Leita í fréttum mbl.is

Æran sem allt ætlar að æra

Honour

Er maður sem setið hefur um tíma á skólabekk njósnara- og hryðjuverkaskóla í Austur-Berlín svo fínn af æru og upplagi að honum skuli veitt sendiherrastaða? Er æra slíks manns meiri og betri en þeirra sem ekki vildu selja þjóðina í eilífðar skuldafen út af Icesave?

Er stjórnmálakonan sem nú hefur verið valin til að gegna háu embætti hjá OSCE (ÖSE) rík af æru? Sama manneskjan hefur heimsótt Assad á Sýrlandi til að koma Íslandi í Öryggisráðið, eingöngu til þess að Ísland gæti orðið málpípa Palestínuaraba sem útrýma vilja lýðræðisríki og þjóðinni sem í ríkinu býr. Er æra slíkrar konu ósköðuð, þó hún hafi haldið því fram á fundum erlendis fyrir hrun að Íslenskt efnahagslíf og bankar væru gulltryggðir? Afsakið, en eiga ekki spurningin fullan rétt á sér?

Er þingmaður sem segist vilja drepa menn sem hugsanlega myndu hegða sér afbrigðilega við dóttur hans (sem nú er vart meira en 5 ára) með mikla æru og hreina samvisku. Sami maður laug því að hann hefði orðið fyrir árás skriðdreka Ísraelsríkis og var helsti stuðningsmaður frekar ærulauss manns sem stundaði eiturlyfjasölu og skar loks mann á háls í Reykjavík ærunnar.

3CE3E40300000578-4195498-image-a-2_1486377474097

Allir eru gallaðir, en misjafnlega lagnir við að viðurkenna galla sína og bæta sig. Feður stúlkna sem lentu í gölluðum manni sem misnotaði stöðu sína til að hafa kynmök við börn eru líklega mjög syndlausir menn. Þeir segjast ekki enn „hafa tæmt úr réttlætisbrunni“ reiði sinnar. Slíkir menn verða að hafa það í huga að slíkur brunnur er ekki til og hefur aldrei verið það. En dómstólar eru til og þeir hafa dæmt manninn sem lagðist á börn þeirra. Vilja þessir síþyrstu menn hafa manninn sem lá með börnum þeirra í gapastokki á Lækjartorgi, þó svo að hann hafi setið af sér dóm fyrir glæp sinn? Hvað vilja þeir eiginleg drekka? Blóð?

Er vandamálið ekki miklu frekar að siðgæðið á Íslandi er frekar brenglað. Á Íslandi virðast lög  ekki vera skjalfest til að fara eftir þeim heldur einvörðungu til að sveima vandlega umhverfis þau.  

Hvaða æru hefur þingflokkur sem styður hryðjuverkasamtök og líkir lýðræðisríkjum við nasista (VG, Samfylkingin og Píratar)? Hvað krati (Sema) er í lagi, þegar hann heldur því fram að Tyrkland sé lýðræðisríki, meðan að sami kratinn hvetur samfélagið að kaupa ekki vöru frá lýðræðisríki? Ísland er fullt af skríl sem dýrkar slík gyldi og veit ekki hvað ærleg æra er. Sama fólkið hrópar hæst um mannréttindi og æru.

Nei, án þess að ég sé að taka sérstaklega upp hanskann fyrir Robert Downey, sem misnotaði traust, og hafi samúð með smápíkunum í Reykjavík sem létu lokkast af þúsundköllunum hans og kynæsandi rakspíranum, sýnist mér að margir séu nú frekar rúnir ærunni af eigin gerðum og ættu ekki að tala um breytingu á reglum um uppreist æru manna sem setið hafa út dóm sem þeir hafa fengið. T.d. ekki ráðherra sem ætlar að senda saklausa, kúrdíska flóttamenn úr landi. Hún skipar sér þar með í sveit með fyrrverandi ráðherra sem leitaði stuðnings hjá einræðisherranum Assad sem ofsótt hefur Kúrda í áratugaraðir. Fólk sem leitar stuðnings hjá morðingja til að koma sér í stöðu hjá Sameinuðu Þjóðunum, er að mínu mati fullkomlega rúið allri æru. En ég sé þó enga ástæðu til að setja slíka rugludalla í gapastokk og hreyta í börnin þeirra ónotum. Blessuð börnin geta ekki gert að brenglun foreldranna.

Formaður Pírata, sem er sæmilega löglærð í erlendum háskólum í málefnum stríðsglæpamanna, telur nú að hlutverk hennar sé að taka á móti dómum götunnar svo hún geti notað þá sem greinar og kafla á fundum með löggjafavaldinu, er hins vegar alvarlega afvegaleitt apparat. Hefur enginn næga æru til að tilkynna vesalings konunni að hún er með slíku athæfi og hvatningu að brjóta íslensk lög. Hún er ekki að dæma mann fyrir þjóðarmorð. Hún hefur engan rétt til að reka mál fyrir dómi, en telur greinilega að íslenskur barnariðill eigi að fá harðari dóma en bölvaður stríðglæpadómstóllinn í den Haag gaf morðingjum. Æra píratans lögfróða er afar lítil að mínu viti. En þetta situr samt á æruverðugu Alþingi Íslendinga. Þó hún tjái sig, þarf ekki að ansa því frekar en samflokksmanni hennar sem vill drepa mann og annan.

Æra og heiður er siðferðileg virðing fyrir öðrum, sérstaklega þeim sem eru öðruvísi, minni máttar eða þeim sem hafa misstigið sig og greitt samfélaginu það sem þeir skulduðu því. En nú vilja fleiri og fleiri Íslendingar ólmir fá sömu gildin og nasistar hylltu, nefnilega: Blóð og Æru. Blóðið á að fljóta ofan í brunn svo menn geti svalað sér á því í hefndarþorstanum og hópæsingunni.

Við lifum á hættulegum tímum, þar sem svo kallaðir vinstri menn eru aftur farnir að dýrka sömu gildin og nasistar.  Það er hætta á ferðinni.


mbl.is Á þuklandi læknir að fá réttindi?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Ég er hrædd um að þú hafir mikið til þíns máls þegar þú segir ".. að siðgæði á Íslandi sé frekar brenglað." Fólk hefur tilhneigingu til að kenna öðrum um þegar börn þeirra rata á refilstigu. Þegar í reynd að fjölskyldulíf er hér oft í molum vegna frama pots og sjálfselsku foreldranna. Fjölmiðlar ýta svo undir þetta m.þ.a. leysa foreldra undan ábyrgð en leggjast af þunga á heppilega skúrka. Það vill gleymast að siðgæði er ekki valkvætt.

Ragnhildur Kolka, 20.7.2017 kl. 12:13

2 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Ég alhæfi ekkert vona ég, en maður hefur orðið þessa var. Hugsanlega gerði maður hið sama væri maður svo óheppinn að börnin manns væru "misheppnuð" og sæktu meira í barskápinn en maður sjálfur. Slíkan skáp á ég sem betur fer ekki og heilsan leyfir ekki slíkt tómstundagaman. Sjálfselska foreldra er aðeins einn hluti af þessu, en annar t.d. sá, að fólk er orðið hrætt við að ala börn sín upp með boðum og bönnum sem maður sem fullorðinn telur að muni gagnast þeim, þó þau séu í fyrstu óhress með ákvarðanir "útfararstjórans" og "grátkerlingarinnar" eins og foreldrar geta lent í því að vera kallaðir í Danaveldi. Virðing fyrir börnum er hins vegar besta leiðin til að komast hjá erfiðleikum - alveg sama hvaða þjóðfélagsstiga maður er í.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 20.7.2017 kl. 14:02

3 Smámynd: Sigurður Kristján Hjaltested

Sæll Vilhjálmur.

Frábær pistill og svo sannur.

Vinstri menn hafa alla tíð verið

til óskunda og mun aldrei breytast.

Tækifærissinnar andskotans.

Sigurður Kristján Hjaltested, 20.7.2017 kl. 22:36

4 Smámynd: Vilhjálmur Eyþórsson

Afbragðsgóður pistill, nafni, þótt þú sért kannski of vondur við Assad. Hann er kannski slæmur, en andstæðingar hans eru sýnu verri. Annað er satt og rétt og ágætlega orðað svo sem þín er von og vísa.

Vilhjálmur Eyþórsson, 21.7.2017 kl. 05:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bækur

Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband