18.5.2008 | 19:34
Íslenska hetjan í Litháen
Ég fagna því að félag Litháa á Íslandi hafi verið stofnað. Slíkt félag gæti t.d. orðið öflugur aðili í að hreinsa það óorð sem komið er á þessa góðu þjóð á Íslandi vegna starfsemi fáeinna óheppilegra einstaklinga með litháískt þjóðerni og vegabréf. Glæpamennskan, sem streymir frá ráðstjórnaríkjunum fyrrverandi, er arfleifð kommúnisma og fasisma, í bland við fátækt og ofsakapítalisma. Það getur aldrei komið neitt gott út úr þeirri blöndu. Við erum heppin á Íslandi. Ljótt væri ef Íslendingar væru dæmdir vegna einhverra skíthæla sem brjóta af sér erlendis. Gæti það gerst?
Nú þegar þessum áfanga er náð af Litháum á Íslandi, er nauðsynlegt fyrir mig að minna félagsmenn á, að einn sá útlendingur sem mesta þýðingu hafði fyrir fyrstu frelsisbaráttu og sjálfstæði Litháa var af íslensku bergi brotinn. Nei, ég er ekki að tala um Jón Baldvin Hannibalsson, sem líka er vel þekktur í Litháen. Hann er engin hetja eins og hinn Íslendingurinn.
Hetjan er þessi glæsilegi maður sem prýðir færsluna. Hann var af íslenskum ættum og gyðingaættum. Ágætis blanda, ekki satt? Ég hef verið að dunda mér að skrifa dálítið um sögu hans og ætla mér að birta það hið bráðasta í einhverju tímariti sem vill borga mér vel fyrir.
Getraun dagsins er:
Hvað hét þessi ágæti maður?
Í hvaða húsi fæddist móðir hans og hvað hét eitt fallegasta skipið í Kaupmannahöfn sem var í eigu afa hans?
Hún Áslaug vinkona mín á Efstakaupstað, sem ég hef trassað að skrifa til vegna anna í nýju starfi, má ekki vera með í getrauninni.
Þeir sem geta svarað öllu rétt, ættu að gerast félagar í hinu nýja félagi Litháa.
![]() |
Litháar á Íslandi stofna félag |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
18.5.2008 | 17:50
Tæpilaus tunga
Ég hefði ekki getað sagt þetta betur, eða þó. Ég get t.d. borið orðið "argument" betur fram en forseti BNA. En ég er heldur ekki fæddur í Texas. Hér er ræðan öll, eins og George sendi mér hana.
Svo fór hann líka til Egyptalands og talaði við "he, eh, and his negotiators", þ.e.a.s. gamla frelsishetju. Sagði forsetinn kannski "He, eh and his aligators" . Skoðið það hér. Það er í rauninni alveg sama hvað hann segir. Hann fer að hætta, og í stað hans kemur annað heimssögulegt slys. Nú er það er svart maður, en það á eftir að verða enn dimmara. Það er víst ekki hægt að segja það tæpitungulausara.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.5.2008 | 08:41
Steinar á vegi Kristjáns X
Nýverið kom fram í dönskum fjölmiðlum, og íslenskum, að fjölskylda Kristjáns X, langafa Friðriks erfðaprins sem nýlega var á Íslandi, hafi verið umburðalyndari gangvart nasistum en gekk og gerðist í Danmörku.
Þetta held ég að sé rangt. Danir sem þjóð voru almennt umburðalyndir gagnvart nasistum, og að hefð hallari undir Þjóðverja en margar aðrar þjóðir. Kannski er það ekki skrítið þegar tekið er til þess að stórveldið þýska, keisarar og "lýðveldi" og síðast Þriðja Ríkið voru ávallt skammt undan. Það eru ekki allir eins heppnir og Íslendingar, sem voru alltaf einir úti í Ballarhafi og hafa ekki haft neina leiðinlega nágranna eins og Danir. Danir hafa verið hræddir við Þjóðverja síðan á dögum Ottós I Þýskalandskeisara, sem uppi var á 10. öld. Þeir þurftu að beygja sig nokkuð mikið þeirra vegna. Stór hluti Dana er líka kominn af Þjóðverjum. Annað hefði verið óumflýjanlegt.
Ungur sagnfræðingur, Mikkel Kirkebæk greindi nýlega frá niðurstöðum rannsókna sinna, sem leitt hafa í ljós að að ættmenn Kristjáns X höfðu náin samskipti við danska stórnasistann og gyðingahatarann Christian Frederik Schalburg. Í sjálfu sér eru það ekki ný tíðindi, en gott að einhver sé búinn að fara í saumanna á þeim málum. Það hlýtur þó að hafa verið erfiðleikum bundið, því Margrét Danadrottning hefur enn ekki veitt sagnfræðingum aðgang að skjalasafni afa síns.
Sem dæmi um þessi tengsl dönsku konungsfjölskyldunnar við nasista má nefna að árið 1935 gerði Kristján X uppskafninginn Schalburg, "os elskelig" að sögn konungs, að kammerjúnkara.
Nýlega, löngu áður en fyrrnefnd bók kom út, hafði ég sjálfur ástæðu til að biðjast leyfis til að fá aðgang að hluta skjalasafns dönsku konunganna, þar sem ég hef áhuga á ferð Kristjáns X til Berlínar árið 1937. Þá mun Kristján konungur Íslands hafa hitt Hitler. Sagnfræðingurinn Mikkel Kirkebæk er ekki með neitt um þessa heimsókn í bók sinni.
Ég fékk þetta snubbótta svar Erik Gøbels, sem er sérfræðingur á danska Ríkisskjalasafninu í Kaupmannahöfn:
Som svar på Deres ansøgning i e-mail af 5. marts 2008 må vi meddele, at det er almindelig praksis, at Rigsarkivet ikke til Kabinetssekretariatet videresender ansøgninger vedrørende adgang til Christian X's arkiv i Kongehusarkivet, da Kabinetssekretariatet ikke hidtil har givet forskere (bortset fra den kongelige ordenshistoriograf) adgang til Christian X's arkiv.
Mér hefur áður tekist að opna harðlæst skjalasöfn í Danmörku , en ég efast um að ég fái að sjá konunglega skjalasafnið. Það eru líklega allt of mörg lík í lestinni, eins og Danir taka til orða, til þess að það sé raunhæfur möguleiki.
Hér er að ofan er ljósmynd Morgunblaðsins af langafabarni Kristján X, þar sem hann virðir fyrir sér nýuppgerðan Konungsstein, sem höggvinn var fyrir langafa hans við Geysi í Haukadal. Leyfi ég mér að taka fram að myndina má ekki afrita og nota á neinn hátt (eða endurgera), þar sem ég hef keypt not af henni af Morgunblaðinu sem á einkaréttinn að myndinni.
Ég leyfi mér líka að benda á að steinar þeir sem stór fyrirtæki greiddu fyrir "lagfæringar" á vegna komu Friðriks erfðaprins í maí 2008, höfðu þegar fengið andlitslyftingu vorið 2007. Þetta kemur fram af myndum á myndasíðu Ingva Stígssonar ljósmyndara. Ef viðgerð sem á að hafa farið fram með leyfi Fornleifaverndar Ríkisins á síðari hluta árs 2007 hefur verið lokið vorið 2007, er það ekkert minna en kraftaverk. Varla hefur verið gefið afturvirkt leyfi? * Sjá fyrstu athugasemd hér fyrir neðan
Lesa má aðrar færslur mínar um Kristján X konung okkar hér og hér, og reyndar líka dálítið Hér og hér
Og grein mína um stjörnu hans er hægt að lesa hér
Menning og listir | Breytt 12.5.2008 kl. 16:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
10.5.2008 | 08:33
Reyktur humar
Stundum er vertíð, en nú er greinilega komin agúrkutíð.
Mikið er þetta annars merkileg frétt. Mofi bloggari og vísindamenn í BNA (hvar annars staðar?) hafa lengi haldið fram nánum skyldleika humars og manna. Nú er komin sönnun fyrir því, þökk sé íslenskri sjómannastétt.
Reykingar krabbadýra eru ekkert nýmæli, og er það engin tilviljun að krabbi (cancer) er nafn á sjúkdómi?
Þessi saga segir okkur líka, að ruslið sem við hendum lendir fyrr eða síðar á hausnum á okkur.
Leitt þykir mér þó að Pípusafn Humra á Íslandsmiðum, sem hefur sömu þýðingu fyrir humarinn eins og reðursafnið á Húsavík fyrir Húsvíkinga, hafi verið eyðilagt.
Hvað verður næsta fyrirsögn í fréttum? Ef til vill: Bjössi bílstjóri fær aftur sígarettustubbana sína sem hann henti út um hliðarrúðu á Þingvöllum árið 1964.
![]() |
Endurheimti pípuna eftir 16 ár |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 12:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.5.2008 | 10:55
Armée de l'Air
Nú þegar franskir flugkappar koma til að passa landið okkar og loftrúm, er greinilega miklu meiri gleði hjá þjóðinni en þegar Kaninn gerði það. Er gerður mannamunur á hetjum háloftanna?
Nú verður líkast til Evrópustemmning ef þessir háfleygu Fransmenn gera sér glaðan dag í höfuðborginni. Ekki er útilokað að þeir rómansi nokkrar fjallkonur á Kaffi París, og það á siðmenntaðri hátt en forverar þeirra í gæslu himinloftanna. Ú la la!
Votur, franskur koss getur hafið sumt fólk upp til skýjanna. Svo er loksins kominn chance fyrir karlpeninginn að skella sér í ástand, því meðal frönsku kappanna eru franskar gyðjur sem geta hafið leiðinlegustu karldurga til skýjanna. Ég sel þetta ekki dýrara en ég keypti það...
Claudette
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 11:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
5.5.2008 | 21:27
Stórfurðuleg íslensk minnimáttarkennd
Morgunblaðið tjáir okkur að Konungasteinarnir við Geysi í Haukadal séu á ömurlegum stað. Mikið er þetta nú skrítin staðhæfing.
Ég skrifaði í fyrra um Konungssteinana og sýndi myndir af elsta steininum þegar hann var nýr og fallegur. Ég skrifaði líka fyrr í ár um Geysi.
Nú er búið að höggva ofan í gömlu meitilsförin á steinunum þremur til þess að þeir líti betur út þegar tignargesti frá Danmörku ber að garði.
Mönnum hefur væntanlega þótt ömurlegt að þessir merku steinar væru ekki eins og nýhöggnir þegar kóngafólk kemur í heimsókn. En hvað veit ég?
Þessi einkennilega aðför að fornleifum hefur verið gerð með leyfi Fornleifaverndar Ríkisins. Það vekur vissulega furðu mína.
Ég bið þess vegna Fornleifavernd Ríkisins að birta mér skýrslu um efnið, þar sem ég og bloggvinir mínir getum séð myndir af steinunum fyrir og eftir þessa "andlitslyftingu". Ég bið stofnunina sömuleiðis um að skýra hvaða kenndir og ástæða fengu menn til að höggva ofan í minjar á þennan hátt og hvaðan erindi um þessa aðgerð kom upphaflega.
Vona ég að stofnunin svari mér hér á blogginu.
Haldið þið lesendur góðrir að Danir færu að meitla í Jalangursteina (Jellingsteina/ Jellingestenene) Haralds Blátannar til að gleðja einhverja þjóðhöfðingja.
Ég vona að Frederik erfðaprins og Mary hin tasmanska prinsessa hans hafi verið ánægð með endurgerð hnullunganna við Geysi. En eitthvað held ég að móðir prinsins, sem er eins konar kollega minn, þótt ég sé vissulega ekki "drottning", myndi segja ef þessi vinnubrögð hefðu verið við höfð í Danaveldi.
Dr. Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, fornleifafræðingur
----
P.s. Eftir að hin eiginlega færsla mín um breytingar á Konungasteinunum var skrifað, hefur höfundur uppgötvað þessi skrif Gísla Sigurðssonar um sögu steinanna. Þar heldur Gísli því fram að steinninn frá komu Kristjáns IX heyri undir Þjóðminjasafn Íslands, þar sem áletrunin ráði því. Þetta er rangt með farið. Áletrunin á steininum telst til fornminja þar sem hún var höggvin árið 1874. Aldur gripa og minja þarf að vera 100 ár til að þeir teljist til fornleifa samkvæmt lögum. Greinilegt er að aðförin að steininum frá 1907 sé réttlætt með því að hún hafi verið farin rétt fyrir tímamörk. Ég tel nú að steinninn hafi talist til fornleifa er hann var endurhöggvinn.
Ég furða mig einnig á því að menn kalla steinana Konungssteina. Við erum að ræða um 3 konunga og væri heitið Konungasteinar réttara nafn.
Fornleifavernd Ríkisins leyfði nú manngerðar breytingar á fornleifum og nú er að sjá hvernig stofnunin svarar erindi mínu. Einnig verðum við að sjá framgangsskýrslu steinsmiðsins sem hjó.
P.p.s. Viðskiptaráð Íslands er með þessa frétt um steinana:
Konungssteinar við Geysi |
Friðrik krónprins Danmerkur og eiginkona hans Mary krónprinsessa, heimsóttu Geysi í Haukadal til að vígja lagfærða Konungssteinana, en Dansk-íslenska viðskiptaráðið hefur nýverið gengist fyrir lagfæringu á áletrunum á þeim. Konungssteinarnir, sem eru þrír talsins, bera merki konunganna sem höggvið er í þá, ásamt ártölunum 1874, 1907 og 1921, til minningar um heimsóknir þriggja Danakonunga til landsins. Heimsókn krónprinshjónanna til Íslands, í boði forseta Íslands Ólafs Ragnars Grímssonar og Dorrit Moussaieff forsetafrúar, hófst mánudaginn 5. maí en lýkur fimmtudaginn 8. maí. --- Þá höfum við það. Friðrik vígði lagfærða Konungssteina. Konungsefnið setti blessun sína á klámhöggið. |
![]() |
Konungssteinar fá nýja ásýnd |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Menning og listir | Breytt 11.5.2008 kl. 06:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
4.5.2008 | 19:19
Lögbann á Jesúsmynd
Fyrir nokkrum mínútum síðan hafði Egill Bjarki Jónsson ljósmyndari samband við mig. Hann krefst þess að ég fjarlægi mynd hans af Véstein Valgarðssyni, sem ég hafði sett við síðustu færslu mína. Ef ég geri það ekki, segist Egill að hafa samband við Myndstef.
Ég fann þessa frábæru mynd Egils á Flickr http://flickr.com/photos/egillbjarki/474886008/in/photostream/
Ég hef ekki notað myndina til að gera mér féþúfu af henni, enda er þetta ekki fallegasti Jesús sem ég hef séð.
Egill skrifar þetta um mynd sína:
"This is my good friend Vésteinn. We worked together at a mental hospital in Iceland. Vésteinn is a very special man, he has many strange hobbies and a very differant view on the world that we live in compared to the rest of us. I made this picture for him to use in a message forum for people against the government funding the church. If you understand Icelandic, here is the page :
http://www.vantru.is/ "
Á þessum síðustu og verstu tímum þegar bannað er að birta myndir af Múhameð, furðar það mig ekki að bannað sé að birta myndir af "Jesús Valgarðsyni".
Ég fjarlægi auðvitað myndina af Jesús, sem notuð var á vantru.is
Það er greinilegt að Jesús Valgarðsson hefur einkaréttinn á myndinni til að storka þjóðkirkjunni með ásjónu sinni (mér finnst annars þessi Jesús mest líkur Katrínu Fjeldsted), og hefur sárnað að trúmaður eins og ég hafi sett myndina af honum á blogg mitt.
Voða er nú lítill munur á Vantrúarfólki og öfgamúslímum. En það var nú ekki nein ný uppgötvun hjá mér.
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 19:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (40)
3.5.2008 | 17:44
Fjaðrafok friðarfuglanna - The Sixth Cairo Conference
Miðausturlandaörn, vinur minn góður, sendi mér nýlega línu um flug 33 sjaldgæfra farfugla hvaðanæva úr Evrópu suður á boginn, nánar til tekið til Egyptalands. Þetta var síðbúin farfuglamergð og fuglarnir voru svokallaðar friðardúfur. Blessaðar dúfurnar lentu í hinni fornfrægu borg Kaíró. Tvær útvaldar, íslenskar alþýðudúfur, með hlutverk á meðal þjóðanna, lentu líka á píramídunum í Egyptalandi. Karldúfan hét Vésteinn og var toppdúfa, kvendúfan Rósa var ósvikin rauðdúfa.
Dúfurnar höfðu verið kallaðar til dúfnaveislu sem kölluð var Sixth Cairo Conference. Þangað voru líka flognar dritdúfur frá fjarlægum einræðisríkjum, t.d. Venesúela, frá samtökum sem berjast með einræðisherranum þar, hitabeltisdýrinu Hugo, gegn Zíonistum og Bandaríkjunum. Allir gogguðu í sömu vandamálin. Og einu vandamálin í heiminum, sem dúfurnar sáu, voru gyðingar, Bush og vestræn menning.
Þarna í skugga píramídanna kurruðu dúfurnar og samþykktu hjartnæmar friðaryfirlýsingar sem hljóma eins og stríðsyfirlýsingar. Stuðningi var lýst yfir við Íran og stefnu gammanna þar í landi í friðar- og alþjóðarmálum. Einnig bárust stuðningsyfirlýsingar hvers konar við hryðjuverkadúfur úr öllum dúfnakofum veraldar. Á fyrri ráðstefnum höfðu dúfurnar lýst yfir stuðningi við illfyglið Saddam, en eins og allir vita eru friðardúfur hinar mestu skræfur og vilja helst halda friðinn við illfygli.
Á ráðstefnuna í Kaíró í ár tóku einnig þátt útvaldir útsendarar Guðs (Allah) á jörð, Nílargammar frá Bræðrasamtökum Múslíma, (al-ikhwān al-muslimūn). Hér er mynd af þeim á ráðstefnunni.
Eins og öllum má vera kunnugt um, eru Nílargammar sérlundaðir mjög, og hafa mjög sérstaka útleggingu á friðarhugtakinu. Friður er aðeins réttlátur ef hann er í anda múslíma. Nílargammar neita líka alfarið að Helför gyðinga hafi átt sér stað og kenna gyðingum um ófrið um allan heim.
Það hlýtur að hafa verið fengur fyrir dúfnadrenginn Véstein, sem flaug alla leið frá Íslandi. Vésteinn hefur nefnilega haldið uppi miklu kurri fyrir því að örlög gyðinga séu sambærileg við örlög Palestínumanna. Hann heldur því fram að sjálfskaparvítið á Gaza sé það sama og hörmungarnar í gettóinu í Varsjá og að Ísraelsmenn feti nú í fótspor Hitlers. Vésteinn dúfa hefur örugglega hitt jafningja sína í Kaíró getað rætt margt við hauka og gamma Múslímabræðralagsins um fjendur friðarins, sem eru víst þeir sömu í huga íslensku dúfunnar Vésteins og öfgamúslíma.
Friðarráðstefnur eru ekki það sem þær voru hérna áður fyrr.
Það voru þó aðeins 33 skrítnir fuglar frá Evrópu með á ráðstefnunni í Kaíró, sem vonandi eru ekkert annað en verstu einfeldningarnir og skósveinar öfgaaflanna, sem lýst hafa yfir stríði á hendur vestrænni menningu.
PS
Mynd fjarlægð vegna hótana ljósmyndara um að hafa samband við Myndstef. Myndina er enn hægt að sjá hér
Ég verð að bæta þessu við. Í ljós er komið að Vésteinn Valgarðsson er líka kominn af gyðingum eins og þeir sem ég greini frá í færslunni hér á undan. Vésteinn er kominn af engum síðri en Jesús Kristi. Það er svo mikill svipur með Vésteini og Kristi að honum hefur verið boðin staða sem altaristafla í Hallgrímskirkju. Gaman til hliðar. Þessi aríski Nútímajesús, sem hittir öfgamenn vegna friðs í Kaíró, hefur verið eilífaður af Agli Spegli, sem er liðtækur ljósmyndari sem ég rakst á á Flickr. Hér, Ladies and Gentlemen, friðardúfan Vésteinn í hlutverki meistarans - Amen:
Stjórnmál og samfélag | Breytt 5.5.2008 kl. 04:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
3.5.2008 | 00:12
Íslenskir gyðingar koma út úr fylgsnum sínum
Skrif mín um gyðingdóm, örlög gyðinga og Ísraelsríki eru um 20% af því sem ég skrifa hér á blogginu. Ekki neita ég því og ekki skammast ég mín fyrir það. Það sem ég skrifa virðist fara í taugarnar á mörgum, enda er stuðningurinn við Ísrael á Íslandi mjög lítill og þekking Íslendinga á sögu gyðinga almennt mjög ómerkileg. Hatur tengist vanþekkingu, og ég hef verið að reyna að benda mönnum á að öfgafullar skoðanir í garð Ísraels og gyðinga sé vanþekking og mjög oft líka lánaðir fordómar.
Að undanförnu hefur það gerst, að upp á yfirborðið koma íslenskir gyðingar, sem ég hafði ekki hugmynd um að væru til. Þeir gefa sig til kynna til að gangrýna mig og skrif mín, sem er ágætt, en taka svo líka eina atrennu gegn Ísraelsríki og réttlæta það með meintum gyðingagenum í sér.
Hjálmtýr Heiðdal kvikmyndagerðamaður afhjúpaði þannig að hann væri komin af faríseum af Musterishæð og einhver Mangnús IP tala skráð opinberaði í gær að hann væri af ætthvísl skráðra IPsteina (ekki er hann skyldur Einstein, svo mikið er víst). Fyrir nokkrum árum skrifaði maður ættaður af Skagaströnd í DV og réttlætti svæsnar skoðanir sína á Ísraelsmönnum með göfugu gyðingakyni sínu, og taldi sig líka, líklega vegna augljóss skyldleika við Krist, geta gangrýnt gyðinga sem á sínum tíma vildu koma stríðsglæpamanni á Íslandi fyrir dómara.
Óljós ættfræði þessarra þriggja nýgyðinga er notuð til að réttlæta skoðanir þeirra á Ísraelsríki og gyðingum og sem hluti af stuðningi þeirra við málstað Palestínumanna. Þrátt fyrir fáein gyðingagen, eru þessir heiðursmenn afar fráhverfir vitund og þekkingu á meintum uppruna sínum
Nú er hins komið er í ljós að H. Heiðdal er alls ekki kominn af Fiðlaranum á Þakinu heldur bakara af Holtsetalandi, sem var svo heppinn að ekkert gyðingablóð rann í æðum hans. Herra Berndsen ættaður frá Skagaströnd, sem ég skrifaði um í DV 12.7. 2001 vegna þess að hann taldi sig kosher gagnrýnanda Ísraels, var kominn af manni sem á unga aldri þegið te og brauð fyrir að kveikja á ljósum og ofnum gyðinga á hvíldardeginum,og var ekki frekar gyðingur en Egill Skallagrímsson. Berndsen skrifaði um "hina samhljóða rödd gegn ofsóknarbrjálæði Ísraelsmanna".
Nú bíð ég eftir að ættfræði Magnúsar með IP töluna og ljóta orðbragðið komi á hreint. Kannski er hann kominn af Marx bræðrum.
(Meintur) uppruni manna gefur þeim engan rétt til að leika dómara yfir ætt og þjóð sem forfeður þeirra yfirgáfu í stað þess að styðja og hvetja, þó svo að hjarta þeirra slái fyrir aðrar þjóðir sem geta ekki hætt að lýsa yfir útrýmingu Ísraels.
Ég óska laungyðingum Íslands til hamingju með 60 ára afmæli þjóðríkis þeirra. Gagnrýni sakar ekki, en hún ætti ekki að vera drifin áfram af hatri.
Menning og listir | Breytt 4.5.2008 kl. 08:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (30)
1.5.2008 | 17:45
(Nasjónal)sósíalsimi í réttu ljósi
Það er ekki lengur óalgengt á Íslandi að maður sjái svona ósóma eftir svokallaða vinstrimenn. Vésteinn Valgarðsson, sem ritar þetta, er að eigin sögn mikill friðarsinni. Mér er ómögulegt að sjá það.
Mig langar að benda á góða grein eftir vin minn Manfred Gerstenfeld, sem stýrir riti sem ég hef skrifað tvær greinar í. Grein hans, sem hann kallar Holocaust Trivialization, kom formlega út í dag. Í henni getur maður getur lesið dæmi um hinar mismunandi aðferðir sem óprúttnir menn og óvitar nota til að gera lítið úr Helför gyðinga, hvernig hún er misnotuð og örlög milljóna manna eru vanvirt og tengd flatneskju og öðrum málstað eða baráttum, sem ekki kemur örlögum 6 milljón manna við.
Hvað fær menn t.d. til að líkja banni þýskra yfirvalda á hættulegum bardagahundum við helför gyðinga?
Það gerist líka iðulega að fórnalömb Helfararinnar eru vanvirt af fólki sem líkir örlögum gyðinga í Seinna stríði við hryðjuverkamenn, sjálfsmorðssprengjumenn nútímans og örlögum þeirra við lélegan öfgamálstað nútímans. Svo eru til karakterar sem eru í beinu sambandi við ríki og hafa skilning á þjóðhöfðingjum sem afneita Helförinni. Vésteinn Valgarðsson er t.d. nýbúinn að vera í Egyptalandi, sem er einræðisríki þar sem gyðingahatur er sýnt í sjónvarpinu. Vésteinn fór á ráðstefnu um frið í Egyptaland. He he! Mönnum er líka bannað að blogga á Egyptalandi. Ætli Vésteinn hafi mótmælt þessu þegar hann var í skugga píramídanna?
Saklaust fólk, sem allar bjargir voru bannaðar er ekki hægt að líkja við ríki öfgasamtaka, sem hafa útrýmingu gyðinga á dagsskránni líkt og nasistar fyrir 65 árum síðan. Ísraelsríki er ekki hliðstæða Þriðja Ríkisins. Og fyrir þá sem styðja Amadinejad i Íran, þá upplýsist hér með að Helförin átti sér stað.
Hvenær hætta íslenskir vinstrimenn þessum ósköpum? Eru þeir ekki með öllum mjalla? Er arfur nasismans svo lokkandi að þeir þurfi að eftirapa hann, eða er bara svona lítill munur á nasíónalsósíalisma og sósíalisma?
Einn argasti gyðingahatari Íslands eftir Síðari Heimsstyrjöld var kratinn, Alþingismaðurinn og embættismaðurinn Jónas Guðmundsson. Hann gaf út rit sem voru morandi í gyðingahatri. Á heimasíðu Alþingis er ekki minnst einu orði á þessar einkennilegu kenndir Jónasar. Skrif hans og útgáfa hafa vonandi ekki á sínum talist til góðrar latínu á Íslandi? Margir keyptu tímarit rit Jónasar, Dagrenning, sem út kom í 12 ár, og bókasöfn höfðu fjölda eintaka af ritum hans til láns.
Jónas Guðmundsson, krati sem gaf út andgyðingleg rit eftir Heimstyrjöldina síðari.
Hvað gerist í kollinum á sumum vinstrimönnum og hvað gerist stundum í kollinum á sumum Íslendingum? Bara að ég vissi það.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 3.5.2008 kl. 11:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (30)
Bækur
Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs
-
Nýtt blogg um fornleifafræði
FORNLEIFUR -
Þrælasalar í Norðurhöfum
Grein í Lesbók Mbl. 1999 -
: Ritaskrá 1972-2013 -
Fyrri færsla
Jakki Kiljans Laxness -
Bein Páls Biskups
Kveðskapur -
: Flóttamaðurinn Alfred Kempner -
Pepsi var á Ströndum
Gosdrykkjasaga -
Mótmælum Durban II
Meira -
Ved Helvedes Port
Grein mín í SKALK. Nr.4,1994. -
: Gyðingar á Grænlandi
Fyrri færsla og tenging við grein eftir mig á dönsku um gyðinga á Grænlandi -
Flogið hátt
Grein mín um fyrsta flug flugbels á Íslandi -
Fyrri færsla
Líkþráir Íslendingar -
: Lesið hér (ISBN: 978-965-218-066-7)
Behind the Humanitarian Mask; The Nordic Countries, Israel and the Jews. Edited by Manfred Gerstenfeld. -
Fyrri færsla
Vinir útlendinganna -
Fyrri færsla
Nakinn sannleikur -
Ungr var ek forðum
Færsla um óeirðir og læti í æsku minni -
Fyrri færsla
Þegar Gúttó varð samkunduhús gyðinga -
Fyrri færsla
Vive l'(Gr)islande -
Fyrri Færsla
Nifalt húrra -
Íslenskar frúr í Andvörpum
Um ferðir útrásar-Íslendinga á 16. öld. Lesbók Morgunblaðsins 28.águst 1999. -
Fyrri færsla
Berlínarboogie Laxness -
Fyrri færsla
Pabbi Þórs var myrtur í Auschwitz -
Falskir Íslendingar
Grein um þjóðarstolt -
En dansk krigsforbryder
Grein í Weekendavisen um versta stríðsglæpa- mann Dana, sem dönsk yfirvöld vildu helst gleyma. -
Anti-Semitism in Iceland. Is that possible? -
Iceland, the Jews, and Anti-Semitism, 1625-2004
Grein á ensku um gyðinga á Íslandi -
Ich weiss, was ich zu tun habe
Grein mín um Georg F. Duckwitz, nasistann sem á að hafa verið potturinn og pannan við björgun gyðinga í Danmörku. Í greininni sem birtist í tímaritinu Rambam 15:2006 er gerð grein fyrir fjölmörgu sem danskir sagnfræðingar hafa gleymt að rannsaka. Hlutverk Duckwitz verður nú að endurskoða. -
Grein
The King and the Star í: Denmark and the Holocaust (2003) (ISBN: ISBN 87-989305-1-6) -
: Rescue, Expulsion, and Collaboration: Denmark's Difficulties with its World War II Past
Jewish Political Studies Review 18:3-4 (Fall 2006; Tímarit sem ég hef skrifað töluvert í -
: 20 Begivenheder der skabte Danmark (ISBN: 87-02-0516-7)
Ég er meðhöfundur að einum af köflum bókarinnar. -
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson: Medaljens Bagside - Jødiske flygtningeskæbner i Danmark 1933-1945 (ISBN: 87-91393-60-4 ) Forlaget Vandkunsten 2005. Bók mín um meðferð danskra yfirvalda á flóttafólki á 4. og 5. áratugi 20. aldar.
Meira
Nýjustu færslur
- Viðreisnarklappstýran
- Tapað-fundið á DV
- Ekki fleiri sokka frá Íslandi, TAKK.
- Trumpur Eyjajarl
- Á mér stendur ..... Bjarni Ben
- Minnislaus síðan í síðustu ESB-kosningu
- Gamlir dónar sem fokka sér - Meet the Fockers II
- Icelandic Police Bared
- Niðurstaðan: KiSS or Bæjarins beztu
- Zelenskij fór í ranga flugvél - verður í Færeyjum næstu dagana
- Sjúklega svæsinn gyðingahatari er vinsæll á Moggablogginu
- Valdemar á svölunum er látinn
- Svæsnir fordómar eru ekki hluti af málfrelsi og tjáningu
- Ástráður eins og lús á feldi
- Utanríkisráðherra eyðir um efni fram í útlöndum
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (26.7.): 1
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 57
- Frá upphafi: 1355748
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 32
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Apríl 2025
- Mars 2025
- Janúar 2025
- Júlí 2024
- Apríl 2024
- Febrúar 2024
- Desember 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Ágúst 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Júlí 2021
- Maí 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- Ágúst 2020
- Maí 2020
- Nóvember 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Júlí 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Janúar 2017
- Nóvember 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Nóvember 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007