Leita í fréttum mbl.is

Hryðjuverkamaðurinn í utanríkisráðuneytinu

Papa Gazaroni

Össur Skarphéðinsson Gazafari styður fyrir hönd allra Íslendinga stofnun ríkis palestínuaraba. Þessu hefur hann lengi lýst yfir. Þar með lýsir hann náttúrulega yfir útrýmingu Ísraelsríkis. Svo vill nefnilega til, að Hamas-samtökin, sem stjórna Gaza-Palestínu með harðri hendi, hefur lýst því yfir að þeir vilji ekki stofna Palestínuríki nema að stefnt verði að að fullri yfirtöku þess lands, sem nú er Ísraelsríki.

Margir Íslendingar eru vitaskuld ósammála Össuri og telja hann ekki hafa umboð til að verða þjóðarhetja hjá Hamas. En hann vill greinilega gera sjálfan sig og Íslendinga að fíflum, enn eina ferðina.

Össur Skarphéðinsson hinn Gazalegi og aðrir stuðningsmenn hryðjuverka á Íslandi hafa í langan tíma sagt okkur frá hræðilegu ástandi á Gaza. Utanríkisráðherra Íslands tekur þannig kaldur þátt í lygaherferðum öfgamanna. Utanríkisráðherrann, sem vill ólmur í ESB, er yfirlýstur stuðningsmaður hryðjuverkasamtaka sem eru bannlýst og fordæmd í ESB.

Össur styður ríki sem hefur útrýmingu Ísraels og gyðinga að markmiði. Menn sem styðja slík ríki eru gyðingahatarar. Össur Skarphéðinsson er að mínu mati dæmigerður gyðingahatari. Það má vera ljóst - annars styður maður ekki ríkismyndun á Gaza, sem stjórnað er af hryðjuverkamönnum sem útrúma vilja Þjóðríki Gyðinga.

Ég býð ykkur hér smá auglýsingabæklinga fyrir "fangelsið" Gaza, fangelsi Hamas, sem Ísland ætlar að styðja sem ríki (mínus Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson). Þetta er öllu líkara gósenlandi hryðjuverkamannsins:

OG EF ÞIÐ ERUÐ AÐ LEITA AÐ VEITINGASTAÐ, NÆST ÞEGAR ÞIÐ ERUÐ Á GAZA, GET ÉG MÆLT MEÐ ÞESSUM. MINNIR HANN EKKI Á STAÐINA Í WARSZAWA GETTÓINU, SEM ÖSSUR ER ALLTAF AÐ LÍKJA VIÐ GAZA
HÉR BÚA SVEINN RÚNAR HAUKSSON OG ÖSSUR ÞEGAR ÞEIR ERU Á GAZA
ÉG ER SJÁLFUR MEIRA FYRIR ÞENNAN STAÐ:

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ertu gyðingur? Fáir aðrir létu sér detta í hug að skrifa þessa færslu. Er raunar sammála því að Össur er skrítin skrúfa, en ég held að þetta sé í eina skiptið sem ég er sammála honum.

Dagga (IP-tala skráð) 19.9.2011 kl. 08:29

2 identicon

Þú hlýtur að álíta að lesendur þínir séu fífl ef þú heldur að þeir gleymi myndum af sundurtættum barnslíkum bara við það að sjá hugguleg markaðstorg og flott hótel.

Það eru ekki Palestínumenn sem hernámu Gyðinga, lögðu undir sig jarðir þeirra, reistu aðskilnaðarmúr (sem hefur verið dæmdur ólöglegur af mannréttindadómstólum) hefta ferðafrelsi þeirra og halda þeim í fátækt (þótt þú getir alveg sýnt myndir af einstaka lúxusheimili er stór hluti þjóðarinnar að einhverju leyti á framfæri hjálparstofnana) heldur öfugt. Gyðingar njóta ferðafrelsis, þeim er heimilt að yfirgefa landið hvenær sem er en Palestínumenn eru hinsvegar fangar í eigin landi.

Það er frábært að loksins skuli vera kominn utanríkisráðherra sem hefur hugrekki til þess að styðja málstað Palestínumanna. Vonandi bera Íslendingar líka gæfu til þess að þrýsta á Bandaríkjamenn um að láta af fjárhagsstuðningi sínum við Ísrael og skikka þessa glæponaríkisstjórn til að rífa aðskilnaðarmúrinn. Þá verður nú auðvelt fyrir Palestínumenn að endurheimta landið því Ísraelsmenn eru bara þurfalingar sem hafa enga burði til að halda hernáminu áfram á eigin kostnað. Ég vona samt að niðurskurðurinn verði í nokkrum áföngum því ef Bandaríkin skera skyndilega á fjárausturinn í Ísrael (sem gæti vel gerst því Bandaríkin eru svo gott sem gjaldþrota) þá verður Ísraelsmönnum einfaldlega útrýmt. Svo mikið hatur hafa þeir bakað sér með endalausum yfirgangi sínum.

Það væri sterkur leikur hjá landræningjum að flýja land strax, fara aftur heim til landanna þar sem þeir fæddust og ólust upp og þar sem forfeður þeirra hafa búið í marga ættliði. Bandaríkjanna og Evrópulanda þar sem þeir nutu frelsis sem Palestínumenn hafa aldrei kynnst og höfðu enga ástæðu til að yfirgefa nema þá að leggja sitt af mörkum til stríðsglæpastefnu Ísraelsmanna. Já þeir ættu bara að drífa sig sem fyrst á meðan svo margir eru ennþá blindir á þá glæpi sem þeir hafa tekið þátt í með því að flytja inn í landræningjabyggðirnar. Miðað við flóttamannastefnu flestra vestrænna ríkja má nefnilega gera ráð fyrir að brotið verði gegn mannréttindum Gyðinga, ekkert síður en þeirra Palestínuaraba sem í dag gista flóttamannabúðir og eru jafnvel án ríkisfangs. 

Ég spái því að innan 10 ára munir þú leita á náðir No borders og biðja um hjálp við að bjarga lífi "ísraelsks" flóttamanns sem Íslendingar hafa neitað um aðstoð. Landránið er illa séð meðal flestra anarkista svo það er ekki víst að landræningjar lendi í forgangshópi en þú gætir byrjað á því strax að vinna þér inn velvild með því að láta af þessum áróðri gagnvart Palestínumönnum og taka fremur upp stuðning við frelsi og mannréttindi allra manna, hvar sem er í heiminum. 

Eva (IP-tala skráð) 19.9.2011 kl. 08:34

3 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Ég þekki líka myndir af börnum sem öfgamenn palestínuarabar hafa myrt í Ísrael. Afkomendur manns sem vann með bróður ömmu minnar í Hollandi voru mörg myrt á skyndibitastað í Ísrael, með nagla- og járnbrotasprengju.

Ég þekki líka um myndir frá gettóinu í Warszawa, (eftir að hafa rannsakað sögu þess í fjölda ára og mun brátt gefa út bók um efnið í Danmörku), sem stuðningsmenn öfga í Miðausturlöndum eru alltaf að líkja við Gaza. Þær eru ekkert líkar því sem við sjáum hér að ofan frá sælulífi hryðjuverkastjórnarinnar á Gaza

Ég er glaður yfir því að ég eyðilagði tandurhreinan heilaþvottinn hjá Evu Norn, og ef "Dagga" styður Össur, eftir að hún sér sannleikann, þá er Dagga líklegast ólm eftir því að komast í frí á Plaza Gaza.

Það er ekki til neinn aðskilnaðarmúr. Múrinn/girðingin er til að varna því að Palestínumenn verði sér og öðrum til skaða í Ísrael. Hertekið er land ekki, ef það er tekið eftir að óvinurinn hefur ráðist á mann að fyrra bragði. Reyndu að þekkja söguna aðeins betur Eva, og hætta þessu bölvaða kukli.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 19.9.2011 kl. 09:18

4 identicon

Æi Villi er svo mikið fórnarlamb að hann sér ekki raunveruleg fórnarlömb.

Svo eru hér krissar að taka undir með honum í því að traðka á öðrum.

Þetta allt saman er mjög gott dæmi um eyðileggingarmátt galdrabóka AKA trúarbragða.

DoctorE (IP-tala skráð) 19.9.2011 kl. 10:12

5 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

  Frá unga aldri hef ég haft samúð með gyðingum,þeir sem ofsækja þá beita áróðursvél sinni og hefur verið ágengt. Ég horfi ekki á limlesta manneskju hverra þjóðar sem hún er án samúðar,en veit að öfgaöfl bera þar ábyrgð. Það eru svo margir fróðir um söguna,minnir þó að ég læsi nýlega um,að Palestínu hafi staðið til boða að stofna ríki,um leið og Israel.  Friður þarna yrði kraftaverk.

Helga Kristjánsdóttir, 19.9.2011 kl. 13:19

6 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Sæl Helga, kannski er kraftaverk það sem þarf. En viðræður og sanngirni eru mikilvægara og því miður er ljóst að Palestínuarabar sækjast ekki eftir því.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 19.9.2011 kl. 13:33

7 Smámynd: Vilhjálmur Stefánsson

það er menn eins og Össur sem vilja Islam vaða uppi og þeir hafa það hugfast að útríma Kristnum mönnum,eru menn búnir að gleima 11 september 2001?manslíf í augum Araba er ekki fluguvirði og múslimar hika ekki við að drepa og limlesta fólk.það verður aldrei friður meðal Palestínumanna,ef litið er á sögu þeirra hafa þeir aldrei átt tilkall í það Land sem þeir búa nú.Ef þeim er hjálpað um eithvað heimta þeir meir..

Vilhjálmur Stefánsson, 19.9.2011 kl. 14:46

8 identicon

Villi búinn að blokka IP tölu hjá mér svo ég geti ekki gert athugasemdir; Aðeins þeir sem hafa engan málstað ritskoða.

Og takið svo eftir honum Vilhjálmi, hann undirstrikar allt það sem ég sagði um galdrabókastríðið og heimskuna í kringum þessi fáránlegu trúarbrögð.

P.S. Villi ég á nóg af IP tölum, nenni samt ekki að setja fleiri athugasemdir hér á þessu vesæla bloggi, ritskoðun er vesældómur.

DoctorE (IP-tala skráð) 19.9.2011 kl. 18:13

9 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

"DoctorE" Til hamingju með allar IP-tölurnar, en fáðu þér frekar nafn á þjóðskrá.

Ég er feginn yfir því að þú hættir að setja athugasemdir þínar á mitt vesæla blogg. En nafnleysingar gera ekki athugasemdir, þeir eru eins og karlinn sem stynur í símann hjá konum. Nafnleysingjar á bloggum eru perrar, sem enginn nennir að yrða á.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 19.9.2011 kl. 20:06

10 identicon

Ég er þér hjartanlega sammála með Össur Gazalega.

Þetta SF. lið á Íslandi er útúrskrúfað, og verra en það.Össur getur hvorki sagt eitt né annað í nafni þjóðarinnar, vegna þess að enginn treystir honum lengur.

Það er reyndar vandamál fyrir ísl. þjóðina að hafa hann í forsvari

Jóhanna (IP-tala skráð) 19.9.2011 kl. 21:45

11 Smámynd: Jón Valur Jensson

Ég sé, að Össur hefur lifað þarna í vellystingum praktuglega.

Af sumum "fréttum" mátti þó ráða, að Ísraelsmenn hefðu sprengt þarna allt í loft upp -- og að skortur væri á sementi til að steypa upp hús á ný. Annað sést nú á yfirlitsmyndum um hina glæsilegu Gaza-borg.

Lífsstandardinn þarna virðist a.m.k. hjá fjölda fólks vera á vestrænan mælikvarða. Samt fá þeir Hamas-menn trúlega margfalda þróunaraðstoð (miðað við höfðatölu) á við það, sem fátækar Afríkuþjóðir fá. Þú ert nú vís með að grafa það upp líka, dr. Vilhjálmur.

En það er allsendis fráleitt að líkja Gaza við Gyðingahverfið í Varsjá. Fólkinu í hinu síðarnefnda var smám saman og skipulega ÚTRÝMT -- sent í gripaflutningabílum í útrýmingarbúðir og "gasað" með þýzkri tækni. Ekki gerði það fólk árásir úr sínu ghettói á þýzka hermenn né Pólverja, enda hefði þá orðið ennþá sneggra um líf þess. Hamasmenn safna hins vegar að sér vopnum og eldflaugum til að skjóta á byggðir óbreyttra borgara í Ísrael, mörgum á dag!

Hvar er samlíkingin, Össur Gazalegi?

Jón Valur Jensson, 19.9.2011 kl. 22:19

12 Smámynd: Gestur Halldórsson

Ég get ekki sagt annað enn að umræðan um málefni palestínu og íslam er heldur viðkvæm þegar menn geta ekki tjáð sig um málefnin nema undir IP tölum, skrípamyndum og skáldanöfnum. Hver er ástæðan fyrir þessum áhuga Palestínu þar sem Hamas og Fatha berjast á banaspjótum gegn hvorri annarri enn eru kölluð frelsissamtök í arabaheiminum og víða þar sem þau berjast gegn noníslamistum, gyðingum, kristnum og öðrum trúlausum, enn aðrar hreyfingar á landsvæðum araba s.s. Polisario, Kúrdar og aðrar frelsis-hreyfingar eru hryðjuverkasamtök í augum þeirra og annarra þjóða.

Þetta er undirlægju hátturinn og hræsnin í okkur vesturlanda búum. Hamas (Íslamska andspyrnuhreyfingin) var stofnuð 1987 sem klofningshreyfing úr Bræðralagi Múslima og voru ekki stofnuð til frelsunar Palestínu heldur til eflingar íslamstrúar og til framfleyta boðum og dýrð Múhameðs.

Umburðalyndi okkar og annarra trúarbragða gagnvart íslam er orðið að undirlægjuhætti þar sem það er farið að hefta og hafa áhrif á lífsmót okkar, venjur, hefðir og tjáningu svo nefna megi eitthvað.

http://www.israelnationalnews.com/Blogs/Message.aspx/3292

http://video.google.com/videoplay?docid=-6041204945834291260

ps.

svona til gamans... ritvinnslupúkinn minn vill ekki leifa mér að rita palestína villu laust nema með stóru Pi.

Gestur Halldórsson, 19.9.2011 kl. 22:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bækur

Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband