Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Trúmál

Vinur minn er gyðingahatari

arabic-hitler-books

... og hann telur að Helförin sé tómt svindl og gyðingar séu versta og hættulegasta fólk í heimi.

Nei, lesendur góðir, þannig fólk telst vitaskuld ekki til vina minna. Slíka vini á hins vegar maður sem sagður er vera talsmaður Menningarseturs Múslíma á Íslandi, sem eru skráð trúarsamtök á Íslandi, sem nýlega hafa keypt hús undir menningarmiðstöð sína og trúariðkanir fyrir fé frá erlendum fjárfestum. Menningarsetur Múslíma er stundum kallað Menningarmiðstöð Múslíma.

Ég greindi nýverið í færslu frá þeim sem standa á bak við kaupin á Ýmishúsinu í Öskjuhlíð og tengslum þeirra við öfgasamtök í Sádi Arabíu. Slík samtök eru að mínu mati hundrað sinnum hættulegri en einfætti hnefaleikamaðurinn sem setti allt á annan endann í Danmörku hér um daginn.

Karim Askari, sem kynntur hefur verið til sögunnar sem talsmaður þeirra fjárfesta, sem setja fjármagn í menningarsetrið í Ýmishúsinu, greinir á Facebook-síðu sinni hvaða boðskap honum líkar. Honum líkar t.d. við marokkanska öfgamanninn Abdessalem Yassine, sem hatast út í gyðinga í ritum sínum og yfirlýsingum og her helfararafneitari. Sjá t.d. þessa grein:  Spurningin sem vaknar, er hvort Askari og aðrir í Menningarmiðstöð Múslíma á Íslandi hati gyðinga eins mikið og Yassine? Ef svo er, höfum við vandamál á Íslandi. Ef trú sú sem menningarmiðstöð múslíma á Íslandi ætlar að boða er gegnsýrð af gyðingahatri, verður að fara fram á að þetta menningarsetur við rætur Öskjuhlíðar verði undir eftirliti yfirvalda sem komi í veg fyrir að öfgar, hatur og mannréttindabrot verði framin í nafni trúarbragða á Íslandi.

Karim Aksari synes godt om
Af fésbók Karims Askaris á Íslandi en honum líkar líka við 50 tommu flatsjá

 

Abdessalem Yassine hefur m.a. sagt:  The Jews are the enemy incarnate. They are intimately linked to many of the evils of the world from Morocco, to Palestine, to Western imperialism. The Jew personifies and exemplifies the very psychology of modern man, who bears responsibility for the abject state of the world and the Muslims.

 

n45878347294_802
Hatursklerkurinn sem er vinsæll hjá talsmanni Menningarseturs Múslíma á Íslandi. Hvaða menningu erum við að fá í Öskjuhlíðina?

 

Við höfum nýverið orðið vitni að því að fólk fer hamförum yfir biskupum og prestum, bæði lúterskum og kaþólskum, sem ekki skildu að þeir höfðu ekki heilagan rétt til að leggjast á eða ganga í skrokk á ungviðinu. En hvar eru siðapostularnir og trukkafemínistarnir, sem vart geta haldið vatni yfir ógeðslegheitum trúarbragða og sem segja sig úr kirkjunni og affermast vegna viðbjóðs, nú, þegar í ljós kemur að talsmaður nýrra eingyðistrúarbragða á Íslandi aðhyllast trúarleiðtoga sem eru annálaðir fyrir gyðingahatur og önnur mannréttindabrot?  Hvar er viðbjóður ykkar, betri flokkur sannheilagra á Íslandi, þegar ljóst er orðið að talsmaður nýrra samtaka múslíma á Íslandi aðhyllist lærdóm öfgapresta sem spúa eldi og brennisteini, svo ekki sé talað um gyðingahatri og hatri á menningargildum Vesturlanda?  Hvar eruð þið, þegar slíkt svínarí kemur í ljós, þið háheilögu siðvandarar hins stýfða vinstri vængs? Stafar þögn ykkar af því að þið eru samreiðarmenn öfgaíslams? Það held ég nefnilega.

Ætla íslensk stjórnvöld að sitja og láta það afskiptalaust, að umboðsmenn öfgasamtaka og menn sem aðhyllast kenningar kynþáttahatara komi að stofnun trúarmiðstöðva Íslandi? Er það meira við hæfi en prestar sem nauðga í skjóli þjóðkirkjunnar inni í kompu eða á bak við stól Páfans í Róm? Hvað segir háttvirt Dómsmála- og mannréttindaráðuneytið ?

Ég spyr hér með Ögmund Jónasson mannréttindaráðherra, sem fær afrit af færslu þessari í nýja ráðuneytið sitt kennt við mannréttindi. Ætlar Ögmundur að skjóta skollaeyrum við starfssemi öfgasamtaka á Íslandi og láta það viðgangast, að talsmaður skráðra trúarbragða á Íslandi mæli með öfgaprestum eins og þeim sem ég greindi frá hér eða honum Abdessalem Yassine? Telur mannréttindaráðherra, að það séu mannréttindi að hatast út í gyðinga og gera lítið úr réttindum kvenna? Hvað segir ráðherrann? Hann er verndari mannréttinda. Hann verður að segja eitthvað og getur ekki beðið með það þangað til að hann er kominn í ESB draumlandið með meðreiðarsveinum sínum í ríkisstjórninni, því þar taka menn ekki á hlutunum með þögninni.


Lélegir fjárfestar

508px-Blik_1967_200

Varla var blekið í síðustu færslu minni um ágæti þess að fá mosku þornað, er Fréttablaðið greindi frá því að Menningarmiðstöð Múslíma á Íslandi hefði fest kaup á húseign nærri Slökkvistöðinni í Öskjuhlíð. Húsið gengur undir nafninu Ýmishúsið, og er að mig minnir 6-kantað hús og forljótt.

Þeir sem kaupa húsið eru kallaðir fjárfestar. Tekið var fram i fréttinni, að þeir sem keyptu þetta hús hefðu ekkert með Félag múslíma á Íslandi að gera. Er það vel fyrir Félag múslíma, því þeir sem eru sagðir vera fjárfestar í þessu húsi eru wahabistar á Norðurlöndum og í Sádí Arabíu, sem sumir eiga ekki bót fyrir rassinn á sér, en miðla samt hundruðum milljóna frá samtökum í Sádí Arabíu, sem Sameinuðu Þjóðirnar telja til hryðjuverkasamtaka. Peningarnir koma frá samtökum wahabista. wahabismi er öfgastefna, sem er andsnúið mestu því frelsi og mannréttindum sem við höfum barist fyrir og fengið í Evrópu á sl. 200 árum. Wahabistar hatast út í gyðinga, samkynhneigða, kristna og menningu Vesturlanda. Ef eitthvað er, þá er wahabismi á skjön við íslensku stjórnarskrána og lög.

Í hluthafaskrá er þannig greint frá félaginu, sjálfseignarstofnuninni, á bak við kaupin á Ymishúsinu  The Islamic Endowment in Iceland: "Tilgangur félagsins er að stuðla að því að viðhalda íslömskum einkennum úr samfélagi múslima. Að auka mikilvægi og verja íslömsk einkenni múslimskra barna".En það er nú lítið brot af því sem samtökin á bak við The Islamic Endowment in Iceland standa fyrir. En hvernig ver maður einkenni múslímskra barna, spyr sá sem ekkert veit?

 

Sandra Moe
Sandra Maryam Moe ein af fjárfestunum í Öskjuhlíðinni. Al Daoudi vill ekki láta ljósmynda sig og Alshiddi heldur sig frá samskiptum við vesturlandabúa.

 

Fjárfestarnir eru: Milljónamæringurinn Sulaiman Abdullah Alshiddi  frá Sádí Arabíu, og skólastjóri Alsalams skólans í Örebro í Svíþjóð, Hussein Al Daoudi. Þriðji "milljónamæringurinn" er Maryam Moe (sögð heita Moue í íslenskum fjölmiðlum), sem býr norður í Þrumu í Noregi og stjórnar þar Alnour sentret og einni af moskum bæjarins, sem einnig er búið að dæla hundruðum milljónum króna í frá ríkum "frænda" í Sádí, sem aðhyllist wahabisma. The Islamic Endowment in Iceland þyggur fjárframlög frá stofnun í Sadí Arabíu, sem tengist مؤسسة الحرمين الخيرية,  Það er að segja Al Haramain. Samtökunum, sem eru á lista Sameinuðu Þjóðanna yfir hryðjuverkasamtök.

Kari Maskari Karim Askari í Öskjuhlíðinni

Líklega verða Karim Askari, atvinnulaus rafsuðumaður, og fiskvinnslumaðurinn Redouane Adam Anbari, sem sagðir eru umboðsmenn þessara samtaka, að skýra hlutina fyrir okkur, og hvernig þeir félagar tengjast samtökum sem boða wahabisma. Þið þekkið kannski ekki neinn wahabista í hverfinu hjá ykkar, en Bin Laden ólst upp í wahabisma, þegar hann var ekki að dansa diskó í Svíþjóð.

Pilagrímur Askari Askari á pílagrímsför

Karim Aksari staðarhaldari í Ýmishúsi lætur hafa það eftir sér á Facebook http://www.facebook.com/karim.askari , að honum líki boðskapur klerksins Sheikh Abdul Azis Al Fozan í Sádí Arabíu  Og hvað er sá maður, sem er Wahabisti, svo þekktur fyrir. Al Fozan, sem Karim Askari á Íslandi er hrifinn af, hatar gyðinga, Ísrael, kristna og Bandaríkin. Alveg eins og ungliðarnir VG. Sjón er sögu ríkari:

 

Svona er skoðun Sheiksins sem Askari mælir með á Facebook. Hatar Karim Askari kristna íslendinga og konur eins og sheikinn í Sádí, eða var það slys að hann segist halda upp á þennan al Fozan sem elur á "jákvæðu hatrið í garð kristinna"? Rannsaka ætti dvöl hr. Askaris á Ítalíu áður en hann kom til Íslands. Maðurinn er hrifinn af öfgaklerkum sem er andsnúnir öllum almennum mannréttindum, sérstaklega kvenréttindum. Vonandi spyr einhver fjölmiðill á Íslandi Karim Askari og Reduane Anbari, hvaðan peningarnir til kaupa Ýmishússins koma."Tilgangur félagsins er að stuðla að því að viðhalda íslömskum einkennum úr samfélagi múslima. Að auka mikilvægi og verja íslömsk einkenni múslimskra barna". Á að gera það svona?????

 

Íslam-fjárfestarnir á Íslandi verða að teljast afar vafasöm viðbót við íslenskt þjóðfélag nú í kreppunni. Það sem þetta fólk stendur fyrir, undir falsyfirskriftum sem „frið" og" kærleika", er andstætt allri hefð á Íslandi. Þessi samtök á ekki að leyfa á Íslandi, enda eru SÞ búnar að bannlýsa þau.

Ég er fyrsti Íslendingurinn sem hvatti til að byggð yrði moska á Íslandi. Það var ekki moska wahabista sem mér var efst í huga, þegar ég stakk upp á því. Það sem þeir boða veldur því að líf mitt er í hættu. Fjöldi múslíma er líka á sömu skoðun. Quillian stofnunin á Bretlandseyjum varar við þessum öfgamönnum.  

Ég vona að Íslensk yfirvöld og sérstaklega skemmtikrafturinn með rauða nefið í ráðhúsinu sjái að sér, því það er ekki nóg með eina slökkvistöð til að slökkva það hatur sem wahabistar boða í heiminum.

Hér er góð grein um whabisma á norsku.

Hnappurinn á teikningunni efst er líklega frá fyrstu kynnum Íslendinga af Öfgaíslam. Hann fannst í Vestmannaeyjum.

Neðst getið þið lesið skilgreining bandarískra yfirvalda á Al Haramain í Sádí Arabíu, sem gefa fé til kaupanna á Ýmishúsinu. Ég bíst nú við því að vinstri menn á Íslandi trúi frekar á hryðjuverkyfirlýsingu Gordon Browns á hendur Íslendingum en á þetta, því allt vont kemur frá USA eins og við vitum. Það er sameiginlegur arfur wahhabista og margra vinstri manna. Íslensk yfirvöld, Ríkisstjórnin, verða nú að taka afstöðu til þeirra samtaka sem eru að hreiðra um sig í Öskjuhlíðinni, Það er engir spörfuglar í því hreiðri:

There is evidence that field offices and representatives operating throughout Africa, Asia and Europe have provided financial and logistical support to the al Qaida network and other terrorist organizations designated by the United States, and, in some cases, included on the UN 1267 Committee's consolidated list of individuals/entities subject to Security Council Sanctions. Some of these organizations include the Egyptian Islamic Jihad (EIJ), Jemaah Islamiyah, Al-Ittihad Al-Islamiya (AIAI), Lashkar E-Taibah, and HAMAS - all of which are designated terrorist organizations and all of which have received funds from AHF, its branches, or local intermediaries.


Trú friðar og umburðarlyndis skal vera velkomin

Wagenstraat synagogue
 

Ég skil ekkert í Íslendingum, sem vilja ekki mosku og mínarettur. Myndin hér að ofan er af mosku við Wagenstraat i den Haag í Hollandi. Húsið var áður eitt af samkunduhúsum gyðinga borginni. En þeir voru flestir myrtir vegna haturs og öfundar. Nú er hús gyðinganna miðstöð múslíma, en engin merki eru á lofti sem benda til þess að múslímar hljóti sömu örlög og gyðingar. Sumir múslímar hrópa nefnilega sömu slagorðin og þeir sem myrtu gyðingana. Það sá ég sjálfur í fyrsta skiptið árið 1976 í fyrrnefndri borg. Hvernig má þetta vera? Skýringin er einföld. Slagorðin eru ekki trúarbrögðin, heldur hluti af hatursbylgju, sem hefur tekið trúarbrögðin í gíslingu.

Ég er hlynntur moskum eins og öllum öðrum guðshúsum, ef þar fer ekki fram andleg og líkamleg nauðgun í gluggalausum kompum og boðun áróðurs gegn ákveðnum þjóðum, menningu og gildum annarra manna.  Þegar þjóðkirkjuprestar á Íslandi nota pontuna til hatursáróðurs gegn þjóðum, og hefur það nýlega sést á Íslandi, á að svipta þá kjól og kalli eins fljótt og þá sem halda vilja hlífðarhendi yfir barnaníðingum.

Ég stæri mig gjarnan af því að vera fyrsti Íslendingurinn , sem mælti með mosku á Íslandi. Ef þetta er rangt, upplýsið mig sem fyrst um villu mína. Nýlega hrópuðu ungliðar VG á þörfina fyrir Mosku, en krakkarnir hafa ekki sömu ástæðu og ég til að vilja fá mosku. Ég stakk upp á mosku árið 1994. Ég reit í Moggann þann 14. des 1994, bls. 44: „Það er ekki nóg að yrkja landið, fólkið verður einnig að fegra. Ég fagna þeim degi, að moska rís í Mosfellssveit eða sýnagóga á Selfossi og að bænir á Alþingi verði ekki aðeins kristnar". 

Er þessi klerkur erindreki friðar? Nei, hann býr bara í Svíþjóð.

 

Íslam sem trúarbrögð eiga að vera velkomin á Íslandi. En það er einn galli á gjöf Njarðar. Við vitum að Íslam á við mikil vandamál að stríða. Það er hatur í garð annarra trúarbragða og virðingarleysi, sem margir fylgjendur trúarbragðanna aðhyllast. Það er að bera í bakkafullan lækinn fyrir múslíma að neita því. Gjörvallur heimur múslíma, með örfáum undantekningum, hatast út í gyðinga, gyðingdóm og ríki gyðinga, Ísraelsríki. Kristnir og önnur trúarbrögð verða einnig fyrir barðinu. Hvernig má þetta vera? Ef það eru ekki gyðingar, þá eru það samkynhneigðir sem fá lexíuna, eða Bandaríkjamenn, eða Danir.

Morgunblaðið bannaði Loft Altice Þorsteinsson vegna orðbragðs um samkynhneigða. Þessi múfti hefur enn ekki verið bannaður í fjölmiðlum í múslímskum löndum.

 

Hvað boðar þessi egypski klerkur, VG-stefnu eða Íslam?

 

Ef moskan er notuð til að boða hatur, dauða, vanvirðingu, þjóðrembu og imperíalisma, þá get ég aldrei stutt byggingu mosku á Íslandi.

Nei, allt þetta hatur, sem ég læt fylgja nokkur dæmi um,  er fyrst og fremst vegna þekkingarleysis og menntunarskorts. Þegar ungliðar VG heimta mosku í Reykjavík er mér ekkert brugðið. Þeir eru fullir af þekkingarleysi, afneitun og falsi. Þeir vilja ekki leyfa byggingu mosku fyrir sömu sakir og ég. Þeim er skítsama um trúarbrögð.  Þau gefa skít í Múhameð og Allah. Ungliðarnir í VG eru nefnilega flestir trúleysingar. En vegna haturs eiga þau samleið með öfgamönnum innan Íslams. Þeir eiga sameiginlega óvini og hatast út í Ísrael og BNA - af þekkingarleysi.  Áhugi VG á moskum er því ekki hreinn. Hann byggist frekar á hatri en á trúnni á Guð eða Allah.

 

Þessi klerkur er viss um að Jehúd séu á bak við alla hans eymd

 

Ég vona ekki að moskan sem múslímar reisa fyrir fé sitt á Íslandi verði notuð til að boða hatur og dauða. Ég leyfi ég mér að ráðleggja íslenskum múslímum að halda sig langt frá ungliðum VG, og fólki sem lýsir frati á trúarþörf annarra og sem telur vantrú sína ofar öllum öðrum mannlegum eiginleikum.

Ég læt ég fylgja nokkur dæmi um hvers konar hatur ég meina, því vandamálið er stórt og svo mikið að oft er erfitt að sjá hvað er Íslam friðarins, og hvað er hatur.

Þessir prestar á Gaza virðast hafa einhver sambönd í hatrinu á Íslandi. Að minnsta kosti er nú víst að Eyjafjallajökli er stjórnað af Allah og dyntum hans. Er þetta Íslam eða fávisku, sem þessi menn þjóna?


Obama í allra kvikinda líki

Barack-Obama-and-Adolf-Hitler

Það er alveg furðulegt, hvað hann Barack er góður að bregða sér í líki ýmissa minnihlutahópa. Hann er eins og kameljón og minnir mig á Zelig, persónu sem kvennagullið Woody Allen bjó til frábæra mynd um hér um árið. Zelig gat breytt sér í hvaða kvikindi sem er, bara með því að vera í herbergi með þeim í nokkurn tíma. Væri  hann með Skotum, varð hann að Skota með sekkjapípu og án nærbuxna, og hitti hann Kínverja, var hann farinn að afhenda spádómskökur á veitingastað eftir stutta stund. Zelig umbreyttist líka allur í útliti og líktist þeim hópum sem hann átti samræði við. Ef Zelig hefði komið til Íslands, hefði hann hins vegar lent í vanda, því þar eru til svo margar týpur. Hann hefði líklega orðið að sæmilegum geðklofa, með og á móti ESB.

 

USA oh Ackbar
Milk and dades in the Embassy of the United States

 

Í viðleitni sinni við að friðþægast við þjóðirnar sem grenja sárt eftir arfleifð Bushmannsins, byrjar Obama á Ramadan. Hann situr líka Seder með fjandmanninum, gyðingunum, á Páskahátíð þeirra. Ég er viss um að hann hafi á sér reðurhlíf, bara til að friðþægja ættbálka á Borneó. Síðast þegar Barack frændi var á Íslandi, sagði hann við Íslendinga að hann væri líkast til samkynhneigður eins og allir Íslendingar. „Power to them", sagði hann, og Time skrifaði strax að Jóhanna væri með völd. Loftur,  bloggarinn sem bannaður er fyrir að segja meiningu sína og nota orð sem standa í íslenskum lögum, segir Barack Obama kynvilltan, en það er bara vegna þess að svo margir í Hvíta húsinu eru "öfugir",afsakið samkynhneigðir, og Barack er einfaldlega að reyna að samgleðjast því fólki líka. Þegar Barack var ungur í Danmörku aðlagaðist hann svo vel Dönum, át flæskesvær og drakk öl, að enginn man eftir honum sem Barack. Þeir kölluðu hann Börge Obamsen. Þeldökkir í Bandaríkjunum segja þó, að hann eigi erfitt með að líkjast þeim.

Nú síðast er komið í ljós að hann Barack er meira en lítið skyldur Hitler. Afar sérstakur sérfræðingur við kaþólskan háskóla í Belgíu, landinu þar sem Ólafur Skúlason yrði talinn til dýrlinga án sannleiksnefndar, hefur fundið út eftir að hafa ofsótt ættingja Hitlers, að negrar (og gyðingar) séu skyldir Hitler bölvuðum - eða þannig hafa blaðamenn túlkað hlutina, því ekki fer fyrir miklum gáfum hjá fólki í þeirri stétt, þó þeir eigi mjög auðvelt með að umbreytast, eins og stjórnmálamenn, sem eru flestir psykópatar eins og sannað þykir, og nefni ég engin nöfn, enda óþarfi.

Seder with the Obamowitzer rebbe 2
Óbama borðar með gyðingum, sjáið hvernig nefið stækkaði.

 

Ég tek eftir því, að imam sá, sem sendur var til Íslands frá Alazar háskólanum í Kaíró til að hafa andlega umsjón með íslenskum múslímum í erfiðri „föstu" þeirra, er ekki á myndinni með múslímunum í sendiráði Bandaríkjanna. Kannski er hann eins og Zelig og hefur umbreyst í kvenprestinn á myndinni. Líklegra tel ég þó að bóklærður maður frá íslamístískum háskóla, þar sem daglega er lýst frati á Bandaríkin í bænagjörningi, eigi erfitt með að sýna ásjónu sína í sendiráði umbreytingsstjórnar Barack O‘bamalams, þó forsetinn sé dálítið múslímskur.

538953

 Imam Bayildi al Islandiah

 

Ég vona að íslenskir múslímar hafi ekki umbreyst í sendiráði Bandaríkjanna í gær. En heyrt hef ég, að sumir þeirra vilji helst ekki missa Kanana, t.d. Írakar. Hverjum langar að deyja drottni sínum á tímum mestu umbreytinga í sögu mannskynsins. En þetta eru líka tímar mesta ruglsins í sögu mannkynsins, þar sem milljarðar manna lýsa stríði á hendur heilu þjóðunum vegna skrípómyndar í dönsku dagblaði?

Hvar er annars Bandaríski sendiherrann á myndinni með frétt Moggans? Er þetta ekki sendiráðsfulltrúinn í miðjum hóp múslímanna, suðurríkjagyðingurinn, sem sendi bréfið með listagóðri lýsingu á íslenskum stjórnamálamönnum, sem meintur kvenníðingur í Svíþjóð lak síðar á Wikileakage?

Annars mæli ég með því að bandaríska sendiráðið bjóði mönnum upp á Kók Zero, (ekki Ground Zero), og döðlur næst, því meirihluti þeirra sem bera sömu blóðflokkagerð og Hitler, og ég, og margir múslímar, hafa mjólkuróþol.

Lengi lifi pólitísk rétthugsun


mbl.is Fastan rofin í bandaríska sendiráðinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ólafur biskup hinn graði - enn ein ferðin

Kirkjan og maðurinn

Enn eru heimildir að berast um gífurlega kynlífsfíkn Ólafs heitins Skúlasonar biskups Íslands og þjóðkirkjuprests. Fjölmiðlar sleikja út um. Netmiðillinn Eyjan hefur bókstaflega fengið fullnægingu.  Skríllinn mettast og trúleysingjarnir fá sannanir fyrir máli sínu. Maður furðar sig á þessari nýju umferð. Fara menn næst og dansa á gröf biskups eða grafa upp gjörninga Ólafs í Dakota? Fíkn Ólafs virðist muni geta fullnægt þörfum ýmissa manna í langan tíma. Ég ætla að láta mér nægja þennan pistil.

Nú síðast kom safarík saga frá fyrrverandi organista og talmeinafræðingi, sem segist hafa veitt biskupi andlegan stuðning og meðferð þegar ásakanirnar um "kvennamál" (svo notað sé orð organistans) hans brutust upp á yfirborðið. Átti biskup við talmein að stríða? Eða hafði organistinn reynslu af meðferð á prestum og biskupum? Ekki kemur fram í Samtíðarmönnum, að organistinn hafi stundað sálusorgarstarfsemi.

Hvað í samvisku talmeinafræðingsins gerði, að hann þagaði yfir því að hann hafði komið að Ólafi ofan á ungri konu á stuttum brúnum kjól á árunum 1972-77 verður hann líklega mest að eiga við sjálfan sig. Merkilegt að hann man svona vel eftir vinstri fæti síra Ólafs.

Eftir stendur að trúarbrögð eru auðveldasta leiðin til að misnota veikleika annarra. Trúarbrögð og hatur. Verið sterk í trúnni, sama hver hún er, en trúið fyrst og fremst á dómgreind sjálfra ykkar. Hún kemur í veg fyrir að graðir karlar noti Guðs nafn til að fá lausn sinna áhuga- og vandamála.

Það er dómgreindarleysi, eða talmein, hjá organistanum, Birgi Ás, að hafa ekki sagt strax frá því sem hann sá. Þá hefði Ólafur Skúlason ef til vill aldrei orðið sá smánarblettur á kirkjunni, sem virðist ætla að fylgja henni nokkuð lengi. Þögnin og frænka hennar þöggunin eru líka syndir.


Lúðraþyt - שופר‎ ‎

Nú eru menn að ræða um að banna vúvuzela, plastlúðra auður-afrískra knattaspyrnuáhugamanna. Ef hann er notaður í þúsundatali gera óhljóðin úr honum það að verkum, að fólk eins og ég, sem sjaldan horfir á fótbolta, horfir alls ekki á HM. Því er kannski við hæfi að skrifa fáein orð um lúðra.

Til er lúðrasveit á Íslandi, sem ef til vill er ekki eins mikið hlustað á og Lúðrasveit Verkalýðsins. Þetta er sveit fólks sem þeytir lúðra af guðdómlegum móð.

Hópur kristinna manna á Íslandi hefur í nokkurn tíma safnast saman á tunglkomudegi samkvæmt dagatali gyðinga/landsins helga, og blásið í horn. Já, í horn, sem eitt sin hefur sómt sér á höfðinu á lifandi dýri. Þessi hópur fólks safnast greinilega víða um land, er dæma má út frá http://www.torah.is/, og blæs af miklum móð þegar tunglkomudagur er eftir dagatali gyðinga.

Fólkið blæs í shofar, horn sem venjulega eru notuð við guðsþjónustu gyðinga til að ljúka föstu eftir Yom Kippur, friðþægingardaginn, á Rosh Hashana (Nýársdag), á sjálfstæðishátíð Ísraelríkis og við nokkur önnur tilefni, t.d. við brúðkaup meðal jemenítískra gyðinga.  Hornin sem blásið er í eru af nautpeningi eða sauðfé og hefur verið hreinsað og unnið svo hægt sé að blása í það svo það gefi frá sér tóna (sem ekki teljast endilega til fallegra hljóða). Einnig segja sögur, að lúðrar hafi veið leynivopn Ísraelsmanna. Lúðrablástur tengdist fórnarathöfnum í musterinu í Jerúsalem á tímum Biblíunnar og sjö prestar þeyttu lúðra á undan sáttmálsörkinni.  Hornin, sem mér sýnist lúðraþeytararnir á Íslandi séu að þeyta, eru af stórri antilópu (Kudu), og af gerð sem upprunnin er meðal gyðinga í Jemen.

220PX-~1

Gífurlegur áhugi virðist orðinn meðal kristinna hópa að blása í horn að hætti gyðinga. Ef maður leitar að YouTube myndböndum með orðinu Shofar, kemst maður úr skugga um það. Mest er það í Suður-Ameríku, Kannski hefur þetta færst út í öfgar. Er verið að ræna hljóðfærum gyðingdóms?  Eru þetta orðin Inn-trúarbrögð. En það leiðist nú að mér sá grunur, að fleiri sækist eftir því að verða „guðs útvalda þjóð", en það er hugtak, sem kristnir eiga það til að misskilja. Einnig vilja sumir kristniboðshópar fyrir alla muni klína Jesús og ýmis fagnaðarerindi kristinna upp á gyðinga, vel vitandi að það er ekki vinsælt meðal meginþorra afkomenda Abrahams.

shofarinashofar

Tungl%2020_%20sept_%2009%20-%20Dave1

Myndir af www.torah.is

Hinir íslensku lúðraþeytarar tilheyra hópi kristinna manna á Íslandi,  sem eru að reyna að kynna sér rætur þeirrar trúar sem kristindómur er nú einu sinni runnin undan. Þetta fólk er greinilega að leita að hreinleika, sem það finnur kannski ekki lengur í þjóðkirkjunni. En mjög er nú farið bókstaflega í sumt, enda líklega um bókstafstrúarfólk í bestu meiningu þess orðs að ræða. Mér sýnist jafnvel að einhverjir á Íslandi séu farnir að reyna að fylgja matvælareglum gyðingdóms, kashrut. Það er ef til vill einum of langt gengið á Íslandi, þar sem allt flýtur í svínakjöti og rjómasósu.


Múhammeð gerir allt brjálað í South Park

Janoob Park 

Múhammeð spámanni brá fyrir í nýjustu gerð South Park teiknimyndaþáttarins. Tekið var tillit til þeirrar miklu leyndar sem hvílir yfir útliti hans og sérkennum. Þess vegna völdu aðstandendur South Park, sem eru vel menntaðir ungir menn a gyðingaættum, það ráð að bregða honum í bjarnarlíki. Múhameð kom því fram sem sætur bangsi, teddybjörn. Ekkert var auðvitað talið óeðlilegt við það. Áður höfðu komið fram í þættinum hann Jesús, Guð faðir hans, Móses frændi hans, Budda frá Indlandi, Fjandinn sjálfur úr Helvíti og aðrir guðir og boðarar þeirra, að minnsta kosti tveir páfar úr Rómi og jafnvel Kári í deCODE... Eða einhver sem líktist honum.  Jón Valur Jensson eða Davíð Oddson hafa þó ekki verið með í þættinum, og er það South Park vart til framdráttar.

Nú vill svo til, að Múhammeð í Bjarnarlíki er jafnmikill glæpur og Muhammeð sem smjörlíki, Múhammeð með bombu í túrbaninum eða rauðhærður Múhammeð sem ég hef einu sinni séð í teiknimyndaseríu. Allt slíkt guðlast við aðalútsendara Allah kallar á allsherjar Jíhatur, Sjaría, Napalm, Eyjafallajökull, og hvað það nú heitir. Öfgasamtök í New York, þar sem útsendarar Múhammeðs felldu tvo turna og 3000 manns í bræði út af einhverju sem þeim mislíkaði, boða nú skyndilegan dauðdaga fyrir aumingja drengina sem teikna og úthugsa South Park í frímínútunum. Fréttastofa Reuters gamla greinir frá því að nafn spámannsins hafi þegar verið fjarlægt úr þættinum.

Ég sé að Mogginn fer fínt í þetta og ætlar ekki að birta neinar myndir af böngsum á næstunni eins og oft áður, og Björn Bjarnason, sá gamli jæjatolli, er hættur að skrifa af hræðslu við að enda eins og van Gogh.

Nú veltur allt á Wikileaks. Wikileaks verður, með hjálp nokkra nothæfra idjóta á Íslandi, að birta það sem South Park hefur nú bíbað í burtu. Hvar ertu nú Birgitta? Hvernær kemur upphaflega gerðin af nýjasta þætti South Park um Múhammeð á Wikileaks? Við eigum rétt á því að vita allan sannleikann!! Hvað var sagt? Er Múhammeð bangsi?

Múhammeð spámanni hefur svo sem áður brugðið fyrir í South Park. Hvað eru menn að æsasasig?


Fæðingarvottorð Jesús

INRI

er ekki til. Ekki er þó hægt að leyfa sér að draga tilvist hans í efa, ekki síst vegna jólanna, en sér í lagi vegna þess að  menn hafa drepið svo grimmt í nafni Jesús. Dauði hans orkar enn tvímælis og er opið sakamál, þar sem líkið hvarf af vettvangi. Miðað við hvað margir hafa þurft af missa líf sín fyrir dauða þessa manns, er ég sáttur við að hann hafi verið til, enda trúa milljarðar manna á hann. Þeir eiga hins vegar erfitt með að sjá hann í þeirri mynd sem hér er gefin af Jesús. Myndin sýnir dæmigerðan samtímamann Jesús, eða höfuðkúpu hans, sem BBC klæddi "holdi" og "blóði" með hjálp vísindamanna. Ég leyfði mér að bæta við algengu erfðaeinkenni gyðinga. Sjá, þetta er vissulega ekki Jesús Drottinn í Dómkirkjunni.

Mikið ber á því að menn séu að reyna að falsa fæðingarland Jesús. Ýmsar kenndir reka menn áfram. Íslenskir prestar ganga um og opinbera þá fávisku sína að að Jesús hafi fæðst í landi sé hét Palestína. Ég hef greint frá því áður. Í útvarpinu er lyginni fylgt ötullega eftir, eins og Jesús hefði alltaf verið kammerat Jesús Kristur frá Palestínu, uppreisnarmaður og eins konar frummarxisti. Þetta er orðið að þráhyggju hjá sumu fólki.

Blessuð mannkindin sem hefur „þýtt" eða endursamið grein um "Palestínu" á Wikipedia hefur einnig átt erfitt með sig, því þar stendur þetta:

Um það bil sem Jesús er talinn hafa fæðst, var ókyrrð í rómversku Palestínu og beinni stjórn Rómverja var aftur komið á. Kristnir menn voru kúgaðir og þó flestir tækju upp siði Rómverja voru margir, þá sérstaklega gyðingar, sem þoldu illa að vera undir stjórn þeirra.

Voru kristnir menn til þegar Jesús fæddist?  Nei, auðvitað ekki, enda var Palestína heldur ekki til þegar Jesús fæddist, hvort sem það var í Betlehem í Galíleu eða í Túristabetlehem nútímans, sem fjölmiðlar kalla hina palestínsku Betlehem. Nafnið Palestína var ekki notað opinberlega sem nafn á landsvæði því sem Jesús er talinn hafa fæðst á fyrr en um 390 e. Kr.

arch_titus_relief_lg
Myndin er af Títusarboga í Róm.

Þegar menn segja Jesú hafa fæðst í Palestínu, er það álíka mikil firra og ef einhverjir héldu því fram að Jón Sigurðsson forseti  hafi fæðst á Eyri við Arnarfjörið í ESB. Því verður nú örugglega logið upp á Jón hvort sem er, ef landsvikamenn og búskussar nútímans fá vilja sínum framgengt.

Ég hef beðið Biskupsstofu um að skýra afstöðu sína til þess lands sem Jesús fæddist í. Ég fékk þetta svar frá séra Kristjáni Vali Ingólfssyni:

Þessu má sem best svara svo: Kristnir menn leggja mismikið upp úr landafræði og staðháttum í Biblíutextum, en yfirleitt láta þeir duga að lesa bara það sem stendur í  Lúk. 2.4 og hafa það fyrir satt:

Þá fór og Jósef úr Galíleu frá borginni Nasaret upp til Júdeu, til borgar Davíðs, sem heitir Betlehem.

Það er engin önnur kenning um fæðingarstað Jesú í Þjóðkirkjunni heldur en hinn biblíulegi vitnisburður.

Mér sýnist, þrátt fyrir skoðanir afvegaleiddra íslenska presta með afar lélega söguþekkingu, að Þjóðkirkjan kalli fæðingarland Jesús Júdeu, eða það sem sem blessuð Biblían kallar Ísraels land, og reyndist sannspá. Því það heitir landið nú og höfuðborgin er hin helga borg Jerúsalem, en ekki Al Quds. Al Quds hét borgin meðan musteri gyðinga og kirkjur kristinna voru vanvirtar af trúarbrögðum sem enn á sér fylgismenn sem eiga erfitt með að sætta sig við tilvist Kristni og Gyðingdóms. Tími Palestínuoksins er löngu liðinn.


21. öldin á fullu

Þetta er mynd sem sýnir afstöðu kristinna í Moldavíu til gyðinga á Ljósahátíð, Chanukkah, þeirra síðastnefndu anno 2009.

Öfgaráðstefnan í Kaupmannahöfn

 

Það er skammt öfganna á milli. Skrítið að Jesús skyldi ekki kvarta yfir heimshitnun af völdum vondra manna og ríkja, eins og sumir fylgismenn hans gera nú. Hitastigið nú er nefnilega mun lægra en það var á tímum Jesús, og Vatnajökull var þá ekki svipur hjá sjón. En hvíthærð tófa var þó líka kona ársins i den tid.

Það er reyndar ekki svo skrítið að sumir kristnir ofstækismenn ætli að hamast á kirkjuklukkunum í nafni vafasamra vísinda. Loftslags- og bráðnunarrausið í dómsdagtrúarmönnum minnir óneitanlega mikið á frelsuð trúarbrögð. Kristnir, sem ætla að dingla í kirkjuklukkunum fyrir loftslagið, sjá sér greinilega færi á því að hita aðeins upp í kirkjunum með því að hoppa með á heimshitnunargufuvagninn, þó það gætu orðið einhverjir árekstrar við boðorðin 10.

Íslendingar, með verndara þjóðkirkjunnar í fararbroddi, gerðu, eins og kunnugt er orðið, heitan díl við öfgastjórnina í Teheran núna í vikunni. Íran ætlar fyrir tilstuðlan gufuvélstjórans á Bessastöðum að fara að kynda undir heiminum með "hreinni" orku, með Íslands sem fyrirmynd. Ríki, sem situr á ómældum auðlindum af gasi og olíu og sem ætlar sér að byggja 8-10 kjarnorkuver, er nú tilbúið í að nýta jarðhita. Þessi gleðiboðskapur var kallaður 350 sinnum úr bænaturnum Teherans í gær, og Óla ó Achbar bætt við. Það er ekki nema von að fólk hengi sjálft sig umvörpum af eintómri gleði í Íran.

Myndbrotið sem fylgir sýnir sumt af því sem fer fram á frelsunarsamkomunni í Kaupmannahöfn. Lesið gott blogg hér um sama mál.

Ahmedinejad, aðalkyndarinn í orkufyrirtækinu, sem Ólafur kyndari á Bessastöðum dílaði við, er á leið á loftslagsráðstefnuna í Kaupmannahöfn eins og aðrir stórir umhverfisverndunarsinnar. Ætli hann tilkynni okkur ekki að helsta ástæðan fyrir heimshitnun séu gyðingar? Það hentar hinum sértrúarhópnum, vinstrimönnum, vel. Alltaf einherjum öðrum að kenna. Margt tengir trúarbrögðin saman!

Fyrir þá sem vilja mótmæla veru Ahmedinidaddys í Kaupmannhöfn á friðsamlegan hátt, er hægt að skrá nafn sitt á http://copenhagen.stopthebomb.net/sign-now/  og gera meira fyrir loftslagið en dingla í kirkjuklukkum umhverfi sínu til ama. Einnig er hægt að mótmæla með því að skrifa til office@zionist.dk og biðja um að fá nafn sitt á listann: www.vendryggentil.dk/navne.html


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bækur

Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband