20.3.2018 | 09:00
Bréf til Alþingis vegna umskurðarbannstillögunnar
Það er afar áhugavert að lesa þau bréf sem háttvirtu Alþingi hafa þegar borist vegna tillögu nokkurra þingmanna til að banna umskurð drengja - og um leið gera foreldra þeirra að ótíndum glæpamönnum. Ég hef nú lesið þessi bréf. Ágæt bréf eru þarna inni á milli, en fyrir utan bréf frá samtökum gyðinga erlendis og þeirra sem þekkja til umskurðar, þá er þarna þunnur þrettándi frá öfgamönnum, kynlegum kvistum og sérvitringum. Mér þykir leitt að sjá slík bréf.
Mér þykir líka leitt að sjá að bréf hafi ekki borist frá gyðingum á Íslandi eða múslímum, en afstaða þeirra er hins vegar vel þekkt og ekki þarf að fara í grafgötur með þær. Réttur þeirra er tryggður. Á Íslandi er trúfrelsi. Tillaga fólksins sem eyðir tíma Alþingis með tillögu um umskurðarbann er fyrst og fremst árás á trúfrelsi og á aldagamla siði minnihlutahópa. Tillaga, sem ætlað er að banna umskurð drengja er í rauninni ekkert annað en lögbrot. Réttur til umskurðar er tryggður með trúfrelsi.
Þegar maður les skoðanir margra Íslendinga um þetta mál verður manni fljótlega ljóst að fordómar og kynþáttahatur ræður ferðinni hjá mjög mörgu fólki í þessari umræðu um bannið. Það er í raun meira áhyggjuefni en trúarlegur umskurður að mínu mati.
Nú skulu nefnd þrjú dæmi um furðulegustu bréfin sem send hafa verið Alþingi í þeim tilgangi að hafa áhrif á störf löggjafavaldsins í landinu.
1) Eitt bréfanna er frá Gísla Gissurarsyni, lesið bréf hans til Alþingis. Sami maður hefur skrifað um gyðinga á veraldarvefnum og kallað þá "sub-Humans", sem er ensk þýðing á því sem nasistar kölluðu Untermennschen og áttu þeir m.a. við gyðinga er þar orðskrípi var notað. Gísli Gissurarson hefur algjörlega dæmt sig úr leik og bréf hans til Alþingis er móðgun við öll frelsisgildi sem Íslendingar hafa ákveðið að fylgja (sjá frekar hér).
2) Annar bréfritari er Jacob Sysser, sem skrifar bréf til Alþingis sem höfðaði greinilega svo til eins þingmanns pírata, Jóns Þórs Ólafssonar, að hann birti það á FB sinni (MYND). Sysser sem ættaður er frá Rússlandi, en búsettur í Riga og Helsinki, og er ekki gyðingur. Hann hefur heillast af jiddísku sem hann hefur lært og sótt námskeið í, en fyrir utan það eru sambönd hans við söfnuði gyðinga engin. Þegar hann skrifar Alþingi, mætti á orðalaginu halda að hann væri erindreki frjálslyndra gyðinga, en hann talar í raun einvörðungu fyrir sjálfan sig.
Yaron Nadbornik formaður gyðingasamfélagsins í Finnlandi hefur tjáð mér að Sysser sé ekki þekktur í neinum söfnuði gyðinga í Finnlandi, enda sé þar enginn svokallaður frjálslyndur söfnuður.
Yaron Nadbornik, formaður gyðingasamfélagsins í Finnlandi telur fráleitt að Sysser tali fyrir hönd gyðinga. Sysser er að hans sögn ekki meðlimur safnaða eða samtaka gyðinga í Finnlandi.
Jacob Sysser er hins vegar þekktur fyrir að vera deilugjarn og þrætugjarn á FB síðum manna sem fjalla um jiddísk málefni - en hann hefur engin sambönd við gyðinga og talar ekki fyrir hönd þeirra. Þess má geta að frjálslyndur söfnuðir gyðinga í Danmörku og Svíðþjóð styðja nær heils hugar umskurð. Jacob Sysser er einvörðungu að rita sína persónulegu skoðanir sem koma gyðingum ekkert við. En íslenskir þingmenn hoppa strax á skoðanir hans og telja hann vera umboðsmann frjálslyndra gyðinga. Þetta sýnir á hvaða stigi umræðan er. Þess ber að geta að Skoðun Syssers var birt á Kjarnanum . Ritstjóra Kjarnans var boðin skoðun Syssers á ensku, en hafnaði henni. Hann tjáði þá Sysser að ef grein hans væri þýdd yfir á íslensku, yrði hún birt. Sysser hefur greinilega fundið einhvern sem gat þýtt yfir á íslensku. Þannig varð skoðun manns sem ekki er gyðingur að skoðun frjálslyndra gyðinga um allan heim. Ekki er nú öll vitleysan eins.
3) Brian Earp, sálfræðingur og heimspekingur, skrifar einnig bréf, þar sem hann greinir frá titlum sínum og háskólagráðum, en ekki frá því að hann tilheyrir svæsnum samtökum öfgamanna sem berjast gegn umskurði á mjög frumstæðan hátt. Þó Brian sé vel menntaður, tókst honum nýlega í samfloti við danskan lækni, Morten Frisch, sem er einn af forsvarsmönnum samtakanna Intact Denmark, sem eru systursamtök Intact Iceland, að ráðast á fræðigrein tveggja danskra lækna um umskurð og skíta hann út og sverta til. Reyndust ásakanir Earps og Frisch ekki á rökum reistar og sýnt var fram á að þeir færu með með staðlausa stafi og grófar rangfærslur (sjá hér).
Samstarfmaður Brian Earp, Brother K.
Þess má geta að Morten Frisch stundar nú þá iðju að hvetja Dani sem greinilega eru rasistar og múslímahatarar að styðja borgarakosningar gegn umskurði sem hann hefur sett í gang í Danmörku (sjá t.d. hér).
Hér birti ég mynd af Earp með Brother K, yfirlýstum bandarískum kynþáttahatara sem gert hefur umskurð að meginmáli sínu til að hatast út í gyðinga og múslíma, þegar hann mótmælir á götum úti í blóðugum búningi sínum. Brian Earp siglir undir fölsku flaggi í bréfi sínu til Alþingis. Hann er einnig liðsmaður öfgasamtaka, en nefnir það ekki í bréfi sínu til Alþingis vegna máls sem hann telur ástæðu til að blanda sér í sem bandarískur ríkisborgari.
Earp stendur fyrir miðju í gallabuxum. Hann er þarna árið 2014 á þingi með Brother K. og öðru fólki sem ekki getur verndað forhúðina án þess að bann öllum umskurð.
Já, það er mjög merkilegt að kynna sér hvaða fólk telur sig til knúið að skrifa háttvirtu Alþingi á Íslandi.
Eitt bréf utan úr heimi, meðal þeirra sem Alþingi hefur móttekið í þessu máli, sker sig þó úr og er í sérlegu uppáhaldi hjá mér. Það er skrifað af Dr. Ian Watson . Þetta er sérlega yfirvegað bréf, sem segir það sem þarf að skrifa og af þekkingu og ekta húmanisma. Sonur Watsons átti við forhúðarvanda að stríða og var umskorinn. Ég vona að menn hafi tíma til að lesa bréf Watsons, sér í lagi sumt fólk í heilbrigðisstéttum á Íslandi sem hafa látið áróður og rugl hrífa sig með, jafnvel þó það hafi ekki neina sérstaka fræðilega þekkingu á umskurði. Ég get aðeins vonað að slíkt fólk skammist sín.
Þessa greiningu mína sendi ég nú einnig háttvirtu Alþingi, í þeirri von að fólk sem hugsanlega lesi orð mín, nái áttum og sjái hve mikið rugl þetta mál er frá upphafi og hve miklir öfgar hafa fylgt því. Í hæsta máta hefur það gefið fólki með hættulega fordóma gagnvart minnihlutum einhverja ankannalega stundargleði.
Menn verða að muna, að þó þeir séu á móti einhverju, þá sé til önnur lausn en að banna, fordæma og dæma fólk í fangelsi, þó það hafi aðra siði og skoðanir. Annað eru eintómar öfgar.
Virðingarfyllst,
Dr. Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
umskorinn Íslendingur búsettur í Danmörku
Jelsbuen 1
2620 Albertslund
Danmark
16.3.2018 | 08:50
Hún rúllar þessu inn
Við þökkum Björk innilega fyrir stuðninginn gegn umskurðarbanninu. Þessi reisnarlegi miðfótur hennar er greinilega umskorinn og ekki háir það henni hið minnsta þótt rauður og rindilslegur sé. Ég er meira í vafa um ryðrauða flautuna. Ekki var kennt á svona flautu í Barnamúsíkskólanum þegar ég var ungur. En þetta er nú líka Útópía.
![]() |
Lærdómsríkt að rúlla þessu í gegn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
14.3.2018 | 08:03
Stjarna er slokknuð
Nú svífur sálin hans Hawkings á milli stjarnanna og hann fær vonandi svör við öllu sem hann reyndi að fræða okkur um. Hann er maður sem seint mun gleymast.
Ég varð fyrir þeirri skemmtilegu upplifun að hitta hann undir frekar einkennilegum kringumstæðum. Þó ekki í Cambridge eða Oxford, og ekki get ég sagt að við höfum skipst á mörgum orðum, ég og hann Stephen.
Ég rakst á hann þegar ég fór á sýningu á fornminjasafni Árósarborgar, á Moesgård sunnan við Árós, þar sem ég lærði á sínum tíma mín fornu fræði á fallegum hvítum herragarði, sem nú hefur verið færður í eldri stíl og er orðinn bleikur.
Nú er miðaldafornleifafræðin horfin sem sérstök deild og ríkisstjórn frjálshyggjufanta Danmörku hefur nýlega boðað fleiri lokanir. Samkvæmt ríkisstjórninni er ekki lengur þörf fyrir fræðum þar sem menn þurfa að hugsa - og sérstaklega ef fræðin "gefa ekkert í aðra hönd" eins og sumir menn segja. Græðgi er hins vegar grein sem kennd er á fjölda deilda og verður sí vinsælli.
Á bylgjuðum og töluvert háum ökrum fyrir ofan herragarðinn minn gamla, var fyrir nokkrum árum síðan opnað mikið safn í "hlíðinni". Ég heimsótti þetta nýja safn fyrst í fyrra eftir nokkrar skurðaðgerðir sem ég hafði lent í og var orðinn einu krabbasýktu nýra léttari. Ekki eru nú lækningar arðbærar (nema fyrir nokkra lækna) og Guði sé lof fyrir að læknadeildum sé ekki lokað í Danmörku. Þá væri ég nú ekki að skrifa þetta um Hawking.
Áfram með smérið. Á þessu safni hitti ég sem sagt Stephen Hawking. Fyrst sá ég það sem ég hélt að væri kona í hjólastól, sem virtist hafa gleymst á palli fyrir framan lyftu. Þegar ég kom út úr fyrsta sýningarsalnum, sat hún þar enn og ég hugsaði sem svo: "alltaf gleymist fatlaða fólkið" en reyndar á dönsku.
Þegar ég kleif sýningarþrepin á safninu varð mér ljóst að þarna sat Hawking einn og yfirgefinn, enda aðeins í plastlíki. Hann var hluti af sýningu um þróun mannsins, sem byrjaði neðst í kjallaranum með höfuðkúpum af fyrrverandi séníum úr Afríku, Asíu og Evrópu, og greinilegt var að sumir voru nánir ættingjar dönsku ríkisstjórnarinnar. Þessir forfeður vorir og -mæður hefðu ekki gefið Hawking sjens í frumskóginum og hefðu borðað heila hans úr höfuðskelinni til að fá næringu. Annað hefði ekki verið arðbært.
Danir hugsa alltaf um arðbæri alls í núinu og fyrrum. Þess vegna heitir Kaupmannahöfn nú það sem hún heitir.
Svo frekar sé minnst á þróun mannsins, þá voru fyrir nokkrum árum allir danskir fjölmiðlar fullir af fréttum og greinum af manni, sem hafinn var til skýjanna og var kallaður "uppfinningarmaður". Hann var að byggja sér kafbát. Skilja mátti á sumum, að hann væri rjóminn í Danaveldi og hann var farinn að hugsa til geimferða. Konur eru óðar í gáfumenn og geimfara og virtust sumar þeirra sækja að þessu mikla séní eins og flugur að mykjuskán. Á meðan var skorið niður á háskólum og öðrum menntastofnunum og þeim jafnvel lokað, en digrir sjóðir gefnir kafbátahetjunni sem síðar reyndist einnig hafa meirapróf í skurðlækningum. Nú rannsakar þetta undrabarn réttarkerfið í Danmörku. Það þarf engar háskóladeildir, þegar slíkir menn eru annars vegar - og góðar ríkisstjórnir.
Boðskapurinn hér sem ég rændi Hawking til að miðla er að: Danmörk er ekki eins mikið menningarríki og margir á Íslandi halda. Jafnvel þeir sem eru með áskrift að Politiken. Við segjum það ekki hátt sem vitum það, en þenkjandi fólk veit vel hvað er að gerast. Líka á Íslandi. Þenkjandi fólk er hins vegar ekki eins duglegt að berjast, m.a. fyrir rétti sínum. Kannski vegna þess að það er ekki eins frumstætt og annað fólk, eða jafnvel frumstæðara - og er enn að hugsa þegar aðgerða er þörf. Hugsanlega getum lært ýmislegt af Hawking í því sambandi. Ég er feginn því að ég hugsaði til hans á pallinum og kenndi í brjósti um konuna í hjólastólnum sem reyndist vera plastdúkka.
I am a sentimental succer...
Myndin efst af Howking er tekin af höfundi og hann einn græðir á henni. Varist eftirlíkingar.
![]() |
Stephen Hawking látinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Menning og listir | Breytt 15.3.2018 kl. 11:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
11.3.2018 | 07:27
Mótmæli til Lettlands
Til að mótmæla dýrkun á nasistum og gyðingahöturum sem færst hefur mjög í vöxt í Eystrasaltsríkjum, hef ég ritað utanríkisráðherra Lettlands bréf, sem ég hef sent sendiráði Lettlands á Íslandi (sem hefur aðsetur í Osló) og beðið um að erindi mínu verði komið til Riga.
Hér efst sjáið þið Utanríkisráðherra Lettlands með utanríkisráðherra Íslands er sá síðastnefndi leiddi þing Eystrasaltsráðsins á júní 2017 í Hörpunni: Þar sem Ísland er með í Eystrasalsráðinu, ásamt löndum sem leyfa árlegar göngur nasista, tel ég mig til neyddan til að mótmæla og vona að lesendur mínir geri það einnig. Hægt er að senda mótmæli sín til lettneska sendiráðsins í Osló: embassy.norway@mfa.gov.lv. Þið megið nota mín mótmæli óbreytt, en setið ykkar nafn undir. Til að lesa ykkur til um hvernig Eystrasaltsríki leyfa göngur nasista og fólks sem afneitar helförinni getið þið lesið ykkur til á þessari síðu.
Dear Ambassador of Latvia to Iceland, H. E. Judite Dobele
Is it the new normal for Latvia´s foreign minister Edgars Rinkevics - a foreign minister in a EU and NATO member state - to publicly recommend for high honours a book that spews anti-Semitism and expresses understanding for various aspects of the genocide that all but wiped out Latvia´s Jewish community?
Mr. Edgars Rinkevics has recommend a new book on a pre war Latvian diplomat, Ludwig Seya. Please read here information for the reason for my question : http://defendinghistory.com/did-latvias-foreign-minister-just-honor-a-nazi-cheerleader-and-proven-antisemite/93928.
I certainly do not hope the recommendation of your countries foreign minister of a book that honours the ugliest form of anti-Semitism is the normal in Latvia. Annual Nazi marches in Latvia´s major cities in later years, where Latvian Nazi collaborators are praised as heroes is enough an insult to citizens of countries that supported Latvian independence in 1991.
As an Icelandic citizen, a citizen of a nations who supported Latvia´s freedom in 1991, I see Latvia´s foreign ministers praise of a book on a an Latvian anti-Semite as an strange attack on democracy and minorities. It is an act, which I hope the EU will soon realise is much too common in you good country. An anomaly which I think the Latvians could very well live without. When I supported your independence in 1992. I didn´t expect free Latvia´s politicians to praise anti-Semites who since 1998 gather in huge annual marches in major cities, and where former Latvian Waffen-SS members, neo-Nazis and other extremist, who praise murders of Jews and racism, gather on the main streets of Riga. I didn´t support such a state in 1991!
Dear Ms. Ambassador, please forward these views and my question to your foreign minister in Riga. I hope he will respond to my question. My views will also be published on different websites, where I will publish the response of Mr. Edgars Rinkevics if I receive one.
Yours Sincerely,
Dr. Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
An Icelandic citizen living in the EU
Mannréttindi | Breytt s.d. kl. 10:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.3.2018 | 08:01
Hópæsingin heltekur Íslendinga
Já enn einu sinni og nú er ógeðið í umræðunni um umskurðarbannið búið að ná nýju hæðarmeti.
Í gær var kynnt til sögunnar á Vísi, Stundinni og á Fésbókinni Bakland Ferðþjónustunnar frétt um erindi sem Bandaríkjamaður, Paul að nafni, sendi íslensku ferðaþjónustufyrirtæki, Iceland Unlimited. "Paul frá Boston" tilkynnti eigandanum að hann myndi þrátt fyrir fyrri áhuga sinn á ferð með Iceland Unlimited ekki vilja fara til Íslands vegna lagabreytingartillögunnar, og myndi einnig beita sér gegn henni þar til í ljós kæmi hvort hún yrði samþykkt.
Eigandi Iceland Unlimited, Jón Gunnar Benjamínsson, svaraði manninum kurteislega, en fékk að sögn leyfi mannsins til að greina frá erindi hans á Baklandi Ferðaþjónustunnar.
Það sem hefur verið skrifað þar í athugasemdum er með ólíkindum, einnig á Stundinni og á Vísi. Margir þurfa að tjá sig á mjög hatramman hátt eins og móðgaðir krakkar sem segja ljótt á milli ekkasoganna.
Einn af bílstjórum Gray Line á Íslandi, fyrirtæki sem ég þekki nú helst af því að hafa séð rútur frá Grálínu aka ólöglega og stefna lífi saklauss fólks í hættu, lét hlutina heldur betur flakka á Baklandinu. Ætli Gray Line á Íslandi geti staðfest þessa skoðun starfsmannsins um að gyðingar séu frekustu og sóðalegustu farþegar fyrirtækisins, sem virðist selja fólki ferðir eftir trú þeirra og uppruna.
Mikið af því sem ritað í athugasemdum við fréttina um hinn reiða Paul XXXXX í Boston, er ekkert annað en harðsoðið gyðingahatur*.
* Slíkt hatur er hugsanleg leyfilegt á Íslandi, því Baldvin Einarsson saksóknarfulltrúi hjá Lögreglustjóranum á höfuðborgasvæðinu telur ekki ástæðu til að eltast við kæru vegna ummæla um að umskurður sé kynferðisafbrot, með vísun til 4. mgr. 52. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Sláið þessari grein upp til að sjá hvernig lögregluembætti á Íslandi ver rétt fólk til að kalla þá kynferðisglæpamenn sem umskera vegna trúar.
Ég er búinn að missa alla trú á íslensku réttaröryggi og gæslu. Menn gera greinilega það sem þeim sýnist. Lögin eru til að snúa á þau og um fingur sér. Þó er ég viss um að er ég skrifaði fullum fetum að "Löggan í Reykjavík eru kynferðisafbrotamenn og perrar", þá yrði ég örugglega lögsóttur. Það hefur nefnilega aldrei veið sama hver skrifar á Íslandi og börnin hans síra Jóns eru orðin svo mörg og heilagri en hann sjálfur.
Þeir sem styðja Framsóknarflokkinn í umskurðarbanninu eru sögulaust fólk. Þessi "forgangsflokkur" beitti sér fyrir því að gyðingar á flótta undan nasismanum kæmust ekki til Íslands og í því að vísa þeim sem komust til landsins, úr landi. Sumt fólk þarf ekki annað en að sjá nokkra dropa af blóði í umskurði á myndbandi til að ærast, en segir ekkert þegar það sér börn myrt á Sýrlandi.
Hópæsingin, (mass hysteria), sem gripið hefur um sig á Íslandi vegna umskurðarfrumvarps þingmanns í flokki sem aldrei hefur gert upp við fortíð flokksins sem helsta flokks gyðingahatara á Íslandi, á ekkert skylt við mannréttindi. Illa upplýstur lýður og fordómafullur er að endurtaka dæmi sem hefur oft sést gegnum aldirnar. Síðast þegar slíkar bylgjur gengu hátt í Evrópu myrtu Evrópumenn 6 milljónir gyðinga. Kannski finnst Íslendingum skítt að þeir hafi ekki getað verið nógu vel með síðast í helförinni.
Álit á Baklandi Ferðaþjónustunnar, sem eftir að hafa svarað mér því að engir læsu nú orðið blogg, fjarlægði færslu sína fyrir fullt og allt. Hann uppgötvaði kannski að blogg eru líka lesin og sitja fastar.
Mannréttindi | Breytt s.d. kl. 08:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.3.2018 | 09:02
Umskurðarbannsmenn fá svínslegan stuðning
Vefmiðillinn Stundin birti þann 27. febrúar sl. frásögn af umskurði Gísla Gissurarsonar, sem hann fékk ungur vegna heilsufarslegra ástæðna sem ekki eru útlistaðir í greininni á Stundinni (myndin efst birtist á Stundinni)
Umskurðurinn á Gísla Gissurarssyni, sem fæddur er 1954, var framkvæmdur af lækni, en fór ekki sem skyldi og lýsir Gísli þjáningum sínum eftir aðgerðina í greininni.
Þegar maður les lýsingar á þjáningum Gísla eftir misheppnaðan umskurð sem íslenskur læknir framkvæmdi, sjá allir heilvita menn að hún á ekkert skylt við trúarlegan umskurð á drengbörnum á barnsaldri, sem stór hópur Íslendinga vill banna.
Eins og við sjáum í tilfelli Gísla Gissurarsonar, var nauðsynlegt að umskera hann. Það var mat læknis, en læknishendur eða kannski bágborið hreinlæti eftir aðgerðina, leiddi til ígerðar og þjáninga fyrir hinn unga Gísla Gissurarson.
En er Gísli gjaldgengt dæmi í umræðuna um bann á umskurði á Íslandi? Hann gefur vissulega upplýsingar um að illa getur farið við aðgerðir læknis, ef læknirinn kann ekki listina að umskera.
Gísli Gissurarson hefur dæmt sig úr leik
Gísli hefur að mínu mati afskrifað sig úr allri umræðu um bann við umskurð vegna öfgafullra skoðana sinna á gyðingum og Ísraelsmönnum, sem eru hreint kynþáttahatur af allrasvæsnustu gerð..
Á Alternet hefur hann skrifað þetta:
"There is Israel a home of many fine humanitarians, and then there is the likud, a party of right wing religious extremists who can't grasp intuitively "Don't do unto others what you don't want others to do unto you". Likud is what we get when we combine the Nazi party and the Taliban. They murdered Yitzhak Rabin, and every peace maker in Israel has met his demise. Likud typifies right wing extremism, there is no negotiation, no compromise, the only thing they understand is FORCE. When these have power, there is no mercy, no compassion, humanity goes down the drain. The sub-human spearheading the carnage is facing an arrest warrant should he ever come to Spain. The words I would like to send this creep and the likud party where sub-humans shine, are so severe they can't be printed."
Maður eins og Gísli Gissurarson, sem kallar ákveðinn hóp Ísraela/gyðinga sub-humans, dæmir sig algjörlega úr leik í umræðunni um umskurðarbann sem mun koma niður á m.a. gyðingum. Hann er svo heltekinn af hatri gagnvart ákveðnum hópi gyðinga að hann notar um hann sömu orð og nasistar notuðu um gyðinga.
Þess ber at geta að Gísli hefur verið Bahaítrúar, en ekki hefur verið hægt að fá upplýst neins staðar hvort hann er það enn. Ísraelsmenn hafa leyft bahaíum að byggja eitt helsta hof sitt í Haifa í Ísrael og bahaíar hafa engin bönn við umskurði, þó þeir stundi þann skikk ekki sem hluta af trú sinni. Það er skrítinn máti að þakka Ísraelum fyrir aðstoðina sem bahaí-maður, með því að kalla suma þeirra sub-human. En Gísli hefur örugglega sínar ástæður, sem hann upplýsir okkur ef til vill um síðar.
Þó Gísli Gissurarson noti ekki sömu orðin og ýmsir aðrir Íslendingar um umskurð, svo sem kynferðisbrot, limlestingu, pyntingar, hryðjuverk, níðingsverk og perrahátt svo fáeitt sé nefnt. En þegar maður, sem umskorinn var sem ungur, blandar sér í umræðu um bann á umskurði, þegar hann hefur áður talað um gyðinga sem sub-humans, dæmir hann sig að fullu úr leik, eins og þeir sem tala um kynferðisbrot, limlestingu, pyntingu, hryðjuverk, níðingsverk etc. Í raun væri ástæða til að láta yfirvöld athuga ummæli Gísla Gissurarsonar þegar hann kallar hluta af þjóð sub-humans.
Meðlimir Framsóknarflokksins sem m.a standa að baki bannfrumvarpinu um bann við umskurði á hina góða Íslandi, tilheyra flokki sem á síðustu öld reyndi með öllum ráðum að koma í veg fyrir búsetu gyðinga á Íslandi. Ráðherrar flokksins stóðu að brottvísun þeirra sem til landsins höfðu komið. Framsóknarflokkurinn hefur aldrei gert upp við þessa ljótu fortíð sína, þar sem flokksmenn tóku með afstöðu sinni og aðgerð þátt í helförinni gegn gyðingum. Hefur slíkur flokkur, sem einnig hefur talið liðsmenn sem hafa farið hamförum gegn múslímskum flóttamönnum á síðari árum ekki algjörlega dæmt sig úr leik, þegar þeir vilja banna umskurð á drengjum þeirra sem umskornir eru vegna trúar fjölskyldna þeirra?
Framsóknarflokkurinn er enn sekur um gyðingahatur, því nú vill hann banna gyðingum að stunda trú sína á Íslandi. Það er meginafleiðing af umskurðarbanni á Íslandi. Það er bara önnur leið til að stöðva búsetu gyðinga á Íslandi. Sama hatrið og 1940 klætt í annan "húmanistískan" búning en ekki í peysuföt útlendingahaturs og hræðslu.
Vitaskuld er hægt að taka á flokkum eins og Framsóknarflokknum í aljóðasamhengi, því lítið hefur breyst. Flokksmenn spörkuðu í gyðinga á 4. og 5. áratug síðustu aldar og nú vilja þeir banna þeim og öðrum að stunda trú sína og bera við mannréttindi og meðkennd með börnum.
Umskurður Hrafns Gunnlaugssonar í æsku?
Annar maður, Hrafn Gunnlaugsson okkar ástkæri kvikmyndaleikstjóri m.m., hefur einnig haldið því fram að hann hafi þjáðst mikinn eftir umskurð sem foreldrar hans þótti nauðsynlegt að hann fengi barnungur. Ekki er Hrafn þekktur fyrir hatursumræðu um allan heims eins og þá sem Gísli Gissurarson er og er ekkert að klína ósóma upp á neinn, fyrir það að hann telur umskurðinn hafa verið sér til vansa. En Hrafn nefnir þó að erlendur læknir búsettur á Íslandi hafi framkvæmt aðgerðina.
Davíð: Af hverju ertu alltaf að klóra þér í klofinu, Krummi? Þórarinn: Hrafninn flýgur um hin helgu vé. Hrafn: Myrkrahöfðinginn er óþægur við mig.
Þetta vekur vissulega mikla furðu. Hrafn er fæddur 1948 (já, hann heldur sér vel kallinn) en árið 1948 störfuðu engir erlendir læknar á Íslandi. Íslenskir læknar og þ.m.t. landlæknir börðust gegn því að erlendir læknar settust að á Íslandi og að kaþólikkar reistu hér sjúkrahús. Vilmundur landlæknir sendi yfirvöldum í Danmörku langt skjal þar sem hann sá erlendum læknum allt til foráttu - m.a. að þeir "kynnu ekki íslensku." Læknum, sem voru gyðingar, og margir þeirra virtir sérfræðingar, var vísað úr landi á Íslandi, þótt mikill læknaskortur hafi verið á 4. og 5. áratug síðustu aldar. Hrafni misminnir örugglega, því það er enginn möguleiki á að erlendur læknir hafi klúðrað umskurði á honum. Hann talaði reiprennandi íslensku sá sem átti við Hrafnstyppið.
En þetta eru nú dæmin sem verndarar forhúðarinnar á Íslandi notar til að sýna ykkur, kæru landar, að umskurður sé svo hræðilegur. Ég vona að einhver sjái samhengið og að það sé lítil ástæða fyrir einn af þeim sem sett hefur fram tillöguna um bann við umskurði, að fara í mál við einhvern mann úti í bæ sem hefur kallað hana "sveitakonu". Mikið má konan nú vera hársár þegar hún tilheyrir stjórnmálaflokki sem á síðustu öld beitti sér fyrir því að koma gyðingum aftur til kvalara sinna. Ég held að sá flokkur ætti að gera hreint fyrir sínum dyrum áður en hann byrjar að banna gyðingum og múslímum eitt eða neitt.
Þessi mynd er af síðu forhúðarbaráttumanna (sem halda því fram að hún sýni umskurð). Svo mikið er hatrið og fordómarnir í þessari umræðu að fólk í þessum nýja typpbransa notar mynd af myndhöggvurum á Ítalíu á miðöldum sem eru að höggva út feitlaginn engill ekki ósvipaðan Agli Helgasyni og halda því fram að þarna sé að fara fram umskurður. Þetta er gott dæmi um æsinginn og algjöra fávisku sem einkennir "baráttufólkið" sem nú dýrka forhúðina. (Sjá síðuna sem notar þessa mynd hér, þar sem umskurður er kallaður absurdity)
Íslenskt gyðingahatur | Breytt s.d. kl. 09:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
14.2.2018 | 06:54
Le Prince est mort
Prins Henrik er látinn, Danir syrgja. Hann var á margan hátt glaðlegt andlit dönsku konungsfjölskyldunnar, þar sem hefð og konungleg skyldleikarækt hefir gert suma aðra meðlimi frekar steingerða. Ég nefni ekki nein nöfn. Umdeildur var hann kannski undir lokin í erfiðum veikindum sínum, en ávallt vel liðinn. Hann var maður marga hæfileika, nema í því að læra dönsku, en hafði sem betur fer lífsnautn. Ég hef hitt hann í návígi einu sinni.
Einn kaldan sólskinsmorgun árið 1997 var ég nærri því búinn að rúlla barnavagni með Leu dóttur minni yfir einn langhunda hans, þar sem hann var að "spadsera" með þá á götuhorni nærri Amalienborg. Engin slys urðu á börnum eða hundum og prinsinn tók því létt að einn hirðhundanna, sem ég rúllaði aðeins utan í, þegar hann kom hlaupandi fyrir horn til að finna sér eitthvað til að míga á, ýlfraði lítillega þegar hann rakst inn í barnavagninn. Prinsinn bauð bara góðan dag. Venjulegur maður! Hann var einn á ferð, engir verðir eða hallarþjónar með honum.
Drottningin, konungsfjölskyldan og danska hirðin hafa misst eitt af andlitum sínum og þar er sorg sem og hjá hjúum í koti um allt þetta flata land. Væntanlega munu frómar konur í Reykjavík sem lesið hafa dönsku blöðin ævilangt verða leiðar líka.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
9.2.2018 | 09:44
Kæra til lögreglu vegna hatursræðu á Pírataspjalli
Beint til
Árna Sigmundssonar lögreglufulltrúa kynferðisbrotadeildar og
til Eyrúnar Eyþórsdóttur lögreglufulltrúa á miðlægri deild R2
Kæra vegna meints brots á grein 233a í hegningarlögum
Sæl Eyrún Eyþórsdóttir og Árni Sigmundsson,
Nú fer fram frekar sorgleg umræða á Pírataspjalli á Facebook ( https://www.facebook.com/groups/Pirataspjallid/permalink/2062558187095488/ ) þar sem Píratar og aðrir eru velkomnir til tjá sig um tillögu sem fjórir stjórnmálaflokkar hafa sett fram með því sjónarmiði að banna umskurð drengja á Íslandi. Einn þeirra flokka eru Píratar.
Nú er því miður svo komið að sumt fólk sýnir sitt rétta eðli og andlit á þessum umræðuvef og á umræðu sem Sverrir Agnarsson talsmaður múslíma á Íslandi hóf máls á á þessum FB spjallvef Pírata vegna tillögu frá einstaklingum í fjórum flokkum Alþingis um að banna umskurð drengja með lögum og gera hann sakverðan með fangelsisdómi í allt að 6 árum.
Í umræðunni á fyrrnefndu Pírataspjalli hefur umskurði drengja nú verið líkt við kynferðisbrot. Þrjár íslenskar konur hafa nú ítrekað haldið því fram að umskurður drengja sé kynferðisbrot og jafnvel líkt honum við meint, en ósannað brot fyrrv. biskups Íslands gegn dóttur sinni sem biskup var aldrei dæmdur fyrir.
Þetta er að mínu mati hrein hatursræða og lagabrot. Með ítrekaðri óvirðingu halda þessar konur, Steinunn Ketilsdóttir búsett í Manchester á Englandi og Guðrún Björk Ármannsdóttir búsett í Hafnafirði og Linda Magnúsd. sem lært hefur við háskólann á Bifröst því fram, að umskurður á drengjum í trúarlegum tilgangi sé kynferðisafbrot. Þegar ég bendi þeim á villu þeirra og það ólöglega í tali þeirra, sem ég tel vera lögbrot vegna þess að þær ásaka fólk sem lætur umskera drengbörn sín í trúarlegum tilgangi um kynferðisbrot, hafa þær allar aukist í ósóma sínum og gefið í skyn að ég sé stuðningsmaður kynferðisglæpa.
Þetta má sjá á þeim ummælum sem ég læt fylgja af síðunni sem 6 jpg myndir (PrtSc) af síðunni. Þetta eru ummæli þriggja kvenna sem notað hafa opinberan og lýðræðislega umræðugrundvöll til að svína trúarvenjur annarra og mig til með því að klína kynferðisbrotastimpli á umskurðarvenjur trúarbragða og í því samhengi ýjað að því að ég sé stuðningsmaður kynferðisbrota.
Nú er bara að sjá, hvort embætti Lögreglustjórans getur tekið á broti kvennanna þriggja og sótt þær til saka. Ég reikna fastleg með því að lögreglustjórinn í Reykjavík ákæri konurnar fyrir brot á hegningarlögum, því þær hafa haldið því fram að umskurður sé kynferðisglæpur. Það er klárt brot á 233 grein a í hegningarlögum ; Ummælin eru svívirða, og það opinber, í garð trúarbragða. Slíkt ber ekki að þola í lýðræðisríki, þar sem að sögn á að ríkja trúfrelsi, sem er bundið í lög.
Varðandi hugsanlega vanhæfni Eyrúnar Eyþórsdóttur:
Mig langar að nefna, að þar sem Eyrún Eyþórsdóttir lögreglufulltrúi hefur verið í framboði fyrir Vinstri Græna, og jafnframt varamaður VG á Alþingi, þá gæti verið vandamál varðandi hæfni hennar í meðferð kærunnar, þar sem tveir einstaklingar frá VG hafa skrifað undir breytingartillöguna fyrir hegningarlög til að freista þess að þingheimur ákveði að umskurn verði skilgreind sem hegningarlagabrot. VG hefur þó ekki mér vitandi lýst beinum flokksstuðningi við tillöguna, en heldur ekki opinberað andstöðu sína við það sem tveir þingmenn flokksins hafa skrifað undir. Ef Eyrún telur sig vanhæfa til að meðhöndla kæru mína sem fjallar um hatursræðu, ber henni þegar að láta mig vita, og hvern ég á þá að hafa samband við til að kæra mín komist í réttan og eðlilegan jarðveg hið fyrsta.
Virðingarfyllst,
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, Ph.D.
Jelsbuen 1
2620 Albertslund
Danmörku

7.2.2018 | 12:19
Getur typpavinafélagið hjálpað?
Dauðaleit er nú hafin að ónafngreindum pilti, sem var 16 ára árið 2010. Árið 2013 upplýsti þáverandi umboðsmaður barna að 16 ára drengur hafi skrifað sér þessar línur:
Mega foreldrar á Íslendi ákveða þegar maður er lítið barn og hefur ekkert vit að umskera mann? Hvað svo ef manni líkar það ekki þegar maður er eldri? Mega foreldar neyða mann í óþarfa lýtaaðgerð þegar maður hefur ekki aldur né vitsmuni til að neita því? Sjá hér, hér og hér
Úlfaldi var þegar gerður úr mýflugu, eins og svo oft áður á Íslandi, og því var m.a. haldið fram á RÚV, að drengurinn væri umskorinn og væri múslími. Fyrir því var víst enginn fótur, nema ólæknandi fantasía starfsmanna RÚV, sem margoft hafa verið teknir í því að búa til fréttir. Þetta var falsfrétt eins og það heitir í dag. Huldudrengurinn gat alveg eins hafa verið reið kona vestur í bæ sem átti pabba sem var nasisti.
Síðar var þessi klausa eftir drenginn sem var 16 vetra árið 2010 send af umboðsmanni barna til kollega hennar á Norðurlöndum og varð grundvöllurinn að því að Umboðsmenn Barna á öllum Norðurlöndunum lögðu til að bann yrði sett við umskurði barna. Já, oft veldur lítil þúfa þungu hlassi. Sjá hér.
Nú sameinast hin ólíklegustu öfl með þátttöku Vinstri Grænna, Fólks Flokksins, Framsóknarflokksins og Pírata í breytingartillögu á hegningarlögum, sem verði hún samþykkt mun leiða til banns við umskurði á drengjum. Vitna þessir ólíku forhúðarhyggjumenn til erindis 16 ára unglingsins frá 2010. Vilja menn fá fangelsisdóma ef lögin verða brotin.
Þetta mun valda því að flestir gyðingar geta ekki sest að á Íslandi eða hugsa sér til hreyfings.
Lýkur tillögunni frá fordómaflokkunum fjórum með þessum orðum.
30. september 2013 skrifuðu umboðsmenn barna á Norðurlöndum og ýmsir heilbrigðisstarfsmenn undir yfirlýsingu gegn umskurði ungra drengja. Þeir telja brýnt að vinna að því að umskurður á ungum drengjum verði bannaður. Mikilvægt er að virða sjálfsákvörðunarrétt barna og banna umskurð á drengjum þar til viðkomandi hefur náð aldri og þroska til að veita samþykki sitt.
Er það svo, að ekki þurfi meira til en "spurning" 16 ára drengs, sem enginn þykist kunna deili á nú, til þess að hegningarlagabreyting fari í gegn á Alþingi. Tókst einum 16 ára strák á Íslandi að breyta einhverju sem nasistar rembdust við í þeim tonnum af áróðri sem þeir dældu út um víðan völl: þ.e. meðal annars að banna umskurð gyðinga.
Hluti þeirra sem vilja umskurðarbann fyrir drengi nú tilheyra stjórnmálaflokki sem í stefnu sinni hatast út í múslíma. Aðrir flutningsmenn tilheyra öðrum flokki sem hart beitti sér fyrir því að koma í veg fyrir að gyðingum væri veitt hæli á Íslandi á 4. áratug 20. aldar. Er það er skammarlegt fyrir flokka eins og VG og Pírata að blanda geði við slíka öfgaflokka? Greinilega ekki.
En fyrst fjórir flokkar á Alþingi vilja lagabætur sem banna umskurð, sem að grunni til er tillaga sem byggir á fyrirspurn 16 ára pilts árið 2010, óska ég þess nú að flokkar þessir og Umboðsmaður Barna upplýsi vinsamlegast hver hinn ungi sveinn var, sem tókst að banna það sem nasistum tókst ekki.
Óþarfa lýtaaðgerð árið 2010 verður að hegningarlagabroti árið 2018. Öfgar í sókn?
Takið þó eftir því að drengurinn talar um "óþarfa lýtaaðgerð" í sömu andrá og umskurð. Breytingarfrumvarpið byggir því á rangri tilvitnun í erindi unglingsins til Umboðsmanns barna. Hann var að tala um umskurn sem lýtaaðgerð en það gera flokkarnir fjórir ekki, þó þeir vitni í umboðsmann barna sem notaði fyrirspurn piltsins til að rúlla málinu af stað. Það ber að taka fram að umskurður gyðinga og múslíma eru ekki lýtaaðgerðir, þó þær geti í vissum tilvikum talist til mikilla bóta, fagurfræðilega séð. En sinn er siður í landi hverju - og það ber að virða.
Trúfrelsið og hegningarlög
Virði Íslendingar stjórnarskrárfest trúfrelsi, verða þeir líka að sætta sig við að umskurður er óaðskiljanlegur hluti sumra trúarbragða. En ef umskurðurinn er gerður glæpsamlegur í hegningarlögum stangast hegningarlög á við stjórnarskrá. Það gengur ekki upp þegar í stjórnarskrá stendur:
Allir eiga rétt á að stofna trúfélög og iðka trú sína í samræmi við sannfæringu hvers og eins. Þó má ekki kenna eða fremja neitt sem er gagnstætt góðu siðferði eða allsherjarreglu.
Eiga stjórnmálaflokkar(Flokkur fólksins og Framsókn) sem telja meðlimi sem hatast hafa út í gyðinga og múslíma að vera dómarar á gott siðferði meðlima annarra trúarbragða en lútersku þjóðkirkjunnar? Hvernig ætli það verði túlkað af Sameinuðu þjóðunum og alþjóðardómstólum ef kæra þarf þessi kolrugluðu vinnubrögð.
Verða Íslendingar ekki að fara að vara sig og endurskoða þetta misskilda "hlutverk sitt á meðal þjóðanna"?
En hjálpið mér nú endilega að finna hinn 16. ára ungling sem bar fram spurningu til Umboðsmanns Barna árið 2010. Ég held persónulega að hann sé algjör uppspuni frá rótum. Hvaða 16 piltur fer að væla í umboðsmanni barna um typpi?
"Hæ Umboðsmaður barna. Ég er 16 ára strákur og hálfgert barn..."
Mannréttindi | Breytt s.d. kl. 12:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
1.2.2018 | 08:25
Silju er illt í typpinu
Nú skal vitaskuld látið vaða á typpin. Hefur Framsóknarflokkurinn ekkert annað þarfara að gera en að vasast í typpadýrkun og forhúðarást?
Ógeðfelld samlíking á umskurn drengja og stúlkna er það sem Silja Dögg Gunnarsdóttir ber hér fram. Flokkurinn hennar var einmitt sá sami og barðist mest fyrir því að hindra komu umskorinna karla til Íslands á 4. áratug 20. aldar. Hér er því ekkert nýtt mál á ferðinni. Hatrið er enn gríðarlegt meðal afdalakynsins á Íslandi.
Múslímahatur og jafnframt gyðingahatur sumra Íslendinga kann sér greinilega engin takmörk. Afkomendur fólks sem skar dýr á háls í gegnum aldirnar á Íslandi hefur líka látið banna trúarlega slátrun, sem er nákvæmlega sami hluturinn. Tvískinnungurinn uppmálaður og hatrið er svo hreint á Íslandi.
Morgunblaðið bætir um betur og birtir mynd frá stóraðgerð á kviðarholi til að sýna hve agalega hættuleg umskurn á drengjum sé. Myndafölsun, jú og ekki sú fyrsta í Morgunblaðinu.
Mikið er sumt fólk á Íslandi nú jarmandi frumstætt. Og hvar er hún Sema Erla nú? Samfylkingalaukurinn, sem heldur því fram að Tyrkland sé lýðræðisríki. Sema mun ugglaust verja forhúðina í nafni lýðræðis síns. En umskurn drengja kemur vitaskuld ekkert lýðnum hið minnsta við, hvorki Semu né Silju.
Þó að Íslendingar vilji halda sem fastast í leðursvuntuna sína og rækta hnakkost og vel valdar bakteríur undir henni, þurfa þeir ekki að banna öðru fólki, og menningarþjóðum, forna siði.
Tekið skal fram að myndin efst er ekki af typpi, heldur af Bubba og nýju peysunni hans.
![]() |
Umskurður brot á réttindum drengja |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Mannréttindi | Breytt s.d. kl. 18:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
Bækur
Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs
-
Nýtt blogg um fornleifafræði
FORNLEIFUR -
Þrælasalar í Norðurhöfum
Grein í Lesbók Mbl. 1999 -
: Ritaskrá 1972-2013 -
Fyrri færsla
Jakki Kiljans Laxness -
Bein Páls Biskups
Kveðskapur -
: Flóttamaðurinn Alfred Kempner -
Pepsi var á Ströndum
Gosdrykkjasaga -
Mótmælum Durban II
Meira -
Ved Helvedes Port
Grein mín í SKALK. Nr.4,1994. -
: Gyðingar á Grænlandi
Fyrri færsla og tenging við grein eftir mig á dönsku um gyðinga á Grænlandi -
Flogið hátt
Grein mín um fyrsta flug flugbels á Íslandi -
Fyrri færsla
Líkþráir Íslendingar -
: Lesið hér (ISBN: 978-965-218-066-7)
Behind the Humanitarian Mask; The Nordic Countries, Israel and the Jews. Edited by Manfred Gerstenfeld. -
Fyrri færsla
Vinir útlendinganna -
Fyrri færsla
Nakinn sannleikur -
Ungr var ek forðum
Færsla um óeirðir og læti í æsku minni -
Fyrri færsla
Þegar Gúttó varð samkunduhús gyðinga -
Fyrri færsla
Vive l'(Gr)islande -
Fyrri Færsla
Nifalt húrra -
Íslenskar frúr í Andvörpum
Um ferðir útrásar-Íslendinga á 16. öld. Lesbók Morgunblaðsins 28.águst 1999. -
Fyrri færsla
Berlínarboogie Laxness -
Fyrri færsla
Pabbi Þórs var myrtur í Auschwitz -
Falskir Íslendingar
Grein um þjóðarstolt -
En dansk krigsforbryder
Grein í Weekendavisen um versta stríðsglæpa- mann Dana, sem dönsk yfirvöld vildu helst gleyma. -
Anti-Semitism in Iceland. Is that possible? -
Iceland, the Jews, and Anti-Semitism, 1625-2004
Grein á ensku um gyðinga á Íslandi -
Ich weiss, was ich zu tun habe
Grein mín um Georg F. Duckwitz, nasistann sem á að hafa verið potturinn og pannan við björgun gyðinga í Danmörku. Í greininni sem birtist í tímaritinu Rambam 15:2006 er gerð grein fyrir fjölmörgu sem danskir sagnfræðingar hafa gleymt að rannsaka. Hlutverk Duckwitz verður nú að endurskoða. -
Grein
The King and the Star í: Denmark and the Holocaust (2003) (ISBN: ISBN 87-989305-1-6) -
: Rescue, Expulsion, and Collaboration: Denmark's Difficulties with its World War II Past
Jewish Political Studies Review 18:3-4 (Fall 2006; Tímarit sem ég hef skrifað töluvert í -
: 20 Begivenheder der skabte Danmark (ISBN: 87-02-0516-7)
Ég er meðhöfundur að einum af köflum bókarinnar. -
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson: Medaljens Bagside - Jødiske flygtningeskæbner i Danmark 1933-1945 (ISBN: 87-91393-60-4 ) Forlaget Vandkunsten 2005. Bók mín um meðferð danskra yfirvalda á flóttafólki á 4. og 5. áratugi 20. aldar.
Meira
Nýjustu færslur
- Viðreisnarklappstýran
- Tapað-fundið á DV
- Ekki fleiri sokka frá Íslandi, TAKK.
- Trumpur Eyjajarl
- Á mér stendur ..... Bjarni Ben
- Minnislaus síðan í síðustu ESB-kosningu
- Gamlir dónar sem fokka sér - Meet the Fockers II
- Icelandic Police Bared
- Niðurstaðan: KiSS or Bæjarins beztu
- Zelenskij fór í ranga flugvél - verður í Færeyjum næstu dagana
- Sjúklega svæsinn gyðingahatari er vinsæll á Moggablogginu
- Valdemar á svölunum er látinn
- Svæsnir fordómar eru ekki hluti af málfrelsi og tjáningu
- Ástráður eins og lús á feldi
- Utanríkisráðherra eyðir um efni fram í útlöndum
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.4.): 0
- Sl. sólarhring: 9
- Sl. viku: 40
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 35
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Apríl 2025
- Mars 2025
- Janúar 2025
- Júlí 2024
- Apríl 2024
- Febrúar 2024
- Desember 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Ágúst 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Júlí 2021
- Maí 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- Ágúst 2020
- Maí 2020
- Nóvember 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Júlí 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Janúar 2017
- Nóvember 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Nóvember 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007