Leita í fréttum mbl.is

Bloggfćrslur mánađarins, mars 2008

Grćnn af reiđi

 

Grćnn Vinstrimađur

Ögmundur Jónasson sleppti sér í dag á hinu háa Alţingi. Hann krafđist ţess ađ Íslendingar slitu umsvifalaust stjórnmálasambandi viđ Ísrael. Reyndar er Ögmundur búinn ađ bölsótast yfir Ísraelsríki svo lengi sem elstu menn muna.

Ekki man ég eftir ţví ađ  Ögmundur sleppti sér og krefđist ţessa ađ Íslendingar slitu stjórnmálasambandi viđ Rússland ţegar Rússar slátrađu Tétjeníumönnum skipulega.

Viđ getum öll, međ ţví ađ slá inn nafn kappans á Google "and Darfúr", séđ hve mikiđ Mundi hefur sveiflađ sverđinu gegn Súdan á opinberum vettvangi fyrir útrýmingarherferđ múslíma ţar.

Ögmundur Jónasson er lýđskrumari af verstu gerđ eins og margir í hans flokki. Hann er opinber stuđningsmađur samtaka eins og Hamas og Hizbollah, sem lýst hafa vilja sínum til ađ útrýma gyđingum, og t.d. frćndum okkar Dönum.

Hann hefur í fáfrćđi sinni og öfgum líkt Ísraelsríki viđ Ţýskaland nasismans http://www.ogmundur.is/i-brennidepli/nr/1345/ og tönnlast á orđinu ţjóđarmorđ án ţess ađ ţekkja skylgreiningu SŢ á ţví ljóta fyrirbćri. Ţekkir hann ekki mannréttindasáttmála SŢ?

Mig langar í vinsemd ađ benda Ögmundi og hans líkum á ađ kynna sér hvernig EUMC skilgreinir gyđingahatur.  Mér sýnist á öllu ađ ţađ sé best ađ Ísland gangi ekki í Efnahagsbandalagiđ, ţví ţá verđur hćgt ađ stefna Ögmundi fyrir gyđingahatur ef hann heldur uppi samlíkingum milli Hamas og gyđinga i Helförinni. SŢ hafa reyndar sett saman líkar reglur og EUMC, og mér skilst ađ Íslendingar hafi skrifađ undir ţćr.

 

Vinstri Grćnir í Gaza

Medvedev

Mikil tíđindi berast okkur austan úr Kreml. Dimtry Medvedev, sem er meira eđa minna međvitađur hluti af Pútín, sigrađi í forseta.......

Medvedev sést hér ţegar Pútín óskađi honum innilega til hamingju međ sigurinn í gćrkveldi.

 

Moskvunótt

Medvedev segist fylgja stefnu Pútíns í einu og öllu.  Kannski ćtlar hann í enn eina útrýmingarferđ til Tétjeníu?

Flugsýningar gamalla herflugvéla viđ Ísland eru líka ofarlega á óskalista hins mjög međvitađa forseta rússneska lýđ.....

Á Wikipediu stendur ţetta um Medvedev:  

"He is a fan of an Internet slang dialect common among Russian youth, Olbanian (Russian: олбанский язык, transliteration: olbansky yazyk), and has said he believes it should be studied in schools to promote greater literacy in the Internet and modern culture in Russia. He has said he believes in the legitimacy of alternative languages used on the Internet".

Medvedev skilur ţví örugglega ţessa fćrslu mína og líka sendimenn hans í rússneska sendiráđinu.

Поздравляю вас! 


Hvađ ungur nemur gamall temur

 

Börn deyja ekki án ástćđu

 

Ţeim sem gráta börnin sem deyja á Gaza langar mig ađ tjá hluttekningu mína. Ég samhryggist ykkur en ţykir miđur ađ sum ykkar styđjiđ samtök sem misnota börn.

En jafnframt tel ég ástćđu til ađ minna á ađ:

Sameinuđu Ţjóđirnar og ađrir ađilar hafa margoft ráđlagt Hamas og íbúum Gaza ađ

  1. virđa friđarferliđ
  2. viđurkenna tilverurétt Ísraelsríkis og
  3. hćtta árásum á Ísrael.

Hamas og íbúar Gaza hafa ekki viljađ fara ađ ráđum alţjóđasamfélagsins.

Mér ţykir leitt ađ sjá hvernig nú er komiđ fyrir íbúum Gaza. Mér ţykir leit ađ sjá hvernig ţeir  eyđilögđu húsnćđi og atvinnutćki, sem skilin voru eftir ţegar ţegar ísraelskir landnemar voru fluttir nauđugir frá Gaza fyrir 2 árum. Mér ţykir leitt ađ sjá hvernig íbúar Gaza vilja kalla hernađ og eyđileggingu yfir sig, ţegar ţeir gćtu ţess í stađ byggt upp ţjóđfélag sitt. Mér ţykir leitt ađ sjá marga stuđningsmenn Hamas sem virđast vera drifnir áfram af hatri forfeđra sinna í garđ gyđinga frekar en umhyggju fyrir Palestínumönnum.

Ţeir ćtla Ísraelmönnum ađ kljást viđ óferjandi andstćđinga í "einn á móti einum hernađi". Ţannig virka engin stríđ og ekki er hćgt ađ biđja Ísrael, eitt ríkja heims, ađ fara eftir öđrum reglum en allir ađrir. Hernađarmáttur Ísrael hefur orđiđ til vegna hótana, hćttu og ógnar frá umhverfinu. Hamas vill eyđa Ísrael, en ţeir hafa reiknađ dćmiđ rangt.

Ţađ sem viđ sjáum nú á Gaza er afleiđing haturs. Ţar býr ţjóđ, sem síđan 1948 hefur talađ um eyđingu Ísraelríkis og útrýmingu gyđinga og sem ekki fer ađ ráđum alţjóđasamfélagsins.

Ţeir sem ekki virđa tillögur og tilmćli Sameinuđu Ţjóđanna og annarra samtaka til íbúa Gaza og Hamas, styđja hryđjuverk, afneita tilverurétti Ísraelsríkis og vilja áframhaldandi árásir á Ísrael.

Af hverju styđja sumir Íslendingar ţjóđ og samtök, sem ekki virđir friđarferliđ, sem ekki virđir tilverurétt Ísraels og ekki vilja hćtta árásum á Ísrael?

Svariđ er einfalt: Ţeir Íslendingar vilja ekki friđ.  Afleiđing stuđnings ţeirra viđ Hamas sjá ţeir nú. Lausnin er hins vegar einföld: Virđiđ friđarferliđ, hćttiđ árásum ykkar á Ísrael og standiđ viđ viđurkenningu Íslands á tilvist Ísraelsríkis. Annars getiđ ţiđ, landar mínir sem er annt um friđinn, fariđ ađ byggja ný Auschwitz eins og ćttingjar ykkar annars stađar í Evrópu gerđu fyrir mannsaldri síđan.

Vegna grófra persónulegra árása á mig á bloggi mínu og í tölvubréfum síđustu daga, leyfi ég ekki athugasemdir viđ ţessa fćrslu.

 

Hvađ ungur nemur gamall temur

 


Hver er mađurinn?

 
Who's the hunk

Ţetta er:

  1. hryđjuverkamađur í Brigade Rosso
  2. klámmyndaleikari í Hollywood (hvađa myndum "lék" hann í ?)
  3. ţjónn á Torremolinos
  4. söngvari
  5. ekkert af ofangreindu

Er hann frá:

  1. Grikklandi?
  2. Ísrael?
  3. Hornafirđi? (ţá er hann klámmyndaleikari)
  4. Osló?
  5. Ekkert af ţví ofangreinda

Hvenćr er myndin tekin?

  1. 1972
  2. 1980
  3. 1986
  4. 2007
  5. Myndin er tilbúningur

Og loks einföld spurning fyrir konur:

  1. er hann ekki sćtur?

 


Closed to import

 

Closed to import

 

Í mars áriđ 1924 tóku Íslendingar á ţađ ráđ ađ setja á innflutningsbann og hömlur á ýmsar "óţarfar" vörutegundir. Menn höfđu á Alţingi lengi veriđ ósáttir viđ hve óstöđugt gengi krónunnar hafđi veriđ í bönkum landsins. Eitthvađ varđ ađ gerast. Gengi krónunnar var meira ađ segja hćkkađ!

Ég kannast ekki viđ áhrif ţessa innflutningsbanns og eins árs gengishćkkunar, enda kom ţessi "kreppa" ekki niđur á mér. Hins vegar bárust fréttir um allan heim af ţessum ráđstöfunum Íslendinga.

Blađ nokkuđ í New York, The Knickerbocker Press í Albany, ţótti ţessi ákvörđun Alţingis mjög merkilegt og skrifuđu menn ţar á bć heila opnu um hana og Íslendinga undir yfirskriftinni Back to Primitive Caveman Life, og undirfyrirsögnin var:

"Isolated People of Iceland Decide to Prohibit Importation of Effete Modern Luxuries, to Scramble, Robinson Crusoe Fashion, for Existence the Next Two Years as Did Their Eearly Ancestors".

Ţetta var hin undarlegasta grein og myndirnar og teikningarnar, sem voru međ greininni, voru sér í lagi merkilegar. Dćmi um ţađ sést hér ađ ofan.

Öll ţau ár sem ég hef komiđ í mína árlegu heimsókn til Íslands (eđa oftar), og ţau rúm ţrjú ár sem ég bjó ţar, 1993-96, hefur mér blöskrađ kaupćđi Íslendinga og hirđuleysi um eigur sínar og eyđsluţörf ţeirra og flottrćfilshátt.

Eitt sinn kom ég á bóndabć í Borgarfirđi. Ţar átti bóndinn risastóra skemmu, fulla af ónytsömum "leikföngum" mótordrifnum, og ţvíumlíku. Helmingurinn var reyndar í lamasessi og hafđi líkast til ţess vegna veriđ hent út í ţessa risastóru skemmu. Inni hjá bónda í eldhúsinu, ţar sem mér var bođiđ í kaffi međ samstarfsmanni mínum, var hins vegar allt frekar hrörlegt.

Ég hef ekkert á móti kapítalisma, enda tel ég ađ ofeyđsla og ofneysla séu ekki samferđar"konur" kapítalismans. Hins vegar er óheft ofurneysla og loftkastalabygging eins og sést á Íslandi dćmi um ađ menn geta orđiđ fórnarlömb kapítalismans.

Er ekki  kominn tími til ađ rifa seglin? Annars er ég hrćddur um ađ ástandiđ á Íslandi verđi eins og á teikningunni af Íslendingum í Knickerbockers Press áriđ 1924, nema ađ ţví leyti ađ enginn verđur báturinn sem siglir ađ landi međ varning.


Kryddsíld og kryddađar fréttir

 
Vigga og Magga

13. janúar 1981 greindi Morgunblađiđ frá ţví í rammagrein á baksíđu, ađ Vigdísi Finnbogadóttur hefđi veriđ bođiđ í kryddsíld af Margréti Ţórhildi Danadrottningu, međ 200 blađamönnum ţeim til yndisauka viđ síldarátiđ. Heimildin var Berlingske Tidende.

Eitthvađ blađamannagrey á Morgunblađinu var ekki sleipari í dönsku en ţađ, ađ hann ţýddi "krydsild" međ kryddsíld og taldi Íslendingum trú um ađ Vigga vćri ađ fara í kryddsíldarveislu međ snaps og hele molevitten. Magga drottning hafđi vissulega ekki bođiđ Viggu í síldargilli, heldur í "krydsild", sem nú á dögum er oft notađ um blađamannafundi, ţótt upphafleg merking orđsins sé úr hernađi, ţar sem menn gátu lent í ţví sem ţýtt hefur veriđ tvíeldar á íslensku. Ţessi vitleysa Moggans var auđvitađ leiđrétt og hörmuđ. Ţessi meinta kryddsíldarveisla hennar hátignar Margrétar Danadrottningar ţótti mér afar fyndin (ég var ţá nýfluttur til Danmerkur haustiđ 1980) og segi ég ţessa sögu alltaf ţegar ég er međ kryddsíld á borđum. Ég ţarf ekki einu sinni ađ krydda hana.

Í gćr greindi mbl.is frá ţví ađ Ísraelsmenn hótuđu Palestínumönnum helför á Gaza. Heimildin var BBC og fréttin var vel krydduđ.

Ég benti á ţađ í gćr í athugasemd viđ frétt netmoggans ađ frétt BBC hafđi veriđ breytt, ađ minnsta kosti í tvígang. Í ljós er komiđ ađ fréttamenn BBC ţekkja ekki notkun og margar merkingar orđsins "shoa" á hebresku. Ţađ orđ notađi ráđherra í Ísrael um hugsanlegar ađgerđir á Gaza ef Hamas léti ekki af árásum sínum á saklaust fólk í Ísrael.

Mbl.is er ekki ekki búiđ ađ leiđrétta villuna í fréttinni, sem sopin var upp af BBC í gćr međan BBC hélt ţví enn fram ađ ísraelski ráđherrann vćri ađ hóta Hamas helför. BBC hafi nú breytt frétt sinni svo varla er hćgt ađ ţekkja hana lengur. Mbl.is hefur greinilega ekki fylgst međ.

Íslenskir nasistabloggarar, vinstrimenn og ađrir sjúklingar flykktust ađ til ađ setja athugasemdir sína viđ fréttina á mbl.is, og sömuleiđis til ađ lýsa veiklyndri skođun sinni á gyđingum og Ísrael. Og ţađ er ekki lítiđ sem sagt var. Ég fékk m.a. ţessa athugsemd viđ leiđréttingu mína á frétt moggabloggsins í gćr:

"Af hverju gat Hitler ekki klárađ dćmiđ og beđiđ međ innrásina í Sovétiđ á međan hann hreinsađi betur til í ţeim löndum sem hann hafđi?????

Nú er reyndar tími fyrir okkur hin ađ redda ţessu"

Ef hćgt er ađ dćma mann í 800.000 króna sekt fyrir einhver afar ómerkileg ummćli um annan mann á moggabloggi, eru svona ummćli ţá ekki góđ ástćđa til ţess ađ benda umheiminum á ađ Ísland á ekkert erindi í Öryggisráđ SŢ. Landiđ er nefnilega fullt af fólki međ meiriogminnimáttákend, svo sem nasistum og kynţáttahöturum. Kveđjurnar sem menn fá viđ komuna til Nazíslands eru orđnar afar kaldar.


« Fyrri síđa

Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bćkur

Kynning á nokkrum fćrslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband