Leita í fréttum mbl.is

Fyrsta flugeldasýningin á Íslandi

lofteldar konungs

800 tonn (800.000 kg og jafnvel meira) af flugeldum og öđru púđri fúttar út í bláinn á Íslandi um áramótin ađ sögn alţjóđlegra fréttastofa. Ţađ er ađ segja, ef veđur leyfir. Ég verđ fjarri góđu gamni og lćt mér nćgja smá stjörnuljós eins og Danir.

Á Íslandi fara ţúsundir brennuvarga frekar óđslega um borg og bý og glampi frummannsins sést í augum karlpenings á öllum aldri. Fallostákn ţeirra feykjast upp á himininn í öllum regnbogans litum og út sprautast gríđarlegar gusur, eldtungur, eimyrjudropar og jafnvel fossar. Hver er međ stćrstu kúlurnar og hver á flottasta batteríiđ? Sumum konum ţykir skiljanlega líka mjög gaman af ţessum látum í strákunum.

Ég leyfi mér ađ óska landsmönnum til hamingju međ ađ brenna nokkra milljarđa króna á andartaki og sumir eru ekki einu sinni í annarlegu ástandi ţegar ţeir fremja ţann verknađ. Ţvílík gleđi. Líkt og hálftími í Bagdađ međ alKćtu.

Myndin er af fyrstu ţekktu lofteldasýningunni á Íslandi áriđ 1874. Hún birtist í The Illustrated London News, 12. september ţađ ár. Sýningin áriđ 1874 var auđvitađ bara fyrir fína fólkiđ og í bođi danska kóngsins. Alţýđan lét sér nćgja ađ gleđjast yfir stjörnum, norđurljósum og ef vel árađi, ţremur sólum á lofti. Svo ţuldu menn rímur í stađ ţess ađ blogga.

Einhvers stađar hef ég lesiđ um óđan munk, sem kringum Siđbót tók svo miklum stakkaskiptum, ađ hann bjó til hólka úr kaţólskum bćnabókum, tróđ í hólkana púđri sem hann hafđi búiđ til úr hlandi og brennisteini. Kom hann svo knallhettum sínum fyrir í pápískum líkneskjum sem hann sprengdi í tćtlur fyrir utan kirkjur. Hann varđ af einhverjum furđulegum ástćđum afar vinsćll  međal kvenţjóđarinnar fyrir ţetta athćfi sitt og eignađist helmingi fleiri börn en hann hafđi gert í skírlífi sínu. Undan honum eru komnir sumir af frćgustu Vantrúarmönnum Íslands, svo og eldflauga- og brennusérfrćđingar áramótanna.

Hvađ gáfu svo Íslendingar sveltandi og ţjáđum brćđrum sínum úti í hinum stóra heimi áriđ 2007?  800.000 kg. af púđri?

Eins og segir í stökunni gamalkunnu: Do they know it's New Year's Eve AT ALL?

GLEĐILEGT ÁR

 

Raketta

 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ívar Pálsson

Takk fyrir ţessar upplýsingar. Sprengikrafturinn losar burt gamla áriđ, ţađ er ţá fariđ, sprungiđ. Ţađ hleypir ađ nýjum tíma, nýju óskrifuđu blađi eins og Kínverjar hafa ţekkt í ţúsundir ára. Á öldum áđur náđum viđ ekki ađ losna viđ gamla tímann, heldur drögnuđumst međ hann yfir fjölda áramóta. En ţá hljótum viđ núna ađ sprengja sögulegt samhengi og reynslu burt líka, ekki satt?

Ívar Pálsson, 31.12.2007 kl. 01:38

2 Smámynd: Ágúst H Bjarnason

Takk fyrir skemmtilegan pistil. Eins og hjá öđrum sönnum Íslendingum brýst frummađurinn út hjá mér um áramót međ eldglćringum og hávađa.

Gleđilegt ár!

Ágúst H Bjarnason, 31.12.2007 kl. 11:56

3 Smámynd: Albert Ómar Guđbrandsson

Takk fyrir upplýsingarnar, og ágćtan pistil. Eigum viđ ekki ađ reikna ţetta ca 4 kg á skotfćran mann. ţannig ađ ég er yfir međaltalinu í skotgleđinni. Ég hef veriđ síđustu 6 Nyarsaften í Danaveldi, og held ađ munurinn á skotgleđi ţeirra og okkar sé í mestalagi nokkur grömm.

Gleđilegt ár, og farsćlt komandi. 

Albert Ómar Guđbrandsson, 31.12.2007 kl. 16:23

4 Smámynd: Sólveig Hannesdóttir

Ţetta er frekar einfalt hjá mér ađ skilgreina ţetta syndrom okkar Íslendinga.  Ţessi ţjóđ veit ekkert hvađ sprengjuhljóđ eru, hefur aldrei veriđ í stríđi, ađ heitiđ getur síđan á sturlungaöld.   Virđist heldur ekki geta sett sig inn í ţćr ađstćđur sem eru t.d. í Israel, Palestínu, Irak og miklu fleiri löndum.  Ţađ vćri ekki vitlaust ađ safna ţessu fé saman svo sem eins og ein áramót og gefa ţađ út úr landi til málefnis sem sjáanlegt vćri, og ţá alls ekki til ţjóđar sem vćri í stríđi t.d. Palestína-Israel. Hljóđ Nýarsnóttar okkar er daglegt brauđ miljóna barna.

Sólveig Hannesdóttir, 1.1.2008 kl. 21:47

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bćkur

Kynning á nokkrum fćrslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband