Leita í fréttum mbl.is

Fćrsluflokkur: Menning og listir

Skćraliđar Margrétar II Danadrottningar

 
mermaidBurka

Danskir dátar eru farnir ađ föndra !  Dátarnir á danska herskipinu Absalon halda fimm sjórćningjum föngnum. Fangarnir, sem eru frá Sómalíu, hafa nú ţegar gert dönsku sjóliđana af ţrćlum sínum. Ţessi "sómapiltar" heimta ekki Kóraninn heldur bílablöđ, en ţađ mega ekki vera berir kroppar í bílablöđunum.

Tími vatns og brauđs er liđinn. Nú bera danskir dátar virđingu fyrir öđrum menningarheimum, eins og ţađ er orđađ í tilkynningu frá hinum konunglega danska flota, sem hér áđur fyrr nauđgađi íslenskum stúlkum eftir sherrífyllerí. Danskir dátar eru nú ađallega í ţví klippa berar konur út úr bílablöđum, ofan af húddinu og gírstönginni, svo litlu, sv...tu sjórćningjarnir geti skođađ bílablöđin án ţess ađ fá "stĺdreng" og saurgast í hugsun.

Danski ţingmađurinn Adam Mřller, sem er fyrrverandi aksjónmađur í danska hernum, telur ţađ algjörlega út í hött ađ vera ađ eyđileggja vönduđ bílablöđ međ ţví ađ vera ađ gata ţau og svívirđa međ skćrum og klippum. Hann vill láta banna ţetta föndur strax. Hann telur ađ ţađ sé hollt fyrir sjórćningjastrákana frá Sómalíu ađ sjá brjóst, og rass og píkur. Hestöfl eru ekki allt.

Litlir sjórćningjar eru víst ýmsu vanir. En ef ţeir ţola ekki ađ sjá íturvaxna konur ofan á húddi, eru ţeir líkast til í röngum bransa.

Engin furđa ađ íslenskir trukkafemínistar hallist undir Íslam. Sameiginleg baráttumál eins og fjarlćging kroppamynda af veggjum dekkjaverkstćđa eru ţeim ţóknanleg.


3 bíó fyrir stuđningsfólk Hamas

Bíó-Villi á PostDoc sýnir í dag myndina Hrćsni Hamas. Ţetta er ekki nein söngvamynd og ţađ er ekki Omar Sharif sem talar. Allir eru velkomnir međan húsrúm leyfir. Ţeir sem ţurfa ađ

kasta upp óţverra og gyđinghatri, eru beđnir ađ gera ţađ á eigin bloggum. 

 

AUKAMYNDIN í dag

ný kvikmynd frá Kaupmannahöfn í gćr, 9.1.2009. Gyđingum hótađ útrýmingu. Myndinni er hćlt af stuđningsmönnum Hamas um allan heim.


Nektarmynd af mér og Megasi

 

Raketta

Nú getur enginn lengur faliđ sig á bak viđ dulnefni og orđskrípi á blog.is og veriđ ţar međ innpakkađan skćting eđa ólćti út af einhverju sem ţeir hafa oft ekkert hundsvit á.

Ég hef alltaf komiđ fram sem Vilhjálmur samkvćmt ţjóđskrá, og er ţakklátur Mogga fyrir ađ leyfa mér ţađ. Nú ţegar búiđ er ađ fremja fjöldamorđ á nafnleysingjum og furđuverđum hér á blogginu, verđur Mogginn líka ađ útiloka alla bloggara sem eru eldri en 90 ára og eldri, og ţá sem tóku og taka ţátt í rússnesku byltingunni.

Ég óska ykkur góđs árs (2009) í baráttunni fyrir hryđjuverkasamtök á Íslandi sem og Hamas. Davíđ Oddsson, Jón Ásgeir og Ólafur Ragnar eru tvímćlalaust hćttulegustu menn heims. Réttláta ţjóđin og kjölturakkinn hennar, Hamas frá Gaza, eru alsaklaus.

Flugeldurinn á myndinni var sendur á loft á einni af fyrstu lofteldasýningum á Íslandi áriđ 1874. Kaupiđ nú helling af flugeldum og skrifiđ ţá hjá Jóni Magnússyni, Frjálslynda flokknum.

Ći, ég fann ekki mynd af mér kviknöktum, međ Megasi, ţó ég leitađi alveg eins og óđur. 

Gleđilegt Ár

til allra á Íslandi, líka bankavillinganna


Mađur ársins er Enginn

Lögmađurinn Enginn Engeyjarćttarskratti

Enginn er lögfrćđimenntađur og er skyldur flestum af ţeim vesalingum sem settu Alla á Eyrinni á hausinn.

Enginn er fjölskyldumađur, giftur Auđi og á börnin Loft, Leysu og Eyđu. Hann hefur fá eđa engin áhugamál og honum er alveg sama.

Enginn er góđur vinur vina sinna og trúlaus. Nafnleynd eru grundvallarmannréttindi segir Enginn.


mbl.is Enginn sótti um embćtti sérstaks saksóknara
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Nóg ađ gera hjá feita organistanum

Feiti organistinn er látinn 

Hátíđirnar eru hćttulegar. Hér í Danmörku heyrđi ég í útvarpinu ađ margir Danir éti svo mikiđ um jólin, ađ ţeir lendi á spítala međ hćgđarstíflur og annađ menningarangur.

Fyrst er étin glás af önd og svo er steypt loftţétt lok ofan á međ lagi af ţykku rís a la mande, jólagotti og öđru sýrumyndandi gumsi. Svo kemur stíflan, kransćđastífla, hćgđarstífla eđa eitthvađ álíka, eftir ađ ţeir eldri hafa sest niđur og horft á börnin opna gjafir í 2-3 klukkustundir. Jólatréssnúningur er jafnvel ekki til ađ bćta hlutina. 

Kannski er Jónína Ben í röngu landi, ţegar hún vill ţarmhreinsa íslensku ţjóđina. Danir eru miklu líklegri til ađ skila árangri. Jónina Ben, ţú fćrđ ţetta ráđ ókeypis, Ég ćtla mér ekki upp í görn á Dönum, ţó svo ađ ţar finnist gullmolar.


Sjálfsblekking

 

íslenska tungan

Er tungumáliđ ţađ eina sem sameinar Íslendinga?  Sýnist ykkur ţađ, nú á hinum síđustu og verstu tímum?

Hafa ţeir, sem nú hafa veriđ rúnir sínum ćvisparnađi, talađ sama tungumál og ţeir sem rćndu ţjóđina?

Talar fólkiđ í Alţingishúsinu sama mál og ţeir sem standa úti í kuldanum og mótmćla?

Ţeir seku tala reyndar ekki mikiđ ţessa dagana. Ţeir eru pukrast á fundum og "meika díla", svo ađ svikamyllan geti haldiđ áfram ađ mala. Viđ vitum ekki hvađ er ţeirra móđurmál, íslenska ellegar peningamál.

Hvenćr endar sjálfsblekkingin? Vefst okkur íslensk tunga um tönn, eđa límdist hún viđ einhverja  nákalda nasistastöng úr járni í 20 stiga gaddi.

Íslendingar eru orđnir fjölleitur hópur, og ţađ ćtti líka ađ vera pláss fyrir ţá fáu, sem af einhverjum ástćđum geta ekki valdiđ hrognamálinu okkar eđa skiliđ menningu Íslendinga - og ekki lái ég ţeim ţađ. Íslenska er eitt erfiđasta tungumál í heimi og íslensk menning er harla óskiljanleg eins og stendur. Alíslenskur almúginn getur reyndar ekki einu sinni valdiđ tungumálinu, eins og sést víđa á bloggum manna, eđa í daglegu tali. En ţađ skilst! Mađur er ekki betri Íslendingur, ţótt mađur tali og skrifi betri íslensku en ađrir.

Ţessi lagabreyting er svo sem í takt viđ tíđarandann. Í gćr heyrđi ég einhverja konu tala um atvinnumál í útvarpinu, og hún talađi af sér. Hún talađi í fyrstu um útlendingana, sem fyrst yrđi sagt upp í íslensku kreppunni. Svo áttađi hún sig á fordómum sínum og áréttađi, ađ ţađ gćtu alveg eins orđiđ Íslendingar frekar en útlendingar sem misstu vinnuna fyrstir.

Ţessi lagabreyting fyrir íslenskan ríkisborgararétt er kreppueinkenni.

Tungumáliđ sameinar ekki Íslendinga. Ţeir eru sundrađir ţrátt fyrir íslenskuna.


mbl.is Íslenskupróf skilyrđi fyrir ríkisborgararétti
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Whole Lotta Shakin' Going On

 

Ég vaknađi viđ skjálftann í morgun. Ţađ var eins og ţađ hrykkti í öllum gluggum og svo var sveifla eins og í jarđskjálftum heima. Allt nötrađi í 3-4 sekúndur.

Ţetta er víst öflugasti skjálftinn sem fundist hefur í Danmörku í 23 ár, og Richter var međ 4,7 stig. Upptök sín átti skjálftinn 40 km austur af Malmö. Ţetta gerđist kl. 6.20 (5.20 ađ íslenskum krepputíma).

Ég hef fundiđ fyrir skjálftum áđur hér í Danmörku, t.d. á Jótlandi, en ţađ var meira eins og högg. Ţá voru kalklög ađ hrynja í iđrum jarđar.

Sřrine Wredstrřm á Vesterbro í Kaupmannahöfn hélt í fyrstu, ađ fólkiđ á hćđinni fyrir ofan hana vćri ađ iđka harkalegt morgenknald. Hún greindi Politiken.dk frá ţess á ţennan hátt:

»Jeg bor pĺ 9. etage, og troede, at enten havde de overboende utrolig vild sex, eller ogsĺ var der nogen, der havde bombet bygningen..! Det tog lige 2 min fřr det gik op for mig, hvad der egentlig skete! Selvom jordskćlv i Danmark jo er utrolig usandsynligt!«..

Ţessir Danir!


mbl.is Jarđskjálfti í Svíţjóđ
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Egglos Hillary Clinton

Beikon and Eggs

Eggjum er víđar kastađ en í Alţingishúsiđ.

Hillary Clinton hefur hugsanlega kastađ fjöreggi Ólafs Ragnars Grímssonar á Ebay.  Ef einhver gćslumađur forsetagjafa hefur ekki veriđ ađ selja gripi úr gjafasafninu til ađ drýgja tekjurnar og bjarga húsinu sínu, ţá er ţetta auđvitađ algjör hneisa.

Hér eru myndir frá skransölunni sem er ađ selja spćlegg Ólafs Ragnars, sem hann gaf Hillary.

Ég athugađi The Federal Registry fyrir áriđ 2000, ţegar ţetta gleregg var skráđ, og ţetta er allt rétt. Ţar stendur ađ afţökkun gjafarinnar yrđi tekin sem mikil móđgun viđ Íslensku ţjóđina. Ekkert stendur hins vegar um sölu gjafarinnar.

Ţá datt mér í hug, ađ athuga hvađ orđiđ hefđi um viđhafnarútgáfuna á Íslendingasögunum, sem Jón Baldvin Hannibalsson var svo lengi um ađ koma til Clinton fyrir forseta Íslands. Ţá kom í ljós ađ Jón Baldvin Hannibalsson fór hugsanlega međ rangt mál er hann sagđi ţjóđinni nýlega frá afhendingu Íslendingasagna, sem Ólafur vildi gefa Clinton. Jón sagđist hafa afhent Clinton bćkurnar í Hvíta Húsinu, en í Federal Registry frá 2001 er upplýst á bls. 12669, ađ Jón Baldvin hafi gaukađ The Complete Iceland Sagas ađ Senator Tom Harkin, og ađ bćkurnar hafi veriđ fćrđar bókasafni Öldungadeildarinnar til varđveislu.

En nú höfum viđ reyndar mynd af Clinton, ţar sem hann tekur viđ einhverjum bókum af Jóni áriđ 1999. Jón hefur kannski spurt Harkin, hvort hann gćti útvegađ photo-opportunity međ Clinton? Í Federal Registry eru ekki skráđ önnur eintök af viđhafnarútgáfunni sem Ólafur á ađ hafa gefiđ fyrirmönnum í BNA.

Mig grunar sjálfan, ađ Clinton hafi örugglega ţótt ţessar skruddur svo ómerkilegar, ađ hann hafi gefiđ (eđa selt) Tom Harkin ţćr, og aldrei er ađ vita nema ţćr verđi brátt komnar á uppbođ á Ebay eins og eggiđ hennar Hillary. Bandaríska ríkiđ setti 500 dali á Íslendingasögurnar.

Harkin hefur vitnađ mjög mikiđ í Ísleningasögurnar síđan 2001.

Svona er nú ţađ, eđa hvađ? 

Wow the Icelandic Cigars

 Clinton, Jón og Kúbanski vindlakassinn, dulbúinn sem Íslendingasögur

Grimsson and Harkin

 Harkinn ţakkar Ólafi fyrir Íslendingasögurnar, eđa var ţađ öfugt

Grimsson and Clinton 

Ólafur spyr hvort Clinton hafi séđ Jón Baldvin og eggiđ, og hvort kom fyrst Jón Baldvin ellegar eggiđ.

Hillbillies 

Hillbillies, sem hvorki kunna ađ meta egg né heimsbókmenntir


mbl.is Gjöf forseta til Hillary Clinton á Ebay
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Sýklahernađur í Bagdađ

  
Morđvopnin í Bagdađ

Eftir ađ blađamađur, sem starfar viđ dagblađ i Bagdađ, kastađi tveimur fótsprengjum nr. 44 í ţađ sem eftir er af Bush Bandaríkjaforseta, keppast fjölmiđlar um ađ fullvissa heiminn um ađ ţađ sé íraskur siđur ađ kasta táfýlusprengjum í ţá sem mađur ber ekki virđingu fyrir.

Ţetta er aldeilis nýtt fyrir mér. Ég hef ţess vegna grafiđ í geymslur sögunnar, en ekki finn ég neinar upplýsingar um ađ fótsprengjum hafi veriđ kastađ í Saddam Hussein, kvalara írösku ţjóđarinnar. Stytta af honum var reyndar slegin međ skóm eftir ađ hún hafđi veriđ brotin. Sovétleiđtogi einn barđi skóm sínum í rćđupúlt SŢ í New York. Annar ţekki ég ekki skó sem kast- eđa slagvopn.

Gyđingar og annađ gott fólk, sem Múhameđ hatađi, urđu ekki fyrir skóárásum. Ţeir voru bara drepnir. Sumir gera ţví reyndar skóna, ađ ţessi ljóti ósiđur eigi einmitt rćtur ađ rekja til gömlu Gyđingaţjóđarinnar, og ađ í Davíđssálmum (Tehillim í Ketuvim) sé ađ finna uppskriftir fyrir skókast nútímans.

8 Guđ hefir sagt í helgidómi sínum: "Ég vil fagna,

ég vil skipta Síkem,

mćla út Súkkót-dal.

9Ég á Gíleađ og ég á Manasse,

og Efraím er hlíf höfđi mínu,

Júda veldissproti minn.

10Móab er mundlaug mín,

í Edóm fleygi ég skónum mínum,

yfir Filisteu fagna ég."  

Ţetta er nú reyndar röng ţýđing, og mér sýnist ađ ţetta sé bara skáldlegt myndmál. Í Kóraninum er ađeins talađ um gyđinga í skóm. Ţegar Kóraninn datt ađ ofan af himnum niđur á múslíma, voru ţeir ekki búnir ađ uppgötva skóna. Skósprengjur eru ţví ekki nefndar í ţví heilaga riti.

Nú er aumingja Bush kominn til Kabúl til ađ kveđja. Hverju ćtli menn kasti í hann ţar? Á Íslandi er siđur ađ kasta eggjum og skyri. Kannski kemur hann til Íslands til ađ fá eftirréttinn.


GilliGill - sambönd Dorritar

AA Gillir

Ţegar ég las grein AA Gills um Ísland í morgun, gladdist ég eins og ađrir Íslendingar. Mig grunar hins vegar, ađ upplýsingaţjónusta Bessastađahjónanna Beikons og Kosherbeib hafi örugglega haft sína 20 fingur í ţessum skrifum. Ef ţađ er rétt, er ekkert til sparađ á landkynningar- og gagnáróđursdeildinni á Álftanesi, og ţví ekki nema von ađ sumum ţyki símareikningar háir á óđalinu. Ţađ ţykir mér ekki. Sjá enn fremur hér.

Adrian Anthony Gill, sem kom til Íslands til ađ skrifa grein sína, skrifar nú oftast um sjónvarp og veitingastađi. Hann hefur líka ritađ óvinsćlar greinar um Walesbúa, og hefur blađinu hans veriđ stefnt fyrir ţćr vegna meints kynţáttahaturs. Venjulega á ţessi mađur erfitt međ ađ skrifa, ţví hann er haldinn ólćknandi lesblindu - alveg eins og Dorrit Moussaieff. Nú nálgumst viđ kjarnann. Dorritt er góđ vinkona og samverkakona barnsmóđur Gills. Gill hefur nefnilega lengi veriđ í tygjum viđ Nicolu Formby, ritstjóra Tatler, blađs sem Dorrit hefur skrifađ í, ţrátt fyrir alvarlega lesblindu sína. Formby kann greinilega vel viđ fólk međ lesblindu.

Mér ţykir líklegt ađ AA Gill, sem líklega hefur veriđ ţreyttur á ađ skrifa um sósur, sjónvarp eđa skipta á bleyjum á tvíburunum sem hann á međ Nicolu Formby, hafi ţáđ bođ um ferđ til Íslands og hefur kyntrölli nú kvittađ fyrir sig međ ţessari ágćtu grein sinni í Sunday Times.

Myndin er af Gilla, ţar sem hann var makađur í Nivea krem, Tatler style.


mbl.is Brown sparkađi í Íslendinga
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

« Fyrri síđa | Nćsta síđa »

Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bćkur

Kynning á nokkrum fćrslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband