Færsluflokkur: Mannréttindi
29.1.2011 | 17:47
Hollensk kona hengd í Íran
Ef til vill eru það hengingar sem "róttækir" Íslendingar sækja í, þegar þeir halda á vit menningarinnar í Íran. Jóhanna Kristjónsdóttir er ein af þeim sem miðlar menningu núverandi Íransríkis til Íslendinga og rekur ferðamiðlun fyrir fólk sem af einhverjum ástæðum, frekar sjúklegum, vill til Írans og annarra ríkja þar sem mannréttindi eru fótum troðin. Maður spyr sig, hvort kvenfyrirlitningin í Íran sé ekki nægileg til að það eineygða fólkið í fjölmenningardisneyworldinu, sem ferðast með Austurlanda-Jóhönnu haldi sig frekar heima við en akkúrat að vera að álpast þangað sem fólk er hengt eða grýtt fyrir hið minnsta andóf. En kvalarlosti gamalla komma þekkir víst engin landamæri.
Hollensk kona, hin 46 ára Zahra Bahrami, sem var fædd í Íran, var í gær hengd í Íran. Hún tók þátt í mótmælum í Íran fyrir rúmu ári og var fangelsuð. Svo var hún, eins og margir óvinir Íranskra stjórnvalda, ásökuð um að hafa verið bendluð við smygl á eiturlyfjum og er sögð hafa verið með kókaín í fórum sínum. Eins og þið vitið líklegast öll, er Íranstjórn sjálf stærsti útflytjandi á eiturlyfjum í heiminum.
Legg ég til að hóparnir hennar Jóhönnu Kristjónsdóttur heimsæki í staðinn eina landið í Miðausturlöndum sem ekki vanvirðir grundvallarmannréttindi. Já, Ísrael, elskurnar mínar, landið sem þið hatið.
Svipmynd frá Tehran:
Mannréttindi | Breytt 30.1.2011 kl. 18:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
16.1.2011 | 10:21
Dönsk yfirvöld skipa gyðingum að hylja sig
Í gær (15.1. 2011) birtist grein í danska dagblaðinu Berlingske Tidende eftir blaðamanninn og sagnfræðinginn Bent Blüdnikow um skrif mín í tímaritið Rambam, sem ég ritstýri. Rambam er ársrit sögufélags gyðinga, Selskabet for Dansk Jødisk Historie, í Danmörku og Blüdnikow er reyndar formaður þess félags. Í nýjasta árgangi ritsins eru margar merkar greinar sem fjalla um mjög mismunandi efni, allt aftur frá 18. öld fram á okkar daga.
Í inngangsorðum að Rambam 19/2010 greindi ég frá stuttum kvikmyndabút, sem nýlega var dreginn fram í dagsljósið vegna rannsóknar á aðild danska SS-mannsins Søren Kams að morðum í Danmörku og brottflutningi handsamaðra gyðinga frá Danmörku í fangabúðirnar Theresienstadt árið 1943. Dómsmálaráðherrann, sem árið 2007 var Lene Espersen, lét rannsaka aðild Kams að aðförinni gegn gyðingum í Danmörku árið 1943. Þá var fyrrgreindur kvikmyndabútur, sem aldrei hafði áður verið birtur/sýndur í Danmörku, dreginn fram í dagsljósið á Borgarskjalasafninu í Kaupmannahöfn og afhentur lögreglunni í Kaupmannahöfn sem sá um rannsókn málsins í samvinnu við saksóknara Kaupmannahafnar.
Þar sem mér þótti opinber skýrsla um rannsóknina sem birt var í lok árs 2008 mjög lítilfjörleg, bað ég strax um að fá aðgang að öllum gögnum. Mér var ítrekað neitað um það. Nú hef ég eftir öðrum leiðum fengið að sjá skýrslu lögreglumannanna sem rannsökuðu málið. Einn þeirra sýndi mér hana sjálfur á eigin ábyrgð, þar sem honum er einnig annt um að allur sannleikurinn komi fram í máli Kams.
Rannsóknarlögreglan í Danmörku fékk upphaflega stafrænt afrit af kvikmyndabútnum, en notuðu það ekki til ályktunar við rannsókn sína, sem verður að teljast ófullnægjandi rannsóknarferli. Furðu sætir einnig að skýrsla þeirra var greinilega stytt verulega af saksóknaranum í Kaupmannahöfn eða réttara sagt mjög ósamvinnuþíðum aðstoðarmanni hans Bo Bjerregaard. Simon Wiesenthal Center i Jerúsalem, sem beðið hafði um rannsóknina ásamt gyðingasöfnuðinum í Kaupmannahöfn, fékk því mjög yfirborðskennda niðurstöðu, (sem send var ódagsett sem viðhengi við tölvubréf dags. 6.11.2008), þar sem því var slegið föstu, að ekki hefði fundist afgerandi tengsl á milli þess sem er vitað um gerðir Kams og aðfararinnar gegn gyðingum í Danmörku árið 1943. Kvikmyndin frá Horserød var hins vegar alls ekki nefnd í skýrslu danskra yfirvalda.
Þegar ég heyrði um kvikmyndabútinn af Ríkisskjalasafninu í Danmörku í fyrra fyrir hreina tilviljun, keypti ég myndina dýrum dómum til að birta myndir úr þessari áður óþekktu kvikmynd, sem danskur nasisti í þjónustu Þjóðverja, Poul Hennig, tók í október 1943. Poul Hennig hafði ásamt öðrum rænt lista yfir meðlimi gyðingasafnaðarins í Kaupmannahöfn í ágúst 1943. Þann lista notuðu Þjóðverjar til að smala saman þeim gyðingum sem ekki hafði tekist að flýja til Svíþjóðar. Hennig sagði við réttarhöld yfir honum eftir stríð, að Søren Kam hafi verið með honum við ránið á listanum á skrifstofu formanns gyðingasafnaðarins safnaðarins. Søren Kam, er enn á lífi í Þýskalandi, verndaður af ESB-ríkinu Þýskalandi.
Við vildum auðvitað birta þessa merkilegu, áður óþekktu heimild í Rambam. En það máttum við ekki gera á eðlilegan hátt, þ.e. velja ákveðin myndskeið og birta myndir af þeim eins og þau eru. Nei, ég varð samkvæmt fyrirmælum Ríkisskjalasafnsins í Kaupmannahöfn að hylja andlit gyðinganna sem sáust á kvikmyndinni á einn eða annan hátt.
Útkoman var eins og þið sjáið. Í riti um sögu danskra gyðinga, þar sem yfirvöld fyrirskipa að hylja þurfi andlit gyðinga, birtum við t.d. mynd af schechter (kosher)-slátrara í Kaupmannahöfn, þar sem hann var viðstaddur trúarathöfn, eftir að hann var kominn heim heilu og höldnu frá fangabúðunum í Theresienstadt. Ef við hefðum birt mynd af honum frá fangabúðunum í Horserød árið 1943, hefðum við þurft að fylgja reglum Ríkisskjalasafnsins og hylja andlit hans. Hann mátti ekki þekkjast.
Rabinowitch slátrari ásamt konu sinni í Horserød 1943, eins og dönsk yfirvöld vilja að við sjáum þau árið 2011. Hér fyrir neðan er hann í samkunduhúsinu í Læderstræde í júni 1945, á mynd sem birtist í Rambam 2010.
Þrátt fyrir þetta furðulega bann, tók ég mér það bessaleyfi að gleyma að hylja ásjónu SS-manns sem stendur í dyrum eins skálans í Horserød. Í skýrslu rannsóknarlögreglunnar í Kaupmannahöfn kemur ekkert fram sem bendir til þess að rannsakað hafi verið hvaða SS-maður stóð í dyragættinni í Horserød og vinkaði vingjarnlega til ljósmyndarans, Paul Hennig, sem rændi lista þeim sem gerði Þjóðverjum kleift að smala saman gyðingum. Sú spurning hefur vaknað, hvort það sé ef til vill Søren Kam sem sést á myndinni. En það rannsökuðu dönsku yfirvöld sem sagt ekki og Lene Espersen gaf þess vegna, án þess að vita það, ekki rétta mynd af því efni sem tengir mál Søren Kams við atburðarásina við aðförina að gyðingum árið 1943.
Þar sem Ríkisskjalasafnið fyrirskipaði að kvikmyndin sem ég keypti yrði að vera stafrænt afrit af öðru miklu betra afriti af myndinni sem gert var í Hollandi fyrir nokkrum árum, þá eru gæði myndarinnar mjög léleg. Rannsókn á frummyndinni gæti væntanlega leitt í ljós hvaða maður stendur og vinkar til Paul Hennigs. Farið verður fram á rannsókn kvikmyndarinnar með tilliti til þess.
Fleira merkilegt birtist í nýjum Rambam Til dæmis birtum við í fyrsta sinn mynd af gyðingastjörnu (sjá ofar), sem danskir nasistar límdu á hús gyðinga í Kaupmannahöfn í byrjun árs 1942. Þetta er stjarna af nákvæmlega sömu gerð og sú stjarna sem Reinhard Heydrich leiddi í lög þ. 19. september 1941, og sem var sett á föt gyðinga í Þýskalandi, Frakklandi, Belgíu og Hollandi árið 1942. Stjörnurnar í Kaupmannahöfn voru úr pappír, en stjörnur sem saumaðar voru á föt voru eins og kunnugt er ekki leiddar í lög í Danmörku, líklega vegna þess að Danir voru svo samvinnuþýðir við hernámsliðið og útveguðu morðsveitum þeirra mat - og græddu meira segja á því margir hverjir. Það hafa menn í bakspeglinum kallað Samarbejdspolitik, en aðrir kalla þetta meira neikvæðu orði: kollaboration, sem er orð sem oftast er notað um samvinnu við óvininn og svik við þjóðina. Margir Danir telja sig þó ekki hafa svikið eitt eða neitt, og sjá ekki hvernig samstarf þeirra við þriðja ríkið efldi níðingsverk nasista annars staðar. Sama fólk telur oft því allt til foráttu að danskir hermenn starfi við friðargæslu í Afganistan og Írak og líkja því ósmekklega við hersetu nasista í Danmörku.
Í grein minni í Rambam 19/2010 (sem lesa má hér), segi ég frá því hvernig Kristján 10. og gyðingarnir í Danmörku voru misnotaðir í dönskum áróðri á stríðsárunum og síðar. Ég greini m.a. frá heimild, sem nýlega hefur birst í mikilli bók um Kristján 10. Þar kemur fram að að Kristján 10. á að hafa stungið upp á almennri notkun gyðingastjörnunnar í Danmörku ef Þjóðverjar færu fram á einhverjar atgerðir gegn gyðingum í landinu. Þetta á konungurinn að hafa skrifað 9 dögum áður en lög nasista um stjörnur á klæði gyðinga voru birtar í fyrsta sinn. Furðulegt, ef satt er, en enn furðulegra er, að Ríkisskjalasafnið í Kaupmannahöfn vildi ekki veita tímaritinu Rambam fyrirgreiðslu við að birta ljósmynd af því sem konungurinn skrifaði. Skjalasafnið neitaði að senda umsókn tímarits um sögu gyðinga áfram til Kabinetssekretariatet, skrifstofu hennar hátignar Margrétar Þórhildar Danadrottningar. Fyrir hönd Danadrottningar bannar Ríkisskjalasafnið í Kaupmannahöfn því gyðingum að sjá hve fallega afi Margrétar 2. skrifaði um gyðingana í dagbók sína árið 1941.
Svo notuð séu orð Williams Shakespears í Hamlet : Something is rotten in the state of Denmark. Danmörk er víst eina landið í heiminum, ef til vill fyrir utan Íran, þar sem ekki má birta myndir af gyðingum, þegar þeir voru niðurlægðir af nasistum.
Mannréttindi | Breytt s.d. kl. 12:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
18.9.2010 | 04:27
Vinur minn er gyðingahatari
... og hann telur að Helförin sé tómt svindl og gyðingar séu versta og hættulegasta fólk í heimi.
Nei, lesendur góðir, þannig fólk telst vitaskuld ekki til vina minna. Slíka vini á hins vegar maður sem sagður er vera talsmaður Menningarseturs Múslíma á Íslandi, sem eru skráð trúarsamtök á Íslandi, sem nýlega hafa keypt hús undir menningarmiðstöð sína og trúariðkanir fyrir fé frá erlendum fjárfestum. Menningarsetur Múslíma er stundum kallað Menningarmiðstöð Múslíma.
Ég greindi nýverið í færslu frá þeim sem standa á bak við kaupin á Ýmishúsinu í Öskjuhlíð og tengslum þeirra við öfgasamtök í Sádi Arabíu. Slík samtök eru að mínu mati hundrað sinnum hættulegri en einfætti hnefaleikamaðurinn sem setti allt á annan endann í Danmörku hér um daginn.
Karim Askari, sem kynntur hefur verið til sögunnar sem talsmaður þeirra fjárfesta, sem setja fjármagn í menningarsetrið í Ýmishúsinu, greinir á Facebook-síðu sinni hvaða boðskap honum líkar. Honum líkar t.d. við marokkanska öfgamanninn Abdessalem Yassine, sem hatast út í gyðinga í ritum sínum og yfirlýsingum og her helfararafneitari. Sjá t.d. þessa grein: Spurningin sem vaknar, er hvort Askari og aðrir í Menningarmiðstöð Múslíma á Íslandi hati gyðinga eins mikið og Yassine? Ef svo er, höfum við vandamál á Íslandi. Ef trú sú sem menningarmiðstöð múslíma á Íslandi ætlar að boða er gegnsýrð af gyðingahatri, verður að fara fram á að þetta menningarsetur við rætur Öskjuhlíðar verði undir eftirliti yfirvalda sem komi í veg fyrir að öfgar, hatur og mannréttindabrot verði framin í nafni trúarbragða á Íslandi.
Abdessalem Yassine hefur m.a. sagt: The Jews are the enemy incarnate. They are intimately linked to many of the evils of the world from Morocco, to Palestine, to Western imperialism. The Jew personifies and exemplifies the very psychology of modern man, who bears responsibility for the abject state of the world and the Muslims.
Við höfum nýverið orðið vitni að því að fólk fer hamförum yfir biskupum og prestum, bæði lúterskum og kaþólskum, sem ekki skildu að þeir höfðu ekki heilagan rétt til að leggjast á eða ganga í skrokk á ungviðinu. En hvar eru siðapostularnir og trukkafemínistarnir, sem vart geta haldið vatni yfir ógeðslegheitum trúarbragða og sem segja sig úr kirkjunni og affermast vegna viðbjóðs, nú, þegar í ljós kemur að talsmaður nýrra eingyðistrúarbragða á Íslandi aðhyllast trúarleiðtoga sem eru annálaðir fyrir gyðingahatur og önnur mannréttindabrot? Hvar er viðbjóður ykkar, betri flokkur sannheilagra á Íslandi, þegar ljóst er orðið að talsmaður nýrra samtaka múslíma á Íslandi aðhyllist lærdóm öfgapresta sem spúa eldi og brennisteini, svo ekki sé talað um gyðingahatri og hatri á menningargildum Vesturlanda? Hvar eruð þið, þegar slíkt svínarí kemur í ljós, þið háheilögu siðvandarar hins stýfða vinstri vængs? Stafar þögn ykkar af því að þið eru samreiðarmenn öfgaíslams? Það held ég nefnilega.
Ætla íslensk stjórnvöld að sitja og láta það afskiptalaust, að umboðsmenn öfgasamtaka og menn sem aðhyllast kenningar kynþáttahatara komi að stofnun trúarmiðstöðva Íslandi? Er það meira við hæfi en prestar sem nauðga í skjóli þjóðkirkjunnar inni í kompu eða á bak við stól Páfans í Róm? Hvað segir háttvirt Dómsmála- og mannréttindaráðuneytið ?
Ég spyr hér með Ögmund Jónasson mannréttindaráðherra, sem fær afrit af færslu þessari í nýja ráðuneytið sitt kennt við mannréttindi. Ætlar Ögmundur að skjóta skollaeyrum við starfssemi öfgasamtaka á Íslandi og láta það viðgangast, að talsmaður skráðra trúarbragða á Íslandi mæli með öfgaprestum eins og þeim sem ég greindi frá hér eða honum Abdessalem Yassine? Telur mannréttindaráðherra, að það séu mannréttindi að hatast út í gyðinga og gera lítið úr réttindum kvenna? Hvað segir ráðherrann? Hann er verndari mannréttinda. Hann verður að segja eitthvað og getur ekki beðið með það þangað til að hann er kominn í ESB draumlandið með meðreiðarsveinum sínum í ríkisstjórninni, því þar taka menn ekki á hlutunum með þögninni.
Mannréttindi | Breytt s.d. kl. 05:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
8.9.2010 | 06:06
Jóhanna og Penis með Krana
Ekki get ég sagt að mér þyki fréttin um fordóma Jenis av Krana merkileg. Sumir Færeyingar eiga það til, að taka biblíuna allt of bókstaflega. En ég get fullvissað þá um, að það stendur hvergi í Biblíunni, að minnsta kosti ekki í Gamla Testamentinu, sem ég hef lesið mest, að ekki megi bjóða Jóhönnu og Jónínu til Færeyja. Samkvæmt biblíunni eru Færeyjar ekki einu sinni til, heldur ekki Ísland.
Ég myndi sjálfur væntanlega afþakka að sitja til borðs með forsætisráðherranum. Ekki vegna þess að hún elskar hana Jónínu. Það skil ég vel. Ég bjó undir sama þaki og þær í 4 ár, þær í kjallaranum og ég í risinu, og ekki varð mér meint af. Nei, ég er fúll út í Jóhönnu vegna stjórnar þeirrar sem hún stýrir, sem lýgur að þjóðinni og svíkur hana. Lygi er vond, sama hvort það stendur í biblíunni eða annars staðar. Þegar Jóhanna er komin út úr skápnum, kabínettinu sínu, með öllum lygasögunum, býð ég henni í veislu.
En svona karlar eins og hann Penis uppi á Skaga eru ávallt vafasamir. Bak við heilaga ásjónuna og fordæminguna á öðrum er örugglega mikill syndari og sódómisti, sem elskar að fara í leður á ákveðnum börum í Kaupmannahöfn og London, þar sem hann leggur lag sitt við prestsmaddömmur frá Íslandi. Sjáið bara til. Myndin hér að ofan er af Penis með Kraga undir Rana.
Mannréttindi | Breytt s.d. kl. 06:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
26.8.2010 | 07:37
Obama í allra kvikinda líki
Það er alveg furðulegt, hvað hann Barack er góður að bregða sér í líki ýmissa minnihlutahópa. Hann er eins og kameljón og minnir mig á Zelig, persónu sem kvennagullið Woody Allen bjó til frábæra mynd um hér um árið. Zelig gat breytt sér í hvaða kvikindi sem er, bara með því að vera í herbergi með þeim í nokkurn tíma. Væri hann með Skotum, varð hann að Skota með sekkjapípu og án nærbuxna, og hitti hann Kínverja, var hann farinn að afhenda spádómskökur á veitingastað eftir stutta stund. Zelig umbreyttist líka allur í útliti og líktist þeim hópum sem hann átti samræði við. Ef Zelig hefði komið til Íslands, hefði hann hins vegar lent í vanda, því þar eru til svo margar týpur. Hann hefði líklega orðið að sæmilegum geðklofa, með og á móti ESB.
Í viðleitni sinni við að friðþægast við þjóðirnar sem grenja sárt eftir arfleifð Bushmannsins, byrjar Obama á Ramadan. Hann situr líka Seder með fjandmanninum, gyðingunum, á Páskahátíð þeirra. Ég er viss um að hann hafi á sér reðurhlíf, bara til að friðþægja ættbálka á Borneó. Síðast þegar Barack frændi var á Íslandi, sagði hann við Íslendinga að hann væri líkast til samkynhneigður eins og allir Íslendingar. Power to them", sagði hann, og Time skrifaði strax að Jóhanna væri með völd. Loftur, bloggarinn sem bannaður er fyrir að segja meiningu sína og nota orð sem standa í íslenskum lögum, segir Barack Obama kynvilltan, en það er bara vegna þess að svo margir í Hvíta húsinu eru "öfugir",afsakið samkynhneigðir, og Barack er einfaldlega að reyna að samgleðjast því fólki líka. Þegar Barack var ungur í Danmörku aðlagaðist hann svo vel Dönum, át flæskesvær og drakk öl, að enginn man eftir honum sem Barack. Þeir kölluðu hann Börge Obamsen. Þeldökkir í Bandaríkjunum segja þó, að hann eigi erfitt með að líkjast þeim.
Nú síðast er komið í ljós að hann Barack er meira en lítið skyldur Hitler. Afar sérstakur sérfræðingur við kaþólskan háskóla í Belgíu, landinu þar sem Ólafur Skúlason yrði talinn til dýrlinga án sannleiksnefndar, hefur fundið út eftir að hafa ofsótt ættingja Hitlers, að negrar (og gyðingar) séu skyldir Hitler bölvuðum - eða þannig hafa blaðamenn túlkað hlutina, því ekki fer fyrir miklum gáfum hjá fólki í þeirri stétt, þó þeir eigi mjög auðvelt með að umbreytast, eins og stjórnmálamenn, sem eru flestir psykópatar eins og sannað þykir, og nefni ég engin nöfn, enda óþarfi.
Ég tek eftir því, að imam sá, sem sendur var til Íslands frá Alazar háskólanum í Kaíró til að hafa andlega umsjón með íslenskum múslímum í erfiðri föstu" þeirra, er ekki á myndinni með múslímunum í sendiráði Bandaríkjanna. Kannski er hann eins og Zelig og hefur umbreyst í kvenprestinn á myndinni. Líklegra tel ég þó að bóklærður maður frá íslamístískum háskóla, þar sem daglega er lýst frati á Bandaríkin í bænagjörningi, eigi erfitt með að sýna ásjónu sína í sendiráði umbreytingsstjórnar Barack Obamalams, þó forsetinn sé dálítið múslímskur.
Imam Bayildi al Islandiah
Ég vona að íslenskir múslímar hafi ekki umbreyst í sendiráði Bandaríkjanna í gær. En heyrt hef ég, að sumir þeirra vilji helst ekki missa Kanana, t.d. Írakar. Hverjum langar að deyja drottni sínum á tímum mestu umbreytinga í sögu mannskynsins. En þetta eru líka tímar mesta ruglsins í sögu mannkynsins, þar sem milljarðar manna lýsa stríði á hendur heilu þjóðunum vegna skrípómyndar í dönsku dagblaði?
Hvar er annars Bandaríski sendiherrann á myndinni með frétt Moggans? Er þetta ekki sendiráðsfulltrúinn í miðjum hóp múslímanna, suðurríkjagyðingurinn, sem sendi bréfið með listagóðri lýsingu á íslenskum stjórnamálamönnum, sem meintur kvenníðingur í Svíþjóð lak síðar á Wikileakage?
Annars mæli ég með því að bandaríska sendiráðið bjóði mönnum upp á Kók Zero, (ekki Ground Zero), og döðlur næst, því meirihluti þeirra sem bera sömu blóðflokkagerð og Hitler, og ég, og margir múslímar, hafa mjólkuróþol.
Lengi lifi pólitísk rétthugsun
![]() |
Fastan rofin í bandaríska sendiráðinu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Mannréttindi | Breytt s.d. kl. 08:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
5.8.2010 | 06:25
Össur býður dauðadæmdri konu landvist á Íslandi
Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra hefur boðið Sakineh Ashtiani landvistarleyfi á Íslandi. Sakineh Ashtiani, sem er 43 ár, á yfir höfði sér grýtingardóm í Íran. Hún hefur setið í fangelsi síðan 2006 og beðið þess að vera grýtt fyrir að hafa átt í sambandi við tvo menn eftir að maður hennar dó fyrr það ár. Lög í Íran, heimila grýtingu kvenna, sem brjóta hjúskaparlög landsins. Í lögbókum Írans er nákvæm lýsing á stærð og gerð steinanna sem nota ber til grýtinga.
En nú hefur Sakineh Ashtiani einnig verið sökuð um morð á manninum sínum og þá ber að hengja hana samkvæmt írönskum lögum. Árið 2006 var hún hýdd með 99 slögum á bakið. Nýjar upplýsingar sem ein af leyniþjónustum Írans hefur orðið sér úti um er, að Ashtiani sé í raun gyðingur.
Jóhanna Sigurðardóttir átti frumkvæðið að því að bjóða Sakineh Ashtiani til Íslands, en það var Ingibjörg Sólrún Gísladóttir sem hafði verið beðinn um það af IWC, International Women's Commission, að reyna að bjarga Ashtiani frá grýtingu í Íran. Ingibjörg Sólrún sem er vel kunn í Miðausturlöndum hefur beitt sér mjög mikið í máli ofsóttra í þeim löndum. Ingibjörg sagði í gær, að hún sæi eftir því að hafa ekki farið til Íran, þegar hún leitaði stuðnings við aðild Íslands á Öryggisráði SÞ.
Búið er að finna íbúð handa Ashtiani og fjölskyldu hennar í Mosfellsbæ.
Írönsk yfirvöld lýsa því yfir að Össur Skarphéðinsson sé góðhjartaður maður, en að hann viti ekki hvað mál Ashtiani fjalli um, en forseti landsins, Ahmadinejad, verðsetur enn að fulltrúar Íslands yfirgáfu ekki sal SÞ Genf þegar Ahmadinejad hélt þar ræðu árið 2009 og margar þjóðir gegnu á dyr til að mótmæla mannréttindabrotum og gyðinghatri í Íran.
Kvenréttindasamtök á Íslandi fagna boði Össurar til Sakineh Ahstiani. "Hann er stór maður", var haft eftir Margréti Sverrisdóttur, varaborgarfulltrúa Samfylkingarinnar í Reykjavík, sem einnig er formaður Kvenréttingasamtaka Íslands.
Sigurður Líndal segir að írönsk lög um grýtingar geti vart gilt á Íslandi, en drekkingar hafi eitt sinn tíðkast hér á landi.
Jón Gnarr var í Múmíndal í dag og kemur ekki aftur í bráð, en lét þó hafa eftir sér gegnum talskonu sína, að grýtingum í dalnum hefði fækkað eftir að Finnar gengu í ESB.
Svona er Ísland í dag...
Mannréttindi | Breytt s.d. kl. 11:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
25.6.2010 | 21:41
Samhengi hlutanna
Vondu Zíonistunum í Ísrael varð það á að drepa svokallaða "aðgerðasinna" á ferjum friðarins, sem sendar voru frá hinu friðelskandi ríki Ataturks til að veita íbúum og hryðjuverkasamtökunum á Gaza aðstoð í baráttunni við eina lýðræðisríkið við botn Miðjarðarhafs. Tilgangur ferðarinnar var, að sögn öfgafyllstu farþeganna, einnig að gerast píslarvættir. Hvar er betra að verða það en undan ströndum Ísraels, ríkis, sem bræður í öfgunum vilja afmá af landakortinu? Vestrænir gyðingahatarar (les vinstri menn), sem flestir eiga glæsta fortíð í taumlausri aðdáun á stjórnmálastefnu, sem á flest mannslíf á samviskunni á síðari tímum, fylgdu með til að þjónusta og bera vitni.
Vegna blindu, og mestmegnis siðblindu, fjölmiðla og ofsa sjálfskipaðra vaktmanna friðar og frelsis, heyrðum við nær eingöngu fréttir um þessi tyrknesku skip og þá 10 "aðgerðasinna", sem Ísraelsher felldi m.a. vegna þess að hermenn Ísrael máttu fótum sínum fjör að launa.
Í íslenskum fjölmiðlum heyrðum við eða lásum ekki neitt, eða afar takmarkað um þá 2254 einstaklinga, sem urðu fórnarlömb Öfgaíslams í maímánuði 2010. Lítið fór fyrir fréttum af þeim 1768 sem misstu lífið í apríl, þeim 2536 sem misstu lífið í mars, þeim 1556 manna sem drepnar voru í febrúar eða af þeim 2166 sem drepnar voru í janúar, í allt 10.280 manns, sem Öfgaíslam felldi í bræði sinni og ofsa á fyrri hluta árs 2010. Geri aðrir betur. Ekki fór mikið fyrir friði í heimi öfgaíslams, og hví ætti maður að trúa því, að mikill friður hafi verið um borð á "friðarfleyinu" Marmaris.
Útgerðarmaðurinn Erdogan á Tyrklandi, sem gerir út á friðarveiðar án kvóta er mikill maður. Nokkrum dögum áður en Ísraelsríki var bölvað og ragnað og nær útlægt gert úr heimi hér fyrir að verja strendur sínar, fangelsuðu Tyrkir (Friðarpostulinn Erdogan og Co.) 340 kúrdísk börn fyrir að taka þátt í "and-tyrkneskum" mótmælahöldum. Börnin voru dæmd í 5 ára fangelsi eftir þeim lögum sem gilda á Tyrklandi um and-tyrknesk athæfi. Í maí 2010 voru 73 drepnir í átökum milli tyrkneska hersins og kúrdískra andspyrnumanna og aðgerðarsinna. Síðan 1985 hafa 40-50.000 Kúrda verið myrtar af tyrkneskum herjum í baráttu sinni fyrir frjálst Kúrdistan. Írakar, Sýrlendingar og Tyrkir hafa framið skipulögð fjöldamorð á Kúrdum. Erdógan, sem vill yfirlýst gera Tyrkland að stórveldi í Miðausturlöndum, sendir friðarskip til Ísrael á meðan hann níðist á börnum. ESB horfir á hann í biðstofu sambandsins, jafnvel með meiri forundran en á Össur stórborgara Skarphéðinsson.
Í maí 2010 voru 432 manns myrt í Darfur. Þann 7. júní bárust fréttir af því að 600 manns hefðu verið drepin í Súdan, þótt aðeins hefði verið hægt að staðfesta 491 þessara drápa. En engin staðfesting barst til Íslands. Ekki var greint frá þessum drápum öfga-og útþensluíslams í vinaútvarpi Hamas, RÚV.
Gleymum heldur ekki öllum drápunum sem öfgaíslamskir hryðjuverkamenn stunda í Afganistan og í Írak. Íslendingar heyra um sum þeirra, en láta það eins og vind um eyrun þjóta. Sumir gerast svo djarfir að heimta heri Vesturlandaþjóða heim og afsökun frá Halldóri Ásgrímssyni og Davíð Oddsyni.
Ekki fá Íslendingar mikið að vita um baráttu aðgerðasinna og frelsisafla í Íran, sem barin eru niður með hrammi öfgaíslams og frelsishetjurnar eru hengdar á torgum úti án þess að Bogi Ágústsson gráni við tilhugsunina um það.
28 . maí 2010 voru meira en 100 meðlimir Achmedi-greinar Íslams í Pakistan drepnir. Það heyrðist varla um þessi dráp fyrir látunum gegn Ísrael. Gyðingar eru líka minnihlutahópur í hafi öfgafyllstu trúarbragða jarðarinnar um þessar mundir. Sama dag í maí slátruðu maóistar (eru þeir enn til??) meira en 100 manns í lest á Indlandi. Ég man ekki eftir því að hafa lesið um það í íslenskum fréttum eða heyrt. Er sía á internetinu á íslenskum fjölmiðlum, sem gerir það að verkum að Ísrael er eina ríkið sem menn nenna að þjösnast á, eða eru alls staða svona lítilsigldir sumarstrákar eins og á RÚV.
Þann 7. júní 2010 greindu mannréttindasamtök í Jemen frá því að 55 manns, og þar af mest óbreyttir borgarar, hefðu verið myrtir af Bandarískum herafla þar í landi.
Í maímánuði árið 2010 voru minnst 764 manns drepin í Pakistan, bæði hermenn, óbreyttir borgarar og hryðjuverkamenn. Þar ríkir líka vargöld. Veldur það vilhöllum fjölmiðlun og riddurum réttlætis og rétttrúnaðar á Vesturlöndum áhyggjum á sama hátt og "krabbameinið" eins og sumir íslenskir bloggarar kalla Ísrael? Nei, ekki aldeilis, þeir sofa bara ágætlega í sjálfumgleði sinni yfir því að vera síðustu daga heilagir.
Er þörf fyrir frekari tölfræði? Er ekki ljóst, að einhverjir hafa misst allt í senn; sjónina, heyrnina og eiginleikan til rökhugsunar, já jafnvel vitið? Eru menn í samhengi, þegar þeir fara hamförum út af 10 drápum á mönnum sem höfðu afar ógöfugar ástæður til að hjálpa bræðrum á Gaza, meðan 2254 manna voru drepnar, og það aðeins í maí vegna þeirrar öfgatrúar sem fær fljótandi friðarsinna til að eltast við píslavættisdauða?
Eru menn ekki staurblindir, þegar þeir telja það eðlilegt, að friðarfloti sé sendur frá landi þar sem börn eru dæmd í fimm ára fangelsi vegna þess að þau tilheyra minnihlutahóp sem vill sjálfstæði?
Þessi grein var unnin upp úr grein í The Mideast Forum eftir dr. Yohai Sela, og er tileinkuð fréttamönnum RÚV, sem eru einstaklega illa upplýstir, eða bara sjúklega fordómafullir.
Að lokum: Söngur salamistanna!, því öll þráum við friðinn - aðferðirnar til að hlotnast hann eru bara mismunandi...
Mannréttindi | Breytt 26.6.2010 kl. 21:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
15.6.2010 | 13:16
Haturslistamaður Íslands 2010 fundinn
Hér var í gær mynd eftir Inga Jensson, sem
umsjónamaður Morgunblaðsbloggsins
bað mig um að fjarlæga kl. 01.16, þann 16.6.
2010. Ingi Jensson var fyrst beðinn um að
fjarlægja listaverkið sitt á blogginu hjá sér.
Ég geri ráð fyrir því að umsjónamaður
bloggsins hafi beðið um að myndin hafi verið
fjarlægð, eftir að hafa lesið athugasemdir
mínar hér fyrir neðan. Við erum því miður
eftir að sjá birtingu fjöldans alls af teikningum
eins og þeirri sem Ingi skóp, því margir
listamenn
nota list
sína til
að sýna
hatur
sitt í stað
þess að
gefa pólitíska skoðun sína í ljós.
Hatrið er stundum skiljan legt í stjórnmálum, en þegar
hatrið bitnar á trú manna og uppruna, þá er það lögbrot.
שָׁלוֹם
Ingi Jensson heitir snjall skrípóteiknari, sem meira að segja hefur moggablogg og mörg önnur blogg til að koma sér og verkum sínum á framfæri, jafnt á Íslandi sem erlendis. En eins og við vitum gerast skrípóteiknarar oft sniðugari en þörf er, líkt og standpínutrúðar verða leiðinlegir, þegar þeir fara í pólitík. Skrípóteikningar geta haft geigvænleg áhrif. Þetta sáum við með teikningarnar af Múhameð. Það lá við heimsstyrjöld. Allir vissu að Múslímar yrðu fokillir, þegar einhver færi að teikna Múhameð, því hann var svo mikilvæg persóna, en reyndar líka fjöldamorðingi.
Ég birti ekki myndir af Múhameð spámanni nema til neyddur með sverðið yfir höfðinu. Mér finnst hann ekki það áhugaverður að það taki því að ímynda sér hvernig hann leit út. Ég lítilsvirði heldur ekki trú annarra, ef ég get komist hjá því.
Það gildir ekki um Inga Jensson, sem teiknaði myndina hér fyrir ofan og birti nýlega undir titlinum Shalom, mate! með þessum ummælum: Ein gömul sem hægt er að endurnýta og endurnýta og endu... (teikning).
Þetta er vissulega ekki spámaður, sem Ingi hefur teiknað, heldur sjöarma ljósastika, Menorah, sem hann hefur einnig merkt með svo kallaðri Davíðsstjörnu. Þetta er óvirðing við fornt trúarlegt tákn, og það varðar við hegningarlög að óvirða trú annarra. Ætli Ingi Jensson viti það? Ætli þeir, sem ráða hann á Englandi og í Hollandi til að teikna fyrir sig, viti það? Hvernig væri nú ég gengi úr skugga um það?
Það vekur athygli mína, að Ingi skrípó er með þessa mynd af blóðugu trúartákni á íslensku bloggi sínu, en ekki á erlendum og alþjóðlegum heimasíðum sínum. Hann veit kannski að svona ósómi gengur víst bara á Íslandi? Eða er hann bara einfaldur, sköllóttur trúður eins og hann teiknar sjálfan sig. Haturslistamannalaunin fara í ár til Inga Jenssonar.
Mannréttindi | Breytt 16.6.2010 kl. 07:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (25)
7.6.2010 | 15:24
Hatur er hluti af íslenskri friðarbaráttu
Fyrir tilviljun sá ég að Torfi nokkur Stefánsson, sem er prestur án kalls, skrifaðu nýlega um mig miður fallega og gerði mér upp skoðanir og gaf í skin að ég væri nasisti.
Torfi gerði þetta inni á tru.is, sem er vefur í tengslum við Þjóðkirkjuna. Enn verra þótti mér, að Torfi lagði við texta, sem hann sagði að ég hefði birt á Eyjunni þann 1. júní. Skrif Torfa voru á þessa leið: (ég skrifa í þátíð, þar sem umsjónarmaðurinn á tru.is á Biskupsstofu var fljótur að fjarlægja þessa athugasemd Torfa Stefánssonar, sem þótti í alla staði ókristileg og óviðeigandi).
Torfi Stefánsson skrifar:
1. 6. 2010 kl. 14.34
Hér er innlegg frá Vilhjálmi Erni inni á eyjan.is fyrr í dag. Þar kemur hans rétta eðli í ljós og ástæðan fyrir ást hans á ofsatrúarmönnunum í Ísrael, þ.e. sameiginlegt hatur á vinstri mönnum. Munum að þetta sama hatur einkenndi nasista Þýskalands á sínum tíma, hatur sem einnig beindist að gyðingum sem þá voru margir hverjir hallir undir sósíalisma (ég skil reyndar ekki af hverju þessi maður er ekki útilokaður frá þeim spjall-listum sem taka sig alvarlega og vilja halda uppi siðlega umræðu):
"Hinir vinstrisinnuðuöfgamúslímar hamas hafa verið að murka lífið úr þjóð sinni nú í tæpan áratug og verið helvíti duglegir við að framkvæma aftökur á eigin þjóð, án þess að það hafi truflað hinn venjulega sófakomma. Að kenna síonistum um allt sem illa fer á gaza er lík þeirri einföldun að bagalegt ástand á cúbu sé allt bandaríkjamönnum að kenna. En hefur enginn skýring fengist afhverju vinstriskríllinn virðist stöðugt mynda tilfiningaástarsamband við vinstriöfgamúslíma þar sem siðblinda,girnd, og blint hatur á allt og alla sem ekki eru sammála eða voga sér að draga í efa heillindi og drengskap liðsmanna hamas. Daður og sjálfdýrkun verður að linna svo hægt sér að vinna að sjálfbærum friði fyrir botni miðjarðarhafs, Því væri ráð að vinstrimenn byrjuðu á að taka til siðferðislega í eigin ranni, því þá er meiri von um frið."
Þetta hef ég aldrei skrifað. Síðast er ég gerði athugasemd á Eyjunni varð það við mjög gott blogg Stefáns Snævarrs http://blog.eyjan.is/stefan/2010/05/31/hvar-voru-thid/ . Þá sjaldan að ég tek þátt í umræðu á Eyjunni, er það undir fullu nafni. Ég hef ekkert að fela.
Ég hafði í því samband við Torfa Stefánsson, sem taldi Vilhjálm þann sem gerði athugasemdir við frétt Eyjunnar áðurgreindan dag vera undirritaðan (mig), og það voru fleiri sem ályktuðu svo í æsingi sínum, þó nafn mitt væri ekki skrifað þar að fullu. Sjá þessa makalausu umræðu: http://eyjan.is/blog/2010/05/31/allavega-tiu-latnir-eftir-aras-israelshers-a-skipalest-med-neydargogn-fyrir-ibua-a-gaza/
Séra Torfi hefur nú beðist afsökunar, en hann bætir við:
Fyrsta innleggið frá "Vilhjálmi" kemur fyrr eða kl. 10.38:
"En hefur enginn fundið ástæðu þessa undarlega ástarsambands milli vinstriöfgasinaðra múslima og hins venjulegs sófakomma. Hvort heldur um sé að ræða bann við umskurn kvenna, bann við notkun burku, aukna menntun barna og eiginkvenna vinstriöfga múslíma og svo framvegis, dauðadóma yfir hommum og friðsamleg sambúð við sionista. Hvað veldur þessari siðblindu og sjálfelsku
ásamt þessu blinda hatur út í allt og alla sem ekki eru sammála.........Verðugt umhugsunarefni til þeirra vinstrisófakomma sem telja talibana,hizbola,hamzas sem frelsishetjur."
Því er svarað á þessa leið: "Nei er ekki Vilhjálmur frá köben mættur með enn eina skítaklessuna? Alltaf er þessi drullusokkur fyrstur upp á dekk þegar þarf að verja fjöldamorð ísraela."
Reyndar kemur ekkert fram að það sé þú sem skrifar þetta, aðeins "Vilhjálmur". Ef svo er, þ.e. ef þú hefur ekki skrifað þetta, þá bið ég þig afsökunar á að hafa talið svo vera.
Ég er hins vegar ekki einn um að halda það - og ekki að ástæðulausu. Þú ættir kannski að athuga þinn gang í gagnrýnislausum stuðningi þínum við "gyðinga", annars er hætt við að annar eins "misskilningur" komu upp aftur ... og aftur.
Ertu ekki hræddur við að vera lögsóttur fyrir briðgsl í garð landstjórnarinnar? Er ekki refsingin fyrir það allt að átta ára fangelsi?"
Þetta er vægast sagt skrítin afsökunarbeiðni, en eins og gyðingurinn Jesús forðum tek ég við afsökunarbeiðni íslenska prestsins og fyrirgef honum yfirsjónina, sem er mikil. Náttúrulega styð ég við gyðinga og það án gæsalappa. Annað kæmi ekki til mæla. Ég á ekki annarra kosta völ.
Kæru lesendur það er ekki neitt nýtt að ég verði fyrir aðkasti frá íslenskum stuðningsmönnum öfgasamtaka og ýmsum gífuryrðaþeyturum. Maður nokkur, vel vaxinn og mikill sem elur manninn í Asker i Noregi, hefur í tvö ár kynnt sig á þennan hátt:
Óskar Þorkelsson
Öfgafólk fer í taugarnar á mér... passið ykkur á Villa í Köben hann er öfgamaður.
Þegar málstaðurinn er ljótur og lélegur grípa menn til slíkra yfirlýsinga. Lygar og fals eru systur haturs. Við sjáum það t.d. í málatilbúnaði "friðarsinnanna" sem ætluðu til Gaza.
Ég hef beðið umsjónamenn Morgunblaðs bloggsins að biðja Óskar Þorkelsson Dartmaster á Áskerjum um að hafa hemil á sér og vera aðeins sjálfstæðari í lýsingu á sinni eigin persónu. Því er hér með aftur komið á framfæri.
Mannréttindi | Breytt s.d. kl. 15:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
4.6.2010 | 06:57
Vændiskaupendur Íslands sameinist !
Old lady judges watch people in pairs
Limited in sex, they dare
To push fake morals, insult and stare
While money doesn't talk, it swears
Obscenity, who really cares
Propaganda, all is phony.
Bob frændi
Vændismálið er skrítið mál, og því mun seint ljúka. Persónulega er ég á þeirri skoðun, að ekki sé rétt að banna vændi. Það er ekki einu sinni hægt að afnema það. Það hefur ávallt fylgt mannkyninu. Í mannfélaginu, eins og í dýraríkinu, verða alltaf til karldýr sem verða útundan í baráttunni um að finna sér maka. Sumir karlar hafa hins vegar margar í takinu eins og rostungar og fílar. Eigum við að fara ofsækja þá menn, t.d. stjórnmálamenn, sem svo er komið fyrir? Ef einhverjir þurfa að kaupa sér blíðu kvenna vegna þess að þeir geta ekki fundið hana á annan hátt, verður komið í veg fyrir að sumir þeirra grípi til nauðgana eða annarrar kynferðislegrar hegðunar, sem samfélagið telur afbrigðilegt á sérhverjum tíma.
Ef kerlingarhlussur þær sem kalla sig femínista, og karlaumingjar sem hanga í pilsfaldi þeirra ætla að stjórna kynhegðun manna og kvengera alla karla, verða þær að koma með betri rök en þau, að allar konur sem stunda vændi séu hnepptar í þrældóm og allir menn sem kaupa vændi séu ótíndir glæpamenn
Ef skoðaður er dómur gegn Catalinu Ncogo í Héraðsdómi, er greinilegt að starfssemi hennar í vændisgeiranum hefur ekki,svo sannað verði, tengst mansali. Blökkukonan E, sem sakaði hana um að hafa flutt sig nauðuga til Íslands, hefur reynst ótrúverðug.
Mig grunar, að E sé meira ótrúverðug en svo. Breyting í afstöðu réttarins til E er furðuleg og ekki undirbyggður á neinn hátt í dóminum. E hlýtur að hafa aðhafst eitthvað sem dómarar taka tillit til í svo breyttri afstöðu sinni.
E hefur þó aldrei stundað fjárkúgun gegn einhverjum að þeim mönnum sem nú eru eltir á röndum sem glæpamenn fyrir að borga vændiskonum frá Afríku 20.000 krónur fyrir blíðu og drátt, sem þeir gátu væntanlega ekki fengið heima hjá sér? Hún hefur þó ekki krafið þá um peninga með hótunum um að hún myndi annars segja til nafns þeirra í opinberum miðlum? Hvað segir lögreglan og dómaraliðið um þá tilgátu mína?
Þeir menn, sem hafa verið gerðir að glæpamönnum vegna þessa að þeir höfðu kynlífsþörf, ættu allir að standa fram undir nafni. Íslenska þjóðfélagið hefur ekki efni á því að fordæma þá. Alls kyns vændissala, hórmang og siðleysi hefur tíðkast á Íslandi, og það miklu verra en að borga 20.000 krónur fyrir drátt hjá afríkanskri portkonu við hliðina á lögreglustöðinni.
Þið ákærðu kaupendur kynlífs, þið hafið ekkert að fela, (nema að þið hafið verið að halda framhjá konunni ykkar). Látið ekki stimpla ykkur af fólki með miðaldahugarfar eða útkulnuðum eða freðnum kvenmönnum sem ekki skilja kynþörf karla, vegna þessa að þær eru sjálfar ekki alveg eðlilegar, eða af blaðamönnum DV sem eru auðvitað siðvönduðustu menn Íslandssögunnar, fyrr og síðar.
Mannréttindi | Breytt s.d. kl. 07:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Bækur
Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs
-
Nýtt blogg um fornleifafræði
FORNLEIFUR -
Þrælasalar í Norðurhöfum
Grein í Lesbók Mbl. 1999 -
: Ritaskrá 1972-2013 -
Fyrri færsla
Jakki Kiljans Laxness -
Bein Páls Biskups
Kveðskapur -
: Flóttamaðurinn Alfred Kempner -
Pepsi var á Ströndum
Gosdrykkjasaga -
Mótmælum Durban II
Meira -
Ved Helvedes Port
Grein mín í SKALK. Nr.4,1994. -
: Gyðingar á Grænlandi
Fyrri færsla og tenging við grein eftir mig á dönsku um gyðinga á Grænlandi -
Flogið hátt
Grein mín um fyrsta flug flugbels á Íslandi -
Fyrri færsla
Líkþráir Íslendingar -
: Lesið hér (ISBN: 978-965-218-066-7)
Behind the Humanitarian Mask; The Nordic Countries, Israel and the Jews. Edited by Manfred Gerstenfeld. -
Fyrri færsla
Vinir útlendinganna -
Fyrri færsla
Nakinn sannleikur -
Ungr var ek forðum
Færsla um óeirðir og læti í æsku minni -
Fyrri færsla
Þegar Gúttó varð samkunduhús gyðinga -
Fyrri færsla
Vive l'(Gr)islande -
Fyrri Færsla
Nifalt húrra -
Íslenskar frúr í Andvörpum
Um ferðir útrásar-Íslendinga á 16. öld. Lesbók Morgunblaðsins 28.águst 1999. -
Fyrri færsla
Berlínarboogie Laxness -
Fyrri færsla
Pabbi Þórs var myrtur í Auschwitz -
Falskir Íslendingar
Grein um þjóðarstolt -
En dansk krigsforbryder
Grein í Weekendavisen um versta stríðsglæpa- mann Dana, sem dönsk yfirvöld vildu helst gleyma. -
Anti-Semitism in Iceland. Is that possible? -
Iceland, the Jews, and Anti-Semitism, 1625-2004
Grein á ensku um gyðinga á Íslandi -
Ich weiss, was ich zu tun habe
Grein mín um Georg F. Duckwitz, nasistann sem á að hafa verið potturinn og pannan við björgun gyðinga í Danmörku. Í greininni sem birtist í tímaritinu Rambam 15:2006 er gerð grein fyrir fjölmörgu sem danskir sagnfræðingar hafa gleymt að rannsaka. Hlutverk Duckwitz verður nú að endurskoða. -
Grein
The King and the Star í: Denmark and the Holocaust (2003) (ISBN: ISBN 87-989305-1-6) -
: Rescue, Expulsion, and Collaboration: Denmark's Difficulties with its World War II Past
Jewish Political Studies Review 18:3-4 (Fall 2006; Tímarit sem ég hef skrifað töluvert í -
: 20 Begivenheder der skabte Danmark (ISBN: 87-02-0516-7)
Ég er meðhöfundur að einum af köflum bókarinnar. -
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson: Medaljens Bagside - Jødiske flygtningeskæbner i Danmark 1933-1945 (ISBN: 87-91393-60-4 ) Forlaget Vandkunsten 2005. Bók mín um meðferð danskra yfirvalda á flóttafólki á 4. og 5. áratugi 20. aldar.
Meira
Nýjustu færslur
- Viðreisnarklappstýran
- Tapað-fundið á DV
- Ekki fleiri sokka frá Íslandi, TAKK.
- Trumpur Eyjajarl
- Á mér stendur ..... Bjarni Ben
- Minnislaus síðan í síðustu ESB-kosningu
- Gamlir dónar sem fokka sér - Meet the Fockers II
- Icelandic Police Bared
- Niðurstaðan: KiSS or Bæjarins beztu
- Zelenskij fór í ranga flugvél - verður í Færeyjum næstu dagana
- Sjúklega svæsinn gyðingahatari er vinsæll á Moggablogginu
- Valdemar á svölunum er látinn
- Svæsnir fordómar eru ekki hluti af málfrelsi og tjáningu
- Ástráður eins og lús á feldi
- Utanríkisráðherra eyðir um efni fram í útlöndum
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (7.6.): 6
- Sl. sólarhring: 10
- Sl. viku: 55
- Frá upphafi: 1355361
Annað
- Innlit í dag: 6
- Innlit sl. viku: 39
- Gestir í dag: 6
- IP-tölur í dag: 6
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Apríl 2025
- Mars 2025
- Janúar 2025
- Júlí 2024
- Apríl 2024
- Febrúar 2024
- Desember 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Ágúst 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Júlí 2021
- Maí 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- Ágúst 2020
- Maí 2020
- Nóvember 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Júlí 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Janúar 2017
- Nóvember 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Nóvember 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007