Leita í fréttum mbl.is

Samhengi hlutanna

Jewstesia 

Vondu Zíonistunum í Ísrael varð það á að drepa svokallaða "aðgerðasinna" á ferjum friðarins, sem sendar voru frá hinu friðelskandi ríki Ataturks til að veita íbúum og hryðjuverkasamtökunum á Gaza aðstoð í baráttunni við eina lýðræðisríkið við botn Miðjarðarhafs. Tilgangur ferðarinnar var, að sögn öfgafyllstu farþeganna, einnig að gerast píslarvættir. Hvar er betra að verða það en undan ströndum Ísraels, ríkis, sem bræður í öfgunum vilja afmá af landakortinu? Vestrænir gyðingahatarar (les vinstri menn), sem flestir eiga glæsta fortíð í taumlausri aðdáun á stjórnmálastefnu, sem á flest mannslíf á samviskunni á síðari tímum, fylgdu með til að þjónusta og bera vitni.  

Vegna blindu, og mestmegnis siðblindu, fjölmiðla og ofsa sjálfskipaðra vaktmanna friðar og frelsis, heyrðum við nær eingöngu fréttir um þessi tyrknesku skip og þá 10 "aðgerðasinna", sem Ísraelsher felldi m.a. vegna þess að hermenn Ísrael máttu fótum sínum fjör að launa.  

Í íslenskum fjölmiðlum heyrðum við eða lásum ekki neitt, eða afar takmarkað um þá 2254 einstaklinga, sem urðu fórnarlömb Öfgaíslams í maímánuði 2010. Lítið fór fyrir fréttum af þeim 1768 sem misstu lífið í apríl, þeim 2536 sem misstu lífið í mars, þeim 1556 manna sem drepnar voru í febrúar eða af þeim 2166 sem drepnar voru í janúar, í allt 10.280 manns, sem Öfgaíslam felldi í bræði sinni og ofsa á fyrri hluta árs 2010.  Geri aðrir  betur. Ekki fór mikið fyrir friði í heimi öfgaíslams, og hví ætti maður að trúa því, að mikill friður hafi verið um borð á "friðarfleyinu" Marmaris.

Útgerðarmaðurinn Erdogan á Tyrklandi, sem gerir út á friðarveiðar án kvóta er mikill maður. Nokkrum dögum áður en Ísraelsríki var bölvað og ragnað og nær útlægt gert úr heimi hér fyrir að verja strendur sínar, fangelsuðu Tyrkir (Friðarpostulinn Erdogan og Co.) 340 kúrdísk börn fyrir að taka þátt í "and-tyrkneskum" mótmælahöldum. Börnin voru dæmd í 5 ára fangelsi eftir þeim lögum sem gilda á Tyrklandi um and-tyrknesk athæfi. Í maí 2010 voru 73 drepnir í átökum milli tyrkneska hersins og kúrdískra andspyrnumanna og aðgerðarsinna. Síðan 1985 hafa 40-50.000 Kúrda verið myrtar af tyrkneskum herjum í baráttu sinni fyrir frjálst Kúrdistan. Írakar, Sýrlendingar og Tyrkir hafa framið skipulögð fjöldamorð á Kúrdum. Erdógan, sem vill yfirlýst gera Tyrkland að stórveldi í Miðausturlöndum, sendir friðarskip til Ísrael á meðan hann níðist á börnum. ESB horfir á hann í biðstofu sambandsins, jafnvel með meiri forundran en á Össur stórborgara Skarphéðinsson.

Í maí 2010 voru 432 manns myrt í Darfur. Þann 7. júní bárust fréttir af því að 600 manns hefðu verið drepin í Súdan, þótt aðeins hefði verið hægt að staðfesta 491 þessara drápa. En engin staðfesting barst til Íslands. Ekki var greint frá þessum drápum öfga-og útþensluíslams í vinaútvarpi Hamas, RÚV.

Gleymum heldur ekki öllum drápunum sem öfgaíslamskir hryðjuverkamenn stunda í Afganistan og í Írak. Íslendingar heyra um sum þeirra, en láta það eins og vind um eyrun þjóta. Sumir gerast svo djarfir að heimta heri Vesturlandaþjóða heim og afsökun frá Halldóri Ásgrímssyni og Davíð Oddsyni.

Ekki fá Íslendingar mikið að vita um baráttu aðgerðasinna og frelsisafla í Íran, sem barin eru niður með hrammi öfgaíslams og frelsishetjurnar eru hengdar á torgum úti án þess að Bogi Ágústsson gráni við tilhugsunina um það.

28 . maí 2010  voru meira en 100 meðlimir Achmedi-greinar Íslams í Pakistan drepnir. Það heyrðist varla um þessi dráp fyrir látunum gegn Ísrael. Gyðingar eru líka minnihlutahópur í hafi öfgafyllstu trúarbragða jarðarinnar um þessar mundir. Sama dag í maí slátruðu maóistar (eru þeir enn til??) meira en 100 manns í lest á Indlandi. Ég man ekki eftir því að hafa lesið um það í íslenskum fréttum eða heyrt. Er sía á internetinu á íslenskum fjölmiðlum, sem gerir það að verkum að Ísrael er eina ríkið sem menn nenna að þjösnast á, eða eru alls staða svona lítilsigldir sumarstrákar eins og á RÚV.

Þann 7. júní 2010 greindu mannréttindasamtök í Jemen frá því að 55 manns, og þar af mest óbreyttir borgarar, hefðu verið myrtir af Bandarískum herafla þar í landi.

Í maímánuði árið 2010 voru minnst 764 manns drepin í Pakistan, bæði hermenn, óbreyttir borgarar og hryðjuverkamenn. Þar ríkir líka vargöld. Veldur það vilhöllum fjölmiðlun og riddurum réttlætis og rétttrúnaðar á Vesturlöndum áhyggjum á sama hátt og "krabbameinið" eins og sumir íslenskir bloggarar kalla Ísrael? Nei, ekki aldeilis, þeir sofa bara ágætlega í sjálfumgleði sinni yfir því að vera síðustu daga heilagir.

Er þörf fyrir frekari tölfræði? Er ekki ljóst, að einhverjir hafa misst allt í senn; sjónina, heyrnina og eiginleikan til rökhugsunar, já jafnvel vitið? Eru menn í samhengi, þegar þeir fara hamförum út af 10 drápum á mönnum sem höfðu afar ógöfugar ástæður til að hjálpa bræðrum á Gaza, meðan 2254 manna voru drepnar, og það aðeins í maí vegna þeirrar öfgatrúar sem fær fljótandi friðarsinna til að eltast við píslavættisdauða?

Eru menn ekki staurblindir, þegar þeir telja það eðlilegt, að friðarfloti sé sendur frá landi þar sem börn eru dæmd í fimm ára fangelsi vegna þess að þau tilheyra minnihlutahóp sem vill sjálfstæði?

Þessi grein var unnin upp úr grein í The Mideast Forum eftir dr. Yohai Sela, og er tileinkuð fréttamönnum RÚV, sem eru einstaklega illa upplýstir, eða bara sjúklega fordómafullir.

Að lokum: Söngur salamistanna!, því öll þráum við friðinn - aðferðirnar til að hlotnast hann eru bara mismunandi...


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ísraelar er með sýn vandamál án Palestínu.

http://www.youtube.com/watch?v=wQqOxprjEHQ

Þetta pinkulítið land er fjórum sinnum minna en Ísland samt halda þeir áfram að fjölga sér eins og rottur.

Ísrael fjöldi:7,587,000

Ísland fjöldi:317,593

Haredi kk gyðingar eru gagnslausir sem láta konurnar vinna meðan þeir lesa tóruna 6 klst á dag.

Stríðið í Írak og Afganistan væri auðveldara ef þeir gerði það eins og í myndinni Munich eða eins og Mossad í Dubai.

Svo er það þreytt ef þú gagnrýnir gyðing ertu kallaður gyðingarhatari. Ef þú gagnrýnir múslima ertu kallaður islamophobia.

Arnar (IP-tala skráð) 25.6.2010 kl. 22:49

2 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Arnar, það er ekki verið at tala um að gangrýna gyðinga. Það er öllum heimilt, eins og gagnrýni á kristna er í lagi, ef það er þá gagnrýni. En það sem þú sérð meðal vinstri manna Vesturlöndum er ekki gangrýni. Vinstri menn sem líkja Ísrael við krabbamein og syrgja að Hitler hefði ekki lokið ætlunarverki sínu, er sjúklegir gyðingahatarar. Menn sem skrifa "Ísrael, Ísrael über alles" og halda að þeir styðji með því Palestínumenn, eru andlega veikir.

Gyðingahatarar eru t.d. þeir sem ekki geta unað gyðingum lands þess sem þeir búa í, Ísraelsríkis. Gyðingahatarar eru þeir sem aðstoða þau öfl, sem á stefnuskrá sinni hafa útrýmingu Ísraelsríkis. Málið er ósköp einfalt, ef þú vilt gyðinga og land þeirra feigt og sýnir það á ógeðfelldan hátt í beinum og óbeinum stuðningi við t.d. Hamas eða nasista, eða gerir lítið úr sögu þeirra, trú, þjáningu og reynslu eða elur á öfund eða hatri í garð þeirra er maður gyðingahatari.

Hugtakið Íslamófóbía er ekki ýkja gamalt og var fundið upp af fólki sem greinilega er ekki annt um Íslam, þó svo að það haldi að það sé það.

Múslímar gera afar lítið úr trú sinni með þeim öfgum sem henni eru tengd. Það væri líklegast engin "íslamófóbía", ef öfgar Íslams væru ekki svo miklar, og veldu ekki svo miklum dauða og hernaði. Hvernig er er hægt annað en að fá sig saddan af Íslam, þegar maður sér þessi trúarbrögð notuð til réttlætingar á endalausum morðum, árásum og jafnvel útrýmingu eins og við sjáum nú síðast í Súdan. Menn ættu frekar að spyrja sig, hvort Íslam hafi ekki alltaf verið það sem við köllum fasisma. Við sjáum það í dag í því að Íslam þolir enga minnihluta, hvorki trúarbrögð né minnihlutahópa sem krefjast réttar síns (t.d. Kúrda). Palestínumenn eru hins vegar orðnir ímynd baráttu Múslíma. Hinir minnihlutarnir sem múslímar ofsækja og drepa vilja gleymast.

Gleymum svo ekki, að það eru Jórdaníumenn sem hafa drepið flesta Palestínumenn á síðari tímum, ekki Ísrael. Þ.e.a.s. bræður Palestínumanna í trúnni.

Eitt enn: VANÞEKKING getur einnig verið og valdið gyðingahatri. En oft veldur líka pólitískur ofstopi og öfgar, sem eiga það til að ganga í ættir, eins og þunglyndi og áfengissýki. Börn nasista í Þýskalandi sem öskra á eyðingu Ísraels, eða börn komma og nasista á Íslandi sem gera það sama, ættu frekar að leita að sálarró, en að vera með eða styðja öfgar í garð lítils ríkis sem á fullt í fangi með að verja sig fyrir öfgum og ofstopa í nafni hatursfullrar trúarbragðatúlkunar, sem nú er farin að sjást í miklum mæli í Evrópu.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 26.6.2010 kl. 07:07

3 identicon

Ísraelar eru seigir.

sex daga stríðið er eitt mesta hernaðarafrek allra tíma.

Ég tel að ef þjóðir vilja fara með her sinn gegn Ísrael, jafnvel hinir öflugu Tyrkir, þá ættu þær að hugsa sig tvisvar um !!

Fjöldi hermanna er alls ekki það sama og gæði...

Mér sýnist að það sé kominn tími á að Ísrael sýni alþjóð að nýju að lítil dýr geta bæði haft stórar tennur og bitið fast.

runar (IP-tala skráð) 26.6.2010 kl. 10:57

4 Smámynd: Óskar Sigurðsson

Frábær grein hjá þér Villi.

Óskar Sigurðsson, 26.6.2010 kl. 13:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bækur

Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband