21.1.2018 | 10:45
Sveitasæla og kvalræði
Þessi grein Guðrúnar Hálfdánardóttur um Oxycontin og Sachler-fjölskylduna er stórfurðuleg og flaustursleg (hún er m.a. klippt og skorin úr Esquire). Blaðamaðurinn fárast yfir hættulegu lyfi, sem er leyft og sem læknar útdeila. En vinkillin hjá blaðamanni Mogunblaðsins er fyrst og fremst að bauna á framleiðandann og það fé sem hann leggur til af gróða sínum til menningarmála, fjölda safna og stofnana og meira að segja gyðingasafns í Berlín.
Ég held að Guðrún Hálfdánardóttir ætti að reyna að komast að kjarna málsins, og hann er sá að þetta lyf, Oxycontin, er notað og því dreift af læknum um allan heim. Meðan það er eins auðveldlega aðgengilegt og þar er nú, heldur fólk áfram að deyja af völdum þess, sér í lagi þeir sem ná í lyfið og voru fíklar fyrir. Það er ekki nein tilviljun að þetta lyfi er kallað Hillibilly Heroin (kannski væri Sveitasæla tilvalið orð á Íslandi). Menn ræna vopnaðir þessu lyfi í apótekum í Bandaríkjunum. Hinir lesa ekki þær átta blaðsíður með aðvörunum sem fylgja pökkunum. Rök eru lítils virði hjá fíklum og margir í BNA eru ólæsir.
Sachler-fjölskyldan er ekki ein ábyrg, heldur frekar heilbrigðisyfirvöld í fjölda landa, t.d. FDA í BNA, en einnig yfirvöld á Íslandi, þar sem læknar virðast frekar örlátir á verkja og deyfilyf. Á 10. áratug síðustu aldar fóru ýmsir framleiðendur og dreifingaraðilar í gang með herferð til að sannfæra menn um ágæti þessara verkjalyfja fyrir venjulega króníska verkjameðferð, en áður hafði lyfið verið markaðssett sem lyf fyrir sérstaka verkjameðferð, t.d. fyrir krabbameinssjúka í líknarmeðferð.
Það eru svo margir aðrir sem hagnast af kvölum annarra en ein fjölskylda í Bandaríkjunum.
Sem dæmi um annað flaustur í greininni má einni nefna þetta:
"Elsti bróðirinn Arthur Mitchell Sackler fæddist árið 103 og lést árið 1987. Hann var þríkvæntur og hafa börn hans fjögur, öll af fyrri hjónaböndum, barist hatramlega við ekkju hans, Gillian Lesley Tully, um yfirráð yfir auðæfum hans."
Fæddur árið 103. Kannski er Sachler-veldið líka í framleiðslu langlífisefna? Hvenær kemur svo grein frá íslenskum blaðamanni um hættuleg snefilefni í lýsisframleiðslu á Íslandi - efni sem jafnvel geta valdið krabbameini?
Ekki síst á Íslandi verða menn að fara hætta að éta töflur við öllu sem væru það saklaus vítamín. Stundum verða einnig að líta í eigin barm.
En því verður þó vart neitað að t.d. Bandaríkjamenn og Þjóðverjar vilja helst leysa öll sín vandamál með pillum. Eitt sinn vann ég með hópi Bandaríkjamann í fornleifaverkefni á Ströndum. Þeir tóku með sér heila pappatunnu eins og þvottaefni var áður selt í, fulla af alls kyns töflum. Fleiri hundruð töflur af verkjalyfjum og sýklalyfjum. Þeir komu með pillurnar sínar í handfarangri. Ég spurði þá í gríni hvort þeir væru hræddir um að fá malaríu og hundaæði á Íslandi og þeim var ekki skemmt. Leiðtogi leiðangursins var reyndar ættaður frá Appalachia fjöllum, þar sem neyslan á "Sveitasælu" hefur verið hve mest á meðal stuðningsmanna Trumps - sem nú ætlar nú að taka pillurnar frá þeim Í kjölfarið sjáum við örugglega fleiri skotárásir.
Rótina á vítahringnum er ekki að finna hjá framleiðendum einum, heldur hjá stjórnvöldum í löndum þar sem sönn velferð er aðeins til fyrir ríka, og þar sem fólk sem ekki hefur ráð á læknisþjónustu leysir vanda sinn með taumlausu pilluáti til að leysa lífsvanda sinn og verki sem er FÁTÆKT Í EINU RÍKASTA LANDI HEIMS. Og slíkt þjóðfélag þykir sumum á Íslandi bara fínt og til fyrirmyndar. Þeir myndu vart sætta sig við það sjálfir.
![]() |
Hagnast á kvölum annarra |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 22.1.2018 kl. 08:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
23.12.2017 | 09:25
Hannes er kominn út fyrir horn
Íslenskir fjölmiðlar hafa undanfarna daga haft hátt um kennsluaðferðir og kennsluefni Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar (HHG) prófessors við HÍ.
Ég ritaði athugasemdir við tvær (hér og hér) af þeim greinum sem birst hafa um málið í DV. Því miður hef ég ekki í nokkur ár getað gert athugasemdir á DV, þar sem hégómlegur blaðamaður þar á bæ sem ég leiðrétti um árið var svo lítill kall að hann ýtti á einhverja hnappa og typpi til þess að ég gæti ekki sett athugasemdir við villur hans og yfirleitt á athugasemdakerfi DV.
Vegna afar ófyrirleitinnar framkomu HHG við mig nýverið, þá er hann hélt fram staðlausum stöfum um mig í tveimur opinberum greinum sínum (sjá um málið hér), undrar það mig ekki að öðru heilvita fólki blöskri framferði mannsins á öðrum sviðum.
Það sem ég hef nú lesið um kennsluhætti hans og kennsluefni vekur hryggð. Í bók HHG er að finna skoðanir/rökræður um nauðgun, sem brýtur í bága við íslensk lög og almennt siðgæði. Maður sem hefur þá skoðun á nauðgun í dæmi sem hann rökræðir með, líkt og það sem HHG setur fram í bók eftir sjálfan sig sem hann kennir, er úr öllu samhengi við akademíska hefð. Maður sem telur það eðlilegt, að rökræða með þeirri skoðun að nauðgun sé aðeins úrþrifaráð, er dólgur í íslensku menntakerfi. Rökræður taka ekki aðeins eina hugsanlega skýringu. Ef skýringing er ein og stök erum við ekki að tala um rökræður, discussion, heldur alhæfingu, postúlat.
Hannes fer ugglaust brátt mikinn um að það séu í gangi ofsóknir í sinn garð af höndum kommúnista og einhverrar klíku vegna þeirrar umræðu sem nú fer fram. Það er galið og fjarri öllum sannleika, því ég er t.d. ekki kommúnisti, og algjörlega fyrir utan klíkur. Það sem ég skrifa hér eru ekki ofsóknir heldur andsvör einstaklings sem hefur því miður orðið fyrir því að HHG ljúgi um mig opinberlega. Það sem stendur í kennsluriti Hannesar eru hins vegar lítilsvirðing á fórnarlömbum og það er enn alvarlegra.
Hér koma athugasemdir mínar á DV, sem menn hafa aðeins geta lesið á FB minni, því DV leyfir ekki öllum að gera eðlilegar athugasemdir, því hégómi sumra blaðamanna er greinileg svo mikill.
I
Háskóli Íslands og rektor skólans, Jón Atli Benediktsson, verða að taka af hörku á þessu máli. Kennsluefni og kennsluhættir HHG eru óásættanlegir fyrir stofnum sem vill láta taka sig alvarlega. Fordómar Hannesar í garð ýmissa hópa er glæpsamlegur. HHG telur að hann geti vaðið uppi með og lygar um fólk opinberlega og í kennslu sinni og það fyrir skattpeninga landsmanna. Ég varð fyrir því um daginn og ég sætti mig ekki við ósiðlega meðferð Hannesar á beiðni minni til hans um að hann birti afsökunarbeiðni. Það ætlar hann sér greinilega ekki að gera https://fornleifur.blog.is/blog/fornleifur/entry/2207838/ Ég kallaði grein mína um aðfarir Hannesar gegn mér í fjölmiðlum "Hannes á hálum ís". Nú sýnist mér að ísinn undir honum sé brotinn. Hann verður að fjarlægja þetta fasíska og mannfjandsamlega kennsluefni sitt af kennsluskrá HÍ.
(Þessi athugasemd var sett við þessa grein á DV)
II
Samtökin AECR, sem nefnd í skrifum DV um mál HHG, sem nú hafa breytt um nafn og kalla sig ACRE, unnu að stofnun samtaka sem kallast Platform of European Memory and Conscience, þar sem Hannes Hólmsteinn er einnig virkur. Alþjóðleg samtök gyðinga, DefendingHistory, sem ég er meðlimur í hefur bent á það hvernig þessi samtök sem HHG er í, vinni að því skipulega að gera lítið úr helför gyðinga í Austur-Evrópu og líkir henni við alls óskylda hluti til að svala þorsta sínum í hálfsjúklegu kommúnistahatri.
Í Platform of European Memory and Conscience hefur Hannes unnið með sænskum stjórnmálamanni og fangelsistannlækni, Göran Lindblad, sem er einna helst þekktur fyrir það í Svíþjóð að hafa kvenna og karlafatafellur á kosningafundum sínum: https://www.expressen.se/ /nakenshow-ska-salja-moderat-rik / Lágkúran hefur greinilega engin takmörk. Hannes gerir lítið úr nauðgunum í bók sinni sem var framleidd sem samstarfsverkefni við samtök hægrimanna í Evrópu og samstarfsmaður hans frá Svíþjóð kemur sér áfram í stjórnmálum með nektarsýningum á kosningafundum. Í Eystrasaltslöndunum og víðar koma þessir mann fram sem réttlætarar fyrir stefnu yfirvalda óþroskaðra ríkistjórna sem vilja gera fjöldamorðingja gyðinga að frelsishetjum landa sinna. Ég hef á vefsíðu DefendingHistory hópsins skrifað þessa grein http://defendinghistory.com/holocaust-obfuscation-show/67054 um störf Hannesar þar. Þau eru honum og íslensku háskólastarfi til skammar.
European Memory and Concience, samtök þau sem HHG starfar með, eru samviskulaus þrátt fyrir þetta "Concience" sem þeir hafa klínt á titilinn. Þau vinna að því ljóst fremur en lent, að mæra morðingja gyðinga í Eystrasaltslöndunum. Við sjáum þetta samviskuleysi þegar HHG hélt ræðu í Brussell í vor og bar þar saman á afar ósmekklegan hátt helförina gegn gyðingum við morðstefnu ráðstjórnarríkjanna, sem var allt annars eðlis en útrýmingarstefna nasismans gegn gyðingum. Hannes er meistari í ofureinföldum á sögulegum viðburðum.
Öllum má vera þetta samviskuleysi ljóst, þegar eftir HHG er haft í Brussell: "Gissurarson said that the historian also had a duty to listen to, or even to recreate, the voices of those who had been silenced by force. The despots should not be allowed to leave this world in quiet satisfaction that their misdeeds had not been recognised and registered" á meðan hann leggur sem erlendur prófessor blessun sína yfir mæringar á gyðingamorðingjum í Litháen, Lettlandi og Eistlandi.
Öllum má vera ljóst að Hannes talar heldur ekki gegn misyndismönnum er hann skrifar bók sem notuð er við kennslu í HÍ, og sem gefin er út undir merkjum ACRE, þar sem hann lýsir í því sem hann kallar "rökræður á sjónarmiðum" að nauðganir séu örþrifaráð. Áhugi á fórnarlambinu og uppgjörið við misyndismanninn, sem HHG lýsir yfir að hann hafi brennandi áhuga á, koma ekki heim og saman við þá "kvenfyrirlitningu, fitufordóma, kynþáttafordóma og niðurlægjandi orðræðu um fatlað fólk, niðrandi tal í kennslutímum um feita og fatlaða" sem greint er frá í yfirlýsingu 65 núverandi og fyrrverandi nemanda í stjórnmálafræði við HÍ.
Mér sýnist HHG vera samviskulaus og siðlaus í þeim dæmum sem hann tekur til stuðnings rökræðum sínum á sjónarmiðum í bók sinni sem er gefin er út í tengslum viðö ACRE. Hann tekur ekki eðlilegt tillit til fórnarlamba frekar en hann gerir í samtökum evrópskra hægrimanna þegar þau hjálpa öfgamönnum í Eistlandi, Lettlandi og Litháen til að minnast morðingja gyðinga sem þjóðhetja. Mér er næst að halda að HHG sé eiginlega nákvæmlega sama um öll fórnarlömb. Hans eina markmið er að sverta sósíalisma eins mikið og hann getur og með öllum ráðum, jafnvel með að gera þá sem börðust gegn honum að hetjum þó þeir hafi myrt þúsundir saklausra gyðinga. Krossför HHG gegn vinstristefnu er öllum kunn, en hún þarf ekki að enda í glapræði eins og stuðningi við lönd sem vilja gera gyðingamorðingja að þjóðhetjum árið 2017. Kalda Stríðinu og svínlegheitum þess er lokið.
---
Ég vona að Jón Atli Benediktsson rektor HÍ taki á máli HHG af hörku. Það er skylda rektors, sama hvar hann stendur í litrófi stjórnmálanna. Mig langar einnig að biðja rektor um að skýra hvernig prófessor í HÍ sé stætt á því að fara með rangt mál um menn í fjölmiðlum í greinum þar sem viðkomandi prófessor skrifar undir titlinum "Prófessor við HÍ". Ég hef beðið HHG um að biðjast afsökunar á lygum sínum gegn mér í tveimur fjölmiðlum fyrr í þessum mánuði (desember 2017). HHG hefur ekki gert það, en skrifaði eftirfarandi orð í tölvupósti er ég hafði beðið hann um að leiðrétta ósannindi þau sem hann fór með um mig:
Auðvitað tek ég það alvarlega. En þú tekur þetta allt of óstinnt upp. Menn mega túlka aðra á sinn hátt.
HHG má ekki og getur ekki leyft sér að "túlka" með því bera á menn ósannindi líkt og hann gerði í greinum í Morgunblaðinu og á Pressunni. Það varðar við lög. Þegar hann lýgur því upp á mig að ég hafi sagt eitthvað um Halldór Kiljan Laxness, sem ég hvorki hef skrifað né sagt, er hann að fremja lögbrot og svína mig til í opinberri umræðu. Það sæmir ekki manni í hans stöðu. Því fyrr sem hann gerir sér grein fyrir því, því betra.
Miklu verra en lygarnar gegn mér er stuðningur Hannesar við samtök sem gera lítið úr hörmungum þeim sem gyðingar urðu fyrir með kjánalegum samanburði við hræðilega atburði, sem eiga þó mest lítið skylt við hörmungar helfarar Evrópubúa gegn gyðingum álfunnar á 20. öld.
Ef HHG hefur áhuga á alls kyns fórnarlömbum, þá mæli ég með því að hann rökræði ekki um þau í bókum sínum og kennslutímum eins og fíll í postulínsbúð.
Mannréttindi | Breytt s.d. kl. 10:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.12.2017 | 14:10
Jón Valur sýnir sinn innri mann, svona rétt fyrir jólin
Og sá innri er alls ekki fagur.
Var Jesús til, spyr Jón Valur Jensson enn eina ferðina. Hann fer á stað með miklum látum vegna bókar eftir virtan bandarískan guðfræðing, sem heitir Bart D. Ehrman og er prófessor við University of North Carolina.
Jón Valur, sem kærður hefur verið fyrir fordóma í garð minnihluta, fer fram með miklu offorsi og hatri í garð prófessorsins bandaríska á bloggi sínu Kristin Stjórnmálasamtök.
Nú sé ég ljóslega að þau samtök, ef þau telja þá nokkurn annan en Jón Val, eru samansafn eins gyðingahatara.
Jón Valur ærist í grein um niðurstöður Bart D. Ehrmans varðandi hinar vandfundnu samtímaheimildir um Jesúm, og kemst svo að niðurstöðu:
Þar fengum við að sjá meinið sem angrar Jón Val. Nú, eftir að hafa étið hann að innan, dreifir það sér á yfirborðinu svo allir sjá. Krabbinn sem hrjáir Jón Val er gyðingahatur, og greining hans á Bart D. Ehrman er vitaskuld kolröng.
Bart D. Ehrman er ekki gyðingur frekar en Bart Simpson, og hefur aldrei verið það. Hann er hins vegar virtur guðfræðingur, sem ekki verður sagt um Jón Val Jensson. Ehrman trúir á Jesús, en leyfir sér réttilega að benda á að heimildir um hann frá fyrstu öldum kristni séu af mjög skornum skammti.
Fyrir það eru menn hengdir og stimplaðir sem gyðingar af Jóni Val.
Ljótt, en svona lagað þrífst á Moggablogginu árið 2017. Fyrir utan alla þá íslensku skíthæla sem ekki telja að gyðingar megi eiga sér höfuðborg í landi sínu.
Best að vera ekki að óska ykkur gleðilegra jóla, því þið eigið þau svo sannarlega ekki skilið. Þið farið í Jólaköttinn með Jóni Val sérfræðingi í tilvist þeirra sem hann hatar.
Trúarofstæki | Breytt 21.12.2017 kl. 14:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (20)
14.12.2017 | 09:53
Var fyrsta íslenska fegurðardrottningin njósnari nasista?
Fornleifur frændi var um daginn með langa grein, þar sem hann bætti aðeins í eyðurnar á sögu Thorsaranna.
Thorsaranir, afkomendur Thors Jensens, dansks kaupahéðins sem rak á fjörur Íslands, hafa lengi verið "grunaðir" af íslenskum gyðingahöturum um að vera af "gyðingakyni". Því fer nú heldur betur fjarri.
Það rekur Fornleifur í nýrri grein sinni, bætir við nýjum upplýsingum um George Lincoln Rockwell tengdason Thorsaranna sem gerðis nasistahöfðingi i Bandaríkjunum, sem og bróður Thors Jensens, Alfred Jensen Raavad, sem var framarlega í samtökum gyðingahatara í Danmörku.
Nú minnir Fornleifur á enn einn nasistann í þessu merkilega ætt Thorsaranna, en það var hugsanlega fyrsta fegurðardrottning Íslands. Einn af fyrstu ritstjórum Morgunblaðsins, Vilhjálmur Finsen, síðar sendiherra, ritaði um unga konu, "Guðrúnu", sem gekk í lið með þýskum njósnurum í Kaupmannahöfn, og það frekar lágrétt. Lýsingar Vilhjálms Finsen passa furðulega vel við ævisögu Lóló, fluggreindrar stúlku úr Reykjavík og fyrstu fegurðardísarinnar á Íslandi, sem giftist Thorsara árið 1942.
Fornleifur leitar fleiri upplýsinga um þessa konu. Lesendur þessa bloggs, sem eru oftast fleiri en Fornleifs, gætu kannski haft einhverja hugmyndir eða upplýsingar sem þeir gætu deilt með mér og Fornleifi og fróðleiksfúsri þjóð.
Myndin efst er af Lóló, og heldur hún á bikar sem hún fékk til eignar eftir að hún hafði unnið fegurðarsamkeppni sem Vikan stóð fyrir (sjá hér og hér).
Var fyrsti íslenska fegurðardrottningin flagð undir fögru skinni eða blásaklaus stúlka af útgerðamannsheimili?
Farið á Fornleif
Sagnfræði | Breytt s.d. kl. 23:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.11.2017 | 11:21
100 % kvennaþing takk eða Alþingislás
Hörmulegar eru þessar lýsingar. Halda mætti að besefinn á stórum hluta íslenskra karla sé alltaf úti að kíkja eða fastur í rennilásnum. Þeir eru gramsandi á hvaða konu sem er, en helst ekki sinni fallegu eiginkonu.
Ég hafði aldrei ímyndað mér að stjórnmál gætu gert karla svona óskaplega graða og vitstola og að greðjan væri aladrifkrafturinn í pólitík. Getur hugsast að einhverjar konur hafi hagað sér á sama hátt? T.d. ráðherrar sem héldu framhjá á fundum erlendis? Varla.
Þetta vandamál er auðvitað ekki aðeins til á Íslandi, sem vitaskuld afsakar ekki nokkurn skapaðan hlut. Karlar hafa alltað notað kyn sitt og fallþunga til að halda konum niðri.
Ekki eru þetta eintómir órar í konunum? - fjandakornið nei!
Dagpeningarnir á vinnufundum hins opinbera virðast fara í drykkju, kynsvall og alls kynsofbeldi. Maður hugsar með hryllingi til þeirra kvenna sem létu undan hinu opinberu kynæði.
Orð eins og drekka, fullur, brjóst og klof virðist vera það sem konurnar sem skrifa minningar sínar úr stjórnsýslu muna best frá fundum og starfi sínu.
Er nema von að allt hafi farið á hausinn á Íslandi? Stjórnlaus typpi eru ekki vænleg til árangurs.
Lausnin er Alþingislásinn, sjá ofar. Hann fæst aðeins í small og extra-small, sem smellpassar á íslenska stjórnmálamenn, forstjóra, yfirmenn og aðrar karlrembur. Setjið Lilla undir lás og slá.
![]() |
Sagðist bara þurfa að fá að ríða henni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
3.11.2017 | 20:09
Myndir úr skordýrabúi
Eftir að fráfarandi skordýrafræðingur Pírata, sem er hin versta eiturpadda, greindi skordýraflóru íslenskra stjórnmála, vakti það furðu mína að skordýralæknir einn, sem er mikil og feit fiskifluga samkvæmt eiturpöddunni, hafi boðið býflugum (S), mýflugum (P) og maurum (V) út í sveit. Kakkalakkar (D), Hrossaflugur (M), Drekaflugur (?) og Dægurflugur (Svört fortíð) voru ekki velkomnar að skordýrabúinu Stóru-Langloku á Hrunamannaafrétti - einhvers staðar fyrir austan fjall.
Eins og lengi hefur verið vitað í fornvistfræði, eru fiskiflugur, sem buðu í partíið, gleiðopnar í báða enda og bjóða stundum býflugum, mýflugum og maurum að leggja egg í afturendann á sér. Vel fór á með smádýrunum og voru allir þreifiarmar á fullu. Stóra geitungabúið í Evrópu (VESPA) var rætt lítillega og suðuðu býflugurnar vægt um að komast þangað inn.
Svo vildi til að ein býflugan, hunangslaus að öllu leyti, bar með sér tíkarþef að Norðan að skordýrabúinu. Þetta uppgötvaði hundurinn á bænum, Skarni Vænstan, og lagðist strax á fót býflugunnar og reið honum kátt. Þetta hátterni hundarins fór fyrir brjóstin á maurunum og mýflugunum sem reyndu að stilla Skarna með því að kalla hastarlega að honum: Ussu svei, Weinstein.
Haft er eftir öðrum sérfræðingum að MacSkýto byssufluga hafi verið heppinn, þar sem Skarni, sem er fyrrverandi eiturlyfjahundur, hafi ekki fundið á honum róandi töflur.
Haft er eftir Kötu brosmaur, að ekki sé svo mikill munur á fiskiflugum og maurum; Öll sé óværan ættuð úr sveitinni úr mykjuhaug eða gömlu, votu heyi.
Greinilega var þetta skordýraþing vel lukkað fyrir utan aðfarir Skarna, sem hefur greyið fengið svo gott pólitískt uppeldi að hann sýnir strax vilja eigenda sinna í einu og öllu, slefandi og glaður. Sérfræðingar telja sig hins vegar sjá mjög glögglega, að Skarni fór fyrst að sýna atlot að býflugunni þegar hún fór að minnast á evrópska geitungabúið.
Það verður aftur suðað í Hrunahrepp á morgun, þegar afstaða Íslands í utanríkismálum (þ.e. til Ísraelsríkis og Palestínumanna verður rædd). Búist er við mikilli samstöðu. Ef eitthvað sameinar fyrrnefnd skordýr er það hatur þeirra á gyðingum. Leitt að hrossaflugurnar gætu ekki verið með.
Vinnumaurar og fiskiflugur munu örugglega hrifla saman heyi, hestaskít og kúadellu og kalla það ríkisstjórn.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 4.11.2017 kl. 09:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
30.10.2017 | 17:34
Fallerí, fallera
Spacey datt út skápnum að hætti Kaizer Söze, Simon Cowell datt niður stiga og Pawel Bartoszek datt af þingi. Það hlýtur að vera sárt að detta.
Karlar á Íslandi eru furðu valtir á stallinum, enda eru orðnar mjög fáar konur á bak við manninn sinn. Þær duttu nú líka margar af þingi.
Kannski er það þess vegna að Sigmundur Davíð datt út úr panamanska peningaskápnum og beint aftur inn á þing, uppreistur af sjálfum sér. Mér dettur nú í hug að það sé nú meira vegna algjörs minnisfalls (Allsheimers) hjá stórum hluta þjóðarinnar.
Inga Snæland lét það detta út úr sér á aftursætinu hjá Simma bimm að hún væri af sígaunaættum. Féllust Sigmundi þá hendur eftir að hún las lófa hans. Nú fellur hann einn og óstuddur.
Þó Þorgerður Katrín sé pólitískt kúbein, er Viðreisn ekkert annað en endurhæfingarstöð fyrir dottið fólk. Pabbi Benna borðaði með Hitler í stríðinu. Það þætti í sumum löndum nóg til þess að afkomendurnir héldu sig alfarið frá stjórnmálum.
Katrín Jak er vitaskuld "dottningin" og Bjarni hefur alltaf verið prins, þó við sjáum seint kónginn. Píratar eru eins og óvirkjaður Dettifoss í meðferð á geðdeildum og hafa aðeins áhuga á einhverju kynferðislegu. Spúkí!
Samfylkingin datt upp yfir þegar hún tilkynnti að hún ætlaði að hrægammast á sparifé gamla fólksins. Fljótt dó byltingin sem hefði getað fengið 12 sæti ef hún hefði ekki asnast til að detta ofan á sparifé gamla fólksins.
Framtíðin er ekki björt og Bundproppen er líka rokinn út í veður og vind. Hann var límið í fyrri stjórn.
Hvað hefur fólk gert til að fá þetta yfir sig. Það er því miður ekki hægt að kjósa það sem ekki er í boði.
Ég man vart eftir jafnaumum kosningum. Allir stjórnmálamennirnir hugsuðu einvörðungu um sjálfa sig og enginn er í þessu fyrir fólkið í landinu. Allir töluðu um mál sem engu máli skiptir.
þessar kosningar fá falleinkunn.
![]() |
Kevin Spacey kemur út úr skápnum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
18.10.2017 | 05:54
Rauð ýsa er kosningarspá í boði náttúrunnar
Rauða ýsan sem landað var á Skagaströnd er sending og fyrirboði guðanna til Íslendinga um það sem koma skal í pólitík. Nú er það rautt maður - og sala landsins til ESB gæti verið yfirvofandi.
Trúðafiskarnir í Bjartri Framtíð, furðufiskarnir í Pírötum og hvalirnir í Viðreisn eiga sér ekki von. Bláhvalurinn er orðinn að náhveli og rekinn rotinn í land. Nú draga menn rauðar ýsur sem vilja á markað í Brussellu.
Ýsan er rauð okkur til aðvörunar. Því ef að Íslendingar selja sig í ESB, hverfur allur fiskur af Íslandsmiðum ofan í ofurgráðugar þjóðir ESB, sem sjálfar eru búnar að eyða og útrýma fiskistofnum sínum.
Hlustið á náttúruna. Ferðamenn og flóttamenn koma aldrei í stað freðfisks og rauð ýsa er aðeins afar sjaldgæft rannsóknarfyrirbæri.
![]() |
Óvenjulegri ýsu landað á Skagaströnd |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
15.10.2017 | 19:51
Björk er fín
Ég var ungur. Hrokkinkollur. Þegar ég horfði ekki á stöðvarmerki RÚV og drakk Sinalco, vann af og til sem sendisveinn á opinberri stofnun. Það má alveg koma fram að ég vann hjá RÚV á Skúlagötunni. Það var engin skítastofnun í þá daga.
Eitt sinn sem oftar var ég að fara niður með lyftunni á Skúlagötu 4, sem var sívöl í laginu. Í lyftunni voru staddar tvær konur um miðjan aldur. Ekki voru þetta þó miðaldra kvenrembusvín, því þær eru vitaskuld ekki til.
Ein þessara kvenna gerði sér lítið fyrir og stakk vísifingri sínum inn í eina af mörgum slöngukrullum mínum sem héngu á enninu á mér.
Þetta kom vitanlega mjög illa við mig og ég vissi ekki hvað á mig stóð veðrið. Þó konan, sem var þulur, hefði aðeins borað í krulluna var eins og hún hefði rifið í pung mér.
Menn á 15. aldursári eru mjög viðkvæmir við allri líkamlegri nærveru kynjanna, og ég var sérstaklega viðkvæmur, enda með krullur.
Ef konan hefði ekki sagt eitthvað og bjargað þessari pínlegu uppákomu, er ég hræddur um að ég hefði aldrei borið barr mitt eftir þetta. Ég hefði orðið pírati og lent í meðferð fyrir hverjar kosningar.
Konan í lyftunni sagði með sinni landsþekktu rödd: "Vilhjálmur, er þetta permanent eða þínar eigin krullur? Ég vildi að ég væri með svona hár".
Ég hafði ekki vit á því að segja "G... , þetta eru Carmen-rúllur - annað ekki". Ungir menn eru svo kúgaðir og bældir á þessum árum að líklega hefur aðeins heyrst veikt: "Grr, ggung" frá mér.
Maður var svoddan þunnildi á þeim árum sem konur potuðu í hárið á mér.
Þetta voru ugglaust aðeins móðurlegar tilfinningar sem komu fram í konunni í lyftunni og hún kyssti mig ekki einu sinni á kinnina. Konan sem potaði í mig slapp því við sálfræðinginn og ég hafði engin vandamál út af þessu - nema hvað mig dreymdi þetta stundum alveg fram undir fertugt. Vaknaði oft í svitabaði.
Ég vil þó taka fram að ég hef mikla samúð með Björku og öðrum frægum prímadonnum sem hafa orðið fyrir aðkasti að völdum siðlausra manna. Sér í lagi þeim sem lent hafa í Lars von Trier. Hann er svo djövull slísí og sick að það er jafnvel erfitt fyrir karla gera sér það í hugarlund.
Ég lýsi stuðningi mínum baráttuna við hið ógeðslega karlpungaveldi, sem er ríkjandi í nær öllum ríkjum heims nema á Íslandi.
Niður með greðjukarlinn! Við lifum á 21. öld.
![]() |
Var kynferðislega áreitt af leikstjóra |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
7.10.2017 | 05:59
Erdogan spældur á heimavelli
Það er greinilega ygglibrún á Erdogan eftir glæstan sigur íslenska landsliðsins á því tyrkneska. Hver getur ekki skilið það?
Erdogan er, fyrir utan að vera forseti Tyrklands og Kúrda fram í rauðan dauðann, einnig verndari allrar stór-tyrkneskrar knattspyrnu. Þeirri vernd er nú lokið og eru tyrkneskir landsliðsmenn í fótbolta hvergi óhultir fyrir fýlunni í Erdogan. Á heimasíðu einni í Tyrklandi hafa nú þegar verið færðar sönnur fyrir því að 7 fyrrv. landsliðmenn Tyrklands séu í raun Kúrdar og einn laungyðingur.
Helst hefði Erdogan viljað lýsa stríði á hendur Íslandi, en þá rann upp fyrir honum sú bitra staðreynd að landið, þar sem 11 menn eru betur þroskaðir til fótanna en höfuðsins, eru meðfélagar hans í NATO.
Erdogan lét þau orð falla eftir kvöldbænir sínar í gær, að engum væri lengur treystandi, og að greinilegt væri að hann yrði að leika alla landleiki Tyrklands einn og hjálparlaust.
Eins og hann sagði: Gürgel ürgun boklava Tÿrkiet lokum bömmer Islandiet futüllumkum Solo Tayiip Sosiijs!!
Slagorð nýs landsliðs Tyrklands hefur verið hannað af yfirgrátkonu Erdógan-veldisins og verður HÜ,HÜ,ÜH. ühühüh......
![]() |
Landsliðið stelur erlendum fyrirsögnum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Pepsi-deildin | Breytt s.d. kl. 06:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Bækur
Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs
-
Nýtt blogg um fornleifafræði
FORNLEIFUR -
Þrælasalar í Norðurhöfum
Grein í Lesbók Mbl. 1999 -
: Ritaskrá 1972-2013 -
Fyrri færsla
Jakki Kiljans Laxness -
Bein Páls Biskups
Kveðskapur -
: Flóttamaðurinn Alfred Kempner -
Pepsi var á Ströndum
Gosdrykkjasaga -
Mótmælum Durban II
Meira -
Ved Helvedes Port
Grein mín í SKALK. Nr.4,1994. -
: Gyðingar á Grænlandi
Fyrri færsla og tenging við grein eftir mig á dönsku um gyðinga á Grænlandi -
Flogið hátt
Grein mín um fyrsta flug flugbels á Íslandi -
Fyrri færsla
Líkþráir Íslendingar -
: Lesið hér (ISBN: 978-965-218-066-7)
Behind the Humanitarian Mask; The Nordic Countries, Israel and the Jews. Edited by Manfred Gerstenfeld. -
Fyrri færsla
Vinir útlendinganna -
Fyrri færsla
Nakinn sannleikur -
Ungr var ek forðum
Færsla um óeirðir og læti í æsku minni -
Fyrri færsla
Þegar Gúttó varð samkunduhús gyðinga -
Fyrri færsla
Vive l'(Gr)islande -
Fyrri Færsla
Nifalt húrra -
Íslenskar frúr í Andvörpum
Um ferðir útrásar-Íslendinga á 16. öld. Lesbók Morgunblaðsins 28.águst 1999. -
Fyrri færsla
Berlínarboogie Laxness -
Fyrri færsla
Pabbi Þórs var myrtur í Auschwitz -
Falskir Íslendingar
Grein um þjóðarstolt -
En dansk krigsforbryder
Grein í Weekendavisen um versta stríðsglæpa- mann Dana, sem dönsk yfirvöld vildu helst gleyma. -
Anti-Semitism in Iceland. Is that possible? -
Iceland, the Jews, and Anti-Semitism, 1625-2004
Grein á ensku um gyðinga á Íslandi -
Ich weiss, was ich zu tun habe
Grein mín um Georg F. Duckwitz, nasistann sem á að hafa verið potturinn og pannan við björgun gyðinga í Danmörku. Í greininni sem birtist í tímaritinu Rambam 15:2006 er gerð grein fyrir fjölmörgu sem danskir sagnfræðingar hafa gleymt að rannsaka. Hlutverk Duckwitz verður nú að endurskoða. -
Grein
The King and the Star í: Denmark and the Holocaust (2003) (ISBN: ISBN 87-989305-1-6) -
: Rescue, Expulsion, and Collaboration: Denmark's Difficulties with its World War II Past
Jewish Political Studies Review 18:3-4 (Fall 2006; Tímarit sem ég hef skrifað töluvert í -
: 20 Begivenheder der skabte Danmark (ISBN: 87-02-0516-7)
Ég er meðhöfundur að einum af köflum bókarinnar. -
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson: Medaljens Bagside - Jødiske flygtningeskæbner i Danmark 1933-1945 (ISBN: 87-91393-60-4 ) Forlaget Vandkunsten 2005. Bók mín um meðferð danskra yfirvalda á flóttafólki á 4. og 5. áratugi 20. aldar.
Meira
Nýjustu færslur
- Viðreisnarklappstýran
- Tapað-fundið á DV
- Ekki fleiri sokka frá Íslandi, TAKK.
- Trumpur Eyjajarl
- Á mér stendur ..... Bjarni Ben
- Minnislaus síðan í síðustu ESB-kosningu
- Gamlir dónar sem fokka sér - Meet the Fockers II
- Icelandic Police Bared
- Niðurstaðan: KiSS or Bæjarins beztu
- Zelenskij fór í ranga flugvél - verður í Færeyjum næstu dagana
- Sjúklega svæsinn gyðingahatari er vinsæll á Moggablogginu
- Valdemar á svölunum er látinn
- Svæsnir fordómar eru ekki hluti af málfrelsi og tjáningu
- Ástráður eins og lús á feldi
- Utanríkisráðherra eyðir um efni fram í útlöndum
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (16.6.): 4
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 37
- Frá upphafi: 1355436
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 28
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Apríl 2025
- Mars 2025
- Janúar 2025
- Júlí 2024
- Apríl 2024
- Febrúar 2024
- Desember 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Ágúst 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Júlí 2021
- Maí 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- Ágúst 2020
- Maí 2020
- Nóvember 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Júlí 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Janúar 2017
- Nóvember 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Nóvember 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007