Leita í fréttum mbl.is

Öfgahyggja Evrópukratanna

 

Judar_jpg_280x600_q95

 

Fjölmiðlar á Íslandi, sem og annars staðar, hafa keppst við að segja okkur frá sigri hægriöfgaafla í Evrópuþingskosningum sl. sunnudag. Oft mætti skilja á máli einfeldninga í röðum blaða- og fréttamanna, að allir flokkar til hægri séu öfgaflokkar. Ef Íslendingar lenda í ormagryfju ESB vegna öfga íslenskra naívista í stjórnmálum, mun Sjálfstæðisflokkurinn líklega lenda á lista yfir öfgaflokka.

Þessi færsla er nauðsynleg á Íslandi, þar sem fréttaflutningurinn á Íslandi af sigri hægriafla í ESB lauk með lummulegri lygasögu óupplýstra fréttasnápa.

Æsingur European Jewish Congress (EJC) yfir Dansk Folkeparti byggir á misskilningi, sem kona Søren Espersens þingmanns flokksins hefur líst ágætlega fyrir EJC. Kona Espersens, Yvette Espersen, er gyðingur.

I agree that we should be doing all that we can to fight anti-Semitism - but I feel that the blinkered view that it is just the rightwing groups in Europe that are anti-Semitic is a dangerous road. Some of the very successful left wing groups growing in Europe have been showing disturbing anti-Semitic tendencies in their attack on Israel and as a consequence giving authority for an attack on the Jewish people. Maybe it would a good idea that the European Jewish Congress also begin to take a look at these groups in Denmark - instead of attacking the only the political party in Denmark that has stood side by side with Israel and fought anti-Semitic growing tendencies in Denmark.

Finn Rudaizky, gyðingur, sem fyrrum var krati, en er nú genginn yfir í raðir Dansk Folkeparti, skrifaði EJC m.a.:

It would be respectable and fair that the Jewish Congregation should demand a correction.
I am deeply shocked that the European Jewish Congress, where I have participated in many meetings, could send such a false description of a political party, which has quite a number of Jewish members and sympathisers. Including Jewish members who were active and have fought Nazism and whose families have suffered during the Nazi's barbaric murders in KZ camps.

Mótmælunum rigndi yfir EJC frá gyðingum í Danmörku, meðal annars Finn Schwarz, formanni gyðingasafnaðarins í Kaupmannahöfn sem krafðist að DF yrði fjarlægt frá yfirlýsingu EJC um öfgaflokka sem hatast út í gyðinga, um leið og hann undirstrikar að hann sé sjálfur ekki í röðum DF. 

 

Kantor
Viatcheslav Kantor þykir vænt um hesta ...

 

En hvað er EJC? Sumir gyðingar eru á því að EJC sé orðin að eins konar öfgasamtök. Þar eru sovétískt ástand.  Þar er rússneski auðjöfurinn Viatcheslav Moshe Kantor allsráðandi.  Hver er þessi Kantor? Jú, Hann er ísraelskur þegn, en er ekki með bankareikning í Ísrael. Þegar ísraelsk yfirvöld eru ekki að rannsaka fjármál hans, er hann að klappa arabískum hestum á búgarði sínum í Rússlandi og safna ómetanlegum listmunum. Þetta er fær maður sem sigldi í góðum byr á Sovéttímanum, var hollur flokksmaður í kommúnistaflokknum og vinur Jeltsíns sem hlóð undir er hann var við völd. Hann er nú hin fremsta skósleikja Pútíns Rússlandskeisara.  Talið er víst að Kantor hafi komið öðrum gyðingi í dýflissur Pútíns, það er Mikhail Khodorkovsky.  Hve stórir gyðingavinir forseti og forætisráðherra Rússlands eru, orkar tvímælis, en Viatcheslav Kantor hefur auðvitað ekki talið ástæðu til að gangrýna þá. Kantor hefur lýst því yfir, að hann sé fyrir Pútín, það sem Jósef var fyrir Faraóinn forðum í Egyptalandi. Kantor, sem komst til valda í EJC með hjálp krata, er kannski ekki rétti maðurinn til að tjá sig um öfgar.

Mikhail Khodorkovsky

  ... en hann styður aðgerðir Pútíns gegn sumum gyðingum.

EJC er búið að fjarlæga Dansk Folkeparti frá yfirlýsingu sinni, en samtökin vilja ekki tjá sig um málið við fjölmiðla í Danmörku. Kantor er líklega of upptekinn að sendast fyrir Pútín. Gyðingar í Danmörku spyrja sig nú hvar Kantor, sem flutti ræðu á hátíð í samkunduhúsi gyðinga í Kaupmannahöfn í fyrra, hafi fengið þær upplýsingar að Dansk Folkeparti, væri flokkur gyðingahatara?

Vi har da meget tilfælles Igor
Igor, við vinnum að sameinaðri Evrópu!
Da, Gelmut!

mbl.is Gyðingar óttast framgang hægri öfgaflokka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Páll Jónsson

Athyglisverð grein. En þessi fréttaflutningur er nú ekki búinn að vera tómt rugl, það má ekki gleyma því BNP fékk t.a.m. 2 þingmenn í Evrópuþingskosningunum, sem er ekkert nema skandall fyrir Bretland.

Páll Jónsson, 13.6.2009 kl. 20:25

2 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Tveir þingmenn frá BNP hafa ekkert að segja í ESB. En framgangi þeirra er hægt að þakka öðrum en hinum venjulega Meðaljóni á Englandi, t.d. ríkisstjórn svokallaðra "krata" sem setur Íslendinga á hryðjuverkalista meðan eiginlegir hryðjuverkamenn safna kjósendum fyrir BNP. Svo einfalt er það nú Páll. 

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 13.6.2009 kl. 22:18

3 Smámynd: Páll Jónsson

Einfalt? Það er engin spurning að BNP fengu kosningu sem "protest vote" vegna skandalanna í pólitík í Bretlandi, það er alveg rétt.

En þú kýst ekki BNP sem protest vote. Svoleiðis má einfaldlega ekki gera. Þetta er hópur sem að bannar blökkumönnum að ganga í flokkinn og sem heilsaði að nasistasið þegar komnir voru tveir bjórar í þá þar til fyrir örfáum mánuðum þegar kosningabaráttan heltók þá.

Að kenna spillingu andstæðinga þeirra um að þeir voru kosnir? Engin spilling réttlætir það og hugsandi Bretar skammast sín með réttu vegna þess.

Páll Jónsson, 13.6.2009 kl. 22:50

4 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Páll, þú gerir allt og mikið úr menningarstigi Breta. Ég bjó til skamms tíma á Bretlandseyjum og uppgötvaði þá, að þar búa margar "þjóðir" og sumar sem eru mjög aftarlega á merinni.

Í fyrra svari mínu var ég var ég ekki endilega að hugsa um spillingu andstæðinga BNP, sem eru líklega ekki ríkisstjórn Browns, sem BNP lítur á sem gyðinga.

Ég var að hugsa um þjóðarbrot þau á Bretlandseyjum, sem tilbiðja Allah, og sem BNP hata og öfunda, því þeir sjá að margir múslímar eru að meika það betur en hreinræktaðir Bretar, sem eru aftarlega á merinni. Hryðjuverk örfárra múslima fær auðvitað einhverja til að kjósa BNP. En kynþáttahatur BNP hefur lengi verið miklu víðtækara á Bretlandseyjum, m.a. meðal fólks sem kosið hefur Labour að venju. Á Bretlandseyjum voru útlendingar velkomnir, ef þeir sættu sig við hlutverk þrælsins. Þrælarnir sem fyrir voru á Bretlandseyjum bjuggust við að færast upp metorðastigann, en það gerðist ekki. Breski þrællinn sökk alveg niður á botn og varð að hvítu rusli. 

Þegar Ísland er komið í ESB, og Guð hjálpi mér þá, munu margir þeirra sem misst hafa vinnuna til útlensks vinnuafls, eða vegna óánægju með stjórnmálaelítuna, örugglega vera til í að kjósa Icelandic National Party eða einhver álíka fyrirbæri á vinstrivængnum á Evrópuþingið.

Íslendingar vita ekki hvað heppnir þeir eru að vera ekki enn bendlaðir við ESB.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 14.6.2009 kl. 06:06

5 Smámynd: Snorri Bergz

Ég sé nú ekki betur en að mesta gyðingahatrið þessa dagana og síðustu árin hafi komið frá vinstri -- og ýmsar stúdíur staðfest það.

 Spurning hvort ekki ætti að gefa frekar út tilkynningu um áhyggjur út af framgangi vinstri öfgaflokka ... 

Snorri Bergz, 14.6.2009 kl. 20:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bækur

Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband