Leita í fréttum mbl.is

Tvískinnungsgangan

Gleðiganga 3
 

Baldur Þórhallsson básúnaði nýlega vanþekkingu sína á landi sem hann hefur dvalið í. Ég leyfði mér að skrifa um það um daginn í pistli sem ég kallaði Skugga-Baldur á Lithaugalandi. Baldur vill ekki svara.

Baldri leið vel í Litháen, þar sem hatur í garð minnihluta er daglegur viðburður og þar sem fyrrverandi forseti landsins stundar gyðingahatur og hatur gegn samkynhneigðum í ESB. Baldur var nýverið stjarna í landi þar sem mismunun, fordómar og ofsóknir gegn minnihlutum eru örugglega í öðru sæti á eftir Rússlandi Pútíns og Kína Núbós, sem Samfylkingarmenn geta vart haldið vatni fyrir.

Ég hvet Baldur til að fara í gleðigöngu í ESB-ríkinu Litháen!

Gleðiganga 2
Baldur gæti alveg eins hafa farið í gervi Landsbergis fulltrúa Litháa í ESB
998775_10152140949974478_1880520299_n
Dr. Baldur og Felix 

 

Eru hjónin Baldur og Felix blind eða siðblind?

Til að kóróna þessa fáviskuopinberun sína, gengur Baldur og maðurinn hans, Felix Bergsson, í Gleðigöngunni í gervi vondra Rússa með vígtennur, með rússneska fánann sem skikkju og með kross og íkon í hendi fyrir utan kylfur.

Frumstæðir fordómar í Rússlandi gegn samkynhneigðum í Rússlandi eru gífurlegir, svo ekki sé talað um fordóma gegn örðum minnihlutahópum, því þeir eru til. T.d. sá sem Þjóðverjum og samverkamönnum þeirra um Evrópu tókst að myrða 6 milljónir með.

En þega menn beita sama hatrinu gegn þeim sem hata, erum við að tala um frumstæða hegðun. Háskólakennari og starfsmaður RÚV ganga um götur Reykjavíkur sem ömurlegar Rússagrýlur  í Samfylkingarjakkasettum til að mótmæla fyrir sinn minnihluta. Fyrr má nú ofgera.

Tvískinnungur Bandaríska Sendiherrans

Hér þarf ekki að fara mörgum orðum um málið, myndirnar tala sínu máli. Kanadíski sendiherran kom hreinna til dyranna en bandaríski starfsbróðir hans. Sá kanadíski var mættur með manninum sínum, og sendiherrann er vitaskuld maður og örugglega af Vestur-Íslenskum ættum. Fyrst Snowden er Gay, þá bið ég fyrir honum í Rússíá.

Tvískinnungur Luis
USA ISLAND ISLAM
Þetta er ekki úr gleðigöngunni. Er fólk búið að gleyma hvað nýverið var haft eftir manninum með rauðu og hvítu húfuna? Hér má lesa um viðkunnanlega sendiherrann við Laufásveginn.
Kristinn Hrafn og Bradley
Þessir herrar gengu fyrir Bradley og Snowden. Ef Snowden er samkynhneigður eins og Bradely, þá bið ég fyrir honum þarna heima hjá Pútín. Gvööð, er þessi hvíthærði ekki talsmaður Assange, þess sem nauðgaði konum í Svíþjóð og sem felur sig í sendiráði í London? Hvaða mannréttindi ætli Kristinn hafi verið að ganga fyrir? Réttinn til að nauðga? Fyrir aftan hann er Vormaður Íslands og aðalsérleyfishafi réttra skoðanna á Íslandi, Illugi Jökulsson. Hann hefur oft ferðast með móður sinni og öðrum til þeirra landa þar sem réttindi samkynhneigðra eru engin og þeir eru t.d. hengdir úr ljósastaurum og byggingarkrönum.

Sendiherrann viðkunnanlegi

Iftar-32 

Nýlegar lokanir á sendiráðum Bandaríkjanna í fjölda landa hafði engin áhrif á Íslandi.  Ekki er mér kunnugt um að Bandaríska sendiráðið við Laufásveg hafi verið lokað, enda lítil ástæða til þess. Íslendingar eru hættulegasti sjáfum sér og terroristar ganga lítið eftir Laufásveginum, þótt steinsteypuhindranir BNA-sendiráðsins gæti gefið aðra mynd. Nú ræður ríkjum mjög óvenjulegur bandarískur sendiherra, sem á góðviðrisdögum gerir Laufásveginn litríkari og lýsir stuðningi við það sama og flestir Íslendingar, með því að rúlla út fána samkynhneigðra.

IDAHO Flags 2
USA-Embassy Reykjavík - Glad to be gay!

 

Sendiherrann heitir Luis E. Arreaga og er fæddur og uppalinn í Guatemala á viðsjárverðum tímum, eða um það leyti sem herforingjar rændu þar völdum árið 1954 með dyggri aðstoð CIA. Luis Arreage hafði, eins og börn elítunnar í Guatemala, tök á því að fara í framhaldsnám til Bandaríkjanna og settist þar að.

Síðan að sendiherrann kom loksins til landsins, hefur hann verið mjög virkur í almannatengslum og að kynna sér land og þjóð, sem og að kynna land sitt. Hann heldur úti bloggi, sem hann kallar Ambassdor's Blog, sem ég hvet alla til að kynna sér. Áður hafa mest setið stífflibbar og merkikerti í sendiráðinu, eins og oft vill verða í diplómatíunni, en Luis er búinn að koma dálitlum Ladínó-salsaanda inn í utanríkisþjónustu. Áhugavert að lesa, og sjá hvernig hann skjallar Íslendinga upp úr skónum, ferðast um landið og kynnir sér margar hliðar þess lands sem hann gistir og þjónar landi sínu í. Hann ber mikla virðingu fyrir Íslendingum og hefur greinilega uppgötvað, að Íslendingar eru hálfgerðir Kanar og að smáhluti þessara eyjaskeggja er "Norther-Ladínó".

Meðlimir múslímasafnaðarins í Öskuhlíð, sem ýmsir bloggarar rita um sem Íslamista og öfgamenn, hafa meira að segja verið á gestalista Arreaga, svo vart getur hann verið haldinn íslamófóbíu eins og 80% Bandaríkjamanna. Arreaga hefur meira að segja farið í samkomuhús þeirra. Myndirnar eru af bloggi sendiherrans alþýðlega og sýnir efsta ljósmyndin gesti hans við iftar-máltíð í Sendiráðinu á nýafstaðinni Ramadan-föstuhátíð. Múslímar frá báðum söfnuðum Múslíma á Íslandi voru mættir. Sóttur var bandarískur imam í veisluna. Egypskur klerkur safnaðarins í Öskjuhlíðinni var líka mættur í partíið, en hann "misskildu" allir um daginn, þegar hann var að tjá sig um konur og samkynhneigða. Þarna voru einnig múslímar á Íslandi sem á fasbókum sínum hafa tjáð sig fjálglega um nauðsyn þess að útrýma Ísrael og einn sem setti "læk" á öfgaklerk í Sádi-Arabíu, sem vill útrýma öllum gyðingum.

USA ISLAND ISLAM
USA - ICELAND - ISLAM

Eitt er öruggt, Luis E. Arreaga hefur fundið sér besta stað í heimi til að vera bandarískur sendiherra frá Guatemala. Á Íslandi er hryðjuverkahættan=0. Við vonum að hann verði sem lengst á Laufásveginum og haldi fleiri veislur.

Iftar Dinner-6
Iftar Ramadan party 2012 in the USA Embassy Reykjavík, Iceland
AMB Visit to the Islamic Cultural Center-1
I bet the goofy guy on the far right is the CIA operative  Smile 
Here is Goofy- this time in the Gay Parade
Gay CIA
I bet John Kerry was talking about Manning, when he said this!

Skugga-Baldur á Lithaugalandi

Pergales_diena_fashiststeinerlj_copyraight
 

Doktor Baldur Þórhallsson skrifar mjög sjálfhverft blogg. Það ber einfaldlega nafnið Dr. Baldur Thorhallsson.

Ég álpast stundum til þess að lesa þetta blogg, mest til að skima mestu öfgarnar í mönnum sem trúa því að ESB sé einhvers konar Útópía. Baldur er eins og margt fólkið sem elskaði Sovétríkin forðum. Áróðurinn verður að blindum trúarbrögðum, og veikina er ekki hægt að lækna. Ofsatrúin kalkar í heilasellunum. Þetta er eins og að fá sýfilis á heilann, svo vitnað sé í verk Vladimirs Mayakovskijs.

Í nýrri færslu fer Baldur mikinn um skrif Davíðs Oddssonar um Litháen og ESB í Morgunblaðinu. Ég tel ólíklegt að maður, sem einna mest studdi lýðveldi og frelsi Litháa á sínum tíma, hafi minni skilning á Litháen í dag en doktor Baldur. Litháen er því miður 2. flokks land í annarri deild ESB - þar sem fylgismenn sambandsins telja það frelsun, því "þeir eru ekki latir eins og Grikkir" eins og talskona ESB í Kaunas hélt fram við mig í fyrra, þegar ég var í bænum til að flytja erindi. Þar varð ég líka vitni að blómstrandi gyðingahatri í ESB-ríkinu Litháen.

Doktor Baldur skrifar m.a. í rassskellugrein sinni ætlaðri Davíð Oddssyni:

Í dag er Litháen fullburða ríki sem stendur jafnfætis öðrum ríkjum í vestrænni samvinnu innan Evrópusambandsins og Atlantshafsbandalaginu. Í dag fer það með forsætið í Evrópusambandinu og getur í krafti þess haft þónokkur áhrif á gang mála innan sambandsins - sér og öðrum til framdráttar.

Nýlega var Baldur með gleðigjafa ungra, baltneskra kvenna, Jóni Baldvini Hannibalssyni, að kenna ungviðinu í Vilníus allt um lýðræði, sem og um hrun ömurlega bankaveldisins þeirra í Ballarhafi, og hve vont það er að vera ekki í ESB.  Ég er ekki í vafa um, að eins glöggur maður og Baldur er, hafi séð þá voveiflegu strauma sem tröllríða Litháen. Hann hlýtur að hafa heyrt af þeim í skúmaskotum þjóðfélagsins, eða bara í klúbbferð með komrad Jóni Baldvini.

Hér er ég að tala um ófögnuð þann sem er helsta vandamál stórs hóp fólks í Litháen, sem og í Lettlandi og Eistlandi, einnig þeirra sem sitja og vilja ólmir vera í ESB.

Ég er að tala um hómófóbíu, gyðingahatur, útlendingahatur, öfgaþjóðernisstefnu, helfararafneitum, Rússahatur, blökkumannahatur og fleira, sem byrjaði að grassera fyrir alvöru, þegar Litháar gengu í ESB. Þá töldu menn, að þeir gætu allt í nafni frelsis. Það furðulega er, að ESB leyfir þessu meini að vaxa og hefur gert lítið til að koma í veg fyrir það.

swastikas-on-Gedimino
Merki nasista í Litháen sem héldu upp á fullveldisdaginn með leyfi og blessun yfirvalda og með lögregluvernd. Þessu missti Baldur af.

Gamlir SS-liðar ganga hlið við hlið með nýnasistum í árlegum "gleðigöngum" Litháens og þær eru ekkert í anda þeirrar gleðigöngu sem á næstu dögum þrammar um Reykjavík (sjá hér og hér). Fyrrverandi forseti landsins var t.d. Waffen SS-liði og ríkisstjórn landsins hyllir stuðningsmenn nasista í landinu (sjá hér og hér). Fólki í Litháen, sem þorir að gagnrýna þennan ófögnuð, er þröngvað úr starfi, það er set Berufsverbot og er ofsótt á ýmsan hátt.

Sieg Heil á Geimino
Fullveldisdegi Litháens fagnað 11. mars 2013. Mikið var "hælað". Baldur hefur líklega misst af þessari "gleðigöngu", sem var haldin áður en hann kom til starfa í Vilnius
Cekutis-at-March-11th-2011-march
Fullveldinu fagnað árið 2011.
1
Ráðstefna í Kaunas vorið 2012, þar sem menn hylltu Juozas Ambrazevičius-Brazaitis forsætisráðherra leppstjórnar nazista í Litháen, sem gerði fjöldamorð á gyðingum möguleg með lögum.  Juozas Ambrazevičius-Brazaitis hefur verið tekinn í dýrðlingatölu af ESB-stjórninni í Litháen. Hvernig má vera að háþróað ESB-ríki geri slíkt?  Þarna var ráðist á mig. Ljósmynd Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson.

Háttsettur embættismaður einn, Linas Kadys, í fjármálaráðuneyti Litháen, sem er mikilvæg deild í ESB, hefur verið tekinn í því að halda úti svæsnasta hatursbloggi allra tíma, og ég get ekki ímyndað mér að Doktor Baldur geti verið í miklu uppáhaldi hjá þeim kóna, sem hefur haldið vinnu sinni í ESB, þrátt fyrir að upp hafi komið að sé gyðinga-, homma-, negra-, pólverja-, sígauna-, og Rússahatari bara svo eitthvað sé nefnt. Samtök sem berjast gegn þessum ósóma hafa beðið tvo ráðherra fjármálaráðherra landsins að leysa manninn frá störfum, en ekkert gerist. Linas Kady kallar blogg sitt Zeppelinus (sjá mynd af blogginu efst, þar sem andstæðingum ESB-þjóðarinnar Litháuen er lýst sem rússneskum hermanni og gyðingi í sleik; Sjá önnur dæmi hér, hér, hér).

Starfsmaður í Ráðuneyti
Linas Kady, fyrirmyndarstarfmaður í ráðuneyti fyrirmyndarríkis í ESB. Hann hefur ekki verið rekinn fyrir svæsnasta hatur sem sést hefur á bloggsíðu, og þó víða væri leitað. Hann hatar sér í lagi homma og gyðinga.

Fínt land og "flott stjórn", sem doktor Baldur hefur ekki alveg séð í gegnum, þegar hann var þar nýlega að kenna ungviðinu Stóra Sannleika með Jóni Baldvini Hannibalssyni, sjálfskipuðum verndara lærdómsfúsra, ungra kvenna í þessu stórmerka ESB-ríki.

En hvernig má vera, að menn eins og t.d. íslandsvinurinn Landsbergis (les hér um hommahatarann Landsbergis) og aðrir á svipuði róli, séu haldnir alls kyns fóbíum gagnvart minnihlutum? Jú, þeir eru komnir á jötuna í ESB, sem á vissan hátt er afkvæmi 3. Ríkisins, en samstarfið við það líkaði sumum Litháum afar vel á sínum tíma.

Ég gef prófessornum lága einkunn fyrir þetta þekkingarleysi á Lithaugalandi sem hann nýtir sér í lýðskrumsgrein af verstu gerð á bloggi sínu. Glöggur maður er Baldur ekki, og legg ég til að han endurskíri blogg sitt og kalli það hið fyrsta Skugga-Baldur. Hann sá ekki skuggahliiðar ESB í Litháen, þegar hann dvaldi þar nýverið.

*

Sjáið hvernig ESB-ríkið Litháen hyllir gyðingamorðingja í götunöfnum og á minnismerkjum.

LESIÐ WWW.DEFENDINGHISTORY.COM


Ævintýri: Dauðinn á jöklinum

Dauðinn á beltum

Íslensk náttúra getur verið váleg og það getur nútíma "action-ferðamennska" einnig verið. 

Íslenskt fyrirtæki selur fólki ferðir á snjósleðum upp á jökla. Allt virðist í himnalagi og framkvæmdastjóri fyrirtækisins er sagður jöklasérfræðingur. Hver vill ekki  á vélsleða á 15 km. hraða með slíkum manni. Hvar fær maður annars titilinn "Glacier Expert"? Upplýst er á vefsíðu fyrirtækisins, að menn þurfi ökuréttindi, væntanlega bílpróf, til að aka vélsleðunum. 

En á jöklinum bíður svo dauðinn. Maður sá frá Kínverska lýðveldinu á Taiwan, sem lést í ferð fyrirtækisins, er sagður hafa upplýst ranglega að hann hefði ökuréttindi. En í ljós er komið að hann hafði reynslu af vespum. En hvað á vélsleði sameiginlegt með bifreið? Jöklasérfræðingurinn segir að "maðurinn hafi laumast til að fara á vélsleðann, sett bensínið í botn og misst stjórn á sleðanum með fyrrnefndum afleiðingum. Mikil mildi þykir að aðrir ferðamenn slösuðust ekki."

Ævintýraferðir á Íslandi, þar sem líf fólks getur hangið á bláþræði, eiga ekki að vera möguleiki nema að þátttakendur geti sýnt fram á mikla reynslu af t.d. vélsleðum. Öðrum ber að fá eins dags kennslu á vélsleða með tilheyrandi varnaðarorðum um hættur þessa varasama farartækis.

Á vefsíðu annars fyrirtækis, sem einnig bíður upp á ferðir á Langjökul er meðal annars upplýst að börn niður að 8 ára aldri með skóstærðar 35 komist í slíkar ferðir, en þetta fyrirtæki virðist þó krefjast þess að menn séu með ökuskírteini á sér. Reynslu úr vélsleðaíþróttinni er þó ekki krafist:

Age limit: 8 years as a passenger on the snowmobile. Children 8-12 years old get 50% discount.

[Sjá hér um börn og snjósleða]

Special skills required: Anyone driving the snowmobile must have a valid driving licence with them. No prior knowledge of the sport is required.

Eins og Chris frá BNA upplýsir á enn annarri vefsíðu fyrirtækis (Eskimos) sem býður upp á vélsleðaferðir á jökla á Íslandi:

"Snowmobiles are a hell of a lot of fun!"

Kannski ekki, þegar eigendum þessa fyrirtækja er leyft að tjá sig á miður sómasamlegan hátt um dauða þátttakenda í ferðum þess í fréttum, þegar greint er frá nafni hins látna ferðamanns.

En kannski þarf maður ekki að sýna eins mikla virðingu við dauða stærðfræðiprófessors frá Taiwan eins og við dauða Íslendinga, þegar greint er frá slysum sem þeir farast í ?


RÚV-kirkjan

RíkiskirkjanThjodvarpid

Ekki má bregða sér í danskan sumarbústað í viku eða svo til að njóta algjörs netleysis, trúleysis og stunda núdisma og önnur forbönnuð trúarbrögð, án þess að stórfurðuleg umræða gúrkutíðarinnar á Íslandi haldi ótrauð áfram. Makalausar samlíkingar RÚV og þjóðkirkjunnar hafa geysað að undanförnu.

Brynjar Níelsson þingmaður og formaður Vantrúar, Egill Óskarsson leikskólakennari, eru komnir í hár saman út af RÚV og Þjóðkirkjunni.

Það er ekki laust við að sumir Íslendingar hafi gert RÚV að trúarbrögðum sínum og fréttamenn, sem endalaust flytja fréttir af Gaza og vorinu í Íslam, að guðspjallamönnum sínum. Þegar Egill Helgason var á RÚV var hann vissulega æðstiprestur margra Íslendinga, Varabúdda og Siðferðispáfi fjölda Íslendinga. Nú er hann í sértrúarsöfnuðinum Eyjan.is.

Það skýtur hins vegar skökku við að maður eins og leikskólakennarinn Egill Óskarsson haldi uppi vörnum fyrir RÚV-kirkjuna, þegar hann vill fá að vita af hverju skóflað sé fé í Þjóðkirkjuna meðan að sumir vilja setja RÚV á fórnaaltarið.

Sjálfur hefur Egill hvatt til að drepa fólk sem les Passíusálmana opinberlega (sjá hér). Þessar hálf-trúarlegu kenndir, að drepa þá sem ekki eru á sömu skoðun og maður sjálfur, koma yfir leikskólakennarann vegna þess að hann hefur gert sér grein fyrir því að það er gyðingahatur í Passíusálmunum.

En Egill Óskarsson hefur ekki gert sér grein fyrir því að gyðingdómur og gyðingar, sem verða fyrir hatrinu, óska ekki að fólki sé slátrað. Enginn gyðingur vill sjá höfuð rjúka frá bol örgustu trúarandstæðinganna íslensku,  sem sýnt hafa blóðuga þörf sína fyrir Passíusálmana með því að lesa þá upp í kirkjum landsins. Meðal flytjanda Passíusálmanna í íslenskum kirkjum eru margir yfirlýstir trúleysingjar og Alþingismenn.

Morð og dráp eru aðferðir gyðingahatursins, öfganna og vantrúar. Nóg er að menn hætti flutningi haturssálmanna, t.d. á RÚV, þar sem þeir eru fluttir árlega af mikils metandi mönnum. Egill Óskarsson verður að muna, að RÚV er einmitt helsta kynningarmiðstöð gyðingahatursins sem hann vill hefna og myrða fyrir.

Kannski hyggur Egill á fjöldamorð í Efstaleiti? Þá þekki ég góðan lögfræðing, Brynjar nokkurn Níelsson, sem örugglega mun verja hann. Brynjar er lítið gefinn fyrir harða dóma (sjá hér).

AMEN


Þýskur hvalur með bægslalæti

altmaier
 

Ég er ekki mikið gefinn fyrir hvalveiðar Hvals hf. Ég tel þær ekki vera þjóðhagslega iðju eins og málin standa nú. Hvalveiðar þær sem Kristján í Hval stundar eru ekki íslenskar. Þetta eru iðnaðarhvalveiðar eins og margar Evrópuþjóðir stunduðu, og voru þær nærri því búnar að útrýma hvölum á fyrri hluta 20. aldar. Ég er ekki einu sinni viss um, að Kristján í Hvalnum hafi kaupanda að þeim hvalaafurðum sem hann er að senda úr landi nú.

En þegar maður sér aðferðir Peter Altmeiers umhverfisráðherra í Þýskalandi og sér tvískinnung þýska ríkisins blöskrar manni. Þýskaland er ESB-ríki sem hefur selt tæknibúnað til Íran. Frá höfnum Þýskalands er auðveldara að senda vopn til öfgaríkja eins og Írans en hvalkjöt. Til Þýskalands má flytja 4 sinnum meira af eiturúrgangi en Þjóðverjar flytja sjálfir út. Til skamms tíma var einnig auðvelt að flytja ólöglega líffæri fátæklinga í þriðja heiminum til Þýskalands. Mér sýnist svona á útlitinu, að hinn einmanna piparsveinn, Altmaier þurfi brátt á nýju hjarta að halda og vonandi verður það nýja betra en það sem nú er í Altmaier. Loforð hans um að vernda hnísuna, sem kallast Schweinswal á þýsku, eru grunsamleg. Altmaier hefur lýst því yfir, að  "Der Schutz der Schweinswale liegt mir besonders am Herzen". Þetta grunaði mig.

En eins og menn geta séð í því rugli sem Altmaier hefur sent frá sér (sjá hér), er hvalkjötsflutningur Hvals hf. löglegur. Altmeier segir í bréfi sínu, að hann hafa haft samband við önnur ríki í ESB til að stöðva útflutning á hvalaafurðum frá Íslandi og Noregi. Þetta er ekki útflutningur Íslendinga, heldur Kristjáns Loftssonar. Ef útflutningur Kristjáns um þýskar hafnir er löglegur, liggur beinast við að Kristján Lofsson kæri Þýskaland fyrir ólöglegar aðgerðir í sinn garð. Líklegt er að íslensk yfirvöld geti stutt við bakið á einfaranum í þeim efnum.

Altmaier tínir til CITES-reglur og ESB-reglur og segir að langreiðar séu í útrýmingarhættu. Það er hvalategundin vissulega á Suðurhveli, en ekki á Norðurhveli. Hverjum er Altmaier að reyna að ljúga að. Þetta er eins og þegar þýskir diplómatar upplýstu árið 1949 fólk í öðrum löndum um að Adolf Eichmann væri látinn, að hann hefði skotið sig, þó svo að þýsk yfirvöld hefðu árið áður skuldbundið sig til að finna hann lifandi, því vitað var að hann var á lífi. Þýskur tvískinnungur.

Mikið hefði heimurinn verið betri ef Þjóðverjar hefðu sýnt eins mikla manngæsku á 20. öldinni eins og þeir sýna hvölum nú.

Ég endurtek: Ég sé enga ástæðu fyrir Íslendinga til að veiða stórhveli. Ef menn vilja hrefnukjöt fyrir heimamarkað þá veiða menn hrefnu. Ég hef meiri áhyggjur á þýskri heimsvaldastefnu og ESB-aðgerðum en hvalveiðum.


Nýtt safn á Selfossi

Skyr
 

Fischersund þekkja flestir, en nú er komið Fischer-setur. Það er um að gera á græða á snillingnum sem dó akkúrat þegar þrír mismunandi og stríðandi hópar voru að reyna að fá sem mest út úr honum hálfdauðum.

Dauður er hann víst líka nothæfur. Á sýningunni mun vera heill skápur með gyðingahatri sem japanska fylgjan sendi út fyrir Fischer. Hún hljóp sem kunnugt er með auðæfin til Japans og heldur þar veglegar te-athafnir. Þarna er einnig að finna skyrdollur sem Fischer tæmdi í einvígi aldarinnar og sem kom honum úr jafnvægi, því maðurinn var auðvitað með laktósaóþol eins og allir karlar í Neményi ættinni. Þarna er líka húsfluga úr lampa í Laugardalshöllinni sem Spassky geymdi lengi. 

Skuggi sá sem Fischer kastaði á skákíþróttina komst hins vegar ekki fyrir á sýningunni.


mbl.is Fischer-setur opnar á Selfossi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Allt er gott í hófi

eitur

 

Nú berast fréttir af því að Omega 3 sé (mögulega) krabbameinsvaldandi. Slíka pillu eiga sannir Íslendingar, sem þamba lýsi og éta Omega 3 í öll mál, erfitt með að kyngja. En ef Omega 3 fitusýra er tekin inn sem fæðubót og til heilsubóta eiga menn nú á hættu að lenda á krabbameinsdeildinni.

Fyrir skömmu kom ég inn á aðrar hættur sem vísindamenn í Danmörku hafa tengt Omega 3. Sjá hér. Lítið, ef nokkuð, var greint frá þeim niðurstöðum í íslenskum fjölmiðlum. 

Það er kannski orðið hollara að reykja en að fylla sig af lýsi (ljósaolíu)? Allt er gott í hófi eins og kerlingin sagði.

Poisson Poison

Eina mosku með öllu nema hatri

wagenstraat_synagogue_1023640
 

Nú er moskuumræðan blossuð upp aftur. Það er beljandi gúrkutíð. Fólk er að verða satt af því að fara hamförum yfir því sem forsetinn gerir eða gerir ekki. Málsmetandi menn hamast þess í stað gegn mosku, eða með. Læknir og fyrrum borgarstjóri er á móti og sonur Jóns Baldvins er með.

Sama er mér um þá karla. Moska er einfaldlega mannréttindi þeirra sem eru múslímar á Íslandi. Ef þeir vilja byggja hana, þá gera þeir það eftir tilskildum reglum. Mér finnst þó alltaf einkennilegt hvernig fjöldi múslíma á Íslandi er ýktur. Ég held að það verði fremur fámennt í moskunni. Svo mun vera til annar tilbeiðslustaður múslíma í Öskjuhlíðinni, sem ku vera í hrópandi andstöðu við hópinn sem vill reisa mosku í Sogamýrinni.

Hvað veldur því að fólki líður svo illa við tilhugsunina um mosku í Reykjavík? Jú, sjáið til, á Íslandi hefur alltaf ríkt útlendingahræðsla og fordómar. Kynþáttahatur ríkir þar jafnt á meðal vinstri og öfgahægrimanna. Íslam er, eins og Kristindómur, lélegt afbrigði af Gyðingdómi, sem einnig er hægt að gagnrýna. En fólk hefur frelsi til að trúa, þó svo að það fari í taugarnar á trúleysingjum og kynþáttahöturum - og sumum kristnum mönnum.

Í landinu er trúfrelsi og enginn getur komið í veg fyrir mosku, ef menn vilja reisa hana. Um að gera að fá sýnagógu í leiðinni. Því stakk ég upp á fyrir all nokkru síðan (1994) og ekki veit ég til þess að aðrir hafi gert það fyrr. Ég skrifaði m.a.: „Það er ekki nóg að yrkja landið, fólkið verður einnig að fegra. Ég fagna þeim degi, að moska rís í Mosfellssveit eða sýnagóga á Selfossi og að bænir á Alþingi verði ekki aðeins kristnar". 

Á næsta árið held ég upp á 20 ára moskuyfirlýsingu mína og vænti að einhver sendi mér grísakótelettur í bréfi.

Hins vegar, ef kirkja, moska eða önnur musteri eru notuð til að boða hatursboðskap í garð annarra trúarbragða og þjóða, þá höfum við Íslendingar lög, sem taka á slíku. Það varðar við lög á Íslandi að boða hatur gegn trúarbrögðum og kynþáttum. Vissulega hefur hatur verið mikið í Íslam, en einnig í Kristni.

Myndin efst er af Mosku i Wagentraat i den Haag í Hollandi. Þegar faðir minn var ungur og bjó í borginni með foreldrum sínum, var þetta hús sýnagóga, samkunduhús gyðinga. Hatur, sem átti rætur í aldagömlu gyðingahatri kristinna fór úr böndunum og olli því að ekki var grundvöllur fyrir að halda uppi söfnuði gyðinga í þessu húsi lengi eftir síðara stríð. Íslendingar hafa líklega heyrt um Helförina, þó þeir séu nú mest upptekin af sjálfum sér.

Sams konar hatur er víða boðað í dag, ma. í moskum. Ég vona að við þurfum aldrei að hlusta á slíkt hatur í moskum á Íslandi. Ég vona að vinstri menn, sem venjulega lýsa frati á trúarbrögð (nema þegar þeir fá ólmir að lesa gyðingahatur í Passíusálmunum í kirkjum landsins), styðji ekki moskubyggingu til þess eins að ala á hatri. Ekki býst ég við því að þeir fari að beygja sig til Mekka eftir að beygingar í átt að Moskvuborg lögðust af, en maður veit nú aldrei. Þeir fara enn hamförum.

Bendi svo á þessar fyrri færslur mínar frá 2008  og 2010:

Mosku hér og nú (2008) Mosk(v)u strax ! (2010), Trú friðar og umburðarlyndis skal vera velkomin (2010)

Wagenstraat 

Samkunduhúsið í Wagenstraat í den Haag um 1950, og moska í sama húsi í dag

Wagenstraat moska


Vanadýr í láglaunastétt

Kennari nokkur i bænum Richardson í Texas, Dale Irby, hefur sannað okkur og sýnt að kennarar eru láglaunastétt - eða vanadýr.

Fyrir nokkrum árum uppgötvaði hann sér til hrellings að hann hafði alltaf verið í sömu fötunum þegar teknar voru af honum myndir í skólaárbókina. Alls í 40 ár. 

Reyndar átti Dale Irby 7 mismunandi gleraugu á þessum 40 árum. Fyrstu gleraugun hans eru aftur komin í tísku.

Kona þessa nýtna manns er jafnvel útsjónasamari en hann, því hún hvatti hann til að halda þessu áfram, því þá yrði hann átrúnaðargoð. Hún hafði á réttu að standa.

Hjónin munu halda námskeið fyrir Íslendinga í því hvernig hægt er að vera nýtnari. Skráið ykkur hér.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bækur

Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband