Leita í fréttum mbl.is

Horfin frétt finnst aftur

  Ruv finnur frett

Fréttin, sem hvarf á vef RÚV í gćr og greint var frá í fćrslunni hér á undan, er nú komin í leitirnar og birtist aftur á ţessari slóđ: http://www.ruv.is/frett/thegar-gunnar-hitti-hitler í dag kl. 11.05, en ţví miđur án ljósmyndarinnar af Gunnari Gunnarssyni ađ koma af fundi međ Hitler. Svona leit fréttin út í gćr.

En viđ fréttina endurfundnu hefur nú veriđ sett ţessi athyglisverđa athugasemd: Vegna tćknilegra orsaka eyddist ţessi frétt út eftir ađ hún hafđi veriđ birt á vefnum.

Ég er enn sem komiđ er ekki búinn ađ fá neina skýringu á ţví sem nákvćmlega gerđist frá, en ég hafđi samband viđ nokkra yfirmenn RÚV vegna hvarfs fréttarinnar.

Forstöđumađur Gunnarsstofnunar á Skriđuklaustri gefur mér nú vonir um ţađ ađ ţessi áhrifaríka mynd af Gunnari verđi bráđlega sett á vef stofnunarinnar.


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hjördís Vilhjálmsdóttir

Hvar fékkstu ţessa mynd ?

Hjördís Vilhjálmsdóttir, 17.9.2012 kl. 17:04

2 identicon

Eru ţetta eitthvađ nýjar fréttir? Annars ţykir mér Jón Yngvi Jóhannesson taka ţetta vel fyrir í ćvisögu sinni um Gunnar. Ţessi fundur er ađ mér vitandi ekkert leyndarmál.

Einar Steinn Valgarđsson (IP-tala skráđ) 17.9.2012 kl. 18:42

3 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Sćl Hjördís,

m.a. í tímaritinu Der Norden 1941, sem er vist ekki til nema á betri heimilum á Íslandi. Hćgt er líka ađ kaupa myndina á safni í Bayern, ţ.e. eftirtöku eftir myndinni í sömu grein og ég hef sótt hana. En ég hef ekki fyrir siđ ađ borga ekki krónu fyrir myndir nasista hjá ţýskum yfirvöldum nútímans. Ţeir eiga engan upphafsrétt af glćpum feđranna.

Sćll Einar Steinn,

Vissulega var myndin áđur birt t.d. í Ţjóđviljanum, Skáldatíma og bók Jóns Yngva, í lélegri upplaust og líklega eftir myndklisjunni í Ţjóđviljanum sáluga. Heldur ekki ţá, ţótti RÚV ástćđa til ađ birta myndina af Gunnari á tröppunum hjá Hitler. 

Ég hef heldur hvergi sagt ađ ég sé ađ uppgötva hafragrautinn. Ţađ er hins vegar spurningin um hvernig mađur borđar hann eđa framreiđir. Jón Yngvi er ekki međ ţćr upplýsingar um tengsl Gunnars viđ nasista sem ég er međ í nýlegum bloggum mínum um máliđ á www.fornleifur.blog.is. Hann kemst ţví ađ ţeirri niđurstöđu, ađ Gunnar hafi alls ekki veriđ nasisti. Ţađ er mér og mörgum öđrum óskiljanleg niđurstađa. En kannski var Gunnar bara einfaldur?

En ég meina ţađ, heldur ţú Einar, ađ mađur sem hélt fyrirlestra fyrir SS, SD/Gestapo og nasískan lýđ í 44 borgum Ţýskalands og lauk förinni međ heimsókn hjá Foringjanum í Berlín hafi veriđ sunnudagaskólapredíkari úr afdal á Íslandi sem var ađ reyna ađ kristna Hitler?

Persónulega tel ég, ađ Hitler hafi séđ íslenskan Quisling í Gunnari, en sem betur fer fengum viđ Breta í heimsókn áđur en ţađ gat gerst. En margir Íslendingar hefđu nú frekar viljađ fá stúlkurnar sínar í ástand međ Günther og Hellmuth frekar en George og Harry. Ţađ hef ég fyrir satt!

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 18.9.2012 kl. 07:01

4 Smámynd: Ólafur Björn Ólafsson

Sćll Vilhjálmur.

Ţađ er gott ađ fréttin er komun upp aftur. Ţađ er ţó svo đ ég er undrandi á ţví ađ miđađ viđ allar ţćr upplýsingar sem fyrir lyggja um Gunnar ađ ekki sé hćgt ađ sjá hvers kyns er/var međ hann.

Ţađ tel ég harla ólíklegt ađ mađurinn hafi veriđ međ ađrar pólitískar skođanir fyrst hann hélt alla ţessa fyrirlestra, upplestra og hvađ skal nú kalla ţađ fyrir ţessa SS-liđa alla. Svo til ađ kóróna allt ţá gerđi hann ţađ sem ađra nasista á Íslandi gat ađeins dreymt um en ţađ var ađ heimsćkja ađal nasistann Hitler.

Enga hef ég trú á ađ mađurinn hafi reynt ađ koma vitinu fyrir ţessa nasista sem hann hélt fyrirlestrana hjá.

Ţetta er ţó sagt međ ţeim fyrirvara ţó ađ ekki komi upplýsingar sem sannanlega reynast á annan veg en minn grunur er.

Međ kveđju

Kaldi

Ólafur Björn Ólafsson, 18.9.2012 kl. 09:59

5 identicon

Ég er ansi hrćddur um ađ í ţessum málum hafi Gunnar veriđ full einfaldur, já, og haldinn glýju. Ég er alveg sammála ţví ađ honum hafi orđiđ hált á svellinu og vel ţađ, en hef ekki séđ gögn sem stađfesta ađ hann hafi beinlínis veriđ nasisti. Ég hef t.d. ekki orđiđ var viđ neina kynţáttaandúđ hjá honum en hann hefur á sínum tíma séđ Hitler fyrir annađ en Hitler reyndist vera og lokađ augunum fyrir mörgu sem vissulega hefđi mátt liggja ljóst fyrir á ţeim tíma. Ţađ gerđu allt of margir. Ekki ósvipađ Laxness & co. tel ég líklegast ađ Gunnar hafi 'kosiđ ađ blekkjast'. Menn eiga ţađ til ađ trúa ţví sem ţeir vilja trúa, og ég er hrćddur um ađ svo hafi veriđ raunin međ Gunnar.

Hvađa upplýsingar hefurđu undir höndum sem Jón Yngvi og fleiri hafa ekki gert skil?

Einar Steinn Valgarđsson (IP-tala skráđ) 19.9.2012 kl. 22:01

6 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Samtök ţau sem Gunnar var í, Nordische Gesellschaft, ól einnig á svćsnu kynţáttahatri og bauđ upp á fyrirlestra um slíkt fyrir félagsmenn sína. Forsetar félagsins voru einir helstu arkitektar gyđingahatursins í Ţýskalandi. Er erfitt ađ skilja ţetta? GUNNAR UMGEKKST BÖĐLA NASISTA!

Nćrri ţví allt ţađ sem ég er međ hér á blogginu um Gunnar, sem og á blogginu Fornleifi, t.d. fleiri myndir af honum í ham í Ţýskalandi áriđ 1941, er ekki ađ finna hjá Jóni Yngva, sem er ekkert annađ en sagnfrćđisnyrtir og heimildaklippir. Hann vill ekki hafa Gunnar sem nasista og hagar ţví sínum seglum eftir sínumvindum ţannig ađ útkoman verđur: Gunnar Gunnarsson var alls ekki nasisti - ţó svo ađ hann hafi veriđ í sama félagi og Heinrich Himmler, hitt Hitler međ böđlinum Hinrich Lohse.

EN ANDSKOTI GETA ÍSLENDINGAR NÚ ORĐIĐ SLĆMIR FYRR EN ŢEIR VERĐA TALDIR TIL GLĆPAGENGJA.

En auđvitađ eru Íslendingar betri, saklausari og hreinni en allir ađrir; Ekki er ađ spyrja ađ ţví...

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 24.9.2012 kl. 15:47

7 identicon

Ég sé enn ekki hvađa gögn ţú hefur í höndum sem Jón Yngvi hefur ekki, sé einfaldlega ađ ţú dregur ađra ályktun en hann. Jón Yngvi hefur hvergi boriđ blak af Nordische Gesellschaft eđa forystumönnum ţess eftir ađ ţađ lenti undir nasistum en ţađ var stofnađ 1921, löngu áđur en nasistar komust til valda.

En getur ţú bent mér á einhver dćmi kynţáttaandúđar hjá Gunnari, Vilhjálmur?

Einar Steinn Valgarđsson (IP-tala skráđ) 24.9.2012 kl. 20:36

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bćkur

Kynning á nokkrum fćrslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband