Leita í fréttum mbl.is

Marco litaði bloggið mitt

geysir_small4.jpg

Marco Evaristti hellti rauðum matarlit á bloggið mitt, áður en hann hélt af landi brott.

Menn hafa spurt mig, hvort ég ætli ekki í mál. Nei, ég ætla ekki í mál við Evaristti. Á þessu bloggi hefur fjöldi manna úthellt eldi og brennisteini, látið illa og slett skyri og verið með óþvegið gyðingahatur. Sumir hafa reynt að hella lút og sápu, svo ég gjósi.

Smá ávaxtasafi á PostDoc.blog.is gerir miklu minni skaða en svínsleg framkoma sumra Íslendinga. Menn hafa skilið hér eftir verri leðju í athugasemdum en rauðrófusafann sem Evaristti hellti hér inn á síðuna. 

Fornleifur frændi er hins vegar ekki glaður þessa stundina, því Marco sletti líka ávaxtalit á gleraugun hans (sjá hér).


mbl.is „Ég borgaði ekki“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fräulein Hauptmann á Iceland Review

frl_hauptmann.jpg

Ung þýsk kona, Katharina Hauptmann að nafni, hefur skrifað fyrir Iceland Review og t.d. Wall Street International, og er víst sérfræðingur í gyðingahatri, þegar hún er ekki barþjónn í Reykjavík. Hún kemur líka frá því menningarsvæði þar sem fyrirbærið gyðingahatur hefur náð hæstum hæðum á síðari tímum. Er því nokkur furða, að hún sé sérfræðingur í þessu ljóta fyrirbæri? En fyrir gyðingahatri hefur stúlkan víst aldrei orðið, svo hvernig hún veit hvernig það er, er mér ekki fyllilega ljóst.

Í hvert sinn sem gyðingar gangrýna Ísland fyrir gyðingahatur sem fram kemur á alþjóðlegum vettvangi er þessi kona, sem býr á Íslandi, farin á kreik til að segja öllum að gyðingahatur sé alls ekki til á Íslandi og að ekkert vandamál sé þar til staðar.

Þetta gerði hún árið 2011(sjá hér) og aftur á FB sinni í sl. mánuði, þegar birtist frekar léleg grein eins af deildarstjórum SWC (Simon Wiesenthal Center), sem hafði uppgötvað sjúkt myndband eftir íslenskan listamann. (Sjá skjámynd af FB Hauptmanns  neðst).

Kona þessi telur greinilega ekki að gyðingahatur getir verið til staðar í landi ef í því búi engir eða mjög fáir gyðingar. Þó samlandar hennar fyrr á árum hafi nær verið búnir að myrða alla gyðinga Evrópu með dyggri aðstoð ýmissa annarra þjóða, og að gyðinga sé næri aðeins að finna á söfnum í sumum löndum þar sem Helförin fór fram, þýðir það þó ekki að gyðingahatrið hafi horfið. Það er enn til í Þýskalandi og fjölda landa í mið og austur-Evrópu. Maður verður svo sannarlega var við það. Önnur rök hennar eru eins og eitthvað glamur í drukkinni menntaskólapíu. "Aðeins 2 % Íslendinga eru kaþólikkar" skrifar Hauptmann. "Þrátt fyrir það hata aðrir Íslendingar ekki íslenska kaþólikka". Þetta á, að mati Fräulein Hauptmann, að sýna það fjarstæðukennda í að nokkur á Íslandi sé gyðingahatari.

Nú vill svo vel til, að kona þessi sankar að sér vinum á Facebook sem deila með henni skoðunum sem verður hreint út sagt að gera Wall Street International viðvart um og það við fyrsta tækifæri. Þýsk Fräulein með slíka vini getur vitanlega ekki skrifað fyrir Wall Street International.

Meðal þeirra er bandaríski ríkisborgarinn Ted Theewen að nafni. Í mars sl. skrifaði þessi maður, sem er greinilega er satanisti og gyðingahatari í ofanálag þetta á FB Katharinu Hauptmanns, og hún lét það óáreitt:

Jews are all for making fun of other religions until it´s their turn. There is an old Polish proverb: The harder a Jew hits you, the louder he cries out in pain. I´ve noticed that Iceland is under a systematic attack by Zionist interests. I´m sure the attacks will stop once you give them something. A Holocaust museum usually shuts them up for a while.

Svo mörg voru orð FB-vinar Katharinu Hauptmann. Skrif hennar og dómur hennar um gyðingahatur á Íslandi voru hér vegin og léttvæg fundin. Fräulein Hauptmann, greinarhöfundur á Iceland Review og Wall Street International er alls ekki dómbær á gyðingahatur frekar en þeir gyðingahatarar sem hún vingast við á FB.

Iceland Review er lítill sómi í að ráð slíka manneskju til að rýna í íslenskt þjóðfélag Benedikt Jóhannesson, ESB sinni í öðru veldi, ræður þar ríkjum og ætti að vita það. Nýlega greindi hann sannarlega ástandið rétt er hann sagði að Þýskaland réði öllu í ESB (sjá hér). Það má líka til sanns vegar færa, að langt er of gengið þegar þýskar fraukur eru farnir að tjá sig um tilfinningar gyðinga í íslenskum þjóðernisglansblöðum á ensku, líkt og þær væru sérfræðingar í þeim efnum. Ætli Hauptmann hafi boðið Wall Street Journal greinar sínar um gyðinghatrið á Íslandi, þar sem hún segir m.a. að sérfræðingur Simon Wiesenthalstofnunarinnar sé bjáni? Nei, ætli það? En best er að spyrja...

fraulein_hauptmann3_1257536.jpg


Munið þið hana Imbu?

benny_and_tzippa.jpg

Í dag eru kosningar í Ísrael. Sama hvort menn sjá horn á höfðinu á Netanyahu eða ekki, þá er alveg sama hvort hann eða t.d. Tzipi Livni verði í næstu stjórn landsins. Menn verða að gera sér grein fyrir því, að afstaða Ísraelsmanna flestra við þeirri ógn sem steðjar að landinu veldur einingu og þar skiptir stjórnmálaflokkur ekki aðalmáli. Íslendingar þekktu einu sinni listina að lifa af en eru nú búnir að gleyma henni og treysta því sumir að ESB frelsi þá frá öllu illu. Lífsbjargarlistina kunna Ísraelsmenn/Gyðingar enn, og af brýnni nauðsyn.

Í landinu okkar litla, þar sem ásakanir um landráð fljúga nú í þingsal, er kannski hollt að minnast bréfs þess sem fyrrverandi utanríkisráðherra Íslendinga, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir sendi Tzipi Livni árið 2008. Hún settist niður á gamlársdag með tveimur samstarfskonum sínum. Líklega hefur verið borið fram gott caffe latte í bollunum og kaka með, og jafnvel gott sjerrý. Svo skrifuðu þær þetta frábæra bréf til utanríkisráðherrans í Ísrael, sem er hægt að lesa hér þótt ekki sé hægt að nálgast það í Utanríkisráðuneytinu í Reykjavík. Ég reyndi að fá bréfið árið 2009 og fékk ekki á Íslandi. Þá var að reyna á lýðræðið í Ísrael,sem reyndist opnara en það íslenska og ég fékk bréfið frá Jerúsalem með hraðpósti og birti.

Í bréfinu kemur greinilega fram að utanríkisráðherra Íslands árið 2008, var áður en hún fór að skjóta áramótaflugeldum sínum í Vesturbænum í Reykjavík, tekinn upp á þeirri perversjón að tukta utanríkisráðherra Ísraels til með friðartillögum ESB.

"I appeal urgently to you and the Israeli Government to accept the EU proposal on an immediate ceasefire."

Íslenskur utanríkisráðherra var farinn að vísa í tillögur ESB og gat ekki vitnað í stefnu ríkisstjórnar sinnar. Halda mætti að Ísland væri orðið ESB-ríki án utanríkisstefnu árið 2008.

Svo eru menn að tala um landráð nú.Sáu menn í utanríkisnefnd Alþingis og skoðuðu bréf Imbu áður en hún sendi það til Tzippu? Vissu þeir að hún mælti með tillögum ESB, sem Ísland var ekki hluti af? Var enginn sem benti Imbu vinsamlegast á, að hún yrði líka að senda hæstráðanda Hamas á Gaza álíka bréf? En það gerði Imba vitaskuld aldrei. Kannski er hún ekki eins sleip í arabískunni eins og hún er í hebresku?

Íslenskir stjórnmálamenn eru að mínu mati fáir starfi sínu vaxnir.

assadasaassadcanbe.jpg


Enn þramma nasistar í Litháen

Mannréttindi er mikil og góð í Litháen samkvæmt ESB, en Litháar þegja þunnu hljóði þegar nýnasistar trampa árlega um götur stærri borga Litháen með blessun yfirvalda landsins (myndin hér að ofan er frá 2012). Vandamálið með nasisma og helfararniðurbælingu er það sama í Lettlandi og Eistlandi. Sjá hér

Hér getið þið lesið bréf sem ég sendi í dag til mannréttindaskrifstofu Litháens: http://defendinghistory.com/icelandic-human-rights-sp…/72084

Dear staff of the Human Rights Monitoring Institute  in Vilnius:

Will any of these more-beautiful-than-life people, seen here https://www.hrmi.lt/en/about-us/people32/, go and monitor the violation of human rights, which is about to occur once again on the streets of Vilnius?

When Neo-Nazi groups go marching on the streets of Vilnius next Wednesday, the ugliest part of the Lithuanian population tramps on the memory of over 190,000 Jews killed in your country during World War II.  The Nazi-marchers will no doubt walk with banners to hail Juozas Ambrazevičius-Brazaitis.

I have personally been a witness to one of the government sponsored praising of Ambrazevičius-Brazaitis in 2012 (http://defendinghistory.com/take-off-your-hat-this-is-not-the-synagogue/36029). It was a shameful conference in a democratic EU-member state. The participants were obviously not neo-Nazis, but they canonized a WWII Nazi-collaborator, who has a saintly status among the neo-Nazis of Lithuania.

Human rights are being violated on the streets of Vilnius. Your Institute, if any, must go and monitor that violation and shameful Holocaust denial and obfuscation which is practised in your country. It is a human rights violation.

As an Icelandic citizen, I feel that Iceland did not, first among Western states, support the independence of Lithuania, later to have to witness organized and annual praising of Lithuanian-Nazi collaboration on the streets of the Lithuanian capital.

Stop this violation of human rights in Lithuania. Tell the world what is going on in your streets!

Yours sincerely,

Dr. Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson


Íbrahím - Íbrahím

Ibrahims bekændelser

Sem fyrsta Íslendingnum sem stakk upp á því (á prenti að minnsta kosti), að moska yrði reist á Íslandi, verð ég að fagna því að fjármagn til þess verks er nú komið í höfn. Eitthvað eru menn að fúlsa við því, en við verðum að virða þann sið að fátækir múslímar taki við ölmusum frá sér ríkari trúbræðrum. Auðnum er mjög misskipt.

Vandamálið er hins vegar allt annað þegar hinir forríku múslímar í Sádí og Qatar senda milljarða í stuðning til ISIS, Hamas, Hezbullah og annarra helstefnu- og  hryðjuverkasamtaka, eða nota vafasama banka á Vesturlöndum til að hvítþvo fé til þeirrar gjafastarfsemi. Mér sýnist þó, að fyrirmenn Sogamýrarmoskunnar séu að gretta sig yfir fjármagni frá Sádí. Salman Tamimi afþakkar meira að segja byggingarfé frá Sádíum með þessum orðum:

„Við myndum aldrei þiggja neinar gjafir frá ríkisstjórn sem virðir ekki mannréttindi fólksins síns, brýtur á þeim og styðja hryðjuverk í Mið-Austurlöndum“.

sverrir1.pngNú vandast vissulega málin. Tamimi, sem ekki virðir mannréttindi þegar hann notar orðið gyðingur sem fúkyrði á kristna menn, fær vart nokkra peninga frá ríkum trúbræðrum sínum, ef hann setur svo stór skilyrði. Tamimi verður líklegast líka að losa sig við Íbrahím Sverri, sem sýnir því jákvæðan skilning að fólk berjist með ISIS. Fjármagn frá Qatar væri líklega betri lausn. Al Thani glæpagengið í Qatar hefur stutt ISIS og Hamas...tvö skátasamtök sem Tamimi og Ibrahím styðja. Al Thani málið hlýtur að vera Íslendingum í fersku minni. Ég tel víst, að Al Thani gengið hafi notað Kaupþing til að hvítþvo fé sem sent var hryðjuverkasamtökum.

Er ekki bara tilvalið að Qatar, sem sendir milljarða til ISIS og Hamas, styðji einnig Sogamýrarmoskuna, þar sem stjórna menn sem beint og óbeint styðja Hamas og ISIS? Væri það ekki prýðislausn? Eða að senda peningana fyrst til Hamas, og láta Hamas byggja Hamashof í Reykjavík, þar sem hægt verður að blóta Ísrael og gyðingum almennilega.

 


LÍN

l_n.jpg

Þó ég sé atvinnulaus og hafi ekki lengur neinar tekjur og bætur sem atvinnuleysingi, hef ég skyldur við sjómenn, smiði og jafnvel bankamenn þá sem unnu fulla vinnu á fullum en mislélegum launum , meðan ég var í námi sem þeir greiddu fyrir með skattgreiðslum sínum - sumir hverjir.

Ég reyni í ár að greiða svokallaða fasta afborgun af námslánum mínu, sem er vísitölutryggð greiðsla, en hef beðið um greiðsludreifingu.

Ég hef heyrt af tannlækni í Flórída, Steingrími N. Hermannsyni að nafni, af fínni og fjöllyndri heldri manna ætt á Íslandi, sem neitar að greiða af lánum sínum, þó að tekjur af hálfri tönn myndu væntanlega borga árlegar greiðslur hans til LÍN og íslensku alþýðunnar sem vann meðan að hann menntaði sig á þeirra kostnað.

Ég segi bara eins og farísearnir. Þannig er ég ekki. Ég gæti aldrei greitt fyrir þjónustu þá sem Dr. Hermannsson veitir í Flórida. Tennurnar rotna í mér, því ég reyni að greiða af námslánum, en hann hlær alla leið i bankann.

Enn... LÍN verður að taka sig saman. Í langan árafjölda hef ég jafnan fengið greiðsluseðla of seint frá þessari stofnun. Líka núna.

Síðasti greiðsluseðilinn frá LÍN var sendur mér 20. febrúar samkvæmt stimpli á umslagi. Hann barst mér fyrst í dag 26, febrúar. Útgáfa hans er ekki dagssett. Gjalddagi er 01.03.2015. Mönnum er, eins og þið sjáið, ekki gefinn mikill tími, og líklegast berst slíkur greiðsluseðill enn síðar til tannlæknis í Flórída, þar sem póstburðarmenn taka víst póstinn með sér heim, því launin eru svo lág.

Það fyndna er, að þegar þ. 4. febrúar 2015 hefur LÍN sett á heimasíðu sína upplýsingar um "Umsóknir um undanþágu frá gjalddaganum 1. mars", sem "hefur nú verið opnuð á Mínu svæði hjá LÍN". Ég get farið að sækja um undanþágu áður en ég fæ rukkun. Þetta er nú meira ruglið.

Svona er tilveran nú á Íslandi í ESB og Flórída. Á Íslandi kunna menn ekki stjórnsýslu, í Danmörku búa fleiri fátæklingar en á Íslandi, þó menn vilji ekki trúa því, og í Flórída eru framdir margir glæpir. Líklega er hvergi gott að búa - og ekki verður íslensku námskuldamönnum léttur róðurinn eins og sumum þeim sem fengu skuldaniðurfellingu á kúlulánin sín. Ísland, rotið niður í kjölinn að vanda.

 


Fórnarlambið í Krystalgade

rh_jumpball.jpg

Eftir hryðjuverkið í gær og morðið á Østerbro á 55 ára manni, hélt morðinginn áfram. Klukkan tíu mínútur i eitt réðst hann að öryggisvörðum inngangi (búrinu svokallaða) við sýnagóguna í Krystalgade. Í Det Jødiske Hus, bak við samkundunhúsið var verið að halda upp á fermingu (Bat Mitzva) ungrar stúlku og 80 manns voru í samkomuhúsinu.

Dan Uzan, dagfarsprúður 37 ára maður sem í fjölda ára hefur starfað sem öryggisvörður við sýnagóguna var myrtur af hryðjuverkamanninum. Ég hef oft talað við Dan Uzan, sem var frekar einrænn og lokaður, og man eftir honum þegar um 1997 er hann var farinn að gæta safnaðarins með öðrum, þar með talið góðum vinum mínum og FB-vinum. Dan varð því miður 2. fórnarlamb hryðjuverkamannsins sem lögreglan í Kaupannahöfn telur sig nú hafa skotið til bana.

Dan Uzan var líka þekktur sem bráðgóður körfuboltamaður, enda risi að vexti. Dan var menntaður cand.polit. frá Hafnarháskóla. Hann sinnti einnig stöðu vaktmanns/öryggisvarðar í frístundum sínum og var þar að auki þjálfari hjá HØBAS (Hørsholms Basketballclub).

Blessuð sé minning Dan Uzans, sem var hetja sem varnaði því að íslamistinn og gyðingahatarinn færi inn á lóð samkunduhússins og dræpi þar ungmenni. Baruch Dayan Emet.

Á myndinni efst sést Dan í hvíta búningnum.


Illugi Jökulsson gerist gleyminn

illugi_2_1254206.jpg

Illugi Jökulsson tekur sér það bessaleyfi að skrifa blogg um feisbókarfærslu mína. Það er auðvitað hið besta mál. Illugi gleymdi því miður að setja hlekk í FB mína eða í færsluna á Morgunblaðsblogginu sem FB athugasemdin byggði á. Illugi leggst ekki svo lágt að vitna i Moggablogg frekar en aðrir á Eyjunni.

Illugi gleymdi enn fremur að upplýsa lesendur sína um, að áður en ég skrifaði bloggið/FB færsluna sem hann skrifa um án þess að vitna drengilega i hana, þá var mér varpað út af FB-síðunni Gamlar Ljósmyndir. Þar þola menn greinilega ekki að sjá ljósmyndir af Gunnari Gunnarsyni nasista, manninum sem heimsótti Hitler. Réttara sagt eru skyldmenn Gunnars við stjórnkerfið á Gömlum Ljósmyndum.

Illugi gleymdi þar að auki segja lesendum sínu, að ég get ekki svarað fyrir mig a bloggi hans á Eyjunni. Það er vegna þess að Egill Helgason lét loka á mig á Eyjunni, án nokkurra raka. Ég hef aldrei skrifað neitt ljótt á Eyjunni, nema hvað ég hef einhverju sinni bent á að annar íslenskur nasisti en Gunnar hafði líklega ekki þau próf frá þýskum háskólum sem hann hefur puntað sig með og sem hjálpaði honum að verða seðlabankastjóri. Svo illa vildi til, og það vissi ég ekki, að þessi nasisti var "stjúpafi" Egils.

Gleymska eins þekktasta sérleyfishafa mannréttinda á Íslandi, sýnir vel að grundvallamannréttindi eins og ritfrelsi og skoðanafrelsi eru alls ekki öllum gefin. Menn eru ritskoðaðir og úthýstir fyrir að nota ekki "dempaðan stíl", eins og einn vinur minn kallar venjulega íslenska umræðu. Í DDR menn voru menn líka beðnir um að dempa stílinn, áður en þeir voru reknir úr vinnu eða skóla.

Illugi leyfir svo manni einum að fjasa um að ég hafi líka skrifað að Guðmundur Kamban hafi verið "slefandi nasisti". Jú, en ég get ekki skýrt það út á bloggi mannréttindamannsins, Írans- og Hamasvinarins Illuga Jökulssonar. Illugi veit þó líklega ekki frekar en fjasandi já-maður hans, að Guðmundur Kamban var mjög líklega valdur að handtöku gyðings í Kaupmannahöfn. Gyðingurinn missti lífið í Helförinni. Nú veit hann það. Illugi ætti að lesa Moggabloggin aðeins oftar til að gleyma ekki, þó svo að við séum öll stimpluð "fasistar", "rasistar" og annað ljótt sem sérleyfishafar á réttar og heilnæmar hugsanir undir vinstra vængbrotinu nota óspart á andstæðinga sína í skoðanaskiptum.


Zensurstelle Gamlar Glansmyndir

zensur.jpg

Nýlega bauð einn ágætur blogg- og facebókarvina minna mér inn í lokaðan hóp á FB sem ber nafnið Gamlar Ljósmyndir.

Ég skoðaði oft myndir á þessari síðu og gat í fáeinum tilvikum gefið upplýsingar sem menn leituðu að. Það er gaman af skoða gamlar ljósmyndir. Þær staðfesta hve ung við erum.

volvo_1800.jpg

Fyrir um það bil viku síðan gerði ég athugasemd um bílamynd og setti þessa mynd af konu sem vann "dýrlingsbílinn" í vöruhappadrætti SÍBS árið 1969 og ég spurði menn um númerið á gráa silfurlitaða Volvo 1800 bílnum sem ók um götur Reykjavíkurborgar áður en konan á Hringbrautinni vann hvítan bíl sömu gerðar. Meir að segja Egill Helgason bauð (rangt) í númerið á gráa Volvóinum en man vel eftir honum eins og ég. Allir strákar vildu eiga svona bíl.

Svo gerist það að ég er fjarlægður af FB-hópnum Gamlar Ljósmyndir. Það þykir mér auðvitað skrýtið og hef samband við Guðjón Friðriksson sagnfræðing sem er einn af umsjónarmönnum Gamalla Ljósmynda. Hann kunni engar skýringar á þessu. Fólk sem hafði lækað færslur mínar og gert umsagnir við myndir þær sem ég setti inn tóku að hafa samband við mig og spyrja mig hvort ég væri hættur í hópnum.

Ég hætti ekki og fjarlægði mig heldur ekki úr þessum fríða flokki sem nú telur yfir 4500 manns. Ég varð hins vegar fyrir ritskoðun, því á Íslandi eru ákveðnar fígúrur úr sögu Íslands, sem voru ljósmyndaðar, álíka heilagar og spámaðurinn mikli er fyrir þorra núslíma. Ég móðgaði minningu Gunnars Gunnarssonar með því að birta myndir af honum í Þýskalandi, t.d. mynd af Gunnari þar sem hann kemur stoltur af fundi hjá Hitler.

gunnar_hittir_hitler_1a_lille_1254162.jpg

Gunnar er hetja á Íslandi

konungskoman_1921.jpg

Það voru fjandakornið ekki myndir af konungskomunni árið 1921 sem ég birti með spurningu um hvar maður gæti skoðað kvikmynd Bíó-Petersens um komuna, eða mynd af Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur með útrásarvíkingum í Kaupmannahöfn sem ollu útilokuninni. Ég birti líka mynd af Hermanni Jónassyni í Danska sendiráðinu árið 1937, þar sem hann sagði skoðanir sínar á gyðingum.

Nei, mig grunar að Gunnar Gunnarsson sé svo helgur sumum framsóknarkommunum á Íslandi, að ekkert megi segja um hann og engar myndir megi birtast af honum. Gunnarsstofa á Skriðuklaustri birtir t.d. engar myndir af Gunnari þar sem hann er á sjarmaferð meðal nasista í Þýskalandi. Ég hélt því fram á Gamlar Ljósmyndir að hann hefði verið nasisti, gagnstætt mönnum eins og Hannesi Hólmsteini Gissurarsyni sem hafa hreinsað hann með þeim barnalegu rökum að Gunnar hefði ekki getað vitað neitt um ósköpin sem síðar hentu gyðinga og aðra. Það er auðvita tóm tjara. Gunnar vissi vel hvað var að gerast í Þýskalandi fram til 1939.

sendira_i.jpg

Hermann í Danska sendiráðinu í Reykjavík sama kvöldið og hann lýsti því yfir að Ísland væri hreint, norrænt land og að allir gyðingar sem inn í landið hefðu komist myndu verða sendir út aftur.

 

Þormars þáttur Skriðu

Svo vill til að maður með ættanafnið Þormar æsti sig mjög við gamla ljósmynd af Gunnari Gunnarssyni sem ég setti inn. Hann upplýsti að hann væri afkomandi bónda sem selt hefði Gunnari Skriðuklaustur.

Einn eiganda kaffihússins Babalú á Skólavörðustígnum skildi einnig eftir sig athugasemd þar sem hann taldi óviðeigandi að birta mynd af Gunnari hjá Hitler. Ég vissi ekki betur en að maðurinn sem Gunnar heimsótti í Berlín hafi myrti suma ættingja annars eiganda Babalús,sem reyndar er giftur þeim sem taldi myndina óviðeigandi á "Gömlum ljómyndum".

gunnar_koenigsberg_1_a_lille.jpg

Svo skemmtilega vill til að annar maður með ættarnafnið Þormar er einnig umsjónamaður á FB-Gamlar Ljósmyndir. Ég hef spurt hann líkt og Guðjón Friðriksson sagnfræðing. Andstætt Friðrik er Sigurður Þormar þögull sem gröfin.

Menn ættu ekki að kalla sig "Charlie Hedbo", ef þeir þola ekki að sjá Gunnar Gunnarsson í nasistaham. Fólk sem fárast yfir spámannamyndum, þolir greinilega ekki ljósmyndir af Gunnari Gunnarssyni þegar hann kemur með sælusvip af fundi með Hitler.

Ritskoðun sú og útilokun sem ég varð fyrir á Gömlum Ljósmyndum sýnir mér ýmislegt. Frelsið er svo sem svo á Íslandi. Ég er þó þakklátur fyrir að ég hafi aðeins verið verið útilokaður en ekki hálshöggvinn. S(Í)S liðar Gamalla Ljósmynda eru enn í DDR-aðferðunum. Kannski koma blóðugri dagar?

Það er gaman að skoða gamlar ljósmyndir, þær staðfesta hve ung við erum og á stundum hve forstokkuð, fasísk og afdalaleg við erum. Afdalamenn ættu ekki að pæla í gömlum ljósmyndum.  Það er þeim ekki hollt. Ég mæli með glansmyndafeisbók fyrir slíkt fólk.

happy_old_days_1254160.jpg

Ég birti reyndar einnig þessa mynd á "Gömlum Glansmyndum" degi áður en mér var úthýst þar, en mér var vitanlega ljóst að hún væri of eitruð fyrir gömlu ráðsstjórnina á FB-Gamlar Ljósmyndir. Hún er samt svo gömul, að flestir Samfylkingarmenn sem ég þekki, eru búnir að gleyma því þegar Imba hélt því fram í Kaupmannahöfn árið 2008 (mars) að íslenskt efnahagslíf væri "sterkt og sveigjanlegt".

Svo ég upplýsi alla "glæpi" mína á Gömlum Glansmyndum, þá birti ég líka þessa filmu um daginn:


Íslendingar eru fávitar...

holocaust_ignorance_1254128.jpg

að minnsta kosti, þegar að fræðslu á helförinni kemur. Ísland er samkvæmt nýrri skýrslu UNESCO það ríki Evrópu sem kennir minnst allra ríkja í álfunni um helförina Holocaust/Shoah), hina skipulögðu útrýmingu á gyðingum í kjölfarið á níu ára ofsóknum nasista gegn þeim.

Kannski eru það mistök að Íslendingar kenni ekkert um helförina, taki maður tilliti til stefnu ríkisstjórnar Íslands árið 1937-39, þegar Hermann Jónasson og sú ríkisstjórn sem hann sat í var af "prinsippi" mótfallin því að veita gyðingum dvalarleyfi á Íslandi (sjá hér). Margir Íslendingar eiga líka afar erfitt með að sætta sig við að Gunnar Gunnarsson og Guðmundur Kamban voru skósveinar nasista. Prófessor Hannes Hólmsteinn Gissurarson hefur t.d. sýknað Gunnar af nasisma m.a. með þessum vafasömu rökum: "því að grimmdarverk þýsku nasistanna urðu ekki öllum ljós fyrr en eftir stríð".

Ekkert er að finna um Holocaust/Shoah/Helför stærsta þjóðarmorð 20. aldar í námsskrám á Íslandi, þó svo að Íslendingar hafi árið 2000 skuldundið sig til að kenna sérstaklega um helförina.

Þetta kemur fram í nýrri skýrslu UNESCOs. Sérfræðingar í Þýskalandi hafa komist að þessari niðurstöðu varðandi Ísland. Ísland er enn aftast á merinni.

Nýlega (desember 2014)hringdi ég í Menntamálaráðuneytið og spurði út í kennsluna um helförina vegna greinar sem ég er að vinna að. Þar kom ég líka að tómum kofanum. Séra Baldur Kristjánsson, sem ég hringdi einnig í, þar sem hann er vel inni í öllum minnihlutamálum, var einnig á þeirri skoðun að fræðsla um helförina væri í mýflugumynd og væri kennurum í sjálfsvald sett, hvort þeir kæmu yfirleitt inn á efnið. Kemur það heim og saman við niðurstöður samantektar UNESCO.

Næstu lönd við Íslands sem gefa jafn mikið frat í upplýsingu og fræðslu um helförina og þjóðarmorð og Ísland, eru Egyptaland, Líbanon og Írak. Er nema von, að fæstir á Íslandi, kunni ekki skilgreininguna á þjóðarmorði.

Hér er Ísland aftur komið með afar vafasamt hlutverk á meðal þjóðanna, og nú fær maður hlutaskýringu á því af hverju gyðingahatrið er oft svo svæsið á Íslandi. Jafnvel vinstri menn á Íslandi eru gyðingahatarar, þó þeir haldi vart vatni fyrir minnihlutum eins og samkynhneigðum og múslímum, sem mönnum ber vitanlega skylda til að þykja vænt um líka.

Nýlega hélt maður einn, frekar óheflaður, því fram á fasbók Gísla Gunnarssonar fyrrv. prófessors í sagnfræði að ISIL væri tilbúningur Ísraelsmanna. Gísli ávítaði manninn með þessum orðum:"Þú ert að styðja ofstækismenn í Ísrael með þessum fullyrðingum, Óskar." Gísli og aðrir yfirlýstir vinstrimenn eru mjög ósparir á að stimpla aðra sem ofstækismenn. Þeir sjá því miður ekki ofstækið í sjálfum sér.

hja_gisla_gunnarssyni.jpg

Óskar þessi,sem vegna gyðingahaturs hefur um árabil uppnefnt mig "Villa öfgamann í Köben", FB-vinur Gísla Gunnarssonar líkt og ég, fékk greinilega heldur ekki næga kennslu í skóla. Vandamálið er gamalt. Nasistar og gamlir kommar halda í dag, að þeir eigi einhvern einkarétt á mannréttindum - Sem er skrýtið, þegar haft er í huga að nasistar og kommar hafa ávallt fótum troðið mannréttindi í skammlífum útópíum sínum, sem voru reyndar helvíti á jörð.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bækur

Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband