Leita í fréttum mbl.is

Eru Íslendingar ekki kristnir?

samaritan.jpg

Þó ég sé ekki kristinn, þá þekki ég allt um náungakærleika kristninnar. Hún er rómuð og líta aðrir með öfundaraugum til þess hve gott fólk kristnir eru. Í umræðunni um flóttafólk sem búist er við að komi til Íslands, virðist mér fólk, sem venjulega lýsir sér sjálfu sem kristnum einstaklingum, sé farið að hugsa meira á þjóðhagslegum nótum en út frá hinum fræga og annálaða náungakærleika.

Ég veit ekki hvort 70 einstaklingar geta sekkt íslensku þjóðarskútunni, en ég er efins. Jafnvel þó þeir verði nærðir á vörum sem verslanir munu á annað borð henda, þá getur þetta ekki kosta mikið að gera aðeins meira en Íslendingar gerðu á 4. áratug síðustu aldar, en þá lokuðu Íslendingar á flesta þá gyðinga sem reyndu að flýja til Íslands. Þá hugsuðu einnig margir á þjóðhagslegu nótunum, en fjölmargir Íslendingar voru einnig nasistar.

Flest fólkið sem streymir til Evrópu nú, er að flýja öfgar trúar sem aldrei hefur verið þekkt fyrir náungakærleika og mannkærleikurinn er enginn hjá sumum deildum hennar. Íslam er vandamál og það flýr þetta fólk sem kemur til Evrópu í bland við örbyrgð vegna stríða, þar sem Íslam er einnig vandamálið. Það flýr undan Einræðisherrum og stjórnkerfum þar sem Íslam er einnig vandamálið.

Tökum á móti flóttafólki, leggjum áherslu á að minnsta kosti helmingur þeirra sé kristið fólk eða Kúrdar, og hvað varðar múslíma að þeir verði látnir skrifa undir að þeir taki ekki þátt í öfgastarfsemi á Íslandi, t.d. árásum á lýðræðisríki á fjöldasamkomum ofbeldisdýrkandi Íslendinga sem styðja öfgaíslömsk hryðjuverkasamtök eins og Hamas. Eins verður að fá undirskrift fólksins um að það fylgi íslenskum lögum og krefjist aldrei Sharíalaga á Íslandi.

Þá er ekki til setunnar boðið. Þeir sem mest vilja hjálpa, og þið ykkar sem trúlaus eruð (og því vitanlega betri en allir aðrir), getið líka leyft fólki, t.d. munaðarlausum börnum, að búa hjá ykkur og getið kennt þeim íslensk gildi og sýnt þeim þá ást og mannúð sem svo sannarlega býr í Íslendingum. Þannig gætum við hæglega tekið fleira fólk í vanda en 70 manns.

Það er náungakærleikurinn sem allt veltur á. Segið mér ekki að Össur Skarphéðinsson geti ekki tekið eins og einn palestínskan ungling. Nú, Sveinn Rúnar Hauksson og konan hans hún Björk. Þau hafa örugglega aukaherbergi handa gamalli, guðhræddri sýrlenskri konu, sem fer daglega í kirkju.

Í stað þess að styðja við nasista í Úkraínu getur svo blessuð stjórnin stutt vopnaða baráttu gegn ISIS og selt fullt af feitum makríl til Rússlands og sett eitthvað af gróðanum til að berjast gegn púkum eins og ISIS, Boko Haram, Hamas, Taliban o.s.fr.

Að lokum leikur fyrir ykkur meistari Paolo Conte af disknum SNOB. Lagið heitið Brúðurin er Afríka. Takið gleði ykkar.


Vítahringur íslensku þjóðarinnar

11700980_443458632499687_5107779828152919137_o.jpg

Hægfara sjálfsmorð íslensku þjóðarinnar er löngu hafið, en nýlega var því hraðað til muna. Því hefur verið hótað að 16 nýir skyndibitastaðir muni hjálpa til við þjóðarsjálfsmorðið.

Misskiljið mig ekki. Ég hef ekkert á móti hóflegum kapítalisma. Ég tel hins vegar að menn eigi ekki að éta sig í hel hans vegna. Það á ekki að troða kapítalisma ofan í kok á fólki, frekar en fimm ára áætlunum og sænskum kanelbullum frá IKEA.

Íslendingar eru vissulega að drekkja sér í fitu og kafna í sykurpytti. Þetta er eins og hernaður. Nú er líka búið að hertaka íslenska fánann og setja hann á amerískan vítahring. Reyndar nær litarefnið í sykurdrullunni ekki bláa litnum í ilhýra fánanum okkar. Dunkin´ Donuts brýtur því íslensk fánalög með þessum E-1944 blue lit.

Afnám tolla og gjalda á fitu og sykur meðan að tollar á grænmeti hækkuðu, komu sér eins og himnasending fyrir Pétur Árna Jónsson sykurpabba á Dunkin' Donuts. Forstjóri 10-11 virðist reyndar sjálfur vera orðinn fórnarlamb sölumennsku sinnar. Bíldekk eru farin að myndast um mjöðm og um háls þessa áður svo mjóslegna framtaksmann. Líklega er einnig farið að þrengja að kransæðunum í Pétri, því nú drekkur hann bara blávatn að læknisráði þegar hann er Dunkin´ Donuts (sjá hér). Pétur Árni mælir þó ekki með að aðrir fari að því ráði. Hann græðir nefnilega á sykri og fitu.

Sú staðreynd blasir við, að þeir sem versla munu á öllum Dunkin´ Donuts stöðum Péturs Árna (og borða kjúklinga á KFC í kvöldmat), munu að meðaltali lifa miklu skemur en foreldrar þeirra, afar og ömmur, sem létu sér nægja eina og eina kleinu með kaffinu og það án fánalitanna úr sykurdrullumixi. 

Ekki skilja mig rangt, mér þykja góðir kleinuhringir, en án drullu, og ég bý þá sjálfur til 2-3svar á ári, en ég tel að þessi matvara, eins og allt annað matarkyns sem þróað var áfram  í Bandaríkjunum sé aðeins hollt fyrir menn sem vinna erfiðisvinnu, t.d. Pólverjana og Litháa sem þrælað er út í verslunum 10-11.

ramos-dunkin_donuts.jpgWilliam Rosenberg, bandarískur gyðingur sem hætti í skóla þegar hann var 14 ára til að lifa af, stofnaði Dunkin´ Donuts keðjuna árið 1950, þegar honum var ljóst sem smásölumanni fyrir matvörur til iðnaðarfyrirtækja, að kaffi og kleinuhringir voru vinsælustu matvörur verkamanna, sem unnu langan og erfiðan vinnudag. Rosenberg borðaði aldrei mikið af kleinuhringjum sjálfur, enda vann hann ekki erfiðisvinnu. Það er heldur ekki  í sjálfu sér honum að kenna, að þjóðarbrot sem ekki eru vön djúpsteiktum mat og hafa lifað á horriminni í aldaraðir fitna óeðlilega mikið þegar þau komast í slíkt "fæði". Á þetta við um þeldökka Bandaríkjamenn, Íra sem sem og Íslendinga og margar aðrar þjóðir. ekki síst. frumbyggja Bandaríkjanna, sem nú er verið að útrýma á miklu hagkvæmari hátt en á 19. öld. Þegar fólk fer að innbyrða alla fituna og sykurefnin í kleinuhringjunum er hægfara sjálfsmorð hafið. Fólk með skaðaða sjálfsímynd, fátæklingarnir, fólk með "fíkilsgen" og þeir sem vantar hemla þegar að matarlist kemur, verða fórnarlömb fitu og sykurdrullunnar.

11845136_443458629166354_3684176175669955316_o.jpgDónuttarar. Myndin fannst á FB Dunkin´ Donuts. Þeim virðist illt í rassinum.

Ekki er ég þó viss um að sugar-daddyar íslensku þjóðarinnar sem troða fitusoðnum kjúklingum og kleinuhringjum ofan í garnir Íslendinga og skola því út með ropvatni í öllum regnbogans litum, muni skila arði sínum í einstaka sjúkrahús eða spítaladeildir, þar sem afleiðingar þessa einstaka framtaks þeirra verða "læknaðar" á kostnað skattborgaranna.  Þeir fara ekki að fordæmi Williams Rosenbergs, sem gaf nokkrar krabbameinsdeildir þegar hann var sjálfur kominn með krabbamein í annað hvert líffæri. Íslensku sykurotrarnir og fitukjúklingarnir borga ekkert og munu hlæja alla leið í bankann með arðinn af sjálfsmorðsvilja viðskiptavinanna.

Eftir situr hin hreina og einstaka þjóð, í súpersize rúmum á troðfullum hjarta- og krabbameinsdeildum, ef fólkið er þá ekki þegar farið úr bráðaristilbólgu, lífhimnubólgu eða skitusting.


Þegar menn þrýtur góðu rökin

866233ab6b7bf135a7a0ee53b67b2091.jpg

Sjaldan er eins mikill dónaskapur og gorgeir í mönnum og þegar málefni Miðausturlanda ber á góma. Gamlir harðlínukommar, sem áður studdu morðóð alræðiskerfi sósíalismans og jafnvel PolPot og Rauðu Kmerana, hafa eftir að vígi sæluríkjanna hrundu, eitt af öðru, snúið haturskröftum sínum að Ísraelsríki, eina lýðræðisríkinu í ólgusjó öfga og einræðisríkja.

Stundum fer umræðan úr böndunum. Þegar menn sem styðja Hamas og önnur álíka öfgaöfl, sem hafa þjóðarhreinsanir á dagskránni, er ekki langt í skítkast og ad homine árásir á þá sem ekki deila þeirri skoðun að Hamas séu friðsamlega skátasamtök. Eitt af sérgreinum illa uppfræddra, íslenskra stuðningsmanna Hamas og annarra hryðjuverkahópa er að væna stuðningsmenn Ísraels um barnaníð og alls kyns perrahátt. Undir slíku stendur enginn án mótmæla.

Vændur um að stinga nammi upp í litla munna

Hér gef ég vitaskuld dæmi af því sem ég hef orðið fyrir af skítkasti manna sem stunda slíkt persónuníð og ærumeiðingar.

Á Moggabloggi eins helsta stuðningsmanns Pol Pots og Rauðu Kmeranna á Íslandi, Hjálmtýrs V. Heiðdal, þraut marga menn rökin árið 2008. Maður nokkur sem kallaði sig "Vin Vilhjálms Örna sinna" setti inn athugasemdir í athugasemdakerfið og skrifaði m.a. þetta:

"Vilhjálmur Örn er góður maður sem vill öllum múslimum vel. Gott dæmi um góðmennsku Vilhjálms er nammið í buxnavasanum sem hann stingur upp í litla munna þegar mömmur sjá ekki til. Honum þykir líka vænt um íslenska bændur og silfurpeninga. Svo þykir honum vænt um sjálfan sig sem er aldrei slæmur kostur. En einmitt á því prinsippi er hernám Vilhjálms og félaga grundvallað. Villi og vinir drepa fólk sem er fyrir til að hjálpa því og senda inn í annan og betri heim." (Sjá hér)

af_si_u_hei_dals.jpg

Þarna var ég m.a. vændur um að stinga nammi upp í litla munna þegar mömmur sjá ekki til. Ekki nóg með það, ég var einnig vændur um að hafa skrifað þetta sjálfur undir fölsku nafni og tók bloggarinn undir það ásamt ættingja sínum sem eining ber nafnið Heiðdal.

Hugsanlegt er að þetta myndmál, sem beint var gegn mér, sé vísun í frumstætt og ógeðfellt áróðursrit nasista um gyðinga frá árinu 1938, Das Giftpilz (Eitursveppurinn), þar sem mátti finna teiknaða "skopmynd "af ófrýnilegum gyðingi sem gefur börnum gott og er hann látinn segja:

"Hier, Kleiner, hast du etwas ganz Gutes! Aber dafür musst ihr beide mit mir gehen ..." [Hér litli minn, er smá nammi! En fyrir það verðið þið bæði tvö að koma með mér".

Ég kvartaði vitaskuld við Moggabloggið yfir þessum óþverrahætti og krafðist þess að fá upplýst hver hefði sett fram þessa athugasemd (sjá hér), en umsjónamaður bloggsins gerði ekkert. Það aðgerðarleysi var líka glæpur og meðsekt um aðför að æru minni. Mogginn aðhafðist ekkert.

Ég krefst þess vinsamlegast nú, að Morgunblaðsbloggið gefi mér upp IP tölu þess sem skrifaði áðurnefndan rægingatexta og ef mögulegt er nafn þess sem skrifaði.

Creepy old man

Fyrr í ár tók ég þátt í umræðu á FB heiðursmannsins Gísla Gunnarssonar, eins af fremstu sagnfræðingum þjóðarinnar. Á efri árum hefur Gísli kastað sér að fullum krafti út í stuðning við Palestínuþjóðina. Það er stuðningur sem ég skil, en ekki að hann sé sýndur með þeim öfgum sem Gísli og margir Íslendingar sýna.

Ungur fréttamaður hjá RÚV sem ég hef gagnrýnt fyrir ónámkvæmni og óundirbyggðan fréttaflutning og sem enn hefur ekki geta sannað fyrir mér eða öðrum að Ísraelsher hafi ráðist á hann á Vesturbakkanum líkt og hann hefur haldið fram.

Fréttamaður þessi,sem einnig er þekktur sem uppistandari, fór heldur betur á kostum á FB Gísla Gunnarssonar i aprílmánuði sl. (2015). En uppistandið var þá svo svæsið að Gísli fjarlægði alla umræðuna líkt og hann væri þaulvanur prófarkarlesari á Neues Deutschland. Lítum hér á smáræði af því sem Gunnar Hrafn Jónsson skrifaði í aðför sinni að mér, áður en Gísli ritskoðaði FB sína.

crummykrummi.jpg

Gunnar kallaði mig m.a. "creepy old man", því ég hafði kallað grein um meinta fréttafölsun hans "Krummi krunkar úti". Það fór fyrir brjóstið honum að ég hafði kallað hann Krumma, nafn sem ég þekkti hann undir er hann bjó í kjallaranum í því húsi þar sem ég leigði íbúð í risinu á húsi afa hans, sómamanninum Leó Eggertssyni. Gunnar vill ekki vera kallaður Krummi, þótt hann hafi aldrei verið nefndur öðruvísi á nafn við mig af ættingjum hans, og segir mig hafa rekist á sig á Neshaganum fyrir tilviljun. Auðvitað er þar nokkuð "creepy", ef það væri bara satt.

Til að bæta gráu ofan á svart hélt Gunnar því fram að ég hefði ráðist á móður sína og föður á bloggum mínum. Ég hef aldrei skrifað um móður þessa unga fréttamanns. Þeim rökum svaraði hann þá með að hann ætti þrjár mæður og einn föður og að það það hefði ekki verið lífræn móðir hans sem ég réðst á heldur kona hennar sem heitir Jóhanna.

Ekki er Gunnar eingetinn, þótt ekki meira né minna en þrjár mæður hafi komið að tilvist hans, en föður hans hef ég aðeins einu sinni skrifað um, og það af vel gefnu tilefni (sjá hér).

Gunnar Hrafn lét þetta ekki nægja í ófrægingu sínum á mér á FB Gísla Gunnarssona og skrifaði, að afi sinn ágætur leigusali minn, sem ég hef aðeins hið besta að segja um og af, "hefði alveg vitað hvaða mann ég hef að geyma". Að lokum skrifaði Gunnar Hrafn í skipunartóni til Gísla Gunnarssonar sem þjónkaði við því með því að fjarlægja allt sem á undan var farið (sem ég var þá búinn að taka afrit af vegna ærumeiðinganna):

"Viltu ekki drífa í því að þrífa upp eftir þetat [sic] helvítis ómenni sem dregur látna ættingja mína inn í þetta, fari þú fjandans til Villi og afi minn vissi alveg hvaða "mann" þú hefur að geyma".

Aumingja Gísli gerði eins og sonur hinnar þríheilögu móður skipaði, enda er ein af mæðrum Gunnars Hrafns í sama stjórnmálaflokki og prófessor Gísli.

joga_og_gisli.jpg

Hvað veldur orðræðunni?

Hvað fær menn í hita umræðu til að væna andstæðinginn um öfuguggahátt og kalla þá "creepy old man" eða tala um þá eins og þeir séu barnaníðingar?

Næst er mér að halda að þeir, sem slíkt myndmál nota, séu haldnir einhverri veilu sjálfir, sem þeir ráða ekki við. Slíkt persónuníð er alvarlegur glæpur og gerði Gísli Gunnarsson sér vitaskuld grein fyrir því og fjarlægði svæsnar persónuárásir Gunnars Hrafns Jónssonar í minn garð.

Þetta et sett hér fram til að sýna mönnum á hvað stigi stuðningurinn á Íslandi við hina hrjáðu þjóð Palestínumanna er. Lítið held ég að sú þjóð græði á slíku. En nú vona ég menn sjái, að fréttamaður RÚV, sem oft sér um flutning af fréttum frá Miðausturlöndum, er alls ekki starfi sínu vaxinn. Fréttir eiga ekki að vera uppistand og tilbúningur. hann verður að geta sannað að hann varð fyrir skotárás sem hann segir auðtrúa fólki frá í fjölmiðlum. Fréttir eru sannleikurinn handa fólkinu en ekki gróusögur búnar til af þrímæðruðum starfsmönnum RÚV. Sem betur fer getur fólk í frjálsum löndum fundið sannari fréttir en þær sem Gunnar Hrafn flytur um Ísrael, og hann bjargar ekki Palestínumönnum með því að væna mig eða aðra um að vera "creepy old men".

Ég er nýorðinn 55 ára gamall og telst því enn maður á besta aldri og hef greinilega betra andlegt heilbrigði en ungir menn sem telja alla sem ekki deila ranghugmyndum þeirra um heiminn vera öfugugga og barnaníðinga. Vona ég að þetta vaxi af Gunnari Hrafni. Litla trú hef ég hins vega á því að viðhlæjendur Hjálmtýs Heiðtal eigi von á bata.


Bylting Arnar Ólafssonar

_rn_lafsson.jpg

Flugruslafélagið Ryanair hefur verið hnésett hér í Kaupmannahöfn og flýgur nú aðeins frá Tirstrup utan við Árós. Danir vilja ekki sætta sig við fyrirtæki sem ekki borgar fólki mannsæmandi laun og sem lætur starfsmenn sína borga einkennisbúningana.

Slíkt óeðli sannar vitaskuld líka að Íslendingar eru ekki komnir af þjófóttum, illa innrættum, írskum dvergum. Einn aðalíkoninn í baráttunni við Ryanair er Íslendingur. Mynd af Erni Ólafssyni, sem var íslenskukennari minn í menntaskóla, hefur prýtt forsíðurnar í mörgum fjölmiðlum síðustu mánuðina.

Eins og hann hefði aldrei verið annað en flugvallarpökkunarmaður á Kastrup, stóð gamli Trotskíistinn Örn vaktina fyrr í ár með rauðan fána, í rokkbuxum og á brúnum ballskóm. Bestu þakkir, Örn!

Lifi Byltingin! Og klukkan er 4 mínútur í (byltinguna). Nú finnst mér að SAS eigi að gefa Erni nokkra vildarpunkta fyrir að hafa komið samkeppnisaðila fyrir kattarnef.

_rn_rote_armee.jpg

Assgot, ég er að verða of seinn í næstu byltingu


Hið vandmeðfarna tjáningarfrelsi

books.jpg

Bókabrennur, þörf fyrir guðlast og vanvirðingu og eyðileggingu menningar annarra er aftur komin í tísku. Allt frá eyðingu ISIS á menningar- og trúarminjum annarra til Íslands, er eyðilegging og vanvirðing á gildum annars fólks varin með tjáningarfrelsi.

Sjálfstæðisflokkurinn safnar eins og aðrir flokkar vinsældum með eflingu "tjáningarfrelsisins" (sjá hér). Í skjóli þess vanmeðfarna frelsis er hægt að gera margt. Saga Sjálfstæðisflokksins er verulega menguð af ógeði nasismans. Það virðist ekki horfið úr gróðrarstíum í Valhöll.

Nú á að brenna lögmálið - það er tjáningarfrelsi

Í Lundúnum ætlar frændur sannra Sjálfstæðismanna að þramma í gegnum hverfi gyðinga á laugardegi (hvíldardeginum) og brenna eintak af Talmud (skýringum á lögmáli Torah gyðinga). Nýnasistarnir hafa boðað þennan gjörning sinn þ. 4. júlí í nafni tjáningarfrelsisins.

20090325144750694_1263196.jpg

Hof eyðilagt í "Menningar"byltingunni. Skurðgoðadýrkun kommúnismans þoldi ekki aðra guði.

Íslenskir vinstrimenn, trúleysingjar og siðmenntarfólk fagna vitaskuld tillögu sjálfstæðismanna um afnám guðlastsákvæða íslenskra laga. Sjúkleg þörfin fyrir ærlegu guðlasti hefur elt slíkt fólk í áraraðir. Ekkert hefur í raun hindrað gyðingafordóma og andkristilegt athæfi á Íslandi. Íslensk yfirvöld aðhafast ekkert. Andlegir frændur vinstrimanna hafa eins og kunnugt er líka stundað bókabrennur, skurðgoðaeyðingu, Margir vinstrimenn er til í að vernda þá sem eyða menningu annarra og tala um eyðingu þjóða, t.d. Isis og Hamas. 

Mótmælum !

Vilji menn mótmæla göngu nasista þ. 4. júlí í Lundúnum mæli ég með því að það sé gert hér.

(Hér geta menn mótmælt Jóni Val Jenssyni, sem telur að hann geti lastað guðum annarra, en að hans Guð sé sá eini sem ekki megi lasta).


No Shoes Beyond This Point

no_shoes.jpg

Ég skil vel ákvörðun eins stjórnarmanna Kynningarmiðstöðvar Íslenskrar Myndlistar (KÍM) þegar hún segir af sér af "prinsípástæðum" í kjölfar þóttafullrar yfirlýsingar forstöðukonu KÍM um endalok moskusýninguna á Tvíæringnum í Feneyjum.

Þó svo að stjórnarmaðurinn hafi opinberlega sagt sig úr stjórninni vegna þess að yfirlýsingin var ekki borin undir stjórnina, þá má sérhverjum manni vera ljóst af hverju þessi matrónuyfirlýsing veldur ólgu í KÍM. Hún er óyfirveguð, þvælukennd og uppfull af rökleysum. Einnig vantar mjög allan sannleikann í sögu þeirra samskipta sem KÍM hafði við borgarstjórn Feneyja. Alvarlegast er þó að bein ósannindi koma fyrir í yfirlýsingunni. Björg Stefánsdóttir framkvæmdastjóri KÍM er enn að reyna að gera lokunina að trúarspursmáli, þó svo að yfirvöld í Feneyjum hafi gert sér far um að koma í veg fyrir það.

Björg heldur þessu fram í yfirlýsingunni sem fékk Hönnu Guðrúnu Styrmisdóttur (Gunnarsson) til að yfirgefa stjórn KÍM:

  1. Visitors to THE MOSQUE project are NOT required to remove their shoes nor cover their heads with veils. Inside the exhibition in the Pavilion there is a sign SUGGESTING that visitors remove shoes as a part of the exhibition and the installation, and as a way to respect the cleanliness of the site. Veils are provided for OPTIONAL use by anyone wishing to use them. It is entirely left up to visitors to choose whether to remove or wear their shoes, and whether to try wearing a veil. (Sjá hér).

Skoðið þá myndina efst. Á skiltinu stendur: No Shoes Beyond This Point. (Sjá hvar myndin var fengin hér). Við skiltið stendur svo Íbrahím sýningarstjóri, sem einnig hefur haldið því fram að fólk gat gengið á skónum út á bænateppið. Af hverju stendur þá annað á skiltinu og af hverju sér maður ekki á nokkurri ljósmynd einn einasta mann standa á teppinu á skóm?

Hvern eru menn að reyna að plata? Er Björg Stefánsdóttir ekki starfi sínu vaxin eða hefur verið logið að henni? Það verða yfirvöld á Íslandi að skýra.

Kaupmennska í Guðs húsi

Það hefur einnig verið upplýst, þó svo að íslensk yfirvöld greini ekki íslensku þjóðinni frá því, að ein af ástæðum fyrir lokun sýningarinnar hafi verið ólögleg sölumennska á sýningunni. Þessu hefur verið neitað af íslenskum aðstandendum sýningarinnar.

810235.jpg

Lítum þá á þessa mynd. Þarna er söluvarningnum stillt upp. Allt sem þarf til, til að vera góður múslími. Á uppsláttartöflunni á bak við er, ef vel er að gáð, mynd af aðal"mosku" Reykvíkinga. Ég er farinn að halda að Menntamálaráðuneytið telji fólkið í landinu vera vitleysinga. Og þarna var líka selt Mecca, sem ég held að sé nú ekki brýn nauðsyn ef maður vill gerast múslími, nema að maður hati USA og Coca Cola og Co.  Mecca Cola svalar víst afar vel þorstanum í eyðimörkinni:

3e3b3449-6411-46dc-9ce6-46c1d8b4a5ba-392x600.jpg

Ráðherra mennta og menningarmála, Illugi Gunnarsson, hefur lýst því yfir "að moskan sé listaverk sama hvað fólki finnst um það". Væntanlega með eða án Mecca Cola. Já, vissulega er þetta listaverk. En af hverju var þá bænahald í húsi þar sem ekki mátti fara fram bænahald? Hvers vegna "No Shoes Beyond This Point" skilti og síðar lygar um það? Er það hluti af list að stunda trúarbrögð í listaverki. Flestar deildir Íslam myndu ekki taka það í mál að bænir færu fram sem hluti af listagjörningi.

Mín skýring á gerningnum í Feneyjum er einföld: Viðvaningsháttur og heimalningshegðun stjórnar aðgerðum KÍM. Íslendingar verða víst seint heimsborgarar í þorparaskap sínum. Þessi óstjórn á líklega eftir að koma óorði á Íslam jafnt sem Ísland.

Líklega á Ísland (að mínu mati) í fátækt sinni ekkert erindi á dýrar sýningar eins og Tvíæringinn í Feneyjum, þegar ekki er til neitt bitastætt í landinu nema einher Svisslendingur sem aðeins er á Klakanum með annan fótinn. Það er mjög aumt og illa fyrir íslenskri list komið ef enginn íslenskur myndlistamaður hafi lengi burði til að ögra og örva með list sinni.

Miklu nær hefði verið fyrir listamanninn að leggja verk sitt fram fyrir hönd Sviss sem er þekkt fyrir grimma andstöðu við bænaturna múslíma sem þykja skyggja á Alpana og bænirnar yfirgnæfa jóðlið í fjallasal.

Hver fjármagnaði listina í Feneyjum

Það var ekki bara íslenska ríkið sem þurfti að eyða skattkrónum borgaranna í Feneyjum. Ein ríkasta kona landsins, Ingunn Wernersdóttir, studdi framlag Íslands í Feneyjum. Hún hefur sjálf verið kennd við ýmsa gjörninga, t.d. kaup á Stradivaríusarfiðlum og mikla skuldseiglu, sem og góða sölu á réttum tíma og stund. Hún greiddi heldur ekki krónu í útsvar árið 2009. Eitthvað á klóin því eftir á kistubotninum og hún velur að setja klinkið í buddunni í mosku á Tvíæringi í stað greiðslu skatta og gjalda til samfélagsins á Íslandi. Nýlega var Sverrir Agnarsson (Íbrahím) samt látinn fjúka á 365 miðlum, þar sem frúin á tæp 4% af fréttunum. Líklega eyddi hún engu í Íslam þrátt fyrir allt.


"Moskunni" í kirkjunni verður lokað

moschea.jpg

Samkvæmt þessari frétt er Feneyjarborg búin að banna "moskuna" í Santa Maria della Misericordia, þ.e. íslenska skálanum á Tvíæringnum: http://nuovavenezia.gelocal.it/…/moschea-il-giorno-della-so…

Ástæðan fyrir lokuninni eru m.a. þau atriði sem ég benti á í bloggum mínum (hér og hér), en ekki múslímahatur eins og menn reyna nú að gefa í skyn, t.d. á FB Gísla Gunnarssonar sagnfræðings. Þar hefur verið ráðist ómaklega á mig með niðrandi og meiðandi umtali vegna þess að ég leyfði mér á bloggum mínum að að benda á að íslenski hópurinn kynni ekki ítölsku. M.a. hefur Samann Tamimi sagt að ég sem yfirlýstur síonisti, sé "nemandi Göbbels".

tamimi_gestapolli.jpg

Samann Tamimi, Imam íslenskra múslíma hefur hrópað "bölvaður gyðingur" að Íslendingi. Nú segir hann mig vera "nemenda Göbbels" í blindri einstefnuumræðu um gjörning Íslands í Feneyjum á FB Gísla Gunnarssonar fyrrv. sagnfræðiprófessors.

Íslendingar, svissneskur listamaður og menntmálaráðuneytið gátu ekki lesið sér til gangs þau skjöl frá 1973, sem þeir settu sjálfir fram máli sínu til stuðnings.

Þetta er hið alvarlegasta mál fyrir íslensk yfirvöld. Menn verða að vinna undirbúningsvinnuna betur en gert var í þessu máli og kunna tungumálið í því landi sem þeir eru að vinna í. Kynningarmiðstöð Íslenskrar Myndlistar er ekki verkefnum sínum vaxin.

Mig grunar samt, að málinu verði lent á einhvern vitsmunalegan hátt, því Ítalía er nú einu sinni Ítalía, og í því felst ekkert nema raunsæ skoðun á því landi. Þar er á ýmsan máta hægt að miðla málum. Nú er Sverrir Agnarsson kominn til Kúvæt svo kannski hafa hlutirnir róast lítillega.

culto_venziana.jpg

Þessir týndu reyndar augnlinsunum sínum - Nei bara að spauga, þetta er list.


Jesús handtekinn í Torino

fiat_delux_torino.jpgJesús hefur nýlega verið handtekinn fimm sinnum í borginni Torínó á Ítalíu.

Þessi klæðaskiptingur er náttúrlega ekki Jesús, frekar en að Sverrir Íbrahím yfirprestur og sýningargripur í Mosku Miskunnarinnar í Feneyjum er Imam. En ítölsk yfirvöld taka hart á þeim sem þykjast vera synir Guðs eða háttsettir á hans vegum.Jesús fær vatn, brauð, næturgistingu og sekt í hvert skipti sem hann er handtekinn.

Þannig eru íslensk yfirvöld ekki. Á Íslandi ríkir nefnilega virðing fyrir trúarbragðarefum og mikið umburðarlyndi gangvart trú og klæðaskiptingum hvers konar. Sverrir Imam fær t.d. dagpeninga frá íslenska ríkinu og þarf sko ekki að óttast vatn og brauð í neðansjávardýflissum Feneyja.

Kannski er þessi Gúmmíjesús í Tórínó kominn til að vitja líkklæðis þess sem er kennt við hann og borgina sem lætur handtaka hann í sífellur fyrir loddarahátt. En líklegast er hann bara að safna sér fyrir Fiat deLux.

gesus_alla_stazione_1260570.jpg

"Komdu með okkur væni".


Múslímar í Feneyjum snúast gegn bænahaldi Íbrahíms Sverris í Santa Maria della Misericordia

moschea_dell_misericordia.jpg

Samkvæmt blaðinu Corriere del Veneto í Feneyjum harmar Samfélag múslíma í Feneyjum að sýning Íslands á Tvíæringnum sé notuð til bænahalds og bendir á, eins og ég gerði í gær, að ekkert trúarlegt bænahald megi fara fram í húsinu. Það var þegar samþykkt árið 1973. Patríarkinn í Feneyjum og síðar Jóhannes Páll páfi fyrsti lagði blessun sína yfir þá ákvörðun.

Íslensku múslímarnir og Kynningarmiðstöð Íslenskrar Myndlistar (KÍM) fara greinilega á bak orða sinna við samfélag múslíma í Feneyjum og virða ekki samþykktir Feneyjarborgar eða blessanir annarra trúarbragða.

Ráð múslíma í Feneyjum sendi því frá sér tilkynningu, samkvæmt frétt Corriere del Veneto þar sem upplýst er að :

"Með virðingu fyrir Feneyjarborg, og til þessa halda góðu sambandi við allt samfélagið og til að milda samvisku allra meðlima samfélags múslíma, telur samfélagið sig skuldbundið að biðja meðlimi sína um að stunda ekkert helgihald í íslenska skálanum, til þess að koma í veg fyrir misskilning og misnotkun, sem getur í stað þessa að efla samræðu trúarbragða sín á milli í borginni, spillt henni (mengað hana). "

Í grein Corriere del Veneto er stutt kvikmynd af bænahaldi undir stjórn Sverris Íbrahíms, sem á Ítalíu heitir Íbrahím Sverrir og er talinn vera Imam. Meira en 100 múslímar báðu til Allah í gær. Konurnar voru faldar á bak við grindur. Í salnum voru einnig blaðamenn og óeinkennisklæddir lögreglumenn.

Sverrir Agnarsson stundar bænahald í húsi, þar sem bænahald má ekki fara fram, og á skjön við viðtektir yfirvalda í Feneyjum. Hann stundar brot á lögum þess lands sem hann er staddur í. Hann stundar bænahald í fyrrverandi kirkju á skjön við óskir samfélags múslíma í Feneyjum. Sverrir er greinilega í einhvers konar heilögu stríði, og það á kostnað íslenskra skattborgara. Það gengur vitaskuld ekki.

Uppihald "Imamsins" Sverris í Feneyjum er nefnilega kostað af íslenska ríkinu. Íslenska ríkið borgar líka undir frekjugang Bjargar Stefánsdóttur hjá KÍM, sem ekki kann stakt orð í ítölsku, nema kannski pizza og si. Hún lýgur á kostnað íslenskra skattborgara um skjöl varðandi afhelgun kirkjunnar (sjá hér). Þar kemur þó greinilega fram, að bygginguna, þar sem íslenska sýningin er haldin, megi ekki nota til bænahalds.

Eiga Íslendingar erfitt með að skilja? Erum við að sjá dæmi um það vel þekkta fyrirbæri, að Íslendingar skíti á allar reglur vegna yfirganglegrar frekju sinnar? - Eða eru svissneski listamaðurinn og aðalsýningargripur hans á listsýningunni, Sverrir Íbrahím, svona góðir að snúa mönnum um fingur sér? Ég veðja á síðustu tilgátuna.

Moskuævintýrið í Feneyjum kemur trú og virðingu ekkert við. Æsinga- og ævintýramenn frá Íslandi, sem eru ólæsir á menningu Ítalíu, eru að skaða málastað múslíma í Feneyjum. Svo einfalt er málið.

Það er ekki gott til þess að vita að moska sú, sem ég stakk fyrstur manna upp á að yrði byggð á Íslandi, verði notuð til æsingastarfs. En þegar forsvarsmenn moskunnar ganga um og kalla Íslendinga "helvítis gyðinga" og ljúga í nafni trúar sinnar í öðrum löndum, má búast við hinu versta. Ég er því miður ekki vongóður, þegar mennirnir í brúnni vekja ekki traust.

Vitanlega er moska í Feneyjum, en ekki í gömlu borginni sem er friðuð með World Heritage friðun. Hér má sjá þegar listakona gefur moskunni í Feneyjum verk eftir sig. Vandamál múslíma í Feneyjum er nefnilega helst það að sumir múslímar vilja ekki koma í þessa mosku. Múslímar í Feneyjum eiga í innbyrðis erjum og stríði.


Moska í kirkju - en hvað með kirkju í mosku?

640x392_23222_213249_1259239.jpg

Lesið grein mína á Fornleifi: Ófrumlegur "Svissari" á tvíæringnum.

Múslímar vilja mosku í Feneyjum sem er friðlýst borg og á heimsminjaskrá SÞ. Í annarlegum tilgangi er endalaust hamrað á "hatri" Ítala í garð múslima. Nú tekur Svisslendingur, listamaður frá landi, þar sem Íslamhatur er mest á byggðu bóli, að tengja þennan áróður gegn Feneyingum við Ísland. Þó múslímar hafi fengið lóð á besta stað í Reykjavík, þá eru íslenskir múslímar einnig með ásakanir um að múslímahatur á Íslandi sé almennt.

Moskan í kirkjunni í Feneyjum er eins og steinkast í glerhúsi. Það er verið að ráðast á kristna í heimi múslíma og má út önnur trúarbrögð, lífs eða liðin, og eyðileggja heimsminjar i nafni Íslam og ryðja þeim og sprengja af yfirborði jarðar. Samúðin með múslímum sem vilja mosku í Feneyjum í heimsminjum eða eru að ásaka landsmenn sína á Íslandi, þó þeir hafi fengið lóð undir mosku á besta stað bæjarins, er skiljanlega afar lítil.

Ef Múslímar í Feneyjum geta ekki beðið nema að reist sé moska á friðuðum minjum, þá er kannski hægt að biðja á botni fenjanna. Við strendur Sádi Arabíu er moska á hafsbotni, sem sjá má mynd af hér efst.

Sýning Íslands í Feneyjum er kjánaleg og vanhugsuð.

Lesið svo meira um ófumlega Svisslendinginn sem er greinilega það besta sem Íslendingar gátu séð sér fært að senda á Tvíæringinn í ár.


mbl.is Moska í íslenska skálanum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bækur

Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband