Leita í fréttum mbl.is

Spurning varđandi Ruth Rubin

 
Ruth Rubin

Nýlega, ţegar fréttir bárust af hryllilegu morđi á 10 ára barni í Svíţjóđ, urđu menn forviđa og harmi slegnir. Allir, og sérstaklega allir foreldrar, fyllast harmi og hryllingi viđ slíkar fréttir frá nágrannalandi okkar, ţar sem stór hluti ţjóđarinnar hefur aliđ manninn og hlotiđ menntun sína og gildismat. Ekki vantađi heldur dóm íslenskra bloggverja yfir manninum sem framdi ódćđiđ. Hann verđur örugglega dćmdur eftir ţeim lögum sem gilda í Svíţjóđ.

Annađ var upp á teningnum fyrir fyrir u.ţ.b. 16 árum, ţegar fariđ var fram á rannsókn á máli meints stríđsglćpamanns á Íslandi sem hafđi gerst íslenskur ríkisborgari eftir ađ hann strandađi hér á leiđ til Venezuela. Gömlum vitnisburđi og skýrslum var til ađ byrja međ hafnađ sem KGB áróđri, t.d. af Morgunblađinu, sem dćldi út rógi um Simon Wiesenthal stofnunina. Lögfróđir menn, sem leitađ var til, töluđu gegn betri vitund og rannsókn málsins var dregin á langinn. Mađurinn, Eđvald Hinriksson, var t.d. ásakađur um ađild ađ morđi á ungri stúlku, Ruth Rubin, sem var í haldi lögreglusveitar ţess sem hann var međlimur í.  Evald Mikson hét hann, ţegar sveit sú sem hann var í hóf gyđingamorđ. Sveitin byrjađi á morđunum áđur en Ţjóđverjar voru almennilega búnir ađ ná yfirráđum í Eistlandi.

Mikson dó drottni sínum rétt eftir ađ Íslensk yfirvöld tóku viđ sér og ákváđu ađ líta á ásakanirnar á hendur honum.  Ţrátt fyrir ađ honum hafi veriđ hlíft viđ rannsóknum og réttarhöldum, skilgreina eistnesk stjórnvöld hann nú sem stríđsglćpamann.

Forseti vor og utanríkisráđherra höfđu, ţegar mál hins meinta stríđsglćpamanns var í gangi, ýmislegt til málanna ađ leggja.  Hér  og hér getiđ ţiđ lesiđ hvernig máliđ leit út frá ţeirra sjónarhorni. Leiđtogar Hisbollah áttu alla samúđ Ólafs, eins og ţađ kćmi eitthvađ máli eistnesks stríđsglćpamanns viđ, og Ingibjörg víđförla var á ţví ađ gyđingar ćttu engan einkarétt á helförinni eđa ţjáningu. Mun hún endurtaka ţađ í Öryggisráđi SŢ?

Algjör ţögn virđist nú vera um mál stríđsglćpamannsins á Íslandi. Blađamađur í fremstu röđ, "sem ţorđi međan ađrir ţögđu" var nćstum ţví búinn ađ missa vinnunna vegna ţess ađ hann skrifađi um máliđ. Hann ćtlađi ađ skrifa bók um efniđ, en stendur nú í stađinn í ţví ađ skýra gjörđir yfirvalda í Kópavogi. Ég bíđ eftir bókinni.

Af hverju fyllist íslenska ţjóđin af hryllingi yfir barnamorđi í Svíţjóđ, ţegar stór hluti hennar vill verja mann sem ásakađur var fyrir ađ hafa nauđgađ stúlku og myrt?

Ég geri mér grein fyrir ţví ađ fjarlćgđin í tíma og rúmi getur gert menn miskunnsamari gagnvart vođaverkum og sekt? Ţađ, ađ hinn meinti stríđsglćpamađur var orđinn Íslendingur og átti syni sem voru duglegir íţróttamenn á heimsmćlikvarđa, hafđi líka mikiđ ađ segja í sambandi viđ álit Íslendinga. Hann var "einn af okkur". Svo ţekkist viđkvćđiđ: "Ađrir skulu ekki koma hér og segja okkur fyrir verkum". Ţađ heyrđist nýlega ţegar Íslendingur fékk sjö ár í steininum í Fćreyjum fyrir ađild ađ kókaínsmygli. Hann hefđi, samkvćmt lögfróđum Íslendingum eins og Brynjari Níelssyni og Sigurđi Líndal, ađeins fengiđ innan viđ ár á Íslandi. 

Ţađ lćđist ađ mér sá grunur ađ áhugi Íslendinga, og margra annarra, á fórnarlömbum og órétti stýrist t.d. af ţví hvađa ţjóđflokkur hefur orđiđ fyrir órétti. Margir Íslendingar gráta frekar sćnska stúlku en gyđingastúlku í Tallinn. Getur ţetta veriđ rétt athugađ hjá mér?

 

1929_Rubin_family
Ruth Rubin og fjölskylda hennar. Mađurinn lengst til hćgri er Haim Arlosoroff, síonistaleiđtoginn sem myrtur var á hrottalegan hátt í Tel Aviv áriđ 1933. Kona hans, Sima, var föđursystir Ruth Rubin. Arlosoroff hafđi á 2. áratug aldarinnar stundađ nám í Berlín, ţar sem hann var unnusti Mögdu Behrend, sem síđar fékk eftirnafniđ Göbbels - já mađurinn hennar var einmitt Göbbels.

 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Predikarinn  -  Cacoethes scribendi

Sćll kćri dr. Vilhjálmur Örn.  Ég tek undir ţennan pistil ţinn í heild sinni. Ţađ var ömurlegt ađ mál Evalds Mikson skyldi ekki ná ađ fara í rannsókn á sínum tíma. Hafi hann haft rétt fyrir sér um sakleysi sitt ţá hefđi ţađ veriđ leitt í ljós viđ rannsókn. hitt er annađ ađ gögn sem lögđ voru fram bentu nú eindregiđ til sektar Evalds í ýmsum vođaverkum studd eftirlifandi sjónarvottum ađ auki.

Já viđ tókum sama pólinn í hćđina í máli Arons Pálma. Vorum stórhneyksluđ á grimmu réttarkerfi Texas ađ fangelsa hann fyrir barnaníđ og ekki hvađ síst í ţetta langan tíma. Viđ bara urđum ađ flytja hann heim í Paradísina okkar. Hér heima er síđan meint nauđgun á stúlku á salerni hótels. Ţegar í ljós kemur ađ meintur nauđgari er ekki íslenskur ţá er blóđţorstinn kominn upp í okkur og dómstóll götunnar heimtar nánast réttarmorđ á meintum geranda, löngu áđur en máliđ var rannsakađ og dćmt. Ţessi var ekki svo lánsamur ađ sćkja um íslenskan ríkisborgararétt og ţjálfa körfuboltamenn og geta af sér góđa íţróttamenn.

Predikarinn - Cacoethes scribendi , 26.4.2008 kl. 12:24

2 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Sćll Einar og Predikari, viđ skulum muna ađ synir Eđvalds koma ţessu máli ekkert viđ. Ég trúi ekki á erfđasyndina.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 26.4.2008 kl. 14:12

3 Smámynd: Snorri Bergz

Merkilegt ţetta međ Arlosoroff og tilvonandi frú Göbbels. En Villi,  hvađ eiga Chaim Arlosoroff og Ísland sameiginlegt?

Snorri Bergz, 26.4.2008 kl. 15:16

4 identicon

Takk fyrir ţennan pistil, Vilhjálmur Örn. Ţú ert í fararbroddi ţeirra fáu Íslendinga, sem hafa samúđ međ gyđingum og Ísrael og láta ekki leiđast af "inherent" Antisemitismus".

 Kveđja, Haukur

Haukur Kristinson (IP-tala skráđ) 26.4.2008 kl. 15:59

5 identicon

mér finnst ţetta algjörlega rétt athugađ hjá ţér.

Rafn Haraldur Sigurđsson (IP-tala skráđ) 26.4.2008 kl. 16:52

6 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Snorri Bergsson, hvađ á Ísland sameiginlegt med Chaim Arlosorof? Frćddu okkur.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 26.4.2008 kl. 17:42

7 Smámynd: Snorri Bergz

Í Jerúsalem eru götur nefndar eftir bćđi Íslandi (Rechov Iceland) og Chaim "Arlazorov" (mismunandi spelling".

Í húsi nr. 21 viđ Arlazorov götu bjó Golda Meir. Í nćstu götu er embćttisbústađur forsćtisráđherra, hinu megin rétt hjá er embćttisbústađur forsetans.

Richard Nixon kom víst í kaffi til frú Meir í litla eldhúsiđ á 2. hćđ viđ 21 Arlazorov götu. Fallegasta íbúđ annars.

Ég ţarf varla ađ kasta fram ţeirri spurningu, hvađa Íslendingur hefur búiđ á 2. hćđ í Arlazorov í gömlu íbúđinni hennar Goldu?

Snorri Bergz, 26.4.2008 kl. 19:26

8 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Mig grunar ađ ţađ hafi veriđ mađur nokkur sem ţekktur er sem Sneott, (formerly known as Snorri). Golda hefur svo setiđ fyrir handan og veriđ hin ánćgasta međ ađ hafa yngissvein frá Íslandi í jarđnesku híbýli sínu. Ţú hefđir örugglega líka fengiđ kryddköku međ smjéri hefđir ţú mćtt í eldhúsiđ međ Nixon.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 26.4.2008 kl. 20:27

9 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Ég ţakka allar kveđjurnar og góđ orđ. Lifiđ heilir (heilar).

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 26.4.2008 kl. 20:29

10 identicon

Komdu sćll, Vilhjálmur Örn, og gleđilegt sumar. Raunar sagđi ég upp vinnu minni á Stöđ 2 á sínum tíma vegna ţess ađ ţáverandi fréttastjóri vildi ađ ég steinhćtti öllum fréttaflutningi um Mikson-máliđ. Hann hafđi áđur látiđ klippa úr fréttum sem ég sendi ađ utan og „kćlt“ ađrar ofan í skúffu ţar til ađrir fjölmiđlar hér á landi urđu á undan ađ flytja ţćr. - Ţađ var forvitnilegt ađ sjá ljósmynd af Ruth litlu. Ég gleymi ekki ţegar ég skođađi frumgögnin um handtöku hennar og yfirheyrslu í ţjóđskjalasafninu í Tallinn og barnslega undirskrift hennar á skjölunum sem áttu ađ gefa glćpsamlegu athćfi einhvers konar lögformlegan blć. Hún var auđvitađ drepin. Mig minnir ađ hún hafi veriđ 14 ára.

Ţór Jónsson (IP-tala skráđ) 26.4.2008 kl. 21:26

11 Smámynd: Birgirsm

Sćll Vilhjálmur

Ósköp er ađ lesa ţetta, ertu ađ reyna ađ segja, eđa ýja ađ ţví ađ Gyđingahatur sé landlćgt á Íslandi,  ţú segir eftirfarandi:

Ţađ lćđist ađ mér sá grunur ađ áhugi Íslendinga, og margra annarra, á fórnarlömbum og órétti stýrist t.d. af ţví hvađa ţjóđflokkur hefur orđiđ fyrir órétti. Margir Íslendingar gráta frekar sćnska stúlku en gyđingastúlku í Tallinn. Getur ţetta veriđ rétt athugađ hjá mér?

Hvađ er ađ hrjá ţig ađ vera ađ bera saman ţessi tvö mál ,  sem eiga ekkert sameiginlegt nema ţađ eitt ađ vera "hrćđilegur verknađur" hvort fyrir sig. 

Mér finnst mjög nauđsynlegt ađ vitneskjan um helförina lifi um ókommna tíđ, komandi kynslóđum til varnađar en vafasamt finnst mér ţegar menn grafa sífellt ofaní svörđinn ţannig ađ sár sem hafa eđa eru viđ ţađ ađ gróa,  opnast ađ nýju.

Ţađ er kannski tilgangurinn ađ ekkert, og ţá meina ég ekkert glatist, kulni út eđa gleymist.   

Birgirsm, 26.4.2008 kl. 21:59

12 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Birgirsm, ég var bara ađ spyrja spurningar. Tvćr stúlkur voru myrtar á mismunandi tíma af mismunandi mönnum. Ég geri mér ljóst ađ ţessir tveir menn  (eđa fleiri menn viđ morđiđ á Ruth Rubin) eru mismunandi persónur og stúlkurnar líka  - og viđbrögđ sömu ţjóđarinnar, ţ.e. Íslendinga, voru líka mismunandi viđ fréttum af ţessum morđum. Reyndar var mjög erfitt ađ segja frá sögu Ruth Rubin fyrir 16 árum.

Birgirsm, sjáđu hvađ Ţór Jónsson skrifar hér ađ ofan. Mér sýnist ađ fram hafi fariđ riskođun í máli Miksons.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 27.4.2008 kl. 05:28

13 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Sćll Ţór og velkominn í heimsókn, ţađ er gott ađ heyra í ţér og líka gott ađ ţetta sem ţú skrifar hér komi hálfopinberlega fram.

Ţetta er rétt međ aldurinn á Ruth, Ruth fćddist 1927 og myndin hér ađ ofan er tekin um 1930. Ég man ađ ţú greindir mér frá erfiđleikum ţínum á Stöđ 2. Máliđ var líka fryst á öđrum fjölmiđlum. Eistneskur sagnfrćđingur, sem ég talađi viđ fyrir fáeinum árum, tjáđi mér ađ frysting íslenskra yfirvalda hefđi átt sér stađ í nánu sambandi viđ ţau eistnesku, ţó fyrst og fremst ađ frumkvćđi íslenska dómsmálráđuneytisins.

Ég vona ađ ţú getir skrifađ bókina um Mikson máliđ, og ađ Íslendingar leggi hana ekki á ís, vilji gleyma og líta fram á veginn í stađ ţess ađ staldra viđ og skođa mistök sín og annarra.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 27.4.2008 kl. 05:49

14 Smámynd: Sigurđur Ţór Guđjónsson

Flott fćrsla. Auđvitađ var lykilatriđiđ ađ hann var orđinn "einn af okkur". Ţađ er alltaf ađalatriđiđ hjá Íslendingum ekki samúđ međ fórnarlömbum. Og Mogginn djöflađist alveg gegn fulltrúa Wiesenthalstofnunarinnar. Honum var skítsama um einhverja stúlku sem dó fyrir löngu síđan. Af ţví ađ hún var útlensk og íslensku ríkisborgari var sagđur hafa myrt hana. Ţađ mátti ekki einu sinni rannsaka máliđ á Íslandi. 

Sigurđur Ţór Guđjónsson, 30.4.2008 kl. 21:11

15 identicon

Ég man vel eftir ţessu máli og fannst ţađ óhugnanlegt ađ fólk skildi hafa skilirđislausa samúđ međ Mikson. Ótrúlegasta fólk fannst ţađ ómannúđlegt af Wisenthal stofnuninni ađ veriđ vćri ađ garfa í svona gömlu máli gegn öldruđum manne sem hafđi veriđ fyrirmyndar borgari og eiginlega ómissandi fyrir íţróttahreifinguna. Ég fékk ćluna uppí háls ţegar gamalmenniđ grét í sjónvarpinu og fékk restina af ţjóđinni á sitt band. Ég held reyndar ađ ef svona mál kćmi upp í dag yrđu viđbrögđin töluvert ólík, ţó gyđingahatur virđist vera landlćgt einhverra hluta vegna. 

Björn (IP-tala skráđ) 30.4.2008 kl. 22:18

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bćkur

Kynning á nokkrum fćrslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband