Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, mars 2008

Vendi ég mínu kvæði í kross

 
x

 

Fornleifafræðingar eiga alltað marga góða gamla gripi í fórum sínum, og stundum er gaman að láta aðra spreyta sig á þeim.

  1. Hvað er þetta?
  2. Hvað er það gamalt?
  3. Hvað er gripurinn þungur?
  4. Hvaðan er hann?
  5. Úr hvaða efni er þetta?
  6. Til hvers var það notað?

Ég tek það fram að þetta er ekki frumgerð krossins ... sem þið vitið, og þaðan af síður krossinn sem ég setti við forseta vorn í síðustu kosningum.

Áfram nú krossmenn! Aðrir mega reyndar taka þátt líka. Hér er ekki gerður greinarmunur á krossmönnum, sonum hálfmánans, dætrum Davíðs eða öðrum börnum jarðarinnar.  Húðlitur og trú skiptir ekki máli og einhvers staðar verður rauðhærðum negrum að finnast að þeir séu velkomnir.


Danskur undirlægjuháttur

 
Little Denmark

 

Ímyndið ykkur að RÚV hefði búið til þátt um öfgafulla íslamista árið 2002 og sent hann út tvisvar sinnum. Ímyndið ykkur að þátturinn hafi orðið áhugaverður aftur í kjölfarið á allri umræðunni um teikningarnar af Múhameð spámanni nýverið. Ímyndið ykkur að viðmælendurnir í þættinum, sem tilheyra íslamístískum samtökum á Íslandi, sem t.d. gætu heitið Hizb ut-Tahrir al Islandiah, hafi neitað at taka þátt í endurgerð þáttarins ef aðrir en múslímar væru með í þættinum. Ímyndið ykkur að RÚV hafi gengið að þeim skilmálum og flutt þáttinn, þannig að viðtöl við "vantrúaða", kristna og gyðinga, væru fjarlægð úr þættinum.

Þá að bláköldum veruleikanum.

Allt þetta hefur gerst í Danmörku. Danskir fjölmiðlar greindu frá því  hér um daginn að þáttur danska útvarpsins DR (P1), sem fyrst var sendur út árið 2002 og ber heitið Jihad.dk, var nýlega sendur út aftur. Þátturinn var sendur út með þeim skilyrðum öfgasamtakanna Hizb ut Tahrir, að engir nema múslímar mættu taka til orða í þættinum. DR hefur veitt öfgasamtökum tækifæri til að ritskoða fólk með aðrar skoðanir eða trú.  Hizb ut Tahrir hefur í Danmörku hvatt til "drápa á gyðingum, hvar sem þá er að finna", og þeir hafa heimsyfirráð íslamísk kalífaheimsríkis á dagsskránni. Ekki má gleyma ætlun þeirra að útrýma Ísraelsríki, því borgin al Quds, miðja nýja heimsríkis þeirra, á að rísa þar. Jerúsalem heitir borgin í okkar menningarheimi, en múslímar eru meira fyrir hið smekklega nafn al Quds. 

Svona er nú veruleikinn í Danmörku. Að mínu mati er stefna Danmarks Radio undirlægjuháttur og einfeldni, sem er eftir að draga dilk á eftir sér.


Konungleg list

 
Kóngafólk á kamrinum

 

Á þessum síðustu og heilögustu dögum eru reiðir menn í Langtíburtustan farnir að skipa fólki til og og segjast annars vilja brenna allt og bramla, ef ekki er dansað eftir þeirra höfði.

Dönum er ljóst að veiðitíminn á þá hefur verið staðfestur í nafni Allah. Það er hættulegt að bera danskt vegabréf í sumum heimshlutum.

Danir kippa sér hins vegar örugglega ekkert upp við þetta skemmtilega málverk sem vann til verðlauna í Ástralíu í nótt. Listamaðurinn, James Brennan fékk 5000 ástralska dali fyrir lystisemdirnar. Verðlaunin kallast Bald Archy Prize. Lesið meira hér

Nú verða Danir að reyna að fá þessa glæsilegu mynd í myndasafn konunganna í Danmörku. Þetta er einstaklega sócíalrealístísk mynd. Prins Friðrik heldur á Carlsberg, sem eins og auglýsingin segir, er líklega besti bjórinn í heimi (en það er nú ekki rétt). Ég hef þó eina athugasemd. Ég held ekki að Mary sé með svona bústin læri. Auðvitað hef ég ekki séð þau, en ég ímynda mér að að þau séu spengilegri.

Nú verður að styðja við bakið á þessum merka listamanni í Ástralíu. Hvað með málverk af Ólafi og Dorrit í svipaðri póseringu? Ohh, ég sé það fyrir mér, með Esjuna í bakgrunninum!

Með því að klikka tvisvar á myndina er hægt að njóta hennar til fullnustu.


Íslendingur leitar hælis í Danmörku

 

Löggubox

Ég las áðan frétt á vísir.is um íslenskan mann á fertugsaldri, sem greinilega á það til að berja mann og annan, en segir hins vegar ekki farir sínar sléttar af viðskiptum við íslenska embættismenn og yfirvöld.

Viðskiptum hans við lögregluyfirvöld á Íslandi er líka lýst hér á vef Lögreglufélags Reykjavíkur (afsakið, en ég sé bara ekki neina haldbæra ástæðu til þess að Lögreglufélagið í Reykjavík sé með þetta mál á sinni kynningarsíðu, þar sem félagið er greinilega ekki málsaðili).

Íslendingurinn höggstóri hefur leitað á náðir Dana og býr á flóttamannastofnun í Kaupmannahöfn með öðrum sem ekki segja farir sínar sléttar og sótt hafa til Danmerkur fyrir ýmsar ástæður, eða ef til vill vegna þess að hér er hægt að gera grín af Múhameð.

Ekki ætla ég að leggja dóm á þetta mál Íslendingsins, en það er eitt atriði sem ég hnaut um í fréttinni á vísir.is

Þar er þetta haft eftir Hildi Dungal, sem telur fráleitt að hugsa sér að Danir muni veita íslenska flóttamanninum hæli: „Nema Danir hafi orðið þeim mun meiri áhyggjur af íslenskum efnahagsmálum."

Þetta er nú skrítið tilsvar hjá forstöðumanni Útlendingastofnunar. Í fyrsta lagi hefur stofnun Dungals ekki ekki neina lögsögu í máli Íslendingsins í Kaupmannahöfn. Í öðru lagi er Íslendingurinn ekki að flýja af efnahagslegum ástæðum, í þriðja lagi er Hildur Dungal að láta í ljós skoðanir sínar á Dönum og áliti þeirra á íslenskum efnahagsmálum, sem er langt fyrir utan starfssvið hennar.

Ef þetta gerðist í Danmörku, hefði Hildi Dungal verið skipað samdægurs í samtal hjá yfirmanni sínum og fengið viðvörun, og við annað brot væri hún komin út í raðir atvinnulausra. En við erum auðvitað að tala um Ísland, þar sem lögin eru bara til fyrir þá sem kunna að fara kringum þau.

Gæti verið að Íslendingurinn, sem því miður á það til að beita handalögmálinu, hafi lent í embættismönnum með sams konar stjórnsýsluvit og yfirmaður Útlendingastofnunar?  Þá gæti nú hugsanlega verið sannleikskorn í frásögn aumingja mannsins þrátt fyrir allt.


Stalín, Hitler og Múh....

 
Bernhard Lewis

Miðausturlandafræðinginn Bernhard Lewis, sem nú er orðinn fjörgamall, hefur verið í miklum metum hjá þeim sem stunda rannsóknir á menningu Araba og Íslams. Nú er ég ekki viss um að hann sé lengur í eins háu gengi og áður. Í viðtali vil Ruthie Blum hjá Jerusalem Post, segir hann m.a. þetta:

"What we are facing now is the third major threat to the world. The first was Nazism, the second Bolshevism and now this. There are parallels. Germany is a great nation, and German patriotism is a perfectly legitimate expression of the pride and loyalty Germans have for their country. But Nazism was a monstrous perversion of that and a curse to the Germans, as well as a threat to the rest of the world.

The aspiration for social betterment and social justice is very noble. But Bolshevism was a monstrous perversion of that, as well as a curse to Russia and a threat to the rest of the world.

Now we have a third similar situation. Islam is one of the great religions that sponsored one of the greatest civilizations in human history. But it has fallen into the hands of a group of people who are the equivalent of the Nazis and the Bolsheviks. They are a curse to their own people, as well as a threat to the rest of the world.

In all three cases, defeat means liberation".  Sjá nánar hér

schtalinHjalti AlfonssonMuhamed

 

 

 

 

 

 

 Altaristafla öfganna

Þetta hefur hann Lewis reyndar sagt okkur í nokkur ár, svo það eru ekki órar 92 ára manns sem hér hljóma, heldur niðurstaða sérfræðings sem hefur eytt ævi sinni í að rannsaka sögu Íslams og heim múslíma og hefur gert það betur en flestir aðrir. (Hann er gyðingur).


Íslenskir öfgabloggarar

 

samkunduhús

 

Miklir öfgamenn hafa lagt leið sína á blogg mitt að undanförnu. Skrif mín virðast æsa þá, enda slær hjarta þeirra í takt við sprengjuhríð hinna þjáðu á Gaza. Þeir kenna Bandaríkjunum og jafnvel sjálfum sér um morðöldu og innbyrðis skálmöld í hinum mismunandi löndum múslíma. Vegna óhemju og gífuryrða í minn garð hef ég meinað nokkrum þeirra aðgang að bloggi mínu. Það er tilgangslaust að þrátta við fólk sem styður hópæsingu og öfga óupplýsts heims, heims sem ærist ef einhver í fjarlægu landi teiknar mynd af skrýtnum karli og sem kaupir sprengjur frekar en mat fyrir börnin sín.

Öfgarnar hjá þessum hatrömmu stuðningsmönnum öfganna renna allar að einum ósi. Feigðarósi stuðnings við öfl sem hafa eyðingu Ísraelríkis á stefnuskrá sinni og sem helst sjá endalok vestrænna gilda. Sjá hér. Sumir þessara gesta minna hafa lýst yfir harmi sínum yfir því að Hitler hafi ekki tekist betur við drápin en þær 6 milljónir gyðinga sem hann kálaði. Aðrir eru enn slímugri í hugsun, því þeir vilja banna gyðingum og Ísraelsríki að "misnota" útrýmingarherferð gegn gyðingum í Evrópu á 20. öld.  Það gerði Ingibjörg Sólrún líka hér um árið, þegar hún hélt því fram að Ísrael ætti ekki neinn einkarétt á réttlæti þrátt fyrir ósköpin í síðari heimsstyrjöld. Það sagði hún þegar leitast var eftir réttarhöldum yfir stríðsglæpamanni sem bjó á Íslandi. Núverandi utanríkisráðherra á Íslandi barðist gegn því að réttlætið mætti sigra yfir böðli gyðinga. Þvílík ósvífni.

Kannski kemst Ingibjörg í Öryggisráð SÞ með hirð fólks sem hefur atvinnu af því að túlka heiminn eftir kenningum pólitískrar rétthugsunar og hræsni. Þá mun heimurinn komast af því sanna um "hlutverk Íslands á meðal þjóðanna", en annars geta menn lesið um það hér ef þeir vilja og leita eftir nafni ráðherrans.


Öryggisráðið er sirkus

 
Mercaz Harav 1

Eftir árás Palestínumanns á Yeshivu (Torah-Talmud skóla) Mercaz Harav í Jerúsalem í gær, þar sem 8 ungmenni voru myrt á hrottalegan hátt fyrir frelsi Palestínu, er hægt að sjá hve mikils virði Öryggisráð Sameinuðu Þjóðanna er.

Þegar greiða átti atkvæði til að fordæma árásina, var það ekki hægt, því einræðis- og íslamistahreiðrið Líbýa andmælti. Líbýa hefur líka, eins og Gaza, eyðingu Ísraelsríkis á dagsskránni.

Þessu ófremdarásstandi í Öryggisráði SÞ breytir Ingibjörg Sólrún auðvitað þegar hún fer í Öryggisráðið með hirð sína. Eða verður hún strengjabrúða Ghadaffis og arabaríkjanna. Það verður hált á bónuðum gólfum friðarins í New York. Imba gæti hæglega orðið trúður í öryggissirkusnum SÞ.

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra sagði í Fréttablaðinu í gær að hún sæi ekki ávinninginn af því að slíta sambandinu við Ísrael, þrátt fyrir að Ísraelsmenn væru að "„hóprefsa" Palestínumönnum á óafsakanlegan hátt". Fullreyna þyrfti opinberar leiðir, svo sem öryggisráðið. Og að alþjóðasamfélagið léti í sér heyra. Ráðherrann getur hér séð hvers virði öryggisráðið er.

Hvað eru árásir Hamas á Ísrael annað en hóprefsingar? Er enginn heil brú í því sem blessunin hún Ingibjörg er að gera og hugsa. Það skýtur skökku við þegar ráðherrann bíður þangað til byssurnar þagna í Darfúr http://postdoc.blog.is/blog/postdoc/entry/294226/ .

Friðarferlið

Svo kom það fram í gær að Vinafélag Palestínumanna á Íslandi telur Hamas lýðræðislega kosna stjórn Gaza. Það er sorglegt að sjá að læknir í lýðræðisríki, Sveinn Rúnar Hauksson, álíti að hryðjuverkasamtök sem stjórnuðu "kosningum" með byssuhlaupi og ógn séu lýðræðisleg.

GazaCelebrate 

Palestínumenn fagna morðárásinni á rabbínanemana

 

Yohai Livshitz, 18 ára 

Neria Cohen, 15 ára

Segev Peniel Avihail, 15 ára

Avraham David Moses, 16 ára

Yonatan Yitzhak Eldar, 16 ára

Yonadav Haim Hirschfeld, 19 ára

Roee Roth, 18 ára

Doron Meherete, 26 ára

ז״ל


Listin blómstrar

Listin blómstrar í Arabalöndunum. Arfur austurríska stórmálarans A. Hitlers og skóla hans svífur greinilega yfir vötnunum. Sjá nánar hér.

 

Arab reality 1
Ash-Shabib, March 5, 2008 (Oman)
On the sign: "Gaza". The rocket is representing "the resistance."

arab reality 2
Akhbar al-Khalij, March 5, 2008 (Bahrain)
The Israeli soldier is saying to Gaza (which is biting him): "Oh, my finger."
arabl reality 3
arabcartoon.net- Isam Ahmad (PA)

arab reality 5
Ad-Dustur, March 5, 2008 (Jordan)
In Arabic: "the only democracy in the Middle East."

arab reality 4
Al-Jazira, March 5, 2008
In Arabic: "Olmert."
arab reality 6
arabcartoon.net- Syria

Arab reality 9
Al-Watan, March 4, 2008 (Qatar)

Arab reality 10 
Ad-Dustur, March 4, 2008 (Jordan)
Israeli soldiers raise the Nazi flag over the dead bodies of the Palestinians in "Gaza;" the cartoon mimics the famous photo of U.S. Marines raising the flag at the battle of Iwo Jima.


Arab reality 11
Al-Khabar, March 4, 2008 (Algeria)
The cartoon's headline reads: "The New Nazism". Israeli Prime Minister Ehud Olmert is depicted as Adolf Hitler.


arab reality 13
Al-Ghad, March 3, 2008 (Jordan)
The cartoon's headline: "Gaza's Holocaust." 

 

arab reality 15
Al-Quds al-‘Arabi, March 3, 2008 (UK)
The cartoon's headline: "Gaza's Holocaust."


Arab reality 14
Filastin, March 3, 2008 (PA)
The cartoon's headline: "Israeli Holocaust in Gaza."
arab reality 17
Al-Gumhuriyya, March 3, 2008 (Egypt)
The caption above reads: "The International Legitimacy." On the paper, in Arabic: "Gaza's Holocaust."
Hauksson

What is the verdict of the Icelandic jury?


Þolinmæði

Pacientia

 

Þolinmæði í pökkum, þolinmæði í pokum, þolinmæði í fernum, þolinmæði með súkkulaðibragði, Þolinmæðislakkrís, þolinmæði í eins og hálfslítra flöskum. Þolinmæði í pillum, þolinmæði á grautinn, þolinmæði á brauðið, þolinmæði, þolinmæði, þolinmæði.

Þolinmæði er tilvalin útflutningsvara til landa múslíma, ef maður gæti búið hana til á Íslandi. Ætli sé hægt að skrá íslenska þolinmæði sem patent. Auðvitað má ekki lauma neinum svínum í þolinmæðina.

Ætli múslímar myndu kaupa íslenska þolinmæði?

Þær eru ekki beint þolinmóðar frelsishetjurnar sem nú mótmæla í Reykjavík með baráttukveðjum frá kammerad Ingibjörgu Sólrúnu. Fólk sem styður hryðjuverkasamtök, sem hefur útrýmingu þjóðar á dagsskrá sinni, hefur heldur enga þolinmæði og óskar ekki friðsamlega lausn mála í Miðausturlöndum.  Ráherrar sem senda baráttukveðjur í slíkar samkundur hafa ekki þolinmæði til setu í Öryggisráði SÞ.


mbl.is „Þolinmæði múslíma á þrotum"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mussolini leiðtogi múslíma

Muslim Hero

 

Er þetta andlit Múhameðs? Vonandi verð ég ekki drepinn fyrir þessa spurningu af múslímum sem ekki vita að Kóraninn bannar einvörðungu múslímum að sýna ásjónu spámannsins. Ekkert bann er við því að vantrúaðir teikni hann. Ég tek það skýrt fram, að ég birti ekki þessa mynd fyrstur. Hún er gömul. En spurningin er réttmæt og allt skýrist við áframhaldandi lestur.

Eftir að Mussolini, sem myndin á auðvitað að sýna ásamt landakorti hugaheima hans, hafði framið óskunda og fjöldamorð í Eþíópíu, ofmetnaðist hann. Hann setti fram áform um að stofna nýtt Rómarveldi, sem átti að ná frá Palestínu í austri, vestur til Líbýu og suður til Kenía.

Fréttaritari Morgunblaðsins í Kaupmannahöfn lýsti á skemmtilegan hátt ferð Mussolinis til Líbýu árið 1937 (á blaðsíðu 2 þann 16. mars 1937). Greinin var að mestu var soðin upp úr grein í The Times. Hér eru nokkur brot:

"Sigurför" Mussolinis um Libyu. Hann vill vera verndari alls Islams.

Arabar ávarpa hann "hinn mikla Mussolini".

Bíða eftir tækifæri til að votta þakklæti sitt.

Athyglisverðasti árangur fararinnar er þó talinn sá, að Arabar, einkum málsmetandi Múhameðstrúarmenn hafa vottað Mussolini hollustu sína. Þúsundir innfæddra manna hafa tekist á hendur langferðir úr fjarlægum hjeruðum og ferðast mörg hundruð mílur til þess að sjá Mussolini, "verndara Islams". 

Kadi (dómarinn) í Dena ávarpaði Mussolini á þessa leið: "Mikli Mussolini, þú getur treyst því, að hinar fjögur hundruð miljónir Múhameðstrúarmanna í heiminum hafa í miklum metum hollustu þina við Islam, og vjer vonum að oss gefist tækifæri til að votta þjer þakklæti vort".

Þessu svaraði Mussolini: "Ítalir vernda Islam hvar sem er í heiminum". 

 

Il Duce átti greinilega upp á pallborðið hjá múslímum

Svo gerðist hræðilegur atburður sem líka er sagt frá í Morgunblaðinu þennan sama dag. Naut nokkuð, sem ekki bar eins mikla virðingu fyrir Mussolini og múslímar, gerði sér lítið fyrir og réðst að Mussolini: "Balbo marskálkur, landstjóri í Líbyu bjargaði Mussolini undan mannýgu nauti þegar einræðisherrann og föruneyti hans var i Bengasi (hafnarborg við Miðjarðarhafið) í gær. Nautið rjeðist að Mussolini sett undir sig að [sic] Mussolini, en Balbo brá skjótt við og lagði nautið á hornunum. Sjálfur stóð Mussolini óhreyfanlegur."

 

mussolini i Bengasi
Il Duce, múslímar með fasces og Balbo í Bengasi

 

Nautabaninn Balbo var enginn annar en Italo Balbo (1896-1940), flughetjan og svartstakkurinn sem kom við á Íslandi árið 1933 þegar hann flaug yfir Atlantsála. Hann varð landstjóri Líbýu árið 1934. Gárungar á vesturlöndum kölluðu Líbýu á þessum tíma "Balboland".  Mussolini hafði sent Balbo til Líbýu því þeir voru ekki miklir vinir. Endalok hans urðu nú álíka ömurleg og hins stjarfa Mussolinis, því hann var skotinn niður í flugvél sinni af ítölskum loftvarnasveitum í Líbýu og telja sumir það hafa verið gert að undirlagi Mussolinis. Balbo var eini meðlimur fasistaveldisins á Ítalíu sem var mótfallin kynþáttalögum sem sett voru á Ítalíu gegn gyðingum árið 1938. Þó hann hafi fyrirskipað gyðingum í Líbýu að hafa búðir sínar opnar á hvíldardeginum, kom hann í veg fyrir að kynþáttalögum Generalissimos Mussolinis yrði framfylgt meðan hann var hundraðshöfðingi í landinu. Eftir dauða hans var evrópskum gyðingum smalað frá Lýbíu í útrýmingarbúðir nasista.

Á sömu blaðsíðunni í Morgunblaðinu árið 1937 má sjá litla frétt um 8 Gyðinga sem myrtir voru í Palestínu, sem er auðvitað ekki í frásögur færandi þá frekar en í dag, þegar sumar Íslendingar hamast í heitu ástarsambandi við hryðjuverkasamtök í Miðausturlöndum og hata gyðinga eins pestina.

Það voru fleiri fréttir á þessari merku blaðsíðu í Morgunblaðinu árið 1937: Franco vildi borga með sherry fyrir Færeyjasaltfisk og upplýst var að rauðliðar hefðu fyrr fengið greitt með appelsínum fyrir fiskinn. Var þetta tilfellið með Íslandsfiskinn. Var hann ekki líka seldur til Mussolinis?

Enn merkilegri er þó fréttin um Kristján X, sem heimsótti Hitler:

"Kristján konungur X, sem nú er staddur í Berlín, hefur heimsótt fyrrverandi ríkiserfingja Þýskalands og ennfremur hefir hann heimsótt Hitler". Mér sýnist á öllu að danska konungsfjölskyldan ætli ekki að gefa mér leyfi til að skoða það mál niður í kjölinn, þótt enginn sagnfræðingur hafi haft rænu á því að fjalla um heimsóknina. 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bækur

Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband