23.9.2008 | 18:41
Mosku hér og nú
Frétt hef ég að á Íslandi séu tæplega 400 múslímar, eða eru það 1000? Fyrr á árinu heyrði ég töluna 1500. Ég held að ég hafi reyndar aldrei heyrt sömu töluna á múslímskum sálum í þau skipti sem þessi blessaði söfnuður múslíma á Íslandi var í fréttunum. Talnaglöggir geta þeir ekki verið, sem eru talsmenn Allah á Íslandi.
Ég hef einnig fylgst með viðbrögðum á bloggum nokkurra Íslendinga við kröfunni um gríðarstóra lóð fyrir mosku í Reykjavík. Þessir öðlingar ætla víst að æla svínaúrgangi ofan í grunn moskunnar eða eitthvað álíka. Það þykir mér nú einum of langt gengið. Er ekki kreppa og öll svínasúpa búin í landinu?
Um leið og ég syrgi það hvernig þeir fáu gyðingar sem búið hafa á Íslandi hafa falið sig í hornunum og auðmjúklega sætt sig við að á Íslandi væri ekki neitt almennilegt samkunduhús, já, og jafnvel gerst búddistar til að leita að guði, fagna ég því að múslímar geti fengið mosku fyrir 12, 20, 400, nei 1000 meðlimi sína. Menn verða bara að passa sig að byggja ekki allt of stórt, því hitinn og rafmagn kostar og það borga ekki skattgreiðendur heldur Allah og þeir sem biðja til hans.
Jú, mosku hér og nú. Það styð ég! Einhvers staðar verða öfgavinstrimennirnir líka að fara til að gera andlegar og líkamlegar æfingar eftir að þeir gátu ekki lengur beygt sig og bugtað í átt að Moskvu .... - borg.
En ef guðshúsið að tarna, verður notað sem boðunarstaður stríðs gegn annarri menningu og trú, eða þar sem hatur er lagt á þjóðir sem ekki beygja sig í átt að Mekka, tel ég enga ástæðu til þess að múslímar fái lóð. Þá geta þeir keypt hana og svo tekið afleiðingum íslenskra laga ef þeir vilja boða stríð og hatur gegn ákveðnum hópum. Það varðar við hegningarlög. Enga lóð ber að gefa fólki sem vill fylgja öðrum lögum en þeim sem hið háa Alþingi í lýðræðisríkinu Íslandi hefur samþykkt.
Ef Imam Tamimi lofar, sver og sárt við leggur, að moska þessa afar misstóra hóps hans verði ekki vettvangur stríðsóps, vona ég að hann fái sem fyrst lóð sína og byggi mínarettu, bænaturn, sem er engu síðri en Hallgrímskirkja, kirkjan sem kennd er við guðsmanninn sem átti konu sem upplifaði bæði moskur og Barbaríið á eigin líkama. Ætli Gudda hefði viljað gefa grunn til Allah? Tjaah?
Þessi fallaga mynd, sem fylgir færslunni, er mér sagt að sé eimitt af Guðríði Símonardóttur þegar hún var upp á sitt besta í Barbaríinu. Njótið þangað til 1001 nætur eru liðnar og veruleikinn blasir við ykkur. Öllu gamni fylgir alvara.
Ensjallah!
Meginflokkur: Trúmál og siðferði | Aukaflokkar: Menning og listir, Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bækur
Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs
-
Nýtt blogg um fornleifafræði
FORNLEIFUR -
Þrælasalar í Norðurhöfum
Grein í Lesbók Mbl. 1999 -
: Ritaskrá 1972-2013 -
Fyrri færsla
Jakki Kiljans Laxness -
Bein Páls Biskups
Kveðskapur -
: Flóttamaðurinn Alfred Kempner -
Pepsi var á Ströndum
Gosdrykkjasaga -
Mótmælum Durban II
Meira -
Ved Helvedes Port
Grein mín í SKALK. Nr.4,1994. -
: Gyðingar á Grænlandi
Fyrri færsla og tenging við grein eftir mig á dönsku um gyðinga á Grænlandi -
Flogið hátt
Grein mín um fyrsta flug flugbels á Íslandi -
Fyrri færsla
Líkþráir Íslendingar -
: Lesið hér (ISBN: 978-965-218-066-7)
Behind the Humanitarian Mask; The Nordic Countries, Israel and the Jews. Edited by Manfred Gerstenfeld. -
Fyrri færsla
Vinir útlendinganna -
Fyrri færsla
Nakinn sannleikur -
Ungr var ek forðum
Færsla um óeirðir og læti í æsku minni -
Fyrri færsla
Þegar Gúttó varð samkunduhús gyðinga -
Fyrri færsla
Vive l'(Gr)islande -
Fyrri Færsla
Nifalt húrra -
Íslenskar frúr í Andvörpum
Um ferðir útrásar-Íslendinga á 16. öld. Lesbók Morgunblaðsins 28.águst 1999. -
Fyrri færsla
Berlínarboogie Laxness -
Fyrri færsla
Pabbi Þórs var myrtur í Auschwitz -
Falskir Íslendingar
Grein um þjóðarstolt -
En dansk krigsforbryder
Grein í Weekendavisen um versta stríðsglæpa- mann Dana, sem dönsk yfirvöld vildu helst gleyma. -
Anti-Semitism in Iceland. Is that possible? -
Iceland, the Jews, and Anti-Semitism, 1625-2004
Grein á ensku um gyðinga á Íslandi -
Ich weiss, was ich zu tun habe
Grein mín um Georg F. Duckwitz, nasistann sem á að hafa verið potturinn og pannan við björgun gyðinga í Danmörku. Í greininni sem birtist í tímaritinu Rambam 15:2006 er gerð grein fyrir fjölmörgu sem danskir sagnfræðingar hafa gleymt að rannsaka. Hlutverk Duckwitz verður nú að endurskoða. -
Grein
The King and the Star í: Denmark and the Holocaust (2003) (ISBN: ISBN 87-989305-1-6) -
: Rescue, Expulsion, and Collaboration: Denmark's Difficulties with its World War II Past
Jewish Political Studies Review 18:3-4 (Fall 2006; Tímarit sem ég hef skrifað töluvert í -
: 20 Begivenheder der skabte Danmark (ISBN: 87-02-0516-7)
Ég er meðhöfundur að einum af köflum bókarinnar. -
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson: Medaljens Bagside - Jødiske flygtningeskæbner i Danmark 1933-1945 (ISBN: 87-91393-60-4 ) Forlaget Vandkunsten 2005. Bók mín um meðferð danskra yfirvalda á flóttafólki á 4. og 5. áratugi 20. aldar.
Meira
Nýjustu færslur
- Á mér stendur ..... Bjarni Ben
- Minnislaus síðan í síðustu ESB-kosningu
- Gamlir dónar sem fokka sér - Meet the Fockers II
- Icelandic Police Bared
- Niðurstaðan: KiSS or Bæjarins beztu
- Zelenskij fór í ranga flugvél - verður í Færeyjum næstu dagana
- Sjúklega svæsinn gyðingahatari er vinsæll á Moggablogginu
- Valdemar á svölunum er látinn
- Svæsnir fordómar eru ekki hluti af málfrelsi og tjáningu
- Ástráður eins og lús á feldi
- Utanríkisráðherra eyðir um efni fram í útlöndum
- Ódýrasta Laxness-bókin er enn til
- Geimöldin hafin á Íslandi
- Mannvinurinn Johnny Gun
- Jón hinn óboðlegi
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (15.10.): 0
- Sl. sólarhring: 7
- Sl. viku: 48
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 39
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Júlí 2024
- Apríl 2024
- Febrúar 2024
- Desember 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Ágúst 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Júlí 2021
- Maí 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- Ágúst 2020
- Maí 2020
- Nóvember 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Júlí 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Janúar 2017
- Nóvember 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Nóvember 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
Athugasemdir
Sæll Vilhjálmur
Um leið og hvert einasta múslimaland gefur grænt ljós á byggingu bænahúsa kristinna og gyðinga , mega múslimar byggja mosku á Íslandi mín vegna,, ekki fyrr.
Birgirsm, 23.9.2008 kl. 19:14
Misræmið í tölum yfir félagsmenn í félagi múslima getur nú átt sér aðra og einfaldari skýringu en þá að forsvarsmennirnir kunni ekki að telja.
Ég reikna með að lægsta talan, 400-500 manns, sé fengin frá Hagstofunni. Hún telur opinbera skráningu íslenskra ríkisborgara í trúfélög.
Hins vegar býr hér margt fólk sem ekki er íslenskir ríkisborgarar, en er virkir þátttakendur í íslensku samfélagi - þar á meðal í trúarlífinu. Reikna má með því að þessi hópur sé síður líklegur til að aðhyllast lúthersk-evangelsíka Þjóðkirkju, heldur sé hann frekar í kaþólsku kirkjunni, búddistar, múslimar o.s.frv. Á sama hátt eru opinberu gögnin frekar líkleg til að ofmeta hlutfall Þjóðkirkjufólks, því inni í tölfræðinni eru íslenskir ríkisborgarar búsettir erlendis.
Hvort þessi kerfisbundna mæliskekkja dugi til að skýra 100% mun veit ég ekki, en það er afar rökrétt að félagsmenn í Félagi múslima séu allmiklu fleiri en Hagstofan telur.
Stefán Pálsson (IP-tala skráð) 23.9.2008 kl. 19:43
Fínt að þeir fái sína mosku og turn. Svo lengi sem þeir borga það sjálfir. Gætu selt kökur og falafel til að safna fé, gaman væri að sjá hvernig það endar, smákofi á hlaðinu hjá síðasta bóndanum í Hvalfirði?
Jóhannes H. Proppé (IP-tala skráð) 23.9.2008 kl. 21:26
Spurningin er, hver fjármagnar þessa risahöll sem þeir eru að spá í... thats the question of the day
DoctorE (IP-tala skráð) 23.9.2008 kl. 22:52
Klukk
Anna Karlsdóttir, 23.9.2008 kl. 23:41
Sæll kæri dr. Vilhjálmur Örn.
Ég skil ekki vandamálið hjá múslimunum hérna. Fái þeir ekki lóð þá sé allt í voða ? Hvað með allt þetta góða atvinnuhúsnæði sem stendur þeim til boða út um allt höfuðborgarsvæðið ? Sjáið bara fríkirkjurnar eins og Kristskirkjuna, Veginn og Boðunarkirkjuna svo fáein dæmi séu tekin ? Þau keyptu sér þessi fínu hús og innréttuðu kirkjur sínar og safnaðarheimili og væsir ekki um þá. Ég vorkenni múslimum ekkert að gera slíkt hið sama. Þeim er í lófa lagið að ná sér í ódýrt húsnæði núna eins og markaðurinn er og gera sér góða kirkju/mosku úr því húsnæði, samanber fríkirkjurnar sem hér voru nefndar sem dæmi þar um.
Predikarinn - Cacoethes scribendi , 24.9.2008 kl. 03:00
Þar sem þeir eru ornir íslenskir ríkisborgarar þá hafa þeir sjálfsagt fullan rétt á að fá að byggja sína kirkju (hof) eins og hin trúfélögin,vottarnir, batel og fl. og svo eru óháðu söfnuðirnir út um allan bæ,fríkirkjan,fíladelfia,krossinn,katólikkar á sínum stað o.s.f.v. en þeir eiga ekki að fá neitt stærri lóðir en þeir sem á undan eru taldir,ekki eru lóðirnar undir kirkjur kristinnar manna hér í borg stórar og því skyldi múslimum þá vera úthlutað stærri lóð . kv. Gúndi Group
Guðmundur Hall Ólafsson, 24.9.2008 kl. 09:03
ef þú hefðir eitthvað vit á trúarbrögðum þá myndirðu vita það að múslimar eru fyrir löngu úrellt trúar brögð og að gyðingar ef þeir myndu gera það sem trú þeirra segir þeim að gera fyrir löngu orðnir kristnir.
Við erum lögum samkvæmt kristin þjóð (sú ákvörðun var tekin á alþingi fyrir um 1000 árum) og við borgum skatta sem að renna til kirkjunar.
Ríkið á ekki að standa í því að moka undir önnur trúarbrögð en þá trú sem við höfum valið fyrir þjóðina okkar. Ef eitthvað er þá ætti ríkið bara alls ekki að koma nálægt trúarbrögðum, kirkja getur alveg staðið undir sér sjálf og þessir múslimar geta bara beðið almáttugan allah að gefa sér peninga til að kaupa húsnæði undir þá.
Arnar Geir Kárason (IP-tala skráð) 24.9.2008 kl. 10:29
Samkvæmt Hagstofunni var 371 skráður í Félag múslíma á Íslandi í fyrra, þar af 154 konur.
Þorsteinn Briem, 24.9.2008 kl. 13:37
Kristnir og Gyðingar mega í einhverjum fáum múslimalöndum byggja sínar byggingar að takmörkuðu leyti, þeir eru þá bara ofsóttir af lýðnum og fá ekki að vera í friði, nema í nokkrum tilvikum. T.d. eins og í Kaíro í Egyptalandi, þar fá kristnir að vera í friði þar sem þeir búa á ruslahaugunum með svínum. En eins og flestir vita þá eru múslimar ekkert sérlega hrifnir af svínum.
Mér er nokk sama þó ein moska sé byggð og hér séu fáir múslimar en mér er fyrirmunað að skilja umburðarlyndið gegn öfga islamistunum í löndum eins og Bretlandi og Danmörku?? Þá ætti að senda þá til ættarjarðar sinnar þar sem þeirra lög eru við lýði.
Skassfinnur Skaufi (IP-tala skráð) 24.9.2008 kl. 14:02
Af hverju ættu múslimar ekki að geta byggt mosku hér á Íslandi??? Ef þeir trufla engan þá er það í lagi. Ég er til dæmis alls ekki sammála því að þeir getir byggt mosku inni í íbúðabyggð og kallað til bæna um miðja nótt. Ef þeir fara að settu reglum þá finnst mér það fullkomlega í lagi. Sumir mundi spyrja en hvað ef kirkjur færu að hringja í íbúðabyggð klukkan 2 að nóttu er það í lagi??? Mitt svar er alls ekki í lagi það verður eitt yfir alla að ganga. Mér er alveg sama hvort þeir eru vanir slíku eða ekki. Sorry bara kæri mig ekki um slíkt hvort sem trúin heiti múslimsk, kristin eða hvað eina. Ég sé að þú Villhjálmur ert ennþá öfgafullur zíonisti það breytist ekkert. Ég ætla ekki að reyna að fara í karp við þig. Það er álíka viturlegt að rífast við öfgatrúarmann og að rífast við ljóstastaur. Öfgatrúarmenn hafa alltaf rétt fyrir sér(að eigin sögn). Persónulega finnst mér að Ísland ætti að sýna manndóm sinn og slíta stjórnmálasambandi við Írael og banna innflutning á vörum frá Ísrael. Þeir stunda aðskilnaðastefnu(aparheit) í sinni verstu mynd og ættu að fá sömu meðferð og Suður Afríka á sínum tíma þegar þeir voru nógu vitlausir til þess.
Þorvaldur Þórsson (IP-tala skráð) 24.9.2008 kl. 17:00
Ævinlega sæll og glaður,
síonist og öfgamaður.
Ég er alveg viss um að það erum við öfgamennirnir sem setjum þetta hringl í tölurnar hans Samma. Ég til dæmis verð óðara múslim þegar ég kemst á snoðir um að það sé svínakjöt í matinn. Eða harðtrúaður gyðingur. Ég vil lambaket nefnilega, gef skít í svínarí.
Þjóðkirkjurindillinn hérna er fráleitt nógu öfgafull. Þó er hún að terra framan í mann gamalt rómverskt píningartól og segja morðsögu, en það er allt orðið voða jaskað og útvatnað. Og ekki er neit Hólsfjallabragð af hinu helga holdi. Sei sei nei, þetta er eitthvert glerhart skerpikjöt, ábyggilega af færeyskri útigangsrollu. Ég verð umsvifalaust múslim eða gyðingur við svoleiðis trakteringar.
Með fullkomnum öfgum og extremisma er mér slétt sama um moskuna. Og með enn meiri öfgum krefst ég þess að tekin verði upp barátta fyrir því að til landsins flytjist múslimar sem kunna að baka baklava og opni sölubúð hið fyrsta í nágrenni mínu. Mun ég þá hefja öfgafull fagnaðarlæti. Og öfgafullt át.
Kristján Sveinsson (IP-tala skráð) 24.9.2008 kl. 20:10
Á Íslandi ríkir trúfrelsi. Þar með eiga söfnuðir sem tilheyra viðurkenndum trúarbrögðum rétt á því að stunda sína trú. Ef fólk líkar það ekki, er því velkomið að flytja til annarra landa þar sem trúfrelsi er takmarkað.
Anna (IP-tala skráð) 25.9.2008 kl. 19:28
Kristján Sveinsson, góð hugmynd þetta með baklavabúðina. Ég sakna mjög íranska bakarísins á Nørrebro, sem fór á hausinn. Eigendurnir voru langt frá því að vera öfgamenn, nema í góðu bakkelsi.
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 26.9.2008 kl. 09:47
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.