Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Trúmál

Kosningarbaráttan í Danmörku

Haltu kjafti kona Muslim Style
 

er leiðinleg og stjórnmálaflokkar ætla allir að gera það sama, því greinilega er ekki hægt að gera betur en sú stjórn sem er nú við völdin. Einstakir flokkar hafa þó draumsýnir, sem auka skattabyrði og það freistar ýmissa óábyrgra draumóramanna í flata landinu.

Svo er hinn mikli fjöldi innflytjenda í Danmörku sem hefur fengið hér ríkisfang. Þátttaka þeirra í kosningum er ekki eins mikil og innfæddra Dana. Og nú er Allah farinn að blanda sér í kosningarnar, eða réttara sagt öfgafullir útsendarar hans. 

Nokkur fjöldi innflytjenda með múslímskan bakgrunn býður sig fram í öllum flokkum nema í Danska Þjóðarflokkunum.

Nokkuð hefur verið rætt um það í Danmörku að öfgafullir fulltrúar Allah í Danmörku hvetji (les hóti) fólk til að taka ekki þátt í kosningunum. Lögin eru Allahs og lýðræði er hræsni, samkvæmt öfgafullum múslímum sem reynt hafa reyna að loka munninum á frambjóðendum innflytjenda, einnig á táknrænan hátt. Á kosningarspjöld eins  frambjóðanda úr röðum Krata í Danmörku, Yildiz Erdogans, hafa einfaldlega verið límdir miðar yfir munn hennar og boðskapurinn er ljós: LOVGIVNING TILHØRER ALLAH, DEMOKRATI ER HYKLERI, HYKLERI I HELVEDET. Öll spjöld Yildiz Erdogans í Thingbjerg höfðu verið eyðilög á þennan hátt í gær.

Allahs Budskab

Svona er Danmörk í dag. Danmörk liggur í ESB, sem sumir Íslendingar sækjast svo heitt eftir að komast í.

  Danmarks Nationale Front

Danskir nasistar, í flokki sem kalla sig Danmarks Nationale Front, bjóða ekki fram, en dreifa þessum boðskap: ALLE HAR RET TIL DERES LAND, ISRAEL UD AF PALESTINA, PALESTINA UD AF DANMARK!

Þetta skiljið þið. Þetta er nærri því sama smérið og vinstri menn eru með á Íslandi.

Jú, meðan ég man:

Ég hélt að svona hótanir tíðkuðust ekki á Íslandi. Múslímar haf ekki boðið sig fram til Alþingiskosninga, enda enn mjög fáir á Íslandi. Myndu trúbræður múslímskra frambjóðanda í kosningum á Íslandi hóta þeim?

Um daginn voru mér sendar upplýsingar um aðstæður á vinnustað einum í Reykjavík, þar sem mér var greint frá Múslíma frá Norður-Afríku sem átti það til að heimta bónus, þegar föstumánuðurinn Ramadan gekk í garð. Svo vitnað sé í heimildarmann: "Hann hefur átt í útistöðum við Íslendinga, Pólverja, Portugali, Litháa og fleiri. Hann kvartaði mikið undan svertingja sem hann var að vinna með og sagðist ekki geta unnið með honum vegna negrafýlu. Hann fékk því framgengt að svertingjanum var sagt upp störfum. Einnig átti hann í útistöðum við Portúgali. Einn Portúgalinn  ætlaði að skera hann á háls á vinnustaðnum". Starfsmannastjórinn á þessum huggulega vinnustað varaði starfsmannin við er hann kom úr sumarfríi árið 2008, "að hann þyrfti að passa sig á aröbunum vegna þess að þeir væru núna í brjáluðu skapi. Ramadan föstumánuðurinn var byrjaður".

Maður þessi "hefur margoft öskrað á vinnustaðnum að drepa ætti Bandaríkjamenn og gyðinga. Í sambandi við 9-11 sagði hann að hann hefði viljað að fleiri Bandaríkjamenn hefðu verið drepnir í árásinni. í heimildarmyndinni um 9-11 sagðist hann hafa spólað aftur til baka til að heyra aftur og aftur hvernig Bandaríkjamenn skullu til jarðar".

Ef þetta er rétt, sem ég hef enga ástæðu til að ætla að sé ekki, þar sem þessar upplýsingar voru einnig sendar í bréfi til stéttarsamtaka í Reykjavík, þá vona ég að öfgamennirnir sem hér er lýst fari ekki að bjóða sig fram til Alþingiskosninga á næstunni, eða hann fái ekki leyfi til að sinna trúnaðarstörfum. Maður vonar að VR komi í veg fyrir slíkt og að svona hlutir geti gerst á vinnustöðum.


Ritað á liminn

Chomsky Fan Club
 

Þeir sem skrifa opinberlega á blogg og eru ekki sammála öllu því sem er til vinstri við hægra eystað á Jóni Baldvini Hannibalssyni, hljóta að þekkja Sindra Freysson heimsspeking blaðamann og rithöfund, sem gerir oft athugasemdir hjá þeim, sem hann telur hafa rangar skoðanir á hlutunum í heiminum.

Eins og allir rétthugsandi fór Sindri á fyrirlestur guðsspjallamannsins Chomskys í Háskólabíói í gær. Sindri Freysson greinir frá því á fésbók einhvers staðar, að lýðurinn hafi eftir fyrirlesturinn flykkst að spámanninum. Þarna kepptust lærðir og leikir, ærðir sem veikir við að fá handaálagningu eða áritun Chomskys.

Skyndilega stendur heilagur Chomsky með gervilim í fanginu og tússpenna í hendinni. Straumurinn fór af neongeislabaugnum eitt andartak, og mátti heyra saumnál detta á plastgólfið í bíóinu. Noam mundar svo tússið og krassar CHOMSKY á liminn og tautar,"Well, that´s a first". Varð Sindri Freysson vitni að þessari jarteikn, og hún er smámsaman að komast í heimsfréttirnar.

Það sem Sindri Freysson veit ekki er, að eigandi limsins ætlar aldrei að þvo hann aftur. Það sagði hann þegar hann haltraði út um SV-útganginn. 

Maðurinn, sem sést hér að ofan með Chomsky, sem í sumar hélt því fram opinberlega, að ég væri njósnari Mossad, (og telur mig þar með væntanlega líklegan til að hafa staðið á bak við árásina á Tvíburaturnana), fékk handaálagningu hjá Chomsky. Það hljóta að vera smá sárabætur fyrir að stofnun Palestínska stórríkisins hefur verið frestað vegna veðurs, meðan menn bíða eftir stórsóknum Ottómanska Kalífatsins og þræla Faraósins á eina frjálsa ríkið í Miðausturlöndum?

576401

Áður en Chomsky blessaði lýðinn, blessaði múmínsnáðinn við Tjörnina hann í morgunsólinni.


Next Stop Gaza

Papa Palestina
 

Trúboðsbiskupinn Össur er nú á suðurgöngu. Það nægir ekki Evrupáfanum að selja Íslendinga á fæti til ESB með lygaherferð. Hann virðist vera haldinn ótæmandi eyðileggingarhvöt og verður líka að sýna stuðning sinn í verki við eyðingu Ísraelsríkis, eina lýðræðisríkisins við botn Miðjarðarhafs. Hann er nú á leiðinni til Gaza, þar sem hann ætlar að lýsa stuðningi við Hamas og hryllingsveldi þeirra með mikilfenglegri nærveru sinni, og þar með leggja blessun sína yfir yfirlýsta pólitík Hamas sem gengur út að drepa gyðinga hvar sem þá er að finna.

Er þetta virkilega sami íslenski garðálfurinn sem vill í ESB? Mér er spurn, því Hamas er á lista ESB yfir hryðjuverkaríki. Kannski er ekki komið að kaflanum um stuðning við hryðjuverk í biblíu (les: ESB-handbók) Sánkti Össurar?

Össur mun fara yfir nýopnuð landmæri Gaza og Egyptalands. Þótt hann sé ávallt flotillur út í Ísrael, taldi hann ekki öruggt að láta sig fljóta að ströndinni eins og rauða bauju sem hefur losnað frá festingunni, og tók í staðinn rútuna.

Það er því greinilega ekki nóg fyrir Össur að sleppa heilu köflunum úr samningaferlinu við ESB og gefa ESB fiskimiðin kringum landið. Hann fær greinilega heldur ekki nóga fullnægingu í að leika íslensku hóruna sem fleygir sér fleðulega í fangið á undrandi, ungverskum hússörum í Brussell, þegar hann er ekki að spreða stolnum gullmolum Tínu Törner. Nei, hann hefur tapað hjartanu til Gaza og heilanum í ESB. Sorglegt, and What's love got to do with it? - Nothing! 

Það er mikið skrifað og skrafað um níðingsverk preláta eldri trúarbragða á Íslandi núna í gúrkutíðinni. Spurningin er hvort ekki beri að kæra trúboðsbiskupinn Össur fyrir níðingsverk áður en það er um seinan og hann tekur okkur öll í r...


Af ýmis konar hysteríu

Prinsessuakademían

Sjá menn klám í öllu á Íslandi? Auglýst er prinsessunámskeið í Kópavogi fyrir litlar stúlkur og femínistafélag Íslands fer strax úr brókunum af eintómri vandlætingu. Einhver talsprinsessa í femínistaklúbbnum fárast yfir því í fjölmiðlum að námskeið fyrir prinsessustelpur séu klámvæðing. DV stillir upp mynd af femínista og prinsessu (talsmaðurinn er víst til hægri) og má vart sjá hver hefur náð lengra í þeirri list að vera prinsessa. Eru plokkaðar augnabrýr ekki hættulega nálægt klámvæðingu? Klámvæddir heilar íslenskra femínista eru ofar mínum skilningi. Sumar konur eru bara fæddar prinsessur, og það sjáum við ríkulega í íslensku þjóðlífi. Eina sem ég get sett út þennan prinsessuskóla er, að drengir fá þar örugglega ekki inngöngu. Gráir og guggnir íslenskir karlmenn gætu nefnilega haft gott af því að hafa lært smá litgreiningu frá blautu barnsbeini, eða að hafa lært örfáa prinsessutakta, svo þeir verði ekki undir í lífsbaráttunni í kreppuástandi lesbógynokratísku djöfleyjunnar okkar.

Mikið veður hefur verið gert út af meintu barnaníði meðal kaþólskra á Íslandi. Ekki er hægt að útiloka að það hafi átt sér stað, en það hafa heldur ekki verið færðar fyrir því sönnur, sem er grundvallaatriði í réttarríki, þegar tekið er á svo alvarlegum hlutum. Þar sem ég hef orðið fyrir illmennsku eins þess aðila sem ásakaður er um enn verri hluti en ég varð fyrir af höndum hennar, þá finnst mér umræðan um málið á vissan hátt vera farin að nálgast gamaldags hysteríu, því menn álykta mjög fjálglega, jafnvel þótt þeir hafi hvergi komið nærri því fólki sem ásakað er.

Guðrún Ögmundsdóttir gefur sér það að svona mál verði mörg á næstu árum, þar sem hún gengur út frá því að kaþólska kirkjan á Íslandi sé eins og hún er annars staðar. Gaman væri að vita hvað Guðrún Ögmundsdóttir, formaður fagnefndar um kynferðisglæpi, meinar eiginlega með þessu. Eins og ég les þetta, eru þetta dylgjur og getgátur út í loftið byggðar á fyrirframgefnum fordómum Guðrúnar til trúar.

G6GF5QA2

Þó svo að þessi nefnd Guðrúnar, sem ekki er enn orðin sendiherra, hefur aðeins starfað í rúmlegan mánuð, virðast „niðurstöðurnar" ekki láta bíða eftir sér eins og venjan er í öðrum íslenskum nefndum. En starfar þessi nefnd alveg eðlilega?  Er nóg að ýja dylgjum og ósönnuðum sögum að soltnum fjölmiðla?  Er hlutverk nefndarinnar að vera með palladóma og að láta fólk fárast, eða er hlutverk hennar að rannsaka og upplýsa?

Eitt er víst, að nefndin hefur ekkert umboð um starfsemi kirkjudeilda á Íslandi, þó svo að formaður nefndarinnar gefi sér að allt vaði þar í sódómisma og sukki. Eins og segir í bréfi kaþólsku kirkjunnar á Íslandi til Ögmundar Jónssonar: þá sé það ekki hlutverk stjórnvalda að grafa undan trúverðugleika kirkjunnar - nema að Ögmundur, sem nýlega lagði t.d. blessun sína yfir trúfélag sem styrkt er fjárhagslega af öfgasamtökum úti í heimi, telji að það sé einmitt hlutverk sitt. Hver veit? Karlmenn geta líka hæglega verið hysterískir.

STUDIES-ON-HYSTERIA

Sagt er, að lögreglan hafi rannsakað málin sem nú eru komin upp í tengslum við Kaþólsku kirkjuna. Það sýnist mér ekki að lögreglan hafi gert að neinu ráði, heldur aðeins látið Guðrúnu Ögmunds dæma lifendur og dauða, þar sem hún situr við vinstri væng Ögmundar Jónassonar.

Guðrún verður að víkka sjóndeildarhring sinn og ganga út frá því að í ungliðastarfi vinstri hreyfinga á Íslandi hafi einnig tíðkast barnaníð og kynferðisleg kúgun. Þannig var það úti í heimi, þannig hlýtur það að hafa verið í vinstrisinnuðu starfi á Íslandi - ef venjuleg rök Guðrúnar eiga að standast.  

Nú vitum við að mórallinn var afar slakur í öllum löndum undir hamri og sigð, t.d  í DDR, þótt þar hafi menn í áróðri gefið aðra mynd af ástandinu. Ber ekki  að álykta að viss prósenta trúbræðra- og systra Guðrúnar sem leituðu oft andlegs styrks i DDR hafi verið fórnarlömb kynferðisofbeldis, eða jafnvel gerendur. Allt var bannað í DDR eins og í kirkjunni.  Hankípankí og klám var bannað (nema fyrir kommísaranna) og menn voru barðir til hlýðni, eins og sums staðar í kirkjunni. Margir strípluðu naktir á ströndum DDR. Það er auðvitað ekkert að því og þetta eilífa nektarpartí í DDR (sem er reyndar mjög þýskt fyrirbæri), var fyrst og fremst saklaus núdismi sem margir sóttu mjög í, kannski vegna þess að kynferðismál voru tabú. Maður sá ekki bera kroppa nema á ströndinni. En ljóta hliðin var að klámmyndir og barnaklám var einnig framleitt í DDR í tengslum við strípalingakúltúrinn í DDR og varð að sögn fróðra manna söluvara á Vesturlöndum. Pedófílía var þó formlega algjörlega bönnuð, og barnaníð var formlega ekki til í DDR, ef einhver spurði Honnecker. Þetta gerði lífið létt fyrir þá DDR-pedófílía, sem á síðari árum hafa verið dæmdir í Þýskaland. Á DDR-árunum stunduðu þeir óáreittir barnaníð í skugga þess að barnaníð var ekki til. Það sem ekki er til, er ekki glæpur. Afneitunin er alltaf þægileg. Afneitunin er systir alhæfingarinnar.  

08e02392f7551a1c8f4ce4c324d980fd_image_document_large_featured_borderless

Samkvæmt skýrslu Evrópuráðsins, tekinni saman af Corinne May-Chacal og Maria Herkzog (2003), þá komu árið 1989 upp 11.851 mál um barnaníð í Vestur-Þýskalandi (134 af hverju 100.000 barna), meðan talan í DDR var 1.095 (36 af hverju 100.000 barna). DDR-ingar kunnu auðvitað sínar frelsuðu skýringu á þessu lága hlutfalli hjá þeim, en annað hefur komið í ljós. Ástandið í DDR var, ef nokkuð, verra en í BRD, og sósíalistar lögðust á börn og misnotuðu apparatið til þess. Það var enginn trúnaðarsími til í DDR sem börn gátu hringt í, og ef fólk kærði barnaníð hringdi það kannski til níðinganna sjálfra í STASI. Það þurfti ekki mikið til, í dómhörku sósíalistaparadísa, að menn væru stimplaðir sem  2. flokks þegnar og settir út af sakramentinu. Líf barna og unglinga sem sett voru á stofnanir vegna þessa var helvíti á jörð. Nauðganir og barsmíðar voru þar daglegt brauð. Svoleiðis  var þetta um alla Austur-Evrópu. Kristni og trú eiga ekki einkaréttin á því að vera vond.

Svo gamlir Allaballar, sem nú vilja telja manni trú um að kirkjan sé rót alls ills gegn börnum, og að fólk með ljót andlit og fölsk bros sé hættulegt, ættu að líta sér nær, áður en komið er með fjálglegar yfirlýsingar akkúrat þegar gúrkutíðin stendur einna hæst hjá fjölmiðlunum.

Að lokum smá klám frá DDR fyrir Guðrúnu og ykkur hin, sem trúðuð því að allt yrði betra eftir byltinguna:


Illmennska og múgæsing eru systur

Riftún 4

Illmennskan er svo sannarlega í brennideplinum á Íslandi þessa dagana. Á þjóðhátíðardaginn fengum við fréttir af ljótum hlutum sem gerðust innan kaþólsku kirkjunnar á Íslandi. Fram er komið að illmennska, sem ég lýsti meðal annars árið 2009, var daglegt brauð í Landakotsskóla og í sumarbúðum kaþólikka í Riftúni í Ölfusi. Enn verri hlutir hafa nú einnig komið upp á yfirborðið, barnaníð, en enginn vill gangast við frásögnum um það undir fullu nafni.

Múgæsingin náði svo hámarki með orðum formanns fagráðs um kynferðisafbrot, Guðrúnar Ögmundsdóttur. Guðrún virðist mér nota gamlar afkaþólskar aðferðir rannsóknarréttar Jésúíta í röksemdafærslu sinni, sem veldur því að ég get ekki framar tekið þessa nefnd hennar alvarlega.

Þetta var t.d. haft eftir henni í gær á mbl.is : Guðrún segir að umrædd mál hafi farið alla leið í kerfinu en þau séu fleiri enda engin ástæða til að ætla að kaþólska kirkjan á Íslandi sé frábrugðin kaþólsku kirkjunni erlendis. Guðrún ætlar greinilega kaþólsku kirkjunni allt hið versta. Vonandi fer hún ekki að gera tölfræðilega úttekt á þessu með hliðsjón af tveimur málum (og fleirum) á Íslandi, því þá hefur milljónum Frakka og Ítala verið nauðgað af prestum. Guðrún Ögmundsdóttur dæmir sig sjálf með þessari kjánalegu röksemdafærslu. Ef málin eru fleiri, ber þeirri nefnd sem hún stjórnar eins og hún sé rannsóknarrétturinn, að greina frá þeim opinberlega í skýrslum. Hvað fær hún laun fyrir? Að lýsa hlutum yfir í dagblöðum, eða starfa faglega?

Guðrún setur sig bæði yfir guð og menn eins og fólk gerir gjarna á vinstri vængnum. Þar er kirkjan að grunni til talin vera vond og trúin heilaþvottur og ópíum. Múgæsingin síðustu daga er í anda þeirrar stefnu sem Guðrún Ögmundsdóttir hefur aðhyllst mestan hluta ævi sinnar. En nú eftir uppgjörið við meginhugsjónastefnu Guðrúnar hafa verið skrifaðar ágætar bækur um bældar og duldar myndir kynóra manna undir hamri og sigð. Þeir sem kenndu sig við Marx og Engels voru mjög bældir fyrir neðan mitti, og ekki mikið öðruvísi en þeir sem lifðu í tvískinnungi  trúarbragða gamla skólans. Hvernig þetta er hjá femínistum langar mig ekki að dreifa huganum um.

Kaþólskur drengur við kofa
Þessi drengur var kaþólskur og af góðum ættum. Kofinn á bak við hann var tekinn hertaki af systursyni Fraulein Müller sem kom frá Þýskalandi í heimsókn ásamt systur sinni Gabi og móður. Þarna inni pyntaði hann hin börnin. Hann var ávallt klæddur í Lederhosen. Hvort drengurinn á myndinni, sem var sonur verksmiðjueiganda, varð fyrir barðinu á Müller veit ég ekki. Þetta var góður drengur.

 

Reyndar eru mér vitandi ekki enn komin fram fleiri dæmi um kynferðisleg afbrot meðlima þjóna kaþólsku kirkjunnar á Íslandi en þau, sem tveir nafnlausir einstaklingar hafa sett fram. Nema fyrir utan tölvubréf sem ég fékk í gær og sem ég verð að nefna. Þar var því haldið fram að sr. Georg hefði einnig lagst á stúlku eina nafnlausa. Hvað kemur næst? Átti hann í ástarsambandi við hross eða schefferhunda?  Ef svo er, látið sannanir fylgja orðum ykkar og staðhæfingum.

Vilhjálmur í Riftúni

 Ég var aldrei ánægður drengur í Riftúni. Myndina tók Fräulein Müller á Kodak Instamatic myndavélina mína. Sjáið svipinn á mér með því að klikka á myndina.

Illugi Jökulsson er einnig kominn í allsherjardóminn yfir „Hryllingshjúunum í Landakoti", eins og hann kallar þau séra Georg og Fräulein Müller svo skáldlega, og bætir blautum rekaviði sínum á bál nornaveiðara. Hann byggir það eingöngu á hegðun dóttur sinnar, sem fyrir 17 árum var troðið í 5 ára bekk í Landakoti vegna snobborðsins sem fór af skólanum. Illugi veður í vangaveltum og dæmir séra Georg og Mergréti Müller, þó svo að þau hafi hvorug kennt dóttur hans í Landakoti. Illugi segir: „Ég get ekki fullyrt það - en því miður er ég hins vegar viss um að það er allt meira og minna rétt".

Hvers kyns sannleiksvitund er ókrýndur konungur áhugasagnfræðinnar á Íslandi að kenna hér? Mér sýnist það vera lógík þeirra sem t.d. ofsóttu gyðinga fram eftir öldum. Illugi er með ofsóknir gegn fólki sem getur sig ekki varið.

Illugi gleymir að segja okkur, að faðir hans, Jökull Jakobsson, kenndi við Landakotsskóla, og ef hann leitar hryllingssagna hefði kannski verið við hæfi að byrja í smiðju hins mikla sagnaþuls sem faðir hans var. En mér er ekki kunnugt um að Jökull Jakobsson hafi skilið eftir sig hryllingssögur, sem staðfest geta hryllingsmynd vinstrielítunnar af Landakoti og kaþólsku kirkjunni. Hér læt ég fylgja lýsingu Illuga, sem dæmir sig sjálf. Hún er eftirrasjónalisering og byggir aðeins á því að dóttir hans var greinilega feimin. Restin eru hugarórar fullorðins manns:

Og stúlkan okkar þurfti ekki mikið að hafa af séra Georg að segja heldur.

Ég hélt framan af - og lem mig nú sundur og saman fyrir glámskyggnina - að séra Georg væri vinalegur karl sem vildi öllum vel. Kannski svolítið skrýtinn í fasi, en brosmildur og frekar góðlegur bara.

Úff - aftur fer um mig hrollur.

Eftir því sem leið á veturinn fór mér að þykja minna til um hann.

Hann var aðeins of sleikjulegur.

Og hann sagði aldrei neitt merkilegt.

Mér var því löngu hætt að líka við hann þegar fór að vora, en samt hvarflaði ekki að mér neitt í líkingu við það sem nú hefur komið í ljós.

Við foreldrarnir verðum auðvitað horfast í augu við algjört dómgreindarleysi, að hafa látið barnið okkar koma nálægt þessum glefsandi skrímslum sem þau reyndust vera.

Um barnið gilti önnur saga.

Hún sá strax í gegnum séra Georg.

Fimm ára gömul sneri hún sér alltaf undan þegar séra Georg bar fyrir augu hennar.

Þegar hann kom inn í bekkinn, einhverra erinda sem skólastjóri, þá sneri hún sér við á stólnum og starði sem fastast út í vegg þangað til hann var farinn aftur.

Það varð engu tauti við hana komið.

Yfirleitt var hún frekar feimin og vildi lítið láta á sér bera, en í þessu tilfelli kostaði hún því til að kennarinn og allir hinir krakkarnir góndu á hana.

Hún ætlaði EKKI að viðurkenna tilveru séra Georgs.

Ekki einu sinni með því að líta á hann.

Ég sá það á honum að honum þótti þetta óþægilegt. Mér fannst það svo sem ekkert skrýtið.

En núna hugsa ég að hann hafi vitað að þarna var komið barn sem sá hvað leyndist undir flírubrosinu og bak við prestskragann.

Og hann skyldi gæta sín.

Þegar til kom varð skólavistin í Landakoti aldrei nema þessi eini vetur.

Því barnið þvertók fyrir að fara þangað aftur.

Hún vildi komast þaðan burt, strax, fara í Austurbæjarskólann og engar refjar.

Og kannski vorum við foreldrarnir loksins farnir að skynja eitthvað óþægilegt á göngum skólans, því við mölduðum ekkert í móinn.

Hún fór bara í Austurbæjarskólann, var þar alla sína tíð og líkaði vel.

En reiðin sem býr í mér - hún snýst fyrst um það af hverju var þessum illfyglum leyft að starfa með börnum svo lengi?

Burtséð frá kynferðisofbeldi, sem virðist hafa tíðkast þarna, en væntanlega í felum, þá virðist hafa verið algjörlega augljóst að þetta fólk átti ekki að koma nálægt börnum.

Af hverju var mér ekki sagt það þegar ég sendi barnið mitt í þennan skóla?

Af hverju vissi ég þetta ekki?

Af hverju höfðu börnin sem höfðu mátt þola hryllinginn ekki sagt foreldrum sínum frá því?

Höfðu þau gert það, en foreldrarnir ekki trúað þeim?

Eða höfðu foreldrarnir kosið að hlusta ekki?

Úff!

úff segi ég ég líka, eins og Andrés Önd og Illugi Jökulsson, og það fer um mig hrollur. Frásagnir Egils Helgasonar valda því einnig að ég segi, "úff og gisp" og fæ gæsahúð. Egill dæmir vegna þess að kona hans var í Landakoti og vegna þess að hann heyrði sögusagnir. Þessar analýsur Illuga og annarra sjálfskipaðra siðapostula dæma sig sjálfar, og staðfestir allt það versta sem ég hef séð á lífsleiðinni um glámskyggni fólks sem kallar sig vinstrisinnað. Það er svo frelsað og fullvisst um frábæra dómgreind sína, að manni verður flökurt. Illmennska ykkar, fordómar og múgæsing er eins og eitthvað beint út úr pápísku miðalda. Skammist ykkar, því enginn er sekur fyrr en sekt hans er sönnuð.

Goggi spilar fótbolta

Séra Georg í fótbolta við strákana. Ég man ekki eftir honum sem illmenni og ég dæmi hann ekki út frá útliti hans eins og faríseinn Illugi Jökulsson.

Strákur í slopp Margrétar Müller

Þessi mynd er af strák, sem ég man ekki hvað hét. Hann hefur verið færðu í slopp Margrétar Müller, sem sagði öllum að hann væri "Schtelpa". Vonandi hefur þessi drengur haft "innsæi barnsins" sem Illugi og vinir hans í rétttrúnaðinum eru á því að 5 ára börn hafi og sjái því í gegnum vont fólk. Í bakgrunni myndarinnar sést Kevin H., sem var þeldökkur drengur, sem átti íslenskan föður í Bandaríkjunum. Hann var ekki lagður í einelti af neinum í Riftúni, en síðar heyrði ég að hann var ofsóttur í Vesturbænum í Reykjavík, þar sem hann bjó, og voru þar víst ekki kaþólikkar að verki.

Helgi vinur minn 

Helgi hét þessi strákur, nokkrum árum eldri en ég, en hann var meðal bestu vina minna í Riftúni. Hann var alvarlega veikur, með hjartagalla og flogaveiki. Honum leið vel í Riftúni. Margrét Müller var reyndar góð við hann og bað mig og aðra að gæta hans! Helgi var mikill fræðaþulur og gerði ekki mikið annað en að lesa, þar sem hann gat ekki leikið sér eins og önnur börn. Þessi drengur var af almúgfólki kominn og bjó lengi á Hverfisgötunni.


Á kaþólska kirkjan sök á því að menn eru í Vinstri-Grænum og Vantrú?

 

2004_1001_140228AA

Einn fremsti trúleysingi landsins, sem er framarlega í flokki Vantrúarmanna, Vésteinn Valgarðsson, hefur einnig orðið fyrir barðinu á kaþólskum á Íslandi, eins og ég.  Þessi frekar ungi sósíalisti, sem er af "mjög góðum" íhaldsættum úr Vesturbænum í Reykjavík, greindi þó ekki frá hremmingum sínum í návist kaþólskra fyrr en loksins nú, og mér sýnist að hann kenni jafnvel kaþólskum níðingum um vantrú sína. Alveg öfugt við mig er hann viss um sök fólks áður en hún hefur verið sönnuð, og dæmir kaþólskan prest og illa innrætta þýska konu, sem af einhverjum furðulegum ástæðum fékk að kenna í Landakotsskóla í áraraðir, um barnaníðingshátt. Ég og Vésteinn erum  vissulega um margt sammála, en Vesteinn gengur lengra en ég, sem lýsti þessari þýsku konu árið 2009, því hann er bæði í Vantrú og Vinstri Grænum, og hefur því sjálfkrafa sérleyfi á allan sannleika. Án þess að hafa sönnun, dæmir hann þá dauðu eins og Kristur átti að gera, þegar hann kæmi aftur.  

Ég reyndi að gera athugasemd hjá Vésteini á blogg hans um frásögn hans af meintum perraskap sr. Georgs og Margrétar Müller, og hvað sem ég reyni, þá fjarlægir Vésteinn ávallt athugasemdina frá mér. Hann hefur greinilega höndlað sannleikann og vill ekki heyra það sem honum eldri og gáfaðri menn hafa til málanna að leggja. Hér getið þið lesið athugasemd mína til Vésteins, sem hann vill ekki birta á bloggi sínu:

Sæll Vésteinn Valgarðsson,

ég held ég geti sagt, að ég hafi verið fyrsti maðurinn sem benti opinberlega á þá illu manneskju sem Margrét Müller hafði að geyma. Ég skrifaði um það á blogginu mínu árið 2009: hér og svo aftur þann 17. júní, morguninn sem Fréttatíminn birti frásagnir tveggja nafnlausra manna, sem skv. Pressunni munu vera bræður. Hér getur þú lesið blogg mitt 17. júní: hér

Mér finnst afar merkilegt að lesa frásögn þína, og staðfestir hún að vissu leyti það sem ég upplifði árin 1969 og 1970, löngu áður en þú komst í tæri við skrímslið Müller. Þetta sem þú skrifar um aðdáun hennar á Hitler, man ég í annarri mynd, því hún stærði sig af því að bróðir hennar hefði tekið í höndina á Hitler.

En ég leyfi mér þó ekki að komast að sömu niðurstöðu og þú um Margréti Müller og sérstaklega Sr. Georg, þegar þú gerist dómsstjóri í dómstóli götunnar (sem mér finnst svo einkennandi fyrir ykkur á öfgafyllri vinstri vængnum í þjóðfélaginu). Nafnlausar ásakanir um barnaníð eru ekki sannanir fyrir barnaníði. Að ásakanirnar koma fram svo seint, finnast mér ekki vera nein góð rök fyrir því að líklegt sé að níðið hafi átt sér stað. Ég get aðeins trúað bræðrunum, sem nú áskaka presta um barnaníð, ef þeir koma fram undir nafni.

Mitt minni segir mér, að Margrét Müller hafi verið mikið snobb og sleikjuháttur hennar við heldri borgarabörnin var annálaður. Börn heldri manna og góðra kaþólikka fengu sérmeðferð í Riftúni, t.d. börn Gunnars Eyjólfssonar. Þau voru elítan. Þau börn voru látin í friði og stjórnuðu öðrum börnum á svæðinu með umboði frá Müller. Þeir sem ekki voru kaþólikkar voru í hættu fyrir Müller. En ég man persónulega ekki eftir neinum kynferðislegum tilburðum séra Gogga við okkur drengina. Að mínu mati var hann maður af gamla skólanum, nokkuð strangur en góður við börn, þ.e. ef maður kallaði hann ekki séra Gogga svo hann heyrði.

Ég veit ekki hvernig þið voruð böðuð á þínum tíma í Riftúni, en þegar ég var þarna var farið í bað í baðherbergi í aðalhúsinu, þar sem sr. Georg bjó með nokkrum nunnum. Þeir eldri böðuðu á baðherbergi, en þeir yngri í bölum í sama salnum, sem t.d. var líka notaður fyrir guðsþjónustur og innileiki, en stundum fórum við gangandi til Hveragerðis í sund. Margrét Müller tók þátt í þessari böðun, en þar voru líka nunnur, og man ég ekki eftir því að þær hefðu haft neina óeðlilega tilburði í frammi við okkur drengina, nema að hella of köldu vatni yfir höfuð okkar og láta of marga baða í sama óhreina vatninu. Á þeim tíma sem ég var þarna var ekki búið að koma hitaveitu til Riftúns og vatnið til böðunar kom úr stórum rafhitunarkatli sem alltaf var að bila. Við vorum því ekki alltaf hrein þarna, en vorum drifin í bað daginn áður en foreldrarnir komu í heimsókn.  

MYNDIN hér að ofan:

Myndin efst er af vef Vantrúar, og er af Vésteini Valgarðs og Helga Hóseassyni, sem voru bræður í barningnum á gyðingnum Kristi og í því að skemmta skrattanum. Ekki veit ég til þess að kaþólska kirkjan hafi níðst á Helga heitnum í æsku og átt sök á einkennilegu háttalagi hans, en eitthvað hefur valdið því að Vésteinn klæðir sig eins og pílagrímur og skreytir sig merkjum sem sýna eiga baráttu hans fyrir helga málstaði, eins og t.d. málstað Palestínumanna og hitt og þetta sem vinstri réttlátir telja sig hafa einkarétt og vit á. Vésteinn er einn af fáum Íslendingum sem þegið hefur boð Múslímska bræðralagsins og hefur tekið þátt í ráðstefnu í þess í Egyptalandi. Hann hefur því stutt  hryðjuverkasamtök, og mætti því ætla, samkvæmt ESB-stuðli samheilagra, að hann sé líka eins konar níðingur.


Mjög alvarlegar ásakanir

Í nöp við kaþólska

 

Ég verð að létta þessu af hjarta mínu. Mér var eitt sinn í nöp við kaþólikka. Álíka mikið og Sigurði G. Tómassyni á Útvarpi Sögu er við gyðinga. Ekki alla, bara suma. Ekki til dæmis við Jón Val og ekki við páfann í Róm. Hins vegar dæmdi ég þá einu sinni, alla sem einn, og mig langar að segja ykkur af hverju.  Mea culpa.

Ég fór á unga aldri í sumarbúðir kaþólskra í Ölfusi. Ég fór í þessar búðir, þar sem faðir minn þekkti prestinn þar. Ekki er ég kaþólskur frekar en andskotinn, og enginn hefur verið það í fjölskyldu minni íslenskri síðan forfeður mínir, munkar og biskupar Rómarkirkjunnar voru það á miðöldum. Nefni ég engin nöfn. Þá var mikið syndgað. Ég get þannig stoltur sagt, að ég sé afrakstur hórlífis í íslenskum torfklaustrum, þegar konur gátu sig ekki varið, enda verjur synd og holdið var veikt.

Í sumarbúðunum í Ölfusi, sem voru í Riftúni, voru bæði nunnur og prestur einn hollenskur, séra Georg, sem var hinn vænsti maður. Hann er nýlega látinn. Hann spilaði mikið fótbolta við okkar strákana, enda hafði hann verið liðtækur knattspyrnumaður áður en hann svaraði kallinu og fékk brauð á Íslandi. Enski boltinn var greinilega mikilvægari fyrir hann en messan á sunnudögum, sem allir urðu að vera viðstaddir til að sjá kaþólikkana borða líkama Krists, Amen.

Kvöl okkar, barnanna í Riftúni sem ekki vorum kaþólikkar, og sérstaklega þeirra sem voru algjörir heiðingjar og efasemdamenn eins og ég, var þýsk kona. Hún var vond við börn og var gædd þeim leiða eiginleika að ofsækja ákveðin börn.

Konu þessari var einstaklega illa við mig og mér við hana. Margir aðrir fengu að kenna á teutónískri grimmd hennar. Hún stærði sig af því við börnin, að bróðir hennar hefði tekið í höndina á Hitler. Sjálf leit hún út eins og Marteinn Lúther, bara ljótari.

I Riftúni léku menn skrítna leiki ef veður leyfði ekki útiveru. Þá var leikið teningaspil um súkkulaði það sem þýska konan hafði gert upptækt í pökkum barnanna. Leikurinn gekk út á það ef maður kastaði og fékk tvo teninga með sex í sama kasti, fékk maður bakka með súkkulaðiplötu, hníf og gaffal. Maður mátti brjóta stykki af með hnífnum og gafflinum og borða eitt stykki í einu og kyngja því þangað til næsti maður fékk 2x6. En ef maður tók annað stykki áður en maður var búinn að kyngja því fyrsta,  tók meira en eitt stykki  eða framdi þann hræðilega glæp að halda áfram átinu í nokkrar sekúndur eftir að  sú þýska sagði „Schtopp", þá gátu börnin búist við kinnhesti eða því að vera slegin í hnakkann.  Eitt sinn rak hún fingurinn upp í strák og krækti súkkulaði út úr munni hans. Hann kastaði upp.  Ég fékk ekki þetta Straf hjá Frau Verbissene, en nóg annað mátti ég reyna. Eitt sinn tognaði ég alvarlega í hástökki. Ég gat rétt dröslað mér í matsalinn en kom of seint. Þýska konan gerði bara grín af mér og sagði að ég væri „bara aþ zykjast". Fyrir bragði fékk ég ekki hádegismat.

Sama dag um kvöldið uppgötvaði systir Klementína, sem var íslensk kona, ástand ökklans á mér. Það var í einasta sinn sem ég hef séð nunnu reiðast og hún hellti sér yfir þýsku ráðskonuna, úlfynjuna Ilse, - nei það var reyndar ekki hið rétta nafn hennar. En mig grunaði síðar að hún hefði verið böðull í fangabúðum nasista, eða pabbi hennar.

Myndin að ofan er úr þýsku blaði sem dreift var til foreldra þeirra sem sjást á myndinni.  Textinn undir henni hljóðaði:  Frohes Leben herrscht in katolischen Kinderferienheim Riftun auf Island. Ég er þarna að dansa (í köflóttri skyrtu) eftir bítlaplötu, en var í raun að skipuleggja flótta úr kaþólsku fangabúðunum í huga mér. Einn drengur flýði reyndar fótgangandi frá búðunum og komst með bíl til Reykjavíkur. Mér var af einhverjum ókunnum kennt um það!  Rannsóknarrétturinn, STRAF, og dómur féll: Ég fékk engan mat og ekki að fara oftar til Þóroddsstaða, bæjar í grenndinni,  til að gefa hænsnunum þar matarúrganga okkar í Riftúni. 

Hver vill ekki flýja stað, þar sem plata með þýskum mörsum var spiluð þegar einhver átti afmæli?

Eitt sinn vildi svo illa til að sippuband sem ég sveiflaði að hætti kúreka slóst í í kinnina á stelpu af fínum ættum. Alveg sama hvað ég reyndi að skýra hvað gerst hefði , þá var dómurinn að ég hefði framið mikinn glæp. Sú zýska setti ofsóknir í gang gegn mér. Ég hafði slasað kaþólikka, nú átti ég greinilega að iðrast og biðja 40 maríubænir og skríða á hnjánum alla leiðina suður  í Róm. Ég fékk ekki frið fyrir konunni.

Vegna þýsku konunnar hataði ég lengi kaþólikka. Ég geri það stundum enn, en það kemur ekki niður á neinum.  Þýska konan var ekki á vegum Guðs, hún var bara vond kerling, sem ekki hefði átt að fá að koma nálægt börnum, sem hún áleit vera vond frá nátúrunnar hendi. Ég er alveg viss um að Kristur hefði ekki átt 7 dagana sæla í Riftúni hefði Jósef faðir hans sent hann þangað í stað þess að láta hann pússa mublur með vikri frá Sínaí.

 

Til að kóróna allt kom systir zýsku konunnar í heimsókn frá Þýskalandi með börnin sín tvö, sem voru eins og Hans og Gréta - skrímsli. Hann, gekk í Lederhosen, sama hvernig viðraði og hún var með fléttur og í þjóðbúningakjól eins og Heidi í Heiðarkofanum. Drengurinn í leðurbuxunum reyndist vera hinn versti böðull og sadisti og stjórnaði öllu með leikjum sem höfðu kvalarlosta að ívafi. Ég vona að hann sé ekki prestur í dag. Gabi, þjóðbúningastúlkan var liðtæk í Gestapo. Hún klagaði yfir öllu. Var eyru og augu frænku sinnar í Straffinu.

Misskiljið mig ekki, ég hef ekkert á móti Þjóðverjum heldur. Sumir Þjóðverjar eru bestu vinir mínir.....bara ef þeir berja mig ekki í Lederhosen í Ölfusinu, eins og ribbaldar börðu Ögmund biskup Pálsson á Hjalla Ölfusi forðum.

Síðar segi ég frá góðu kaþólsku fólki sem ég hef kynnst. Jón Valur er nú örugglega farinn að hugsa mér purgatoríið á 696 gráðum fyrir þessar minningar. Þess vegna set ég punkt hér. 


Jesus Christ !!

Holy Trinidad
 

(Allir) gyðingar myrtu ekki Jesús, segir Páfinn í Róm.

Nýlega, eða stuttu eftir að Forseti Íslands heimsótti Vatíkanið með spúsu sinni Dorrit Moussaieff til þess að færa páfa styttu (sjá hér), sendi Páfinn í Róm út það boð til allra safnaða sinna, að gyðingar hefðu ekki myrt Jesúm Krist á föstudaginn langa - eða einhvern annan dag. Þetta kom fyrst fram í fréttatilkynningu um annað bindi bókar páfans um Jesúm frá Nazaret, sem gárungar kalla Ratzinger Guðspallið II.

Íslenskir fjölmiðlar hafa ekki verið iðnir við að segja frá þessu, enda er gyðingahatur eitt af eðalmerkjum margra í blaðamannastétt. Hins vegar var Urban Christian News með þessa frétt undir myndinni hér að ofan af Ólafi, páfa og Mússu.

Þar sem ég er frekar vantrúaður á Jesúm, þó ég afneiti ekki tilvist hans, verð ég að greina frá því að þessi syndaaflausn Páfa er ekki alveg ný af nálinni. Kaþólska kirkjan tilkynnti með Nostra Aetate-yfirlýsingu sinni árið 1965, að gyðingum sem þjóð/trú væri ekki hægt að kenna um dauða Krists, þá eða nú.

Allir vita að á milli "þá og nú" voru milljónir gyðinga pyntaðar og drepnar sem morðingjar "frelsarans".

Benedikt hefur bætt um betur í röksemdafærslum sínum. Ég gluggaði reyndar í bókina um daginn í bókastórmarkaðnum Dussmann í Berlín og hló svo allir í bókabúðinni horfðu á mig. Páfi kemst að þeirri niðurstöðu, í stuttu máli, að það voru aðeins mjög fáir leiðtogar gyðinga í musterinu í Jerúsalem og lítill hópur stuðningsmanna þeirra sem bera fyrst og fremst sök á krossfestingu Jesú.

Ég efa að páfa takist að sanna þessa andstyggilegu ásökun sína á hendur örfáum embættismönnum. Það rétta er að mínu mati: Morðingi Jesú er kirkjan sjálf, þá, nú og þess á milli, er hún hvatti til ofsókna og morða á "morðingjum Jesús". Það þarf engan Sherlock Holmes til að sýna fram á það. Kirkjan sjálf er morðinginn og sökin þeirra, sem henni fylgja. Það er síðasti sannleikurinn sem menn verða að kyngja svo ég hætti að tala um gyðingahatur kristinna manna.

Gyðingar geta ekki hafa myrt mann sem ekki er hægt að sanna að hafi verið til, og jafnvel þótt meintar líkamsleifar hans út um allan heim gætu þakið allan gólfflöt Péturskirkjunnar í Róm. En til þess að komast hjá eðlilegum réttarhöldum reis Jesús upp frá dauðum og steig til himna. Case closed.

Auðvitað er það öðlingslega large af Páfa að kasta þessu margra alda oki af gyðingum. En ég hvet kristna menn til  að lesa grein Geza Vermes fyrrverandi Prófessors í gyðingdómi við háskólann í Oxford sem hann birti í Guardian í síðasta mánuði. Látið ekki páskaeggin standa í ykkur.

Nú bíð ég bara eftir því að Karl biskup geri það sama og Páfinn í Róm og menn hætti að lesa Passíusálmanna sem eru fullir af gyðingahatri þess tíma sem Hallgrímur Pétursson lifði á, sem á auðvitað ekkert erindi til nútímafólks.

Ólafur og Mússa eru búin að gera sitt. En mér finnst Páfi hálfsmeykur við Músku á myndinni hér að ofan. Gæti verið að hún sé komin af Musterisprestum? Vinur minn, kaþólskur og mjög fróður, segir mér að svo sé ekki, og að það sé greinilega hattur Dorritar sem Benedikt Páfa líkar ekki. Hann er ekki ósvipaður hatti kaþólsk prest, í bland við kollhúfu Mússólínis. Þótt kaþólska kirkjan teygi sig langt og viðurkenni nú næstum því sakleysi gyðinga, eru kvenprestar ekki á leiðinni inn í kirkjuna í tíð Ratzís.

padre
Amen eftir hattinum

Biblían er fölsuð

Fake Anbasifrun

þessi frétt gleður alla vantrúaða og ætti einnig að gleðja þá sem trúa, og jafnvel mest þá sem eru auðtrúa. Hér er ég að tala um blýbiblíuna sem heimsfjölmiðlar greindu nýlega frá og sem ég skrifaði færslu um, sem vantrúaðir sóttu í eins og flugur í mykjuskán.

Breskur sérfræðingur sem var beðinn að gefa álit sitt á grískri áletrun á "bronskápu" einnar  "blýbókarinnar", sem nú hefur verið sýnd umheiminum, hefur sýnt fram á að áletrunin er gerð af manni sem ekki kunni grísku. Maðurinn sem gert hefur bókarkápuna hefur fundið textann á grafsteini frá Madaba í Jórdaníu sem hefur verið til sýnis á Þjóðminjasafninu í Amman síðustu 50 árin.

Falsarinn hefur afritað áletrunina, sem er frá árinu 109 e.meintan Kr., og sett setninguna á bronsplötuna, án þess að vita hvað hún þýddi. Áletrunin, sem bæði er að finna á fornum legsteini á safni í Amman og nú á bronsplötu, sem á að hafa fundist með "blýbókunum", hljóðar svo: Selaman 

sem útleggst:

Heil þér Saleman, sem varst drengur góður og einstakur, vertu sæll! Abgar, einnig þekktur sem Eision, sonur Monoathosar, gerði þessa gröf frábærs sonar síns (Salemans), á þriðja ári héraðsins.

Áletrunin á bronsplötunni er út í hött og er greinilega afritun af áletrun á forngrip í Amman.

Þannig endaði sagan um Wallah Billa Anbar-bíblíuna, habibi!

Lesið meira hér: http://neveryetmelted.com/2011/04/04/lead-codices-are-fakes/


Blýbiblían - Biblia Plumba(ta) ??

lead Codex

 

segja heimsfjölmiðlar frá blýbiblíu nokkurri, sem á að hafa fundist á mjög afskekktum stað í Jórdaníu. Jössus minn! Ég held mig á mottunni þangað til ég hef séð og lesið meira. Heilar 70 "bækur" úr blýi, sem bundnar eru með blýþræði, og sumar innsiglaðar, hafa fundist - að sögn.  Blýbækurnar eru einnig skreyttar með ýmsum gyðinglegum táknum. Sumir halda því jafnvel fram, að bækurnar séu fyrstu lýsingarnar á kristni og krossfestingu Jesú. Blýplötur, sem skrifað var á með stýl (stylus), voru algengar meðal Rómverja og annarra á tímum Jesú Jósefssonar Guðssonar, en mér sýnist af þeim fáu myndum sem hafa verið sýndar okkur af þessum blýbókum, að stafir, tákn og myndir í þeim séu þrykkt á blýið. Í Jobsbók segir:  "með járnmeitli og blýi, höggvin í klett um aldur og ævi."

 

_51881831_book_464
Myndefnið er gyðinglegt, og svo er að sögn líka kross í einni bókinni, sem er ekki kross heldur T (Tau-kross)
_51881836_book_304
Kjölurinn gæti hafa verið settur á í bóksölu stúdenta - í Jerúsalem.

 

Fyrir u.þ.b. 12. árum keypti safnari nokkur í Sviss 90 sm langa steinhellu af jórdönskum forngripasala (sjá hér). Steinn sá er með frásögn frá tímum Heródesar, og segir þar frá Messíasi nokkrum sem hét Símon, sem reis upp til himna á 3. degi. Mér finnst ég ekki hafa heyrt mikið um þessa steinhellu nýlega. En ef einhver Messías, sem reis upp á 3. degi, var á ferð og flugi á undan honum Jesús smiðssyni frá Nasaret, er ég hræddur um að ég verði að fá skýringar kristinna manna sem hafa vit á slíkum himnaferðum. Var Jesús plagíat og eftirherma? Hér er hægt að lesa ýmislegt fróðlegt um steininn sem segir frá Símoni Messíasi.

Messías er, eins og þið vitið öll, enn ekki kominn, en það er von á honum - er mér sagt.

Meira lestravert, meðan ég held í minn vafa og bíð eftir messíasi:

http://www.scribd.com/doc/51540533/Lead-Plates-Press-Release

http://neilsilberman.wordpress.com/

http://thebiblicalworld.blogspot.com/2011/03/new-manuscripts-detailing-last-years-of.html

_51881828_closeup_3_304
Skreyti og letur í blýbiflíunni frá Jórdaníu - Trúi þessu ekki fyrr en ég má lesa bækurnar á Borgarbókasafninu.

mbl.is Elstu rit um kristni fundin?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bækur

Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband