Leita í fréttum mbl.is

Bless Bobby

Bobby
 

Frægasti Íslendingurinn fyrir utan Jón Sig..., afsakið Björk, er látinn - en heimasíða hans er enn opin: http://home.att.ne.jp/moon/fischer/ Hún fjallar því miður ekki um skáklistina.

Íslendingar eru gott fólk, að gefa hálfómögulegum manni húsaskjól, þegar aðrir vildu kasta honum í dýflissu og fyrir ljón. Ég var líka voðalegur vondur við hann árið 2005, þegar hann kom til Íslands á sérfyrirgreiðslu, meðan að öðrum flóttamönnum er úthýst. Egill Helgason átalaði mig fyrir þetta í mikilli grein, þar sem Ísraelsríki endaði með að verða skúrkurinn, eins og venjulega.

Ég er búinn að heyra nokkur eftirmæli um meistara svarthvíta borðsins í dag og þótti best orð Garry Kasparovs á CNN og Braga í Bókinni, þar sem Bobby mun hafa líkað andrúmsloftið eins og mörgum öðrum.

Nú vona ég bara að Bobby sé kominn á rétta staðinn. Einhvers staðar sem hrókur alls fagnaðar á taflborði eilífðarinnar, en vonandi ekki í sjöunda himinn með öllum gyðingunum, sem hann hataði svo mikið. Sjálfshatur er auðvitað ekki mjög íslenskt fyrirbæri. Þess vegna held ég að Bobby hafi heldur aldrei orðið ekta Íslendingur þrátt fyrir vegabréfið góða, sem hann fékk þó aldrei stimplað í erlendri höfn. Vondandi viðurkenna menn það fyrir handan.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Bjarni Kjartansson

Ef marka má Kirkjuföður okkar sem teljums Evangel KLutherskir, er fátt Júða(Gyðinga) í Paradís.

Hann sagð nenilega í sínum ritum nánast orðrétt.  ,, ó þú Kristni maður, mundu það og geymdu næst hjarta þínu, að þú átt engann arvítugri og heiftúðugri andstæðing, næst Djöflinum en sannann Gyðing (Júða í sumum þýðingum).

Og þar sem við teljum Nýja Testamenntið lykil að Paradís, er ólíklegt mjög, að þar fyrir í fletum, séu margir þeirrar trúar, sem þú telur verða í ,,Sjöunda himni"

Miðbæjaríhaldið

Sannkristinn, að eigin áliti.

Bjarni Kjartansson, 18.1.2008 kl. 15:18

2 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Þeir sem verða í sjöunda himni verða að sjálfsögðu ekki í sömu skítaparadísinni og múslímar og áhangendur Marteins Lúthers. Heldurðu að Drottinn leggi á gyðinga að vera áfram með ykkur á eftir sér, alla skakka og skelfda af synd og heiftaræði? Þakkið bara fyrir að hann sendi ykkur ekki niður til Belsebubba.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 18.1.2008 kl. 15:41

3 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Lærifaðir okkar Lúther hafði sannarlega illar bifur á gyðingum og var óþreytandi að vara við þeim.

Annars tek ég innilega undir með góðum og skáldlegum orðum þínum:

"Nú vona ég bara að Bobby sé kominn á rétta staðinn. Einhvers staðar sem hrókur alls fagnaðar á taflborði eilífðarinna" 

Heyr! Mæl þú manna heilastur. 

Sigurður Þórðarson, 18.1.2008 kl. 17:55

4 Smámynd: Björn Heiðdal

Það eru bara bókaormar sem halda að þeir viti allt.  En Guð er ekki bók og varla neitt annað.  Varðandi hatur gyðinga á öðrum gyðingum er Bobby besta dæmið en afhverju í ósköpunum er ekki talað meira um þann vinkil málsins.  Ef gyðingar eru Guðs útvalda þjóð og það sem þeir segja og gera er eitthvað merkilegra er þá ekki rausið í Bobby himneskt eyrnakonfekt?

Björn Heiðdal, 19.1.2008 kl. 01:02

5 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Björn Heiðdal, þú ert þá greinilega bókaormur? Ég skil vanda þinn með að skilja þetta. Jafnvel tískuprestar á Íslandi hafa tekið sömu hæð í pólinn varðandi þjóð Jesú Krists.

Bobby Fischer var sonur tveggja gyðinga, þótt að móðir hans hefði feðrað hann með þjóðverja sem gat ekki verið faðir hans, þar sem hann var á Kúbu og móðirin í USA þegar meint samræði þeirra mun hafa átt sér stað. Ef það hefur átt sér stað, gekk mamma Bobba með hann í 1,9 ár. En gyðingur var hann samkvæmt lögmálinu, þar sem móðir hans var gyðingur.

Í öðru lagi var Bobby ekki alinn upp sem gyðingur, en hjá hálfruglaðri móður, sem var f.f. kommúnisti, og hún eyðilagði barnæsku hans með því að halda sellufundi á kvöldin svo Bobby gat ekki sofið fyrir háværri nómenklatúru í stofunni. Bobby lýsti því snemma yfir að hann væri ekki gyðingur og bauðst til að senda mynd af honum litla sínum til bandarískra yfirvalda til að sanna það að hann væri ekki umskorinn. Þar af leiðandi verður að gefa honum það eftir. Hann var aðeins gyðingahatari og heimsmeistari í skák.

Í þriðja lagi, hugtakið "Guðs útvalda þjóð" er misskilningur kristinna, sem svo gjarna vilja vera það. Ég hélt alltaf að Íslendingar væru það, auðvitað í harðri samkeppni við Bandaríkjamenn.

Am Nivchar (valið fólk) á hebresku hefur verið þýtt sem "Guðs útvalda þjóð". Skilningur gyðinga á vali sínu á Herranum á ekkert skylt við þann kristna, germanska miðaldaskilning og þýðingarvillu, sem enn ríður fjöllum meðal ófróðs fólks er hatast út í þjóðir og trúarbrögð, sem það þekkir ekki neitt.

Þú ert fróðleiksfús Heiðdal, hér getur þú lesið þér til um hugtakið Am Nivchar http://www.aish.com/literacy/concepts/The_Chosen_People.asp

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 19.1.2008 kl. 08:07

6 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Það getur varla verið að þú teljir þig lútherstrúar Vilhjálmur? Lúther varaði ekki  eins sterkt við nokkrum trúarbrögðum en gyðingdóm og vildi  láta brenna allar sínagógur.

Sigurður Þórðarson, 19.1.2008 kl. 10:14

7 Smámynd: Loftur Altice Þorsteinsson

Þú vísar þarna Vilhjálmur í góðar og þarfar útskýringar á "Am Nivchar". Eins og líklega allur átrúnaður, er Gyðingatrú ekki bundin við kynþátt. Að tala um "útvalda þjóð" er því fjarstæða, því að þjóð merkir allt annað en trúar-samfélag. Björn Heiðdal hefur flaskað á þessu, eins og svo margir aðrir.

Þrátt fyrir ágæti nefndrar ritgerðar, get ég ekki setið á strák mínum að gera eina athugasemd. Þarna er talað um God, en Gyðingar tilbiðja ekki God (Gvuð) heldur Yahweh (Yah-weh). Gyðingar hafa ekki valið sér Gvuð til átrúnaðar heldur Yahweh, sem raunar er samsett orð sem komið er úr Forn-Egyptsku.

Þessi villa, að þýða Yahweh með orðinu God (Gvuður), stafar af þráhyggju þeirra sem aðhyllast eingyðis-trú. Ef þeir viðurkenna að Yahweh og Gvuður eru tveir gvuðir, hafa þeir um leið viðurkennt að til eru fleirri en einn gvuður. Þar með er hugmyndin um einn gvuð fallin.

Menn ættu að viðurkenna, að gvuðir eru margir og eiga sér mismunandi uppruna og átrúnað. Eftir sem áður geta þeir tilbeðið sinn "eina sanna" gvuð, eða aðgreint Hann með einhverjum öðrum hætti. Þetta tal um að Gvuð sé einn, lýsir rökþrotum og er álíka barnaleg þrætulist og að endurtaka "víst, víst, víst".

Loftur Altice Þorsteinsson, 19.1.2008 kl. 10:39

8 Smámynd: Björn Heiðdal

Það er ekki hægt að vita með vissu hvort Guð er bara einn, fleiri eða kannski ekki til.  Eingöngu hægt að geta sér til um það og skrifa síðan eitthvað gáfulegt eða ekki um þessar vangaveltur.

Björn Heiðdal, 19.1.2008 kl. 10:56

9 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Sigurður Þórðarson, hver sagði að ég væri Lútherstrúar? Ert ÞÚ einn af þessum bloggurum sem sér raddir og heyrir sýnir? Það liggur mér mjög fjarri að trúa á þýskan munk.

Björn Heiðdal, ÞETTA ER EKKI TRÚARBLOGG. Jón Valur, og doctorE geta betur séð um tilvistarpælingar sem henta þér. Ég var að minnast Bobby Fischer.

En hvar ætli honum verði potað niður og verður krossað yfir honum?

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 19.1.2008 kl. 11:21

10 Smámynd: Björn Heiðdal

Þessi síða sem þú bendir á segir að öllum hafi verið boðið að gerast útvaldir í gegnum Adam.  En eftir fall hans hafi þessi möguleiki ekki verið lengur á borðinu.  Gyðingar í gegnum Abraham sem kom væntanlega á eftir Adam bauð sína þjónustu fram og Drottinn þáði hana með þökkum.

Svo er sagt að þetta snúist ekki um "race" því gyðingar séu Rússar, Kanar, Asíubúar og Evrópubúar.  Getum við tveir þá bara farið og allir Íslendingar til Ísraels og fengið ríkisborgararétt. Nei, þetta snýst um kynþætti og gen.  

Það dugar ekki að aðhyllast þessi trúarbrögð og fara í einu og öllu eftir þeim ef þú getur ekki sannað blóðtengsl þín.  Þetta er svona svipað eins og Anna Kristjánsdóttir á aldrei eftir að fæða börn.   Síðan gefur annað í skyn og talar um forfaðir Davíðs konungs hafi gerst gyðingur síðar á ævinni.  Hvar er nýjasta dæmið.

Á síðunni segir "Yet while the term "Chosen People" (Am Nivchar) does not mean racially superior, choseness does imply a special uniqueness."

Er þetta ekki bara orðhengilsháttur hjá þér?   

Björn Heiðdal, 19.1.2008 kl. 11:39

11 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Björn Heiðdal, þú getur, ef þú hefur mikla löngun og þörf á því, gerst gyðingur, án þess að vera með ákveðin gen eða stórt nef.

Sumar greinar gyðingdóms myndu taka við þér, þótt þú sért þrætugjarn, og jafnvel frekast þess vegna, en enginn maður krefst neins af þér. Guð þinn mun einn dæma þig.  Þú yrðir að sækja námskeið og fylgja lögmálinu dyggilegar en þeir sem eiga móður, sem er gyðingur. En þrátt fyrir það verður þú ekki útvalinn, frekar en t.d. Spielberg eða Houdini. Þú munt þar að auki uppgötva að það eru fleiri svör við öllum spurningum, (þetta er ekki nein raungrein), og að Drottinn hefur fleiri nöfn en það sem Loftur leikur sér að heimfæra á Egyfta.

Í stuttu máli, þá er flókið að vera gyðingur, en það þyrfti ekki að vera það ef það væru svo margir í heiminum sem eru að drepast úr gyðingafóbíu og öfund, sem er ljótasta kennd mannskepnunnar, og eru öll trúarbrögð sammála um það.  Ert þú öfundsjúkur út í gyðinga Bjössi?

Svo við snúum okkur aftur að Bobby, þá var hann svo óheppinn að teljast gyðingur sökum lögmálsskilgreiningar, sem er alls ekki jafngömul trúnni. Það var enginn að neyða hann til þess, en þetta lá greinilega sem mara á honum. Ég skal ekki segja, hvort hann er laus allra mála nú, en ég vona það svo sannarlega.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 19.1.2008 kl. 12:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bækur

Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband