Leita í fréttum mbl.is

Ólafur er múslími, en drabbari eins og gengur

c5f52f6a715157a9fe151e9d4b34f6c3
 

DV var nú um helgina með grein um íslenskan múslíma. Það er vissulega áhugavert efni í allri hinni ógeðfelldu umræðu um mosku í Reykjavík. Mosku sem ég styð og mosku sem ég stakk upp á áður en múslímar sjálfir voru farnir að hugsa svo langt. Ég tel að moska sé hluti að trúfrelsi og mannréttindum, sem fórdómfullt fólk, þar með talið vantrúarfólk og trúleysingjar vilja fjarlægja. 

Ólafur Stefán Halldórsson var sjómaður dáðadrengur, en drabbari eins og gengur. Hann fór inn í verslun á Englandi til að kaupa Kóran-snældu fyrir móður sína. Hún hlýtur að vera  leitandi sál líkt og sonur hennar, eða afi hans, Friðjón Stefánsson rithöfundur frá Fáskrúðsfirði, sem var mikill sósíalisti. Ólafur kom út úr búðinni sem múslími. Svona hafa menn oft fengið andann yfir sig. Ég kannaðist einu sinni við mann sem í ölvunaræði sá Krist og talaði við hann yfir kaffibolla. Kristur sagði honum að ganga í Fíladelfíusöfnuðinn, þar sem menn eru víst í beinu sambandi við æðri máttarvöld. Allt er gott um það að segja. Ef Kristur og Múhameð eiga það til að geta gert menn almennilega edrú, þá er gagn af þeim herrum.

Friðjón Stefánsson
Afi Ólafs Stefáns var Friðjón Stefánsson rithöfundur (1911-1970) 
 

En sama hver saga Ólafs Halldórssona múslíma er, þá er boðskapur sá sem hann hefur upp á að bjóða frekar klénn og fordómafullur: Hann vanvirðir þau trúarbrögð sem Múhameð stal öllu steininum léttara frá. Ólafur Stefán Halldórsson segir:

Spámaðurinn var alltaf kurteis ...Eins og allir vita er enginn spámaður í sínu heimalandi og hann sætti miklum ofsóknum þar til múslímarnir voru orðnir svo sterkir að þeir tóku Mekka yfir. Áður bjó kona í nágrenni við hann sem var gyðingur og tók upp á því að strá alltaf þyrnum fyrir framan dyrnar hjá honum. Að lokum varð hún þreytt á því og gafst upp. Eftir nokkra daga þá bankaði spámaðurinn upp á hjá konunni og spurði hvort það væri ekki allt í lagi með hana. Svona var spámaðurinn alltaf kurteis."

Ég get frætt Ólaf Stefán Halldórsson og aðra múslíma á Íslandi, um að saga ofsókna múslíma gegn gyðingum í Miðausturlöndum er afar löng. Það sem menn líta á sem harðræði gyðinga (Ísraelsríkis) við Palestínumenn, er lítil og stutt saga miðað við þær ofsóknir og þá þyrna sem múslímar stráðu í götu gyðinga gegnum aldirnar. Það er saga, sem mótar skoðanir um að Ísrael sé apartheid-ríki, meðan gyðingar mega fyrir enga muni búa í Palestínu á landi sem tilheyrði forfeðrum þeirra.

Ólafur Stefáns bin Islamnd

Sagan af gyðingakonunni sem stráði þyrnum við dyr Múhameðs er lítilmótlegt ævintýri.  Minnumst frekar Safiyyu bint Huyayy dóttir höfðingja á meðal gyðinga í Medína. Hún var var ein af mörgum konum Múhameðs. Það varð hún reyndar fyrst eftir að öllum ættbálki hennar, Banu Nadir, hafði verið útrýmt. Hún var gerð að konu Múhameðs líkt og Aisha sem Múhameð tók sér sem konu er hann var 51 árs og hún aðeins 9 vetra. Hver veit, kannski var Aisha líka gyðingur.

Bjálkinn er því miður stór stór í augum hins íslenska múslíma, og margra trúbræðra hans.

Meðan trúarrit og skólabækur í löndum múslíma bjóða upp á samlíkingu á gyðingum við dýr, þá er ekki mikil von um að múslímar sættist við sjálfa sig, frekar en aðra. Menn geta enn lært af þeim trúarbrögðum sem Múhameð lánaði frá með hjálp Allah.

Það er líka leitt að sjá ofsækjendur þeirra sem vilja að reisa mosku á Íslandi, leita sér stoðar í sams konar hatri og ósóma og múslímar hafa sýnt gyðingum. En eins og ég hef oft sagt, þá er margt líkt með því fólki sem ofótti gyðinga og sem nú vill hella svínablóði í grunn mosku í Reykjavík.

Menn eru greinilega ekki komnir lengra upp í þróunarstigann síðan á 7. öld?

Iftar Dinner-7
Múslímar á Íslandi í partí hjá sendiherra Bandaríkjanna, sem hefur boðið til sín öllum minnihlutahópum Íslands nema geimverum. Ólafur stendur fyrir miðju og með barðahatt.

Norsk víkingaskip í Kaupmannahöfn

Storm og Steil 2013 Copenhagen

Í gær var ég staddur inni í miðborg Kaupmannahafnar þar sem ég átti eitt sinni heima. Ég átti erindi nærri Amalienborg. Áður hjólaði ég aðeins meðfram höfninni og kom að þessum stríðmaskínum norska sjóhersins sem bera nafnið Storm og Steil, sem voru í heimsókn. Það er næstum því að maður segi hæl, þegar maður sér slík nöfn.

Þessi hraðskreiðu fley eru flugskeytakorvettur og tilheyra skipum sem flokkast undir svo kallaðan Skjold-klasse. Eiginlega eru þetta risastórir spíttbátar. Norðmenn eiga fleiri svona stríðsskektur, sem bera heitin Skjold, Skudd, Glimt og Gnist.

Ég hef sjaldan upplifað eins mikla mengun frá skipi eins og þegar Storm lagði úr höfn.

Storm
 
Storm og Steil closeup
Stækkið myndina með því að klikka á hana.

Margbreytileikinn í HÍ

regnbogaskoli
 

Nú geta sérleyfishafar á réttar skoðanir og sannar hugsanir við HÍ, sem að sögn sjá fjölbreytileikann í lit á breiðtjaldi, alls ekki hugsað sér að hvetja til hernaðaraðgerða gegn sýrlenskum stjórnvöldum. Myndir af barnalíkunum úr síðustu gasárás Assads virðast engin áhrif hafa á þetta harðlundaða fólk í háskólanum. En þessu var vissulega öðruvísi farið árið 2003.

Árið 2003 skrifuðu 3 háskólastrafsmenn þetta í áskorun til samstarfsfólks síns í Hí: 

Við undirritaðir íslenskir háskólastarfsmenn höfum séð áskorun frá 187 ísraelskum háskólakennurum, þar sem þeir biðja þjóðir heims að vera á verði gegn hugsanlegum þjóðarhreinsunum á Palestínumönnum í skjóli stríðs gegn Írak - það sé vilji núverandi ísraelskra stjórnvalda að færa sér i
nyt stríðsástand í löndunum fyrir botni Miðjarðarhafs til að hrekja á brott alla araba frá bæði Ísrael og Palestínu.
(Sjá hér)

Íslenskir háskólastarfsmenn töldu, að Ísraelríki væri að undirbúa þjóðarhreinsanir, og þá fór allt á fullt. Þótt Palestínumenn og aðrar þjóðir/stjórnir umhverfis Ísraelríki hafi síðan 1948 heitið því að útrýma
Ísraelsríki og að ryðja Gyðingum í sjó fram, þá töldu íslenskir menntamenn að það myndi verða Ísraelríki sem ætlaði sér að stunda þjóðarhreinsun í skugga Íraksstríðsins. 

Ég hef ekki séð neinar áskoranir frá háskólaborgurum varðandi það sem er að gerast á Sýrlandi. Þjóðarmorð Assads og öfgahópa á þjóðum þeim sem á Sýrlandi búa er greinilega fínt mál sem engin kippir sér upp við í HÍ. 

 

Thorgerdur_Einarsdottir_feb09

Prófessor í kynjafræði sýndi dómgreindarleysi

Ég sé hins vegar að meðal áskorenda til að koma í veg fyrir þjóðarhreinsun á Palestínumönnum er prófessorinn í kynjafræði. Mér sýnist hún og 80 aðrir sem skrifuðu undir hatursáskorunina árið 2003 hafi ekki beðist afsökunar á dómgreindarleysi sínu. Það er reyndar glæpur að áskaka þjóðir um glæpi sem þær hafa ekki framið. 

Þorgerður Einarsdóttir, ætlaði nýlega að eyðileggja friðinn í Félagsvísindadeild HÍ, vegna þess að einhver stjórnmálagarmur með blakka fortíð og taumlausa greðju hafði verið var boðið að halda fyrirlestra í HÍ, eða Regnbogaskólanum eins og Þorgerður kallar skólann.

Á kona sem hefur sýnt það dómgreindarleysi að æsa upp hatur gegn erlendu ríki á grundvelli orðróms, yfirleitt erindi í prófessorsstöðu við HÍ? Hefur hún ekki sýnt óhemjumikið dómgreindarleysi? Er hún ekki hætt að sjá heiminn í lit eins og kynjafræðingar segjast gera?

Nú ætla ég ekki að halda því fram að mál Ísraelshatarans Jóns Baldvins Hannibalssonar sé í nokkru líkt því að bera upp á þjóðríki að það stundi þjóðarhreinsanir í skugga stríðs í öðrum löndum.

Það er hins vegar ekki neinn akademískur andi í því að banna skoðanaskipti og umræðu. Fólk eins og Þorgerður Einarsdóttir telur sig hafa fundið sannleikann um ófriðinn fyrir botni Miðjarðarhafs og hún telur einnig að maður sem skrifað hefur delirísk bréf til ungrar stúlku og haldið fyrirlestraröð í Litháen með samkynhneigðum starfsbróður Þorgerðar við HÍ, sé ekki í húsum hæfur.

Er Jón Baldvin ekki bara hluti af þeim margbreytileika sem við sjáum í íslenska regnbogaþjóðfélaginu sem er boðsskapur kynjafræðinga? Þorgerður segist sjá hlutina í lit og ekki í sauðalitunum (sjá hér). Ekki sýnist mér það. Það er eitthvað sem segir mér að augu Þorgerðar hljóti að vera blóðsprengd.  

 

Getraun hjá Fornleifi

getraun 8

 

Frændi minn Fornleifur er með mjög erfiða en þjóðlega getraun. Sjáið hvort þið getið leyst gátuna.

Nýjustu fréttir kl. 12.20: Gátan hefur veri leyst að mestu, og nú er kominn smá pistill um elsta málverkið af skreið sem til er: http://fornleifur.blog.is/blog/fornleifur/entry/1310691/


Gassad og Gassange

d_billeder_sheik_yer_assad

Bandaríkjamenn segjast nú hafa upplýsingar um efnavopnaárás Sýrlandshers, hers tannlæknisins Maher al-Assads. Þeir hleruðu samtal herforingja Assads. Myndir af barnalíkum á ís eru samt ekki nægileg sönnunargögn fyrir suma. Gunnar Bragi er varkár og vill sjá sannanir.

Danskir kratar krefjast t.d., þrátt fyrir vissu forsætisráðherrans, sannana, áður en þeir vilja heyja stríð við tannlækninn. Assad hefur svo lengi verið samstarfsmaður Dana og í Damaskus hefur um langan tíma verið fínt danskt institút. Danir eiga erfitt með að trúa neinu vondu upp á Assad. Íslenskir kratar trúa heldur engu vondu upp á Assad eins og dæmin hér sýna.

isg_og_assad_edited-1_1161865

Rússar líkja nú Vesturlöndum við apa með handsprengju. Rússar eru svo vanir að sjá myrt börn á ís að þeir kippa sér sko ekki upp við slíkt. Dýralíkingar nasismans og kommúnismans eru víst enn ekki komnar úr tísku. Þær passa vel  við öfgarnar í vorinu góða, þar sem trúarbókstafurinn er fullur af samlíkingum á óvininum við dýr eins og apa og svín. "Svínin" suður af Sýrlandi hafa einnig þefað gasið og vilja ekki gaslækninn nærri sér.

Ef Bandaríkin og aðrir fara í árásir á her Assads, má trúlega búast við því að íslamistar snúist 180 gráður og fari að vinna með stuðningsmönnum Assads, sem sitja í Teheran. Þá er um að gera að brjóta þá á bak aftur líka.

Sumir trúa engu nema að þeir fáið "sannleikann" frá Wikileaks. Poppstjarnan Assange, sem ekki er líklegur til að birta hleranir af herforingjum Assads, þar sem þeir tala um gasárás, hlær að öllu saman og dansar við sjálfan sig í Reykjavík. Assad mun hafa svipaðan dansstíl og Assange. 


Í minningu Miksons - Myndir á sýningu

Mikson

Hannes Hólmsteinn Gissurarson bloggvinur minn bauð mér fyrir fáeinum dögu á sýningu í Reykjavík. Boðið kom með mjög stuttum fyrirvara, sem útilokaði að ég kæmist án mikils kostnaðar.

Sýningin opnar í dag, því í dag er er minningardagur fórnarlamba alræðis í Evrópu, sem Evrópuþingið hefur valið að mörgum forspurðum. 23. ágúst 1939 er dagurinn, þegar Hitler og Stalín gerðu með sér griðasáttmála. Í Þjóðarbókhlöðunni verður að því tilefni myndasýning sem ber nafnið „Heimskommúnisminn og Ísland". Þar verða sýndar ýmsar myndir úr bók Hannesar um íslenska kommúnista. Dr. Mart Nutt, þingmaður og sagnfræðingur frá Eistlandi, og dr. Pawel Ukielski, forstöðumaður safnsins um uppreisnina í Varsjá 1944, flytja erindi um örlög landa sinna undir oki nasisma og kommúnisma.

Mart_Nutt_2012_-_2HANNES~1

Hannes með Dr. Nutt. Eitthvað er Hannes hugsi.

En því miður gerist það í Eistlandi, Lettlandi og Litháen, að helförin gegn gyðingum sem margir íbúar þessara ríka tóku þátt í og þurftu ekki að láta skipa sér það, er gert lítið úr minningunni um Helförina (Shoah) og úr minningadegi um helförina sem ekki er 23. ágúst. Evrópuþingið hefur valið þennan dag í óþökk gyðinga.

Til að vekja áhuga á fórnum íbúa þessara landa undir kommúnismanum, er vísvitandi og skipulega gert lítið úr helförinni og þætti Eista, Letta og Litháa í henni. Nýlega var opnað hersetusafn í Tallinn,  þar sem fer fram mikil sögufölsun.

two-presidents-at-red-brown-shrine-in-Estonia
Forsetar Eistlands og Þýskalands gleðjast fyrr í sumar yfir því að nú er búið að setja samasemmerki á milli voðaverka nasista og kommúnista á Hersetusafni Eistlands. Það er gert með lítilsvirðing við minningu þeirra gyðinga sem myrtir voru af Eistum, Lettum og Litháum verið mikil og skipulega er reynt að gera lítið úr þeim morðum til að hefja minninguna um þjáningar Eista, Letta og Litháa. Á safninu eru engar upplýsingar um stríðsglæpi Evalds Miksons, en til er bók á bókasafninu sem er ensk útgáfa á ævisögu Miksons sem rituð var af Einar Sanden i Cardiff.
 

Um leið leyfa þessir ríki í dag göngur SS-liða sem taldir eru til þjóðhetja því þeir börðust gegn kommúnismanum. Menn sem gerðu útrýmingu gyðinga í Litháen og fjöldamorð annarra gyðinga í landinu möguleg hafa verið teknir í dýrlinga tölu. Með SS-liðum marséra nýnasistar og aðrir öfgamenn. Gyðingum er enn í þessum löndum, sem Íslendingar studdu svo dyggilega, kennt um ófarir þjóðanna undir kommúnismanum.

Gyðingahatrið lifir góðu lífi í Litháen, Lettlandi og Eistlandi við hlið annarra fordóma. Öfgar gegn samkynhneigðum er ekki minni í Eistlandi, Lettlandi og Litháen en þeir eru í Rússlandi Pútíns. Það er hættulegt að vera samkynhneigður í Litháen.

 

Hverja eru Eistar að reyna að blekkja 

Mart Nutt sem heldur fyrirlestur í Þjóðarbókhlöðunni er, þótt að hann sé í Mannréttindanefnd í ESB, flokksbundinn í Pro Patria/Res Publica sambandinu, stjórnmálaflokki sem m.a. lítilsvirðir réttindi samkynhneigðra. Vonandi kemur Dr. Nutt inn á þau mannréttindabrot í landi sínu.

Er forsætisráðherra Eistlands, Andrus Ansip, hélt fund með bandarískum gyðingasamtökum árið 2011 sagði um hann m.a. þetta um minningarreitinn og -samkomurnar Sinimäed og þá sem þar safnast saman:  

"But they have nothing to do with Nazi ideology," Ansip said. "Portraying a memorial event to the war dead as a sign of neo-Nazi tendencies as some have done is deeply offensive to all Estonians. Our country suffered greatly under Communism and Nazism alike." (sjá hér)

veterans-20th-waffen-grenadier

Þessi mynd og myndirnar sem fylgja neðar sýna hvernig Eistar minnast þeirra sem þurftu að líða undir kommúnisma og nasisma. Hverja eru Eistar að reyna að blekkja? Morðingjar gyðingar þjóðhetjur Eystrasaltslandanna? (lesið einni hér)

Ég leyfi mér einnig að benda lesendum mínum á www.defendinghistory.com þar sem hægt er að lesa um illa þróun í þeim löndum sem Íslensk yfirvöld studdu við bakið á til að komast undan oki Sovétsins. En sjáið hvað er að gerjast! Bið ég einnig lesendur mína að lesa þessa grein mína þar: http://defendinghistory.com/take-off-your-hat-this-is-not-the-synagogue/36029

 

Varnaðarorð til Hannesar Hólmsteins 

Ég leyfi mér enn fremur að vara vin minn Hannes Hólmstein Gissurarson við því, að draga hvaða persónu sem er til Íslands til að fremja samlíkingar á voðaverkum Stalíns og Hitler, sem sameiginlega áttu mörg mannslíf á samviskunni, en aðferðirnar og málefnin voru mismunandi.

Ef Sovétmanna hefði ekki notið við, hefði þjóðarmorð nasista orðið stærra. Eistar, Lettar og Litháar tóku þátt í því þjóðarmorði. Þótt þeir hafi þurft að þola mikið undir kommúnismanum, var það EKKERT í samlíkingu við það sem gyðingar þurftu að þola.

Ég bið menn að minnast þess þegar þeir nota ljótustu sár sögunnar sem pólitísk vopn - eða skálkaskjól - og skoða svo myndir af því hvernig Eistar minnast hetja sinna.

Ég bíð dr. Mart Nutt líka á þessa sýningu, sem ég kalla Í Minningu Miksons. Framganga íslenskra og eistneskra stjórnmálamanna í hans máli gleymist seint. Hún var ekki minna alvarleg en samvinna íslenskra afdalakomma við Moskvu.

Estonia-31-July-2010
Þetta merki telur Mart Nutt mannréttindafrömuður frá ESB að sé í lagi. Þetta merki var notað við morð 6 milljón gyðinga og 20 milljóna manna í Síðari heimsstyrjöld.
 
9828663_otvu6V
Gamla kynslóðin og sú nýja í hatrinu takast í hendur
9828769_KfTgvM
 
DSC_3372
Þessi ber gunnfána fyrrverandi SS-sveita Eista
aastapaev-sinimaed-sinimagi-veteran-66505066 2013
 
1924512t151h09ed
Þetta eru ekki skátar
9828841_VzkfpC
DSC_3397
Enginn vafi leikur á því hvers þessir kumpánar minntust sumarið 2010. Þeir voru ekki að minnast þeirra þúsunda gyðinga sem fyrirmyndir þeirra myrtu. Skallafasistinn fremst ber merki SS sveitar Eista á skyrtu sinni.
 
 
9828719_D48EiW
(2010)
9828789_KR59ea
Lettar koma í heimsókn
 sini_2008
.. og frændur okkar Norðmenn (2008)
Sinimae 100
Gyðingum sem mótmæltu óþverranum var meinaður aðgangur að "minningarathöfninni" í Sinimäed árið 2010
 
 
 

Andri Snær stútfullur af hráskinku

bonus02
 

Það er nú vart að maður þori að birta mynd af hinum hlutlausa Andra Snæ Magnasyni. Síðast þegar ég gerði það hafði hann í hlutleysi sínu (eða af hégóma) samband við Moggabloggið til að láta banna mér að birta ákveðna mynd af sér sem ég hafði fundið á netinu. Allt sem maður veiðir þar má maður vitaskuld ekki nota, sérstaklega þegar gæta á hlutleysis eins og Andri lifir eftir. 

Í pistli í Útvarpinu (RÚV), nánar tiltekið í þættinum Víðsjá, hefur Andri Snær næstum því berrassað sig í ærlega í "hlutlausum pistli". Hann fór úr föðurlandinu, sem hann ber litla virðingu fyrir, en hélt þó þröngum ESB-nærbuxunum sínum til að skýla hlutlausustu nekt sinni. Fyrir utan  gjörsamlega ómerkilega upplýsingar um ættir hans og að hann sé gangkynhneigður 44% karl sem ekur um á óvistvænum jeppa þá fáum við þessar upplífgandi upplýsingar úr sæluríki samfylkynhneigðra:

Ég verð að taka fram að ég var ekki bara á Hornströndum í sumar heldur líka í Evrópusambandinu. Ég var bæði í Danmörku og Þýskalandi. Veðrið var afar gott og í Aldi kostaði eiginlega allt innan við eina evru meira að segja hráskinkupakkarnir. Í Þýskalandi voru margir allsberir á ströndinni. Allt þetta hefur þau áhrif að ég myndi frekar vilja búa í Evrópusambandinu heldur en á Hornströndum.

Evrópusambandið var stofnað eftir að þjóðir Evrópu hættu að murka lífið hver úr annarri eftir síðari heimsstyrjöld. Núna sitja afkomendur þeirra friðsamlega við skrifborð og semja reglugerðir. Áður fyrr fannst þeim auðveldara að kveikja í heilli borg heldur en að setjast saman við skrifborð. Af tveim kostum finnst mér sá síðari skárri. Ég tek það fram að þetta er afar Evrópumiðað sjónarhorn. Í Kína heyrði ég af safni sem kallaði heimsstyrjöldina síðari - stóra evrópska borgarastríðið.

Eins og öllum hlutlausum ESB-áhangendum á Íslandi, er Andra illt í sálinni þessa dagana, nú þegar "ferlið" er hætt að gefa styrki og bitlinga. Hér fáum við "hlutlausa" skoðun umhverfissnillingsins Andra Snæs um að þjóðir Evrópu hafi verið að murka lífið úr hverri annarri.

Þetta er hjákátleg sögufölsun. Sögufölsun er aldrei hlutlaus. Margar þjóðir Evrópu börðust gegn ofurafli nasismans og Bandaríkin og Sovétríkin hjálpuðu til að stöðva forvera ESB í ætlunarverki sínu. Vissulega voru til ríki í Evrópu sem voru viljugri en aðrar til að þjóna hinum morðóða herra. T.d. Dönsk stjórnvöld og margir íbúar Eistlands, Lettlands og Litháen til að nefna einhverja.

Ég  ég ég ég ég er álíka sjálfhverfur og Andri Snær en vitaskuld ekki eins hlutlaus eins og Andri því ég tilheyri ekki , og er ekki komin af fólki eða þjóðum, sem murkuðu lífið úr hverri annarri. Ég þarf ekki að vera hlutlaus til að segja það. Andri hafi gleymt að segja okkur að hann hefur opinberlag þegið skildinga úr sjóði sem stofnaður var af illræmdum nasista sem tók þátt í morðæðinu. Þetta hef ég skrifað um hér, hér og hér .

Það er ekki nema von að Andri vilji vera allsber á þýskri strönd í hinu sanna draumalandi sínu ESB, frekar en á Hornströndum.    

greece-lego_2011355b

Andri Snær leikur sér að Lego

Það undrar mig hins vegar að heyra að Andri hafi sem lítill haft óbeit á Playmobil sem hann í hlutleysi sínu lék sér ekki með í einhverju snemmbúnu Bandaríkjahatri, því Playmobil er þýsk uppfinning og fyrirtæki líkt og ESB.

Með munninn fullan af ALDI hráskinku sem kostar innan við evru er ekki nema von að Andri vilji alls ekki búa á á Íslandi raunveruleikans. Maður verður nefnilega að hafa frjálsan aðgang í hráskinku til að geta kallast menningarþjóð.  Á Hornströndum er hráskinkan eins dýr og hún er fyrir Grikki, sem fyrst var nauðgað af Þriðja Ríkinu og nú af ESB. Þess vegna kostar skinkan undir einni evru í ALDI í Þýskalandi og tvö dagslaun á Grikklandi.

Þess vegna er ESB að fara í hart við 370.000 sálir í tveimur eyríkjum í Norður-Atlantshafi. Elítan í ESB vill líka ódýran fisk. ESB hefur lýst yfir að sambandið vilji Lebensraum úti á sjó og Andra Snæ dreymir um að verða háseti á Kútter ESB. Hluturinn verður rýr og jafnvel er möguleiki á því að Andri verði hlutlaus áfram. 

Hlutlaus

Mótmælum græðgi ESB

Mehr Fisch2

Mótmælum græðgi ESB með því að skrifa undir

þennan undirskriftalista

Protest against EU greed by signing

this petition


Hommalæti Pútíns

00076q07-600x404

Keisari Pútín er aðeins með þessi hommalæti sín með eitt í huga. Hann vil flæma allar dugandi þjóðir í vetraríþróttum í burtu svo eftir verði Eystrasaltslöndin (sjá hér og hér) og Rússland. Þannig vinnur Rússland allar medalíurnar. Hætt er þó við því að Kínverjar komi, því þar í landi eru auðvitað engir samkynhneigðir, nema fársjúkt fólk á sjúkrahúsum eða í fangabúðum. 

Yelena Isinbayeva veður í villu um karlpeninginn í landi sínu. Í hennar landi býr mikill hluta karla ekki með konum, því flestar konurnar henda þeim út þar sem þeir eru drykkjuræflar. Konur eru reyndar líka menn, en það er blaðamaður Moggans ekki búinn að fatta. Svo léleg málvitund og "kynjavitund" bendir til þess að blaðamaðurinn sé illa gagnkynhneigður.

00102432_n4

Pútín: Grígori, segðu mér, af hverju bjó Jesús í klúbbi með 12 mönnum?

Grígorí: Sjáðu til Vlad, það var þegar hann var gyðingur, áður en hann varð kristinn.

Pútín: Var hann þá krossfestur fyrir að vera með 12 mönnum?

Grígorí: Njet, njet, njeet. Vladimir minn, Það var bara fyrir að vera gyðingur. Honum var síðar bannað að vera með á Vetrarólympíuleikunum vegna þess að hann var hommi. Þetta stendur allt saman í Biblíunni. Á lesa fyrir þig í kvöld?


mbl.is „Í okkar landi búa karlar með konum“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Typpasleikjó

of=50,590,442
 

Íslendingar eru alltof uppteknir af kynlífi og kynhneigð. Það finnst mér, og það á örugglega við um mig líka. 

Þótt réttindi samkynhneigðra séu vart meiri á byggðu bóli en á Íslandi, fer heil vika þjóðarinnar í frekar dauflega göngu fyrir samkynhneigða í rigningu og sudda, og svo í rugl og raus í siðapostulum í kjölfarið. Það sem mest höfðar til kynhneigðar þjóðarinnar í göngunni er uppátæki borgastjórans í Reykjavík, sem var í gervi prestsmadömmu í ár.

Réttur fólks af öllum tegundum til að elskast og ganga í hjónaband, án þess að verða fyrir aðkasti fyrir það, er lögleiddur á Íslandi. Ég sé ekkert af því að karlmenn sleiki hvern annan á almannafæri ef það er fyrir ofan beltisstað og neðan lendarklæðis. En stundum finnst mér að sumir samkynhneigðir vilji eitthvað meira en grundvallarréttindin og að kynlíf þeirra og ást fjalli mest um sýndarmennsku. Mér skjátlast örugglega, því til er fólk sem borðar hreinlega smiðsson, gyðing, á táknrænan hátt í stórum húsum með turnum, sem geta minnt menn og konur með frjósamt ímyndunarafl á rausnarlegt reður. Hallgrímskirkja, uuhhm.

Þegar maður les í athugasemdum við fréttir af hommaóþoli Gylfa Ægissonar skemmtikrafts, að 5 ára börn hafi gengið um götur borgarinnar og sleikt sleikipinna sem lagaðir voru eins og typpi, er ekki laust viða maður sé hættur að skilja baráttu samkynhneigðra.

Allir hafa vitaskuld rétt á því að sleikja typpi maka sinna og hvað sem þeir vilja -  en 5 ára börn, jafnvel 3ja ára eins og maður sér ef maður googlar, eiga fjandakornið fyrir enga muni að vera að sleikja sykurtyppi. Þau eiga að eiga það til góða. Það er að minnsta kosti mín skoðun. En nú til dags geta þau vitanlega séð morð og nauðganir í sjónvarpinu á hverju kvöldi, svo þau eru líklegast með meira hár á brjóstinu en ég var á þeirra aldri og kalla ekki alt ömmu sína í kynlífsmálunum. Líklega vita íslensk börn hvað hommi er þegar þau eru 3-5 ára. Ég vissi fyrst hvað það var svona um 12 ára aldur.

Ef rétt er, að hommar og lesbíur séu að dreifa typpasleikjó til barna í gleðigöngunni, er blygðunarkennd minni misboðið, þótt ég sé ýmsu vanur. Fólk sem telur mannréttindabrot að tala með óvirðingu um öfgafulla spámenn sem ekki má nefna, en gefur svo smábörnum typpi úr sykri til að sjúga, er ekki sjálfur sér samkvæmt.

Eru Hinsegin Dagar að fara framúr sér? Eru þeir einvörðungu til að ögra þeim sem ekki hugsa sífellt um að sleikja reður? Ég bara spyr.

Myndina efst fann ég á myndsíðu íslensk ungmennis sem er að sýna heiminum hvernig ungmenni i sletta úr klaufunum á erlendri grundu þegar pabbi og mamma sjá ekki til. Foreldrar barna sem þiggja typpasleikjó ráða hins vegar hvað börn þeirra sleikja, og ef fólk á Íslandi telur það gott mál að litlu börnin þeirra séu að bryðja sleikibrjóstsykur, sem er eins og reður í laginu, skipti ég mér ekkert frekar að því. 

Ég hefði líklega ekki átt að skrifa þetta, því það er víst afar gamaldags að sleikja ekki typpasleikjó. Ég er greinilega að verða gamall. Typpasleikjó er það sem koma skal. 

Hvaða bragðtegundir eru til?

181513252
Ekki veit ég hvort þessar stúlkur eru íslenskar.

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bækur

Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband