Leita í fréttum mbl.is

Lars Christensen har talt

Iceland graf #1

... og han har ret som altid. 

Mennirnir sem við elskuðum að hata hafa talað. Davíð hefur rænt sviðsljósinu í kvöld. En hlustum nú líka á Banka Lása án þess að hata hann og fordæma eins og Davíð gerði.

Lars Christensen hjá Danske Bank, sem allir hötuðu fyrir að segja sannleikann í litríkum skýrslum sínum  hér um árið, þar sem  hann líkti íslenskum efnahag við goshveri.  Hann hafði á réttu að standa. Nú álítur hann réttast að við lýsum yfir þjóðargjaldþroti.

Hvað er hægt að gera annað með ríkisstjórn eins og þá sem nú er við völd, sem vill selja okkur í þrælkun?  

Ráðum Lars Christensen og setjum hann á skrifstofu við hliðina á Joly. Lars Christensen verði þrotabússtjóri Íslands.

Í alvöru talað, Ísland er á kúpunni. Viðurkennum það og byrjum upp á nýtt, án skuldbindinga við skallakomma og upplitaðar kratakerlingablækur með vota ESB-drauma. Höfnum Icesave frumvarpinu með rökhugsun og raunsæi.

Við erum ekki mikilvægari en það, þótt sumir hafi haldið að við hefðum hlutverki að gegna á meðal þjóðanna og værum rétttæk í Öryggisráð SÞ og önnur leiðtogahlutverk. Sjáið hvert sá hybris leiddi okkur.

Lars bendir okkur á Argentínu. Argentínumenn halda tign sinni og dansa enn tangó, þótt allt hafi farið á hausinn. Það getum við líka og sleppt við að verða þrælar. 

Og ef George Brown vill setja okkur á hryðjuverkalistann sinn, sá hlægilegi manngarmur, þá gerir hann það í einu af æðisköstum sínum og við munum hlæja að honum eins og allir hlæja af kækjum hans.

Ísland er gjaldþrota. En enginn er dáinn. Enginn missti lífið í Hollandi né Bretlandseyjum. Sumir þeirra sem komu okkur á hausinn ættu að fá 4000 ára fangelsi ef réttarkerfið væri eins og í BNA. Kæmust út eftir 2000 ár fyrir góða hegðun. Þeir munu borga með því að fá aldrei að koma nálægt viðskiptum aftur.

Tak Lars Christensen, nu er jeg enig med dig! Du er faneme en god ven af Island! Lad os håbe nogen lytter til dig denne gang.

Lars Christensen
Bank Lars

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

ég viðurkenni að þetta voru föðurlandssvik fyrir svefninn. En ég er sammála Lars.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 4.7.2009 kl. 22:27

2 Smámynd: Ólafur Eiríksson

Það er spurning hvort að þú tekur að þér að stíga á stokk fyrir okkur í Danaveldi og útskýra fyrir þeim enn og aftur hvað þeir eru vitlausir og ólæsir á íslensk fjármál. Við höfum tæpast efni á þotueldsneyti undir heila sendinefnd.

Ólafur Eiríksson, 4.7.2009 kl. 22:31

3 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Hann getur siglt með fyrsta skipi. Engin ástæða til að senda neinn til Danmerkur, þegar gjaldeyrisforðinn er þurrausinn.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 4.7.2009 kl. 22:38

4 identicon

Jamm. Held að Lassi danski viti nú kannski betur en að Argentínumenn stígi tangó á lánamörkuðunum. Þeir bera kannski fæturna hratt en ekki bera þeir höfuðið hátt.

Við sitjum uppi með Ice-safe. Því er nú fjandans verr og miður. Það verður neglingur að borga þetta sukk. Og svo Dave-safe líka eftir að Seðlabankahróið fór á hausinn í vetur leið. En það hefst, það hefst … kannski.

Kristján Sveinsson (IP-tala skráð) 5.7.2009 kl. 00:27

5 Smámynd: Ólafur Eiríksson

Fyrst Vilhjálmur vill ekki taka að sér að fræða Dani um þeirra fáfræði varðandi íslensk efnahagsmál - fyrir okkar hönd. Þá verðum við líklega að senda nefnd með haustskipinu. Vonandi eigum við nægilega sjóhrausta embættismenn í verkið og nægilega dugmikla til að þrauka í Köben yfir veturinn án stuðnings frá Íslandi þar til vorskipið flytur þá aftur hingað í selspik og hvalket.

Fréttir á íslensku af því sem Lars Cristensen sagði eru reyndar í stíl við annað. Hann var ekki að stinga upp á þjóðargjaldþroti heldur því að við semdum við lánadrottna á réttum forsendum - sem eru þær að erlendar skuldir eru á jaðri hins mögulega. 

Ps.

Meintir þú ekki hubris Vilhjálmur?

Ólafur Eiríksson, 5.7.2009 kl. 03:49

6 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Nei Ólafur, ég meinti HYBRIS. Hubris er enska útgáfan. Marga Íslendinga vantar ventla. Þeir halda að þeir séu mestir, bestir og færastir í heimi hér. T.d. hæfir til að borga af "skuld" sem engir aðrir myndu borga. Menn geta það ómögulega á Íslandi. Ég tel mig ekki hæfan til að greiða fyrir afglöð örfárra manna.

Við getum ekki tekið sameiginlega (kollektíva) skuld frekar en aðrar þjóðir. Þýska þjóðin myrti ekki alla gyðinga. Það gerði aðeins hluti þýsku þjóðarinnar. Við eigum að taka á okkur reikning fyrir syndir sem enginn dó út af.

Ólafur Eiríksson, erlendar skuldir Íslands eru ekki á jaðri hins mögulega. Icesave samningurinn er afleikur íslenskrar nefndar sem stjórnað er af manni sem er haldinn hybris. Hann telur eins og skoðanabræður hans og systur, sem áður voru höll undir Stalín, Lenín og aðra morðhunda, að við eigum að meðtaka nemesis örfárra manna.

Þjóðargjaldþrot, sem mun skella á (og nú leggst á mig hybris) mun vera miklu betri lending en dansinn við Icesave skuldirnar. Ég er á því að Johan Barnard sem ég talaði við á Föstudaginn væri sammála mér um það. En hann vinnur auðvitað sem handrukkari fyrir sína þjóð. Hann veit að þjóðargjaldþrot væri best fyrir Íslendinga, en hann veit að þá tekst honum ekki ætlunarverkið.

Við erum hins vegar með ríkisstjórn sem vinnur á móti sinni þjóð! Það er engin hæfa.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 5.7.2009 kl. 08:19

7 Smámynd: Sigurgeir Orri Sigurgeirsson

Ekki gleyma að Danske Bank var í samkeppni og þeir ætluðu að shorta krónuna daginn eftir að skýrslan kom út en voru svo óheppnir að lenda á sumardaginn fyrsta (Kauphöllin lokuð) og lífeyrissjóðirnir fréttu af þessu og vörðu krónuna. Annað er að þessi danski snillingur setti fram sínar spár áður en Icesave varð til. Veit ekki hvort þetta er á almennu vitorði, en sýnir að enginn er annars bróðir í leik.

Sigurgeir Orri Sigurgeirsson, 5.7.2009 kl. 10:47

8 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Rangt Sigurgeir, þessa samsæriskenningu þína kaupi ég ekki. Icesave var ekki efni skýrslu Christensen árið 2006. En Icesave varð til þegar varnaðarorð hans voru sem hæst. Enginn hlustaði, allir vissu betur og fínu drengirnir byrjuðu að græða á svikamyllu sinni, sem þý og þjóðin viljið boga nú.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 5.7.2009 kl. 11:14

9 Smámynd: Einar Guðjónsson

Þetta er auðvitað alveg rétt ályktun hjá Lars.Miklu betra að semja við kröfuhafa með niðurfærslu.Aðgengi að erlendum fjármálamörkuðum er ekki nauðsynleg nema tekist verði á við hina dýru og landlægu spillingu.Engin vill lána íslendingum vegna spillingarinnar, áhugaleysis á að halda uppi lögum og að komast að því hvað varð um peningana, ekkert eftirlit etc og rekstrarkosnaður nýbankanna upp á 38. milljarða í ár.Það eru veglegar atvinnuleysisbætur og ekkert að gera nema að vera á tæturunum.Allt sama fólkið og engin lánveitandi né lántakar vilja eiga viðskipti við þá.Bankarnir hér eru óstarfhæfir því að aðeins 12.000. íslendingar treysta þeim og starfsmenn þeirra eru 4000.Það þýðir að í meðalfjölskyldu bankamanns eru það ekki einu sinni allir fjölskyldumeðlimir mannsins sem treysta honum.Að eigandinn VG banki skuli ekki skilja þetta sýnir mikið vanhæfi.

Einar Guðjónsson, 5.7.2009 kl. 12:07

10 identicon

Nú fáum vid Börge Rosenbaum, alias Viktor Borge til ad koma okkur öllum i gott skap. Thessi óvidjafnanlegi listamadur og komiker spilar af fingrum fram á ógleymanlegum tónleikum í Stokkhólmi ásamt Anton Kontras:

http://www.youtube.com/watch?v=tvUbrbFdJ8g

S.H. (IP-tala skráð) 5.7.2009 kl. 12:46

11 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Eitt sinn fékk Lalli Johns 6 mánuði fyrir að stela sígarettukartoni. Árni Johansen var dæmdur fyrir skjalafals, umboðssvik, fjársvik, mútuþægni, stuld og fyrir að bregðast trausti sem opinber umsýslunarmaður ríkisins og fékk 2 ár. hann slapp út eftir eitt ár og hótaði að fletta ofana af miklu alvarlegri glæpum ef hann fengi ekki að  bjóða sig fram. Það liðu ekki nema 3 vikur frá þessari hótun þangað til Björn Bjarna, Gunnlaugur Klassen, Sólveig Pétursdóttir og Geir Haarde voru búin hreinsa mannorð hans.

 Miðað við þetta þurfa útrásarvíkingarnir engu að kvíða.

Sigurður Þórðarson, 6.7.2009 kl. 00:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bækur

Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband