Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Menning og listir

Segðu að þú sért sorrý, Óli !

Herópið

Vegna fyrirspurnar um að mér sé alvara með fyrirsögninni, bæti ég þessu við nokkrum tímum síðar. Kaldhæðni is my middle name.

Ólafur sagði þetta á RÚV í gær:

 

"Í raun og veru var hann að reyna knýja á um tvennt, annað hvort að ég bæðist afsökunar á framferði Dana, og bæðist fyrirgefningar á því sem þeir hefðu gert, þeirri móðgun, þeirri ögrun þeirri svívirðu - hann notaði mjög sterk orð -  sem Danmörk hafði sýnt  með þessum skopteikningum og auðvitað var það ekki í mínum verkahring að gera það. Og satt að segja átti ég ekki von á því að það mál væri enn svo lifandi og heitt í þessum heimshluta, að þegar þessi öflugasta sjónvarpsstöð í Arabaheiminum fengi forseta Íslands í viðtal,  að þá væri nauðsyn að setja það á dagskrá og ræða það all ítarlega eins og hann vildi gera."

Í dag geta þeir Íslendingar sem horfa á Al Jazeera heyrt hvernig forsetinn svaraði spurningum fréttamannsins, sem eins og meginþorri múslíma álítur að hinn gjörvalli vestræni heimur sé vondur og kenna honum um allar ófari sínar síðan Múhameð fæddist. Það er leiðinlega árátta.


mbl.is Vildu að forsetinn bæðist afsökunar á framferði Dana
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hinn margsaga Johnny Bosnitch

 
peace

 

Ég leyfi mér að furða mig á þessari yfirlýsingu Hr. Bosnitchs um að hann hafi verið vitni við brúðkaup Bobby Fischers og Myoko Watais.

Þegar Fischer var leystur úr haldi sagði Hr. Bosnitch aldrei annað en að Myoko Watai væri unnusta Fischers. Hann talaði um að hann ætlaði í mál við japönsk yfirvöld fyrir Bobby Fischer, þessi viðbjóðslegu yfirvöld, sem Fischer kallaði svo, um það leyti sem Bobby Fischer vildi gerast þýskur borgari.

Það var kannski ástæða til að leyna þessum hjúskap þangað til nú? Sér John Bosnitch einhverja sérstaka þörf á því að segja Íslendingum sannleikann nú?

Þegar Hr. Bosnitch talaði við umsjónarmann ástralsks útvarpsþáttar, sem ber nafnið PM kl. 18:29 þann 4. mars 2005 sagði hann þetta:

"His lawyer's not been able to visit him. He has been denied his telephone rights, which he had every day in the past. His fiancé has been not [sic] allowed to meet with him and most insultingly, the Icelandic delegation that flew around the entire globe and gave advanced written notice and fax notice that they were coming, they were refused permission to meet with him."

Þegar Bosnitch talaði við PM, virðist brúðkaupið sem talað var um árið áður enn ekki hafa átt sér stað. Hvenær giftist þá Watai Bobby Fischer?  Þegar þessi frétt Reuters var skrifuð var brúðkaupið ekki orðið að veruleika. Meira að segja þegar þetta var skrifað virðast menn ekki hafa verið í vafa um það á Íslandi að Myoko Watai væri aðeins unnusta Fischers.

Allur vafi ætti samt að vera úr sögunni á næstu dögum. Frumgögn úr japanska fangelsinu eru væntanleg til Íslands, hins hugrakka lands hins sannarlega frjálsa manns, eins og Bosnitch orðar það. Hugrakkt land (Serbía) og frjálsir menn hafa reyndar líka verið drifkrafturinn í öðrum skrifum Bosnitch um óskir alþjóðasamfélagsins um réttarhöld yfir serbneskum stríðsglæpamönnum. Bosnitch hefur í mjög tilfinningaríkum bréfum um skoðanir sínar á því að Serbía eigi að halda sig utan Evrópubandalagsins lýst þessu yfir: "Let's stay in step with people like the British UKIP (Independence Party), Switzerland, and Iceland... people who know the difference between a con and a good deal".

Gera Íslendingar það?

 


mbl.is Segist hafa verið vitni að giftingu Fischers og Watai
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stuðningshópur Jinky Ong Fischers

 
justitia

 

Síðustu daga hefur verið rætt opinberlaga um arfinn eftir Róbert J. Fischer. Í umfjöllun fjölmiðla virðist sem Jinky Ong Fischer, meint dóttir Fischers á Filippseyjum, hafi þegar verið útilokuð frá því að erfa eitt eða neitt eftir föður sinn.

Miðað við aðrar upplýsingar um Jinky Ong, verður þó að gera ráð fyrir því að hún geti verið dóttir hans. Það verður auðvitað að sanna, líkt og Watai, meint eiginkona Fischers, þarf að sanna að hún hafi gifst Fischer.

Greta Björg Úlfsdóttir kom með mjög áhugaverða punkta á bloggi sínu í gær, og á síðustu færslu mína um dóttur Fischers. Hún stakk upp á stuðningshópi fyrir Jinky Ong Fischer.

Ég leyfi að taka undir þá tillögu og legg til að fólk skrifi hér í athugasemdir eða á bloggsíðu Gretu, að það vilji styðja slíkan hóp. Í framhaldi af því yrði hægt að stofna stuðningshópinn formlega og finna lögfræðing sem gæti varið rétt Jinky Ong.

Markmið hópsins myndi vera:

  1. Að komast úr skugga um hvort Jinky Ong er dóttir Fischers.
  2. Að stuðla að því að haft verði upp á henni hið fyrsta.
  3. Að stuðla að því að hún komist til Íslands.
  4. Að stuðla að því að hún erfi föður sinn (reynist meint faðernið rétt), samkvæmt íslenskum lögum.

Ef slíkur hópur er þegar til, ber að fagna því og myndu þeir sem styðja slíkt átak hér væntanlega ganga í og styðja þann hóp.


Minnispunktur til Moggans

Fischer und Adler

Ég leyfi mér að minna Morgunblaðið á, að það telst til kurteisi í bloggheimum að minnast kannski á bloggarann sem fyrst vekur athygli á frétt. Hver vakti athygli á fréttinni í filippseyska blaðinu Inquirer? Það voru ekki fjölmiðlar heldur:

http://www.postdoc.blog.is/blog/postdoc/entry/419457/

Það ber að fagna yfirlýsingu Helga Ólafssonar. Vonandi verður ekki búið að hrifsa smáaura Fischers áður ein Jinky Ong Fischer kemur til landsins.


mbl.is Dóttir Fischers kom hingað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hverju hafa Katarar áhuga á?

 
Emir, Emir and Vesir

Ég er hér með góða útflutningshugmynd fyrir Íslendinga. Í Quatar er mikil eftirspurn eftir fálkum.

Vinur minn, hann Al Ali í Qatar, kaupir fálka. Opnið heimasíðu Alis og sannfærist. Hann er svo sannarlega Smooth Operator.

Össur getur örugglega gefi nokkrar undanþágur á Íslandsfálka til Quatar. Undanþágur á friðanir eru hans sérgrein (meira um það seinna). Hér er upplýsingasíða þar sem Össur getur fundið sér upplýsingar á áhuga Katara.

 

Emírinn og Íslendingurinn
Þetta er mynd af verndara Qatar og friðaða fuglinum hans

Svo er líka hægt að gefa Emírnum fálkaorðuna!

 


mbl.is Stjórnvöld í Katar hafa áhuga á náinni samvinnu við Íslendinga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Spurningar til Flóabandalagsins

  Gröf gyðingsins

Nú þegar Bobby Fischer hefur verið fundinn staður til hinstu hvílu, vakna nokkrar áleitnar spurningar.

Af hverju voru sumir stuðningsmenn hans að skemmta þjóðinni með því að stinga upp á Þingvallagrafreitnum, meðan aðrir þeystust með hann út í Flóa með kaþólskan prest sér til handargangs og án nánasta ættingja Fischer, dóttur hans? Var hann kaþólikki (Jón Valur, hvað segir þú?). Dóttir hans er kaþólikki. Einhver ættmenni, systrabörn, sem bera ættarnafnið Targ og aðhyllast gyðingatrú, og japanska unnustan sem heldur úti þessum ósóma fyrir heitmann sinn á vefnum, komu í Flóann. Og svo var Garðar Sverrisson æðsti prestur. Var þetta hinsta ósk Fischers?

Svo var hann grafinn á besta stað rétt við fordyri Laugardælakirkju án vitundar sóknarprestsins???????? og af pápískum preláta. "Gyðingur" greftraður í lúterskum reit af kaþólskum pater. Hvað verður það næsta?

Voru einhverjar óskir frá hinum látna meistara um kross eða legstein, eða er Garðar Sverrisson líka aðalheimildamaðurinn um það, og er kannski búinn að panta einn með þessari áletrun: "USA treated him worse than the Nazis treated the Jews in Auschwitz" sbr. http://malefnin.com/ib/lofiversion/index.php/t43657.html


Ólafur Arabí

Minn forseti

Nú er rétt ár síðan að ég skrifaði um Ólaf Indíafara.  Nú kemur ný saga úr röð ævintýra Ólafs. Ólafur í Arabí.

Eins og annar "þekktur" netskrifari og miðaldafræðingur, sem líka skiptir hárum í miðju eins og ég, (hann var í sjónvarpinu í gær), tel ég að Íslendingar ferðist allt of mikið. En við getu ekki öll verið heimalningar og forsetar verða náttúrulega að ferðast og tala máli lands síns. Þannig er það nú einu sinni. Það eru heldur ekkert lát á ferðagleði Ólafs víðförla.

Nú er forsetinn minn farinn í sólarlandaferð til Katar (Qatar) og annarra landa hálfmánans í nágrenninu. Það er auðvitað alltaf gaman þegar þjóðhöfðingjar tveggja ríkja, sem nýlega eru hættir í hirðingjamenningunni, hittast og ræða um búpening sinn. Kadarar misnota indverska verkamenn meðan Íslendingar þrælka pólskum. Margt er því líkt með þessum tveimur menningarþjóðum.

Miðað við hvað menn teikna í blöðin í Katar, sýnist mér að almenningsálitið sé nokkuð svipað og á Íslandi.  Í báðum löndum líkja menn Þýskalandi nasismans við Ísrael.  Hér höfum við gott íslenskt dæmi frá helsta talsmanni Hamas á Íslandi og hér fara á eftir nokkur dæmi af rómaðri listfengni Katara.

 

qatar2

 

Quatar1

 

qatar8

Meira hér og hér

Út frá því sem ég sé í katörskum dagblöðunum, mæli ég með því að Óli taki ekki Dorrit sína með sér. Þeim líkar ekki við fólk eins og hana. En kannski bjargast þetta. Hún verður líklega undir slæðu allan tímann, svo þeir sjá ekki hvaða snót Óli tekur með sér úr Bessastaðahareminu.

En sumum þykir Katar greinilega gott land og einhverjir íslenskir hirðingjar hafa greinilegar sótt um að kaupa ódýrar íbúðir í Doha . Enda býr þarna fólk, sem kann sig eins og Íslendingar. Emírinn hans hátign Sheikh Hamad bin Khalifa Al Thani og sonur hans, Al Thani jr., sendu báðir emírnum á Bessastöðum árnaðarskeyti á 17. júní í fyrra.

Það er ekki að furða að Ólafur Ragnar Grímsson sé ólmur í fjögur ár til viðbótar. Hver vill ekki fá skeyti frá Katar, svo ekki sé talað um skeyti frá Gaza. Ég meina ekki flugskeyti.


Dóttir Fischers

 Baby Fischer

 

Hvað erfir dóttir Róberts Fischers?

Nú þegar menn virðast farnir að rífast um hvar eigi að jarðsetja Bobby Fischer, er kannski best að spyrja hver á að sjá um dóttur hans á Filippseyjum? Hún er dóttir Íslendings og ætti að geta sest að á Íslandi, sérstaklega ef eitthvað er eftir af búi Bobba.

Sýnum nú stórhug og bjóðum þessum nánasta ættingja hans og barnsmóður hennar til Íslands!

 

baby_chess

 


Bless Bobby

Bobby
 

Frægasti Íslendingurinn fyrir utan Jón Sig..., afsakið Björk, er látinn - en heimasíða hans er enn opin: http://home.att.ne.jp/moon/fischer/ Hún fjallar því miður ekki um skáklistina.

Íslendingar eru gott fólk, að gefa hálfómögulegum manni húsaskjól, þegar aðrir vildu kasta honum í dýflissu og fyrir ljón. Ég var líka voðalegur vondur við hann árið 2005, þegar hann kom til Íslands á sérfyrirgreiðslu, meðan að öðrum flóttamönnum er úthýst. Egill Helgason átalaði mig fyrir þetta í mikilli grein, þar sem Ísraelsríki endaði með að verða skúrkurinn, eins og venjulega.

Ég er búinn að heyra nokkur eftirmæli um meistara svarthvíta borðsins í dag og þótti best orð Garry Kasparovs á CNN og Braga í Bókinni, þar sem Bobby mun hafa líkað andrúmsloftið eins og mörgum öðrum.

Nú vona ég bara að Bobby sé kominn á rétta staðinn. Einhvers staðar sem hrókur alls fagnaðar á taflborði eilífðarinnar, en vonandi ekki í sjöunda himinn með öllum gyðingunum, sem hann hataði svo mikið. Sjálfshatur er auðvitað ekki mjög íslenskt fyrirbæri. Þess vegna held ég að Bobby hafi heldur aldrei orðið ekta Íslendingur þrátt fyrir vegabréfið góða, sem hann fékk þó aldrei stimplað í erlendri höfn. Vondandi viðurkenna menn það fyrir handan.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bækur

Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband