Færsluflokkur: Mannréttindi
19.3.2010 | 16:41
Steinar í götu Dana
Ég hef ásamt öðrum hér í Danmörku, sem sitja í stjórn Selskabet for Dansk Jødisk Historie, hrint af stað verkefni til að minnast fórnarlamba nasismans og meðreiðarsveina þeirra í Danmörku. Verkefni þetta kallast Snublesten, og gengur út á að setja litla steina með messingplötu í gangstéttir fyrir utan hús þau, þar sem bjuggu þeir sem sendir voru úr landi af dönskum yfirvöldum og nasistum á stríðárunum, og voru síðar myrtir í fanga- og útrýmingarbúðum nasista.
Á messingplötuna verður grafið nafn og upplýsingar um þann sem minnst er. Hugmyndin er upphaflega ættuð frá Þýskalandi og mun listamaðurinn Gunter Demning, sem sett hefur þúsundir slíkar steinar í götu Þjóðverja, einnig setja þessa steina hér í stéttir Kaupmannahafnar, og annarra bæjarfélaga Í Danmörku.
Verkefnið er enn fjárvana, en í dag var greint frá því á vefsíðu Jyllands Posten. En það blað er sem kunnugt lesið um allan heim, eftir að einhver teiknari teiknaði svona listgóða teikningu af ljótum karli, sem ætlaði allt að gera vitlaust. Nú hljóta góðir menn að hjálpa til að gera þetta verkefni okkar verði að veruleika.
Kannski eiga einhverjir á Íslandi nokkrar krónur aflögu? Ég vildi bara nefna þetta, ef einhver hefði vonda samvisku á Íslandi. Ísland var enn í Ríkjasambandi við danska Konungsveldið, þegar þessir glæpir voru framdir. Ég greindi frá glæpum þessum í bók, sem út kom árið 2005 og sem örugglega er enn hægt að kaupa mjög ódýrt hjá forlaginu Vandkunsten, en einnig mun hún vera til á betri bókasöfnum á Íslandi.
Mannréttindi | Breytt 20.3.2010 kl. 11:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
16.2.2010 | 09:58
Skuldabaggi Hollendinga
Er hægt að kenna öllum Hollendingum um þá glæpi sem sumir Hollendingar, (ja, nokkur þúsund Hollendinga), frömdu í Síðari heimsstyrjöld? Nei. Það er heldur ekki hægt að kenna öllum Íslendingum um þá glæpi sem nokkrir Íslendingar frömdu í Hollandi í nafni Icesave, sjúklegrar íslenskrar sjálfsánægju og ofmetnaðs.
Ég hef tekið eftir því að Hollendingar vilja ekki heyra sannleikann um sjálfa sig, frekar en sumir Íslendingar. Á fjölmörgum umræðusíðum, hollenskum, hef ég bent á hve skuld Hollendinga við gyðinga Hollands var seint greidd og af hverju Hollendingar greiddu ekki út eignir og innistæður gyðinga sem myrtir höfðu verið. Skuld Hollendinga verður vissulega aldrei greidd að fullu. 90% allra gyðinga í Hollandi voru myrt og áttu Hollendingar vissulega þátt í því, beint og óbeint. Þótt margir Hollendingar hafi hjálpað löndum sínum af gyðingatrú- eða ættum og jafnvel misst líf sitt vegna þess, voru þó flestir tilbúnir að líta til hliðar og jafnvel að hjálpa til við morð og ofsóknir á nágrönnum sínum. Í Hollandi var stærsti nasistaflokkurinn utan Þýskalands. Þetta var skrítið land. Jafnvel voru til fjölskyldur, þar sem menn, sem voru kvæntir gyðingakonum, voru einnig nasistar. Þeim var refsað fyrir það eftir stríð, jafnvel þó að þeir hefðu bjargað fjölskyldmeðlimum af gyðingættum. En þeir sem stunduðu skipulagt rán úr húsum og íbúðum gyðinga sem sendir höfðu verið til Westerbork, Vught, Amersfoort og víðar, og áfram í dauðann til Theresienstadt, Sobibor og Auschwitz, gengu margir hverjir níðingslega fram við samlanda sína.
Í dag er búið að heilaþvo Hollendinga og heiminn með Önnu litlu Frank. Það voru til þúsundir stúlkna eins og Anna Frank í Hollandi. Anna Frank friðþægir vonda samvisku Hollendinga. Hollendingar gleyma hins vegar Puls (Pulsen) vögnunum, frá fyrirtæki A. Puls, sem óku um götur Amsterdam og Haag og tæmdu íbúðir gyðinga sem sendir höfðu verið í búðir eða voru í felum, eftir að hollenska lögreglan var búin að leita það upp og stinga byssustingjum sínum í gegnum gólfin til að fullvissa sig að engin fæli sig í íbúðunum. Þá kom flutningafyrirtækið Puls sem tæmdi hús gyðinga.
Hollendingar eru nú búnir að vera með Þjóðverjum lengi í ESB, en samt heldur Þýskaland hlífðarhendi yfir hollenska böðlinum Klaas Karel Faber sem gekk í raðir SS og myrti gyðinga og aðra í fangabúðunum Westerbork í Hollandi. Hvað gera Hollendingar til að fá hann framseldann? Lítið sem ekkert. Níðingurinn Faber lifir í vellystingum í ESB-Þýskalandi. Hvað gerir ESB til að lögsækja gyðingamorðingjann Klaas Karel Faber? Ekkert!
Í hvert sinn sem ég skrifa um þessa skuldseigu þjóð, Hollendinga, sem átti erfitt að borga skaðabætur fyrir þær eignir sem hollenska ríkið nældi sér í eftir að gyðingar höfðu verið myrtir, þá hefur athugasemdin ekki verið birt, eða fjarlægð á hollenskum rabbsíðum. Það var nefnilega þannig að Hollendingar byrjuðu ekki að greiða skuldir sínar aftur og skila eigum gyðinga, sem bankar höfðu tekið traustataki, fyrr en upp úr 1994, og það tók nokkur ár. Nóg var rausað og sumir stjórnarliðar vildu minnka upphæðina. Minnst af þeim greiðslum sem loks voru inntar af hendi fóru til þeirra sem lifðu af eða ættingja þeirra, mest í als kyns sjóði fyrir gyðingasöfnuðu í Hollandi, söfn, rannsóknarverkefni og þvíumlíkt.
Gyðingabörn frá Hollandi, sem myrt voru í Helförinni. Þetta er ekki Anna Frank til hægri.
Gyðingum frá landsbyggðinni í Hollandi smalað í lestir til fangabúðanna í Westerbork.
Hollendingar eru annálaðir fyrir ráðsíu og jafnvel nísku. Það er jafnvel hægt að segja að um þjóðareinkenni sé að ræða. Ekki var laust við að hún kæmi í ljós þegar ríkisstjórn landsins, sem á síðustu 60 árum hefur oftast verið undir stjórn krata, ætti erfitt með að greiða skuld sína. Það tók þá 50 ár að hefja greiðslur. Ekki nóg með það, engin ríkisstjórn Hollands hefur nokkru sinni haft manndóm í sér til að koma með opinbera afsökunarbeiðni til gyðinga Hollands fyrir þá meðferð sem þeir fengu á stríðárunum og eftir stríð. Slíkan nánasahátt er vart hægt að finna annars staðar á byggðu bóli.
Það er alveg hægt, og ekki siðlaust að líkja Icesave skuldinni við skuld Hollendinga við gyðinga. En vert er að benda á tvennt: 90% gyðinga í Hollandi voru myrtar. Icesave varð víst engum, hollensku áhættufíklunum sem á eigin ábyrgð vildu setja fé sitt í hendur Icesave-glæpamannanna að bana. Icesave-bankamenn frá Íslandi voru í raun ekki ósvipaðir nasistum í hugsunarhætti. Flaskaðir upp á þeirri meinloku að Íslendingar væru bestir í heimi og gætu yfirstigið allt. Það er eina, sameiginlega synd margra Íslendinga, þetta helvítis ofmat á getu sína og hæfni.
Íslendingar eru fórnarlömb græðgi, ekki kapítalisma, heldur græðgi, sem ekki er flokksbundinn eiginleiki eins og menn sjá vonandi vel á Íslandi. Nú er hin venjulegi Íslendingur líka orðinn fórnarlamb taumlausrar græðgi okurlánara á Hollandi, sem sjálfir hafa aldrei gert almennilega upp við söguna og sína skuldunauta.
Setella Steinbach, sígaunastúlka frá Hollandi, á leið í dauðann. Þessi mynd var eitt sinn notuð af manni á Vestfjörðum á bloggi sínu til að lýsa eymd byggðarlags síns vegna kvótamála á Íslandi, og það var vel að merkja fyrir hrun. Hvernig ætli sé fyrir vestan nú?
Mannréttindi | Breytt 7.9.2010 kl. 10:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
4.10.2009 | 08:01
Davíð, er algjör arabi á vaktinni?
Hr. Davíð Oddsson ritstjóri. Snemma í morgun var sett frétt á mbl.is. Hún hljóðaði svo í einfaldleika sínum:
Mahmoud Ahmadinejad, forseti Írans, sem ítrekað hefur lýst andúð sinni á gyðingum og Ísrael og sagt helför gyðinga vera lygi, virðist sjálfur vera af gyðingaættum. Þetta fullyrðir breska blaðið Daily Telegraph.
Svo var henni breytt meðan að ég skrifaði þetta og hún öll aukin.
Í upphaflegu fréttinni var enginn tengill við frétt Daily Telegraph. Svo var settur tengill í afar vafasama frétt Daily Telegraph þar sem Ahmadinejad var venslaður við gyðinga. Slíkar sögur hafa flakkað um Miðausturlönd í nokkur ár. Menn kalla hann líka Tyrkja og aðrir segja að hann sé af armenskum ættum. Gott ef ekki hefur verið haldið fram, að hann sé Dani. Ekki var blaðamaður Moggans að hafa fyrir því að tengja í þessa frétt.
Fréttin í Daily Telegraph er annað hvort, tilraun til að vera fyndinn, eða gyðingahatur. Hún er full af rangfærslum og mæli ég með því að menn lesi þetta: http://tracingthetribe.blogspot.com/2009/01/iran-jewish-genealogists-at-work.html
Var maðurinn á myndinni hér að ofan ekki sagður vera af negrum kominn - og það er þó ekki ljótum að líkjast - og ekki skýtur hann yfir markið. Það gerir www.mbl.is hins vegar nokkuð oft. Menn ættu að sjá sóma sinna að vera ekki að lepja furðufréttir af breskum fjölmiðlum nú á hinum síðustu og verstu tímum.
Ég tek það fram vegna fyrirsagnar þeirrar sem ég slengi hér út með þessu morgunbloggi, að arabi var skammaryrði í minni barnæsku í Reykjavík. Menn töluðu um "algjöra araba". Svo ekkert píp frá pólítískt rétthugsandi vælukjóum og grátkerlingum, takk.
![]() |
Ahmadinejad af gyðingaættum? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Mannréttindi | Breytt s.d. kl. 12:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (23)
24.8.2009 | 10:23
Knut Hamsun er mælikvarði á siðferði
Þótt Norðmenn haldi upp á dæmdan landráðamann, sem var aðdáandi gyðingamorðingjans Hitler, er þá nokkur hæfa fyrir Íslendinga að gera það sama? Hamsun á sér þó greinilega einvala lið aðdáenda á Íslandi.
Kannski gerir Avigdor Liberman, umdeildur utanríkisráðherra Ísraels, sér ekki grein fyrir því, að frændur Norðmanna, sumir Íslendingar, eru líklegast ekki minni gyðingahatarar en Norðmenn. Sjáið til dæmis skrif sumra þeirra manna, sem lagt hafa orð í belg í umræðunni við þessa frétt Morgunblaðsins.
Einn þeirra segir, að maður sé ekki gyðingahatari þótt maður sé nasisti. Þessi maður, sem hefur greinilega farið illa út úr íslenska skólakerfinu, hefur hér á blogginu gert það að köllun sinni að vara við "Villa í Köben" (þ.e.a.s. mér), í bloggkynningu á sjálfum sér, vegna þess að ég ver málstað Ísraels og segi stundum sögu gyðinga á bloggi mínu. Menn geta þó líka verið gyðingahatarar, þó þeir séu ekki nasistar.
Jú, nasistar eru allir gyðinghatarar og gyðingahatur er stoðarsteinn nasismans. Nasisminn í Þýskalandi var drifinn áfram af gyðingahatri. Gyðingahatur er líka helsta iðja nýnasista. Og nú hafa vinstri menn bæst í hópinn, eftir að fasistaríkin, sem þeir studdu austantjalds, voru afhjúpuð. Gyðingahatur kommúnistaríkja var ofsafengið og flótti gyðinga frá Póllandi á 7. áratugnum, sem og mikill fjöldi gyðinga í Gúlagi Sovétsins er til marks um það.
Hamsum, sem hataði Breta, og sem hyllti Hilter, var gyðingahatari per exelance. Nóbelsverðlaunin, sem hann fékk árið 1920, eru ekki bólusetning við gyðingahatri. Arafat fékk eins og allir vita friðarverðlaun. Hvenær var hann friðarsinni? Hamsun gaf Göbbels Nóbelsmedalíuna sína í hrifningu yfir nasismanum.
Frá því ég byrjaði að blogga, hef ég öðru hvoru bent mönnum á, að skrif þeirra flokkist undir gyðingahatur. Flokkunina sem ég nota er skilgreind af t.d. Evrópuráðinu og stofnunum ESB. Flestir þeirra sem ég hef gangrýnt sjá ekki galla sína og telja að þeim sé heimilt að skrifa sora og ærumeiðingar um gyðinga. En Það er bannað samkvæmt íslenskum hegningarlögum. Vegna spillingar í íslensku þjóðfélagi, sem er algjör, þar sem ættmenn þeirra sem sendu gyðinga úr landi á Íslandi á 4. áratug síðustu aldar, hafa t.d. gengt stöðu saksóknara, finnst enginn sem vill taka á gróðrarstíu gyðingahaturs á Íslandi. Gyðingahatur er því miður orðin lenska á Íslandi.
Jón Valur Jensson, mikill baráttumaður fyrir frelsi, sem nýlega bað um að gerast bloggvinur minn, segist ekki kannast við gyðingahatur Hamsuns. Maður, sem í ræðu á stríðsárunum lýsir Roosvelt Bandaríkjaforseta á þennan hátt: "Gyðingur í þjónustu Gyðinga", er kannski ekki gyðingahatari? Hvað finnst þér Jón Valur?
Þó svo að sumir Norðmenn verji glósur Hamsuns um gyðinga á þann hátt að þær hafi verið "til siðs" á þessum tíma, þá eru þessar glósur jafnt sem áður, GYÐINGAHATUR. Þetta var hatur sem tíðkaðist fyrir þann tíma að brjálæðingur nokkur í Þýskalandi, sem Hamsun dýrkaði, kom því í kring að 6 milljónir gyðinga voru myrtar, meðan mestur hluti heimsins horfði á án þess að segja nokkuð eða gera. Þó svo að Hamsun hafi grenjað á vitleysingahælinu þegar hann heyrði um örlög gyðinganna, þá breytir það ekki því að hann var stuðningsmaður morðingjanna sem myrtu þá.
Stundum hvarflar það að mér, að það sem var til siðs að segja um gyðinga á tímum Hamsuns, sé komið aftur í tísku, eins og Hamsun.
Hér fáið þið minningarorð Hamsuns um Hitler:
Jeg er ikke verdig til at tale høirøstet om Adolf Hitler, og til nogen sentimental Rørelse indbyder hans Liv og Gjerning ikke.
Han var en Kriger, en Kriger for Menneskeheden og en Forkynder av Evangeliet om Ret for alle Nasjoner. Han var en reformatorisk Skikkelse av høieste Rang, og hans historiske skjebne var den, at han virket i en Tid av eksempelløseste Raahet, som tilslut fældte ham.
Slik tør den almindelige Vesteuropæer se på Adolf Hitler. Og vi, hans nære tilhengere, bøier nu vaare hoder ved hans død.
Knut Hamsun
Þetta var birt í Aftenposten 07. 05. 1945. Nú er Aftenposten að ráðast á ríki Gyðinga. Lengi lifir í gömlum glæðum.
Ef íslensk skítseyði vilja hylla slíka norskan föðurlandssvikara, sem lýsir Hitler eins og hetju, þá er kannski kominn tími til að hafa samband við "Villa öfgamann í Köben", til að láta hann stinga gyðingahatursmælinum í afturendann á ykkur. Þið eru að minnsta kosti með verulegan hita. Svínainflúensu er auðvitað ekki hægt að útiloka, en siðferðið er að minnsta kosti bágt.
Ætli Íslendingar muni halda upp á afmæli landráðamannanna sem settu íslensku þjóðina á hausinn? Nei, ég held ekki að Íslendingar séu eins vitlausir og Norðmenn, enda flýðu þeir Noreg fyrir 1100 árum. Hver vill láta skipa sér í sveit með þjóð, sem telur að makríllinn tali norsku?
![]() |
Segir Norðmenn hata gyðinga |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Mannréttindi | Breytt s.d. kl. 11:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (22)
4.7.2009 | 22:13
Lars Christensen har talt
... og han har ret som altid.
Mennirnir sem við elskuðum að hata hafa talað. Davíð hefur rænt sviðsljósinu í kvöld. En hlustum nú líka á Banka Lása án þess að hata hann og fordæma eins og Davíð gerði.
Lars Christensen hjá Danske Bank, sem allir hötuðu fyrir að segja sannleikann í litríkum skýrslum sínum hér um árið, þar sem hann líkti íslenskum efnahag við goshveri. Hann hafði á réttu að standa. Nú álítur hann réttast að við lýsum yfir þjóðargjaldþroti.
Hvað er hægt að gera annað með ríkisstjórn eins og þá sem nú er við völd, sem vill selja okkur í þrælkun?
Ráðum Lars Christensen og setjum hann á skrifstofu við hliðina á Joly. Lars Christensen verði þrotabússtjóri Íslands.
Í alvöru talað, Ísland er á kúpunni. Viðurkennum það og byrjum upp á nýtt, án skuldbindinga við skallakomma og upplitaðar kratakerlingablækur með vota ESB-drauma. Höfnum Icesave frumvarpinu með rökhugsun og raunsæi.
Við erum ekki mikilvægari en það, þótt sumir hafi haldið að við hefðum hlutverki að gegna á meðal þjóðanna og værum rétttæk í Öryggisráð SÞ og önnur leiðtogahlutverk. Sjáið hvert sá hybris leiddi okkur.
Lars bendir okkur á Argentínu. Argentínumenn halda tign sinni og dansa enn tangó, þótt allt hafi farið á hausinn. Það getum við líka og sleppt við að verða þrælar.
Og ef George Brown vill setja okkur á hryðjuverkalistann sinn, sá hlægilegi manngarmur, þá gerir hann það í einu af æðisköstum sínum og við munum hlæja að honum eins og allir hlæja af kækjum hans.
Ísland er gjaldþrota. En enginn er dáinn. Enginn missti lífið í Hollandi né Bretlandseyjum. Sumir þeirra sem komu okkur á hausinn ættu að fá 4000 ára fangelsi ef réttarkerfið væri eins og í BNA. Kæmust út eftir 2000 ár fyrir góða hegðun. Þeir munu borga með því að fá aldrei að koma nálægt viðskiptum aftur.
Tak Lars Christensen, nu er jeg enig med dig! Du er faneme en god ven af Island! Lad os håbe nogen lytter til dig denne gang.
Mannréttindi | Breytt s.d. kl. 23:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
15.6.2009 | 08:15
Þjóðnýtingin á Kjarval
Ég gaf mér loks tíma um daginn til að lesa blogg Ingimundar Kjarvals. Í dag er hann með færslu sem allir verða að lesa og sjá.
Mikið ósköp finn ég til með Ingimundi. Hann er fórnarlamb dómskerfis sem er álíka rotið og sá klíkuskapur og hyskisháttur sem setti íslensku þjóðina á hausinn.
Stundum held ég að eftir 1944 hafi Íslandi verið stjórnað af eintómu snobbuðu og gráðugu glæpahyski.
Íslenskir dómstólar eru greinilega ekki upp á marga fiska. Það er tilfinningin sem maður situr eftir með, þegar maður hefur séð hvernig íslenskir dómstólar umgangast skjöl og heimildir í málinu um arfleifð Kjarvals.
Hvenær ætli þetta skyldleikaræktaða kerfi hafi breyst, og hverning á það að geta dæmt þá sem settu Ísland á hausinn? Er þjóðin ekki farin að sjá að ekkert mun gerast, nema að róttækar breytingar verði á?
Ég er sammála Ingimundi Kjarval. Reykjavíkurborg á ekki verk Kjarvals fyrir fimm aura. Þeim var stolið.
Kjarvalsstöðum ætti sem fyrst að breyta í safn um það hvernig Íslendingar voru dregnir á asnaeyrum, í mónument yfir nepótisma græðginnar og smeðjulegs snobbs sem tröllriðið hefur Íslandi.
Ætli Guðmundi Andra Thorssyni, sem hér horfir á meistara Kjarval undrunaraugum, hugnist að verk Thors Vilhjálmssonar verði þjóðnýtt?
Mannréttindi | Breytt s.d. kl. 08:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
13.6.2009 | 07:42
Öfgahyggja Evrópukratanna
Fjölmiðlar á Íslandi, sem og annars staðar, hafa keppst við að segja okkur frá sigri hægriöfgaafla í Evrópuþingskosningum sl. sunnudag. Oft mætti skilja á máli einfeldninga í röðum blaða- og fréttamanna, að allir flokkar til hægri séu öfgaflokkar. Ef Íslendingar lenda í ormagryfju ESB vegna öfga íslenskra naívista í stjórnmálum, mun Sjálfstæðisflokkurinn líklega lenda á lista yfir öfgaflokka.
Þessi færsla er nauðsynleg á Íslandi, þar sem fréttaflutningurinn á Íslandi af sigri hægriafla í ESB lauk með lummulegri lygasögu óupplýstra fréttasnápa.
Æsingur European Jewish Congress (EJC) yfir Dansk Folkeparti byggir á misskilningi, sem kona Søren Espersens þingmanns flokksins hefur líst ágætlega fyrir EJC. Kona Espersens, Yvette Espersen, er gyðingur.
I agree that we should be doing all that we can to fight anti-Semitism - but I feel that the blinkered view that it is just the rightwing groups in Europe that are anti-Semitic is a dangerous road. Some of the very successful left wing groups growing in Europe have been showing disturbing anti-Semitic tendencies in their attack on Israel and as a consequence giving authority for an attack on the Jewish people. Maybe it would a good idea that the European Jewish Congress also begin to take a look at these groups in Denmark - instead of attacking the only the political party in Denmark that has stood side by side with Israel and fought anti-Semitic growing tendencies in Denmark.
Finn Rudaizky, gyðingur, sem fyrrum var krati, en er nú genginn yfir í raðir Dansk Folkeparti, skrifaði EJC m.a.:
It would be respectable and fair that the Jewish Congregation should demand a correction.
I am deeply shocked that the European Jewish Congress, where I have participated in many meetings, could send such a false description of a political party, which has quite a number of Jewish members and sympathisers. Including Jewish members who were active and have fought Nazism and whose families have suffered during the Nazi's barbaric murders in KZ camps.
Mótmælunum rigndi yfir EJC frá gyðingum í Danmörku, meðal annars Finn Schwarz, formanni gyðingasafnaðarins í Kaupmannahöfn sem krafðist að DF yrði fjarlægt frá yfirlýsingu EJC um öfgaflokka sem hatast út í gyðinga, um leið og hann undirstrikar að hann sé sjálfur ekki í röðum DF.
En hvað er EJC? Sumir gyðingar eru á því að EJC sé orðin að eins konar öfgasamtök. Þar eru sovétískt ástand. Þar er rússneski auðjöfurinn Viatcheslav Moshe Kantor allsráðandi. Hver er þessi Kantor? Jú, Hann er ísraelskur þegn, en er ekki með bankareikning í Ísrael. Þegar ísraelsk yfirvöld eru ekki að rannsaka fjármál hans, er hann að klappa arabískum hestum á búgarði sínum í Rússlandi og safna ómetanlegum listmunum. Þetta er fær maður sem sigldi í góðum byr á Sovéttímanum, var hollur flokksmaður í kommúnistaflokknum og vinur Jeltsíns sem hlóð undir er hann var við völd. Hann er nú hin fremsta skósleikja Pútíns Rússlandskeisara. Talið er víst að Kantor hafi komið öðrum gyðingi í dýflissur Pútíns, það er Mikhail Khodorkovsky. Hve stórir gyðingavinir forseti og forætisráðherra Rússlands eru, orkar tvímælis, en Viatcheslav Kantor hefur auðvitað ekki talið ástæðu til að gangrýna þá. Kantor hefur lýst því yfir, að hann sé fyrir Pútín, það sem Jósef var fyrir Faraóinn forðum í Egyptalandi. Kantor, sem komst til valda í EJC með hjálp krata, er kannski ekki rétti maðurinn til að tjá sig um öfgar.
... en hann styður aðgerðir Pútíns gegn sumum gyðingum.
EJC er búið að fjarlæga Dansk Folkeparti frá yfirlýsingu sinni, en samtökin vilja ekki tjá sig um málið við fjölmiðla í Danmörku. Kantor er líklega of upptekinn að sendast fyrir Pútín. Gyðingar í Danmörku spyrja sig nú hvar Kantor, sem flutti ræðu á hátíð í samkunduhúsi gyðinga í Kaupmannahöfn í fyrra, hafi fengið þær upplýsingar að Dansk Folkeparti, væri flokkur gyðingahatara?
![]() |
Gyðingar óttast framgang hægri öfgaflokka |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Mannréttindi | Breytt s.d. kl. 08:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
25.3.2009 | 08:57
Púðurtunna í Menntamálaráðuneytinu
Nú ræður Katrín Jakobsdóttir ríkjum í Menntamálaráðuneytinu. 9. janúar sl. skrifaði Katrín blogg sem hún kallar Börnum Slátrað og fjallaði bloggið vitaskuld um Gaza, það svæði sem Vinstri Grænir taka jafnvel fram yfir Ísland í aðgerðaráætlunum á krepputímum.
Þar segist Menntamálaráðherrann núverandi vitna í skýrslu Human Rights Watch . En kann Katrín að vitna rétt í heimildir? Svo virðist ekki vera:
Katrín skrifar:
En ef horft er t.d. á eldflaugaárásir kemur fram í skýrslu Human Rights Watch-samtakanna að árið 2007 skaut Ísrael 14.617 eldflaugum yfir á Gasasvæðið. Á sama tíma var 2.700 flaugum skotið inn í Ísrael. Þessar tölur sýna auðvitað að svæðið er púðurtunna.
En í afar umdeildri og mikið gagnrýndri skýrslu Human Rights Watch, stendur m.a. þetta :
From September 2005 through May 2007, Palestinian armed groups fired almost 2,700 rockets into Israel, killing 4 Israeli civilians, and injuring 75 civilians and at least 9 soldiers, according to the United Nations Office for the Coordination of Humanitarian Affairs.
Og um skothríð Ísraelsmanna stendur
From September 2005 through May 2007, the same period covered by the rocket attack statistics cited above, the IDF fired 14,617 artillery shells into Gaza. This fire killed at least 59 people, wounded another 270 people, and did significant damage to many civilian structures .... .... Most of the artillery shells that the IDF fired into Gaza in this period landed in open areas, and the great majority did not result in civilian casualties
Hér sjáum við að menntamálaráðherrann, sem hefur nýlega háskólagráðu, getur ekki greint eða lesið texta rétt. Hún heldur því fram að tölur Human Rights Watch séu frá árinu 2007. Þær eru frá 2005-2007. Hún talar um eldflaugar beggja aðila, en skýrslan með öllum sínum villum talar greinilega um "rockets" Palestínumanna, en "artillery shells" Ísraelsmanna. Þar að auki nefnir Katrín Jakobsdóttir ekki að flestar artillery shells" sem Ísraelsher skutu inn í Gaza á þessum tíma hafi lent á opnum svæðum og það með ásetningi. Ísraelmenn stefna ekki að útrýmingu Palestínumanna eins og Hamas stefnir að útrýmingu Ísraelsmanna og gyðinga.
Hún segir okkur heldur ekki frá því að Hamas hafi myrt fleiri af sínum meðbræðrum á þessum tíma, en þeim fjölda fólks sem talið er að grandað hafi verið af ísraelskum kúlum. Hún segir okkur ekki frá þeim fjölda fólks sem Hamas hefur grandað með vopnum sem sprungu fyrir slysni" áður en átti að drepa Ísraelsmenn með þeim. Hún nefnir ekki múrinn/vegginn/girðinguna sem komið hefur í veg fyrir hryðjuverk í Ísrael. Vegginn sér hún sem aðferð Ísraels til að innlima land Palestínumanna.
Ég hef til gamans athugað hvort Katrín Jakobsdóttir hefur t.d. skrifað um skipulega slátrun barna og kvenna í Darfúr, en svo virðist ekki vera.
Katrín virðist því mjög lituð af fyrirframgefnum skoðunum sínum. Lituð af rauðum lit (sem er víst grænn í augum litblindra) og sem er litur blóðsins. Hún er lituð af hatri í garð einnar þjóðar. Það þykir mér ekki efnilegt fyrir Menntamálaráðherra eða ráðherra yfirleitt.
Bið ég því nú menntamálaráðherra að efla kennslu um helför gyðinga, sem Íslendingar lofuðu að þeir myndu gera á Alþjóðlegri ráðstefnu árið 2000. En loforðin voru auðvitað svikin (sjá hér, tilvitnun 44).
Mannréttindi | Breytt s.d. kl. 09:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (17)
22.3.2009 | 10:14
Gyðingahatur er enn leyft á blogginu
Það verður að viðurkennast, að fólk sem bloggar er flest með einhverjar lausar skrúfur. Sumir eru minna hertir en aðrir og sumir eru illa forskrúfaðir. Aðrir eru hins vegar alveg búnir að tína flestum skrúfum og fittingum og mikilvægir partar er jafnvel farnir að hrynja af.
Þorsteinn Scheving Thorsteinsson
Þetta versta stig á líklega við um Þorstein Scheving Thorsteinsson. Nafnið hljómar eins og þarna sé á ferðinni einhver ættarlaukur með ljómandi og svalandi framtíð fyrir sér. Ekki þekki ég neitt til mannsins. En hann hefur greinilega eytt framtíð sinni í nýnasistarugl, firru Ku Klux Klan og fáránleika gyðingahaturs. Það voru vitanlega oft rotnir laukar í poka frá kjörbúð SS og ekki held ég að ættmenn Þorsteins séu mjög sammála Þorsteini frænda sínum á blogginu. Líklegra er að kóngulær haturs hafi vafið Þorstein í net sitt, eins og klámfætlan vefur öðrum um fætur sér. Veraldarvefurinn getur verið hættulegur þeim sem ekki geta greint á milli rétts og rangs, á milli sannleika og lygi.
Þorsteinn stundar einkennilegt samlífi við hatursmenn Ísraels og gyðinga á blogginu. Í hvert sinn sem einhver skrifar um Ísrael - og oftast er það ljótt og hatursfullt - er Þorsteinn kominn með langar runur af tilvitnunum í hitt og þetta sem hann hefur villst í á netinu, og sem hann trúir sem nýslegnum túskildingi.
Þorsteinn vitnar t.d. í orð, sem hann heldur fram að Nóbelsverðlaunahafinn Menachem Begin hafi látið eftir sér.
Begin á að hafa sagt: Our race is the Master Race. We are divine gods on this planet. We are as different from the inferior races as they are from insects. In fact, compared to our race, other races are beasts and animals, cattle at best. Other races are considered as human excrement. Our destiny is to rule over the inferior races. Our earthly kingdom will be ruled by our leader with a rod of iron. The masses will lick our feet and serve us as our slaves."
Þetta hefur Menachim Begin aldrei sagt. Þessi orð tilheyra Texe Marrs, sem er öfga"kristinn" gyðingahatari og helfararafneitari í Bandaríkjunum. Þessi fölsuðu orð Menachims Begins birtust fyrst á heimasíðu Marrs. Þar er að finna alls kyns falsupplýsingar um gyðinga, sem Marrs hatar eins og pestina. Marrs hefur aldrei sagt mönnum hvar Begin á að haf látið fyrrgreind orð falla, og Þorsteinn, sem er afar sólginn í allar "upplýsingar" Marrs, getur heldur ekki upplýst neinn um það.
Marrs vitnar reglulega í falsrit frá 19. öld, sem íslenskur jafnaðarmaður, já alíslenskur jafnaðarmaður og Alþingismaður, Jónas Gumundsson, lét prenta árið 1951 undir heitinu Samsærisáætlunin mikla; Siðareglur Zíonsöldunga). Það rit notuðu m.a. rússneskir keisarar og rússneska kirkjan til að ofsækja gyðinga, myrða þá og hrekja þá á braut. Í opinberri yfirlýsingu Hamas hryðjuverkasamtakanna frá 1988 er reyndar einnig vitnað í þetta rússneska falsrit gyðingahatara frá lokum 19. aldar (þekkt á ensku undir heitinu The Protocols of the Elders of Zion). Sjá frekar hér.
Marrs hefur einnig lagt mörgum öðrum gyðingum orð í munn, t.d. Nóbelsverðlaunahafanum Elie Wiesel, sem nasistum tókst ekki að útrýma. Elie Wiesel hefur helgað líf sitt upplýsingunni um helförina. Nú reynir Þorsteinn Scheving Thorsteinsson á Íslandi að útrýma Elie Wiesels á moggablogginu með svínaríi frá einum frumstæðasta forarpytti BNA. Enginn grípur inn í þetta og fjölmargir bloggarar leyfa meira að segja Þorsteini Scheving Thorsteinssyni að valsa með hatur sitt á síðum þeirra. Nokkrir eru jafnvel sammála honum, og þar á meðal svokallaðir gæðabloggarar Moggabloggsins.
Fangar í Buchenwald. Elie Wiesel er lengst til hægri í efri bás. Þorsteinn Scheving Thorsteinsson er með lygaáróðurum Elie Wiesel á Morgunblaðsblogginu.
Þorsteinn Scheving Thorsteinsson sem stundar gyðingahatur og svívirðingu á trú gyðinga, gefur í skyn að helförin (Shoah) hafi ekki átt sér stað og sem telur Osama bin Laden vera fórnarlamb samsæris gyðinga er enn að á Morgunblaðsblogginu. Er það ekki næg ástæða til að útiloka Þorstein Scheving Thorsteinsson frá blogginu? Menn hafa verið reknir héðan af moggablogginu fyrir að vitna beint og orðrétt í Kóraninn. En um gyðinga má greinilega segja allt og skrifa á Íslandi, sér í lagi á Moggablogginu. Getur þetta verið rétt?
Þorsteini er eins og nasistum Þýskalands og einfeldningum nútímans, sem styðja hópa sem vilja útrýma Ísraelsríki, gjarnt á að tala um gyðinga sem Guðs útvöldu þjóð. Nú leggja gyðingar reyndar ekki sömu merkingu í orðin Am Nivchar ,"Guðs útvalda þjóð", og hatursmenn gyðinga. Gyðingahatarar hafa lagt rasíska meiningu í þessi orð, eftir að kristnir gyðingahatarar tönnluðust á þeim í aldalöngu hatri sínu. Ég hef margsinnis bent hatursfullum áhangendum Hamas og Hizbullah á Íslandi, sem einnig eru uppteknir af hinni "Útvöldum þjóð" (sem þeir stefna að því að eyða), á að kynna sér túlkun gyðinga á Am Nivchar. En þegar hatrið er annars vegar, er skilningurinn sljór. Vel menntaðir menn og prestar á Íslandi hafa einnig verið með háðsglósur gegn gyðingum og Ísraelríki. Hvar eru mannréttindaljósin á Íslandi? Ja, sumir þeirra taka reyndar þátt í níðingssöngnum um "Guðs útvöldu þjóð".
Þorsteini er einnig margtalað um Khazara. Kenningin um Khazara, sem eiga að vera ættfeður Ashkenaz gyðinga er fyrir löngu fallin um sjálfa sig. Margir Khazarar tóku gyðingatrú á 9. öld, en þeir eru ekki ættfeður gyðinga í dag nema að mjög litlu leyti. Gyðingar, sem eru Ashkenaz, eru náttúrulega stoltir af því að sumir forfeður þeirra voru Khazarar og að sumir Khazarar reyndust gyðingum vel, miklu betur en t.d. Íslendingar á fjórða áratug síðustu aldar. Markmið Þorsteins með því að vifta Khazarkenningum, er að halda því fram að gyðingar sem í dag búa í Ísrael séu ekki afkomendur þeirra gyðinga sem hraktir voru frá landi sínu fyrr á öldum; Að þeir eigi þess vegna engan rétt til búsetu í Palestínu. Palestínuvinirnir geta vart haldið vatni yfir þessari speki Þorsteins. Þorsteinn á t.d. ungan Moggabloggvin af góðum Sjálfstæðismannaættum, sem tók þátt í "friðarráðstefnu" múslímska bræðralagsins í Kaíró, sem hefur útrýmingu Ísraelsríkis á dagsskrá sinni.
Erfðafræðirannsóknir hafa sýnt, að Khazarakenningin á ekki við nein rök að styðjast. DNA rannsóknir hafa reyndar líka sýnt, að þeir sem bera nafnið Ashkenazi og lík nöfn, eins og landsmaður okkar, píanósnillingurinn Vladimir, eru flestir hverjir komnir af þeim meiði gyðinga sem geta rakið ættir sínar til Spánar og Portúgal, til Norðurafríku og Austurlanda nær.
Þorsteini er einnig annt um að greina okkur frá því, að til séu gyðingar sem ekki eru zíonistar og sem séu mótfallnir Ísraelríki. Því er ekki hægt að neita, að fámennur hópur Satmar-gyðinga, skyldleikaræktaðs ofsatrúarsafnaðar frá Rúmeníu langar helst að búa áfram í gettóum í svörtustu Austur-Evrópu í fötum frá 18.öld og láta kósakka og nasista slátra sér eða nauðga. Satmar-gyðingar, sem ekki viðurkenna Ísraelsríki, eru ekki einu sinni komnir af Khazörum.
Fyrir utan þá rasísku frasa sem Þorsteinn veður í, ræðst hann með fúkyrðum, lygum og ósóma á trúa gyðinga og trúarrit.
Ég bið virðulega umsjónamenn Morgunblaðsbloggsins og lögfræðing blaðsins að hafa samband við Þorstein Scheving Thorsteinsson og kynna honum lagaramma hegningarlaganna og biðja hann að fara með ósóma og hatursræðu sína um trú, trúarrit, uppruna, orð og ríki gyðinga annað en á Moggabloggið.
Við lifum á 21. öld og Morgunblaðið verður að fara að fylgjast með. Það telst hvorki til mannréttinda né ritfrelsis að svína gyðinga til. Mannréttindasáttmáli SÞ varð m.a. til í minningu 6.000.000 gyðinga, sem voru fórnarlömb manna sem hötuðu gyðinga og trú þeirra og kyn. Er mönnum stætt að trampa á minningu fórnarlamba Helfararinna á Morgunblaðsblogginu?
Mannréttindi | Breytt s.d. kl. 10:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
Bækur
Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs
-
Nýtt blogg um fornleifafræði
FORNLEIFUR -
Þrælasalar í Norðurhöfum
Grein í Lesbók Mbl. 1999 -
: Ritaskrá 1972-2013 -
Fyrri færsla
Jakki Kiljans Laxness -
Bein Páls Biskups
Kveðskapur -
: Flóttamaðurinn Alfred Kempner -
Pepsi var á Ströndum
Gosdrykkjasaga -
Mótmælum Durban II
Meira -
Ved Helvedes Port
Grein mín í SKALK. Nr.4,1994. -
: Gyðingar á Grænlandi
Fyrri færsla og tenging við grein eftir mig á dönsku um gyðinga á Grænlandi -
Flogið hátt
Grein mín um fyrsta flug flugbels á Íslandi -
Fyrri færsla
Líkþráir Íslendingar -
: Lesið hér (ISBN: 978-965-218-066-7)
Behind the Humanitarian Mask; The Nordic Countries, Israel and the Jews. Edited by Manfred Gerstenfeld. -
Fyrri færsla
Vinir útlendinganna -
Fyrri færsla
Nakinn sannleikur -
Ungr var ek forðum
Færsla um óeirðir og læti í æsku minni -
Fyrri færsla
Þegar Gúttó varð samkunduhús gyðinga -
Fyrri færsla
Vive l'(Gr)islande -
Fyrri Færsla
Nifalt húrra -
Íslenskar frúr í Andvörpum
Um ferðir útrásar-Íslendinga á 16. öld. Lesbók Morgunblaðsins 28.águst 1999. -
Fyrri færsla
Berlínarboogie Laxness -
Fyrri færsla
Pabbi Þórs var myrtur í Auschwitz -
Falskir Íslendingar
Grein um þjóðarstolt -
En dansk krigsforbryder
Grein í Weekendavisen um versta stríðsglæpa- mann Dana, sem dönsk yfirvöld vildu helst gleyma. -
Anti-Semitism in Iceland. Is that possible? -
Iceland, the Jews, and Anti-Semitism, 1625-2004
Grein á ensku um gyðinga á Íslandi -
Ich weiss, was ich zu tun habe
Grein mín um Georg F. Duckwitz, nasistann sem á að hafa verið potturinn og pannan við björgun gyðinga í Danmörku. Í greininni sem birtist í tímaritinu Rambam 15:2006 er gerð grein fyrir fjölmörgu sem danskir sagnfræðingar hafa gleymt að rannsaka. Hlutverk Duckwitz verður nú að endurskoða. -
Grein
The King and the Star í: Denmark and the Holocaust (2003) (ISBN: ISBN 87-989305-1-6) -
: Rescue, Expulsion, and Collaboration: Denmark's Difficulties with its World War II Past
Jewish Political Studies Review 18:3-4 (Fall 2006; Tímarit sem ég hef skrifað töluvert í -
: 20 Begivenheder der skabte Danmark (ISBN: 87-02-0516-7)
Ég er meðhöfundur að einum af köflum bókarinnar. -
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson: Medaljens Bagside - Jødiske flygtningeskæbner i Danmark 1933-1945 (ISBN: 87-91393-60-4 ) Forlaget Vandkunsten 2005. Bók mín um meðferð danskra yfirvalda á flóttafólki á 4. og 5. áratugi 20. aldar.
Meira
Nýjustu færslur
- Viðreisnarklappstýran
- Tapað-fundið á DV
- Ekki fleiri sokka frá Íslandi, TAKK.
- Trumpur Eyjajarl
- Á mér stendur ..... Bjarni Ben
- Minnislaus síðan í síðustu ESB-kosningu
- Gamlir dónar sem fokka sér - Meet the Fockers II
- Icelandic Police Bared
- Niðurstaðan: KiSS or Bæjarins beztu
- Zelenskij fór í ranga flugvél - verður í Færeyjum næstu dagana
- Sjúklega svæsinn gyðingahatari er vinsæll á Moggablogginu
- Valdemar á svölunum er látinn
- Svæsnir fordómar eru ekki hluti af málfrelsi og tjáningu
- Ástráður eins og lús á feldi
- Utanríkisráðherra eyðir um efni fram í útlöndum
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (7.6.): 11
- Sl. sólarhring: 12
- Sl. viku: 60
- Frá upphafi: 1355366
Annað
- Innlit í dag: 9
- Innlit sl. viku: 42
- Gestir í dag: 9
- IP-tölur í dag: 9
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Apríl 2025
- Mars 2025
- Janúar 2025
- Júlí 2024
- Apríl 2024
- Febrúar 2024
- Desember 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Ágúst 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Júlí 2021
- Maí 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- Ágúst 2020
- Maí 2020
- Nóvember 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Júlí 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Janúar 2017
- Nóvember 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Nóvember 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007