Leita í fréttum mbl.is

"Gyðingar samtímans"

ey_imerkurprinsinn.png

Einn af talsmönnum múslíma á Íslandi var eitt sinn ævintýramaður og eyðimerkurprins. Nú er hann orðinn eins konar spámaður á RÚV og telur múslíma Evrópu gyðinga samtímans.

Síðastnefndu meinloku og söguleysu hélt Sverrir Agnarsson enn einu fram í Kastljósi í gær. Hann fékk að ljúka viðtalinu með því að ítreka þessa hjákátlegu vanþekkingu sína. Sverrir sagði "Ég sagði, að áróðurinn gegn múslímum væri farinn að líkjast áróðri nasista gegn gyðingum fyrir 60 árum síðan." Þetta er vitanlega ekki rétt hjá Sverri. Sverrir þarf ekki annað en að lesa blöð og horfa á sjónvarp í heimi Múslíma til að vita að áróður nasista gegn gyðingum fyrir 60 árum er endurtekið efni í fjölmiðlum múslíma um allan heim.

Þessa samlíkingu, sem á engan rétt á sér, hefur maður svo sem séð áður. Gasa er orðið að gettóinu í Varsjá og Ísraelsmenn fremja samkvæmt flestum múslímum helför.  En þó Sverrir sé orðinn gjaldgengur múslími verður hann, eða trúbræður hans aldrei gyðingar samtímans - einfaldlega vegna þess að múslímar nútímans eru enn að óska gyðingum nútímans dauða og pínu - og drepa þá í nafni trúarbragða sinna - og ekki eingöngu fámennur hópur íslamista og Jihadista með sprengjubelti.

gy_ingur_21_aldar.jpg

Nú þegar múslímar taka gísla í verslun gyðinga og myrða þá, eins nú og í París eða þegar þeir drepa gyðinga á safni þeirra, ráðast á skóla þeirra, dagheimili og samkunduhús, Þá eru múslímar ekki gyðingar samtímans.

Gegnum söguna hafa múslímar ofsótt gyðinga. Hvernig geta múslímar verið gyðingar? Múslímar ætluðu að hjálpa Hitler í lokalausninni (Helförinni). Hvernig í ósköpunum getur Sverrir Agnarsson líkt múslímum við gyðinga? Þegar rannsóknir sýna að meirihluti múslíma hata gyðinga og að sumir telji þá réttdræpa , þá eru múslímar ekki gyðingar. Þetta verður talsmaður múslíma á Íslandi að læra. Hann veit vel, að þegar Palestínumúslíminn Salman Tamimi öskrar "helvítis gyðingar" að fólki sem ekki eru honum sammála, þá er Salman vitaskuld ekki gyðingur nútímans, heldur stuðningsmaður öfga.

Þegar múslímar á Íslandi fara með hatursfullar lygasögur um gyðinga (sjá hér) úr helgiritum sínum í íslenskum fjölmiðlum, þá eru múslímar ekki gyðingar. Sumir þeirra eru reyndar komnir af gyðingum sem neyddir voru til Íslam með ofbeldi, en það vilja múslímar ekki heyra.

Meðan trúarrit og skólabækur í löndum múslíma bjóða upp á samlíkingu á gyðingum við dýr, þá er ekki mikil von um að múslímar sættist við sjálfa sig, frekar en aðra. Menn geta enn lært af þeim trúarbrögðum sem Múhameð lánaði frá með hjálp Allah. Múslímar geta vitanlega ekki verið skyldir þeim mönnum sem múslímar líkja við óæðri dýr?? Meðan múslímar prenta og lesa Mein Kampf eru þeir vitanlega ekki gyðingar samtímans. Þeir geta ekki orðið gyðingar neinna tíma.

Múslímar sem frömdu fjöldamorð á gyðingum við tilurð trúarbragða múslíma, geta aldrei orðið gyðingar. Æ ljótari saga íslamísks heimsráðastefnu og yfirgangs hefur nú náð slíkum hæðum í illmennsku, að það er óréttlætanlegt að líka múslímum við gyðinga, MEÐAN STÆRSTI HLUTI MÚSLÍMA Í HEIMINUM VILL MEINA GYÐINGUM AÐ EIGA SÉR EITT LÍTIÐ LAND,ÍSRAEL, þá eru þeir og verða ekki gyðingar.


Það hlægir mig...

couv-mahomet_2_1_1252533.jpg

Þeir eru uppteknir nú sérleyfishafarnir á réttar og sannar skoðanir, sem flestir fela hausinn undir vinstri vængnum og kurra að allir sem hafa aðrar skoðanir en þeir séu óferjandi öfgamenn. Hún er orðin leiðinleg mantran hjá því fólki sem telur sig einkaleyfishafa á frelsi og réttlæti um leið og það styður leynt og ljóst baráttu hópa sem vinna gegn lýðræði og frelsi í heiminum.

Blaðamenn sem vikulega, ef ekki daglega hylla Fatha, Hamas og önnur öfgaöfl og kenna Bandaríkjunum um hvernig fer í Miðausturlöndum, líta nú á sig sem fórnarlömb og líka sér við teiknara og skophöfunda (íróníu, paródíu, satíru og jafnvel aulafyndni) á Charlie Hebdo.

En það er nú einu sinni svo að öfgaöflin sem þessir blaðamenn styðja með pennanum í einni hendinni, myrða saklaust fólk sem sömu blaðamennirnir skrifa síðan minningargreinar um með hægri hendinni. Þetta voru vitanlega ekki blaðamenn sem myrtir voru. Þetta voru miklu siðvandaðra fólk.

Teiknarar og pistlaritarar Charlie Hebdo eiga ekkert skylt við menn sem stutt hafa meintan nauðgara sem hatar sama landið (USA) og morðingjarnir í París. Nauðgarinn situr í sendiráði í London og er hylltur af sumum syrgjendum starfsmanna Charlie Hebdo sem frelsishetja. Þeir eru til á Íslandi sem ljúga því að íraelski herinn hafi ráðist á þá með skriðdrekaskothríð, eða sem hafa haldið uppi vörnum fyrir öfgafullan múslíma sem myrti mann með köldu blóði í Reykjavík. Slíkir blaðamenn eiga ekkert skylt við fórnarlömbin á Charlie Hebdo og eru ekki hið minnsta fyndnir. Ef eitthvað er, þá eru slíkir karakterar meðsekir að morðum. Slíka blaðamenn eigum við á Íslandi. t.d. á RÚV.

copertina-charlie-hebdo-5.jpg

Sumir skopteiknarar á Íslandi, sem grínast að fólki sem á afar frumstæðan hátt aðvarar gegn moskubyggingu, sjást ekki skopast að öfgamönnunum sem réðust á skrifstofur Charlie Hebdo. Þeir taka vart undir grein Zusanne Moore á Guardian sem segir um morðingjana : We should ridicule them

Gleymum því þó ekki, að Moore og margir samstarfsmenn hennar á Guardian eru ekki beint að berjast gegn öfgum með gríni, þegar þeir lýsa endalaust stuðningi sínum við öfgasamtök með hatri sínu á USA og Ísrael. Þar eiga þeir sameiginlegt áhugamál með morðingjum Charlie Hebdos og jafnvel þeim myrtu á Charlie Hebdo.

Þannig er það nú... Tvískinnungurinn er líka banvænn. Ekkert var og verður teiknurum Charlie Hebdo heilagt eins og sjá má á teikningum þeirra. En það er nú einu sinni svo, að sama fólkið sem oft úthýsir trúarbrögðum sem vitleysu, styður öfgaöflin. Öfgarnar þakka ekki fyrir sig nema með dauða. Trú gefur hins vegar sumu fólki líf og við sem ekki trúum höfum ekki neinn siðferðilega rétt til að banna þeim það. En þegar gert er gys af morðum 6 milljóna manna, er ljóst að eitthvað áttu teiknarar Charlie Hebdo sameiginlegt með drápsmönnum sínum. shoah_hebdo2-b65b11-318x450.jpg

Tjáningar- og ritfrelsi er það sem öfgarnar þola ekki. Það gerist á Íslandi, að menn sem styðja öfgaöfl um leið og þeir líkja sjálfum sér við fórnarlömbin á Charlie Hebdo á góðum degi, banna fólk í athugasemdum á íslenskum fjölmiðlum. T.d. hefur hr. Egill Helgason, ómenntaður og frekar tragikómískur blaðamaður, bannað mig á athugasemdum, án þess að gefa nokkrar skýringar á því, af hverju hann bannaði mig. Sumir hafa ályktað að það hafi verið vegna þess að ég skrifaði um föður "fósturmóður" Egils, sem var nasisti og síðar bankastjóri. Margir aðrir hafa líka verið bannaðir á Eyjunni og DV. Enginn þeirra munu skjóta Egil í hryðjuverkaárás, en Egill gerir oft það sem hryðjuverkamennina dreymir um og líkir sér svo við fólk sem missir lífið fyrir mönnum sem vilja banna allt.

Ef menn þola ekki grín, skop, háð og telja og allt annað sem fær okkur til að brosa, og finnst að sér vegið þá verða menn að leita til dómsstóla. En sumir telja sig náttúrulega yfir slík fyrirbæri hafna og vilja hafa sína eigin dómstóla (Sharia) í lýðræðisþjóðfélögum. Níðingsverkin í París sýna okkur eins og oft áður að réttarfar Íslam og algjör vöntun á kímnigáfu, á ekkert erindi í vestrænum þjóðfélögum.

Blessuð sé minning fórnarlamba skrípamyndanna í París.


Furðulega fréttamennska

melkorka-litil.jpg

In Memoriam

Blaðamanni Moggans yfirsást líklega, að tveimur klukkustundum áður en hann skrifaði um málið hafði Fornleifur greint frá því á Moggablogginu.

Hvergi stendur í fræðigreinum um efnið, að formæður Íslendinga hafi verið "fornnorrænar" líkt og fréttin hermir, og enginn hefur mér vitanlega haldið því fram að þeim hafi verið nauðgað, þó einhverjir héldu vegna niðurstaðna vísindamanna deCODE (Íslenskrar Erfðagreiningar), að landnámskonur hefðu mestmegnis verið frá Bretlandseyjum.

Nú er ljóst, að þær voru mestmegnis norskar alveg eins og karlarnir. Og þó þær hefðu verið rauðhærðar gellur frá Orkneyjum, trúi ég því ekki að Hallgrímur eða Þorvarður hafi verið að nauðga þeim til vistar á Íslandi. Slík söguskoðun lýsir ef til vill frekar ástandinu á Íslandi í dag.

Hér má lesa vandaða frásögn Fornleifs, þar sem er að finna hlekk í grein Eriku Hagelbergs prófessors í Ósló.


mbl.is Norrænar konur sigldu líka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Farið öll til Noregs, sem fyrst!

norway12nurses.jpg

Norðmenn bjóða betri kjör, nýjan bíl og meira fjör. Þar að auki þjást Norðmenn auðvitað miklu meira en Íslendingar og í anda Florence Nightengale heitinnar er vitaskuld um að gera fyrir íslenskar hjúkkur að fórna sér og fara til Noregs með íslensku læknunum sem þangað hóta að fara. Þar geta þær hjálpað til i allri eymdinni í stað þess að aðstoða fólk sem veikist vegna fátæktar, þegar það getur ekki lengið fengið atvinnuleysisbætur á Íslandi.

Því er haldið fram af formanni hjúkrunarfræðinga, að hundruð starfssystkina hans hafi leyfi til að vinna í Noregi. En það er auðvitað innantóm lygi. Ég skora á Ólafa G. Skúlason að sanna mál sitt!

Hér er greinilega verið að notast við klassískar íslenskar læknalygar! Eins og þegar læknar halda því fram að þeir hafi lægri laun en læknar í Slóvakíu (sjá hér). Nokkrir tugir hjúkrunarfræðingar hafa fengið leyfi til að vinna í Noregi. Málanámskeiðin í norsku sem haldin hafa verið fyrir hjúkkur hafa nú ekki beint orðið til þess að hundruð hjúkka hafi leyfi til að vinna í Noregi.

Svo fara hjúkrunarfræðingar venjulega til Noregs í stuttan tíma í senn. Það gera hjúkrunarfræðingar frá Danmörku líka, þegar þær langar í meiri aur og smá utanvaktaævintýr í knallhytta. Þegar vinnan er miðluð í gegnum vikar-þjónustur eru launin vissulega hærri en þegar maður ræður sig í fastar stöður. En mest er boðið upp á afleysingar í nokkrar vikur í senn og flugið er borgað.

Oft er ekki hægt að treysta á þessar vinnumiðlanir. Vinnumiðlunin Helsenor er annáluð fyrir svik og pretti og Centric Care sem ásakar Helsenor er víst ekki miklu áreiðanlegri.

Spurningin sem vaknar er, hvort Íslendingar séu ginnkeyptari fyrir lygi en aðrar þjóðir??

Maður verður líka að spyrja sig, af hverju ríkt land eins og Noregur hefur ekki "framleitt" nóg magn af hjúkkum? Fara norskar hjúkkur til enn ríkari landa, eða eru þær ekki til? Hjúkrunarfræðingar í Noregi eru líka í launabaráttu.

norwegian-nurses-dark-small-78067.jpg

Kannski hefur skyndilegur skeggvöxtur norskra hjúkrunarfræðinga í kjarabaráttum orðið til þess að atvinnumöguleikar hafa skapast fyrir íslenskar hjúkkur.

profileequal-status-for-nurses-why-small-47707.jpg

Sjúklegar ýkjur í lækna og hjúkrunarfræðingastétt Íslands virðast liggja í genunum. Þessi andskoti hefur borist hingað við landnám. Á þessu áróðursspjaldi er því haldið fram að "Tíu Þúsund hjúkrunarfræðingar í Noregi hafi yfirgefið fag sitt". Grunar Gvend, að sú tala sé úr lausu lofti gripin eins og margt í röksemdafærslu heilbrigðisstétta. En hver veit, kannski eru hundruðin af íslenskum læknum sem ráðnir eru á norsk sjúkrahús svo leiðinlegir, að norskar hjúkkur flýja. Sú tilgáta er engu síðri en yfirlýsing um að 10000 hjúkrunarfræðingar hafi yfirgefið fagið í Noregi. Stundum, og reyndar oft fara hjúkkur í barnseignarfrí. Dæmi þekki ég af því frá dönskum spítölum að ein deild þurfti að fá 80 afleysingarhjúkkur, því fastahjúkkurnar voru svo frjósamar í kór. En 10.000 hjúkkur sem hverfa bendir einna helst til þess að Svarti dauði herji enn í afdölum Noregs, eða að Breivik eigi bróður sem útrými hjúkrunarfræðingum.

 

Hér áður fyrr fóru margar norskar hjúkrunarkonur og þjónuðu SS á vígstöðvunum. Þær kunnu nóga þýsku, svona álíka og íslenskir hjúkrunarfræðingar pluma sig á norsku. En þar fyrir utan voru SS-hjúkkurnar allsleipar í rúmmensku.

norwegian_ss_frontline_nurses_by_maxwrite-d4ob1ns.jpg

Norskar SS-hjúkkur gerðu sitt til þess að þýskir hermenn gætu drepið fleiri. Þær eru alltaf veikar fyrir áróðri, stúlkurnar í hvítu kirtlunum.

 

Það er vitanlega algjörlega óferjandi að ríkasta land heimsins sé að flytja út vandamál sín og lokka til sín íslenskar hjúkkur vegna þess að velferðakerfi þeirra er meingallað.

Góða ferð hjúkkur, þetta er frjáls heimur. Ef þið getið ekki lifað af á Íslandi, þá er um að gera að bjarga sér úti í heimi.


mbl.is Norðmenn bjóða betri kjör
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lygaherferð íslenskra lækna

medicine-money.jpg

Í "kjarabaráttu" best stæðu stétta Íslands er oft notast við sjónhverfingar og lygaherferðir til að halda tekjum sínum yfir tekjum allra annarra í þjóðfélaginu. Þetta er hörð barátta.

Oft er bent á að læknar neyðist til að flytja úr landi og til að finna sér vinnu erlendis og er Noregur ekki svo ósjaldan nefndur í því samhengi. Þar mun vera gósenland í heilbrigðiskerfinu samkvæmt íslenskum læknum og allt miklu betra en á Íslandi, sem er vitaskuld aftast allra ríkja á merinni .

Lítum þá á nokkrar norskar fréttir árið 2014:

Hvergi í Vestur-Evrópu eru eins fá sjúkrarúm og í Noregi. Lesið þetta. Þetta hljómar víst aðeins öðruvísi en áróður íslenskra lækna.

Í Noregi þurfa læknar enn að nota forgamlar faxvélar. Það eru þannig vélar sem íslenskir læknar sækja greinilega í að nota. Líklega einhver rómantík. Lesið hér

40% lækna sem menntaðir eru í Norður-Noregi flytja í burtu frá Norður-Noregi. Lesið hér. Á háskólasjúkrahúsinu í Harstad er 70 milljón króna halli á rekstri á þessu ári. Þar ætla íslenskri læknar líkast til að fá sér vinnu. Skyldi það vera að þeir valdi hallanum.

Lesið um tölvukost norskra sjúkrahúsa hér og hér. Norðmenn skara greinilega fram úr.

Það er flott ástandið í draumlandinu handan við hafið, þangað sem íslenskir læknar ætla að leita, þegar þeir yfirgefa eymdina og betlið í sínu eigin landi til að láta ríkustu þjóð heimsins njóta góðs af snilld sinni.

l5fvsiyll3njhqmq4efyiarmyommrhef6q49oxjrypiq_1251828.jpg

Á norskum sjúkrahúsum eru oft sundlaugar fyrir lækna í kjöllurum

Einhvern veginn fær maður á tilfinninguna að íslenskir læknar muni ugglaust svara þessu með því að norski ríkisfjölmiðillin Norsk Kringkastning sé ótrúverðugur miðill líkt og RÚV, sem stundar áróður fyrir íslenska lækna, því tilgangurinn helgar meðalið í baráttu fréttastofunnar að koma vanskapaðri ríkisstjórninni frá. NRK þarf þó ekki lengur að notast við faxvélar líkt og margir sérfræðingar sjúkrahúsa í olíuveldinu Noregi.

Nú í byrjun 2015, þegar á ný verður leikið með líf íslenskra sjúklinga með verkfallsaðgerðum, vegna þess að íslenskir læknar vilja hlutfallslega meira en allir aðrir þegnar þessa fátæka lands, er gott að hugsa til Noregs. Ja, vi elsker dette landet!

Gleðilegt græðgisár beiningarmenn Íslands

doctor-money-2.jpg

Klínísk almenn læknisfræði (fagheiti: Kleptomanía)

Fyrri greinar um íslensku læknafátæklingana hér og hér.

Tekið skal fram, að höfundur er ekki sósíalisti, heldur raunsæismaður.


Jólaball Vantrúar

fjeldsted.jpg

Það nálgast guðlast, þegar yfirlýstir byltingarsósíalistar og Vantrúarmen Íslands lýsa því yfir, að þeir kæri sig ekki um að íhaldssöm, kristin öfl ræni jólunum á Íslandi.

Einn þessara skrítnu byltingarkarla á seingelgjuskeiði er Vésteinn Valgarðsson, sem nú elur manninn í eintómri "julehygge" á Jótlandi. Hann vill láta banna trúarlega innrætingu eins og gert var í Sovétsófétinu og DDR forðum, eða bara öll önnur trúarbrögð en Vantrú og kannski væga útgáfu af Íslam. Sjá hér, hér, hér og hér. Minnir þetta óneitanlega á bönn öfgamúslíma sem þola heldur ekkert annað en sína eigin bókstafstrú.

Litli læknissonurinn, sem er sonur Katrínar Fjeldsted sem er ráðssett sjálfstæðiskona og fyrrum þingmaður, var nú ekki aldeilis á þeim skónum að banna trúarlega innrætingu þegar hann fór árið 2008 á friðarráðstefnu í Kaíró, sem var haldin af Múslímska Bræðralaginu. Þar sat hann innan um klerka og verðandi hryðjuverkamenn, sem ofsækja og drepa kristna í nafni trúar sinnar og hafa heitið því að útrýma gyðingum og eyða Ísraelsríki. Vantrúarmarmeðlimurinn Vésteinn Valgaðrsson fór á slíka ráðstefnu til að hylla frið.

Um leið og Kaírófarinn Vésteinn, vinur Bræðralagsmanna, lýsir kirkjudeildum á Íslandi sem öfgasamtökum sem stunda heilaþvott í skólum, er honum nú líka í nöp við múslimaklerka þar sem hann býr í Árósum í Danmörku. Hann skilur ekki, af hverju ekki er búið er að sprengja upp mosku í Árósi, þar sem innræting á sér stað á stráklingum og smákrimmum áður en þeir eru sendir til að myrða á Sýrlandi (sjá hér). Kannski sér Vésteinn Vantrúarmaður samhengið, þegar hann uppgötvar, að andlegur leiðtogi ISIS var eitt sinn meðlimur í Múslímska Bræðralaginu (sjá hér og hér). Vonandi er honum ekki eins kalt til kirkjunnar og meints heilaþvotts hennar. En kannski förum við að sjá kirkjusprengingar eða kirkjubruna eins og í Noregi (þar munu þó hafa verið satanistar eða sjúklingar á ferð).

Um leið og ég óska Vésteini Valgarðssyni gleðilegrar hátíðar, þar sem hann situr og hræsnast yfir jólum flestra Íslendinga þar sem hann stundar andagt í Árósi í Danmörku, vona ég að hann átti sig á því að jólafræðsla kirkjunnar manna á Íslandi eru ekki öfgar, heldur hluti af friðarboðskap. Friðarboðskap er vitaskuld einnig hægt að snúa yfir í öfgar eins og Kaíróferð Vésteins ætti að hafa kennt honum. Fræðslan í öfgamoskum í Danmörku og víðar er hins vegar hatursboðskapur, þar sem kjarninn er svipaður og í ákveðinni útleggingu kommúnista á tilverunni. Ástæðan fyrir því að svo margt er líkt með ráðstjórnarkommúnisma, öfgaíslam og nasisma, og að fólk úr þeim "trúarbrögðum" leika vel saman eru elstu og frumstæðustu kenndir mannsins (sem eitt sinn var líka stunduð af kristnum): Það er að kenna öðrum um það sem miður fer. Þess vegna hefur gyðingahatrið verið svo vinsælt á meðal þessara andlegu bræðra.

Höfum það líka á hreinu, að vinstri menn eru ekki mannréttindasinnaðri en aðrir, þótt að Vésteinn trúboði Vantrúar skrifi það í inngangi jólapistils síns frá Danmörku. Það sjáum við bara á fjölda þeirra mann sem drepnir hafa verið fyrir boðskap "vinstrisinna" eða annarra sem þeir eru í bræðralagi við.

 


Elton John giftist ekki

Já, loksins eftir 21 árs reynslutíma og 9 ár í skráðri sambúð. En eitt er víst. Elton John giftist hvorki né kvænist David Furnish! Furnish er nefnilega ekki kona frekar en Sir Elton. Þeir félagar verða gefnir saman eða ganga í hjónaband. Menn kvænast konum og konur giftast körlum. Kannski ættum við frekar að segja að þeir séu samgefnir fyrst þeir eru samkynhneigðir?

"Breski tón­list­armaður­inn Elt­on John ætl­ar í dag að gifta sig". Er ekki lengur kennd setningafræði á Íslandi? Kannski er Jón Valur hættur að prófarkarlesa á Morgunblaðinu, eða vill hann ekki koma nálægt fréttum af eins óheilögu fyrirbæri laughing og hjónaböndum samkynhneigðra?

Ég óska körlunum til hamingju með "brúðhlaupið" og óska þeim alls hins besta í að minnsta kosti 21 ár til viðbótar reynslutímanum. Um leið vona ég að málfarið batni á íslenskum fjölmiðlum.


mbl.is Elton John giftir sig
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Og svo segja menn að ekki sé fært...

funnar_og_fabius_1251421.jpg

Gunnar Bragi er í París. Var ekki annars kolófært út á Keflavíkurflugvöll? Sjáið  sveitamanninn, búinn að tileinka sér franska siði á einum degi, t.d. lausa úlnliðinn. Hann er farinn að tala með höndunum, Si vous plait! Svo hefur utanríkis fengið sér bindi í stíl við Fabius, perlulitað. Uhlala. Les boys skemmta sér greinilega í París.

En leitt þykir mér, að í allri munnræpunni sem fór þeirra á milli, og þar sem þeir leystu gyðingavandamálið í Palestínu og Gunni fullvissaði Fabius um hvað Íslendingar væru smáir og sérstæðir, þá gleymdi Gunnar Bragi að nefna hrútinn Erlend og ána Vigdísi, sem voru íslensk fórnarlömb franskrar Upplýsingar á 18. öld.

Þau Erlendur og Dísa voru verðlaunadýr sem franskir landmælinga- menn numdu á brott snemma sumars 1760. Gunnar Bragi var búinn að lofa að spyrjast fyrir um meint örlög þessara merkisdýra sem Fornleifur hefur nú afhjúpað að ákveðnu marki. Bæði voru þau frá Skagaströnd, úr kjördæmi Gunnars Braga. Dísa endaði sem súpukraftur í Versaille og Erlendur sem ragout í Bastillunni.

Nú fá sauðasmalar Íslands aldrei að vita smáatriðin um örlög þessa ólöglega útflutnings árið 1760.

Gunnar Bragi, þú brást. Þú ert jarmandi fíaskó.

rollan.jpg_rihyrndur_hrutur_b_1251420.jpg

In Memoriam Disa og Erlendur


mbl.is Gunnar Bragi fundaði með Fabius
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jólasveinar Tamimis kalla ekki á fleiri hríðskotabyssur

jolasveinar_muslum_style.jpg

Ef Íslendingar hafa horft á fréttir Sjónvarps á milli vindkviðanna í gær, hafa þeir vafalaust uppgötvað að Íslam og Ísland eru að þróast til miklu betri vegar.

Hafa múslímar á hjara heims nú tekið heilagan Nikulás í sínar raðir í stað þess að ofsækja hann og myrða sem trúleysingja, guðsspottara og klæðaskipting. Tilbeiðsla á íslenskum jólasveinum er nú leyfð á meðal íslenskra múslíma á þar til gerðum heimilisaltörum sem á arabísku eru kallaðar Chommodah.

Þrátt fyrir þessar trúbætur eru Hurðaskellir og Hummusseikir þó ekkert á leið til IS-lendinga á Sýrlandi, enda er menntunarstigið miklu hærra á meðal jólasveina á Íslandi en t.d. í Danmörku að sögn Tamimis. Danmörk er þróunarland. Grýla og Leppalúði hafa alið drengina sína upp sem smákrimma og hrekkjalóma, en "enginn þeirra mun leika knattspyrnu með afhöggna hausa hermanna Assads, meðan þeir geta ybbað gogg við Ísraelsmenn", segir Tamimi í óspurðum fréttum.

wallabilly.jpg

Íslenskir jólasveinar eru nefnilega langt frá því að vera haldnir ofstæki. Hér er ljósmynd af einum af fréttasveinum RÚV, Fatahskiptingi, uppeldissyni Grýlu. Eitt sinn um jól í Landinu helga sótti á hann óhemjumikil löngun að vefja sig í Fatahföt. Hann notaði mynd af slíkum höfuðföthum á moggabloggi sínu, sem alltaf var frekar óvirkt og öfgalaust. Ekki var að spyrja að því.Ísraelsher skaut á hann úr skriðdreka. Það eru ekki eru til öfgar í þeim sveini.

Byssur, pístólur og hólkar eru aðeins nauðsynlegar í löndum eins og Noregi, þar sem þær eru notaðar til að drepa blómann af flóru verðandi krata. Eins og allir vita, flýðu íslensku jólasveinarnir Noreg árið 871 plús mínus 2 ár. Eftir í landinu langa urðu fúlmenni og fantar, allt norður í Berangur. Ekki er því ólíku saman að líkja. Menntunarstigið í Noregi er vitaskuld enn lægra en í Danmörku. Við erum að tala um frumstæðar öfgaþjóðir.

santa_protester.jpg

Giljagaur og Stúfur.


Settur í bann af Agli Helgasyni

ilkrsbuc1qjzi.gif

Eins og tryggir lesendur þessa bloggs hafa líklega tekið eftir, hef ég undanfarið verið í öngum mínum yfir því að geta ekki gert stakar athugasemdir við skoðanir annarra Íslendinga á Eyjan.is.

Ég hef skrifað og spurt forsvarsmenn þar, hverju sæti og hvort þeir geti ekki látið mig vita, hvaða boðorð ég hafi brotið til að vera settur út af sakramentinu á svo voðalegan hátt.

Þegar menn gerast of svæsnir rasistar á Moggablogginu eiga þeir á hættu að haft sé samband við þá og þeir beðnir um að fjarlægja ósómann. Mogginn vill vitanlega ekki eiga málaferli á hættu fyrir að birta illmæli og hatur fólks sem nota bloggsvæði blaðsins. Ég hef aldrei lent í slíku. En Mogginn sýnir þó þá kurteisi að hafa samband við fólk. Eyjan.is fjarlægir fólk.

En ég, sem stakk upp á mosku áður en íslenskir múslímar fóru að verða trúaðir, og sem veð upp að hálsi í minnihlutum í rannsóknum mínum, nema kannski helst þeim sem Íslendingar dýrka mest, suður á Gaza, og er þar að auki blíður í garð homma sem ekki hakka fyrir Wikileaks og hata Rússa eins og í tísku er, hef ekkert verið með neinar ósæmilega skoðanir á Eyjunni, nema að síður sé. Ég er líklega meira pólitískt kórréttur en Egill Helgason, sem eitt sinn hélt því fram að sígaunabörn sem væru rauðhærð eins og hann hefði örugglega verið rænt af vondum sígaunum í Finnlandi.

 

Censurstelle Egill Helgason

Nú er hins vegar komið í ljós, að það er Egill Helgason í allri sinni dýrð, sem bannað hefur athugasemdir mínar á vefmiðlinum Eyjunni. Ég er kominn á bannlista Eyjunnar. Egill greindi frá honum á smettiskruddu Guðmunar Magnússonar blaðamanns á Morgunblaðinu.

egill_banna_i_mig_2.jpg

Klikkið og stækkið

egill_banna_i_mig_3.jpg

Með þessu sýnir Egill mér hinn mesta sóma. Hvað hefur valdið því að hann fór að leika eitthvað Stasíkikvendi gagnvart mér veit ég ekki, en líklega hefur honum ekki líkað almennt við skrif mín. t.d. um föður "stjúpu" sinnar Sigrúnar Davíðsdóttur, bankastjórann sem aldrei lauk lokaprófi í hagfræði frá þeim þýsku háskólum sem hann marséraði á, þó svo að háttvirt Alþingi upplýsi að hann hafi verið fullgilt fjármálaséní með próf frá Hitler-Þýskalandi. Nei, fjandakornið, ekki hefur það verið ástæðan, enda man ég ekki eftir því að hafa skrifað neitt slíkt á Eyjunni, og það sýnir yfirlitið á Facebook heldur ekki.

Egill hefur nú sjálfur verið verið ötull við að skíta mig og aðra út og til (hér), en ég hef ekki lokað á hann enn. Mér finnst gaman að láta fræga menn gera sig að fíflum. Ég kippi mér ekki upp við svínaríið i honum Agli, en hann þolir greinilega ekki að ég gefi einstaka stikkpillu á Eyjunni.

En nú vitum við það, Eyjan er með bannlista al la Guardian. Ætli hann sé ekki öllu heldur líkari bannlista Neues Deutschlands eða annarra flokksmálgagna í DDR-inu sem ganga að mínu mati aftur á blessaðri Eyjunni.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bækur

Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband