eiga ekki […]

Nú hefur Jón Valur Jensson orð íslensks dómstóls fyrir því að samkynhneigðir hafi einhæfa, þrönga og skekkta sýn á kynferðismálum. Dómstóllinn vitnar í tjáningarfrelsi og alþjóðlega mannréttindasáttmála til stuðnings niðurstöðu sinnar í máli hins sjálfskipaða krossfara, mannsins sem þröngvað hefur sig upp á öll fóstur í móðurkviði með því að gerast sjálfskipaður umboðsmaður þeirra í nafni öfgafulls hagsmunahóps sem hann tilheyrir.

Vitaskuld stenst þetta álit nokkurra dómara ekki lög, og hlýtur að vera þeim sem telja sig verða fyrir aðkasti frá Jóni Vali Jenssyni ærin ástæða til að fara með málið upp í Hæstarétt og fyrir alþjóðadómstóla, ef það þarf til.

Best væri að alþjóðasamfélagið fengi að vita, að land gleðigangna og kvenréttinda sé ekki sjálfu sér samkvæmt í réttindum samkynhneigðra og kvenna - að minnihlutahópar séu í raun fótum troðnir á Íslandi - einnig af dómstólum.

Stöðvum kristnifræðslu í skólum

Dómur héraðsdóms Reykjavíkur er fordæmisgefandi. Með vísun til tjáningarfrelsis og mannréttindasáttmála er ljóst að ekki er lengur stætt á því að fólk með einhæfa, þrönga og skekkta sýn á trú og siðferðismálum, fái að innprenta börnum annarra en sjálfs síns kristna trú. Kristin trú byggir á goðsögn um gyðing sem haldið er fram að hafi verið Messías og sonur guðs. Kristindómur byggir á því að ídentíteti gyðings var rænt, hann krossfestur svo að þeir sem á hann trúa hljóti eilíft líf. Í ofanálag hefur sú kaþólska kirkja, sem Jón Valur tilheyrir, í aldaraðir staðið fyrir ofstækisfullum ofsóknum gegn og morðum á gyðingum sem ekki vildu trúa. Þær ofsóknir leiddu að lokum til kynþáttaofsókna 19. aldar og gyðingaofsókna nasista, sem að lokum leiddu til helfararinnar.

Jesúíta, sem voru á meðal helstu ofsækjenda gyðinga í aldaraðir, hefur Jón Valur Jensson, þessi maður með sína miklu víðsýni og kórréttu sýn á kynferðismálum, rómað bæði í riti og ræðu. Eiga hans líkir að kenna íslenskum börnum um gyðinginn Jesús og óra þeirra sem negldu hann nakinn á kross, án þess að kenna litlum, ómótuðum, íslenskum krílum að ýmsar deildir kristindóms, og ekki síst sú deild sem Jón Valur er gangandi auglýsing fyrir, hafi myrt x milljónir gyðinga og aðra sem drógu ruglið um hinn krossfesta í efa.

Dómur Héraðsdóms, sem sýknar Jón Val af hatursræðu, er einnig dómur sem hrópar til þjóðfélagsins alls um að fornaldarhatur í nafni miður réttlátra trúarbragða verði ekki lengur þolað sem kennsluefni í skólum á Íslandi. Slíka kennslu verða foreldrar, sem trúa á frelsi og eilíft líf gegnum "kinky" krossfestingu að rómverskum hætti, að bera fulla ábyrgð á sjálft. Annars er ekki hægt að krefjast, eigi menn að vera sjálfum sér samkvæmir. En er Jón Valur Jensson það?

Vitaskuld voru ummæli Jóns smánun gagnvart minnihlutahópi vegna kynhneigðar hans - Það sem fyndnast er við þetta allt er, að fólk eins og Jón Valur Jensson, með sín fjölhæfu, víðsýnu og réttu sýn á hið sexúella, er enn pikkfast í missjónsstellingunni, fordómunum og tvískinnungshætti. Slíkt fólk mun aldrei ná upp á það stig umburðarlyndis og þolinmæði sem guð þeirra boðaði, ef ég les bókina um hann rétt.

AMEN (einnig stolið úr gyðingdómi)


mbl.is Jón Valur sýknaður af hatursorðræðu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þeir urðu sakborgningar í nótt

grimur_tvaer.jpg

Þessi frétt Mbl.is greinir ekki frá neinum "sakborningum". Takið eftir orðinu: SAKBORNINGUM sem ég nota. Í gær var í sumum fjölmiðlum talað um, og haft eftir Grími Grímssyni, að

"mennirnir væru grunaðir um að hafa upplýsingar um hvarf Birnu Brjánsdóttur, en að hann vildi ekki staðfesta hvor þeir væru grunaðir um saknæmt athæfi."

En í nótt, þegar ég hafði samband við fréttamann RÚV varðandi skilgreiningar hans í frétt sem hann breytti eftir að ég gerði athugasemd við hana, voru þrímenningarnir frá Grænlandi sem leiddir voru frá borði, orðnir sakborningar. Fréttamaður Útvarpsins tjáði mér þetta - sjá einnig tölvupóstskipti okkar hér. Fréttamaðurinn skrifaði þetta:

"Ég þarf ekki að spyrja Stöð 2, ég talaði við Grím áðan. Hann tók af allan vafa.

Fyrirsögnin er breytt vegna þess að fréttin uppfærðist. Ég bætti inn setningu eftir ábendinguna frá þér áðan - þó hún væri endurtekning á efni sem kom fram fyrr í fréttinni.

En þú getur alveg verið viss. Það leikur enginn vafi á að mennirnir eru grunaðir.

Sakborningar er orðið sem Grímur notaði í viðtali við mig."

Grímur Grímsson lögreglumaður staðfesti þannig við RÚV í nótt fyrir kl. 03.00 að Grænlendingarnir sem færðir voru í land í járnum væru sakborningar, en það kallaði hann þá ekki í gær. Eitthvað hlýtur að hafa komið í ljós við yfirheyrslur?? um borð á skipinu á leið til hafnar eða strax við komuna til Reykjavíkur.

Vona ég svo að Grímur Grímsson, hafi farið að lögum við yfirheyrslur á sakborningunum og virt réttindi mannanna sem sakborninga t.d. rétt þeirra til að  fá upplýsingar um kæruefni samanber 1. mgr. 32. gr. oml. (lög um meðferð opinberra mála) og 3. mgr. 6. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sem lögfestur var á Íslandi með lögum nr. 62/1994.  Vonandi verður réttur þessa sakborninga til að neita að svara spurningum sem varða refsiverða hegðun sem þeim er gefið að sök, samkvæmt 3. mgr. 32. gr. oml. virtur. 

Á Íslandi ríkja enn ágæt lög fyrir sakborninga, þó svo að sagan sýni okkur að lögreglan sé ekki alltaf með þau á hreinu. Í nótt var vitaskuld farið að ofangreindum lögum. Ég býst ekki við öðru.


mbl.is Rannsókn í skipinu lokið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vitfirring er æðsta dómsstig Íslands

Hvarf ungrar, fallegrar konu slær óhug að allri íslensku þjóðinni. Allir tala um málið og hugsar hver sitt. Svo eru þeir sem hugsa meira upphátt en aðrir og það er líka hollt. Enn betra er víst þegar menn tala við sjálfa sig í einrúmi, það er merki um miklar gáfur. Mig grunar að fáir rabbi mikið við sjálfa sig á Íslandi.

Það sem sumt fólk hefur að segja á spjallþráðum fjölmiðla um hvarf Birnu Brjánsdóttur er miklu fremur fordæming í garð óþekktra og ímyndaðra "glæpamanna" en meðkennd með þeirri týndu og fjölskyldu hennar. Strax í upphafi umræðu um hvarfið lýsti ung kona því yfir að hún hefði leitað að rauðum KIA bíl við Keili vegna þess að þar búa margir útlendingar. Getur verið að ungt fólk á Íslandi telji að óathuguðu máli að útlendingar geti einir verið valdir að hvarfi íslenskrar konu. Furðar þá nokkurn að óhæfir dómarar dæmi í málum í slíku landi?

polarseafood.jpg

Hér má sjá glaðlegan starfsmann PolarSeafood að störfum. Margir Íslendingar eru búnir að dæma hann og þjóð hans fyrir hvarf Birnu Brjánsdóttur. Víkingasveitin er á leið í skipið hans. Hér geta menn skoðað auglýsingaefni PolarSeefood.

Svo fór málið út fyrir allan þjófabálk, þegar menn fóru að dæma Grænlendinga á togara. Ekki var fyrr búið að tengja sjómenn á togaranum Polar NANOQ við að hafa tekið KIA bifreið að láni, en að fólk var farið að hamast á fjölmiðlum, t.d. á DV (en ekki bara á DV). Þótt 150 KIA-bifreiðir á þessari gerð og í þessum lit séu til á Íslandi, var einhvers staðar ákveðið að sjómenn á grænlenskum togara væru líklegastir til að hafa setið í þeirri bifreið sem sást bregða fyrir í upptöku frá Laugaveginum. Allt í einu voru Grænlendingar orðnir glæpamenn í hugum Íslendinga. Í skoðunum fólks á t.d. DV og FB kom í ljós að fólk sá fyrir sig "eskimóa" og villimenn sem annað hvort höfðu myrt Birnu eða numið hana á brott á skipinu.  Hvað gerist eiginlega í höfðinu á sumu fólki á Íslandi? Eru útlendingar alltaf versta fólkið á Íslandi? Eru menn ekki skriðnir úr fjárkofunum ennþá, því greinilega er ekki mjög hátt til lofts?

Miðað við hve lág glæpatíðni Grænlendinga er á Íslandi, þá eru litlar líkur á því að álykta eins og fólk gerir. Hugarórar um brottnám íslenskrar konu í grænlenskum togara er víst mest til komin af því að Íslendingar horfa of mikið á bandarískt sjónvarpsefni. Suma dreymdi um að nú yrði henni drekkt á Grænlandshafi, því "Grænlendingarnir fréttu að upp hefði komist um þá". Lesið DV. Svo sjúk er umræðan.

Menn mega heldur ekki gleyma því, að þeir sem vinna á grænlenskum togurum eru ekki allir Grænlendingar. Ef einhverjir af áhöfninni hafa haft einhver afskipti af Birnu Brjánsdóttur, gætu það hafa verið sannir Norðmenn, Danir, Færeyingar, Pólverjar og annarra þjóða kvikindi. Menn verða einnig að muna, að flest fyrirtæki í sjávarútvegi á Grænlandi eru sjaldnast í eigu eða undir stjórn Grænlendinga. Framkvæmdastjórar Polasseafood eru ekki Grænlendingar. Henrik Leth eða Jørgen Fossheim, sem er nýkominn til Íslands til að vera með áhöfn NANOQs þegar þeir koma til hafnar, eru hvorugur Grænlendingur. En í stjórn fyrirtækis þeirra hefur þó setið Grænlendingar sem enga forsendu höfðu til að stjórna fyrirtækjum, t.d. skíðakappinn Michael Binzer, sem á yngri árum keppti á skíðagöngu á Ólympíuleikum, en laug síðar um menntun sína í Noregi, þar sem hann lauk ekki einu sinni námi í íþróttalýðháskóla sem hann var á.

Þótt stjórnarfyrirkomulag í grænlensku efnahagslífi sé oft keimlíkt því íslenska og útgerðamenn þar álíka misjafn sauður og þeir sem gera út á Íslandi, er ekki þar með sagt að grænlenskir sjómenn séu morðingjar vegna þess að þeir taka bíl á leigu á Íslandi. En ef þeir eru líkir íslenskum sjómönnum, gætu þó vitaskuld verið undantekningar.

En hvað fær hluta islensku þjóðarinnar til að dæma áhöfn grænlensk togara? Svarið er að mínu viti: Léleg fréttamennska og furðuleg starfsemi íslenskrar lögreglu, sem mig grunar að hafi séð of margar amerískar glæponamyndir. Þar er sá svarti og indíáninn  alltaf líklegastir til að hafa framið ódæðin. 

Hingað til hafa nú flest ódæðin á Íslandi verið framin af Íslendingum sjálfum. MUNIÐ það landar góðir. Íslendingar eru dugmestu glæpamenn Íslandsögunnar og sumir þeirra ríða líka hrossum í frístundum sínum.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bækur

Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband