Leita í fréttum mbl.is

Starfsmenn Moggans ættu stundum að lesa Moggabloggið

Bishop Gijsen

Deginum áður en Morgunblaðið greindi frá barnagirnd Gijsens biskups í apríl 2014, og reyndar fyrr eða þegar árið 2012 hafði ég skrifað um ásakanir gegn þessum manni í heimalandi hans. Þetta var biskup og kórdrengjaþuklari. En Íslandi þótti hann hinn besti maður. Hann átti í endalausum erjum við séra Georg.

Þrátt fyrir það valdi sú (algjörlega óhæfa) nefnd sem skrifaði skýrslu um ásakanir í garð erlendra starfsmanna kaþólsku kirkjuna á Íslandi að nota vitnisburð þessa illmennis, sem líka var gyðingahatari, og leita til þessa manns um upplýsingar um séra Georg, sem síðar var dæmdur af Hæstaræsisdómi Íslands, án minnsta sönnunargagns. George var ekki gyðingahatari og kom ekki til Íslands með níðingsverk á æviatriðaskránni líkt og þessi greðjubiskup.

Svona eru nú vinnubrögðin á Íslandi. Landið verður ekki betra en fólkið sem þar býr.

Svo fékk óþverrin helvíti stönduga útför miðað við að hann fór til Helvítis skv. kaþólsum leikreglum:


mbl.is Vissu ekki um brot Gijsens meðan hann var hér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Einar Már kominn í sjóðheita samkeppni við Guð í dönskum kirkjum

Blaue Engel von Island

Þá sjaldan að ég opna póstkassann, sem hér er úti við gangstétt, er orðið harla lítið sem ég get veitt upp úr honum af bréfum. Bréfsprengjur eru jafnvel hættar að berast. Það kostar svo mikið að senda þær nú orðið. Ég hef bannlýst auglýsingar, svo þær koma sjaldan nema fyrir mistök, og allir reikningar fylla tölvuna mína. 

Í morgun var þó eintak af HØK i kassanum. Svo heitir blessað safnaðarblaðið hér fyrir nágrennið. Ég hendi þessu blaði nú venjulega beint í endurvinnsluna, þar sem ég er ekki í neinni kirkju og þegar á samningi við annan Guð en HØK vinnur fyrir. En í þetta sinn tók ég nú blaðið inn með mér í stað þess að setja áróður Guðs beint í ruslið.

Á forsíðu safnaðarblaðsins, sem hefur vaxið fiskur um hrygg og er orðið stærra en venjulega, var flennistór mynd af einu vinsælasta íslenska skáldinu síðan Gunnar Gunnarsson var og hét. Þarna var Einar Már, brosleitur í bláum jakka og í módern Laxness stellingu. Hann hefði örugglega orðið betri prestur en margur annar, með sitt góðlátlega bros og þungar, loðnar brýrnar, og engar alvarlegar, fornar erfðasyndir í farteskinu. Nú er hann kominn í hörku samkeppni við hinn þríeina Gvuð í safnaðarheimilum danskra kirkna og bækurnar hans seljast jafnvel betur en Biflían.

Einar mun koma og tala við áhangendur sína og lærisneiðar í Herstedøster-sókn næstkomandi nóvember. Ég mun ugglaust fara og hlusta á síra Einar Má predika úr pontu yfir verðandi kaupendum bóka sinna. En flestir koma þó til að hrífast af einstæðum framburði hans á dönsku, þegar hann rúllar á errunum eins og urrandi rándýr sem langar í ESB. 

Ég høkti ef til vill upp í safnaðarheimilið ef ég hef tíma, til að láta Einar árita bók fyrir konuna mína sem hefur lesið meira eftir hann en ég, og meira að segja á þýsku. Der Blaue Engel des Universums kemur brátt í úthverfið.


Nýskipaður sendiherra BNA á Íslandi er fyrrverandi umskurðalæknir

DrGunter

Ólíkindadýrið Trump hefur ráðið nýjan sendiherra BNA á Íslandi. Hann heitir Jeffrey Ross Gunter og er frá Kaliforníu. Sjá hér.

Gunter er húðlæknir en einnig gyðingur og hefur á fyrri árum starfað við að framkvæma umskurði. Nú fjarlægir hann mest vörtur og krabbaæxli sem hvítir menn fá í of mikilli sól.

Sumir segja að Trump sé óútreiknanlegur, en í þessu tilfelli læðist að mönnum sá grunur að val Trumps á sendiherranum hafi verið mjög ígrundað vegna þess að umskurðarbann var til umræðu á Íslandi. Það tel ég persónulega ólíklegt. Portkonur þær sem lélegi lögfræðingurinn Cohen borgaði, segir að Trump sé ekki umskorinn sjálfur og dýrki forhúð sína. Ég trúi því að hæfileikar Cohens i fjarlægingu kýla muni brátt koma í ljós.

Áður en Gunter missir sólbrúnkuna í Reykjavík, legg ég til að Dr. Gunter fjarlægi vörtuna sem vex umhverfis rassgatið á forsetanum  í Washington. Í Reykjavík getur hann fjarlægt brúna blettinn á nefi þeirra Íslendinga sem ekki halda vatni yfir Trump og dýrlegheitum hans.

Vinur minn einn í Los Angeles sem er heilaskurðlæknir, skrifaði mér:

Gunter is the only dermatologist in the US who doesn´t think Trump is a wart.


Íslendingar sigruðu Frakka

Lokatölurnar voru 172 Íslandi í vil, 2 fyrir Frakkland.

Þvílíkur sigur, eða hitt þó heldur. Þar með eru Íslendingar komnir með í Mannréttindaráð SÞ (UNHRC), eftir að Bandaríkin fengu nóg. Best er að óska engum til hamingju. Því þessi kosning verður Íslandi ugglaust dýr.

Nú er að standa sig fyrir Íslendinga, svo þeir verði ekki leikbrúður öfgaríkja sem vaða uppi í Mannréttindaráði SÞ, þar sem aðalmálið á dagsskránni í hungruðum og stríðshrjáðum heimi  er að hamra og berja á Ísraelsríki. Mannréttindi í Ísrael sem eru meiri og betri en víðast hvar í Miðausturlöndum of Asíu, eru oftar til umræðu í þessu ráði en t.d. mannréttindi í N-Kóreu, Íran, Sádi-Arabíu eða Tyrklandi, þar sem fólk veit varla hvað mannréttindi eru.

Mæli ég með að menn kynni sér störf þessarar nefndar sem Ísland er nú með í á vefsíðu UN Watch, sem birtir óritskoðaðar fréttir af furðulegum störfum hennar á stundum.

Ég býst við því að Ísland skýri fyrir Mannréttindaráði SÞ, hvað varð um gyðinga sem sættu ofsóknum í Arabaheiminum.

Katrín Jakobsdóttir og kó - Nú vandast málin. Það verður fylgst með þér og pótintátum þínum í mannréttindasirkus SÞ í Genf fram til 31. desember 2019.


Litla rauða hænan fann fræ ...

Sema Erla

Litla rauða hænan fann fræ, það var hatursfræ.

Kratastúlkan Sema Erla, sú sem hér á blogginu hefur hátíðlega haldið því fram, að Tyrkland sé lýðræðisríki, horfði á Söngvakeppni Evrópu í gær. Það fór greinilega í taugarnar á Semu Erlu að Ísrael fái að vera með í keppninni og svo ekki sé talað um að "Ísraelsríki" vinni keppnina með áróðurssöngvum sínum um heimska karla.

Greint er frá þessu á vef DV og þar er þetta upplýst:

Sema Erla Serdar, formaður flóttamannahjálparsamtakanna Solaris, fordæmir sigur Ísrael í Eurovision fyrr í kvöld og segir Evrópu þannig leggja blessun sína yfir meðferð ísraelska hersins og stjórnvalda á palestínskum borgurum.

Og gagga, gaggalagú. Með þessari hatursræðu sinni tekur það Semu aðeins eina viku að eyða leifunum af síðustu krötunum á Íslandi. Blessuð stúlkan ætti sem fyrst að fara í ferðalag langt í burtu frá Evrópu, þar sem menn eru líklega sólgnari í hatursfræ hennar og tilbúnir að baka hatursflatbrauð úr uppskeru hennar, sem enginn vildi taka þátt í að þreskja, mala né hnoða fyrir litlu, rauðu hænuna.

En fjandakornið, Sema Erla, þessi pönnukaka, er ekki og hefur aldrei verið krati.


Þegar þjóðkirkjan birtir hatur

soros_a_heilanum

Eftirfarandi málsgrein birtist í Árbók Kirkjunnar 2015-2016

Gyðingahatur er þekkt fyrirbæri sem menn passa sig almennt á og jafnvel stundum gengið heldur langt í að fordæma hluti sem gyðingahatur, en passa sig á því hvernig talað er um þau trúarbrögð. Nú, hvað varðar íslam, þá hefur það verið skilgreint sem geðröskun að gagnrýna íslam, kallað íslamofobia. Menn þurfi beinlínis að vera geðveikir að tala á gagnrýninn hátt um íslam.

Eigandi orðanna var einu sinni forsætisráðherra. Því hefði ég ekki trúað, vissi ég ekki að einhver sem heitir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson skrifaði þetta þvaður. Skömmin er þjóðkirkjunnar að birta þennan ósóma og kirkjuþingi 2015 að sitja undir slíku mótmælalaust.

Sigurður Davíð kenndi einnig gyðingum um fall sitt úr embætti forsætisráðherra eins og margfrægt er orðið. Sjá t.d. hér.

Skömm sé þjóðkirkjunni á Íslandi að birta þetta moð, og ekki síður Alþingi að hafa ekki enn úthýst þessum siðlausa furðufugli íslenskra stjórnmála. Það sem hann hefur gert sig sekan um er langt undir öllum stolnum hellum. Engin uppreist getur bjargað honum.


Umskurður verður ekki bannaður í Danmörku

Circumcision mediaevalis

Umskurður á drengbörnum verður ekki bannaður í Danmörku. Það er nú ljóst af fréttum í dönskum fjölmiðlum.

Weekendavisen https://www.weekendavisen.dk/2018-16/samfund/ingen-over-folketinget  og

Berlingske Tidende https://www.b.dk/politiko/regeringen-siger-nej-til-forbud-mod-omskaering-af-drenge

Politiken https://politiken.dk/indland/politik/art6458789/Pape-Regeringen-siger-nej-til-forbud-mod-omsk%C3%A6ring-af-drenge

DR https://www.dr.dk/nyheder/politik/pape-om-omskaeringsforbud-jeg-kommer-ikke-til-trykke-paa-en-knap-der-de-facto

 

Það er engin ástæða á Íslandi að eltast við tillögu Silju Daggar Gunnarsdóttur, og nokkurra pírata og VG-lima og hvað þá heldur að hlusta á íslenskra rasista, t.d. manns sem á netinu tala um gyðinga og múslíma sem "sub-humans", sem hafa sent ógeðfelldar lygar sínar til Alþingis í þessu máli, og þaðan af síður málflutning "Samtaka gyðinga gegn umskurði", sem stjórnað er af manni sem ekki er gyðingur. 27 einstaklingar rituðu undir bréf hans.

Ísland verður að gæta hagsmuna sinna og hagsmuna minnihlutahópa sem sest hafa að í landinu. Svo einfalt er málið. Lög eru í landinu. Þau eru líka við lýði í Danaveldi, þar sem þeim var fylgt en ekki uppákomu 37000 einstaklinga sem rita nafn sitt á lista, þar af margir sem eru yfirlýstir hatursmenn múslíma og einnig 1000 læknar sem starfa í Danmörku, sem er lítil minnihluti allra lækna í landinu. Sá hópur sendi einnig bréf til Alþingis, því hann er fullviss að fólk í hvítum kirtlum sé hafið yfir bæði guð og menn.

 


Here comes the Circumcision Police

Kempner 1
It is worth knowing that the now world famous anti-circumcision bill in Iceland uses the Icelandic word líkamsárás about circumcision of male children. Let me translate this word for you. Literally it means a bodily attack. Definitions like a bodily attack, molestation, child molestation etc. are widely used by anti-circumcision activist. Their primitive vocabulary doesn´t match their allegedly noble issue.

Despite of the rogue and misleading vocabulary of anti-circumcision activists and their often more or less anti-Semitic and Islamophobe supporters, the anti-circumcision bill in Iceland preposes punishment for circumcision of male children with up to 6 years in prison for those who might violate the preposed addition to the penal code, which they are trying to introduce to criminalize circumcision of a religious practice. Yes, I wrote penal code (the criminal legislation). This is not a law about a health issue and protection of children. This is a bill which criminalizes a religious practice of Jews and Muslims - which should be protected by the Freedom of religion acts in the Icelandic law and the constitution of Iceland.

Please imagine this scenario: 

The Icelandic circumcision police enters the buildings, where Jews and Muslims live. See before you how their special squad runs up the stairs, brakes down the doors and apprehends the parents of illegally circumcised children, who are taken from their parents, while they are left in an Icelandic prison for six years.

Please apologize if your imagination gives similar images in you mind, to a Gestapo-raid.  Do the people who propose the introduction to a circumcision ban into the Penal code of Iceland, realize what kind of horrors they might be afflicting on the the children, whose parents will be sent to prison because they wanted their sons to follow the religion and practices of their ancestors?

Some of you might now be thinking: He is pulling the Hitler-card out of his hat. But no, there is not magic hat nor a bag of tricks. I leave those methods to the opponents of religious circumcision. With my Gestapo-vision transferred to a stairway in Reykjavík, one might think I was Hitlerizing the opponent. Let me enlighten you. Mrs. Silja Dögg Gunnarsdóttir, the primary  presenter of the anti-circumcision penal code addition in Iceland is a member of the old Icelandic political Party, Framsóknarflokkur (Progressive Party), which today is defined as a centre-right, populist and agrarian party.

Originally and traditionally Framsóknarflokkur was a conservative and nationalistic farmers´ party, the equivalent to similar agrarian parties in Scandinavia. This party was the most ardent opponent against Jewish asylum seekers in Iceland in the 1930s.  The Framsóknarflokkur was the most active political entity in preventing Jews in finding  safe haven in the country, even more so than the non-parliamentary Icelandic Nazi party.  Gunnarsdóttir´s party caused the "NO", which Jewish refugees received as responses to their asylum requests. Most of the people writing to the Icelandic embassy in Copenhagen, or Danish embassies and consulates [who took care of Icelandic intrestes ] in Nazi Germany and Anschluss-Austria were killed in the Holocaust. When Jews, who made it to Iceland, like young Alfred Kempner did, was expelled in 1939, the officials who all were members of the Framsóknarflokkur wrote a letter to the authorities in Norway and Denmark, in which the Icelandic Police director wrote:

I take the liberty of requesting, that the [Danish] Police, if he might not recieve a residents permit in Denmark, takes care of his further deportation to Germany. The costs for occurring expenses by this will of course be taken care of here.

Hermann Jónasson (Framsóknarflokkur) the Icelandic foreign minister in 1937 told C.A.C. Brun, a Danish diplomat in the Danish Embassy in Reykjavík who was deeply engaged in helping Jews in Reykjavík, that he would give a one year extension to the residents permit for the Jewish family Rottberger from Berlin, but foreign minister Jónasson added:

It is a principal, Iceland has always been a pure Nordic country, free of Jews, and those who have come here in later years must leave again.

If one looks at the supporters of the anti-Circumcision bill, it is obvious that a small proportion of them have high values relating to worries about pain and side effects for a circumcised child. The wast majority of supporters, however (an this can easily be witnessed in public discussions in Iceland), are still thinking like xenophobes, just as Hermann Jónasson did in 1937 - about the pure Nordic race of Iceland. 
Kempner

Alfred Kempner, who came from Leipzig, in a Danish mugshot from 1940, when the Danes were trying to get the German occupants to deport him to Germany. The ilustration at the beginning of the essay is my vision of the apprehension fo Kempner in Reykjavík before he was expelled to Denmark.

The Framsóknaflokkur has never apologized for its anti-Semitic agenda in the past. They were also among other parties in Iceland who asked the American forces based in Iceland for decades not to bring black servicemen to Iceland nor those of Slavonic or Jewish extraction. They never came around to apologize for the partys´ racist views before some of their politicians again were involved in a disgusting anti-Muslim and anti-Mosque dialogue which pestered Icelandic public life few years ago.

Recently I spoke to my good friend Felix Rottberger, the first Jew to ever be born in Iceland, back in 1936. He was not circumcised in Iceland. There was no rabbi nor a mohel (Jewish circumciser) in the country. Felix was circumcised in Copenhagen after his family had been expelled from Iceland in 1939. Felix had heard about the anti-circumcision parliament bill in Iceland and gave me his opinion, when I asked him:

I am very sad that the same political party, which expelled me and my family from Iceland, is still trying to exclude Judaism in Iceland and thus preventing Jews from settling there - very sad

irispapa

Felix Rottberger, who is now 82, with one of his daughters Iris.


Fyrsti gyðingurinn sem fæddist á Íslandi er sorgmæddur yfir umskurðarbannstillögu þess flokks sem vísaði fjölskyldu hans úr landi

irispapa

Ég talaði um daginn við góðvin minn Felix Rottberger. Hann var að halda til stuttrar dvalar í Ísrael með konu sinni Heidi, þar sem þau munu halda Pesach-hátíðan hátíðlega.

Hann er fyrsti gyðinginn sem fæddist á Íslandi. Er hann fæddist, vildi enginn læknir í Reykjavík umskera hann. Hann var umskorinn í Danmörku eftir að Framsóknarflokkurinn vísaði fjölskyldu hans og honum úr landi. Hann man vel eftir aðgerðinni, sem framkvæmd var af lækni, Nathan að nafni, með yfirumsjón Marcus Melchiors rabbína.

Allt gekk vel og Felix hefur eignast 6 börn og umskurðurinn hefur aldrei verið honum til vansa.

Þegar ég reyndi að láta íslensk yfirvöld bjóða Felix til Íslands á áttræðisafmæli hans, stóð framsóknarráðherra (hvað annað) í vegi fyrir því. Hún tímdi því ekki. Felix, sem er furðu lostinn og sorgmæddur yfir því að heyra um umræðuna um bann á umskurði á Ísland, á hins vegar inni veislu á Bessastöðum, ef yfirvöld bjóða honum. Nýnasistar eru greinilega meira velkomnir á Íslandi en gyðingar sem fæddust þar. Það er tekið eftir því. Myndin efst er af Felix með dóttur sinni Iris.

PB100393

Sonur minn Ruben bregður á leik við Felix. Felix er besti PABBI sem ég hef á ævinni hitt. Barngóður, fyndinn, glaðlyndur og á allan hátt sáttur við tilveruna, en sorgmæddur yfir því sem er að gerast í landinu þar sem hann kom í heiminn á flótta undan Hitler og hans hyski


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bækur

Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband