Bloggfærslur mánaðarins, september 2012
30.9.2012 | 07:06
Palestínupáfinn með lausn heimsvandans
Palestínupáfinn Össur Skarphéðinsson, andlegur bróðir litla mannsins í Íran, talaði aftur yfir sig í New York. Íslenski ráðherrann og gyðingahatarinn Össur hefur enn einu sinni sýnt okkur að hann er miklu dugmeiri fyrir málstað öfgaríkja og hryðjuverkasamtaka en hann er í baráttunni fyrir Pétur og Pál á Íslandi. Hinn eini sanni utanríkisráðherra Íslands í augnablikinu er Ólafur Ragnar Grímsson.
Gyðinghatari? Jú, Össur sagði við Ísraelsríki úr pontu í New York: Mr. Netanyahu - tear down this wall !". Íslenski Palestínumálaráðherrann vill láta rífa niður varnargirðingu sem kemur í mestu fyrir að óbreyttir borgarar séu brytjaðir niður eins og borgararnir á Sýrlandi. Þeir sem vilja láta myrða gyðinga í Ísrael er auðvitað ekkert annað en gyðingahatarar. Össur Skarphéðinsson, eins og margir forverar hans í embætti utanríkisráðherra, er gyðingahatari.
Össur sagði einnig dólgslega við Ísrael og Gyðinga: "I listened to Mr. Netanyahu's speech on Thursday, and I have a comment to make on behalf of the Icelandic people: Don't bomb Iran. Don't start another war in the Middle East." . Með þessu vill Össur viðhalda vanþekkingunni og lygunum, eins og þegar hann segir: I met the Children of Gaza whose lives are made impossible by poverty, violence and a blockade that by others than myself has been described as an open door prison". Kannski voru það aðrir sem lögðu honum orð í munn, en sjáið fátæktina á Gaza hér, sjáið glæsihótelið sem Össur bjó á þegar hann virti fyrir sér fátæktina á Gaza. Eins og í Samfylkingunni þá greiðir Hamas götu gæðinga sinna. En Össur talar ekki á mínum vegum sem frjáls Íslendings. Hann tekur ekki mig í gíslingu endurgjaldslaust.
Stórmennskubrjáluð gagnrýni Össurar á Öryggisráðið er ómaklegt hjal, og hann er sjálfur ekki með neinar lausnir. Reynandi væri þó að senda hann sem fyrst til Damaskus, jafnvel þótt ríkisstjórnin hans sé ekki fallin. Andleg systir hans, Ingibjörg Sólrún, fór á fund barnamorðingjans Assads fyrir nokkrum árum til að fá stuðning til setu Íslands í Öryggisráðinu. Það var sama konan sem ærðist illilega þegar samtök úti í heimi vildu sækja gyðingamorðingja sem bjó á Íslandi til saka.
Utanríkisráðherra Íslands er einfaldur lýðskrumari sem sækir sér nú stuðning hjá stórum öfgaarmi Samfylkingarinnar í formannsslagnum í Samfylkingunni, hjá fólki sem í áraráðir hefur haft Palestínu að gæluverkefni, eins og feðurnir höfðu Hitler-Þýskaland eða Sovétríkin sem óskalandið.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
25.9.2012 | 20:20
Er Iceland Express með falstilboð?
Í dag, 25. september 2012, fékk ég tölvupóst frá Iceland Express, þar sem mér var boðið 12 klukkustunda tilboð á ferðum frá Kaupmannahöfn frá og með kl. 12.00 að Greenwich tíma. Tilboðinu líkur sem sagt í kvöld á miðnætti.
Ég kannaði málið. Ég athugaði verð á miða fyrir einn fullorðinn og eitt barn frá Kaupmannahöfn til Íslands og aftur, brottför 14.10. og til baka þann 21.10. Grand Total, eins og það er kallað þegar allar álögur eru komnar ofan á verðið, var 6.175 DKK.
Ég athugaði sömu ferð þann 21. þessa mánaðar og þá var verðið 6.084 DKK.
12 tíma tilboðið í dag var sem sagt dýrara en verð á sömu flugferð fyrir þremur dögum síðan
Manni þykja svona verslunaraðferðir skitnar og skrýtnar og þær koma óorði á íslensk fyrirtæki, sem ekki hafa allt of gott orð á sér fyrir. Ég sætti mig að minnsta kosti ekki við slíka verslunarhætti og leyfi mér að halda því fram að þeir séu ólöglegir.
Geri Icelandair betur!
25.9.2012 | 05:39
Ekkert venjulegt Band á leiðinni
í boði Ólafs Ragnars Grímssonar, svo greinilega er að það hlýtur að vera eitthvað Hard Rock band sem er að koma. Nei, aldeilis ekki, það er bara hryðjuverkalagasönglarinn David Miliband sem treður upp á morgun í Háskóla Íslands. Miliband var bjartasta von krata á Bretlandseyjum þangað til hann tapaði fyrir bróður sínum Ed. Báðir leika á loftgítar í Punk-hljómsveitinni New Labour.
Vonast margir þá til þess að David segi okkur frá fundi sínum með Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur (Imbu) í desember 2008. Aldrei hefur birst skýrsla Ingibjörgu Sólrúnu fyrrverandi utanríkisráðherra um fundinn með Miliband um hryðjuverkalögin sem Brown og Darling hans settu á okkur. Sjá hér,
Nú er einsýnt að Imba afhendi aldrei neina skýrslu um þennan fund frekar en um svo margt annað, en hugsanlegt er að Miliband hafi hripað eitthvað bitastætt niður.
Er ekki einhver sem nennir að fara á fundinn og stilla inn á BBC á Millibandinu og láta hann segja okkur opinskátt hvað var að frétta af þessum merka fundi sem hann átti með Imbu, og sem við lúsalýðurinn máttum ekki heyra um? Kannski að gestgjafinn, ÓRG, spyrji bara sjálfur Miliband?
Þessi piltur, sem hefði að mínu mati alveg eins geta lagt fyrir sig uppistands-kómedíu í Appollo-bíói í heimaúthverfi sínu Hammersmith, var með í ríkisstjórn Breta sem setti á Íslendinga hryðjuverkalögin.
Svo talað sé um ættir. Afi hans var í Rauða Hernum, þar sem hann barðist dyggilega, en Pútan í Kremlarvirki gróf eitthvað ljótt upp um afann, þegar David skaut á Pútuna hér um árið, og var það líklegast það merkilegasta sem gerðist á stuttum ferli Milibands sem utanríkisráðherra.
Ralph (Adolphe) Miliband, faðir þeirra Milibandsbræðra, Davids og Eds, var að mínu mati miklu merkilegri en synir hans, sem eru bara lýðskrumarar. Ralph var atvinnumarxisti með akademískan trefil um hálsinn. Hann skrifaði nokkrar merkilegar bækur um hvernig pólitíkusar, og sér í lagi þessir á vinstri vængnum, rotna og verða Mammon og gráðugum mellum að bráð. Ef íslenskir kratar hefðu lesið bækur hans, hefði kannski ekki farið hér á Íslandi eins og fór, og David litli hefði ekki þurft að rífast við Imbu okkar um hryðjuverkalögin sem sett voru á Íslendinga.
Kannski mætir Imba á morgun og rífst aftur við Miliband. Ég myndi borga fyrir að sjá það.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 06:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
20.9.2012 | 09:28
Óeðlið í Eystrasaltslöndunum
Um daginn var afhjúpað minnismerki í borginni Bauska í suðurhluta Lettlands, til minningar um þrjár lögreglusveitir lettneskra SS-manna, sem störfuðu frá 1943-45. Í Lettlandi er fjöldi fólks sem lítur á SS-liða frá Lettlandi sem þjóðhetjur. Lögreglusveitirnar sem nú hafa fengið bautastein til minningar um afrek sín, myrtu hundruð óbreyttra borgara í aðgerðum sínum gegn skæruliðum.
Smekkleysa og virðingarleysi vinarþjóðar Íslands, Letta, er ótrúleg, ekkert síður en í hinum Eystrasaltsríkjunum. Þar hylla sumir menn enn SS-liða og aðra böðla sem tóku þátt í helstefnu nasismans. Vandamálið er að ríkisstjórnir landanna leggja blessun sína yfir þennan óþverrahátt og engin segir neitt í ESB, sem er vitaskuld of upptekið við annað, t.d. að ná fiskinum af Íslendingum.
Eistneskir, lettneskir og litháískir meðreiðarsveinar nasista, sem margir hverjir stóðu sig vel í útrýmingu gyðinga eru hylltir sem þjóðhetjur, því þeir börðust margir hverjir líka við Rússa. Menn eins og Evald Mikson, sem Íslendingar ættu að þekkja, flokkast t.d. tæknilega af sumum Eistum sem þjóðhetja, því hann barðist við Rússa þar til Þjóðverjar nálguðust. Þá nauðgaði hann mæðgum, gyðingum, í bænum Võnnu, og síðar árið 1941, þegar hann var orðinn yfirmaður í sérdeild öryggislögreglunnar í Tallinn, nauðgaði hann Ruth Rubin í byrjun októbermánaðar, áður en hún var myrt í fangabúðunum í Harku. Eistneski sagnfræðingurinn Andton Weiss-Wendt skrifar í bók sinni Murder without Hatred (2009), þar sem hann, þrátt fyrir að koma efninu vel til skila, kemst að þeirri furðuleg niðurstöðu að hatrið í Eistlandi hafi verið minna en í Lettlandi og Lithauen: Before sending Ruth Rubin to her death, Mikson allegedly raped the girl. I seems to have been a routine case for Mikson, who regularly arrested Jews, occationally beating them. It was not unsusual for Mikson to check up to twenty-five Jewish homes and businesses a day". En Mikson hins vegar, var Rússa- og kommúnistabani og er því þjóðhetja á undanþágu, þrátt fyrir að hafa verið stríðsglæpamaður.
Á íslandi nuddaði Eðvald Hinriksson pólitíkusa sem höfnuðu öllum gögnum um hann sem KGB áróðri eða lygum. Pólitíkusar eins og stjörnuþeginn Steingrímur Hermannsson töldu það dónaskap af Ísrael að vilja sækja Eðvald til saka, (þó það væri ekki Ísraelríki sem hefði beðið um slíkt).
Sagnfræðingur einn í Háskóla Íslands skrifaði nýlega afar langsótta grein um Mikson-málið, þar sem kjarninn í því máli, ósk fórnarlambanna og ættingja þeirra að fá réttlæti, er orðið að aukaatriði í séríslenskum og alls endis ruglingslegum vangaveltum um hvað menn voru að hugsa og hverju þeir trúðu í "kalda stríðinu" á Íslandi. Í þessari undarlegu grein, sem ég mun fjalla um ítarlegar síðar, er Efraim Zuroff yfirmaður Jerúsalemdeildar Simon Wiesenthal Center, sendiboðinn sem vildi sækja Eðvald Hinriksson til saka, gerður að skúrkinum, því hann raskaði sjálfsímynd Íslendinga. Zuroff er einnig talinn skúrkur í Eystrasaltsríkjunum, því hann leyfir sér að benda á sannleikann og krefjast þess sem eðlilegt er. "Glæpur" hans er að hann talar um það sem menn vilja ekki heyra.
Í Litháen mega menn efast um helför gyðinga og gera lítið úr henni og tekur ríkisstjórn landsins beinan þátt í því, en ef menn leyfa sér að segja eitthvað miður um þjáningar Litháa undir hæl Rússa eiga menn yfir höfði sér tveggja ára fangelsi. Árlega eru leyfðar göngur þar sem SS-liðar landanna eru hylltir. Það er eitthvað mikið að í þessum löndum, svo mikil og óskiljanleg illska, sem er í mikilli andstaða við náttúrufegurð landanna og flest fólk sem þar býr.
Lettar eru ESB þjóð og ESB gerir nær ekkert til að mótmæla þessu óeðli, firru og sögufölsun sem á sér stað í landinu og hinum Eystrasaltsríkjunum tveimur á síðari árum.
Stundum fær maður það á tilfinninguna, að Eystrasaltsþjóðirnar hafi ekki getað höndlað frelsið sitt er þeir ákveða að nota það í annað eins óeðli og dýrkun á böðlum er.
Lesið og fræðist á www.defendinghistory.com
Gyðingahatur | Breytt s.d. kl. 11:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
18.9.2012 | 15:51
Af Landbergis, Zingeris og Steingrími Hermanns hinni nýju hetju Litháens
Það er komin út ný grein eftir mig, en einnig hefur Vytautas Landsbergis fyrrverandi forseti Litháens gefið út bók, þar sem hann gerir lítið úr völdum og afleiðingum verka og lagasetninga litháísku leppstjórnarinnar alræmdu sem faðir Landsbergis sat í nokkrar vikur árið 1941 áður en Þjóðverjar tóku öll völd í landinu. Þessi bráðabirgðastjórn gerði Þjóðverjum lífið létt að hefja skipulagða útrýmingu á gyðingum og fjöldamorðum á öðrum Litháen.
Litháíska leppstjórnin svipti m.a. gyðinga öllum rétti í Litháen, setti reglur um ghettó þangað sem gyðingum var smalað með valdi og opnaði fangabúðir fyrir gyðinga í Kaunas, þar sem gyðingar voru drepnir áður en Þjóðverjar birtust. Öll þessi niðurlæging á trúar- og minnihlutahópi, sem hafði búið í landinu í aldaraðir, átti sér stað áður en Þjóðverjar tóku formlega völdin.
Þessi lítilmannlega tilraun forsetans fyrrverandi til að breyta og falsa sögu lands síns, og föðurómyndarinnar sinnar, er aumkunarverð og lítilmannleg stefna sem öll baltnesku ríkin eiga sameiginlegt. Þjóðirnar þrjár vilja ekki heyra um örlög gyðinga í landinu og helst ekki vita af því að þeir voru virkir þátttakendur í þeim þjóðarmorðum.
Lesið meira hérum bók Landsbergis sem, m.a. fjallar um forsætisráðherra leppstjórnarinnar, Ambrazevičius-Brazaitis, sem Litháar tóku svo að segja í heilagra manna tölu í maí sl. (sjá grein mína um þegar ég varð vitni að því Kaunars hér).
Landsbergis situr nú á Evrópuþinginu, sem um daginn ákvað með miklum meirihluta að setja viðskiptaþvinganir á Færeyjar og Ísland út af makrílveiðum, og einn þeirra sem það gerði var hinn mikli Íslandsvinur Hr. Vytautas Landsbergis.
Engir meðreiðarsveinar þýska nasistainnrásaliðsins og böðlar Litháa hafa verið sóttir til saka eftir að landið öðlaðist aftur frelsi. Frelsið notar ríkisstjórn landsins til að ofsækja aldna gyðinga, sem Litháar vilja bak við slá vegna meintrar þjónustu þeirra við sovéska innrásarliðið í landinu. En nasistarnir og litháískir SS-liðar eru hins vegar heiðraðir, meðal annar með árlegum skrúðgögnum.
Í dag birtist eftir mig grein á vefnum http://www.defendinghistory.com/, þar sem skrifar fólk sem mótmælir ógeðfelldri söguskoðun og -fölsun, sem nú á sér stað sem aldrei fyrr í löndum Austur-Evrópu. Það er verið að "hreinsa" og fegra söguna landanna sem eru nýgengin í ESB, eða við það ganga inn í þrotabúið. Eins og í Sovétríkjum sálugu mega örlög gyðinga, sem óneitanlega voru verst, ekki skyggja á örlög kristinna borgara þessara landa. Stríðsglæpamenn og SS-liðar eru því þjóðhetjur og til eru Eistar sem telja Mikson (Eðvald Hinriksson) vera frelsishetju. En baltneskar hetjur voru margar hverjar fyrst og fremst gyðingamorðingjar.
Grein mína, sem ég kalla Emanuelis Zingeris, Star of the Red-Brown Road Show, Turns Up in Reykjavík on the Jewish New Year fjallar m.a. um Emanuelis Zingeris, þjónustuhollan litháískan gyðing, sem í gær nældi hlussustóra medalíu á sálina hans Steingríms Hermannssonar fyrir vel unnin störf í þágu Litháens. Gyðingar í Litháen telja Zingeris hafa gert litháískum yfirvöldum kleift að gera lítið úr örlögum gyðinga í landinu fyrir pólitískan frama og embætti, að hann hafi þar með gert lítið úr minningu 200.000 trúbræðra sinna sem myrtir voru í heimsstyrjöldinni. Zingeris er einn helsti stuðningsmaður þeirrar sögubrenglunar sem nú fer fram í Litháen, þar sem örlögum gyðinga, sem margir voru myrtir af Litháum, er líkt við örlög þau sem kristnir Eistar, Lettar og Litháar máttu þola af höndum Sovétríkjanna.
Greinin mín fjallar einnig um íslenskar hetjur Litháens og hve bágt Íslendingar eiga sjálfir með að höndla sína eigin sögu og fortíð.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.9.2012 | 13:03
Horfin frétt finnst aftur
Fréttin, sem hvarf á vef RÚV í gær og greint var frá í færslunni hér á undan, er nú komin í leitirnar og birtist aftur á þessari slóð: http://www.ruv.is/frett/thegar-gunnar-hitti-hitler í dag kl. 11.05, en því miður án ljósmyndarinnar af Gunnari Gunnarssyni að koma af fundi með Hitler. Svona leit fréttin út í gær.
En við fréttina endurfundnu hefur nú verið sett þessi athyglisverða athugasemd: Vegna tæknilegra orsaka eyddist þessi frétt út eftir að hún hafði verið birt á vefnum.
Ég er enn sem komið er ekki búinn að fá neina skýringu á því sem nákvæmlega gerðist frá, en ég hafði samband við nokkra yfirmenn RÚV vegna hvarfs fréttarinnar.
Forstöðumaður Gunnarsstofnunar á Skriðuklaustri gefur mér nú vonir um það að þessi áhrifaríka mynd af Gunnari verði bráðlega sett á vef stofnunarinnar.
16.9.2012 | 19:50
Hverfa fréttir á RÚV ?
Þessi frétt http://fornleifur.blog.is/users/5c/fornleifur/files/horfin_frett_16748.pdf, um myndir sem í dag birtust á Fornleifi, hvarf skyndilega á vefsíðu RÚV fyrir stundu. Fyrr í dag var hana að finna á slóðinni http://www.ruv.is/frett/thegar-gunnar-hitti-hitler , en sama hvað ég leita, þá finn ég hana ekki nú á vefsíðu RÚV.
Á vefsíðu RÚV er nú upplýst að síðan sem ég er að leita að sé þar ekki. En víð ítarleit finn ég þetta: http://www.ruv.is/frett/morgunutvarpid/gunnar-gunnarsson-var-ekki-nasisti. Er síðastnefnda fréttin hinn heilagi sannleikur?
Ég vona að þetta sé bara eitthvað tæknilegt, "afsakið stutt hlé" eða eitthvað þvíumlíkt hjá RÚV. Ég hef nú spurt vefmeistara RUV.is og fréttastofuna hvar þeir hafa falið fréttina.
Ef svör berast ekki, verð ég kannski að fara til yfirmanns þeirra í ráðuneytinu?
Fjölmiðlar | Breytt s.d. kl. 21:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
16.9.2012 | 09:45
Gunnar hjá Hjalta litla
Fornleifur bróðurbloggari minn hefur í dag grafið smá skán af skítnum og birtir myndir af Gunnari Gunnarssyni að gera nasistum til geðs í marsmánuði árið 1940. Hann heimsótti einnig Führer sinn, sem sumir kalla bara Hjalta til að særa engan að óþörfu.
Hvað fékk manninn til að fara frá Íslandi um hávetur í byrjun árs 1940 til að stappa stálinu í Þjóðverja í 44 bæjum og borgum? Menn hafa verið frekar fámæltir um það á Íslandi, en Fornleifur gefur sínar ákveðnu skoðanir á því í dag.
Heimsækið Fornleif, ef þið hafið ekki þegar gert það.
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 10:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.9.2012 | 07:34
Stór-Evrópa sýnir klærnar
Evrópuþingið hefur með 677 atkvæðum samþykkt að beita Íslendinga og Færeyinga viðskiptaþvingunum vegna Makríldeilunnar. Aðeins 11 voru á móti og 7 sátu hjá á þessu háa þingi. 97% þingmanna vilja kúga Íslendinga og Færeyinga, vegna þess að makríllinn tók upp á því að flýja ESB höfin.
ESB hefur sýnt sitt rétta andlit. Þessi gjaldþrota risi, sem er að fara úr böndunum, þjösnast í dauðateygjunum á smáþjóðum.
Furðulegt er að sjá að sumir meðlimið ríkisstjórnar Íslands ætli þjóðinni enn þau örlög að verða þrælaþjóð í þessu apparati 4. Ríkisins. Fólk sem ætlar sér slíkt er ekkert annað en landráðafólk og vesalingar. Stinga ætti nokkrum sprellandi makrílum upp í görnina á þeim og senda þá með hraðpósti til Brussell og sjá hvernig þeir meika það án þess að nota íslensku þjóðina sem skeinupappír. Til vara væri hægt að kjöldraga þessa marhnúta til ósa Rínar, þar sem þeir geta farið í stórfiskaleik hjá Evrópusambandinu.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 07:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
10.9.2012 | 09:50
Það er eitthvað mikið að í Eistlandi
Eistneska dagblaðið Eesti Ekspress hefur nýlega birt þessa mynd á baksíðugrein "á léttum nótum". Textinn hljóðar svo í íslenskri þýðingu. Einn, tveir, þrír: Megrunartöflur Dr. Mengelses gera kraftaverk fyrir þig. Það voru engar fitubollur í Buchenwald.
Að sögn blaðsins eru þetta viðbrögð ritstjóra blaðsins við því að gasfyrirtækið Gas Term Eesti varð að fjarlæga auglýsingu fyrir gas sem sýndi innganginn að dauðabúðunum í Auschwitz.
En hverju er hægt að búast í landi sem hyllir fyrrverandi SS-menn sem þjóðhetjur, og þar sem stjórnvöld komu í veg fyrir að stríðsglæpamenn eins og Evald Mikson og Harri Männil yrðu sóttir til saka? Já, í landi sem á sér íslenska þjóðhetju, Jón Baldvin Hannibalsson, sem fjálgur líkir Ísraelsríki við Þýskaland nasismans, þegar hann var ekki að stúdera lifnaðarhætti þeirra kvenna sem kenndar eru við port. Það er vissulega líka mikið að á Íslandi.
Simon Wiesenthal Center hefur þegar mótmælt þessari sjúku blaðmennsku Eesti Ekspress.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Bækur
Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs
-
Nýtt blogg um fornleifafræði
FORNLEIFUR -
Þrælasalar í Norðurhöfum
Grein í Lesbók Mbl. 1999 -
: Ritaskrá 1972-2013 -
Fyrri færsla
Jakki Kiljans Laxness -
Bein Páls Biskups
Kveðskapur -
: Flóttamaðurinn Alfred Kempner -
Pepsi var á Ströndum
Gosdrykkjasaga -
Mótmælum Durban II
Meira -
Ved Helvedes Port
Grein mín í SKALK. Nr.4,1994. -
: Gyðingar á Grænlandi
Fyrri færsla og tenging við grein eftir mig á dönsku um gyðinga á Grænlandi -
Flogið hátt
Grein mín um fyrsta flug flugbels á Íslandi -
Fyrri færsla
Líkþráir Íslendingar -
: Lesið hér (ISBN: 978-965-218-066-7)
Behind the Humanitarian Mask; The Nordic Countries, Israel and the Jews. Edited by Manfred Gerstenfeld. -
Fyrri færsla
Vinir útlendinganna -
Fyrri færsla
Nakinn sannleikur -
Ungr var ek forðum
Færsla um óeirðir og læti í æsku minni -
Fyrri færsla
Þegar Gúttó varð samkunduhús gyðinga -
Fyrri færsla
Vive l'(Gr)islande -
Fyrri Færsla
Nifalt húrra -
Íslenskar frúr í Andvörpum
Um ferðir útrásar-Íslendinga á 16. öld. Lesbók Morgunblaðsins 28.águst 1999. -
Fyrri færsla
Berlínarboogie Laxness -
Fyrri færsla
Pabbi Þórs var myrtur í Auschwitz -
Falskir Íslendingar
Grein um þjóðarstolt -
En dansk krigsforbryder
Grein í Weekendavisen um versta stríðsglæpa- mann Dana, sem dönsk yfirvöld vildu helst gleyma. -
Anti-Semitism in Iceland. Is that possible? -
Iceland, the Jews, and Anti-Semitism, 1625-2004
Grein á ensku um gyðinga á Íslandi -
Ich weiss, was ich zu tun habe
Grein mín um Georg F. Duckwitz, nasistann sem á að hafa verið potturinn og pannan við björgun gyðinga í Danmörku. Í greininni sem birtist í tímaritinu Rambam 15:2006 er gerð grein fyrir fjölmörgu sem danskir sagnfræðingar hafa gleymt að rannsaka. Hlutverk Duckwitz verður nú að endurskoða. -
Grein
The King and the Star í: Denmark and the Holocaust (2003) (ISBN: ISBN 87-989305-1-6) -
: Rescue, Expulsion, and Collaboration: Denmark's Difficulties with its World War II Past
Jewish Political Studies Review 18:3-4 (Fall 2006; Tímarit sem ég hef skrifað töluvert í -
: 20 Begivenheder der skabte Danmark (ISBN: 87-02-0516-7)
Ég er meðhöfundur að einum af köflum bókarinnar. -
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson: Medaljens Bagside - Jødiske flygtningeskæbner i Danmark 1933-1945 (ISBN: 87-91393-60-4 ) Forlaget Vandkunsten 2005. Bók mín um meðferð danskra yfirvalda á flóttafólki á 4. og 5. áratugi 20. aldar.
Meira
Nýjustu færslur
- Á mér stendur ..... Bjarni Ben
- Minnislaus síðan í síðustu ESB-kosningu
- Gamlir dónar sem fokka sér - Meet the Fockers II
- Icelandic Police Bared
- Niðurstaðan: KiSS or Bæjarins beztu
- Zelenskij fór í ranga flugvél - verður í Færeyjum næstu dagana
- Sjúklega svæsinn gyðingahatari er vinsæll á Moggablogginu
- Valdemar á svölunum er látinn
- Svæsnir fordómar eru ekki hluti af málfrelsi og tjáningu
- Ástráður eins og lús á feldi
- Utanríkisráðherra eyðir um efni fram í útlöndum
- Ódýrasta Laxness-bókin er enn til
- Geimöldin hafin á Íslandi
- Mannvinurinn Johnny Gun
- Jón hinn óboðlegi
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.12.): 1
- Sl. sólarhring: 17
- Sl. viku: 61
- Frá upphafi: 1352567
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 43
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Júlí 2024
- Apríl 2024
- Febrúar 2024
- Desember 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Ágúst 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Júlí 2021
- Maí 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- Ágúst 2020
- Maí 2020
- Nóvember 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Júlí 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Janúar 2017
- Nóvember 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Nóvember 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007