Leita í fréttum mbl.is

Trú friðar og umburðarlyndis skal vera velkomin

Wagenstraat synagogue
 

Ég skil ekkert í Íslendingum, sem vilja ekki mosku og mínarettur. Myndin hér að ofan er af mosku við Wagenstraat i den Haag í Hollandi. Húsið var áður eitt af samkunduhúsum gyðinga borginni. En þeir voru flestir myrtir vegna haturs og öfundar. Nú er hús gyðinganna miðstöð múslíma, en engin merki eru á lofti sem benda til þess að múslímar hljóti sömu örlög og gyðingar. Sumir múslímar hrópa nefnilega sömu slagorðin og þeir sem myrtu gyðingana. Það sá ég sjálfur í fyrsta skiptið árið 1976 í fyrrnefndri borg. Hvernig má þetta vera? Skýringin er einföld. Slagorðin eru ekki trúarbrögðin, heldur hluti af hatursbylgju, sem hefur tekið trúarbrögðin í gíslingu.

Ég er hlynntur moskum eins og öllum öðrum guðshúsum, ef þar fer ekki fram andleg og líkamleg nauðgun í gluggalausum kompum og boðun áróðurs gegn ákveðnum þjóðum, menningu og gildum annarra manna.  Þegar þjóðkirkjuprestar á Íslandi nota pontuna til hatursáróðurs gegn þjóðum, og hefur það nýlega sést á Íslandi, á að svipta þá kjól og kalli eins fljótt og þá sem halda vilja hlífðarhendi yfir barnaníðingum.

Ég stæri mig gjarnan af því að vera fyrsti Íslendingurinn , sem mælti með mosku á Íslandi. Ef þetta er rangt, upplýsið mig sem fyrst um villu mína. Nýlega hrópuðu ungliðar VG á þörfina fyrir Mosku, en krakkarnir hafa ekki sömu ástæðu og ég til að vilja fá mosku. Ég stakk upp á mosku árið 1994. Ég reit í Moggann þann 14. des 1994, bls. 44: „Það er ekki nóg að yrkja landið, fólkið verður einnig að fegra. Ég fagna þeim degi, að moska rís í Mosfellssveit eða sýnagóga á Selfossi og að bænir á Alþingi verði ekki aðeins kristnar". 

Er þessi klerkur erindreki friðar? Nei, hann býr bara í Svíþjóð.

 

Íslam sem trúarbrögð eiga að vera velkomin á Íslandi. En það er einn galli á gjöf Njarðar. Við vitum að Íslam á við mikil vandamál að stríða. Það er hatur í garð annarra trúarbragða og virðingarleysi, sem margir fylgjendur trúarbragðanna aðhyllast. Það er að bera í bakkafullan lækinn fyrir múslíma að neita því. Gjörvallur heimur múslíma, með örfáum undantekningum, hatast út í gyðinga, gyðingdóm og ríki gyðinga, Ísraelsríki. Kristnir og önnur trúarbrögð verða einnig fyrir barðinu. Hvernig má þetta vera? Ef það eru ekki gyðingar, þá eru það samkynhneigðir sem fá lexíuna, eða Bandaríkjamenn, eða Danir.

Morgunblaðið bannaði Loft Altice Þorsteinsson vegna orðbragðs um samkynhneigða. Þessi múfti hefur enn ekki verið bannaður í fjölmiðlum í múslímskum löndum.

 

Hvað boðar þessi egypski klerkur, VG-stefnu eða Íslam?

 

Ef moskan er notuð til að boða hatur, dauða, vanvirðingu, þjóðrembu og imperíalisma, þá get ég aldrei stutt byggingu mosku á Íslandi.

Nei, allt þetta hatur, sem ég læt fylgja nokkur dæmi um,  er fyrst og fremst vegna þekkingarleysis og menntunarskorts. Þegar ungliðar VG heimta mosku í Reykjavík er mér ekkert brugðið. Þeir eru fullir af þekkingarleysi, afneitun og falsi. Þeir vilja ekki leyfa byggingu mosku fyrir sömu sakir og ég. Þeim er skítsama um trúarbrögð.  Þau gefa skít í Múhameð og Allah. Ungliðarnir í VG eru nefnilega flestir trúleysingar. En vegna haturs eiga þau samleið með öfgamönnum innan Íslams. Þeir eiga sameiginlega óvini og hatast út í Ísrael og BNA - af þekkingarleysi.  Áhugi VG á moskum er því ekki hreinn. Hann byggist frekar á hatri en á trúnni á Guð eða Allah.

 

Þessi klerkur er viss um að Jehúd séu á bak við alla hans eymd

 

Ég vona ekki að moskan sem múslímar reisa fyrir fé sitt á Íslandi verði notuð til að boða hatur og dauða. Ég leyfi ég mér að ráðleggja íslenskum múslímum að halda sig langt frá ungliðum VG, og fólki sem lýsir frati á trúarþörf annarra og sem telur vantrú sína ofar öllum öðrum mannlegum eiginleikum.

Ég læt ég fylgja nokkur dæmi um hvers konar hatur ég meina, því vandamálið er stórt og svo mikið að oft er erfitt að sjá hvað er Íslam friðarins, og hvað er hatur.

Þessir prestar á Gaza virðast hafa einhver sambönd í hatrinu á Íslandi. Að minnsta kosti er nú víst að Eyjafjallajökli er stjórnað af Allah og dyntum hans. Er þetta Íslam eða fávisku, sem þessi menn þjóna?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Legg til að tungan verði skorinn úr þessum andhommamúffa og hann verði geltur til vara. Að öðru leyti LOVE AND PEACE.

Sigurður Þór Guðjónsson, 5.9.2010 kl. 21:17

2 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Góður þessi með rússana sem setja múslimi í hakkavélar.  Maðurinn deplaði ekki auga, þegar hann kastaði fram djóknum. Uppistandari af Allas náð.

Eyjafjallajökullssketchinn var líka góður. Alla gaf þeim þó ekki þá náð að geta borið nafnið fram.  Þær ættu nú ekki að vera að kvarta með þennan líka rosalega volduga bandamann, sem heldur óvininum í skefjum. Ég myndi nú bara halla mér og dilla tánum upp í loft og láta hann um áhyggjuefnin, fyrst hann er svona mikið á þeirra bandi. Vei þessum efasemdarmönnum að vera að mjálma þetta í Moskum, með slíkt forræðisafl.

Gaman líka að  heira hjá þessum hlæjandi hommahatara, sem réði sér ekki af kátínu yfir afhöfðun þeirra og öðrum skemmtilegum morðvaríasjónum. Hann talar um að Allah hafi snúið Sódómu á haus. Er hann þá ekki sami guðinn og heldur verndarhendi yfir gyðingum? Maður verður alveg ringlaður.

Gaman að sjá annars hvað þú ert skyldur mér í viðhorfum til trúarbragða.  Er þetta nýskeð?

Jón Steinar Ragnarsson, 5.9.2010 kl. 23:07

3 Smámynd: Guðrún Sæmundsdóttir

Um leið og kristnar kirkjur rísa í Mekka er athugandi að moskur fái lóð í Reykjavík.

Guðrún Sæmundsdóttir, 6.9.2010 kl. 15:14

4 identicon

Þetta eru ótrúleg myndbönd. Að svona menn geti breitt út hatur sitt og fordóma í nafni trúarbragða, finnst mér virkilega dapurlegt.

Einnig fannst mér mjög sérstakt að þessi maður telur eldgosið í Eyjafjallajökli vera vegna alls óhugnaðarins hér í Evrópu. Annað en hinir heilögu múslimar.

Hvað með flóðin í Pakistan ? fyrir hvað var Allah að refsa ?

Þetta er bara kjánalegt. Að menn geti réttlætt ógeðslega fordóma sem og hryðjuverk, morð og nauðganir (giftingar stúlkubarna) með trúarbrögðum.

"nei hvahh.. það er allt í lagi að ég fái mér 11 ára eigin"konu". Múhammad gerði það".

Stúlkubarnið hét Aisha ef ég man rétt.

Sem betur fer eru margir múlslimar á Íslandi sem hafa samlagast íslenskum venjum. En það eru öfgamenn inni á milli og þeir eru margir.

Veit ekki með þessa mosku. - Það er nefninlega hætta á því að þeir hófsömu múslimar sem hér búa verði fyrir áhrifum og kúgunum þeirra sem lifa eftir sharia lögum og reglum.

Það þarf að koma þeim öfgamönnum úr landi, ef það kemur upp í þessari mosku að verið sé að boða hatur og annað í þeim dúr.

Vona að þeir "klerkar" sem munu vera í þeirri mosku sem hér rís, verði ekkert í líkingu við þá sem eru á þessum myndböndum...7,9,13 !!!

ThoR (IP-tala skráð) 10.9.2010 kl. 14:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bækur

Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband